Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Síminn Interim / Quarterly Report 2022

Aug 23, 2022

2203_rns_2022-08-23_fae0dac6-2ecc-43b0-9d57-a241ced666d4.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

{# SEO P0-1: filing HTML is rendered server-side so Googlebot sees the full text without executing JS or following an iframe to a Disallow'd CDN path. The content has already been sanitized through filings.seo.sanitize_filing_html. #}

img-0.jpeg

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu

  1. janúar til 30. júní 2022

Síminn hf.

Ármúla 25

108 Reykjavík

Kt. 460207-0880


Efnisyfirlit

Bls.

Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra... 2-3
Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu... 4
Efnahagsreikningur... 5
Eiginfjáryfirlit... 6
Sjóðstreymisyfirlit... 7
Skýringar... 8 - 13
Ársfjórðungsyfirlit... 14

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. júní 2022


Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra

Árshlutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning Símans hf. og dótturfélaga hans. Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastáðal um árshlutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið samþykktur af Evrópusambandinu. Árshlutareikningurinn er hvorki endurskoðaður né kannaður af endurskoðendum félagsins.

Hagnaður var af rekstri félagsins sem nam 1.251 m.kr. samanborið við hagnað að fjárhæð 3.502 m.kr. á sama tímabili 2021, þar sem söluhagnaður og hlutdeild í afkomu Sensa ehf. nam 2.124 m.kr. Hagnaður af reglulegri starfsemi nam því 963 m.kr. samanborið við hagnað að fjárhæð 718 m.kr. á sama tímabili 2021. Heildartekjur félagsins á tímabilinu 1. janúar til 30. júní voru 12.129 m.kr. samkvæmt rekstrarreikningi samanborið við 11.955 m.kr. á sama tímabili árið 2021. Eignir félagsins í lok tímabils námu 67.979 m.kr. samkvæmt efnahagsreikningi. Eigið fé nam 29.939 m.kr. og var eiginfjárhlutfallið 44,0%.

Þann 18. október 2021 gekk Síminn hf. til einkaviðræðna við Ardian France SA um sölu á öllum eignarhlut í fjarskiptafélaginu Milu ehf. Þeim viðræðum lauk þann 23. október 2021 með undirritun samnings um sölu á 100% hlutafjár í Milu ehf. Salan var háð hefðbundnum fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins sem tók viðskiptin til umfjöllunar. Samkeppniseftirlitið tilkynnti þann 14. mars sl. að viðskiptin yrðu tekin til frekari rannsóknar. Frestur Samkeppniseftirlitsins til þess að ljúka rannsókn var til 27. júli sl. Sá frestur var framlengdur í tvígang og er nú til 15. september nk.

Þann 22. júli var tilkynnt um breytt samkomulag Símans hf. og Ardian France SA þar sem helstu atriði samkomulagsins fela í sér breytingu á ákvæðum kaupsamnings er lúta að heildarvirði viðskiptanna (e. enterprise value) sem áður var 78 ma.kr., sbr. tilkynningu Símans hf. þann 23. október 2021, að meðtöldum fjárhagslegum skuldbindingum sem kaupandinn yfirtekur. Samkomulag varð um að heildarvirði viðskiptanna skuli nú vera 73 ma. kr. sem er lækkun um 5 ma. kr. Samkvæmt breyttum kaupsamningi fær Síminn hf. greitt á efndadegi um 35 ma. kr. í reiðufé og 19 ma. kr. verða lánaðir í formi skuldabréfs sem Síminn hf. veitir kaupanda til þriggja ára. Skuldabréfið var 15 ma. kr. í fyrra samkomulagi. Leiða þessar breytingar á kaupsamningnum til þess að áæltaður söluhagnaður er nú 41,8 ma. kr., að teknu tilliti til kostnaðar vegna viðskiptanna, sem er lækkun um 4,6 ma. kr. frá því sem tilkynnt var þann 23. október 2021.

Á aðalfundi Símans hf. þann 10. mars 2022 var samþykkt tillaga stjórnar um lækkun á hlutafé félagsins. Lækkun vegna eigin hluta nam 240 m.kr. að nafnvirði, hlutafé lækkáði því úr 7.540 m.kr. í 7.300 m.kr. Á sama fundi var samþykkt tillaga um heimild til kaupa á eigin bréfum félagsins að hámarki 730 m.kr. að nafnverði og tillaga um arð að fjárhæð 500 m.kr. til hluthafa sem félagið greiddi í apríl. Í samræmi við ofangreinda heimild aðalfundar hafa verið keypt eigin bréf að nafnverði 91 m.kr. fyrir 1.107 m.kr. Áður höfðu verið keypt eigin bréf að nafnvirði 256 m.kr. fyrir 2.967 m.kr. að markaðsverði byggt á heimild aðalfundar 2021. Að öðru leyti vísast til árshlutareiknings um breytingar á eigin fé félagsins.

Yfirlýsing stjórnar og forstjóra

Samkvæmt bestu vitneskju stjórnar og forstjóra er árshlutareikningur félagsins í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastáðal um árshlutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið staðfestur af Evrópusambandinu. Er það álit stjórnar og forstjóra að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af rekstrarafkomu félagsins á tímabilinu 1. janúar til 30. júní 2022, eignum, skuldum og fjárhagsstöðu þess 30. júní 2022 og breytingu á handbæru fé á tímabilinu 1. janúar til 30. júní 2022. Jafnframt er það álit stjórnar og forstjóra að árshlutareikningurinn gefi glöggt yfirlit um þróun og árangur í rekstri félagsins og stöðu þess og lýsi helstu áhættuþáttum og óvissu sem félagið býr við.

Síminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. júní 2022


Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra

Stjórn og forstjóri Símans hf. hafa í dag fjallað um árshlutareikning félagsins fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2022 og staðfesta hann með undirritun sinni.

Reykjavík, 23. ágúst 2022

Stjórn

Jón Sigurðsson, formaður

Sigrún Ragna Ólafsdóttir, varaformaður

Arnar Þór Másson

Bjarni Þorvarðarson

Björk Viðarsdóttir

Forstjóri

Orri Hauksson

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. júní 2022


Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu

  1. januar til 30. júní 2022
Skýr. 2022 2021* 2022 2021*
1.4.-30.6. 1.4.-30.6. 1.1.-30.6. 1.1.-30.6.
Sala 5 5.898 5.823 11.855 11.726
Kostnaðarverð sólú 6 ( 3.597) ( 3.692) ( 7.359) ( 7.475)
Framlegð 2.301 2.131 4.496 4.251
Aðrar rekstrartekjur 138 114 274 229
Rekstrarkostnaður 7 ( 1.757) ( 1.702) ( 3.514) ( 3.433)
Rekstrarhagnaður 682 543 1.256 1.047
Fjármunatekjur 90 62 290 226
Fjármagnsgjöld ( 252) ( 140) ( 365) ( 290)
Gengismunur ( 3) ( 21) 2 ( 66)
Hrein fjármagnsgjöld 8 ( 165) ( 99) ( 73) ( 130)
Hagnaður fyrir tekjuskatt 517 444 1.183 917
Reiknaðir skattar ( 107) ( 102) ( 220) ( 199)
Hagnaður og heildarhagnaður af áframhaldandi starfsemi tímabilsins ... 410 342 963 718
Hagnaður af aflagðri starfsemi eftir skatta 13 95 276 288 2.784
Hagnaður og heildarhagnaður tímabilsins 505 618 1.251 3.502
EBITDA 1.399 1.318 2.726 2.592
Hagnaður á hlut
Grunnhagnaður á hlut af áframhaldandi starfsemi 0,05 0,05 0,13 0,09
Þynntur hagnaður á hlut af áframhaldandi starfsemi 0,05 0,05 0,13 0,09
Grunnhagnaður á hlut af aflagðri starfsemi 0,01 0,05 0,04 0,35

*Fjárhæðum vegna 2021 hefur verið breytt vegna sólú á Mílu ehf., sjá skýringu 13.
Skýringar á blaðsiðum 8 - 13 eru óaðskiljanlegur hluti af árshlutareikningnum.

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. júní 2022

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Efnahagsreikningur 30. júní 2022

Skýr. 30.6.2022 31.12.2021
Eignir
Fastafjármunir
Rekstrarfjármunir 2.195 2.219
Leigueignir 690 753
Óefnislegar eignir 19.191 19.403
Aðrar eignir 9 669 675
Fastafjármunir 22.745 23.050
Veltufjármunir
Birgðir 10 1.140 923
Viðskiptakrófur 11 1.994 2.234
Aðrar skammtímakrófur 12 3.512 3.082
Handbært fé 1.365 3.509
Eignir flokkaðar til sölu 13 37.223 36.929
Veltufjármunir 45.234 46.677
Eignir samtals 67.979 69.727
Eigið fé
Hlutafé 7.158 7.314
Yfirverðsreikningur 1.543 3.278
Annað eigið fé 154 154
Annað bundið eigið fé 2.347 2.020
Óráðstafað eigið fé 18.737 18.313
Eigið fé 29.939 31.079
Skuldir
Langtímaskuldir
Skuldabréfalán 5.949 5.943
Leiguskuldbindingar 594 653
Tekjuskattsskuldbinding 14 406 604
Langtímaskuldir 6.949 7.200
Skammtímaskuldir
Skammtímálán 332 1.518
Viðskiptaskuldir 2.621 2.141
Næsta árs afborganir leiguskuldbindinga 182 180
Skattar til greiðslu 963 894
Aðrar skammtímaskuldir 15 1.161 889
Skuldir sem tengjast eignum sem flokkaðar eru til sölu 13 25.832 25.826
Skammtímaskuldir 31.091 31.448
Skuldir samtals 38.040 38.648
Eigið fé og skuldir samtals 67.979 69.727

Skýringar á blaðsiðum 8 - 13 eru óaðskiljanlegur hluti af árshlutareikningnum.

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. júní 2022

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Eiginfjáryfirlit 30. júní 2022

Hlutafé Yfirverðs-reikningur Annað eigið fé Annað bundið eigið fé Óráðstafað eigið fé Eigið fé samtals
Eigið fé 1.1.2021 8.483 13.041 154 674 14.946 37.298
Hagnaður og heildarhagnaður tímabilsins 3.502 3.502
Þýðingarmunur 1 1
Greiddur arður (0,05953 á hlut) ( 500) ( 500)
Hlutafjárlækkun ( 890) ( 7.077) ( 7.967)
Keypt eigin bréf ( 127) ( 1.069) ( 1.196)
Fært á bundið eigið fé 697 ( 697) 0
Eigið fé 30.6.2021 7.466 4.895 154 1.372 17.251 31.138
Eigið fé 1.1.2022 7.314 3.278 154 2.020 18.313 31.079
Hagnaður og heildarhagnaður tímabilsins 1.251 1.251
Greiddur arður (0,069 á hlut) ( 500) ( 500)
Keypt eigin bréf ( 156) ( 1.735) ( 1.891)
Fært á bundið eigið fé 327 ( 327) 0
Eigið fé 30.6.2022 7.158 1.543 154 2.347 18.737 29.939

Skýringar á blaðsíðum 8 - 13 eru óaðskiljanlegur hluti af árshlutareikningnum.

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. júní 2022

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Sjóðstreymisyflrit 1. janúar til 30. júní 2022

Skýr. 2022 2021* 2022 2021*
1.4.-30.6. 1.4.-30.6. 1.1.-30.6. 1.1.-30.6.
Rekstrarhreyfingar
Rekstrarhagnaður samkvæmt rekstrarreikningi 682 543 1.256 1.047
Rekstrarliðir sem ekki hafa áhrif á fjárstreymi:
Afskriftir 717 775 1.470 1.545
Söluhagnaður varanlegra rekstrarfjármuna 0 0 ( 4) ( 1)
1.399 1.318 2.722 2.591
Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum:
Birgðir, lækkun (hækkun) 13 163 ( 293) 43
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur, lækkun (hækkun) 264 ( 362) 6 460
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir, (lækkun) hækkun ( 109) 406 768 938
Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum 168 207 481 1.441
Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta 1.567 1.525 3.203 4.032
Innborgaðir vextir 91 124 179 233
Greiddir vextir ( 242) ( 78) ( 355) ( 302)
Greiddir skattar ( 209) ( 219) ( 348) ( 439)
Handbært fé frá rekstri 1.207 1.352 2.679 3.524
Fjárfestingarhreyfingar
Fjárfesting í rekstrarfjármunum ( 271) ( 218) ( 377) ( 498)
Fjárfesting í óefnislegum eignum ( 604) ( 426) ( 757) ( 831)
Söluverð rekstrarfjármuna 0 0 4 7.692
Skuldabréfaeign, breyting ( 50) ( 166) ( 169) ( 261)
Greiðsla á láni og lækkun hlutafjár dótturfélags 13 0 12.000 0 12.000
Áhrif af aflagðri starfsemi 13 0 8.334 0 445
Sala á eignarhlutum í dótturfélögum, að frádregnu handbæru fé 0 2.834 0 2.329
Sala á félagi 0 0 152 0
Fjárfestingarhreyfingar ( 925) 22.358 ( 1.147) 20.876
Fjármögnunarhreyfingar
Greiddur arður ( 500) ( 500) ( 500) ( 500)
Kaup eigin bréfa ( 961) ( 447) ( 1.891) ( 1.196)
Útgreitt hlutafé 0 ( 7.968) 0 ( 7.968)
Tekin ný langtímalán 0 0 0 6.000
Afborganir langtímalána 0 0 0 ( 15.429)
Afborganir leiguskuldbindinga ( 47) ( 42) ( 93) ( 85)
Skammtímalán, breyting ( 1.168) ( 8.482) ( 1.186) 1.018
Fjármögnunarhreyfingar ( 2.676) ( 17.439) ( 3.670) ( 18.160)
(Lækkun) hækkun á handbæru fé ( 2.394) 6.271 ( 2.138) 6.240
Áhrif gengisbreytinga á handbært fé 0 ( 5) ( 6) ( 12)
Handbært fé í byrjun tímabilsins 3.759 697 3.509 735
Handbært fé í lok tímabilsins 1.365 6.963 1.365 6.963

*Fjárhæðum vegna 2021 hefur verið breytt vegna sölu á Milu ehf., sjá skýringu 13.
Skýringar á blaðsiðum 8 - 13 eru óaðskiljanlegur hluti af árshlutareikningnum.

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. júní 2022

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

1. Starfsemi

Síminn hf. er hlutafélag og starfar á grundvelli laga nr. 2/1995 um hlutafélög. Höfuðstöðvar félagsins eru að Ármúla 25 í Reykjavík. Samstæðuárs hlutareikningur fyrir tímabilið janúar til júní 2022 hefur að geyma árs hlutareikning félagsins og dótturfélaga þess sem vísað er til í heild sem „félagsins“ og til einstakra félaga sem „dótturfélaga“.

Meginstarfsemi félagsins er á sviði fjarskipta og afþreyingar.

2. Grundvöllur reikningsskilanna

Yfirlýsing um að alþjóðlegum reikningsskilastöðlum sé fylgt

Árs hlutareikningur félagsins er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastöðal um árs hlutareikninga, IAS 34. Samandreginn árs hlutareikningur Símans hf. inniheldur ekki allar þær upplýsingar sem krafist er í fullbúnum ársreikningi og ætti að lesa í samhengi við ársreikning félagsins fyrir árið 2021. Valdar skýringar eru með árs hlutareikningnum til að skýra og upplýsa um rekstur félagsins á tímabilinu og breytingar á fjárhagslegri stöðu frá síðasta ársreikningi.

Hægt er að nálgast ársreikninginn á vef félagsins, www. siminn.is og á vef Kauphallar Íslands: www.nasdaqomxnordic.com.

Stjórn og forstjóri félagsins samþykktu árs hlutareikninginn og heimiluðu birtingu hans á stjórnarfundi þann 23. ágúst 2022.

Grundvöllur matsaðferða

Samstæðuárs hlutareikningurinn er gerður samkvæmt kostnaðarverðsaðferð.

Starfrækslugjaldmiðill og framsetningargjaldmiðill

Árs hlutareikningurinn er gerður í íslenskum krónum sem er starfrækslugjaldmiðill félagsins og eru fjárhæðir birtar í milljónum króna nema annað sé tekið fram.

Mat og ákvarðanir

Gerð samstæðuárs hlutareiknings í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastöðla krefst þess að stjórnendur taki ákvarðanir, meti og gefi sér forsendur sem hafa áhrif á beitingu reikningsskilaaðferða og birtar fjárhæðir eigna, skulda, tekna og gjalda. Endanlegar niðurstöður kunna að verða frábrugðnar þessu mati.

Mat og forsendur þess eru í stöðugri endurskoðun. Breytingar á reikningshaldslegu mati eru færðar á því tímabili sem breytingin á sér stað og þeim framtiðartímabilum sem breytingarnar hafa áhrif á.

3. Breytingar á reikningsskilaaðferðum

Við gerð árs hlutareikningsins er beitt sömu reikningsskilaaðferðum og við gerð ársreiknings félagsins fyrir árið 2021.

Siminn hf. - Samandreginn árs hlutareikningur samstæðu 30. júní 2022
Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

4. Starfsþáttayfirlit

Yfirlit um starfsþætti veitir upplýsingar um einstaka þætti í rekstri félagsins og er sett fram með sama hætti og regluleg skýrslugjóf til stjórnar félagsins.

Starfsemi félagsins skiptist í sex starfsþætti sem selja vörur og þjónustu á mismunandi mörkuðum. Starfsþættirnir eru:

Starfsþáttur Lýsing
Farsímapjónusta: Farsímapjónusta innanlands og erlendis, hvort sem heldur er hefðbundin GSM þjónusta, gervihnattapjónusta eða önnur farsímapjónusta.
Talsímapjónusta: Talsímapjónusta fyrir fyrirtæki og einstaklinga.
Gagnaflutningur: Gagnaflutningsþjónusta, þ.m.t. xDSL þjónusta, GPON, Internet, IP net, heimtaugar og aðgangsnet.
Sjónvarpsþjónusta: Dreifing á sjónvarpsefni, áskrift, notkun og auglýsingar á miðlum félagsins.
Vörusala búnðar: Sala á fjarskiptabúnaði og fylgihlutum.
Annað: Tekjur tengdar fjarskiptum, upplýsingatækni og fjármálum.
Starfsþættir 2022 Farsíma-þjónusta Talsíma-þjónusta Gagna-flutningur Sjónvarps-þjónusta Vörusala búnðar Annað Samtals
Rekstrartekjur 2.882 745 3.728 3.274 941 559 12.129
Óskipt rekstrargjöld ( 9.403)
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) 2.726
Afskriftir ( 1.470)
Hrein fjármagnsgjöld ( 73)
Reiknaðir skattar ( 220)
Hagnaður af áframhaldandi starfsemi 963
Aflögð starfsemi 288
Hagnaður tímabilsins 1.251
Fjárfestingar ( 1.130)
Óskiptar eignir 30.6.2022 67.979
Óskiptar skuldir 30.6.2022 38.040
Starfsþættir 2021 Farsíma-þjónusta Talsíma-þjónusta Gagna-flutningur Sjónvarps-þjónusta Vörusala búnðar Annað Samtals
--- --- --- --- --- --- --- ---
Rekstrartekjur 2.662 805 3.692 3.195 1.033 568 11.955
Óskipt rekstrargjöld ( 9.363)
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) 2.592
Afskriftir ( 1.545)
Hrein fjármagnsgjöld ( 130)
Reiknaðir skattar ( 199)
Hagnaður af áframhaldandi starfsemi 718
Aflögð starfsemi 2.784
Hagnaður tímabilsins 3.502
Fjárfestingar 6.363
Óskiptar eignir 30.6.2021 69.615
Óskiptar skuldir 30.6.2021 38.477

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. júní 2022

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

5. Sala

Seld bjónusta og vörur greinast bannig: 1.1.-30.6. 1.1.-30.6.
Sala á bjónustu 10.758 10.592
Vörusala 1.097 1.134
11.855 11.726

Enginn einstakur viðskiptavinur er með meira en 10% af sölu félagsins.

6. Kostnaðarverð sölu

Kostnaðarverð sölu greinist bannig:

Laun og launatengd gjöld 429 387
Kostnaðarverð seldrar bjónustu 4.549 4.623
Samtengigjöld 351 321
Kostnaðarverð seldra vara 1.017 1.036
Eignfærð vinna ( 99) ( 102)
Afskriftir 1.112 1.210
7.359 7.475

Kostnaðarverð seldrar bjónustu samanstendur af; efnis kostnaði, bjónustusamningum, leyfis gjöldum, aðkeyptri bjónustu og fjarskiptakostnaði.

7. Rekstrarkostnaður

Rekstrarkostnaður greinist bannig:

Laun og launatengd gjöld 1.678 1.624
Markaðs- og sölukostnaður 273 266
Húsnaðis- og bifreiðakostnaður 245 276
Tölvu- og hugbúnaðarkostnaður 551 531
Skrifstofu- og stjórnunarkostnaður 409 402
Afskriftir 358 334
3.514 3.433

8. Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld

Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld greinast bannig:

Fjármunatekjur
Vaxtatekjur af bankainnistæðum og kröfum 175 224
Söluhagnaður af eignarhlutum 113 0
Fenginn arður 2 2
290 226
Fjármagnsgjöld
Vaxtagjöld ( 165) ( 137)
Vaxtagjöld vegna leiguskuldbindinga ( 20) ( 23)
Niðurfærsla lána ( 15) ( 9)
Önnur fjármagnsgjöld ( 165) ( 121)
( 365) ( 290)
Gengismunur 2 ( 66)
Hrein fjármagnsgjöld ( 73) ( 130)

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. júni 2022

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

9. Aðrar eignir 30.6.2022 31.12.2021
Aðrar eignir greinast þannig:
Fjárfesting í öðrum félögum 38 47
Sjónvarpsefni til sýningar 312 237
Langtímakröfur 319 391
Aðrar eignir samtals 669 675
10. Birgðir
--- --- ---
Birgðir greinast þannig:
Vörur til endursölu og rekstrarvörubirgðir 564 369
Sjónvarpsefni til sýningar 576 554
Birgðir samtals 1.140 923
11. Víðskiptakröfur
--- --- ---
Víðskiptakröfur greinast þannig:
Víðskiptakröfur 2.101 2.341
Niðurfærsla víðskiptakrafna ( 107) ( 107)
Víðskiptakröfur samtals 1.994 2.234
12. Aðrar skammtímakröfur
--- --- ---
Aðrar skammtímakröfur greinast þannig:
Fyrirframgreiddur kostnaður 2.300 2.210
Aðrar skammtímakröfur 1.212 872
Aðrar skammtímakröfur samtals 3.512 3.082
  1. Fyrirhuguð sala á dótturfélagi

Þann 18. október 2021 gekk Síminn hf. til einkaviðræðna við Ardian France SA um sölu á öllum eignarhlut í fjarskiptafélaginu Mílu ehf. Þeim viðræðum lauk þann 23. október með undirritun samnings um sölu á 100% hlutafjár í Mílu ehf. Salan er háð hefðbundnum fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Virði viðskiptanna (e. enterprise value) samkvæmt breyttum kaupsamningi er 73 ma.kr. að meðtöldum fjárhagslegum skuldbindingum Mílu ehf. sem kaupandinn yfirtekur. Samkvæmt uppfærdum kaupsamningi fær Síminn hf. greitt á efndadegi um 35 ma.kr. í reiðufé og 19 ma.kr. í formi skuldabréfs til þriggja ára. Áætlaður sölihagnaður er 41,8 ma.kr. að teknu tilliti til kostnaðar vegna viðskiptanna. Gerður var langtíma heildsölusamningur um kaup á þjónustu Símans hf. af Mílu ehf.

Míla ehf. er heildsölufyrirtæki á fjarskiptamarkaði og felst kjarnastarfse mi Mílu ehf. í að byggja upp og reka innviði fjarskipta á landsvísu. Hlutverk Mílu ehf. er að selja lausnir sínar í heildsölu til fyrirtækja og stofnana sem stunda fjarskiptastarfse mi. Sérhæfing félagsins felst meðal annars í rekstri og ráðgjöf vegna uppyggingar fjarskiptakerfa og aðstöðuleigu í tækjarýmum og möstrum. Kerfi Mílu ehf. eru grunnur að fjölþættri fjarskiptabjónustu um allt land.

Síminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. júní 2022
Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

13. Fyrirhuguð sala á dótturfélagi, frh.:

Vegna sölunnar eru eignir og skuldir Mílu ehf. flokkaðar sem eignir og skuldir til sölu í árshlutareikningi 2022.

Rekstur Mílu ehf. er nú tilgreindur í einni línu í rekstrarreikningi sem aflögð starfsemi. Samanburðartölum 2021 hefur verið breytt til samræmis.

2022 2021
Áhrif Mílu ehf. á tímabilinu er eftirfarandi: 1.1.-30.6. 1.1.-30.6.
Ytri tekjur Mílu 879 889
Sala til Mílu ( 156) ( 85)
Samtals áhrif á tekjur 723 804
Ytri gjöld Mílu ( 3.733) ( 3.347)
Gjöld frá Mílu 3.374 3.372
Samtals áhrif á gjöld ( 359) 25
Hagnaður fyrir skatta 364 829
Skattar ( 76) ( 169)
Samtals áhrif af Mílu 288 660
Áhrif Sensa 2021 0 2.124
Samtals áhrif af aflagðri starfsemi 288 2.784
Í lok tímabils voru eignir og skuldir Mílu ehf. eftirfarandi: 30.6.2022 31.12.2021
Viðskiptavild 10.927 10.927
Óefnislegar eignir 1.754 1.819
Rekstrarfjármunir 21.526 21.336
Langtímakröfur 73 85
Birgðir 585 513
Viðskiptakröfur og aðrar kröfur 1.835 1.345
Handbært fé 523 904
Eignir flokkaðar til sölu 37.223 36.929
Langtímaskuldir 23.350 23.609
Viðskiptaskuldir og aðrar skuldir 2.482 2.217
Skuldir sem tengjast eignum flokkuðum til sölu 25.832 25.826

14. Tekjuskattsskuldbinding

Hreyfingar á reiknaðri tekjuskattsskuldbindingu greinast á eftirfarandi hátt: 30.6.2022 31.12.2021
Reiknuð tekjuskattsskuldbinding í ársbyrjun 604 670
Eignir til sölu 0 417
Tekjuskattur tímabilsins 212 421
Skattar til greiðslu á næsta ári ( 410) ( 879)
Leiðrétting frá fyrra ári 0 ( 25)
Tekjuskattsskuldbinding samtals 406 604

Síminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. júní 2022

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

15. Aðrar skammtímaskuldir

Aðrar skammtímaskuldir greinast þannig: 30.6.2022 31.12.2021

Áfallinn kostnaður 543 458
Ögreidd laun og launatengd gjöld 319 152
Ögreiddur virðisaukaskattur 286 266
Aðrar skammtímaskuldir 14 13
Aðrar skammtímaskuldir samtals 1.162 889

16. Málarekstur

Félagið stendur í málarekstri vegna mála sem snúa að tülkunum á fjarskipta-, fjölmiðla- og samkeppnislögum.

Síminn og Sýn hafa átt í ágreiningi í tengslum við dreifingu á sjónvarpsefni. Póst- og fjarskiptastofnun (nú Fjarskiptastofnun) komst að þeirri niðurstöðu að Síminn hefði farið gegn fjölmiðlalögum sbr. ákvörðun PFS nr. 10/2018. Lagði stofnunin á sekt að fjárhæð 9 m.kr. sem félagið hefur þegar greitt. Síminn telur að háttsemi félagsins sé í fullu samræmi við ákvæði fjölmiðlalaga og höfðaði mál til ógildingar ákvörðunar Póst- og fjarskiptastofnunar. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í málinu og ógilti ákvörðun PFS að hluta og lækkaði sektina niður í 7 m.kr. Síminn áfrýjaði málinu til Landsréttar sem staðfesti niðurstöðu Póst- og fjarskiptastofnunar og hækkaði sektina aftur í 9 mkr. Síminn hefur óskað eftir leyfi til að áfrýja málinu til Hæstaréttar. Í kjölfarið á ákvörðun PFS sendi Sýn kröfu til Símans um greiðslu skaðabóta að fjárhæð 1,9 ma.kr. Síminn hafnaði kröfunni og benti á að það mætti hvorki ráða af erindi Sýnar að skilyrði skaðabótaskyldu væri fyrir hendi né heldur væri gerð tilraun til að færa sönnur á ætlað tjón Sýnar. Að mati Símans var um tilhæfulausa kröfu að ræða og vísaði Héraðsdómur Reykjavíkur kröfu Sýnar frá dómi vegna vanreifunar. Í framhaldinu lagði Sýn fram beiðni um dómkvaðningu matsmanna og stefndi Símanum fyrir héraðsdómi Reykjavíkur til greiðslu skaðabóta að fjárhæð 125 m.kr. Síminn hafnaði málatilbúnaði Sýnar og skilaði greinargerð vegna málsins. Þá hefur Gagnaveita Reykjavíkur sent Símanum kröfu um greiðslu að fjárhæð 1,3 ma.kr. Síminn hafnaði kröfunni og benti á að það mætti ekki ráða af erindi Gagnaveitunnar að skilyrði skaðabótaskyldu væri fyrir hendi. Að mati Símans er um tilhæfulausa kröfu að ræða. PFS og Sýn hafa ennfremur höfðað mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur og gert kröfu um að úrskurður úrskurðarnefndar póst- og fjarskiptamála nr. 7/2019 verði felldur úr gildi, en úrskurður nefndarinnar fól í sér ógildingu á ákvörðun PFS nr. 27/2019 þar sem stofnunin lagði sekt að fjárhæð 9 m.kr. á Símann. Síminn mun gera kröfu um að úrskurður nefndarinnar standi óhaggaður. Þrátt fyrir að óvissa sé um niðurstöður þessara mála er það mat stjórnenda að ekki komi til verulegra fjárútláta vegna þeirra. Félagið hefur ekki fært neinn kostnað í reikningsskil sín vegna mögulegra bóta í framangreindum málum enda mat félagsins að þau séu tilhæfulaus.

Samkeppniseftirlitið komst að þeirri niðurstöðu á árinu 2020 að Síminn hefði brotið gegn ákvörðunum Samkeppniseftirlitsins nr. 6/2015 og 20/2015 og lagði á sekt að fjárhæð 500 m.kr. sem Síminn greiddi. Síminn kærði ákvörðun Samkeppniseftirlitsins til áfrýjunarnefndar samkeppnismála og gerði kröfu um ógildingu ákvörðunarinnar. Áfrýjunarnefnd samkeppnismála skilaði úrskurði í byrjun árs 2021 þar sem nefndin felldi úr gildi þann hluta ákvörðunar Samkeppniseftirlitsins sem laut að meintu broti gegn 6/2015 og lækkaði sektina niður í 200 m.kr. Félagið er sem fyr þeirrar skoðunar að fyrirkomulag um sölu á þjónustu félagsins sé fyllilega í samræmi við samkeppnislög og þær ákvarðanir sem félagið hefur gengist undir á grundvelli samkeppnislága. Síminn hefur höfðað mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur með kröfu um ógildingu á þeim hluta úrskurðar áfrýjunarnefndar samkeppnismála sem laut að meintu broti á ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 20/2015. Samkeppniseftirlitið hefur ennfremur höfðað mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur þar sem gerð er krafa um að úrskurður áfrýjunarnefndar samkeppnismála er fól í sér ógildingu hluta ákvörðunar Samkeppniseftirlitsins nr. 25/2020 og lækkun sektar, verði felldur úr gildi.

17. Atburðir eftir reikningsskiladag

Engir atburðir hafa átt sér stað eftir lok reikningsskiladags sem höfðu áhrif á árshlutareikninginn eða veita þarf upplýsingar um, umfram það sem kemur fram í skýrslu stjórnar um fyrirhugaða sölu Milu.

Síminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. júní 2022

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Ársfjórðungsyfirlit

Rekstur samstæðunnar greinist þannig á ársfjórðunga:

1 F 2022 2 F 2022 Samtals
Sala 5.957 5.898 11.855
Kostnaðarverð sölü ( 3.762) ( 3.597) ( 7.359)
Framlegð 2.195 2.301 4.496
Aðrar rekstrartekjur 136 138 274
Rekstrarkostnaður ( 1.757) ( 1.757) ( 3.514)
Rekstrarhagnaður 574 682 1.256
Hrein fjármagnsgjöld 92 ( 165) ( 73)
Aflögð starfsemi 193 95 288
Hagnaður fyrir tekjuskatt 859 612 1.471
Reiknaðir skattar ( 113) ( 107) ( 220)
Hagnaður tímabilsins 746 505 1.251
EBITDA 1.327 1.399 2.726
1 F 2021 2 F 2021 3 F 2021
--- --- --- ---
Sala 5.903 5.823 6.004
Kostnaðarverð sölü ( 3.783) ( 3.692) ( 3.766)
Framlegð 2.120 2.131 2.238
Aðrar rekstrartekjur 115 114 120
Rekstrarkostnaður ( 1.731) ( 1.702) ( 1.518)
Rekstrarhagnaður 504 543 840
Hrein fjármagnsgjöld ( 31) ( 99) 56
Aflögð starfsemi 2.508 276 323
Hagnaður fyrir tekjuskatt 2.981 720 1.219
Reiknaðir skattar ( 97) ( 102) ( 162)
Hagnaður tímabilsins 2.884 618 1.057
EBITDA 1.274 1.318 1.627

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. júní 2022
14
Fjórhæðir eru í milljónum króna