AI assistant
Síminn — Interim / Quarterly Report 2022
Aug 23, 2022
2203_rns_2022-08-23_eaea2570-9792-425c-9a24-8bacdd48a23d.pdf
Interim / Quarterly Report
Open in viewerOpens in your device viewer
Síminn
- ágúst 2022
Fréttatilkynning: Afkoma Símans hf. á 2F 2022
Sterkur grunnrekstur skilar góðum ársfjórðungi
Í árshlutareikningi samstæðu Símans fyrir annan ársfjórðung 2022 er Míla meðhöndluð sem aflögð starfsemi. Hér að neðan er fjallað um rekstur samstæðu Símans án Mílu.
- Tekjur á öðrum ársfjórðungi (2F) 2022 námu 6.036 m.kr. samanborið við 5.937 m.kr. á sama tímabili 2021.
- Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði, EBITDA, nam 1.399 m.kr. á 2F 2022 og hækkar því um 81 m.kr. eða 6,1%. EBITDA hlutfallið er 23,2% fyrir 2F 2022 en var 22,2% á sama tímabili 2021. Rekstrarhagnaður EBIT nam 682 m.kr. á 2F 2022 samanborið við 543 m.kr. á sama tímabili 2021.
- Hrein fjármagnsgjöld námu 165 m.kr. á 2F 2022 en námu 99 m.kr. á sama tímabili 2021. Fjármagnsgjöld námu 252 m.kr., fjármunatekjur voru 90 m.kr. og gengistap nam 3 m.kr.
- Hagnaður af áframhaldandi starfsemi á 2F 2022 nam 410 m.kr. samanborið við 342 m.kr. á sama tímabili 2021. Hagnaður tímabilsins með aflagðri starfsemi nam 505 m.kr.
- Vaxtaberandi skuldir samstæðu að leiguskuldbindingum meðtöldum námu 7,1 ma.kr. í lok 2F 2022 en voru 8,3 ma.kr. í árslok 2021. Hreinar vaxtaberandi skuldir samstæðu að leiguskuldbindingum meðtöldum voru 5,7 ma.kr. í lok 2F 2022 samanborið við 4,8 ma.kr. í árslok 2021.
- Eiginfjárhlutfall Símans var 44,0% í lok 2F 2022 og eigið fé 29,9 ma.kr.
Orri Hauksson, forstjóri:
„Rekstur Símans á öðrum fjórðungi ársins fylgir þeim fyrsta vel á eftir, þar sem bæði tekjur og EBITDA aukast. Sérstaklega vaxa farsímatekjur nú myndarlega milli ára, að hluta vegna aukinna ferðalaga til og frá landinu. Tekjur af sjónvarpi og interneti aukast einnig nokkuð. Rekstrarhorfur fyrir síðari hluta þessa árs eru jákvæðar.
Helstu kostnaðarliðir breytast lítið milli ára, en stór hluti kostnaðar Símans er fyrirsjáanlegur og byggist á langtímasamningum við innlenda og erlenda birgja. Gengisþróun hefur verið hagfell, en verðbólga vegur á móti og mun gera það af auknum þunga það sem eftir lifir árs. Launakostnaður hækkar um tæp 5% milli ára á öðrum ársfjórðungi, að mestu vegna starfsloka. Búast má við nokkrum launahækkunum á næstu misserum. Að einhverju marki kemur það til vegna launaskriðs, auk þess sem komandi kjarasamningar eru stór óvissuþáttur í kostnaði félagsins á næsta ári.
Skipulagi Símans var breytt á fjórðungnum, með það að markmiði að stytta boðleiðir fyrirtækisins og bæta þjónustu við viðskiptavini. Tveir nýir framkvæmdastjórar tóku til starfa,
Síminn
þær Berglind Björg Harðardóttir, framkvæmdastjóri Sólu og þjónustu, og Erla Ósk Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Sjálfbærni og menningar, og hafa þær nú þegar sett mark sitt á starfsemina með jákvæðum hætti.
Rekstur Mílu, dótturfélags Símans, gekk vel á fyrri helmingi ársins og skilaði félagið sambærilegri EBITDA afkomu og á sama tíma í fyrra. Síminn undirritaði kaupsamning við franska sjóðastýringarfélagið Ardian 23. október í fyrra, en niðurstaða kemst í sóluferli félagsins í síðasta lagi 15. september næstkomandi, þegar lokafrestur í skoðun samkeppnisyfirvalda á kaupunum verður liðinn. Eins og fram kom í tilkynningu Símans til kauphallar 22. júlí síðastliðinn hefur verið samið við kaupanda félagsins um að sóluverð Mílu lækki úr 78 milljörðum króna í 73 milljarða króna, auk annarra breytinga á kaupsamningnum. Síminn vonast enn til að kaup Ardian á Mílu verði heimiluð, enda hafa samkeppnisyfirvöld um langa hríð talið að sala Mílu til þriðja aðila sé jákvæð fyrir samkeppni, auk þess sem kaupin leiða til frekari fjárfestinga í fjarskiptainnviðum á Íslandi. Nýtt fyrirkomulag að sólu lokinni byggir á tryggum viðskiptasamningi Símans og Mílu og yrði hagfellt fyrir rekstur Símans og fyrir viðskiptavini Símans til framtíðar.
Helstu niðurstöður í rekstri á fyrstu sex mánuðum 2022
Rekstur samstæðu
| Rekstrarreikningur | 2F | 1H | ||||
|---|---|---|---|---|---|---|
| 2022 | 2021 | % | 2022 | 2021 | % | |
| Rekstrartekjur | 6.036 | 5.937 | 1,7% | 12.129 | 11.955 | 1,5% |
| Kostnaðarverð sólu | (3.597) | (3.692) | -2,6% | (7.359) | (7.475) | -1,6% |
| Rekstrarkostnaður | (1.757) | (1.702) | 3,2% | (3.514) | (3.433) | 2,4% |
| EBIT | 682 | 543 | 25,6% | 1.256 | 1.047 | 20,0% |
| Hrein fjármagnsgjöld | (165) | (99) | 66,7% | (73) | (130) | -43,8% |
| Tekjuskattur | (107) | (102) | 4,9% | (220) | (199) | 10,6% |
| Hagnaður tímabils af áframhaldandi starfsemi | 410 | 342 | 19,9% | 963 | 718 | 34,1% |
| Aflögð starfsemi | 95 | 276 | 288 | 2.784 | -89,7% | |
| Hagnaður tímabils | 505 | 618 | -18,3% | 1.251 | 3.502 | -64,3% |
| EBITDA | 1.399 | 1.318 | 6,1% | 2.726 | 2.592 | 5,2% |
| Hagnaður á hlut af áframhaldandi starfsemi | 0,05 | 0,05 | 0,0% | 0,13 | 0,09 | 44,4% |
Sala á 1H 2022 nam 12.129 m.kr. samanborið við 11.955 m.kr. á sama tímabili árið 2021, sem er 1,5% vöxtur milli ára. Tekjur af farsíma námu 2.882 m.kr. og hækkuðu um 220 m.kr. eða 8,3% á milli tímabila. Tekjur af talsíma námu 745 m.kr. og lækkuðu um 7,5% á milli tímabila. Tekjur af gagnaflutningi námu 3.728 m.kr. og hækkuðu um 36 m.kr. eða 1,0% á milli tímabila. Tekjur af sjónvarpsþjónustu námu 3.274 m.kr. og hækkuðu um 79 m.kr. eða 2,5% á milli tímabila. Tekjur af vörusölu námu 941 m.kr. og lækkuðu um 92 m.kr. eða 8,9% á milli tímabila. Aðrar tekjur námu 559 m.kr. og lækkuðu um 9 m.kr. á milli tímabila.
Kostnaðarverð seldrar þjónustu nam 7.359 m.kr. og lækkar um 116 m.kr. eða 1,6% frá sama tímabili 2021. Rekstrarkostnaður nam 3.514 m.kr. og hækkaði um 81 m.kr. eða 2,4% frá sama tímabili 2021.
Síminn
EBITDA, b.e. rekstrarhagnaður félagsins fyrir afskriftir og fjármagnsliði, var 2.726 m.kr. á 1H 2022 en var 2.592 m.kr. á sama tímabili 2021 og hækkaði um 134 m.kr. á milli tímabila eða um 5,2%. EBITDA hlutfallið er 22,5% á 1H 2022, en var 21,7% á sama tímabili árið 2021.
Afskriftir félagsins námu 1.470 m.kr. á 1H 2022 samanborið við 1.545 m.kr. á sama tímabili 2021 og lækka um 75 m.kr. á milli tímabila.
Hrein fjármagnsgjöld voru 73 m.kr. á 1H 2022 og lækkuðu um 57 m.kr. á milli ára. Lækkunin er tilkomin vegna 113 m.kr. söluhagnaðar af eignarhlut Símans í Auðkenni sem seldur var fyrr á árinu.
Hagnaður á 1H 2022 af áframhaldandi starfsemi nam 963 m.kr. samanborið við 718 m.kr. á sama tímabili 2021. Hagnaður 1H 2022 með aflagðri starfsemi nam 1.251 m.kr.
Sjóðstreymi
Rekstrarhreýfingar nema samtals 2.722 m.kr. á 1H 2022 samanborið við 2.591 m.kr. á sama tímabili 2021. Aukning á rekstrartengdum eignum og skuldum á 1H 2022 eru 481 m.kr.
Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta var því 3.203 m.kr. á 1H 2022 samanborið við 4.032 m.kr. á sama tímabili 2021. Eftir vexti og skatta nam handbært fé frá rekstri 2.679 m.kr. á 1H 2022 samanborið við 3.524 m.kr. á sama tímabili 2021.
Fjárfestingahreýfingar námu 1.147 m.kr. á 1H 2022 og fjármögnunarhreýfingar eru neikvæðar sem nemur 3.670 m.kr. á 1H 2022.
| Sjóðstreymi | 1H 2022 | 1H 2021 |
|---|---|---|
| Rekstrarhagnaður tímabils | 1.256 | 1.047 |
| Afskriftir og virðisrýrnun | 1.470 | 1.545 |
| Söluhagnaður varanlegra rekstrarfjármuna | ( 4) | ( 1) |
| Samtals rekstrarhreýfingar | 2.722 | 2.591 |
| Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum | 481 | 1.441 |
| Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta | 3.203 | 4.032 |
| Nettó greiddir vextir | ( 176) | ( 69) |
| Greiddir skattar | ( 348) | ( 439) |
| Handbært fé frá rekstri | 2.679 | 3.524 |
| Fjárfestingarhreýfingar | ( 1.147) | 20.876 |
| Fjármögnunarhreýfingar | ( 3.670) | ( 18.160) |
| Hækkun (lækkun) á handbæru fé | ( 2.138) | 6.240 |
| Áhrif gengisbreytinga á handbært fé | ( 6) | ( 12) |
| Handbært fé í upphafi tímabils | 3.509 | 735 |
| Handbært fé í lok tímabilsins | 1.365 | 6.963 |
Síminn
Efnahagur
Heildareignir félagsins námu 67.979 m.kr. í lok 2F 2022 en voru 69.727 m.kr. í lok árs 2021.
Vaxtaberandi skuldir að leiguskuldbindingum meðtöldum voru 7.057 m.kr. í lok 2F 2022 samanborið við 8.294 m.kr. í lok árs 2021. Hreinar vaxtaberandi skuldir að leiguskuldbindingum meðtöldum voru 5.692 m.kr. í lok 2F 2022 og hækkuðu um 907 m.kr. frá árslokum 2021. Hlutfall hreinna vaxtaberandi skulda að leiguskuldbindingum meðtöldum á móti EBITDA síðastliðinna tólf mánaða var 1,01.
Eigið fé félagsins nam 29.939 m.kr. í lok 2F 2022 og eiginfjárhlutfall félagsins var 44,0%.
| Eignir | 30.06.2022 | 31.12.2021 |
|---|---|---|
| Rekstrarfjármunir | 2.195 | 2.219 |
| Leigueignir | 690 | 753 |
| Óefnislegar eignir | 19.191 | 19.403 |
| Aðrar eignir | 669 | 675 |
| Fastafjármunir | 22.745 | 23.050 |
| Eignir flokkaðar til sölu | 37.223 | 36.929 |
| Handbært fé | 1.365 | 3.509 |
| Aðrir veltufjármunir | 6.646 | 6.239 |
| Veltufjármunir | 45.234 | 46.677 |
| Eignir alls | 67.979 | 69.727 |
| Skuldir og eigið fé | 30.06.2022 | 31.12.2021 |
| --- | --- | --- |
| Eigið fé | 29.939 | 31.079 |
| Eigið fé | 29.939 | 31.079 |
| Skuldabréfalán | 5.949 | 5.943 |
| Leiguskuldbinding | 594 | 653 |
| Tekjuskattsskuldbinding | 406 | 604 |
| Langtimaskuldir | 6.949 | 7.200 |
| Skuldir flokkaðar til sölu | 25.832 | 25.826 |
| Aðrar skammimaskuldir | 5.259 | 5.622 |
| Skammimaskuldir | 31.091 | 31.448 |
| Skuldir og eigið fé alls | 67.979 | 69.727 |
Um starfsemina
- Nýtt skipurit Símans tók gildi í sumar sem stillir starfsemi félagsins af í takt við tækniþróun með styttri boðleiðum, opnari samskiptum, fjölbreyttari viðhorfum, hraðari ákvarðanatöku og sterkari menningu. Tveir nýir framkvæmdastjórar hafa verið ráðnir og stýrir Berglind Björg Harðardóttir Sölu og þjónustu og Erla Ósk Ásgeirsdóttir Sjálfbærni og menningu.
- Í maí skrifuðu Síminn, Neyðarlínan, Nova og Vodafone undir samning um samstarf sín á milli þar sem þessir aðilar taka höndum saman um að tryggja gott farsimasamband á fáförnum og afskekktum svæðum á Íslandi. Þetta mun skapa aukið öryggi þar sem verður hægt að ná sambandi við 112 sem og önnur símanúmer óháð því hvar viðkomandi kaupir sína farsímabjónustu. Fjarskiptafélögin setja jafnt upp virka innviði skv. tillögum Neyðarlínunnar sem leggur til möstur og rafmagn.
- Síminn hefur hætt útprentun reikninga og eru því allir reikningar Símans rafrænir. Ákvörðunin er umhverfinu til heilla og í takt við sjálfbærnistefnu Símans.
- Íslensk framleiðsla í Sjónvarpi Símans hlaut alls 41 tilnefningu til Eddu verðlaunanna. Alls hlutu 12 þáttaraðir og annað efni frá Símanum tilnefningu. Þar af hlaut Systrabönd 10 tilnefninger og Kvikmyndin Dýrið 13 tilnefninger.
Sala Mílu til Ardian
Sala Mílu til Ardian sem tilkynnt var um þann 23. október 2021 er enn til skoðunar hjá Samkeppniseftirlitinu (SKE). Tilkynnt var þann 14. mars sl. að SKE ætlaði að rannsaka viðskiptin nánar. Hafði SKE þá frest til 27. júlí til að ljúka rannsókninni. Þann 1. júlí birti SKE frumniðurstöðu og mat sitt á því að viðskiptin raski samkeppni og yrðu ekki samþykkt án
Síminn
skilyrða eða í öllu falli með aukinni upplýsingagjöf. Pann 9. júlí óskaði Ardian eftir sáttaviðræðum við SKE sem lengdi frest SKE til að skila niðurstöðu til 18. ágúst. Pann 17. júlí upplýsti Ardian Símann um að vegna ípyngjandi kvaða sem Ardian bauð í sáttaviðræðum við Samkeppniseftirlitið væri Ardian ekki reiðubúið að ljúka viðskiptum byggt á kaupsamningi sem tilkynnt var um þann 23. október sl.
Pann 22. júlí var tilkynnt um nýtt samkomulag Símans og Ardian þar sem helstu atriði samkomulagsins fela í sér breytingu á ákvæðum kaupsamnings er lúta að heildarvirði Mílu í kaupsamningi sem áður var 78 milljarðar króna, sbr. tilkynningu Símans þann 23. október 2021, að meðtöldum fjárhagslegum skuldbindingum sem kaupandinn yfirtekur. Samkomulagið fólst í að heildarvirði viðskiptanna skuli vera 73 milljarðar króna sem er lækkun um 5 milljarða króna. Samkvæmt breyttum kaupsamningi fær Síminn greitt á efndadegi um 35 milljarða króna í reiðufé og 19 milljarðar króna verða lánaðir í formi skuldabréfs sem Síminn veitir kaupanda til þriggja ára. Skuldabréfið var 15 milljarðar króna í fyrra samkomulagi. Skuldabréfið er framseljanlegt og ber 4% vexti sem er óbreytt frá fyrra samkomulagi. Leiða þessar breytingar á kaupsamningnum til þess að áæltaður sólhangnaður er nú 41,8 milljarðar króna, að teknu tilliti til kostnaðar vegna viðskiptanna, sem er lækkun um 4,6 milljarða króna frá því sem tilkynnt var þann 23. október 2021.
Pann 11. ágúst óskaði Ardian eftir auknum fresti til að ljúka viðræðum við SKE og nær sá frestur til 15. september nk. Frekari frestir eru ekki í boði.
Horfur fyrir árið 2022
Spá fyrir árið 2022 er óbreytt og gerir ráð fyrir að EBITDA samstæðunnar verði á bilinu 5,3 til 5,6 ma.kr. Áæltað er að fjárfestingar verði á bilinu 4,3 til 4,6 ma.kr.
Kynningarfundur 24. ágúst 2022
Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn miðvikudaginn 24. ágúst 2022 kl. 8:30 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík. Hluthafar, fjárfestar og markaðsaðilar eru sérstaklega boðnir velkomnir á fundinn. Á fundinum munu Orri Hauksson forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum. Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast í fréttakerfi Nasdaq Iceland og á heimasíðu Símans https://www.siminn.is/umsimann/uppgjor.
Jafnframt verður hægt að fylgjast með fundinum í netstrey mi á vefslóðinni:
https://www.siminn.is/fjarfestakynning.
Þeir sem vilja bera upp spurningar geta sent þær á fjá[email protected] og verður þeim svarað í lok fundarins.
Fjárhagsdagatal 2022
Uppgjör 3F 2022 25. október 2022
Ársuppgjör 2022 14. febrúar 2023
Aðalfundur 2023 9. mars 2023
Nánari upplýsingar um uppgjörði veita:
Orri Hauksson, forstjóri Símans, s. 550 6003 ([email protected])
Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans, s. 550 6003 ([email protected])