Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Síminn Interim / Quarterly Report 2021

Apr 27, 2021

2203_rns_2021-04-27_4b6cc78c-db5a-4b8c-bf60-7ab14ecf7d33.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

Síminn

  1. apríl 2021

Fréttatilkynning: Afkoma Símans hf. á 1F 2021

Viðburðaríkur ársfjörðungur

Í desember undirrituðu Síminn hf. og Crayon Group AS skuldbindandi samning um sölu Símans hf. á dótturfélaginu Sensa ehf. til Crayon. Uppgjör viðskiptanna átti sér stað í lok 1F 2021 og er kaupverðið að fullu greitt í apríl. Hagnaður af sölunni nam 2.073 m.kr. Í árshlutareikningi fellur rekstur Sensa undir aflagða starfsemi og taka upplýsingar í tilkynningunni mið af þeirri breytingu.

  • Tekjur á fyrsta ársfjörðungi (1F) 2021 námu 6.408 m.kr. samanborið við 6.309 m.kr. á sama tímabili 2020 og hækka því um 99 m.kr. eða 1,6%.
  • Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði EBITDA nam 2.540 m.kr. á 1F 2021 samanborið við 2.638 m.kr. á sama tímabili 2020 og lækkar því um 98 m.kr. eða 3,7% frá sama tímabili í fyrra. EBITDA hlutfallið er 39,6% fyrir fyrsta ársfjörðung 2021 en var 41,8% á sama tímabili 2020. Rekstrarhagnaður EBIT lækkar um 69 m.kr eða 5,8% frá sama tímabili í fyrra.
  • Hagnaður á 1F 2021 nam 2.844 m.kr. samanborið við 762 m.kr. á sama tímabili 2020.
  • Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta nam 3.010 m.kr. á 1F 2021 en var 3.380 m.kr. á sama tímabili 2020. Eftir vexti og skatta nam handbært fé frá rekstri 2.574 m.kr. á 1F 2021 en var 3.045 m.kr. á sama tímabili 2020.
  • Vaxtaberandi skuldir námu 16,0 ma.kr. í lok 1F 2021 en voru 15,9 ma.kr. í árslok 2020. Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 15,3 ma.kr. í lok 1F 2021 samanborið við 15,2 ma.kr. í árslok 2020.
  • Hrein fjármagnsgjöld námu 187 m.kr. á 1F 2021 en voru 233 m.kr. á sama tímabili 2020. Fjármagnsgjöld námu 202 m.kr., fjármunatekjur voru 59 m.kr. og gengistap var 44 m.kr.
  • Eiginfjárhlutfall Símans hf. var 59,8% í lok 1F 2021 og eigið fé 39,4 ma.kr.

Orri Hauksson, forstjóri:

„Árið fer ágætlega af stað og rímar við væntingar okkar um að ná sem mestu út úr efnahag og rekstri ólíkra eininga innan samstæðunnar. Þannig lauk sölu Sensa farsællega með kaupum alþjóðlega upplýsingatæknifyrirtækisins Crayon á félaginu auk þess sem lykilverkefni á sviði farsima- og netrekstrar Símans voru flutt til Mílu. Samstæðan er nú fjármögnuð með nýjum hætti, í því augnamiði að hámarka afrakstur af breyttri verkaskiptingu innan samstæðu og til að stilla efnahag upp í samræmi við þarfir viðkomandi rekstrareininga. Í byrjun apríl greiddi félagið verulega fjármuni til hluthafa með niðurfærslu hlutafjár og arðgreiðslu.


Síminn

Grunnreksturinn var vel ásættanlegur á fyrsta fjórðungi 2021 og í takti við fyrirætlanir. Reikitekjur lækkuðu umtalsvert miðað við fyrra ár og erlendur kostnaður samstæðunnar jókst milli ára, sem veldur lítilsháttar lækkuð EBIT og EBITDA milli ára, en fyrsti fjórðungur 2020 var einn sá besti í sögu félagsins. Heildartekur jukust hins vegar, meðal annars vegna aukinnar búnáðarsölu, sem ber lága framlegð. Nettó hagnaður jókst milli tímabila vegna sölihagnaðar á Sensa, en að auki kemur nú til góða að ráðist var í varanlegar kostnaðarlækkanir um vorið 2020 sem koma að fullu fram á þessu ári.

Rekstur það sem af er ári gefur þannig góð fyrirheit. Tekjur af auglýsingasölu aukast vegna breyttar og sérsniðinnar þjónustu Símans við auglýsendur, sem kunna vel að meta hvernig sífellt verður auðvelðara að ná til vel skilgreindra markhópa. Hefðbundið línulegt sjónvarp fékk vind í seglin þegar tónlistarþættirnir Heima með Helga slógu öll áhorfsmet. Internet, sjónvarp og innlendur farsími héldu sínu striki í tekjum talið og vel hefur gengið að innleiða stóra nýja viðskiptavina í þjónustu hjá Símanum þrátt fyrir samkomutakmarkanir.

Áhersla Mílu var sem fyrr á ljósleiðaravæðingu um allt land. Heldur hefur hægt á framkvæmdum, sé miðað við risavaxið átak fyrri ára. Þeim heimilum landsins fækkar sífellt sem ekki hafa ljósleiðara í kjallara eða útvegg húss síns, hvort sem er frá Mílu eða öðrum aðilum. Fjölmargir þéttbýlisstaðir á landsbyggðinni eru þó enn eftir og ekki liggur fyrir hvenær þeim framkvæmdum getur lokið. Lagning ljóss í þau hús sem eftir eru byggist viða á samstarfi Mílu við aðra framkvæmdaraðila og sveitarfélög, þannig að kostnaður í dreifbyggðum kjörnum úti um land komi ekki í veg fyrir að lokið sé að tengja til heimila og fyrirtækja.

Jarðskjálftahrina og eldgos á Reykjanesi kölluðu á margvíslegar ráðstafanir til að tryggja öryggi fólks og fjarskipta. Tengja þurfti nýja fjarskiptastaði, koma fyrir nýjum farsímasendum og endurhugsa varnir fyrir grunnstrengi á suðurströnd Íslands. Allt gekk þetta vel í góðri samvinnu við önnur fjarskiptafélög undir handleiðslu Neyðarlínunnar. Næstu verkefni Símans eru að virkja nýja og endurbætta sjónvarpsþjónustu, sem mun auka til muna sveigjanleika fyrir viðskiptavini.

Eins og ítarlega hefur áður komið fram hefur undanfarin misseri verið unnið markvisst að því að auka sjálfstæði Mílu innan samstæðu Símans, meðal annars með fyrrgreindum tilflutningi verkefna og breytinganna sem gerðar hafa verið á fjármögnun félagsins. Mikil og ör þróun hefur átt sér stað síðustu misserin á samsetningu fjarskiptafélaga á alþjóðamörkuðum. Innlendir og erlendir fjárfestar sýna þannig aukinn áhuga á sérhæfingu í fjárfestingum, meðal annars með því að innviðaeignir séu aðskildar frá þjónustufélögum í smásölu. Fjárfestingabankinn Lazard ásamt Íslandsbanka hafa nú verið ráðnir til að ráðleggja um stefnumarkmið og framtíðarmöguleika Mílu. Valkostir er varða framtíðar eignarhald á Mílu verða kannaðir með það að augnamiði að hámarka verðmæti eigna Símans fyrir hluthafa og að tryggja að framtíðarþróun innviða samstæðunnar verði hagfelld fyrir íslenskan almenning. Ekki liggur fyrir til hvaða niðurstöðu þetta verkefni mun leiða en nánar verður upplýst um framvindu þess um leið og ástæða er til."


Síminn

Helstu niðurstöður í rekstri 1F 2021

Rekstur

Rekstrarrelkningur 1F
2021 2020 %
Rekstrartekjur 6.408 6.309 1,6%
Kostnaðarverð söl (3.215) (2.964) 8,5%
Rekstrarkostnaður (2.071) (2.154) -3,9%
EBIT 1.122 1.191 -5,8%
Hrein fjármagnsgjöld (187) (233) -19,7%
Tekjuskattur (191) (196) -2,6%
Hagnaður tímabils af áframhaldandi starfsemi 744 762 -2,4%
Aflögð starfsemi 2.140 2
Hagnaður tímabils 2.884 764 277,5%
EBITDA 2.540 2.638 -3,7%
Hagnaður á hlut 0,34 0,09 277,8%

Sala á 1F 2021 nam 6.408 m.kr. samanborið við 6.309 m.kr. á sama tímabili árið 2020, sem er 1,6% vöxtur milli ára. Tekjur af farsíma námu 1.363 m.kr. og lækkuðu um 23 m.kr. eða 1,7% á milli tímabila. Í farsíma lækka reikitekjur á milli ára um 54 m.kr. Tekjur af talsíma námu 403 m.kr. og lækkuðu um 9,4% á milli tímabila. Tekjur af gagnaflutningi námu 2.239 m.kr. og hækkuðu um 59 m.kr. eða 2,7% á milli tímabila. Tekjur af sjónvarpsþjónustu námu 1.622 m.kr. og hækkuðu um 39 m.kr. eða 2,5% á milli tímabila. Tekjur af vörusölu voru 517 m.kr. og hækkuðu um 98 m.kr. eða 23,4% á milli tímabila. Aðrar tekjur námu 264 m.kr. og lækkuðu um 31 m.kr. á milli tímabila.

Kostnaðarverð seldrar þjónustu nam 3.215 m.kr. og hækkar um 251 m.kr. eða 8,5% frá sama tímabili árið áður. Þar af hækkar kostnaðarverð seldra vara um 115 m.kr. og veiking krónu gagnvart evru hækkar erlendan kostnað. Rekstrarkostnaður nam 2.071 m.kr. og lækkaði um 83 m.kr. eða 3,9% frá sama tímabili árið 2020. Framlegð á 1F 2021 nam 3.084 m.kr. og lækkaði um 129 m.kr. eða 4,0% frá sama tímabili árið 2020.

EBITDA, þ.e. rekstrarhagnaður félagsins fyrir afskriftir og fjármagnsliði, var 2.540 m.kr. á 1F 2021 en var 2.638 m.kr. á sama tímabili árið 2020 og lækkaði því um 98 m.kr. á milli tímabila eða um 3,7%. EBITDA hlutfallið er 39,6% á 1F 2021, en var 41,8% á sama tímabili árið 2020.

Afskriftir félagsins námu 1.418 m.kr. á 1F 2021 samanborið við 1.447 m.kr. á sama tímabili árið 2020 og lækka um 29 m.kr. á milli tímabila.

Hrein fjármagnsgjöld voru 187 m.kr. á 1F 2021 og lækkuðu um 46 m.kr. á milli ára. Lækkun stýrivaxta hefur leitt til lægri vaxtagjalda hjá félaginu.

Hagnaður 1F 2021 nam 2.884 m.kr. samanborið við 764 m.kr. á sama tímabili árið 2020. Hagnaður af áframhaldandi starfsemi nam 744 m.kr. á 1F 2021.


Síminn

Sjóðstreymi

Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta var 3.010 m.kr. á 1F 2021 samanborið við 3.380 m.kr. á sama tímabili árið 2020. Eftir vexti og skatta nam handbært fé frá rekstri 2.574 m.kr. á 1F 2021 samanborið við 3.045 m.kr. á sama tímabili árið 2020.

img-0.jpeg

Fjárfestingahreyfingar námu 1.809 m.kr. á 1F 2021 samanborið við 1.574 m.kr. á sama tímabili árið 2020.

Efnahagur

Heildareignir félagsins námu 65.968 m.kr. í lok 1F 2021 en voru 65.206 m.kr. í lok árs 2020.

Vaxtaberandi skuldir voru 16.010 m.kr. í lok 1F 2021 samanborið við 15.939 m.kr. í lok árs 2020. Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 15.313 m.kr. í lok 1F 2021 og hækkuðu um 109 m.kr. frá árslokum 2020. Hlutfall hreinna vaxtaberandi skulda á móti EBITDA síðastliðinna tólf mánaða var 1,44.

Efnahagur 31.3.2021 31.12.2020
Fastafjármunir 56.888 57.457
Veltufjármunir 9.080 7.749
Eignir alls 65.968 65.206
Eigið fé 39.434 37.298
Langtímaskuldir 11.448 20.025
Skammtímaskuldir 15.086 7.883
Skuldir og eigið fé alls 65.968 65.206
Eiginfjárhlutfall 59,8% 57,2%

Eigið fé félagsins nam 39.434 m.kr. í lok 1F 2021 og eiginfjárhlutfall félagsins var 59,8%.

Um starfsemina

  • Auglýsingasala eykst nokkuð frá fyrra ári sem má bæði þakka breyttu viðskiptalíkani og miklum vinsældum Helga Björns og Reiðmönnum vindanna.
  • Innleiðing stórra nýrra viðskiptavina hefur gengið vel þrátt fyrir faraldurinn.
  • Sjónvarpsþjónusta Símans verður brátt aðgengileg fyrir alla, allstaðar og viðskiptavinurinn mun stýra því sjálfur hvar og hvernig hann horfir. Sjónvarpsþjónustan verður aðgengileg í snjalltækjum og sjónvarpi, með eða án myndlykils og verður ekkert hámark á tengdum tækjum en fjöldi samtímaához a verður takmarkaður.
  • Um áramótin keypi Míla rekstur IP nets og farsímadreifikerfis af Símanum. Starfsmönnum Mílu fjölgaði um 20 og gera áætlanir ráð fyrir að árstekjur Mílu aukist um nærri 2,2 ma.kr. Byrjað er að kynna nýja þjónustu fyrir markaðsaðilum. Áhersla er á hagræðingu í uppbýggingu fjarskiptaneta til framtíðar.
  • Míla leggur áfram áherslu á ljósleiðaravæðingu um allt land, bæði fyrir heimili og fyrirtæki. Áhersla er á hagvkæma uppbýggingu og samstarf við aðra framkvæmdaraðila.
  • Í tengslum við eldgos á Reykjanesinu hefur Míla yfirfarið öryggi rafmagns í Grindavík. Í samstarfi fjarskiptafélaga var komið upp fjarskiptastað og tengingu á Langahrygg. Auk þess hefur verið hugað að vörnum ljósleiðarastrengja á Suðurstrandarleið.
  • Síminn lauk endurfjármögnun lána í mars. Skuldir Símans námu 15,4 ma.kr. og voru þær endurfjármagnaðar með 6 ma.kr. langtímaláni, 2 ma.kr. lánalínu og 8 ma.kr. brúarláni. Arion banki er lánveitandi Símans.

Síminn

  • Míla vann samhliða að endurfjármögnun sem lauk í byrjun apríl þegar Míla gekk frá 20 ma.kr. lánasamningi við Íslandsbanka. Míla nýtti lánið að stærstum hluta til að endurfjármagna lán sín frá Símanum. Síminn greiddi í kjölfarið upp lánalínu og brúarlán hjá Arion banka. Langtímaskuld Símans í dag er 6 ma.kr.
  • Endanlega var gengið frá sölu Sensa í lok 1F. Söluverð var 3.726 m.kr. sem er hækkun frá upphaflegum samningi í desember eða um 476 m.kr. Ástæða hækkunar er hagstæð þróun veltufjármuna og hækkun á hlutabréfaverði í Crayon Group A.S. Kaupverð var að 2/3 hluta greitt með reiðufé og 1/3 með bréfum í Crayon Group A.S. Greiðslan barst í byrjun apríl og skýrir því neikvæð áhrif af sölu félagsins í sjóðstreymi á 1F. Söluhagnaður var ríflega 2 ma.kr.

Horfur fyrir árið 2021

Spá fyrir árið 2021 gerir ráð fyrir að EBITDA samstæðunnar verði á bilinu 10,2 til 10,6 ma.kr. Áætlað er að fjárfestingar verði á bilinu 5,1 til 5,4 ma.kr.

Kynningarfundur 28. apríl 2021

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn miðvikudaginn 28. apríl kl. 8:30. Fundurinn verður eingöngu rafrænn og munu Orri Hauksson forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum. Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast í fréttakerfi Nasdaq Iceland og á heimasíðu Símans https://www.siminn.is/umsimann/uppgjor.

Hægt verður að fylgjast með fundinum í netstreymi á vefslóðinni:

https://www.siminn.is/fjarfestakynning.

Þeir sem vilja bera upp spurningar geta sent þær á fjá[email protected] og verður þeim svarað í lok fundarins.

Fjárhagsdagatal 2021

  • Afkoma 2F 2021 31. ágúst 2021
  • Afkoma 3F 2021 26. október 2021
  • Ársuppgjör 2021 22. febrúar 2022
  • Aðalfundur 2022 17. mars 2022

Nánari upplýsingar um uppgjórið veita:

Orri Hauksson, forstjóri Símans, s. 550 6003 ([email protected])

Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans, s. 550 6003 ([email protected])

Síminn hf.

Síminn á og rekur fyrirtækin Símann, Mílu, Farsímagreiðslur og Radiómiðun. Síminn er stærsta fjarskiptafyrirtæki landsins og veitir viðskiptavinum, bæði einstaklingum og fyrirtækjum, heildstætt vöruframboð á sviði fjarskipta, afbreyingar og upplýsingatækni.