Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Síminn Interim / Quarterly Report 2021

Aug 31, 2021

2203_rns_2021-08-31_42413194-59a8-4f9a-8a14-76d853b60631.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

Síminn

  1. ágúst 2021

Fréttatilkynning: Afkoma Símans hf. á 2F 2021

Tekjuvöxtur og áfram góð afkoma

  • Tekjur á öðrum ársfjórðungi (2F) 2021 námú 6.352 m.kr. samanborið við 6.214 m.kr. á sama tímabili 2020 og hækka því um 138 m.kr. eða 2,2%.
  • Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði EBITDA nám 2.557 m.kr. á 2F 2021 samanborið við 1.800 m.kr. á sama tímabili 2020 og hækkar því um 757 m.kr. eða 42,1% frá sama tímabili í fyrra. Sé tekið tillit til 500 m.kr. stjórnvaldssektar á 2F 2020 var EBITDA tímabilsins 2.300 m.kr. EBITDA hlutfallið er 40,3% fyrir annan ársfjórðung 2021 en var 29,0% á sama tímabili 2020. Rekstrarhagnaður EBIT nám 1.126 m.kr. á 2F 2021 samanborið við 335 m.kr. á sama tímabili 2020.
  • Hagnaður á 2F 2021 nám 618 m.kr. samanborið við 83 m.kr. á sama tímabili 2020.
  • Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta nám 2.717 m.kr. á 2F 2021 en var 2.905 m.kr. á sama tímabili 2020. Eftir vexti og skatta nám handbært fé frá rekstri 2.424 m.kr. á 2F 2021 en var 2.481 m.kr. á sama tímabili 2020.
  • Vaxtaberandi skuldir að leiguskuldbindingum meðtöldum námú 32,9 ma.kr. í lok 2F 2021 en voru 21,5 ma.kr. í árslok 2020. Hreinar vaxtaberandi skuldir að leiguskuldbindingum meðtöldum voru 25,9 ma.kr. í lok 2F 2021 samanborið við 20,8 ma.kr. í árslok 2020.
  • Hrein fjármagnsgjöld námú 315 m.kr. á 2F 2021 en voru 185 m.kr. á sama tímabili 2020. Fjármagnsgjöld námú 349 m.kr., fjármunatekjur voru 57 m.kr. og gengistap nám 23 m.kr.
  • Eiginfjárhlutfall Símans hf. var 44,7% í lok 2F 2021 og eigið fé 31,1 ma.kr.

Orri Hauksson, forstjóri:

„Við erum sátt við niðurstöðu ársfjórðungsins, sem var talsvert betri en á sama tíma í fyrra. Tekjur, EBITDA, EBIT og sjóðstrey mi aukast milli ára. Stór hluti aukningarinnar kemur til vegna sérstakra atburða á öðrum ársfjórðungi í fyrra, en Síminn hlaut þá sekt af hálfu Samkeppniseftirlitsins auk þess sem umtalsverður uppsagnarkostnaður kom til. Sé leiðrétt fyrir þessum þáttum er þó áfram jákvæð þróun í öllum undirliggjandi rekstrarbáttum.

Starfsemi ársfjórðungsins litaðist einnig af mörgum aðgerðum, sem ekki komu nema að hluta fram í uppgjörstölum. Úrvinnslu nýrrar fjármögnunar og breyttrar verkaskiptingar innan samstæðu lauk á tímabilinu. Pannig greiddum við upp fyrri lán, skiluðum umtalverðu fé út til hluthafa og gáfum í fyrsta sinn út víxlaflokk, sem skráður er á markaði. Rekstur


Síminn

farsímadreifikerfis og IP nets var endanlega færður frá Símanum til Mílu, í samræmi við fyrri áætlanir og tilkynningar.

Í maí náðist stór áfangi þegar 100.000 heimili gátu tengst ljósleiðara Mílu. Þannig fækkar þeim heimilum landsins jafnt og þétt sem ekki hafa aðgang að ljósleiðara heim í hús. Þó eru enn fjölmargir þéttbýlisstaðir á landsbyggðinni, þar sem uppbyggingar er þörf. Verður þeim sinnt eins rökklega og regluumgjörð fjárfestinganna gefur tilefni til.

Rekstraröryggi fjarskipta er mikilvægt um allan heim, en þarfnast meiri athygli á Íslandi en víða annars staðar. Flestir muna að veturinn 2019-2020 setti rafmagsleysi vegna óveðurs fjarskipti úr skorðum á stórum svæðum landsins. Í öðrum ársfjörðungi 2021 rann hraun yfir stofnljósleiðara við Nátthaga, en öllum fjarskiptum var komið á nýjan streng sem liggur sunnar, meðfram Suðurstrandarvegi. Blessunarlega varð engin óeðlileg truflun á fjarskiptum við þessa breytingu. Í sumar var sett upp ný 200 gígabita stofntenging þvert yfir landið á nýrri hálendisleið. Einnig er verið að uppfæra bylgjulengdarkerfi á stofnneti Mílu, en kerfi þetta er ein mikilvægasta grunnstoð fjarskipta í landinu. Sama markmiðið er að baki allra þessara verkefna, að varðveita og treysta í sessi öryggi fjarskipta landsins.

Áfram eru framtíðarmöguleikar Mílu sem sjálfstæðs félags til skoðunar, undir handleiðslu fjárfestingarbankans Lazard og Íslandsbanka. Eins og tilkynnt var um í apríl síðastliðnum koma eigendabreytingar á félaginu til greina, en ekkert hefur enn verið ákveðið í þeim efnum. Innlendir og erlendir fjárfestingarsjóðir hafa sýnt félaginu áhuga og verður rætt nánar við valda aðila í framhaldinu. Veturinn verður því nýttur til að ljúka stefnumörkun um félagið.

Gagnvart viðskiptavinum Símans hafa náðst nokkrir mikilvægir áfangar. Uppfærsla og uppbygging Mílu á 5G sendum fyrri Símann gengur í samræmi við áætlanir og verður opnað á almenna umferð á 5G kerfinu í haust. Síminn veitir nú internetþjónustu um öll fastlínunet landsins, eftir að samningur við Gagnaveitu Reykjavíkur komst í virkni á dögunum. Sjónvarpsþjónusta Símans var gerð enn sveigjanlegri en fyrr. Í nokkur ár hefur verið hægt að kaupa áskriftarþjónustu Símans í sjónvarpi yfir öll net landsins, hvort sem er fastlínu eða farsímakerfi. Breytingin nú er að ekki þarf að nýta myndlykil frekar en fólk vill. Hluti viðskiptavina færði sér þá breytingu í nyt um leið og hægt var, en flestir vilja enn sem komið er nýta sama fyrirkomulag og verið hefur. Reynslan sýnir að notkunarbreytingar af þessu tagi taka nokkur ár, þegar boðið er upp á nýja möguleika en ekki er verið að leggja um leið af notkun fyrri tækni.

Þá glöddumst við yfir því á öðrum ársfjörðungi að ná að framlengja sýningarrétt Símans að ensku úrvalsdeildinni í fótbolta og nær rétturinn nú til vorsins 2025. Afhending erlands sjónvarpsefnis til sjónvarpsáhorfenda um allan heim tekur miklum breytingum um þessar mundir og fer í meiri mæli fram með beinum hætti yfir internetið um sjónvarpsöpp framleiðendanna sjálfra. Niðurstaðan varðandi enska boltann veitir því góðan grunn fyrir sjónvarpsþjónustu okkar næstu árin. Samningar sem við höfum við erlend kvikmyndaver og aukin íslensk framleiðsla munu auk þess veita þessari mikilvægu þjónustu okkar styrka umgjörð."


Síminn

Helstu niðurstöður í rekstri á fyrstu sex mánuðum 2021

Rekstur

Rekstrarrelkningur 2F 6M
2021 2020 % 2021 2020 %
Rekstrartekjur 6.352 6.214 2,2% 12.760 12.523 1,9%
Kostnaðarverð söl (3.152) (3.188) -1,1% (6.367) (6.152) 3,5%
Rekstrarkostnaður (2.074) (2.691) -22,9% (4.145) (4.845) -14,4%
EBIT 1.126 335 236,1% 2.248 1.526 47,3%
Hrein fjármagnsgjöld (315) (185) 70,3% (502) (418) 20,1%
Tekjuskattur (177) (136) 30,1% (368) (332) 10,8%
Hagnaður tímabils af áframhaldandi starfsemi 634 14 4428,6% 1.378 776 77,6%
Aflögð starfsemi (16) 69 2.124 71
Hagnaður tímabils 618 83 644,6% 3.502 847 313,5%
EBITDA 2.557 1.800 42,1% 5.097 4.438 14,8%
Hagnaður á hlut 0,10 0,01 900,0% 0,44 0,10 340,0%

Sala á 1H 2021 nam 12.760 m.kr. samanborið við 12.523 m.kr. á sama tímabili árið 2020, sem er 1,9% vöxtur milli ára. Tekjur af farsíma námu 2.799 m.kr. og hækkuðu um 95 m.kr. eða 3,5% á milli tímabila. Tekjur af talsíma námu 799 m.kr. og lækkuðu um 8,8% á milli tímabila. Tekjur af gagnaflutningi námu 4.446 m.kr. og hækkuðu um 73 m.kr. eða 1,7% á milli tímabila. Tekjur af sjónvarpsþjónustu námu 3.188 m.kr. og hækkuðu um 105 m.kr. eða 3,4% á milli tímabila. Tekjur af vörusölu voru 1.031 m.kr. og hækkuðu um 116 m.kr. eða 12,7% á milli tímabila. Aðrar tekjur námu 497 m.kr. og lækkuðu um 75 m.kr. á milli tímabila.

Kostnaðarverð seldrar þjónustu nam 6.367 m.kr. og hækkar um 215 m.kr. eða 3,5% frá sama tímabili árið áður. Þar af hækkar kostnaðarverð seldra vara um 101 m.kr. sem tengist aukinni vörusölu. Rekstrarkostnaður nam 4.145 m.kr. og lækkaði um 700 m.kr. eða 14,4% frá sama tímabili árið 2020. Framlegð á 1H 2021 nam 6.176 m.kr. og hækkaði um 51 m.kr. eða 0,8% frá sama tímabili árið 2020. Áðurnefnd stjórnvaldssekt á 2F 2020 litar samanburð á milli árshelminga.

EBITDA, þ.e. rekstrarhagnaður félagsins fyrir afskriftir og fjármagnsliði, var 5.097 m.kr. á 1H 2021 en var 4.438 m.kr. á sama tímabili árið 2020 og hækkaði því um 659 m.kr. á milli tímabila eða um 14,8%. EBITDA hlutfallið er 39,9% á 1H 2021, en var 35,4% á sama tímabili árið 2020.

Afskriftir félagsins námu 2.849 m.kr. á 1H 2021 samanborið við 2.912 m.kr. á sama tímabili árið 2020 og lækka um 63 m.kr. á milli tímabila.

Hrein fjármagnsgjöld voru 502 m.kr. á 1H 2021 og hækkuðu um 84 m.kr. á milli ára. Gengistap erlendra eigna skýrir stærstan hluta þessarar hækkunar.

Hagnaður 1H 2021 nam 3.502 m.kr. samanborið við 847 m.kr. á sama tímabili árið 2020. Hagnaður af áframhaldandi starfsemi nam 1.378 m.kr. á 1H 2021.


Síminn

Sjóðstreymi

Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta var 5.727 m.kr. á 1H 2021 samanborið við 6.277 m.kr. á sama tímabili árið 2020. Eftir vexti og skatta nam handbært fé frá rekstri 4.998 m.kr. á 1H 2021 samanborið við 5.519 m.kr. á sama tímabili árið 2020.

img-0.jpeg

Fjárfestingahreyfingar námu 442 m.kr. á 1H 2021 samanborið við 2.739 m.kr. á sama tímabili árið 2020.

Efnahagur

Heildareignir félagsins námu 69.615 m.kr. í lok 2F 2021 en voru 65.206 m.kr. í lok árs 2020.

Vaxtaberandi skuldir að leiguskuldbindingum meðtöldum voru 32.855 m.kr. í lok 2F 2021 samanborið við 21.518 m.kr. í lok árs 2020. Hreinar vaxtaberandi skuldir að leiguskuldbindingum meðtöldum voru 25.891 m.kr. í lok 2F 2021 og hækkuðu um 5.108 m.kr. frá árslokum 2020. Hlutfall hreinna vaxtaberandi skulda að leiguskuldbindingum meðtöldum á móti EBITDA síðastliðinna tólf mánaða var 2,51.

Efnahagur 30.06.2021 31.12.2020
Fastafjármunir 56.862 57.457
Veltufjármunir 12.753 7.749
Eignir alls 69.615 65.206
Eigið fé 31.138 37.298
Langtímaskuldir 30.340 20.025
Skammtímaskuldir 8.137 7.883
Skuldir og eigið fé alls 69.615 65.206
Eiginfjárhlutfall 44,7% 57,2%

Eigið fé félagsins nam 31.138 m.kr. í lok 2F 2021 og eiginfjárhlutfall félagsins var 44,7%.

Um starfsemina

  • Síminn náði í sumar samningum við Premier League um sýningarrétt að ensku úrvalsdeildinni til þriggja ára. Eitt ár er eftir af núverandi samningi og verður því enski boltinn á dagskrá hjá Símanum a.m.k. næstu fjögur keppnistímabil eða til ársins 2025.
  • Síminn hefur skrifað undir samstarfssamning við Almannaróm, miðstöð máltækni á Íslandi. Almannarómur ber ábyrgð á máltækniáætlun stjórnvalda en markmið hennar er að vernda íslenska tungu, með því að tryggja að við getum og munum nota íslensku í samskiptum við og í gegnum stafræn tæki og tölvur. Síminn ætlar sér að vera ötull liðsmaður íslenskrar tungu og styrkja hana og efla þannig að hún verði ekki skilin eftir í stafrænni þróun.
  • Í ársbyrjun 2020 var farið af stað með verkefni þar sem starfsmönnum fyrirtækisins sem ekki hafa lokið stúdentsprófi var boðið að undirgangast svokallað raunfærnimat þar sem starfsreynsla þeirra er metin til eininga í framhaldsskóla. Áhuginn var strax mikill en 20 starfsmenn sóttu um og var gerður samstarfsamningur við Símenntunarstöðina á Vesturlandi. Í dag hafa um 50 starfsmenn farið í gegnum raunfærnimatið og eru rúmlega 25 starfsmenn að klára sitt formlega nám.
  • Róbótavæðing er orðinn mikilvægur þáttur í starfsemi Símans. Nú þegar eru þúsundir verka unnin með þessum hætti sem áður voru tímafrek. Mikill sparnaður hefur skapast auk þess sem dregið hefur úr villuhættu.

Síminn

  • Uppbygging 5G kerfis gengur samkvæmt åætun og hafa 12 sendar þegar verið gangsettir á höfuðborgarsvæðinu. Í árslok munu a.m.k. 25% landsmanna geta tengst 5G kerfi Símans.
  • Reiki erlendra ferðamanna hjá Símanum hefur tekið við sér eftir mikla lægð frá því í mars 2020. Gagnaumferðin undanfarinn mánuð er nálægt því að vera tvöföld borin saman við sama tímabil í fyrra og á pari við umferðina árið 2019.
  • Áfram var unnið að ljósleiðaravæðingu heimila í þéttbýli viða um land. Í maí náðist stór áfangi hjá Mílu þegar 100.000 heimili voru komin með aðgang að ljósleiðara fyrirtækisins. Farið var af stað með nýjung á nokkrum völdum þéttbýlisstöðum þar sem hafin er uppbygging ljósleiðara til heimila gegin greiðslu stofngjalds. Míla lauk ljósleiðaravæðingu dreifbýlis Reykjavíkurborgar samkvæmt útboði. Samhliða öflugri ljósleiðaravæðingu hóf Míla að taka niður fyrstu talsímastöðvarnar fyrir Símann.
  • Míla hóf uppbyggingu á nýju bylgjulengdarkerfi. Núverandi kerfi hefur þjónað landinu í rúm 10 ár og er kerfið ein mikilvægasta grunnstoð fjarskipta í landinu. Helmingur núverandi kerfis verður endurnýjaður á þessu ári og hinn helmingurinn á næsta ári. Eftir uppfærslu mun flutningsgeta og sveigjanleiki innanlands aukast verulega sem m.a. mun styðja við ljósleiðaravæðingu úti á landi og uppbyggingu 5G allt í kringum landið. Einnig var í fjörðungnum sett upp ný 200 gígabita stofntenging yfir hálendið á nýrri hálendisleið. Með því eykst rekstraröryggi fjarskipta á landsvísu.
  • Míla hefur fylgst vel með þróun eldgossins á Reykjanesi. Hraun rann yfir stofnljósleiðara við Nátthaga og var öllum fjarskiptum komið á nýjan streng sem liggur sunnar, meðfram Suðurstrandarvegi án þess að öeðlileg truflun yrði á fjarskiptum. Ljóst er af reynslunni að innviðir í jörðu standast illa það álag að lenda undir hrauni. Viðbragð og skipulag við frekari breytingum vegna hraunflæðis á svæðinu liggur fyrir og verður virkjað ef til þess kemur.

Horfur fyrir árið 2021

Spá fyrir árið 2021 er óbreytt og gerir ráð fyrir að EBITDA samstæðunnar verði á bilinu 10,2 til 10,6 ma.kr. Áætlað er að fjárfestingar verði á bilinu 5,1 til 5,4 ma.kr.

Kynningarfundur 1. september 2021

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn miðvikudaginn 1. september 2021 kl. 8:30 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík. Fjárfestar og markaðsaðilar eru sérstaklega boðnir velkomnir á fundinn. Á fundinum munu Orri Hauksson forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum. Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast í fréttakerfi Nasdaq Iceland og á heimasíðu Símans https://www.siminn.is/umsimann/uppgjor.

Jafnframt verður hægt að fylgjast með fundinum í netstreymi á vefslóðinni:

https://www.siminn.is/fjarfestakynning.

Þeir sem vilja bera upp spurningar geta sent þær á fjá[email protected] og verður þeim svarað í lok fundarins.


Síminn

Fjárhagsdagatal 2021

  • Afkoma 3F 2021 26. október 2021
  • Ársuppgjör 2021 15. febrúar 2022
  • Aðalfundur 2022 10. mars 2022

Nánari upplýsingar um uppgjörið veita:

Orri Hauksson, forstjóri Símans, s. 550 6003 ([email protected])

Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans, s. 550 6003 ([email protected])

Síminn hf.

Síminn á og rekur fyrirtækin Símann, Mílu, Farsímagreiðslur og Radiómiðun. Síminn er stærsta fjarskiptafyrirtæki landsins og veitir viðskiptavinum, bæði einstaklingum og fyrirtækjum, heildstætt vöruframboð á sviði fjarskipta, afþreyingar og upplýsingatækni.