Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Síminn Interim / Quarterly Report 2021

Oct 26, 2021

2203_rns_2021-10-26_7ef489cd-783c-47f6-95a8-a4a177dc0438.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

img-0.jpeg

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu

  1. janúar til 30. september 2021

Síminn hf.

Ármúla 25

108 Reykjavík

Kt. 460207-0880


Efnisyfirlit

Bls.

Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra... 2-3
Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu... 4
Efnahagsreikningur... 5
Eiginfjáryfirlit... 6
Sjóðstreymisyfirlit... 7
Skýringar... 8 - 14
Ársfjórðungsyfirlit... 15

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. september 2021


Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra

Árshlutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning Símans hf. og dótturfélaga hans. Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið sambýkktur af Evrópusambandinu. Árshlutareikningurinn er hvorki endurskoðaður né kannaður af endurskoðendum félagsins.

Hagnaður var af rekstri félagsins sem nam 4.559 m.kr. samanborið við hagnað að fjárhæð 1.861 m.kr. á sama tímabili 2020. Hagnaður af reglulegri starfsemi nam 2.435 m.kr. samanborið við hagnað að fjárhæð 1.738 m.kr. á sama tímabili 2020. Heildartekjur félagsins á tímabilinu 1. janúar til 30. september voru 19.141 m.kr. samkvæmt rekstrarreikningi samanborið við 18.943 m.kr. á sama tímabili árið 2020. Eignir félagsins í lok tímabils námu 69.485 m.kr. samkvæmt efnahagsreikningi. Eigið fé nam 31.301 m.kr. og var eiginfjárhlutfallið 45%.

Í desember 2020 undirrituðu Síminn hf. og Crayon Group AS skuldbindandi samning um sölu Símans hf. á dótturfélaginu Sensa ehf. til Crayon. Uppgjör viðskiptanna átti sér stað í lok mars og var kaupverðið að fullu greitt í apríl. Söluverð félagsins var 3.710 m.kr. og nam söluhagnaður 2.057 m.kr. Sjá nánar í skýringu 13.

Þann 18. október sl. gekk Síminn hf. til einkaviðræðna við Ardian France SA um sölu á öllum eignarhlut í fjarskiptafélaginu Mílu ehf. Þeim viðræðum lauk þann 23. október með undirritun samnings um sölu á 100% hlutafjár í Mílu. Salan er háð hefðbundnum fyrirvara um sambýkki Samkeppniseftirlitsins.

Virði viðskiptanna (e. Enterprise value) er 78 milljarðar króna, að meðtöldum fjárhagslegum skuldbindingum Mílu sem kaupandinn yfirtekur. Samkvæmt kaupsamningi fær Síminn greitt á efndadegi um 44 milljarða króna í reiðufé og 15 milljarða króna í formi skuldabréfs til þriggja ára. Áætlaður söluhagnaður er 46 milljarðar króna að teknu tilliti til kostnaðar vegna viðskiptanna. Sjá nánar í skýringu 13.

Félagið endurfjármagnaði langtímálán sín á tímabilinu. Annars vegar með langtímáláni frá Arion banka að fjárhæð 6 ma.kr. og svo með langtímáláni til Mílu frá Íslandsbanka að fjárhæð 20 ma.kr. auk 1 ma.kr. lánalínu. Í lok júní gaf félagið út skammtímavixla að fjárhæð 1,5 ma. kr.

Á aðalfundi Símans hf. þann 11. mars 2021 var sambýkkt tillaga stjórnar um lækkun á hlutafé félagsins. Lækkun vegna eigin hluta nam 316 m.kr. að nafnvirði, hlutafé lækkæði því úr 8.750 m.kr. í 8.434 m.kr. Að auki var sambýkkt tillaga stjórnar um lækkun á hlutafé með greiðslu til hluthafa að fjárhæð 8.000 m.kr. Nafnverðslækkun hlutafjár nam 894 m.kr. Hlutafé eftir lækkæinir nemur 7.540 m.kr. Lækkun hlutafjár var framkvæmd í apríl. Á sama fundi var sambýkkt tillaga um heimild til kaupa á eigin bréfum félagsins að hámarki 754 m.kr. að nafnverði og tillaga um arð að fjárhæð 500 m.kr. til hluthafa sem félagið greiddi í apríl. Í samræmi við ofangreinda heimild aðalfundar hafa verið keypt eigin bréf að nafnverði 122 m.kr. fyrir 1.340 m.kr. Áður höfðu verið keypt eigin bréf að nafnvirði 84 m.kr. fyrir 749 m.kr. að markaðsverði byggt á heimild aðalfundar 2020. Að öðru leyti vísast til árshlutareiknings um breytingar á eigin fé félagsins.

Yfirlýsing stjórnar og forstjóra

Samkvæmt bestu vitneskju stjórnar og forstjóra er árshlutareikningur félagsins í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið staðfestur af Evrópusambandinu. Er það álit stjórnar og forstjóra að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af rekstrarafkomu félagsins á tímabilinu 1. janúar til 30. september 2021, eignum, skuldum og fjárhagsstöðu þess 30. september 2021 og breytingu á handbæru fé á tímabilinu 1. janúar til 30. september 2021. Jafnframt er það álit stjórnar og forstjóra að árshlutareikningurinn gefi glöggt yfirlit um þróun og árangur í rekstri félagsins og stöðu þess og lýsi helstu áhættuþáttum og óvissu sem félagið býr við.

Síminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. september 2021


Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra

Stjórn og forstjóri Símans hf. hafa í dag fjallað um árshlutareikning félagsins fyrir tímabilið 1. janúar til 30. september 2021 og staðfesta hann með undirritun sinni.

Reykjavík, 26. október 2021

Stjórn

Jón Sigurðsson, formaður

Sigrún Ragna Ólafsdóttir, varaformaður

Arnar Þór Másson

Bjarni Þorvarðarson

Björk Viðarsdóttir

Forstjóri

Orri Hauksson

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. september 2021


Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu
1. janúar til 30. september 2021

Skýr. 2021 2020* 2021 2020*
1.7.-30.9. 1.7.-30.9. 1.1.-30.9. 1.1.-30.9.
Sala 5 6.267 6.307 18.810 18.584
Kostnaðarverð sólú 6 ( 2.993) ( 3.143) ( 9.360) ( 9.295)
Framlegð 3.274 3.164 9.450 9.289
Aðrar rekstrartekjur 114 113 331 359
Rekstrarkostnaður 7 ( 1.862) ( 1.939) ( 6.007) ( 6.784)
Rekstrarhagnaður 1.526 1.338 3.774 2.864
Fjármunatekjur 75 51 191 141
Fjármagnsgjöld ( 321) ( 177) ( 872) ( 631)
Gengismunur 28 ( 17) ( 39) ( 71)
Hrein fjármagnsgjöld 8 ( 218) ( 143) ( 720) ( 561)
Hagnaður fyrir tekjuskatt 1.308 1.195 3.054 2.303
Reiknaðir skattar ( 251) ( 233) ( 619) ( 565)
Hagnaður og heildarhagnaður af áframhaldandi starfsemi tímabilsins ... 1.057 962 2.435 1.738
Aflögð starfsemi 13 0 52 2.124 123
Hagnaður og heildarhagnaður tímabilsins 1.057 1.014 4.559 1.861
EBITDA 4 2.974 2.805 8.071 7.243
Hagnaður á hlut
Grunnhagnaður á hlut 0,15 0,11 0,59 0,21
Þynntur hagnaður á hlut 0,15 0,11 0,59 0,21

*Fjárhæðum vegna 2020 hefur verið breytt vegna sólú á Sensa ehf., sjá skýringu 13
Skýringar á blaðsiðum 8 - 14 eru óaðskiljanlegur hluti af árshlutareikningnum.

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. september 2021
Fjárhæðir eru í milljónum króna


Efnahagsreikningur 30. september 2021

Skýr. 30.9.2021 31.12.2020
Eignir
Fastafjármunir
Rekstrarfjármunir 19.273 18.991
Leigueignir 5.051 5.378
Óefnislegar eignir 31.725 32.544
Aðrar eignir 9 624 544
Fastafjármunir 56.673 57.457
Veltufjármunir
Birgðir 10 1.288 1.127
Viðskiptakrófur 11 2.464 3.147
Aðrar skammtímakrófur 12 2.108 834
Handbært fé 6.952 735
Eignir flokkaðar til sölu 13 0 1.906
Veltufjármunir 12.812 7.749
Eignir samtals 69.485 65.206
Eigið fé
Hlutafé 7.387 8.483
Yfirverðsreikningur 4.081 13.041
Annað eigið fé 154 154
Annað bundið eigið fé 1.745 674
Óráðstafað eigið fé 17.934 14.946
Eigið fé 31.301 37.298
Skuldir
Langtímaskuldir
Skuldabréfalán 24.878 14.289
Leiguskuldbindingar 4.790 5.066
Tekjuskattsskuldbinding 14 343 670
Langtímaskuldir 30.011 20.025
Skammtímaskuldir
Skammtímálán 1.518 500
Viðskiptaskuldir 2.392 2.554
Næsta árs afborganir langtímaskulda 800 1.150
Næsta árs afborganir leiguskuldbindinga 486 513
Skattar til greiðslu 1.208 850
Aðrar skammtímaskuldir 15 1.769 1.540
Skuldir sem tengjast eignum sem flokkaðar eru til sölu 13 0 776
Skammtímaskuldir 8.173 7.883
Skuldir samtals 38.184 27.908
Eigið fé og skuldir samtals 69.485 65.206

Skýringar á blaðsiðum 8 - 14 eru óaðskiljanlegur hluti af árshlutareikningnum.

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. september 2021

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Eiginfjáryfirlit 30. september 2021

Hlutafé Yfirverðs-reikningur Annað eigið fé Annað bundið eigið fé Óráðstafað eigið fé Eigið fé samtals
Eigið fé 1.1.2020 8.750 14.525 154 456 12.747 36.632
Hagnaður og heildarhagnaður tímabilsins 1.861 1.861
Þýðingarmunur 1 1
Greiddur arður (0,057144 á hlut) ( 500) ( 500)
Keypt eigin bréf ( 225) ( 1.208) ( 1.433)
Eigið fé 30.9.2020 8.525 13.317 154 457 14.108 36.561
Eigið fé 1.1.2021 8.483 13.041 154 674 14.946 37.298
Hagnaður og heildarhagnaður tímabilsins 4.559 4.559
Greiddur arður (0,05953 á hlut) ( 500) ( 500)
Hlutafjárlækkun ( 890) ( 7.077) ( 7.967)
Keypt eigin bréf ( 206) ( 1.883) ( 2.089)
Fært á bundið eigið fé 1.071 ( 1.071) 0
Eigið fé 30.9.2021 7.387 4.081 154 1.745 17.934 31.301

Skýringar á blaðsíðum 8 - 14 eru óaðskiljanlegur hluti af árshlutareikningnum.

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. september 2021

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Sjóðstreymisyflrit 1. janúar til 30. september 2021

Skýr. 2021 2020* 2021 2020*
1.7.-30.9. 1.7.-30.9. 1.1.-30.9. 1.1.-30.9.
Rekstrarhreyfingar
Rekstrarhagnaður samkvæmt rekstrarreikningi 1.526 1.338 3.774 2.864
Rekstrarliðir sem ekki hafa áhrif á fjárstreymi:
Afskriftir 1.448 1.467 4.297 4.379
Söluhagnaður varanlegra rekstrarfjármuna 0 0 ( 1) ( 4)
2.974 2.805 8.070 7.239
Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum:
Birgðir, (hækkun) lækkun ( 30) ( 14) ( 123) 166
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur, (hækkun) lækkun ( 73) 30 480 592
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir, hækkun (lækkun) 97 ( 608) 268 492
Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum ( 6) ( 592) 625 1.250
Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta 2.968 2.213 8.695 8.489
Innborgaðir vextir 61 52 173 139
Greiddir vextir ( 492) ( 214) ( 891) ( 685)
Greiddir skattar ( 148) ( 124) ( 590) ( 499)
Handbært fé frá rekstri 2.389 1.927 7.387 7.444
Fjárfestingarhreyfingar
Fjárfesting í rekstrarfjármunum ( 947) ( 920) ( 2.663) ( 2.912)
Fjárfesting í óefnislegum eignum ( 152) ( 94) ( 1.030) ( 1.222)
Söluverð rekstrarfjármuna 1 1 4 5
Skuldabréfaeign, breyting ( 355) ( 56) ( 606) ( 118)
Áhrif af niðurlagðri starfsemi 13 0 14 71 454
Sala á eignarhlutum í dótturfélögum, að frádregnu handbæru fé 13 248 0 2.577 0
Fjárfestingarhreyfingar ( 1.205) ( 1.055) ( 1.647) ( 3.793)
Fjármögnunarhreyfingar
Greiddur arður 0 0 ( 500) ( 500)
Kaup eigin bréfa ( 892) ( 983) ( 2.088) ( 1.433)
Útgreitt hlutafé 0 0 ( 7.968) 0
Tekin ný langtímalán 0 0 26.000 0
Afborganir langtímalána ( 200) 0 ( 15.629) ( 192)
Afborganir leguskuldbindinga ( 124) ( 144) ( 363) ( 420)
Skammtímalán, breyting 0 0 1.018 ( 600)
Fjármögnunarhreyfingar ( 1.216) ( 1.127) 470 ( 3.145)
(Lækkun) hækkun á handbæru fé ( 32) ( 255) 6.210 506
Áhrif gengisbreytinga á handbært fé 20 ( 7) 7 ( 9)
Handbært fé í byrjun tímabilsins 6.964 976 735 217
Handbært fé í lok tímabilsins 6.952 714 6.952 714

*Fjárhæðum vegna 2020 hefur verið breytt vegna sölu á Sensa ehf., sjá skýringu 13
Skýringar á blaðsiðum 8 - 14 eru óaðskiljanlegur hluti af árshlutareikningnum.

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. september 2021

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

1. Starfsemi

Síminn hf. er hlutafélag og starfar á grundvelli laga nr. 2/1995 um hlutafélög. Höfuðstöðvar félagsins eru að Ármúla 25 í Reykjavík. Samstæðuárs hlutareikningur fyrir tímabilið janúar til september 2021 hefur að geyma árs hlutareikning félagsins og dótturfélaga þess sem vísað er til í heild sem „félagsins“ og til einstakra félaga sem „dótturfélaga“.

Meginstarfsemi félagsins er á sviði fjarskipta og afþreyingar.

2. Grundvöllur reikningsskilanna

Yfirlýsing um að alþjóðlegum reikningsskilastöðlum sé fylgt

Árs hlutareikningur félagsins er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastöðal um árs hlutareikninga, IAS 34. Samandreginn árs hlutareikningur Símans hf. inniheldur ekki allar þær upplýsingar sem krafist er í fullbúnum ársreikningi og ætti að lesa í samhengi við ársreikning félagsins fyrir árið 2020. Valdar skýringar eru með árs hlutareikningnum til að skýra og upplýsa um rekstur félagsins á tímabilinu og breytingar á fjárhagslegri stöðu frá síðasta ársreikningi.

Hægt er að nálgast ársreikninginn á vef félagsins, www. siminn.is og á vef Kauphallar Íslands: www.nasdaqomxnordic.com.

Stjórn og forstjóri félagsins samþykktu árs hlutareikninginn og heimiluðu birtingu hans á stjórnarfundi þann 26. október 2021.

Grundvöllur matsaðferða

Samstæðuárs hlutareikningurinn er gerður samkvæmt kostnaðarverðsaðferð.

Starfrækslugjaldmiðill og framsetningargjaldmiðill

Árs hlutareikningurinn er gerður í íslenskum krónum sem er starfrækslugjaldmiðill félagsins og eru fjárhæðir birtar í milljónum króna nema annað sé tekið fram.

Mat og ákvarðanir

Gerð samstæðuárs hlutareiknings í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastöðla krefst þess að stjórnendur taki ákvarðanir, meti og gefi sér forsendur sem hafa áhrif á beitingu reikningsskilaaðferða og birtar fjárhæðir eigna, skulda, tekna og gjalda. Endanlegar niðurstöður kunna að verða frábrugðnar þessu mati.

Mat og forsendur þess eru í stöðugri endurskoðun. Breytingar á reikningshaldslegu mati eru færðar á því tímabili sem breytingin á sér stað og þeim framtiðartímabilum sem breytingarnar hafa áhrif á.

3. Breytingar á reikningsskilaaðferðum

Við gerð árs hlutareikningsins er beitt sömu reikningsskilaaðferðum og við gerð ársreiknings félagsins fyrir árið 2020.

Siminn hf. - Samandreginn árs hlutareikningur samstæðu 30. september 2021

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

4. Starfsþáttayfirlit

Yfirlit um starfsþætti veitir upplýsingar um einstaka þætti í rekstri félagsins og er sett fram með sama hætti og regluleg skýrslugjóf til stjórnar félagsins.

Starfsemi félagsins skiptist í sex starfsþætti sem selja vörur og þjónustu á mismunandi mörkuðum. Starfsþættirnir voru sjö áður en með sölu á Sensa fellur út starfsþáttur sem snéri að upplýsingatækni. Starfsþættirnir eru:

Starfsþáttur Lýsing
Farsímapjónusta: Farsímapjónusta innanlands og erlendis, hvort sem heldur er hefðbundin GSM þjónusta, gervihnattapjónusta eða önnur farsímapjónusta.
Talsímapjónusta: Talsímapjónusta fyrir fyrirtæki og einstaklinga.
Gagnaflutningur: Gagnaflutningsþjónusta, þ.m.t. xDSL þjónusta, GPON, Internet, IP net, stofnnet, heimtaugar og aðgangsnet.
Sjónvarpsþjónusta: Dreifing á sjónvarpsefni, áskrift, notkun og auglýsingar á miðlum félagsins.
Vörusala búnáðar: Sala á fjarskiptabúnaði og fylgihlutum.
Annað: Útseld þjónusta tengd fjarskiptum og upplýsingatækni.
Starfsþættir 1.1.-30.9. 2021 Farsíma-þjónusta Talsíma-þjónusta Gagna-flutningur Sjónvarps-þjónusta Vörusala búnáðar Annað Samtals
Rekstrartekjur 4.362 1.181 6.645 4.728 1.509 716 19.141
Óskipt rekstrargjöld ( 11.070)
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) 8.071
Afskriftir ( 4.297)
Hrein fjármagnsgjöld ( 720)
Reiknaðir skattar ( 619)
Hagnaður af áframhaldandi starfsemi 2.435
Aflögð starfsemi 2.124
Hagnaður tímabilsins 4.559
Fjárfestingar ( 3.689)
Óskiptar eignir 30.9.2021 69.485
Óskiptar skuldir 30.9.2021 38.184
Starfsþættir 1.1.-30.9. 2020 Farsíma-þjónusta Talsíma-þjónusta Gagna-flutningur Sjónvarps-þjónusta Vörusala búnáðar Annað Samtals
Rekstrartekjur 4.110 1.299 6.600 4.614 1.482 838 18.943
Óskipt rekstrargjöld ( 11.700)
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) 7.243
Afskriftir ( 4.379)
Hrein fjármagnsgjöld ( 561)
Reiknaðir skattar ( 565)
Hagnaður af áframhaldandi starfsemi 1.738
Aflögð starfsemi 123
Hagnaður tímabilsins 1.861
Fjárfestingar ( 4.129)
Óskiptar eignir 30.9.2020 64.132
Óskiptar skuldir 30.9.2020 27.571

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. september 2021

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

5. Sala

2021 2020
Seld pjónusta og vörur greinast pannig: 1.1.-30.9. 1.1.-30.9.
Sala á pjónustu 17.176 16.979
Vörusala 1.634 1.605
18.810 18.584

Enginn einstakur viðskiptavinur er með meira en 10% af sölu félagsins.

6. Kostnaðarverð sölu

Kostnaðarverð sölu greinist pannig:

Laun og launatengd gjöld 1.573 1.578
Kostnaðarverð seldrar pjónustu 3.030 2.998
Samtengigjöld 497 510
Kostnaðarverð seldra vara 1.493 1.511
Eignfærð vinna ( 588) ( 682)
Afskriftir 3.355 3.380
9.360 9.295

Kostnaðarverð seldrar pjónustu samanstendur af; efnis kostnaði, pjónustusamningum, leyfis gjöldum, aðkeyptri pjónustu og fjarskiptakostnaði.

7. Rekstrarkostnaður

Rekstrarkostnaður greinist pannig:

Laun og launatengd gjöld 2.590 2.940
Markaðs- og sölukostnaður 408 344
Húsnæðis- og bifreiðakostnaður 529 475
Tölvu- og hugbúnaðarkostnaður 896 847
Skrifstofu- og stjórnunarkostnaður 642 1.179
Afskriftir 942 999
6.007 6.784

8. Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld

Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld greinast pannig:

Fjármunatekjur
Vaxtatekjur af bankainnistæðum og kröfum 189 139
Fenginn arður 2 2
191 141
Fjármagnsgjöld
Vaxtagjöld ( 576) ( 425)
Vaxtagjöld vegna leiguskuldbindinga ( 186) ( 178)
Niðurfærsla lána ( 22) ( 12)
Önnur fjármagnsgjöld ( 88) ( 16)
( 872) ( 631)
Gengismunur ( 39) ( 71)
Hrein fjármagnsgjöld ( 720) ( 561)

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. september 2021

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

9. Aðrar eignir 30.9.2021 31.12.2020
Aðrar eignir greinast þannig:
Fjárfesting í öðrum félögum 47 54
Sjónvarpsefni til sýningar 203 209
Fyrirframgreiddur kostnaður 9 12
Langtímakröfur 365 269
Aðrar eignir samtals 624 544
10. Birgðir
Birgðir greinast þannig:
Vörur til endursölu og rekstrarvörubirgðir 754 698
Sjónvarpsefni til sýningar 534 429
Birgðir samtals 1.288 1.127
11. Víðskiptakröfur
Víðskiptakröfur greinast þannig:
Víðskiptakröfur 2.610 3.280
Niðurfærsla víðskiptakrafna ( 146) ( 133)
Víðskiptakröfur samtals 2.464 3.147
12. Aðrar skammtímakröfur
Aðrar skammtímakröfur greinast þannig:
Fyrirframgreiddur kostnaður 916 389
Aðrar skammtímakröfur 474 445
Skammtímahlutabréfaeign 718 0
Aðrar skammtímakröfur samtals 2.108 834

13. Breytingar á samstæðu

13.1. Sala á dótturfélagi

Í desember 2020 undirrituðu Síminn hf. og Crayon Group AS skuldbindandi samning um sölu Símans hf. á dótturfélaginu Sensa ehf. til Crayon. Uppgjör víðskiptanna átti sér stað í lok mars og var kaupverðið að fullu greitt í apríl. Endanlegt söluverð félagsins var 3.710 m.kr. Markmið með sölunni er að útvíkka samstarf við Crayonsamstæðuna í heild og veita fyrirtækjum heilsteyptari þjónustu fjarskipta og upplýsingatækni samhliða því að lækka rekstrarkostnað félagsins. Sensa hefur fallið undir upplýsingatækni í starfsþáttasundurliðun.

Rekstur Sensa ehf. er nú tilgreindur í einni línu í rekstrarreikningi sem aflögð starfsemi. Samanburðartölum 2020 hefur verið breytt til samræmis.

Síminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. september 2021

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

13.1. Sala á dótturfélagi, frh.:
2021 2020
Afkoma Sensa ehf. á tímabilinu ef eftirfarandi: 1.1.-31.3. 1.1.-30.9.
Tekjur 1.058 2.933
Sala innan samstæðu ( 46) ( 129)
Ytri tekjur 1.012 2.804
Gjöld ( 1.097) ( 3.189)
Gjöld innan samstæðu 169 539
Ytri gjöld ( 928) ( 2.650)
Hagnaður fyrir skatta 84 154
Skattar ( 17) ( 31)
Söluhagnaður 2.057 0
Samtals áhrif af aflagðri starfsemi 2.124 123

Vegna sölunnar voru eignir og skuldir Sensa ehf. flokkaðar sem eignir og skuldir til sölu í ársreikningi 2020.

Í árslok voru eignir og skuldir Sensa ehf. eftirfarandi: 31.12.2020

Viðskiptavild 1.072
Fastafjármunir 219
Birgðir 84
Viðskiptakröfur og aðrar kröfur 508
Tekjuskattsinneign 23
Eignir flokkaðar til sölu 1.906
Viðskiptaskuldir og aðrar skuldir 776
Skuldir sem tengjast eignum flokkuðum til sölu 776

13.2. Fyrirhuguð sala á dótturfélagi

Þann 18. október sl. gekk Síminn hf. til einkaviðræðna við Ardian France SA um sölu á öllum eignarhlut í fjarskiptafélaginu Milu ehf. Þeim viðræðum lauk þann 23. október með undirritun samnings um sölu á 100% hlutafjár í Milu. Salan er háð hefðbundnum fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Virði viðskiptanna (e. Enterprise value) er 78 milljarðar króna, að meðtöldum fjárhagslegum skuldbindingum Milu sem kaupandinn yfirtekur. Samkvæmt kaupsamningi fær Síminn greitt á efndadegi um 44 milljarða króna í reiðufé og 15 milljarða króna í formi skuldabréfs til þriggja ára. Áætlaður söluhagnaður er 46 milljarðar króna að teknu tilliti til kostnaðar vegna viðskiptanna.

Míla er heildsölufyrirtæki á fjarskiptamarkaði og felst kjarnastarfsemi Milu í að byggja upp og reka innviði fjarskipta á landsvísu. Hlutverk Milu er að selja lausnir sínar í heildsölu til fyrirtækja og stofnana sem stunda fjarskiptastarfsemi. Sérhæfing félagsins felst meðal annars í rekstri og ráðgjöf vegna uppyggningar fjarskiptakerfa og aðstöðuleigu í tækjarýmum og möstrum. Kerfi Milu eru grunnur að fjölþættri fjarskiptabjónustu um allt land.

Í starfsþáttayfirliti samstæðunnar fellur meginhluti starfsemi Milu undir gagnaflutning.

Við lok reikningsskiladags var ekki nægjanleg vissa um sölu Milu ehf. Því eru eignir Milu ekki flokkaðar sem eignir til sölu í árshlutareikningnum. Gera má ráð fyrir að í ársreikningi félagsins fyrir árið 2021 verði Míla flokkuð sem eign til sölu.

Síminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. september 2021

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

14. Tekjuskattsskuldbinding

Hreyfingar á reiknaðri tekjuskattsskuldbindingu greinast á eftirfarandi hátt: 30.9.2021 31.12.2020
Reiknuð tekjuskattsskuldbinding í ársbyrjun 670 802
Eignir til sölu 0 9
Tekjuskattur tímabilsins 602 693
Skattar til greiðslu á næsta ári ( 929) ( 829)
Leiðrétting frá fyrra ári 0 ( 5)
Tekjuskattsskuldbinding samtals 343 670

15. Aðrar skammtímaskuldir

Aðrar skammtímaskuldir greinast þannig:

Áfallinn kostnaður 652 737
Ógreidd laun og launatengd gjöld 440 313
Ógreiddur virðisaukaskattur 664 479
Aðrar skammtímaskuldir 13 11
Aðrar skammtímaskuldir samtals 1.769 1.540

16. Málarekstur

Félagið stendur í málarekstri vegna mála sem snúa að tülkunum á fjarskipta-, fjölmiðla- og samkeppnislögum.

Síminn og Sýn hafa átt í ágreiningi í tengslum við dreifingu á sjónvarpsefni. Póst- og fjarskiptastofnun (nú Fjarskiptastofnun) komst að þeirri niðurstöðu að Síminn hefði farið gegn fjölmiðlalögum sbr. ákvörðun PFS nr. 10/2018. Lagði stofnunin á sekt að fjárhæð 9 m.kr. sem félagið hefur þegar greitt. Síminn telur að háttsemi félagsins sé í fullu samræmi við ákvæði fjölmiðlalaga og höfðaði mál til ógildingar ákvörðunar Póst- og fjarskiptastofnunar. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í málinu og ógilti ákvörðun PFS að hluta og lækkaði sektina niður í 7 m.kr. Síminn áfrýjaði málinu til Landsréttar og gerir kröfu um ógildingu. Í kjölfarið á ákvörðun PFS sendi Sýn kröfu til Símans um greiðslu skaðabóta að fjárhæð 1,9 ma.kr. Síminn hafnaði kröfunni og benti á að það mætti hvorki ráða af erindi Sýnar að skilyrði skaðabótaskyldu væri fyrir hendi né heldur væri gerð tilraun til að færa sönnur á ætlað tjón Sýnar. Að mati Símans var um tilhæfulausa kröfu að ræða og vísaði Héraðsdómur Reykjavíkur kröfu Sýnar frá dómi vegna vanreifunar. Í framhaldinu lagði Sýn fram beiðni um dómkvaðningu matsmanna og stefndi Símanum fyrir héraðsdómi Reykjavíkur til greiðslu skaðabóta að fjárhæð 125 m.kr. Síminn hafnaði málatilbúnaði Sýnar og skilaði greinargerð vegna málsins. Þá hefur Gagnaveita Reykjavíkur sent Símanum kröfu um greiðslu að fjárhæð 1,3 ma.kr. Síminn hafnaði kröfunni og benti á að það mætti ekki ráða af erindi Gagnaveitunnar að skilyrði skaðabótaskyldu væri fyrir hendi. Að mati Símans er um tilhæfulausa kröfu að ræða. PFS og Sýn hafa ennfremer höfðað mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur og gert kröfu um að úskurður úskurðarnefndar póst- og fjarskiptamála nr. 7/2019 verði felldur úr gildi, en úskurður nefndarinnar fól í sér ógildingu á ákvörðun PFS nr. 27/2019 þar sem stofnunin lagði sekt að fjárhæð 9 mkr. á Símann. Síminn mun gera kröfu um að úskurður nefndarinnar standi óhaggaður.

IHM hefur stefnt Símanum til greiðslu 337 m.kr. auk vaxta og dráttarvaxta vegna meintra vangoldinna gjalda frá árinu 2009. Síminn hafnar málatilbúnaði IHM og hefur skilað greinargerð.

Þrátt fyrir að óvissa sé um niðurstöður þessara mála er það mat stjórnenda að ekki komi til verulegra fjárútláta vegna þeirra. Félagið hefur ekki fært neinn kostnað í reikningsskil sín vegna mögulegra bóta í framangreindum málum enda mat félagsins að þau séu tilhæfulaus.

Síminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. september 2021

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

16. Málarekstur, frh.:

Samkeppniseftirlitið komst að þeirri niðurstöðu að Síminn hefði brotið gegin ákvörðunum Samkeppniseftirlitsins nr. 6/2015 og 20/2015 og lagði á sekt að fjárhæð 500 m.kr. sem Síminn greiddi. Síminn kærði ákvörðun Samkeppniseftirlitsins til áfrýjunarnefndar samkeppnismála og gerði kröfu um ógildingu ákvörðunarinnar. Áfrýjunarnefnd samkeppnismála skilaði úrskurði í byrjun árs 2021 þar sem nefndin felldi úr gildi þann hluta ákvörðunar Samkeppniseftirlitsins sem laut að meintu broti gegin 6/2015 og lækkaði sektina niður í 200 m.kr. Félagið er sem fyrr þeirrar skoðunar að fyrirkomulag um sölu á þjónustu félagsins sé fyllilega í samræmi við samkeppnislög og þær ákvarðanir sem félagið hefur gengist undir á grundvelli samkeppnislaga. Síminn hefur höfðað mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur með kröfu um ógildingu á þeim hluta úrskurðar áfrýjunarnefndar samkeppnismála sem laut að meintu broti á ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 20/2015. Samkeppniseftirlitið hefur ennfrems höfðað mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur þar sem gerð er krafa um að úrskurður áfrýjunarnefndar samkeppnismála er fól í sér ógildingu hluta ákvörðunar Samkeppniseftirlitsins nr. 25/2020 og lækkun sektar, verði felldur úr gildi.

17. Atburðir eftir reikningsskiladag

Í október var undirritaður samningur um sölu á Mílu ehf. til Ardian France SA, sjá nánari umfjöllun í skýringu 13. Að öðru leyti hafa engir atburðir átt sér stað eftir lok reikningsskiladags sem höfðu áhrif á árshlutareikninginn eða veita þarf upplýsingar um.

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. september 2021

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Ársfjórðungsyfirlit

Rekstur samstæðunnar greinist þannig á ársfjórðunga:*

| | 1 F
2021 | 2 F
2021 | 3 F
2021 | Samtals |
| --- | --- | --- | --- | --- |
| Sala | 6.299 | 6.244 | 6.267 | 18.810 |
| Kostnaðarverð sölü | ( 3.215) | ( 3.152) | ( 2.993) | ( 9.360) |
| Framlegð | 3.084 | 3.092 | 3.274 | 9.450 |
| Aðrar rekstrartekjur | 109 | 108 | 114 | 331 |
| Rekstrarkostnaður | ( 2.071) | ( 2.074) | ( 1.862) | ( 6.007) |
| Rekstrarhagnaður | 1.122 | 1.126 | 1.526 | 3.774 |
| Hrein fjármagnsgjöld | ( 187) | ( 315) | ( 218) | ( 720) |
| Aflögð starfsemi | 2.140 | ( 16) | 0 | 2.124 |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | 3.075 | 795 | 1.308 | 5.178 |
| Reiknaðir skattar | ( 191) | ( 177) | ( 251) | ( 619) |
| Hagnaður tímabilsins | 2.884 | 618 | 1.057 | 4.559 |
| EBITDA | 2.540 | 2.557 | 2.974 | 8.071 |
| | 1 F
2020 | 2 F
2020 | 3 F
2020 | 4 F
2020 | Samtals |
| --- | --- | --- | --- | --- | --- |
| Sala | 7.120 | 7.169 | 7.119 | 7.988 | 29.396 |
| Kostnaðarverð sölü | ( 3.802) | ( 4.118) | ( 3.819) | ( 4.753) | ( 16.492) |
| Framlegð | 3.318 | 3.051 | 3.300 | 3.235 | 12.904 |
| Aðrar rekstrartekjur | 126 | 107 | 106 | 204 | 543 |
| Rekstrarkostnaður | ( 2.214) | ( 2.743) | ( 1.997) | ( 2.107) | ( 9.061) |
| Rekstrarhagnaður | 1.230 | 415 | 1.409 | 1.332 | 4.386 |
| Hrein fjármagnsgjöld | ( 270) | ( 178) | ( 149) | ( 105) | ( 702) |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | 960 | 237 | 1.260 | 1.227 | 3.684 |
| Reiknaðir skattar | ( 196) | ( 154) | ( 246) | ( 172) | ( 768) |
| Hagnaður tímabilsins | 764 | 83 | 1.014 | 1.055 | 2.916 |
| EBITDA | 2.735 | 1.938 | 2.933 | 2.894 | 10.500 |

*Samanburðarfjárhæðum fyrir 2020 hefur ekki verið breytt vegna sölü á Sensa ehf. á árinu 2021

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. september 2021

Fjárhæðir eru í milljónum króna