AI assistant
Síminn — Interim / Quarterly Report 2020
Apr 28, 2020
2203_rns_2020-04-28_ff3e4ea5-9043-479a-a4e4-9a7d674739ce.pdf
Interim / Quarterly Report
Open in viewerOpens in your device viewer
Síminn
- apríl 2020
Fréttatilkynning: Afkoma Símans hf. á 1F 2020
Sterkur fjórðungur og lítil rekstraráhrif enn sem komið er af COVID-19 heimsfaraldri
- Tekjur á fyrsta ársfjórðungi (1F) 2020 námú 7.246 milljónum króna samanborið við 6.962 milljónir króna á sama tímabili 2019 og hækka því um 284 milljónir króna eða 4,1%.
- Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði EBITDA nám 2.735 milljónum króna á 1F 2020 samanborið við 2.369 milljónir króna á sama tímabili 2019 og hækkar því um 366 milljónir króna eða 15,4% frá sama tímabili í fyrra. EBITDA hlútfallið er 37,7% fyrir fyrsta ársfjórðung 2020 en var 34,0% á sama tímabili 2019. Jákvæð áhrif af Símanum Sport styðja við hækku EBITDA.
- Hagnaður á 1F 2020 nám 764 milljónum króna samanborið við 615 milljónir króna á sama tímabili 2019 og hækkar því um 149 m.kr. eða 24,2%.
- Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta nám 3.734 milljónum króna á 1F 2020 en var 2.062 milljónir króna á sama tímabili 2019. Eftir vexti og skatta nám handbært fé frá rekstri 3.396 milljónum króna á 1F 2020 en 1.711 milljónum króna á sama tímabili 2019.
- Vaxtaberandi skuldir námú 15,8 milljórðum króna í lok 1F 2020 en voru 16,2 milljarðar króna í árslok 2019. Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 14,7 milljarðar króna í lok 1F 2020 samanborið við 16,0 milljarðar króna í árslok 2019.
- Hrein fjármagnsgjöld námú 270 milljónum króna á 1F 2020 en voru 313 milljónir króna á sama tímabili 2019. Fjármagnsgjöld námú 256 milljónum króna, fjármunatekjur voru 47 milljónir króna og gengistap var 61 milljón króna.
- Eiginfjárhlútfall Símans hf. var 56,9% í lok 1F 2020 og eigið fé 37,4 milljarðar króna.
Orri Hauksson, forstjóri:
„Rekstur Símasamstæðunnar hefur gengið vel undanfarna fjórðunga og árið 2020 fór afar vel af stað. Auknar tekjur voru af sjónvarpsbjónustu okkar, en bæði nýleg áskriftarvara okkar, Síminn Sport, og helsta sjónvarpsvara Símans, Premium, skiluðu góðri viðbót frá fyrra ári. Tekjur af farsimaáskriftum og Þrennu jukust milli ára og tekjur af gagnaflutningi hjá samstæðunni eru í hóflegum vexti en talsími var áfram á sínum hæga ferli niður á við. Sensa átti fínan ársfjórðung en félagrið jók tekjur og EBITDA lítillega frá fyrra ári. Rekstur Mílu var stöðugur að vanda.
Síminn
Viðskiptavinir nýttu sér sjónvarpsbjónustu okkar og gagnaflutningskerfi í mæli sem við höfum ekki séð fyrr. Hefðbundnum símtölum í farsíma og talsíma fjölgaði einnig hratt þegar leið á fjórðunginn. Hafa ber í huga að aukin notkun núverandi viðskiptavina skilar jafnan litlum afkomubata þar sem mánaðarverð eru að mestu föst. Verð og fjöldatölur í fjarskiptageiranum þróast almennt hægt milli fjórðunga en flest í rétta átt í þessu tilfelli hjá okkur. Í lok fjórðungsins var álag á sjónvarps- og netkerfum félagsins í hæstu hæðum, en kerfin og þjónustan uppfylltu þó þarfir viðskiptavina nánast undantekningarlaust. Í heild er rekstrarniðurstaða fyrsta fjórðungs góð; tekjur, EBITDA, hagnaður og handbært fé frá rekstri jukust á milli ára.
Áhrif COVID-19 heimsfaraldursins komu með ýmsum hætti fram í starfseminní í mars. Tekjur af erlendum ferðamönnum svo gott sem gufuðu upp á nokkrum vikum auk þess að loka þurfti verslunum félagsins vegna sóttkvíar starfsmanna. Samskiptaver Símans hafa undanfarið verið að fullu rekin í fjärvinnu sem hefur gengið vel, þökk sé þolinmóðu starfsfólki í tækni og þjónustu, sem umbreytti heimilum sínum til að geta þjónustað viðskiptavini okkar. Almennt hafa Íslendingar unnið í stórum stíl heiman frá sér síðastliðnar sex vikur, sem breytti í einu vetfangi þörfum viðskiptavina okkar og aðferðum okkar sjálfra við að þjónusta þá.
Eins og hjá flestum öðrum fyrirtækjum munu faraldurinn og viðbrögð við honum hafa áhrif á afkomu og rekstur Símasamstæðunnar á árinu. Fjarskipti, stafræn afþreying og upplýsingatækni eru klárlega ekki þau svið atvinnulífsins sem viðkvæmust eru fyrir núverandi ástandi, en við finnum þó að sjálfsögðu fyrir því þegar hagkerfið snarbreytist. Pannig er talsverður hluti fjárfestinga samstæðunnar til að mynda í erlendri mynt og hluti rekstrarkostnaðar. Frá því gengi lækkar líður tími þar til innlend smásöluverð breytast til samræmis, reksturinn ber hallann á meðan. Vaxtalækkanir Seðlabanka Íslands verka í gagnstæða átt og lækka fjármagnskostnað okkar umtalsvert á árinu. Reikitekjur eru nær engar um þessar mundir. Enska úrvalsdeildin var stöðvuð í mars og engir leikir verða leiknir fyrr en í fyrsta lagi seint í maí, sem lækkar áskriftatekjur Símans á öðrum ársfjórðungi. Enn getur það gerst að tímabilið verði flautað af án frekari leikja, þótt óliklegt sé, en í slíku tilfelli munum við gera kröfu um endurgreiðslu hluta sýningarréttarins. Við höfum þegar greitt fyrir stærstan hluta alls sýningartímabilsins, sem er 2019-2022.
Vanskil viðskiptavina okkar eru ekki byrjuð að koma fram, en reynsla Símans af fyrri efnahagsáföllum er sú að nokkur tími líður þar til innheimta þyngist. Samstæðan er hlutfallslega ekki stór birgi ferðabjónustunnar eða veitingahúsa á Íslandi. Snöggkölnun í þeim greinum kemur að litlum hluta fram hjá okkur til að byrja með, en mun þó rata merkjanlega til okkar eins og annarra. Hjá Símasamstæðunni eins og öðrum ríkir óvissa um það hvernig samkomur og ferðalög þróast á næstu vikum og mánuðum, en hvort tveggja mun hafa áhrif á tekjur okkar og gjöld. Miðað við fyrirliggjandi stöðu teljum við ekki ástæðu til að breyta útgefnum horfum enda svigrúm til að bregðast við í kostnaði og fjárfestingum félagsins.
Rétt er að nefna að undanfarin ár höfum við verið fremur íhaldssöm í fjárútlátum og lántöku. Pannig njótum við nú sterks efnahagsreiknings og sjálfbærs rekstrar. Staða handbærss fjár er traust og við eigum aðgang að lánalínum ef með þarf. Félagið er komið undir markmið þess um skuldsetningu og hefur félagið því nýtt sér heimild til að fresta afborgunum ársins til lokagjalddaga lána. Við höldum því áfram rekstri okkar, í takti sem er nokkuð breyttur, en þarfnaast hvorki umbyltingar né endurfjármögnunar. Við teljum okkur því ágætlega í stakk búin til að takast á við óvissuna næstu misseri."
Síminn
Helstu niðurstöður í rekstri 1F 2020
Rekstur
| 1F 2020 | 1F 2019 | Breyting | Breyting % | |
|---|---|---|---|---|
| Rekstrartekjur | 7.120 | 6.773 | 347 | 5,1% |
| Kostnaðarverð sölu | (3.802) | (3.425) | (377) | 11,0% |
| Framlegð | 3.318 | 3.348 | (30) | -0,9% |
| Hlutfall af rekstrartekjum | 46,6% | 49,4% | ||
| Aðrar rekstrartekjur | 126 | 189 | (63) | -33,3% |
| Rekstrarkostnaður | (2.214) | (2.430) | 216 | -8,9% |
| EBIT | 1.230 | 1.107 | 123 | 11,1% |
| Hlutfall af tekjum | 17,0% | 15,9% | ||
| Fjármunatekjur | 47 | 50 | (3) | -6,0% |
| Fjármagnsgjöld | (256) | (356) | 100 | -28,1% |
| Gengismunur | (61) | (7) | (54) | |
| Hrein fjármagnsgjöld | (270) | (313) | 43 | -13,7% |
| Tekjuskattur | (196) | (179) | (17) | 9,5% |
| Hagnaður tímabils | 764 | 615 | 149 | 24,2% |
| Afskriftir | (1.505) | (1.262) | (243) | 19,3% |
| EBITDA | 2.735 | 2.369 | 366 | 15,4% |
| Hlutfall | 37,7% | 34,0% | ||
| Hagnaður á hlut | 0,09 | 0,07 | 0,02 | 28,6% |
Sala á 1F 2020 nam 7.246 milljónum króna samanborið við 6.962 milljónir króna á sama tímabili árið 2019, sem er 4,1% vöxtur milli ára. Tekjur af farsima námu 1.386 milljónum króna og hækkuðu um 29 milljónir króna eða 2,1% á milli tímabila. Tekjur af gagnaflutningi námu 2.166 milljónum króna og hækkuðu um 31 milljón króna eða 1,5% á milli tímabila. Tekjur af sjónvarpsbjónustu námu 1.583 milljón króna og hækkuðu um 252 milljónir króna eða 18,9% á milli tímabila. Tekjur af upplýsingatækni námu 1.042 milljónum króna og hækkuðu um 91 milljón króna eða 9,6% á milli tímabila. Tekjur af vörusölu voru 418 milljónir króna og eru nær óbreyttar milli tímabila.
Framlegð á 1F 2020 nam 3.318 milljónum króna og lækkaði um 30 milljónir króna eða 0,9% frá sama tímabili árið 2019. Rekstrarkostnaður nam 2.214 milljónum króna og lækkaði um 216 milljónir króna eða 8,9% frá sama tímabili árið 2019.
EBITDA, þ.e. rekstrarhagnaður félagsins fyrir afskriftir og fjármagnsliði, var 2.735 milljónir króna á 1F 2020 en var 2.369 milljónir króna á sama tímabili árið 2019 og hækkaði því um 366 milljónir króna milli tímabila eða um 15,4%. EBITDA hlutfallið er 37,7% en var 34,0% á sama tímabili árið 2019.
Afskriftir félagsins námu 1.505 milljónum króna á 1F 2020 samanborið við 1.262 milljónir króna á sama tímabili árið 2019 og hækka um 243 milljónir króna milli tímabila.
Hrein fjármagnsgjöld voru 270 milljónir króna á 1F 2020 og lækkuðu um 43 milljónir króna á milli tímabila. Lækkun stýriváxta leiðir til lægri váxtagjalda hjá félaginu.
Síminn
Hagnaður tímabilsins nam 764 milljónum króna samanborið við 615 milljónir króna á sama tímabili árið 2019. Hækkar hagnaður því um 149 m.kr. eða 24,2% frá sama tímabili 2019.
Sjóðstreymi
Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta var 3.734 milljónir króna á 1F 2020 samanborið við 2.062 milljónir króna á sama tímabili árið 2019. Eftir vexti og skatta nam handbært fé frá rekstri 3.396 milljón króna á 1F 2020 samanborið við 1.711 milljónir króna á sama tímabili árið 2019.
Fjárfestingarhreyfingar voru 1.935 milljónir króna á 1F 2020 samanborið við 1.147 milljónir króna á sama tímabili árið 2019.

Efnahagur
Heildareignir félagsins námu 65.716 milljónum króna í lok 1F 2020 en voru 65.521 milljónir króna í lok árs 2019.
Vaxtaberandi skuldir voru 15.839 milljónir króna í lok 1F 2020 samanborið við 16.231 milljón króna í lok árs 2019. Hreinar vaxtaberandi skuldir
| 31.3.2020 | 31.12.2019 | |
|---|---|---|
| Fastafjármunir | 58.420 | 58.571 |
| Veltufjármunir | 7.296 | 6.950 |
| Eignir alls | 65.716 | 65.521 |
| Eigið fé | 37.397 | 36.632 |
| Langtímaskuldir | 20.368 | 20.268 |
| Skammtímaskuldir | 7.951 | 8.621 |
| Skuldir og eigið fé alls | 65.716 | 65.521 |
| Eiginfjárhlutfall | 56,9% | 55,9% |
voru 14.691 milljón króna í lok fyrsta ársfjórðungs og lækkuðu um 1.323 milljónir króna frá árslokum 2019. Hlutfall hreinna vaxtaberandi skulda á móti EBITDA síðastliðinna tólf mánaða var 1,35. Markmið félagsins er að hlutfallið sé á bilinu 1,5 til 2,5.
Eigið fé félagsins nam 37.397 milljónum króna í lok fyrsta ársfjórðungs og eiginfjárhlutfall félagsins var 56,9%.
Helstu atburðir á 1F 2020
- Síminn ákvað að leggja sitt af mörkum á tímum COVID-19 og samkomubanns og setja allar heimatengingar og farsimaáskriftir í endalaust gagnamagn. Pannig þurfa viðskiptavinir Símans ekki að hafa áhyggjur af umfram gagnamagni eða símareikningum á þessum tímum fjarvinnu, fjarnáms og aukinnar eftirspurnar eftir afþreyingu.
- Fjarskiptakerfi Símans hafa staðið sig vel undir því aukna álagi sem hefur fylgt aukinni notkun landsmanna í samkomubanni. Tæknifólk Símans hefur vaktað öll kerfi og tryggt að upplifun viðskiptavina og uppitími fjarskiptakerfa hefur verið með besta móti. Gagnanotkun heimila hefur stóraukist, notkun farsíma einnig en sjónvarpsáhorf jókst hvað mest. Landsmenn hafa líka stóraukið notkun sína í gamla góða heimasímanum en notkun þar hefur aukist um 30%.
- Stór hluti starfsfólks Símans hefur unnið í fjarvinnu síðustu vikur. Pjónustuver Símans er í fyrsta sinn í sögu Símans að vinna í fjarvinnu sem hefur gengið vel. Starfsfólk hefur tekið þessum breytingum á vinnuumhverfi af æðruleysi og vinnuframlag verið gott. Tækifæri til að auka sjálsafgreiðslu hafa verið vel nýtt og á nokkrum dögum var sett
Síminn
upp heimsendingarþjónusta á búnáði og vörum sem hefur mælst vel fyrir hjá viðskiptavinum.
- Tónleikaröðin Heima með Helga hefur slegið öll met í línulegu áhorfi. Landsmenn hafa vel kunnað að meta tónleikaröðina sem hefur verið í Sjónvarpi Símans á laugardagskvöldum. Í efnisveitunni Sjónvarp Símans Premium sló Jarðarförin mín með Þórhalli Sigurðssyni (Ladda) í aðalhlutverki öll met og varð þar með vinsælasta innlenda þáttaröðin hjá Símanum frá upphafi.
- Hjá Mílu hafa neyðaráætlanir verið yfirfarnar og varaafl var eftt í tengslum við jarðhræringar í Grindavík. Mikilvægi virkra ferla og áætlana hafa sannað gildi sitt þegar kemur að fjölþættum aðgerðum gagnvart vinnu, öryggi innviða og viðskiptavinum á COVID-19 tímum.
- Við upphaf COVID-19 var mikið álag hjá Sensa þar sem viðskiptavinir þurftu ráðgjöf og lausnir vegna fjärvinnu, fjärfunda og öryggislausna. Sterkur grunnur Sensa og sérþekking starfsfólks kom þar að góðum notum. Sensa kom að gerð Rakning C-19 smáforritsins og var ljúft að geta nýtt þekkingu starfsfólks í þá vinnu.
Horfur fyrir árið 2020
Þrátt fyrir mikla óvissu í rekstrarumhverfi félagsins er spá fyrir árið 2020 óbreytt en hún gerir ráð fyrir að EBITDA félagsins verði á bilinu 10,5 til 10,9 milljarðar króna og að fjárfestingar verði á bilinu 5,7 til 6,0 milljarðar króna.
Kynningarfundur 29. apríl 2020
Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn miðvikudaginn 29. apríl kl. 8:30. Fundurinn verður eingöngu rafrænn og munu Orri Hauksson forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum.
Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á heimasíðu Símans
https://www.siminn.is/umsimann/uppgjor og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.
Hægt verður að fylgjast með fundinum í netstrey mi á vefslóðinni:
https://livestream.com/accounts/11153656/events/9098420/player
Fjárhagsdagatal 2020
- Afkoma 2F 2020 25. ágúst 2020
- Afkoma 3F 2020 27. október 2020
- Ársuppgjör 2020 18. febrúar 2021
- Aðalfundur 2021 11. mars 2021
Nánari upplýsingar um uppgjórið veita:
Orri Hauksson, forstjóri Símans, s. 550 6003 ([email protected])
Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans, s. 550 6003 ([email protected])
Síminn hf.
Síminn á og rekur fyrirtækin Símann, Mílu, Sensa, Farsímagreiðslur og Radiómiðun. Síminn er stærsta fjarskiptafyrirtæki landsins og veitir viðskiptavinum, bæði einstaklingum og fyrirtækjum, heildstætt vöruframboð á sviði fjarskipta, afþreyingar og upplýsingatækni.