AI assistant
Síminn — Interim / Quarterly Report 2020
Aug 25, 2020
2203_rns_2020-08-25_ec8a2cbe-9705-4a45-9112-07199cab8262.pdf
Interim / Quarterly Report
Open in viewerOpens in your device viewer
Síminn
- ágúst 2020
Fréttatilkynning: Afkoma Símans hf. á 2F 2020
Stöðugur rekstur á 2. ársfjórðungi
- Á ársfjórðungnum var gjaldfærð 500 milljón króna stjórnvaldssekt vegna ákvörðunar Samkeppniseftirlitsins frá því í lok maí sem hefur neikvæð áhrif á afkomu fjórðungsins. Félagið hefur kært ákvörðunina til áfrýjunarnefndar samkeppnismála og mun niðurstaða væntanlega liggja fyrir síðar á þessu ári.
- Tekjur á öðrum ársfjórðungi (2F) 2020 námu 7.276 milljónum króna samanborið við 7.115 milljónir króna á sama tímabili 2019 og hækka því um 161 milljón krónur eða 2,3%.
- Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði EBITDA nam 1.938 milljónum króna á 2F 2020 samanborið við 2.602 milljónir króna á sama tímabili 2019 og lækkar því um 664 milljónir króna eða 25,5% frá sama tímabili í fyrra. EBITDA hlutfallið er 26,6% fyrir annan ársfjórðung 2020 en var 36,6% á sama tímabili 2019.
- Hagnaður á 2F 2020 nam 83 milljónum króna samanborið við 798 milljónir króna á sama tímabili 2019.
- Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta nam 3.095 milljónum króna á 2F 2020 en var 2.087 milljónir króna á sama tímabili 2019. Eftir vexti og skatta nam handbært fé frá rekstri 2.667 milljónum króna á 2F 2020 en 1.735 milljónum króna á sama tímabili 2019.
- Vaxtaberandi skuldir námu 15,4 milljórðum króna í lok 2F 2020 en voru 16,2 milljarðar króna í árslok 2019. Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 14,5 milljarðar króna í lok 2F 2020 samanborið við 16,0 milljarðar króna í árslok 2019.
- Hrein fjármagnsgjöld námu 178 milljónum króna á 2F 2020 en voru 269 milljónir króna á sama tímabili 2019. Fjármagnsgjöld námu 203 milljónum króna, fjármunatekjur voru 44 milljónir króna og gengistap var 19 milljón króna.
- Eiginfjárhlutfall Símans hf. var 56,5% í lok 2F 2020 og eigið fé 36,5 milljarðar króna.
Orri Hauksson, forstjóri:
„Annar ársfjórðungur var afar viðburðaríkur hjá Símasamstæðunni. Hinn undirliggjandi rekstur gengur vel en mörg stór frávik eru frá sama fjórðungi árið áður, fyrst og fremst hjá Símanum hf.
Samdráttur í EBITDA á milli annars fjórðungs 2020 og 2019 var þannig 664 m.kr., en 298 m.kr. sé horft á fyrri helming 2020 í samanburði við sama tímabili 2019. Helsta ástæðan er að Samkeppniseftirlitið sektaði Símann um 500 m.kr. vegna meintra brota á sáttum félagsins við
Síminn
eftirlitið. Án þessarar sektar hefði EBITDA fyrstu sex mánuði ársins hækkað um rúmar 200 m.kr. miðað við sama tímabil 2019 sem sýnir einmitt styrk rekstursins og árangur tímabilsins. Sektin var gjaldfærð á öðrum ársfjörðungi og greidd í byrjun þriðja ársfjörðungs. Síminn telur Samkeppniseftirlitið hafa komist að rangri niðurstöðu sem skaði neytendur og samkeppni. Félagið hefur því kært ákvörðunina til áfrýjunarnefndar samkeppnismála, sem kveður upp sinn úrskurð innan skamms. Fækkun ferðamanna til og frá landinu lækkaði reikitekjur um 110 m.kr. milli ára á fjörðungnum auk þess sem tekjur af frelsiskortum ferðamanna lækkuðu um 20 m.kr. Söluhagnaður Kringlubúðar var 164 m.kr. á öðrum fjörðungi árið 2019, sem hefur áhrif á samanburð milli ára. Uppsagnakostnaður á fjörðungnum var samtals 125 m.kr. en var óverulegur árið áður. Hefur starfsmönnum Símans hf. fækkað umtalsvert undanfarin ár og eru stöðugildi nú rúmlega 550 í samstæðunni.
Margt gekk betur á fjörðungum en á fyrra ári og að hluta betur en vonast mátti til. Til að mynda hélt upplýsingatæknirekstur Sensa áfram að skila góðri niðurstöðu á ársfjörðungnum, eftir einstaklega vænlega byrjun ársins. Verkefnastaða félagsins er góð inn í haustið. Ýmis rekstrarkostnaður samstæðunnar lækkaði, svo sem starfsmannakostnaður, ferðalög og annað sem stafar af faraldrinum. Markaðs-, tölvu- og hugbúnaðarkostnaður lækkaði einnig, en tekjur sem nokkur óvissa ríkti um, svo sem auglýsingatekjur, héldu sínu striki. Áskriftir að efnisþjónustu og fjarskiptaþjónustu Símans voru einnig stöðugar og vanskil vegna slæms atvinnuástands og erfíðleika í rekstri margra fyrirtækja hafa enn ekki komið fram svo neinu nemur. Það getur þó breyst hratt með haustinu, en fram til þessa hefur heimsfaraldurinn og þær miklu takmarkanir sem honum hafa fylgt í heild dregið EBITDA samstæðunnar óverulega niður.
Rekstur Mílu er stöðugur og traustur sem endranær. Míla mun taka við fleiri verkefnum frá Símanum á næstu mánuðum, svo sem rekstri farsímadreifikerfis og IP-nets, og þannig verða stærra hlutfall samstæðunnar. Verið er að skoða að fjármagna Mílu sérstaklega í stað þess að fjármagna samstæðuna sem eina einingu.
Næstu mánuðir munu fara í að skerpa á verkaskiptingu innan samstæðunnar og treystá í sessi lækkaðan rekstrarkostnað, sem hefur verið lagaður að nýju efnahagsástandi. Samkvæmt könnunum á afstöðu neytenda hefur Síminn hf. bætt þjónustu sína undanfarin misseri og við hyggjumst halda áfram á þeirri braut. Þróaðir verða fjölbreyttari möguleikar í notkun sjónvarpsvara okkar og verið er að huga að nýjungum í vörupökkun og verðlagningu. Síminn hefur samið um aðgang að ljósleiðaraneti Gagnaveitu Reykjavíkur og mun geta boðið vörur sínar yfir það viðfeðma net á næsta ári."
Síminn
Helstu niðurstöður í rekstri á fyrstu sex mánuðum 2020
Rekstur
| Rekstrarreikningur | 2F | 1H | ||||
|---|---|---|---|---|---|---|
| 2020 | 2019 | % | 2020 | 2019 | % | |
| Rekstrartekjur | 7.276 | 7.115 | 2,3% | 14.522 | 14.077 | 3,2% |
| Kostnaðarverð sölu | (4.118) | (3.591) | 14,7% | (7.920) | (7.016) | 12,9% |
| Rekstrarkostnaður | (2.743) | (2.246) | 22,1% | (4.957) | (4.676) | 6,0% |
| EBIT | 415 | 1.278 | -67,5% | 1.645 | 2.385 | -31,0% |
| Hrein fjármagnsgjöld | (178) | (269) | -33,8% | (448) | (582) | -23,0% |
| Tekjuskattur | (154) | (211) | -27,0% | (350) | (390) | -10,3% |
| Hagnaður tímabils | 83 | 798 | -89,6% | 847 | 1.413 | -40,1% |
| EBITDA | 1.938 | 2.602 | -25,5% | 4.673 | 4.971 | -6,0% |
| Hagnaður á hlut | 0,01 | 0,09 | -88,9% | 0,10 | 0,16 | -37,5% |
Sala á 1H 2020 nam 14.522 milljónum króna samanborið við 14.077 milljónir króna á sama tímabili árið 2019, sem er 3,2% vöxtur milli ára. Tekjur af farsíma námu 2.704 milljónum króna og lækkuðu um 81 milljón króna eða 2,9% á milli tímabila. Í farsíma lækka reikitekjur á milli ára um rúmar 120 milljónir króna. Tekjur af talsíma námu 876 milljónum króna og lækkuðu um 5,2% á milli tímabila. Tekjur af gagnaflutningi námu 4.344 milljónum króna og hækkuðu um 66 milljónir króna eða 1,5% á milli tímabila. Tekjur af sjónvarpsþjónustu námu 3.083 milljónum króna og hækkuðu um 452 milljónir króna eða 17,2% á milli tímabila. Tekjur af upplýsingatækni námu 2.189 milljónum króna og hækkuðu um 317 milljónir króna eða 16,9% á milli tímabila. Tekjur af vörusölu voru 914 milljónir króna og hækkuðu um 49 milljónir króna eða 5,7% á milli tímabila.
Framlegð á 1H 2020 nam 6.369 milljónum króna og lækkaði um 196 milljónir króna eða 3,0% frá sama tímabili árið 2019. Rekstrarkostnaður nam 4.957 milljónum króna og hækkaði um 281 milljónir króna eða 6,0% frá sama tímabili árið 2019.
EBITDA, þ.e. rekstrarhagnaður félagsins fyrir afskriftir og fjármagnsliði, var 4.673 milljónir króna á 1H 2020 en var 4.971 milljón krónur á sama tímabili árið 2019 og lækkaði því um 298 milljónir króna á milli tímabila eða um 6,0%. EBITDA hlutfallið er 32,2% en var 35,3% á sama tímabili árið 2019.
Afskriftir félagsins námu 3.028 milljónum króna á 1H 2020 samanborið við 2.586 milljónir króna á sama tímabili árið 2019 og hækka um 442 milljónir króna milli tímabila. Auknar afskriftir má rekja til aukinna fjárfestinga í sýningarréttum og aukinni fjárfestingu Mílu í innviðum.
Hrein fjármagnsgjöld voru 448 milljónir króna á 1H 2020 og lækkuðu um 134 milljónir króna á milli tímabila. Lækkun stýrivaxta hefur leitt til lægri vaxtagjalda hjá félaginu.
Hagnaður tímabilsins nam 847 milljónum króna samanborið við 1.413 milljónir króna á sama tímabili árið 2019.
Síminn
Sjóðstreymi
Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta var 6.829 milljónir króna á 1H 2020 samanborið við 4.149 milljónir króna á sama tímabili árið 2019. Eftir vexti og skatta nam handbært fé frá rekstri 6.063 milljónum króna á 1H 2020 samanborið við 3.446 milljónir króna á sama tímabili árið 2019.
Fjárfestingarhreyfingar námu 3.271 milljón króna á 1H 2020 samanborið við 2.869 milljónir króna á sama tímabili árið 2019.

Efnahagur
Heildareignir félagsins námu 64.654 milljónum króna í lok 2F 2020 en voru 65.521 milljónir króna í lok árs 2019.
Vaxtaberandi skuldir voru 15.439 milljónir króna í lok 2F 2020 samanborið við 16.231 milljón króna í lok árs 2019. Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 14.463 milljónir króna í lok annars ársfjórðungs og lækkuðu um 1.551 milljón króna frá árslokum 2019. Hlutfall hreinna vaxtaberandi skulda á móti EBITDA síðastliðinna tólf mánaða var 1,42. Markmið félagsins er að hlutfallið sé á bilinu 1,5 til 2,5.
Eigið fé félagsins nam 36.530 milljónum króna í lok 2F og eiginfjárhlutfall félagsins var 56,5%.
| 30.6.2020 | 31.12.2019 | |
|---|---|---|
| Fastafjármunir | 58.267 | 58.571 |
| Veltufjármunir | 6.387 | 6.950 |
| Eignir alls | 64.654 | 65.521 |
| Eigið fé | 36.530 | 36.632 |
| Langtímaskuldir | 19.937 | 20.268 |
| Skammtímaskuldir | 8.187 | 8.621 |
| Skuldir og eigið fé alls | 64.654 | 65.521 |
| Eiginfjárhlutfall | 56,5% | 55,9% |
Um starfsemina
- 5G uppybygga mun hefjast í haust með uppsetningu fyrstu sendanna. Kerfið verður byggt upp í takt við framboð á endabúnaði og eftirspurn á markaðinum.
- Síminn samdi um aðgang að ljósleiðaraneti Gagnaveitu Reykjavíkur í júlí. Tæknileg aðlögun er hafin og mun Síminn geta boðið vörur sínar yfir net GR á næsta ári.
- Síminn útvistaði hluta af upplýsingatæknirekstri félagsins til Deloitte um mitt ár. Markmið breytingarinnar er að auka skilvirkni og flýta þróun bakendakerfa Símans ásamt því að auka hagræði í rekstri.
- Tekin hefur verið ákvörðun um að flytja farsímadreifikerfi og IP-net Símans yfir til Mílu. Mun það styrkja Mílu sem innviðafélag og draga verulega úr heildsöluhlutverki Símans og skerpa á hlutverki Símans sem þjónustufyrirtækis.
- Ljósleiðaravæðing Mílu gengur vel og hafa nú 86 þúsund heimili aðgang að ljósleiðara Mílu. Gangi áætlanir eftir verða tengd heimili 90-92 þúsund í lok árs. Nýleg drög Póst- og fjarskiptastofnunar að markaðsgreiningu hafa þó áhrif á ljósleiðaravæðinguna og hefur verkefnum nú þegar verið frestað vegna þeirra.
Síminn
- Míla hefur farið í mikla vinnu við að auka öryggi fjarskipta á landinu. Vinna við eflingu varaafls á norðanverðu landinu í kjölfar óveðurs er í fullum gangi og er lokaáfangi lagningar ljósleiðara yfir hálendið hafinn.
Horfur fyrir árið 2020
Í lok maí var EBITDA spá félagsins fyrir árið 2020 lækkuð í 9,9 – 10,3 milljarða króna í kjölfar sektar frá Samkeppniseftirlitinu. Fjárfestingarspá fyrir árið 2020 er óbreytt, en hún gerir ráð fyrir að fjárfestingar verði á bilinu 5,7 til 6,0 milljarðar króna.
Kynningarfundur 26. ágúst 2020
Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn miðvikudaginn 26. ágúst kl. 8:30 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík. Á fundinum munu Orri Hauksson forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum.
Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á heimasíðu Símans
https://www.siminn.is/umsimann/uppgjor og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.
Hægt verður að fylgjast með fundinum í netstreymi á vefslóðinni:
https://livestream.com/accounts/11153656/events/9261536/player
Fjárhagsdagatal 2020
- Afkoma 3F 2020 27. október 2020
- Ársuppgjör 2020 18. február 2021
- Aðalfundur 2021 11. mars 2021
Nánari upplýsingar um uppgjörð veita:
Orri Hauksson, forstjóri Símans, s. 550 6003 ([email protected])
Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans, s. 550 6003 ([email protected])
Síminn hf.
Síminn á og rekur fyrirtækin Símann, Mílu, Sensa, Farsímagreiðslur og Radíómiðun. Síminn er stærsta fjarskiptafyrirtæki landsins og veitir viðskiptavinum, bæði einstaklingum og fyrirtækjum, heildstætt vöruframboð á sviði fjarskipta, afbreyingar og upplýsingatækni.