Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Síminn Interim / Quarterly Report 2020

Aug 25, 2020

2203_rns_2020-08-25_561ee440-a1a9-4ce4-9fac-2fb5f9c750ea.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

{# SEO P0-1: filing HTML is rendered server-side so Googlebot sees the full text without executing JS or following an iframe to a Disallow'd CDN path. The content has already been sanitized through filings.seo.sanitize_filing_html. #}

img-0.jpeg

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu

  1. janúar til 30. júní 2020

Síminn hf.

Ármúla 25

108 Reykjavík

Kt. 460207-0880


Efnisyfirlit

Bls.

Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra... 2
Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu... 3
Efnahagsreikningur... 4
Eiginfjáryfirlit... 5
Sjóðstreymisyfirlit... 6
Skýringar... 7 - 11
Ársfjórðungsyfirlit... 12

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. júní 2020


Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra

Árshlutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning Símans hf. og dótturfélaga hans. Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastáðal um árshlutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið sambykktur af Evrópusambandinu. Árshlutareikningurinn er hvorki endurskoðaður né kannaður af endurskoðendum félagsins.

Heildartekjur félagsins á tímabilinu 1. janúar til 30. júní voru 14.522 m.kr. samkvæmt rekstrarreikningi samanborið við 14.077 m.kr. á sama tímabili árið 2019. Hagnaður var af rekstri félagsins sem nam 847 m.kr. samanborið við hagnað að fjárhæð 1.413 m.kr. á sama tímabili 2019. Í úrskurði Samkeppniseftirlitsins þann 28. maí komst stofnunin að þeirri niðurstöðu að Síminn hefði brotið gegin ákvörðununum Samkeppniseftirlitsins nr. 6/2015 og 20/2015 og lagði á sekt að fjárhæð 500 m.kr., sem félagið gjaldfærði á 2. ársfjörðungi. Sú ákvörðun Samkeppniseftirlitsins leiddi til lækkunar á EBITDA afkomuspá félagsins fyrir árið 2020, samanber tilkynningu til Kauphallar Íslands þann 28. maí. Rekstur félagsins er að öðru leyti í samræmi við upphaflegar áætanir. Eignir félagsins námu 64.654 m.kr. samkvæmt efnahagsreikningi. Eigið fé nam 36.530 m.kr. og var eiginfjárhlutfallið 56,5%.

Í byrjun árs keypti félagið allt hlutafé í félaginu Huxrad ehf. Kaupin hafa óveruleg áhrif á rekstur og efnahag félagsins.

Á aðalfundi Símans hf. þann 12. mars 2020 var sambykkt tillaga stjórnar félagsins um heimild til kaupa á eigin bréfum félagsins að hámarki 875 m.kr. að nafnverði. Arðgreiðslustefnu félagsins hefur verið breytt og skulu arðgreiðslur og kaup á eigin bréfum nema nú að lágmarki 50% af hagnaði eftir skatta. Í samræmi við ofangreinda heimild aðalfundar voru keypt eigin bréf í maí til júní að nafnverði 75 m.kr. fyrir 450 m.kr. að markaðsverði. Félagið greiddi í apríl að að fjárhæð 500 m.kr. til hluthafa sinna. Að öðru leyti vísast til árshlutareiknings um breytingar á eigin fé félagsins.

Áhrif COVID-19 heimsfaraldursins á rekstur, efnahag og sjóðstreymi félagsins á fyrri árshelmingi eru óveruleg. Eftirspurn eftir kjarnavörum félagsins hefur haldist sterk hingað til en ef samdráttar mun gæta til lengri tíma í efnahagslífinu er óljóst hver áhrifin verða. Félagið hefur yfirfarið áætanir ársins og metið áhrif COVID-19 faraldursins á áætlaðan rekstur, efnahag og sjóðstreymi og telur á þessum tíma ekki ástæðu til að breyta afkomuspá félagsins. Félagið hefur nýtt sér heimild í lánasamningi sínum til að fresta afborgunum af lánum félagsins það sem eftir er ársins.

Yfirlýsing stjórnar og forstjóra

Samkvæmt bestu vitneskju stjórnar og forstjóra er árshlutareikningur félagsins í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastáðal um árshlutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið staðfestur af Evrópusambandinu. Er það álit stjórnar og forstjóra að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af rekstrarafkomu félagsins á tímabilinu 1. janúar til 30. júní 2020, eignum, skuldum og fjárhagstöðu þess 30. júní 2020 og breytingu á handbæru fé á tímabilinu 1. janúar til 30. júní 2020. Jafnframt er það álit stjórnar og forstjóra að árshlutareikningurinn gefi glöggt yfirlit um þróun og árangur í rekstri félagsins og stöðu þess og lýsi helstu áhættuþáttum og óvissu sem félagið býr við.

Stjórn og forstjóri Símans hf. hafa í dag fjallað um árshlutareikning félagsins fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2020 og staðfesta hann með undirritun sinni.

Reykjavík, 25. ágúst 2020

Stjórn

Jón Sigurðsson, formaður

Helga Valfells, varaformaður

Bjarni Þorvarðarson

Kolbeinn Árnason

Sylvía Kristín Ólafsdóttir

Forstjóri

Orri Hauksson

Síminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. júní 2020


Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu
1. janúar til 30. júní 2020

Skýr. 2020 2019 2020 2019
1.4.-30.6. 1.4.-30.6. 1.1.-30.6. 1.1.-30.6.
Sala 5 7.169 6.808 14.289 13.581
Kostnaðarverð sólú 6 ( 4.118) ( 3.591) ( 7.920) ( 7.016)
Framlegð 3.051 3.217 6.369 6.565
Aðrar rekstrartekjur 107 307 233 496
Rekstrarkostnaður 7 ( 2.743) ( 2.246) ( 4.957) ( 4.676)
Rekstrarhagnaður 415 1.278 1.645 2.385
Fjármunatekjur 44 46 91 96
Fjármagnsgjöld ( 203) ( 301) ( 459) ( 657)
Gengismunur ( 19) ( 14) ( 80) ( 21)
Hrein fjármagnsgjöld 8 ( 178) ( 269) ( 448) ( 582)
Hagnaður fyrir tekjuskatt 237 1.009 1.197 1.803
Reiknaðir skattar ( 154) ( 211) ( 350) ( 390)
Hagnaður og heildarhagnaður tímabilsins 83 798 847 1.413
EBITDA 1.938 2.602 4.673 4.971
Hagnaður á hlut
Grunnhagnaður á hlut 0,01 0,09 0,10 0,16
Þynntur hagnaður á hlut 0,01 0,09 0,10 0,16

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. júní 2020
Fjárhæðir eru í milljónum króna


Efnahagsreikningur 30. júní 2020

Skýr. 30.6.2020 31.12.2019
Eignir
Fastafjármunir
Rekstrarfjármunir 19.017 18.716
Leigueignir 4.833 5.118
Óefnislegar eignir 33.959 34.265
Aðrar eignir 9 458 472
Fastafjármunir 58.267 58.571
Veltufjármunir
Birgðir 10 1.620 1.751
Viðskiptakrófur 11 3.027 4.188
Aðrar skammtímakrófur 12 764 794
Handbært fé 976 217
Veltufjármunir 6.387 6.950
Eignir samtals 64.654 65.521
Eigið fé
Hlutafé 8.675 8.750
Yfirverðsreikningur 14.150 14.525
Annað eigið fé 154 154
Annað bundið eigið fé 454 456
Óráðstafað eigið fé 13.097 12.747
Eigið fé 36.530 36.632
Skuldir
Langtímaskuldir
Skuldabréfalán 14.864 14.481
Leiguskuldbindingar 4.398 4.632
Viðskiptaskuldir 0 353
Tekjuskattsskuldbinding 13 675 802
Langtímaskuldir 19.937 20.268
Skammtímaskuldir
Skuldir við lánastofnanir 0 600
Viðskiptaskuldir 3.599 3.533
Næsta árs afborganir langtímaskulda 575 1.150
Næsta árs afborganir leiguskuldbindinga 600 600
Skattar til greiðslu 996 894
Aðrar skammtímaskuldir 14 2.417 1.844
Skammtímaskuldir 8.187 8.621
Skuldir samtals 28.124 28.889
Eigið fé og skuldir samtals 64.654 65.521

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. júní 2020

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Eiginfjáryfirlit 30. júní 2020

Hlutafé Yfirverðs-reikningur Annað eigið fé Annað bundið eigið fé Óráðstafað eigið fé Eigið fé samtals
Eigið fé 1.1.2019 9.033 15.552 154 456 10.007 35.202
Hagnaður tímabilsins 1.413 1.413
Greiddur arður (0,036534 á hlut) ( 330) ( 330)
Fært á bundið eigið fé 6 ( 6) 0
Eigið fé 30.6.2019 9.033 15.552 154 462 11.084 36.285
Eigið fé 1.1.2020 8.750 14.525 154 456 12.747 36.632
Hagnaður tímabilsins 847 847
Þýðingarmunur 1 1
Greiddur arður (0,057144 á hlut) ( 500) ( 500)
Keypt eigin bréf ( 75) ( 375) ( 450)
Fært á bundið eigið fé ( 3) 3 0
Eigið fé 30.6.2020 8.675 14.150 154 454 13.097 36.530

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. júní 2020

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Sjóðstreymisyflrit 1. janúar til 30. júní 2020

Skýr. 2020 2019 2020 2019
1.4.-30.6. 1.4.-30.6. 1.1.-30.6. 1.1.-30.6.
Rekstrarhreyfingar
Rekstrarhagnaður samkvæmt rekstrarreikningi 415 1.278 1.645 2.385
Rekstrarliðir sem ekki hafa áhrif á fjárstreymi:
Afskriftir 1.523 1.324 3.028 2.586
Söluhagnaður varanlegra rekstrarfjármuna ( 4) ( 165) ( 5) ( 165)
1.934 2.437 4.668 4.806
Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum:
Birgðir, lækkun (hækkun) 303 52 186 ( 124)
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur, lækkun (hækkun) 448 268 1.201 ( 130)
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir, hækkun (lækkun) 410 ( 670) 774 ( 403)
Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum 1.161 ( 350) 2.161 ( 657)
Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta 3.095 2.087 6.829 4.149
Innborgaðir vextir 44 44 89 91
Greiddir vextir ( 222) ( 309) ( 480) ( 619)
Greiddir skattar ( 250) ( 87) ( 375) ( 175)
Handbært fé frá rekstri 2.667 1.735 6.063 3.446
Fjárfestingarhreyfingar
Fjárfesting í rekstrarfjármunum ( 914) ( 1.187) ( 2.048) ( 2.185)
Fjárfesting í óefnislegum eignum ( 424) ( 537) ( 1.118) ( 717)
Söluverð rekstrarfjármuna 4 2 8 3
Skuldabréfaeign, breyting ( 2) 0 ( 62) 28
Aðrar fjárfestingar 0 0 ( 51) 2
Fjárfestingarhreyfingar ( 1.336) ( 1.722) ( 3.271) ( 2.869)
Fjármögnunarhreyfingar
Greiddur arður ( 500) ( 330) ( 500) ( 330)
Kaup eigin bréfa ( 450) 0 ( 450) 0
Afborganir langtímalána 0 ( 288) ( 192) ( 575)
Afborganir leiguskuldbindinga ( 145) ( 133) ( 289) ( 264)
Skammtímalán, breyting ( 400) 277 ( 600) ( 173)
Fjármögnunarhreyfingar ( 1.495) ( 474) ( 2.031) ( 1.342)
(Lækkun) hækkun á handbæru fé ( 164) ( 461) 761 ( 765)
Áhrif gengisbreytinga á handbært fé ( 8) 5 ( 2) 29
Handbært fé í byrjun tímabilsins 1.148 966 217 1.246
Handbært fé í lok tímabilsins 976 510 976 510

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. júní 2020

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

1. Starfsemi

Síminn hf. er hlutafélag og starfar á grundvelli laga nr. 2/1995 um hlutafélög. Höfuðstöðvar félagsins eru að Ármúla 25 í Reykjavík. Samstæðuárs hlutareikningur fyrir tímabilið janúar til júní 2020 hefur að geyma árs hlutareikning félagsins og dótturfélaga þess sem vísað er til í heild sem „félagsins“ og til einstakra félaga sem „dótturfélaga“.

Meginstarfsemi félagsins er á sviði fjarskipta, afbreyingar og upplýsingatækni.

2. Grundvöllur reikningsskilanna

Yfirlýsing um að alþjóðlegum reikningsskilastöðlum sé fylgt

Árs hlutareikningur félagsins er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastöðal um árs hlutareikninga, IAS 34. Samandreginn árs hlutareikningur Símans hf. inniheldur ekki allar þær upplýsingar sem krafist er í fullbúnum ársreikningi og ætti að lesa í samhengi við ársreikning félagsins fyrir árið 2019. Valdar skýringar eru með árs hlutareikningnum til að skýra og upplýsa um rekstur félagsins á tímabilinu og breytingar á fjárhagslegri stöðu frá síðasta ársreikningi.

Hægt er að nálgast ársreikninginn á vef félagsins, www. siminn.is og á vef Kauphallar Íslands: www.nasdaqomxnordic.com.

Stjórn og forstjóri félagsins samþykktu árs hlutareikninginn og heimiluðu birtingu hans á stjórnarfundi þann 25. ágúst 2020.

Grundvöllur matsaðferða

Samstæðuárs hlutareikningurinn er gerður samkvæmt kostnaðarverðsaðferð.

Starfrækslugjaldmiðill og framsetningargjaldmiðill

Árs hlutareikningurinn er gerður í íslenskum krónum sem er starfrækslugjaldmiðill félagsins og eru fjárhæðir birtar í milljónum króna nema annað sé tekið fram.

Mat og ákvarðanir

Gerð samstæðuárs hlutareiknings í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastöða krefst þess að stjórnendur taki ákvarðanir, meti og gefi sér forsendur sem hafa áhrif á beitingu reikningsskilaaðferða og birtar fjárhæðir eigna, skulda, tekna og gjalda. Endanlegar niðurstöður kunna að verða frábrugðnar þessu mati.

Mat og forsendur þess eru í stöðugri endurskoðun. Breytingar á reikningshaldslegu mati eru færðar á því tímabili sem breytingin á sér stað og þeim framtiðartímabilum sem breytingarnar hafa áhrif á.

3. Breytingar á reikningsskilaaðferðum

Við gerð árs hlutareikningsins er beitt sömu reikningsskilaaðferðum og við gerð ársreiknings félagsins fyrir árið 2019.

Siminn hf. - Samandreginn árs hlutareikningur samstæðu 30. júní 2020
Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

4. Starfsbáttayfirlit

Yfirlit um starfsbætti veitir upplýsingar um einstaka þætti í rekstri félagsins og er sett fram með sama hætti og regluleg skýrslugjöf til stjórnar félagsins.

Starfsemi félagsins skiptist í sjö starfsbætti sem selja vörur og þjónustu á mismunandi mörkuðum. Starfsbættirnir eru:

Starfsbáttur Lýsing
Farsímabjónusta: Farsímabjónusta innanlands og erlendis, hvort sem heldur er hefðbundin GSM þjónusta, gervihnattabjónusta eða önnur farsímabjónusta.
Talsímabjónusta: Talsímabjónusta fyrir fyrirtæki og einstaklinga.
Gagnaflutningur: Gagnaflutningsþjónusta, þ.m.t. xDSL þjónusta, GPON, Internet, IP net, stofnnet, heimtaugar og aðgangsnet.
Sjónvarpsþjónusta: Dreifing á sjónvarpsefni, áskrift, notkun og auglýsingar á miðlum félagsins.
Upplýsingatækni: Upplýsingatækniþjónusta, þ.m.t. mánaðargjöld, útseld þjónusta og vörusala.
Vörusala búnáðar: Sala á fjarskiptabúnaði og fylgihlutum.
Annað: Útseld vinna vegna fjarskipta, þ.m.t. vettvangsþjónusta og aðstöðuleiga.

Starfsbættir 1.1.-30.6.2020

Farsíma-bjónusta Talsíma-bjónusta Gagna-flutningur Sjónvarps-bjónusta Upplýsingat-ækni Vörusala búnáðar Annað Samtals
Rekstrartekjur 2.704 876 4.344 3.083 2.189 914 412 14.522
Óskipt rekstrargjöld ( 9.849)
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta 4.673
Afskriftir ( 3.028)
Hrein fjármagnsgjöld ( 448)
Reiknaðir skattar ( 350)
Hagnaður tímabilsins 847
Fjárfestingar ( 3.158)
Óskiptar eignir 30.6.2020 64.654
Óskiptar skuldir 30.6.2020 28.124

Starfsbættir 1.1.-30.6.2019

Farsíma-bjónusta Talsíma-bjónusta Gagna-flutningur Sjónvarps-bjónusta Upplýsingat-ækni Vörusala búnáðar Annað Samtals
Rekstrartekjur 2.785 924 4.278 2.631 1.872 865 722 14.077
Óskipt rekstrargjöld ( 9.106)
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta 4.971
Afskriftir og virðisrýrnun ( 2.586)
Hrein fjármagnsgjöld ( 582)
Reiknaðir skattar ( 390)
Hagnaður tímabilsins 1.413
Fjárfestingar ( 2.899)
Óskiptar eignir 30.6.2019 64.475
Óskiptar skuldir 30.6.2019 28.190

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. júní 2020

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

5. Sala 2020 2019
Seld þjónusta og vörur greinast þannig: 1.1.-30.6. 1.1.-30.6.
Sala á þjónustu 12.179 11.742
Vörusala upplýsingatækni og fjarskipta 2.110 1.839
14.289 13.581

Enginn einstakur viðskiptavinur er með meira en 10% af sölu félagsins.

6. Kostnaðarverð sölu

Kostnaðarverð sölu greinist þannig:

Laun og launatengd gjöld 1.716 1.773
Kostnaðarverð seldrar þjónustu 2.062 1.720
Samtengigjöld 333 365
Kostnaðarverð seldra vara 1.936 1.706
Eignfærð vinna ( 445) ( 424)
Afskriftir 2.318 1.876
7.920 7.016

Kostnaðarverð seldrar þjónustu samanstendur af; efnis kostnaði, þjónustusamningum, leyfis gjöldum, aðkeyptri þjónustu og fjarskiptakostnaði.

7. Rekstrarkostnaður

Rekstrarkostnaður greinist þannig:

Laun og launatengd gjöld 2.362 2.292
Markaðs- og sölukostnaður 231 289
Húsnaðis- og bifreiðakostnaður 335 364
Tölvu- og hugbúnaðarkostnaður 341 455
Skrifstofu- og stjörnunarkostnaður 978 566
Afskriftir 710 710
4.957 4.676

8. Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld

Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld greinast þannig:

Fjármunatekjur
Vaxtatekjur af bankainnistæðum og kröfum 89 92
Fenginn arður og söluhagnaður af eignarhlutum 2 4
91 96
Fjármagnsgjöld
Vaxtagjöld ( 318) ( 456)
Vaxtagjöld vegna leiguskuldbindinga ( 125) ( 137)
Önnur fjármagnsgjöld ( 16) ( 64)
( 459) ( 657)
Gengismunur ( 80) ( 21)
Hrein fjármagnsgjöld ( 448) ( 582)

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. júni 2020

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

9. Aðrar eignir 30.6.2020 31.12.2019
Aðrar eignir greinast þannig:
Fjárfesting í öðrum félögum 47 47
Sjónvarpsefni til sýningar 126 143
Fyrirframgreiddur kostnaður 12 40
Langtímakröfur 273 242
Aðrar eignir samtals 458 472
10. Birgðir
Birgðir greinast þannig:
Vörur til endursölu og rekstrarvörubirgðir 1.075 1.232
Sjónvarpsefni til sýningar 545 519
Birgðir samtals 1.620 1.751
11. Víðskiptakröfur
Víðskiptakröfur greinast þannig:
Víðskiptakröfur 3.196 4.345
Niðurfærsla víðskiptakrafna ( 169) ( 157)
Víðskiptakröfur samtals 3.027 4.188
12. Aðrar skammtímakröfur
Aðrar skammtímakröfur greinast þannig:
Fyrirframgreiddur kostnaður 523 613
Aðrar skammtímakröfur 241 181
Aðrar skammtímakröfur samtals 764 794
13. Tekjuskattsskuldbinding
Hreyfingar á reiknaðri tekjuskattsskuldbindingu greinast á eftirfarandi hátt:
Reiknuð tekjuskattsskuldbinding í ársbyrjun 802 898
Tekjuskattur tímabilsins 339 778
Skattar til greiðslu á næsta ári ( 466) ( 874)
Tekjuskattsskuldbinding samtals 675 802
14. Aðrar skammtímaskuldir
Aðrar skammtímaskuldir greinast þannig:
Áfallinn kostnaður 1.146 888
Ógreidd laun og launatengd gjöld 717 327
Ógreiddur virðisaukaskattur 543 618
Aðrar skammtímaskuldir 11 11
Aðrar skammtímaskuldir samtals 2.417 1.844

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. júní 2020

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

15. Málaferli

Félagið stendur í málarekstri vegna mála sem snúa að túlkunum á fjarskipta, fjölmiðla- og samkeppnislögum. Inter, sem eru samtök aðila er veita internetþjónustu, sendu Símanum kröfu árið 2015 og kröfðust skaðabóta að fjárhæð allt að 3 milljörðum króna vegna meintra brota á samkeppnislögum. Þrjú félög innan samtakanna óskuðu eftir dómkvaðningu matsmanna og sendu í kjölfarið breyttar kröfur sem nema rúmlega 300 milljónum króna. Tölvun stefndi máli til héraðsdóms til greiðslu skaðabóta aðallega að fjárhæð tæplega 7 milljónir króna, auk vaxta og kostnaðar. Snerpa gerði slíkt hið sama og gerði aðallega kröfu um greiðslu skaðabóta að fjárhæð tæplega 40 milljónir króna, auk vaxta og kostnaðar. Hringiðan stefndi Símanum einnig og gerði aðallega kröfu að fjárhæð 899 milljónir króna, auk vaxta og kostnaðar. TSC ehf. höfðaði mál gegn Símanum til greiðslu skaðabóta vegna meintra brota á ákvörðun samkeppnisráðs nr. 10/2015. Nam stefnufjárhæðin rúmlega 100 milljónum króna, auk kostnaðar og vaxta. Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að Símanum bæri að greiða 50 milljónir króna auk kostnaðar, vaxta og dráttarvaxta. Félagið hefur hafnað málatilbúnaði gagnaðila í öllum málunum. Síminn hefur einnig áfrýjað dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli TSC ehf. gegn Símanum til Landsréttar og hefur TSC einnig gagnstefnt málinu. Í tilfelli Tölvunar, Snerpu og Hringiðunnar hefur Síminn skilað greinargerð þar sem málatilbúnaði félaganna er hafnað. Þá hefur IHM gert kröfu á hendur Símanum að fjárhæð 337 milljónum króna auk vaxta og dráttarvaxta vegna meintra vangoldinna gjalda frá árinu 2009. Síminn hafnar málatilbúnaði IHM og telur kröfuna ekki vera réttmæta.

Síminn og Vodafone hafa átt í ágreiningi í tengslum við dreifingu á sjónvarpsefni. Póst- og fjarskiptastofnun komst að þeirri niðurstöðu að Síminn hefði farið gegn fjölmiðlalögum sbr. ákvörðun PFS nr. 10/2018. Lagði stofnunin á sekt að fjárhæð 9 milljónir króna sem félagið hefur þegar greitt. Síminn telur háttsemi félagsins sé í fullu samræmi við ákvæði fjölmiðlalaga og höfðaði mál til ógildingar ákvörðunar Póst- og fjarskiptastofnunar. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í málinu og ógilti ákvörðun PFS að hluta en lækkaði sektina niður í 7 milljónir króna. Síminn áfrýjaði málinu til Landsréttar og gerir kröfu um ógildingu. Í kjölfarið á ákvörðun PFS sendi Vodafone kröfu til Símans um greiðslu skaðabóta að fjárhæð 1,9 milljarða króna. Síminn hafnaði kröfunni og benti á að það mætti hvorki ráða af erindi Vodafone að skilyrði skaðabótaskyldu væri fyrir hendi né heldur væri gerð tilraun til að færa sönnur á ætlað tjón Vodafone. Að mati Símans var um tilhæfulausa kröfu að ræða og vísaði Héraðsdómur Reykjavíkur kröfu Vodafone frá dómi vegna vanreifunar. Í framhaldinu lagði Vodafone fram beiðni um dómkvaðningu matsmanna og hefur stefnt Símanum fyrir héraðsdómi Reykjavíkur og gert kröfu um 125 milljónir króna. Síminn hafnar málatilbúnaði Vodafone og mun skila greinargerð á næstunni. Þá hefur Gagnaveita Reykjavíkur sent Símanum kröfu um greiðslu að fjárhæð 1,3 milljarða króna. Síminn hafnaði kröfunni og benti á að það mætti ekki ráða af erindi Gagnaveitunnar að skilyrði skaðabótaskyldu væri fyrir hendi. Að mati Símans er um tilhæfulausa kröfu að ræða.

Prátt fyrir að óvissa sé um niðurstöður þessara mála er það mat stjórnenda að ekki komi til verulegra fjárútláta vegna þeirra. Í þeim tilvikum sem talið er að félagið geti þurft að greiða bætur vegna málareksturs á hendur þess er sá kostnaður áætlaður af stjórnendum félagsins og færður í reikningsskil þess.

Samkeppniseftirlitið komst að þeirri niðurstöðu að Síminn hefði brotið gegn ákvörðununum Samkeppniseftirlitsins nr. 6/2015 og 20/2015 og lagði á sekt að fjárhæð 500 milljón króna sem Síminn hefur þegar greitt. Síminn kærði ákvörðun Samkeppniseftirlitið til áfrýjunarnefndar samkeppnismála og gerir kröfu um ógildingu ákvörðunarinnar. Félagið er þeirrar skoðunar að fyrirkomulag um sölu á þjónustu félagsins sé fyllilega í samræmi samkeppnislög og þær ákvörðanir sem félagið hefur gengist undir á grundvelli samkeppnislága.

16. Atburðir eftir reikningsskiladag

Engir atburðir hafa átt sér stað eftir lok reikningsskiladags sem höfðu áhrif á árshlutareikninginn eða veita þarf upplýsingar um.

Síminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. júní 2020

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Ársfjórðungsyfirlit

Rekstur samstæðunnar greinist þannig á ársfjórðunga:

1 F 2020 2 F 2020 Samtals
Sala 7.120 7.169 14.289
Kostnaðarverð sól ( 3.802) ( 4.118) ( 7.920)
Framlegð 3.318 3.051 6.369
Aðrar rekstrartekjur 126 107 233
Rekstrarkostnaður ( 2.214) ( 2.743) ( 4.957)
Rekstrarhagnaður 1.230 415 1.645
Hrein fjármagnsgjöld ( 270) ( 178) ( 448)
Hagnaður fyrir tekjuskatt 960 237 1.197
Tekjuskattur ( 196) ( 154) ( 350)
Hagnaður tímabilsins 764 83 847
EBITDA 2.735 1.938 4.673
1 F 2019 2 F 2019 3 F 2019
--- --- --- ---
Sala 6.773 6.808 6.958
Kostnaðarverð sól ( 3.425) ( 3.591) ( 3.523)
Framlegð 3.348 3.217 3.435
Aðrar rekstrartekjur 189 307 140
Rekstrarkostnaður ( 2.430) ( 2.246) ( 2.208)
Rekstrarhagnaður 1.107 1.278 1.367
Hrein fjármagnsgjöld ( 313) ( 269) ( 232)
Hagnaður fyrir tekjuskatt 794 1.009 1.135
Tekjuskattur ( 179) ( 211) ( 238)
Hagnaður tímabilsins 615 798 897
EBITDA 2.369 2.602 2.817

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. júní 2020
Fjórhæðir eru í milljónum króna