AI assistant
Síminn — Interim / Quarterly Report 2020
Oct 27, 2020
2203_rns_2020-10-27_a4006632-0f43-40e7-8fc6-50ddc9406643.pdf
Interim / Quarterly Report
Open in viewerOpens in your device viewer
Síminn
- október 2020
Fréttatilkynning: Afkoma Símans hf. á 3F 2020
Góður fjórðungur hjá Símanum
- Tekjur á þriðja ársfjórðungi (3F) 2020 námu 7.225 milljónum króna samanborið við 7.098 milljónir króna á sama tímabili 2019 og hækka því um 127 milljónir krónur eða 1,8%.
- Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði EBITDA nam 2.933 milljónum króna á 3F 2020 samanborið við 2.817 milljónir króna á sama tímabili 2019 og hækkar því um 116 milljónir króna eða 4,1% frá sama tímabili í fyrra. EBITDA hlutfallið er 40,6% fyrir þriðja ársfjórðung 2020 en var 39,7% á sama tímabili 2019. Rekstrarhagnaður EBIT hækkar um 42 m.kr eða 3,1% frá saman tímabili í fyrra.
- Hagnaður á 3F 2020 nam 1.014 milljónum króna samanborið við 897 milljónir króna á sama tímabili 2019.
- Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta nam 2.257 milljónum króna á 3F 2020 en var 4.024 milljónir króna á sama tímabili 2019. Eftir vexti og skatta nam handbært fé frá rekstri 1.967 milljónum króna á 3F 2020 en 3.590 milljónum króna á sama tímabili 2019.
- Vaxtaberandi skuldir námu 15,4 milljörðum króna í lok 3F 2020 en voru 16,2 milljarðar króna í árslok 2019. Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 14,7 milljarðar króna í lok 3F 2020 samanborið við 16,0 milljarða króna í árslok 2019.
- Hrein fjármagnsgjöld námu 149 milljónum króna á 3F 2020 en voru 232 milljónir króna á sama tímabili 2019. Fjármagnsgjöld námu 181 milljónum króna, fjármunatekjur voru 52 milljónir króna og gengistap var 20 milljónir króna.
- Eiginfjárhlutfall Símans hf. var 57,0% í lok 3F 2020 og eigið fé 36,6 milljarðar króna.
Orri Hauksson, forstjóri:
„Rekstur samstæðunnar er í vel ásættanlegum gangi um þessar mundir. Tekjur og afkoma þokuðust upp á við á þriðja ársfjórðungi miðað við sama tímabili í fyrra, en þá var vöruframboð samstæðunnar orðið sambærilegt við það sem nú er. Tekjur af erlendum ferðamönnum eru lítið brot af því sem var á fyrra ári, en tekjustraumar samstæðunnar innanlands fá fyrirsjáanlega og að ýmsu leyti hagfellda framvindu á fjórðunginum. Pannig vaxa stafraen afþreying og búnaðarsala umtalsvert milli ára. Tekjur af upplýsingatækni og gagnatengingum vaxa einnig lítillega milli þriðju fjórðunga áranna tveggja, en innlend farsímabjónusta stendur í stað og talsímabjónusta dregst saman sem fyrr. Erfitt efnahagsástand hefur enn ekki valdið verulegum vanskilum viðskiptavina samstæðunnar.
Síminn
Kostnaður vegna lögfræði og málarekstrar var hár á þriðja fjórðungi ársins, en ferðakostnaður, laun og útgjöld vegna ýmissa hefðbundinna umsvifa í rekstrinum dragast saman, meðal annars vegna aukinnar fjärvinnu og samkomutakmarkana. Starfsmönnum móðurfélagsins hefur fækkað um tæplega 50 á árinu, vegna áframhaldandi útvistunar verkefna og aukinnar sjálfvirkni í starfseminni. EBITDA niðurstaða ársins stefnir í að vera í efri hluta áður útgefins spábils.
Ýmsum fyrirhuguðum fjárfestingaverkefnum ársins var slegið á frest síðastliðið vor, eftir að heimsfaraldurinn brast á. Fjárfestingar móðurfélagsins eru að miklu leyti í erlendri mynt og verða því dýrari í krónum með lækkuðu gengi. Heildaráhrif frestaðra fjárfestinga og gengisbreytinga eru að samstæðan verður við neðri mörk spábils fjárfestinga á árinu. Auk ljósleiðaravæðingar eru lykil þróunarverkefni samstæðunnar um þessar mundir nýbreytni í tæknilegum sjónvarpsafurðum félagsins, bætt gagnanýting og innleiðing dreifisamnings við Gagnaveitu Reykjavíkur. Farsímakerfi Símans er byggt upp með búnaði frá hinu sænska fyrirtæki Ericsson og á það einnig við um 5G tækni."
Síminn
Helstu niðurstöður í rekstri á fyrstu níu mánuðum 2020
Rekstur
| Rekstrarreikningur | 3F | 9M | ||||
|---|---|---|---|---|---|---|
| 2020 | 2019 | % | 2020 | 2019 | % | |
| Rekstrartekjur | 7.225 | 7.098 | 1,8% | 21.747 | 21.175 | 2,7% |
| Kostnaðarverð sólú | (3.819) | (3.523) | 8,4% | (11.739) | (10.539) | 11,4% |
| Rekstrarkostnaður | (1.997) | (2.208) | -9,6% | (6.954) | (6.884) | 1,0% |
| EBIT | 1.409 | 1.367 | 3,1% | 3.054 | 3.752 | -18,6% |
| Hrein fjármagnsgjöld | (149) | (232) | -35,8% | (597) | (814) | -26,7% |
| Tekjuskattur | (246) | (238) | 3,4% | (596) | (628) | -5,1% |
| Hagnaður tímabils | 1.014 | 897 | 13,0% | 1.861 | 2.310 | -19,4% |
| EBITDA | 2.933 | 2.817 | 4,1% | 7.606 | 7.788 | -2,3% |
| Hagnaður á hlut | 0,11 | 0,10 | 10,0% | 0,21 | 0,26 | -19,2% |
Sala á 9M 2020 nam 21.747 milljónum króna samanborið við 21.175 milljónir króna á sama tímabili árið 2019, sem er 2,7% vöxtur milli ára. Tekjur af farsíma námu 4.110 milljónum króna og lækkuðu um 198 milljón króna eða 4,6% á milli tímabila. Í farsíma lækka reikitekjur á milli ára um 243 milljónir króna. Tekjur af talsíma námu 1.299 milljónum króna og lækkuðu um 5,0% á milli tímabila. Tekjur af gagnaflutningi námu 6.554 milljónum króna og hækkuðu um 134 milljónir króna eða 2,1% á milli tímabila. Tekjur af sjónvarpsþjónustu námu 4.614 milljónum króna og hækkuðu um 560 milljónir króna eða 13,8% á milli tímabila. Tekjur af upplýsingatækni námu 3.063 milljónum króna og hækkuðu um 326 milljónir króna eða 11,9% á milli tímabila. Tekjur af vörusölu voru 1.481 milljónir króna og hækkuðu um 160 milljónir króna eða 12,1% á milli tímabila.
Framlegð á 9M 2020 nam 9.669 milljónum króna og lækkaði um 331 milljónir króna eða 3,3% frá sama tímabili árið 2019. Rekstrarkostnaður nam 6.954 milljónum króna og hækkaði um 70 milljónir króna eða 1,0% frá sama tímabili árið 2019.
EBITDA, þ.e. rekstrarhagnaður félagsins fyrir afskriftir og fjármagnsliði, var 7.606 milljónir króna á 9M 2020 en var 7.788 milljón krónur á sama tímabili árið 2019 og lækkaði því um 182 milljónir króna á milli tímabila eða um 2,3%. EBITDA hlutfallið er 35,0% en var 36,8% á sama tímabili árið 2019.
Afskriftir félagsins námu 4.552 milljónum króna á 9M 2020 samanborið við 4.036 milljónir króna á sama tímabili árið 2019 og hækka um 516 milljónir króna milli tímabila. Auknar afskriftir má að stærstum hluta rekja til aukinna fjárfestinga í sýningarréttum og í minna mæli aukinni fjárfestingu Mílu í innviðum.
Hrein fjármagnsgjöld voru 597 milljónir króna á 9M 2020 og lækkuðu um 217 milljónir króna á milli tímabila. Lækkun stýriváxta hefur leitt til lægri váxtagjalda hjá félaginu.
Hagnaður tímabilsins nam 1.861 milljónum króna samanborið við 2.310 milljónir króna á sama tímabili árið 2019.
Síminn
Sjóðstreymi
Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta var 9.086 milljónir króna á 9M 2020 samanborið við 8.173 milljónir króna á sama tímabili árið 2019. Eftir vexti og skatta nam handbært fé frá rekstri 8.030 milljónum króna á 9M 2020 samanborið við 7.036 milljónir króna á sama tímabili árið 2019.
Fjárfestingarhreyfingar námu 4.359 milljón króna á 9M 2020 samanborið við 4.984 milljónir króna á sama tímabili árið 2019.

Efnahagur
Heildareignir félagsins námu 64.132 milljónum króna í lok 3F 2020 en voru 65.521 milljónir króna í lok árs 2019.
Vaxtaberandi skuldir voru 15.439 milljónir króna í lok 3F 2020 samanborið við 16.231 milljón króna í lok árs 2019. Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 14.725 milljónir króna í lok þriðja ársfjórðungs og lækkuðu um 1.289 milljón króna frá árslokum 2019. Hlutfall hreinna vaxtaberandi skulda á móti EBITDA síðastliðinna tólf mánaða var 1,42. Markmið félagsins er að hlutfallið sé á bilinu 1,5 til 2,5.
| 30.9.2020 | 31.12.2019 | |
|---|---|---|
| Fastafjármunir | 57.976 | 58.571 |
| Veltufjármunir | 6.156 | 6.950 |
| Eignir alls | 64.132 | 65.521 |
| Eigið fé | 36.561 | 36.632 |
| Langtímaskuldir | 19.519 | 20.268 |
| Skammtímaskuldir | 8.052 | 8.621 |
| Skuldir og eigið fé alls | 64.132 | 65.521 |
| Eiginfjárhlutfall | 57,0% | 55,9% |
Eigið fé félagsins nam 36.561 milljónum króna í lok 3F og eiginfjárhlutfall félagsins var 57,0 %.
Um starfsemina
- Verið er að setja upp fyrstu 5G sendana til prófana. Stefnt er að því að setja 2-4 senda upp fyrir áramót. Í framhaldi verður byggt upp 5G dreifikerfi í samræmi við tíðnileyfi frá Póst- og fjarskiptastofnun. Farsímakerfi Símans er byggt upp með búnæði frá hinu sænska fyrirtæki Ericsson.
- Frekari uppbygging á 4G kerfinu er í gangi. Á síðustu þremur mánuðum hefur 16 nýjum sendistöðum verið bætt við og er 4G kerfi Símans í dag á 518 stöðum um allt land.
- Vinna er í fullum gangi vegna flutnings eininga frá Símanum til Mílu. Gert er ráð fyrir að um áramót flytjist aukinn netrekstur frá Símanum til Mílu. Verkefnið er umfangsmikið og hafa félögin fengið aðstoð frá ráðgjafafyrirtækinu McKinsey.
- Mikið áhorf hefur verið á efni í Sjónvarpi Símans Premium undanfarið. Seinkun á efni frá erlendum birgjum hefur gert störf dagskrárdeildar flóknari. Þeim hefur hins vegar tekist vel til við að finna nýtt efni og hliðra til öðru efni ásamt því að beina áhorfendum að eldra gæðaefni.
- Línulegt áhorf er sömuleiðis í hæstu hæðum þökk sé Helga Björns og Reiðmönnum vindanna ásamt öðru góðu efni í Sjónvarpi Símans.
Síminn
- Í byrjun september komu inn 30 nýjar þáttaraðir af barnaefni sem hefur vakið mikla lukku hjá yngstu áhorfendunum. Þriðja þáttaröðin af Venjulegu fólki var frumsýnd í heild sinni í október og hefur hún þegar slegið í gegn.
- Ljósleiðaravæðing Mílu gengur vonum framar og eru tengd rými komin yfir 90 þúsund. Vel gengur að tengja nýja viðskiptavini á ljósleiðara Mílu, en á fyrstu 9 mánuðum ársins hefur Míla farið í 9 þúsund uppsetningar á ljósleiðara til heimila. Notendur eru orðnir 37 þúsund á öllu landinu.
- Rekstur Sensa gengur vel og eru tekjur félagsins umfram áætlun og afkoma félagsins er góð. Sensa tók við rekstri upplýsingatækniumherfis Kópavogsbæjar og gekk sú innleiðing vel þrátt fyrir hindranir. Þá var félagið valið eftir útboð til að útvega Reykjavíkurborg net- og fjarfundarbúnað til endurnýjunar og viðbóta við kerfi borgarinnar.
Horfur fyrir árið 2020
Spá fyrir árið 2020 er óbreytt en hún gerir ráð fyrir að EBITDA félagsins verði á bilinu í 9,9 – 10,3 milljarðar króna og að fjárfestingar verði á bilinu 5,7 til 6,0 milljarðar króna.
Kynningarfundur 28. október 2020
Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn miðvikudaginn 28. október kl. 8:30. Fundurinn verður eingöngu rafrænn og munu Orri Hauksson forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum. Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á heimasíðu Símans
https://www.siminn.is/umsimann/uppgjor og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.
Hægt verður að fylgjast með fundinum í netstrey mi á vefslóðinni:
https://livestream.com/accounts/11153656/events/9362628/player.
Þeir sem vilja bera upp spurningar á meðan á streymi stendur geta sent þær á [email protected] og verður þeim svarað í lok fundarins.
Fjárhagsdagatal 2020
- Ársuppgjör 2020 18. február 2021
- Aðalfundur 2021 11. mars 2021
Nánari upplýsingar um uppgjörð veita:
Orri Hauksson, forstjóri Símans, s. 550 6003 ([email protected])
Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans, s. 550 6003 ([email protected])
Síminn hf.
Síminn á og rekur fyrirtækin Símann, Mílu, Sensa, Farsímagreiðslur og Radiómiðun. Síminn er stærsta fjarskiptafyrirtæki landsins og veitir viðskiptavinum, bæði einstaklingum og fyrirtækjum, heildstætt vöruframboð á sviði fjarskipta, afbreyingar og upplýsingatækni.