Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Síminn Interim / Quarterly Report 2019

Apr 30, 2019

2203_rns_2019-04-30_767607e9-7cf3-4606-ad1e-8daef0855dac.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

{# SEO P0-1: filing HTML is rendered server-side so Googlebot sees the full text without executing JS or following an iframe to a Disallow'd CDN path. The content has already been sanitized through filings.seo.sanitize_filing_html. #}

img-0.jpeg

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu

  1. janúar til 31. mars 2019

Síminn hf.
Ármúla 25
108 Reykjavík
Kt. 460207-0880


Efnisyfirlit

Bls.

Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra... 2
Rekstrarreikningur... 3
Efnahagsreikningur... 4
Eiginfjáryfirlit... 5
Sjóðstreymisyflit... 6
Skýringar... 7 - 12
Ársfjórðungsyflit... 13

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 31. mars 2019


Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra

Árshlutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning Símans hf. og dótturfélaga hans. Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34 eins og hann hefur verið samþykktur af Evrópusambandinu. Breyting var gerð á reikningsskilaaðferð vegna sjónvarpsrétta félagsins. Vísað er í skýringu 3 til nánari útskýringar.

Heildartekjur samstæðunnar á tímabilinu 1. janúar til 31. mars voru 6.962 m.kr. samkvæmt rekstrarreikningi samanborið við 6.874 m.kr. á sama tímabili árið 2018. Hagnaður var af rekstri samstæðunnar sem nam 615 m.kr. samanborið við hagnað að fjárhæð 887 m.kr. á sama tímabili 2018. Eignir samstæðunnar námu 64.603 m.kr. samkvæmt efnahagsreikningi. Eigið fé nam 35.817 m.kr. og var eiginfjárhlutfallið 55,4%. Að öðru leyti vísast til árshlutareiknings um breytingar á eigin fé samstæðunnar.

Á aðalfundi Símans hf. þann 21. mars 2019 var samþykkt tillaga stjórnar félagsins um endurkaupaáætlun á bréfum félagsins að hámarki 1.310 m.kr. að kaupverði. Framkvæmd áætlunarinnar hefst á 2. ársfjórðungi þessa árs.

Yfirlýsing stjórnar og forstjóra

Samkvæmt bestu vitneskju stjórnar og forstjóra er árshlutareikningur samstæðunnar í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið staðfestur af Evrópusambandinu. Er það álit stjórnar og forstjóra að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af rekstrarafkomu samstæðunnar á tímabilinu 1. janúar til 31. mars 2019, eignum, skuldum og fjárhagsstöðu hennar 31. mars 2019 og breytingu á handbæru fé á tímabilinu 1. janúar til 31. mars 2019. Jafnframt er það álit stjórnar og forstjóra að árshlutareikningurinn gefi glöggt yfirlit um þróun og árangur í rekstri samstæðunnar og stöðu hennar og lýsi helstu áhættuþáttum og óvissu sem samstæðan býr við.

Stjórn og forstjóri Símans hf. hafa í dag fjallað um árshlutareikning félagsins fyrir tímabilið 1. janúar til 31. mars 2019 og staðfesta hann með undirritun sinni.

Reykjavik, 30. apríl 2019

Stjórn

Bertrand B. Kan, formaður

Helga Valfells, varaformaður

Bjarni Þorvarðarson

Ksenia Nekrasova

Sylvía Kristín Ólafsdóttir

Forstjóri

Orri Hauksson

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 31. mars 2019


Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu

  1. janúar til 31. mars 2019
Skýr. 2019 2018
1.1.-31.3. 1.1.-31.3.
Sala 5 6.773 6.756
Kostnaðarverð sólú 6 ( 3.425) ( 3.302)
Framlegð 3.348 3.454
Aðrar rekstrartekjur 189 118
Rekstrarkostnaður 7 ( 2.430) ( 2.275)
Rekstrarhagnaður 1.107 1.297
Fjármunatekjur 50 52
Fjármagnsgjöld ( 356) ( 241)
Gengismunur ( 7) 7
Hrein fjármagnsgjöld 8 ( 313) ( 182)
Hagnaður fyrir tekjuskatt 794 1.115
Reiknaðir skattar ( 179) ( 228)
Hagnaður tímabilsins 615 887
Heildarhagnaður tímabilsins 615 887
EBITDA* 2.369 2.404
Hagnaður á hlut
Grunnhagnaður á hlut 0,07 0,10

*Endurgert, sjá nánar í skýringu 3.

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 31. mars 2019

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Efnahagsreikningur 31. mars 2019

Skýr. 31.3.2019 31.12.2018 Endurgert*
Eignir
Fastafjármunir
Rekstrarfjármunir 23.633 18.059
Óefnislegar eignir 32.418 32.473
Aðrar eignir 9 463 424
Fastafjármunir 56.514 50.956
Veltufjármunir
Birgðir 10 1.662 1.437
Viðskiptakrófur 11 3.493 4.313
Aðrar skammtímakrófur 12 1.968 882
Handbært fé 966 1.246
Veltufjármunir 8.089 7.878
Eignir alls 64.603 58.834
Eigið fé
Hlutafé 9.033 9.033
Yfirverðsreikningur 15.552 15.552
Annað eigið fé 154 154
Annað bundið eigið fé 457 456
Óráðstafað eigið fé 10.621 10.007
Eigið fé samtals 35.817 35.202
Skuldir
Langtímaskuldir
Skuldabréfalán 15.333 15.631
Leiguskuldbindingar 3 4.936 0
Tekjuskattsskuldbinding 13 839 898
Langtímaskuldir 21.108 16.529
Skammtímaskuldir
Skuldir við lánastofnanir 0 450
Viðskiptaskuldir 2.726 2.997
Næsta árs afborganir langtímaskulda 1.150 1.150
Næsta árs afborganir leiguskuldbindinga 546 0
Skattar til greiðslu 915 766
Aðrar skammtímaskuldir 14 2.341 1.740
Skammtímaskuldir 7.678 7.103
Skuldir samtals 28.786 23.632
Eigið fé og skuldir alls 64.603 58.834

*Endurgert, sjá nánar í skýringu 3.

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 31. mars 2019

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Eiginfjáryfirlit 31. mars 2019

Hlutafé Yfirverðs-reikningur Annað eigið fé Annað bundið eigið fé Óráðstafað eigið fé Eigið fé samtals
Eigið fé 1.1.2018 9.247 16.406 201 1.041 9.386 36.281
Hagnaður tímabilsins 171 716 887
Aðrar breytingar ( 2) 2 0
Áfallinn kostnaður vegna kaupréttarsamninga 6 6
Eigið fé 31.3.2018 9.247 16.406 207 1.210 10.104 37.174
Eigið fé 1.1.2019 9.033 15.552 154 456 10.007 35.202
Hagnaður tímabilsins 615 615
Aðrar breytingar 1 ( 1) 0
Eigið fé 31.3.2019 9.033 15.552 154 457 10.621 35.817

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 31. mars 2019

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Sjóðstreymisyflrit 1. janúar til 31. mars 2019

Skýr. 2019 2018
1.1.-31.3. 1.1.-31.3. Endurgert*
Rekstrarhreyfingar
Rekstrarhagnaður samkvæmt rekstrarreikningi 1.107 1.297
Rekstrarliðir sem ekki hafa áhrif á fjárstreymi:
Afskriftir 1.262 1.107
Aðrir liðir sem ekki hafa áhrif á fjárstreymi 0 6
2.369 2.410
Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum:
Birgðir, hækkun ( 176) ( 175)
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur, (hækkun) lækkun ( 398) 367
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir, hækkun (lækkun) 267 ( 212)
Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum ( 307) ( 20)
Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta 2.062 2.390
Innborgaðir vextir 47 55
Greiddir vextir ( 310) ( 246)
Greiddir skattar ( 88) ( 156)
Handbært fé frá rekstri 1.711 2.043
Fjárfestingarhreýfingar
Fjárfesting í rekstrarfjármunum ( 998) ( 1.073)
Fjárfesting í óefnislegum eignum ( 180) ( 110)
Söluverð rekstrarfjármuna 1 1
Skuldabréfaeign, breyting 28 28
Aðrar fjárfestingar 2 0
Fjárfestingarhreýfingar ( 1.147) ( 1.154)
Fjármögnunarhreýfingar
Afborganir langtímalána ( 287) ( 287)
Afborganir leiguskuldbindinga ( 131) 0
Skammtímalán, breyting ( 450) ( 500)
Fjármögnunarhreýfingar ( 868) ( 787)
(Lækkun) hækkun á handbæru fé ( 304) 102
Áhrif gengisbreytinga á handbært fé 24 ( 15)
Handbært fé í byrjun tímabilsins 1.246 718
Handbært fé í lok tímabilsins 966 805

*Endurgert, sjá nánar í skýringu 3.

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 31. mars 2019

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

1. Starfsemi

Síminn hf. er hlutafélag og starfar á grundvelli laga nr. 2/1995 um hlutafélög. Höfuðstöðvar félagsins eru að Ármúla 25 í Reykjavík. Samstæðuárs hlutareikningur fyrir tímabilið janúar til mars 2019 hefur að geyma árs hlutareikning félagsins og dótturfélaga þess sem vísað er til í heild sem "félagsins" og til einstakra félaga sem "dótturfélaga". Meginstarfsemi félagsins er á sviði fjarskipta, afþreyingar og upplýsingatækni.

2. Grundvöllur reikningsskilanna

Yfirlýsing um að alþjóðlegum reikningsskilastöðlum sé fylgt

Árs hlutareikningur félagsins er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastöðal um árs hlutareikninga, IAS 34. Samandreginn árs hlutareikningur Símans hf. inniheldur ekki allar þær upplýsingar sem krafist er í fullbúnum ársreikningi og ætti að lesa í samhengi við ársreikning félagsins fyrir árið 2018. Valdar skýringar eru með árs hlutareikningnum til að skýra og upplýsa um rekstur félagsins á tímabilinu og breytingar á fjárhagslegri stöðu frá síðasta ársreikningi.

Hægt er að nálgast ársreikninginn á vef félagsins, www. siminn.is og á vef Kauphallar Íslands: www. nasdaqomxnordic.com.

Félagið hefur innleitt reikningsskilastöðal IFRS 16 fyrir reikningsárs sem hófst 1. janúar 2019. Breytingum á reikningsskilaaðferðum er lýst í skýringu 3.

Stjórn og forstjóri félagsins samþykktu árs hlutareikninginn og heimiluðu birtingu hans á stjórnarfundi þann 30. apríl 2019.

Grundvöllur matsaðferða

Samstæðuárs hlutareikningurinn er gerður samkvæmt kostnaðarverðsaðferð.

Starfrækslugjaldmiðill og framsetningargjaldmiðill

Árs hlutareikningurinn er gerður í íslenskum krónum sem er starfrækslugjaldmiðill félagsins og eru fjárhæðir birtar í milljónum króna nema annað sé tekið fram.

Mat og ákvarðanir

Gerð samstæðuárs hlutareikningins í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastöða krefst þess að stjórnendur taki ákvarðanir, meti og gefi sér forsendur sem hafa áhrif á beitingu reikningsskilaaðferða og birtar fjárhæðir eigna, skulda, tekna og gjalda. Endanlegar niðurstöður kunna að verða frábrugðnar þessu mati.

3. Breytingar á reikningsskilaaðferðum

Við gerð árs hlutareikningins er beitt sömu reikningsskilaaðferðum og beitt var við gerð ársreiknings félagsins fyrir árið 2018 að undanskildum breytingum sem lýst er hér að neðan.

Félagið hefur innleitt reikningsskilastöðal IFRS 16 fyrir reikningsár sem hófst 1. janúar 2019. Breyting er einnig gerð við meðferð sjónvarpsréttar. Sjónvarpsréttur hefur hingað til verið færður til eignar sem birgðir samkvæmt IAS 2 og gjaldfærður sem efniskostnaður. Vegna mikilla breytinga á umhverfi og viðskiptamódeli sjónvarps undanfarin ár er sjónvarpsréttur félagsins færður frá 1. janúar 2019 sem óefnisleg eign samkvæmt IAS 38 og afskrifáður á samningstíma.

IFRS 16 Leigusamningar

IFRS 16 kynnir heildstætt líkan sem felur í sér færslu leigusamninga í efnahagsreikning. Félagið, sem leigutaki, hefur fært til eignar nýtingarrétt sem endurspeglar rétt félagsins til notkunar eigna og á móti skuld vegna framtíðarleigugreiðslna. Samkvæmt staðlinum þarf ekki að færa í efnahagsreikning leigusamninga til skemmri tíma en eins árs og leigu á ódýrum eignum. Ákvæði um leigusala munu ekki breytast verulega frá gildandi staðli sem áfram flokkar leigusamninga í fjármögnunarleigusamninga eða rekstrarleigusamninga.

Félagið hefur innleitt IFRS 16 miðað við aðferð uppsafnaðra áhrifa (e. modified retrospective approach), þar sem leigueignir eru jafnar leiguskuldum á upptökudegi 1.1.2019. Samkvæmt þeirri aðferð hefur samanburðartölum fyrir árið 2018 ekki verið breytt, þ.e. þær eru færðar samkvæmt IAS 17 og öðrum tengdum stöðlum. Breytingarnar eru skýrðar út hér að neðan.

Siminn hf. - Samandreginn árs hlutareikningur samstæðu 31. mars 2019
Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

3. Breytingar á reikningsskilaaðferðum, frh.:

Leigusamningar þar sem samstæðan er leigutaki

Félagið hefur fært eignir og skuldir vegna leigusamninga um húsnæði, aðstöðuleigu, bifreiða og ljósleiðara. Eðli kostnaðar tengdum þessum leigusamningum hefur breyst þannig að félagið afskrifar nýtingarrétt og færir vaxtagjöld af leiguskuld en áður voru leigugreiðslur færðar meðal rekstrargjalda.

Áður voru leigugreiðslur færðar til gjalda línulega yfir leigutíma og einvörðungu færðar eignir eða skuldir ef tímamunur myndáðist milli greiðslu leigu og gjaldfærslu kostnaðar.

Leigueignir sem færðar eru inn í efnahagsreikning vegna innleiðingar IFRS 16 eru færðar í rekstrarfjármuni, og flokkast þar með sambærilegum eignum sem félagið á fyrir. Bókfært verð leigueigna er eftirfarandi:

Fjarskipta-búnaður Fasteignir og lóðir Bifreiðar Samtals
Staða 1.1.2019 156 5.350 61 5.567
Staða 31.3.2019 154 5.216 67 5.437

Í efnahagsreikningi er skuldbinding vegna leigusamninga flokkuð sem langtímaskuld.

Leigusamningar þar sem samstæðan er leigusali

Innleiðing IFRS 16 hefur ekki áhrif á samninga þar sem félagið er leigusali.

Áhrif innleiðingar á uppgjörstímabilinu

Vegna innleiðingar IFRS 16 er bókfærð staða leigueignar 5.437 m.kr. og leiguskuldar 5.482 m.kr. þann 31. mars 2019.

Sömuleiðis er færð afskrift af leigueign og vaxtagjöld af leiguskuldbindingu. Á tímabilinu 1. janúar til 31. mars er gjaldfærð afskrift undir rekstrarkostnaði vegna leigueigna 166 m.kr. og 69 m.kr. í vaxtagjöld vegna leiguskuldbindinga. Afborgun af leiguskuldbindingu er 131 m.kr.

Sjónvarpsréttur, breyting á reikningsskilaaðferð.

Sjónvarpsréttur félagsins er nú færður sem óefnisleg eign í fastafjármunum en var áður færður sem birgðir í veltufjármunum. Vegna þessarar breytingar hefur samanburðarfjárhæðum í efnahagsreikningi 31.12.2018 verið breytt. 763 m.kr. eru nú færðar sem óefnisleg eign en voru áður færðar í birgðum og 150 m.kr. eru nú færðar sem fyrirframgreiddur kostnaður en voru áður færðar í birgðum.

Einnig er gerð breyting á framsetningu kostnaðarverðs sölu fyrir tímabilið 1. janúar til 31. mars 2018. Kostnaðarverð seldrar þjónustu, þ.e. efniskostnaður, lækkar um 173 m.kr. og afskriftir hækka um sömu fjárhæð. Sjá skýringu 6.

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 31. mars 2019

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

4. Starfsþáttayfirlit

Yfirlit um starfsþætti veitir upplýsingar um einstaka þætti í rekstri félagsins og er sett fram með sama hætti og regluleg skýrslugjóf til stjórnar félagsins.

Starfsemi félagsins skiptist í sjö starfsþætti sem selja vörur og þjónustu á mismunandi mörkuðum. Starfsþættirnir eru :

Starfsþáttur Lýsing
Farsímapjónusta: Farsímapjónusta innanlands og erlendis, hvort sem heldur er hefðbundin GSM þjónusta, gervihnattapjónusta eða önnur farsímapjónusta.
Talsímapjónusta: Talsímapjónusta fyrir fyrirtæki og einstaklinga.
Gagnaflutningur: Gagnaflutningsþjónusta, þ.m.t. xDSL þjónusta, GPON, Internet, IP net, stofnnet, heimtaugar og aðgangsnet.
Sjónvarpsþjónusta: Dreifing á sjónvarpsefni, áskrift, notkun og auglýsingar á miðlum félagsins.
Upplýsingatækni: Upplýsingatækniþjónusta, þ.m.t. mánaðargjöld, útseld þjónusta og vörusala.
Vörusala búnáðar: Sala á fjarskiptabúnaði og fylgihlutum.
Annað: Útseld vinna vegna fjarskipta, þ.m.t. vettvangþjónusta og aðstöðuleiga.

Starfsþættir 1.1.-31.3. 2019

Farsíma-þjónusta Talsíma-þjónusta Gagna-flutningur Sjónvarps-þjónusta Upplýsingatækni Vörusala búnáðar Annað Samtals
Rekstrartekjur 1.357 465 2.135 1.331 951 425 298 6.962
Óskipt rekstrargjöld ( 4.593)
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta 2.369
Afskriftir ( 1.262)
Hrein fjármagnsgjöld ( 313)
Skattar ( 179)
Hagnaður tímabilsins 615
Fjárfestingar ( 1.177)
Óskiptar eignir 31.3.2019 64.603
Óskiptar skuldir 31.3.2019 28.786

Starfsþættir 1.1.-31.3. 2018

Farsíma-þjónusta Talsíma-þjónusta Gagna-flutningur Sjónvarps-þjónusta Upplýsingatækni Vörusala búnáðar Annað Samtals
Rekstrartekjur 1.541 498 2.260 1.167 702 427 279 6.874
Óskipt rekstrargjöld ( 4.470)
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta 2.404
Afskriftir ( 1.107)
Hrein fjármagnsgjöld ( 182)
Skattar ( 228)
Hagnaður tímabilsins 887
Fjárfestingar ( 1.182)
Óskiptar eignir 31.3.2018 60.554
Óskiptar skuldir 31.3.2018 23.380

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 31. mars 2019

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

5. Sala 2019 2018
Seld þjónusta og vörur greinast þannig: 1.1.-31.3. 1.1.-31.3.
Sala á þjónustu 5.846 6.036
Vörusala upplýsingatækni og fjarskipta 927 720
6.773 6.756

Enginn einstakur viðskiptavinur er með meira en 10% af sölu félagsins.

6. Kostnaðarverð sölu

Kostnaðarverð sölu greinist þannig:

Laun og launatengd gjöld 870 865
Kostnaðarverð seldrar þjónustu 873 887
Samtengijöld 169 198
Kostnaðarverð seldra vara 820 607
Eignfærð vinna ( 218) ( 191)
Afskriftir 911 936
3.425 3.302

Kostnaðarverð seldrar þjónustu samanstendur af; efnis kostnaði, þjónustusamningum, leyfis gjöldum, aðkeyptri þjónustu og fjarskiptakostnaði.

7. Rekstrarkostnaður

Rekstrarkostnaður greinist þannig:

Laun og launatengd gjöld 1.187 1.144
Markaðs- og sölukostnaður 131 130
Húsnaðis- og bifreiðakostnaður 182 359
Tölvu- og hugbúnaðarkostnaður 231 257
Skrifstofu- og stjórnunarkostnaður 348 214
Afskriftir 351 171
2.430 2.275

8. Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld

Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld greinast þannig:

Fjármunatekjur
Vaxtatekjur af bankainnistæðum og kröfum 46 50
Fenginn arður og söluhagnaður af eignarhlutum 4 2
50 52
Fjármagnsgjöld
Vaxtagjöld ( 231) ( 237)
Vaxtagjöld vegna leiguskuldbindinga ( 69) 0
Önnur fjármagnsgjöld ( 56) ( 4)
( 356) ( 241)
Gengismunur ( 7) 7
Hrein fjármagnsgjöld ( 313) ( 182)

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 31. mars 2019
Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

9. Aðrar eignir 31.3.2019 31.12.2018
Aðrar eignir greinast þannig:
Fjárfesting í öðrum félögum 47 46
Sjónvarpsefni til sýningar 100 149
Fyrirframgreiddur kostnaður 121 15
Langtímakröfur 195 214
Aðrar eignir samtals 463 424
10. Birgðir
Birgðir greinast þannig:
Vörur til endursölu og rekstrarvörubirgðir 1.263 1.333
Sjónvarpsefni til sýningar 399 104
Birgðir samtals 1.662 1.437
11. Viðskiptakröfur
Viðskiptakröfur greinast þannig:
Viðskiptakröfur 3.682 4.508
Niðurfærsla viðskiptakrafna ( 189) ( 195)
Viðskiptakröfur samtals 3.493 4.313
12. Aðrar skammtímakröfur
Aðrar skammtímakröfur greinast þannig:
Fyrirframgreiddur kostnaður 1.840 767
Aðrar skammtímakröfur 128 115
Aðrar skammtímakröfur samtals 1.968 882
13. Tekjuskattsskuldbinding
Hreyfingar á reiknaðri tekjuskattsskuldbindingu greinast á eftirfarandi hátt:
Reiknuð tekjuskattsskuldbinding í ársbyrjun 898 817
Tekjuskattur tímabilsins 174 825
Skattar til greiðslu á næsta ári ( 233) ( 744)
Tekjuskattsskuldbinding samtals 839 898
14. Aðrar skammtímaskuldir
Aðrar skammtímaskuldir greinast þannig:
Áfallinn kostnaður 992 836
Ögreidd laun og launatengd gjöld 627 330
Ögreiddur virðisaukaskattur 709 562
Aðrar skammtímaskuldir 13 12
Aðrar skammtímaskuldir samtals 2.341 1.740

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 31. mars 2019

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

15. Óvissa

Félagið stendur í málarekstri vegna mála sem snúa að tülkunum á fjarskipta, fjölmiðla- og samkeppnislögum. Sýn hf. (Vodafone) hefur stefnt félaginu til greiðslu skaðabóta vegna meints ólögmæts verðþrýstings. Nemur stefnufjárhæð í málinu riflega níu hundruð milljónum króna. Inter, sem eru samtök aðila er veita internetþjónustu, sendu Símanum kröfu árið 2015 og kröfðust skaðabóta að fjárhæð allt að þremur milljörðum króna vegna meintra brota á samkeppnislögum. Þrjú félög innan samtakanna óskuðu eftir dómkvaðningu matsmanna og sendu í kjólfarið breyttar kröfur sem nema rúmlega 300 milljónum króna. Einnig hafa félögin höfðað viðurkenningarmál gegin Símanum þar sem krafist er viðurkenningar á skaðabótaskyldu. TSC ehf. höfðaði mál gegin Símanum til greiðslu skaðabóta vegna meintra brota á ákvörðun samkeppnisráðs nr. 10/2015. Nam stefnufjárhæðin rúmlega hundrað milljónum króna, auk kostnaðar og vaxta. Héraðsdómur komast að þeirri niðurstöðu að Símanum bæri að greiða 50 milljónir króna auk kostnaðar, vaxta og dráttarvaxta. Félagið hefur hafnað málatilbúnaði gagnaðila í öllum málunum og gagnstefnt Vodafone. Í máli Vodafone gegin Símanum og gagnstefnu Símans gegin Vodafone sýknaði Héraðsdómur Reykjavíkur bæði félög af kröfum hvors annars en málinu hefur verið áfrýjað til Landsréttar. Síminn hefur einnig áfrýjað dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli TSC ehf. gegin Símanum til Landsréttar.

Síminn og Vodafone hafa átt í ágreiningi í tengslum við dreifingu á sjónvarpsefni. Póst- og fjarskiptastofnun komst að þeirri niðurstöðu að Síminn hefði farið gegin fjölmiðlalögum sbr. ákvörðun PFS nr. 10/2018. Lagði stofnun á sekt að fjárhæð 9 milljónir króna sem félagið hefur þegar greitt. Síminn telur háttsemi félagsins sé í fullu samræmi við ákvæði fjölmiðlalaga og hefur höfðað mál til ógildingar ákvörðunar Póst- og fjarskiptastofnunar. Í kjólfarið sendi Vodafone kröfu til Símans um greiðslu skaðabóta að fjárhæð 1,9 milljarðar króna. Síminn hafnaði kröfunni og benti á að það mætti hvorki ráða af erindi Vodafone að skilyrði skaðabótaskyldu væri fyrir hendi né heldur væri gerð tilraun til að færa sönnur á ætlað tjón Vodafone. Að mati Símans er um tilhæfulausa kröfu að ræða. Þá hefur Gagnaveita Reykjavíkur sent Símanum kröfu um greiðslu að fjárhæð 1,3 milljarða króna. Síminn hafnaði kröfunni og benti á að það mætti ekki ráða af erindi Gagnaveitunnar að skilyrði skaðabótaskyldu væri fyrir hendi. Að mati Símans er um tilhæfulausa kröfu að ræða.

Í desember 2015 samþykkti Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu kröfu félagsins um að lagt yrði lögbann á Vodafone vegna dreifingar á mynddefni með ólínulegum hætti. Félagið höfðaði í kjólfarið staðfestingarmál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur en dómurinn samþykkti kröfu Símans þann 28. apríl 2018. Vodafone áfrýjaði málinu til Hæstaréttar en með dómi dags. 18. október 2018 staðfesti Hæstiréttur dóm Héraðsdóms. Í dómi Hæstaréttar kom fram að Síminn hefði sýnt nægilega fram á að fjárhagslegt tjón kunni að hafa hlotist af háttsemi Vodafone. Síminn stefndi Vodafone fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur vegna málsins og gert kröfu um greiðslu skaðabóta að fjárhæð 555 milljónir króna.

Þrátt fyrir að óvissa sé um niðurstöður þessara mála er það mat stjórnenda að ekki komi til verulegra fjárútláta vegna þeirra. Í þeim tilvikum sem talið er að félagið geti þurft að greiða bætur vegna málareksturs á hendur þess er sá kostnaður áætlaður af stjórnendum félagsins og færður í reikningsskil þess.

16. Atburðir eftir reikningsskiladag

Engir atburðir hafa átt sér stað eftir lok reikningsskiladags sem höfðu áhrif á árshlutareikninginn eða veita þarf upplýsingar um.

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 31. mars 2019

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Ársfjórðungsyfirlit

1 F 2018 2 F 2018 3 F 2018 4 F 2018 1 F 2019
Sala 6.756 6.921 6.828 7.420 6.773
Kostnaðarverð sól ( 3.302) ( 3.610) ( 3.371) ( 4.196) ( 3.425)
Framlegð 3.454 3.311 3.457 3.224 3.348
Aðrar rekstrartekjur 118 232 141 124 189
Rekstrarkostnaður ( 2.275) ( 2.280) ( 2.156) ( 2.443) ( 2.430)
Virðisrýrnun 0 0 0 ( 2.990) 0
Rekstrarhagnaður (tap) 1.297 1.263 1.442 ( 2.085) 1.107
Hrein fjármagnsgjöld ( 182) ( 190) ( 211) ( 205) ( 313)
Hagnaður (tap) fyrir tekjuskatt 1.115 1.073 1.231 ( 2.290) 794
Tekjuskattur ( 228) ( 220) ( 253) ( 146) ( 179)
Hagnaður (tap) tímabilsins 887 853 978 ( 2.436) 615
EBITDA* 2.404 2.386 2.607 2.124 2.369

*Endurgert, sjá nánar í skýringu 3.

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 31. mars 2019

Fjárhæðir eru í milljónum króna