AI assistant
Síminn — Interim / Quarterly Report 2019
Apr 30, 2019
2203_rns_2019-04-30_99e31420-be94-4e71-b18f-8f7ac050ab86.pdf
Interim / Quarterly Report
Open in viewerOpens in your device viewer
Síminn
- apríl 2019
Fréttatilkynning: Afkoma Símans hf. á 1F 2019
Tekjuvóxtur á fyrsta ársfjórðungi
- Samanburðarfjárhæðir á fyrsta ársfjórðungi 2018 hafa verið uppfærðar í samræmi við breytta meðhöndlun á sýningarrétti sjónvarpsefnis.
- Tekjur á fyrsta ársfjórðungi (1F) 2019 námu 6.962 milljónum króna samanborið við 6.874 milljónir króna á sama tímabili 2018 og hækka því um 88 milljónir króna eða 1,3%.
- Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði EBITDA nam 2.369 milljónum króna á 1F 2019 samanborið við 2.404 milljónir króna á sama tímabili 2018 og lækkar því um 35 milljónir króna eða 1,5% frá sama tímabili í fyrra. EBITDA hlutfallið er 34,0% fyrir fyrsta ársfjórðung 2019 en var 35,0% á sama tímabili 2018. Að teknu tilliti til breytinga vegna IFRS 16 þá nam EBITDA á 1F 2018 2.604 milljónum króna og EBITDA hlutfall 37,9%.
- Hagnaður á 1F 2019 nam 615 milljónum króna samanborið við 887 milljónir króna á sama tímabili 2018.
- Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta nam 2.062 milljónum króna á 1F 2019 en var 2.390 milljónir króna á sama tímabili 2018. Eftir vexti og skatta nam handbært fé frá rekstri 1.711 milljónum króna á 1F 2019 en 2.043 milljónum króna á sama tímabili 2018.
- Vaxtaberandi skuldir námu 16,5 milljörðum króna í lok 1F 2019 en voru 17,2 milljarðar króna í árslok 2018. Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 15,5 milljarðar króna í lok 1F 2019 samanborið við 16,0 milljarðar króna í árslok 2018.
- Hrein fjármagnsgjöld námu 313 milljónum króna á 1F 2019 en voru 182 milljónir króna á sama tímabili 2018. Fjármagnsgjöld námu 356 milljónum króna, fjármunatekjur voru 50 milljónir króna og gengistap var 7 milljónir króna.
- Eiginfjárhlutfall Símans hf. var 55,4% í lok 1F 2019 og eigið fé 35,8 milljarðar króna.
Orri Hauksson, forstjóri:
„Rekstur samstæðunnar byggir á traustum grunni á fyrsta ársfjórðungi 2019, eins og undanfarin misseri. Tekjur hafa aukist milli ára og mikilvægir tekjustraumar eins og sjónvarpsbjónusta verða enn sterkari þegar líður á árið.
Nokkrir atburðir setja mark sitt á fyrstu mánuði ársins. EBITDA hækkar bókhaldslega milli ára, en lækkar að þessu sinni milli ára þegar sömu reikningsskilaaðferðir eru notaðar á tölur fyrra árs. Hagnaður dregst einnig saman á fyrsta ársfjórðungi. Við gjaldfærðum varúðarfærslu upp
Síminn
á 100 milljón króna í fjórðungnum, að dráttarvöxtum meðtöldum, vegna dóms Héraðsdóms Reykjavíkur um mál sem átti sér stað á Snæfellsnesi á síðasta áratug. Við höfum áfrýjað þeirri upphæð, sem við teljum að eigi að vera umtalsvert lægri. Uppsagnarkostnaður eykst á milli ára, en starfsfólki Símans hf. fækkaði um 30 í fjórðungnum. Lokun búðar okkar í Kringlunni um síðustu mánaðarmót var þar stærsta einstaka breytingin, en auk þess heldur sjálfvirknivæðing og aukinn stöðugleiki kerfa okkar áfram að draga úr þörf fyrir mannfrekar vaktir í þjónustu og eftirliti. Tekjur af heildsölu og reiki eru rúmlega 200 milljónum króna lægri en á sama tímabili í fyrra, en sá munur verður hverfandi þegar líður á árið.
Stórum kjarasamningum á vinnumarkaði lauk með fremur raunsærri niðurstöðu, sem skiptir miklu fyrir samstæðuna, en launakostnaður er langstærsti einstaki kostnaðarliður okkar. Enn er ósamið við stóra hópa sem starfa innan okkar ráða, en við búumst ekki við fráviki frá þegar frágengnum samningum. Eins og þekkt er hefur rekstrarstöðvun WOW Air neikvæð áhrif á hagkerfið og þar með rekstur samstæðunnar, en flugfélagið var í viðskiptum við Símann. Í samhengi við aðrar breytingar í rekstri eru áhrifin þó afmörkuð og hafa ekki áhrif á spá ársins.
Sensa átti sterkan fjórðung og jók tekjur sínar milli ára, en tekjur Sensa sveiflast meira milli fjórðunga en annarra eininga samstæðunnar. Míla átti stöðugan og góðan fjórðung sem endranær. Við fjárfestum áfram í ljósleiðaravæðingu Mílu en ljósheimtaugar fyrirtækisins ná nú til meira en helmings heimila landsins. Starfsemi okkar almennt krefst auk þess stöðugra uppfærslna kerfa okkar, svo sem í farsíma og upplýsingatækni. Þá reikningsfærist stór hluti aðkeypts sjónvarpsefnis nú í fyrsta sinn sem fjárfestingar, sem afskrifast með notkun yfir tíma. Áður kostnaðarfæriist þessi líður úr birgðum og sýnir þessi nýja bókhaldsaðferð því hærri fjárfestingar milli ár.
Barist er af mikilli hörku á þeim mörkuðum sem Síminn keppir. Fyrirtækjamarkaður hefur verið líflegur, sérstaklega hafa verð í farsíma lækkað undanfarin ár. Slíkar lækkanir héldu áfram í fyrra og þess sér stað í tölum fyrsta ársfjórðungs í ár. Á einstaklingsmarkaði hafa vissar vörur lækkað í verði, svo sem internet síðastliðið haust. Hins vegar hefur markvisst verið unnið að því að bæta innihald þjónustu, svo sem í sjónvarpi, og hafa verið verðhækkanir samhliða þeim breytingum. Viðskiptavinum okkar í farsíma fjölgar um 10.500 milli ára, að stærstum hluta vegna vinsælda þrennunnar. Heimilispökkum fjölgar um 5.400 milli ára og prýðisgangur er í sjónvarpi. Við munum styrkja þann tekjustraum enn frekar frá og með þriðja ársfjórðungi, þegar enski boltinn verður tekinn til sýninga hjá Símanum, en sú vara mun styrkja vöruframboð okkar með markverðum hætti. Sígandi lukka lýsir árinu best."
Síminn
Helstu niðurstöður í rekstri 1F 2019
Rekstur
| 1F 2019 | 1F 2018 | Breyting | Breyting % | |
|---|---|---|---|---|
| Rekstrartekjur | 6.773 | 6.756 | 17 | 0,3% |
| Kostnaðarverð sölu | (3.425) | (3.302) | (123) | 3,7% |
| Framlegð | 3.348 | 3.454 | (106) | -3,1% |
| Hlutfall af rekstrartekjum | 49,4% | 51,1% | ||
| Aðrar rekstrartekjur | 189 | 118 | 71 | 60,2% |
| Rekstrarkostnaður | (2.430) | (2.275) | (155) | 6,8% |
| Virðisrýrnun | 0 | 0 | 0 | - |
| Rekstrarhagnaður | 1.107 | 1.297 | (190) | -14,6% |
| Hlutfall af rekstrartekjum | 16,3% | 19,2% | ||
| Fjármunatekjur | 50 | 52 | (2) | -3,8% |
| Fjármagnsgjöld | (356) | (241) | (115) | 47,7% |
| Gengismunur | (7) | 7 | (14) | |
| Hrein fjármagnsgjöld | (313) | (182) | (131) | 72,0% |
| Tekjuskattur | (179) | (228) | 49 | -21,5% |
| Hagnaður | 615 | 887 | (272) | |
| Afskriftir | (1.262) | (1.107) | (155) | |
| EBITDA* | 2.369 | 2.404 | (35) | -1,5% |
| Hlutfall | 34,0% | 35,0% | ||
| EBIT | 1.107 | 1.297 | (190) | |
| Hlutfall | 15,9% | 18,9% |
- Endurgert m.v. breytta framsetningu á sýningarrétti sjónvarpsefnis
Sala á 1F 2019 nam 6.962 milljónum króna samanborið við 6.874 milljónir króna á sama tímabili árið 2018, sem er 1,3% vöxtur milli ára. Tekjur af farsíma námu 1.357 milljónum króna og lækkuðu um 184 milljónir króna eða 11,9% á milli tímabila, þar af nemur lækkun vegna heildsölu og reikiþjónustu 125 milljónum króna. Tekjur af gagnaflutningi námu 2.135 milljónum króna og lækkuðu um 125 milljónir króna eða 5,5% á milli tímabila. Tekjur af sjónvarpsbjónustu námu 1.331 milljón króna og hækkuðu um 164 milljónir króna eða 14,1% á milli tímabila. Tekjur af upplýsingatækni námu 951 milljón króna og hækkuðu um 249 milljónir króna eða 35,5% á milli tímabila. Tekjur af vörusölu voru 425 milljónir króna og eru nær óbreyttar milli tímabila.
Framlegð á 1F 2019 nam 3.348 milljónum króna og lækkaði um 106 milljónir króna eða 3,1% frá sama tímabili árið 2018. Rekstrarkostnaður nam 2.430 milljónum króna og hækkaði um 155 milljónir króna eða 6,8% frá sama tímabili árið 2018.
Rekstrarhagnaður félagsins fyrir afskriftir og fjármagnsliði EBITDA var 2.369 milljónir króna á 1F 2019 en var 2.404 milljónir króna á sama tímabili árið 2018 og lækkaði því um 35 milljónir króna milli tímabila eða um 1,5%. EBITDA hlutfallið er 34,0% en var 35,0% á sama tímabili árið 2018. Að teknu tilliti til breytinga vegna IFRS 16 þá nam EBITDA á 1F 2018 2.604 milljónum króna og EBITDA hlutfall var 37,9%.
Síminn
Afskriftir félagsins námu 1.262 milljónum króna á 1F 2019 samanborið við 1.107 milljónir króna á sama tímabili árið 2018 og hækka um 328 milljónir króna milli tímabila. Að teknu tilliti til breytinga vegna IFRS 16 þá eru afskriftir á 1F 2018 1.270 milljónir króna.
Hrein fjármagnsgjöld voru 313 milljónir króna á 1F 2019 og hækkuðu um 131 milljón króna á milli tímabila. Þar af eru áætlaðar 50 milljónir króna vegna dóms Héraðsdóms Reykjavíkur í svokölluðu TSC máli. Gjaldfærð varúðarfærsla vegna málsins nemur samtals 100 milljónum króna.
Hagnaður tímabilsins nam 615 milljónum króna samanborið við 887 milljónir króna á sama tímabili árið 2018.
Sjóðstreymi
Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta var 2.062 milljónir króna á 1F 2019 samanborið við 2.390 milljónir króna á sama tímabili árið 2018. Eftir vexti og skatta nam handbært fé frá rekstri 1.711 milljón króna á 1F 2019 samanborið við 2.043 milljónir króna á sama tímabili árið 2018.
Fjárfestingarhreyfingar voru 1.147 milljónir króna á 1F 2019 samanborið við 1.154 milljónir króna á sama tímabili árið 2018.

Efnahagur
Heildareignir félagsins námu 64.603 milljónum króna í lok 1F 2019 en voru 58.834 milljónir króna í lok árs 2018.
Vaxtaberandi skuldir voru 16.483 milljónir króna í lok 1F 2019 samanborið við 17.231 milljón króna í lok árs 2018. Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 15.517 milljónir króna í lok fyrsta ársfjórðungs og lækkuðu um 468 milljónir króna frá árslokum 2018.
| 31.3.2019 | 31.12.2018* | |
|---|---|---|
| Fastafjármunir | 56.514 | 50.956 |
| Veltufjármunir | 8.089 | 7.878 |
| Eignir alls | 64.603 | 58.834 |
| Eigið fé | 35.817 | 35.202 |
| Langtímaskuldir | 21.654 | 16.529 |
| Skammtímaskuldir | 7.132 | 7.103 |
| Skuldir og eigið fé alls | 64.603 | 58.834 |
| Eiginfjárhlutfall | 55,4% | 59,8% |
*Endurgert m.v. breytta framsetningu á sýningarrétti sjónvarpsefnis
Eigið fé félagsins nam 35.817 milljónum króna í lok fyrsta ársfjórðungs og eiginfjárhlutfall félagsins var 55,4%.
Síminn
Helstu atburðir á 1F 2019
- Vinsældir Sjónvarps Símans Premium halda áfram. Um 40.000 heimili hafa aðgang að efnisveitu Símans og áhorf hefur aldrei verið meira, þök sé vönduðu innlendu og erlendu efni.
- Enska úrvalsdeildin hjá Símanum. Undirbúningur fyrir ensku úrvalsdeildina er í fullum gangi. Meðal nýjunga má nefna að 30 leikir verða í opinni dagskrá og í fyrsta sinn á Íslandi verður bein útsending á 80 leikjum í 4K gæðum.
- Vélrænt nám og áhorfsgögn. Síminn er að þróa nýja nálgun í áhorfsmælingum sem byggir á raungögnum og með aðstoð gervigreindar er hægt að spá fyrir með nákvæmari hætti en áður um mögulegt áhorf.
- Jafnréttisvísir. Starfsfólk Símans hefur kafað djúpt ofan í jafnréttismál innan Símans og sett hafa verið mælanleg markmið sem stjórnendur og fyrirtækið munu fylgja eftir. Tilgangurinn er skoða jafnréttismál frá öllum hliðum og enn nánar en t.d. jafnlaunavottun gerir kröfu um.
- Verslun Símans í Kringlunni lokað. Heimsóknum í verslunina hefur fækkað á síðustu árum þrátt fyrir fjölgun viðskiptavina og viðskiptavinir þjónusta sig í auknum mæli sjálfir á netinu. Ásamt því hafa kaup á vörum aukist umtalsvert í vefverslun Símans en á næstu vikum verður vefverslunin endurbætt til muna.
- Þétting farsímakerfis. Dreifikerfi Símans var eftt sérstaklega á Norðurlandi og Snæfellsnesi með uppsetningu á öflugum 4G sendum frá Ericsson. Haldið verður áfram þéttingu á farsímakerfinu með uppsetningu langdrægari senda sem ná bæði yfir land og sjó.
Horfur
Spá fyrir árið 2019 er óbreytt og gerir ráð fyrir að EBITDA félagsins verði á bilinu 10,2 til 10,7 milljarðar króna. Áætlað er að fjárfestingar verði á bilinu 6,0 til 6,4 milljarðar króna.
Kynningarfundur 2. maí 2019
Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn fimmtudaginn 2. maí kl. 8:30 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík.
Á fundinum munu Orri Hauksson forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum.
Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á heimasíðu Símans
www.siminn.is/forsida/siminn/fjarfestar/fjarhagsupplysingar/uppgjor
og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.
Hægt er að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu á vefslóðinni:
https://livestream.com/accounts/11153656/events/8642811/player
Síminn
Fjárhagsdagatal 2019
- Afkoma 2F 2019 27. ágúst 2019
- Afkoma 3F 2019 29. október 2019
- Ársuppgjör 2019 25. febrúar 2020
- Aðalfundur 2020 19. mars 2020
Nánari upplýsingar um uppgjörið veita:
Orri Hauksson, forstjóri Símans, s. 550 6003 ([email protected])
Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans, s. 550 6003 ([email protected])
Síminn hf.
Síminn á og rekur fyrirtækin Símann, Mílu, Sensa, Farsímagreiðslur og Radíómiðun. Síminn er stærsta fjarskiptafyrirtæki landsins og veitir viðskiptavinum, bæði einstaklíngum og fyrirtækjum, heildstætt vöruframboð á sviði fjarskipta, afþreyingar og upplýsingatækni.