Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Síminn Interim / Quarterly Report 2019

Aug 27, 2019

2203_rns_2019-08-27_33ad8a9b-349e-472c-9507-09d8e1017d02.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

{# SEO P0-1: filing HTML is rendered server-side so Googlebot sees the full text without executing JS or following an iframe to a Disallow'd CDN path. The content has already been sanitized through filings.seo.sanitize_filing_html. #}

Síminn

  1. ágúst 2019

Fréttatilkynning: Afkoma Símans hf. á 2F 2019

Stöðugur rekstur og framtíðarhorfur góðar

Samanburðarfjárhæðir á öðrum ársfjörðungi 2018 hafa verið uppfærðar í samræmi við breytta meðhöndlun á sýningarrétti sjónvarpsefnis.

  • Tekjur á öðrum ársfjörðungi (2F) 2019 námu 7.115 milljónum króna samanborið við 7.153 milljónir króna á sama tímabili 2018 og lækka um 0,5% milli tímabila.
  • Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði EBITDA nam 2.602 milljónum króna á 2F 2019 samanborið við 2.386 milljónir króna á sama tímabili 2018 og hækkar því um 216 milljónir króna eða 9,1% frá sama tímabili í fyrra. EBITDA hlutfallið er 36,6% fyrir annan ársfjörðung 2019 en var 33,4% á sama tímabili 2018. Að teknu tilliti til breytinga vegna IFRS 16 þá nam EBITDA á 2F 2018 2.581 milljón króna og EBITDA hlutfall var 36,1%.
  • Hagnaður á 2F 2019 nam 798 milljónum króna samanborið við 853 milljónir króna á sama tímabili 2018.
  • Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta nam 2.087 milljónum króna á 2F 2019 en var 2.438 milljónir króna á sama tímabili 2018. Eftir vexti og skatta nam handbært fé frá rekstri 1.735 milljónum króna á 2F 2019 en 2.088 milljónum króna á sama tímabili 2018.
  • Vaxtaberandi skuldir námu 16,5 milljörðum króna í lok 2F 2019 en voru 17,2 milljarðar króna í árslok 2018. Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 16,0 milljarðar króna í lok 2F 2019 og eru óbreyttar frá árslokum 2018.
  • Hrein fjármagnsgjöld námu 269 milljónum króna á 2F 2019 en voru 190 milljónir króna á sama tímabili 2018. Fjármagnsgjöld námu 301 milljónum króna, fjármunatekjur voru 46 milljónir króna og gengistap var 14 milljónir króna.
  • Eiginfjárhlutfall Símans hf. var 56,3% í lok 2F 2019 og eigið fé 36,3 milljarðar króna.

Orri Hauksson, forstjóri:

„Við erum sátt við uppgjórið og þann stöðuga og fyrirsjáanlega rekstur sem þar gefur að líta. EBITDA eykst miðað við sama fjörðung í fyrra auk þess sem myndarleg aukning er í EBITDA frá fyrsta fjörðungi þessa árs, en sá fjörðungur var undir væntingum af ýmsum sökum. Launahækkanir kjarasamninganna komu til framkvæmda við upphaf annars ársfjörðungs og því er mikilvægt að launakostnaður samstæðunnar er lægri á þessum fjörðungi í ár en á sama tímabili í fyrra. Áframhaldandi aðgerðir til að draga úr kostnaði, eins og þær sem var ráðist í við upphaf þessa árs, eru lykilþáttur í að ná fram slíkum sparnaði.


Síminn

Sala á farsímatækjum dregst saman milli ára sem er í takti við þróun erlendis, neytendur kjósa að eiga símtækin sín lengur en áður. Framlegð af tækjasölu er lág og því hefur þessi þróun lítil áhrif á afkomu samstæðunnar. Tekjur af farsímabjónustu skipta okkur langtum meira máli en tækjasala, en þær lækka áfram milli ára. Lykilatriði þar er að lækkunin nú er að mestu bundin við heildsölu og reiki, en ekki kjarnarekstur Símans sem er smásala til viðskiptavina á Íslandi. Viðskiptavinum fjölgar, til dæmis er þjónustuleiðin þrenna í örum vexti, sem gefur góð fyrirheit fyrir næstu misseri. Ekki er lengur stöðugt verðfall á farsímamarkaði, eins og verið hefur mörg undanfarin ár, en samkeppni er þó áfram hörð, sérstaklega á fyrirtækjamarkaðinum.

Tekjuvöxtur var í upplýsingatækni á fjórðungnum þrátt fyrir þyngra rekstrarumhverfi en fyrr. Enn virðast fyrirtæki fara varlega í að stofna til nýrra verkefna – til dæmis í upplýsingatækni – og samkeppni tæknifyrirtækja um einstaka fyrirtækjasamninga er hörð. Árangur annars ársfjórðungs hjá Sensa er því ánægjulegur, en hefur ekki forspárgildi um tiltekna fjórðunga haustsins og vetrarins. Auk fastra langtímaverkefna Sensa eru ýmis spennandi verkefni í burðarliðnum hjá félaginu.

Fjárfestingar í innviðum hafa gengið vel á þessu ári og í lok þessa árs verður Míla búin að leggja ljósleiðara til um 80 þúsund heimila á landinu. Framkvæmdir þessar eru fjárfrekar á meðan á þeim stendur, kostnaður á hvert heimili er lágur og innviðirnir munu vara til áratuga. Símasamstæðan lagði sinn fyrsta ljósleiðara árið 1986 og sá er ennþá í notkun.

Tekjur af sjónvarpsþjónustu eru á góðri siglingu. Breytingar í fyrrahaust á verði, til hækkunar í sjónvarpsþjónustu og til lækkunar á internet þjónustu, skekkja samanburðinn á þessum tilteknu vörum milli ára. Keppikefli okkar er að fjölga viðskiptavinum í Sjónvarpi Símans Premium og í Heimilipakka, en hvort tveggja tókst sem nemur nokkrum þúsundum heimila milli ára. Nú þegar enski boltinn er orðinn hluti af Sjónvarpi Símans Premium vonumst við til að sú vara styrkist enn frekar í sessi.

Auk þess er Síminn Sport vara sem seld er stök á lágu verði yfir öll sjónvarpskerfi í landinu. Enska úrvalsdeildin hófst fyrr í þessum mánuði og er uppsöfnuð sala á Síminn Sport og Premium nú umfram þær væntingar sem við höfðum á þessum tímapunkti, en enski boltinn fellur vel að vöruframboði félagsins á fjölbreytilegan hátt. Verði á Síminn Sport og Premium var meðvitað stillt í hóf, meðal annars til að draga úr freistingu til ólöglegs streymis. Við erum ekki komin á leiðarenda og þurfum að halda áfram og selja fleiri heimilum aðgang, en nú er yfir þriðjungur heimila landsins með löglegt aðgengi að ensku úrvalsdeildinni á langtum hagstæðara verði en áður.

Við lítum bjartsýn til vetrarins."


Síminn

Helstu niðurstöður í rekstri á fyrstu sex mánuðum 2019

Rekstur

1H 2019 1H 2018 Breyting Breyting %
Rekstrartekjur 13.581 13.677 (96) -0,7%
Kostnaðarverð sölu (7.016) (6.912) (104) 1,5%
Framlegð 6.565 6.765 (200) -3,0%
Hlutfall af rekstrartekjum 48,3% 49,5%
Aðrar rekstrartekjur 496 350 146 41,7%
Rekstrarkostnaður (4.676) (4.555) (121) 2,7%
Virðisrýrnun 0 0 0 -
Rekstrarhagnaður 2.385 2.560 (175) -6,8%
Hlutfall af rekstrartekjum 17,6% 18,7%
Fjármunatekjur 96 104 (8) -7,7%
Fjármagnsgjöld (657) (481) (176) 36,6%
Gengismunur (21) 5 (26)
Hrein fjármagnsgjöld (582) (372) (210) 56,5%
Tekjuskattur (390) (448) 58 -12,9%
Hagnaður 1.413 1.740 (327)
Afskriftir (2.586) (2.230) (356)
EBITDA* 4.971 4.790 181 3,8%
Hlutfall 35,3% 34,1%
EBIT 2.385 2.560 (175)
Hlutfall 16,9% 18,3%
  • Endurgert m.v. breytta framsetningu á sýningarrétti sjónvarpsefnis

Sala á 1H 2019 nam 14.077 milljónum króna samanborið við 14.027 milljónir króna á sama tímabili árið 2018, sem er 0,4% vöxtur milli ára. Tekjur af farsíma námu 2.785 milljónum króna og lækkuðu um 253 milljónir króna eða 8,3% á milli tímabila, þar af nemur lækkuð vegna heildsölu og reikiþjónustu 207 milljónum króna. Tekjur af talsíma náum 924 milljónum króna og lækkuðu um 3,9%. Tekjur af gagnaflutningi námu 4.278 milljónum króna og lækkuðu um 346 milljónir króna eða 7,5% á milli tímabila. Tekjur af sjónvarpsþjónustu námu 2.631 milljón króna og hækkuðu um 322 milljónir króna eða 13,9% á milli tímabila. Tekjur af upplýsingatækni námu 1.872 milljón króna og hækkuðu um 290 milljónir króna eða 18,3% á milli tímabila. Tekjur af vörusölu voru 865 milljónir króna og lækka um 111 milljónir króna milli tímabila.

Framlegð á 1H 2019 nam 6.565 milljónum króna og lækkaði um 200 milljónir króna eða 3,0% frá sama tímabili árið 2018. Rekstrarkostnaður nam 4.676 milljónum króna og hækkaði um 121 milljónir króna eða 2,7% frá sama tímabili árið 2018.

Rekstrarhagnaður félagsins fyrir afskriftir og fjármagnsliði EBITDA var 4.971 milljónir króna á 1H 2019 en var 4.790 milljónir króna á sama tímabili árið 2018 og hækkaði því um 181 milljónir króna milli tímabila eða um 3,8%. EBITDA hlutfallið er 35,3% en var 34,1% á sama tímabili árið 2018. Að teknu tilliti til breytinga vegna IFRS 16 þá nam EBITDA á 1H 2018 5.186 milljónum króna og EBITDA hlutfall var 37,0%.


Síminn

Afskriftir félagsins námu 2.586 milljónum króna á 1H 2019 samanborið við 2.230 milljónir króna á sama tímabili árið 2018 og hækka um 356 milljónir króna milli tímabila. Að teknu tilliti til breytinga vegna IFRS 16 þá eru afskriftir á 1H 2018 2.555 milljónir króna.

Hrein fjármagnsgjöld voru 582 milljónir króna á 1H 2019 og hækkuðu um 210 milljón króna á milli tímabila. Þar af eru áætlaðar 50 milljónir króna vegna dóms Héraðsdóms Reykjavíkur í svokölluðu TSC máli. Gjaldfærð varúðarfærsla vegna málsins nemur samtals 100 milljónum króna og var færð á 1F 2019.

Hagnaður tímabilsins nam 1.413 milljónum króna samanborið við 1.740 milljónir króna á sama tímabili árið 2018.

Sjóðstreymi

Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta var 4.149 milljónir króna á 1H 2019 samanborið við 4.828 milljónir króna á sama tímabili árið 2018. Eftir vexti og skatta nam handbært fé frá rekstri 3.446 milljón króna á 1H 2019 samanborið við 3.131 milljónir króna á sama tímabili árið 2018.

Fjárfestingarhreyfingar voru 2.869 milljónir króna á 1H 2019 samanborið við 2.606 milljónir króna á sama tímabili árið 2018.

img-0.jpeg

Efnahagur

Heildareignir félagsins námu 64.475 milljónum króna í lok 1H 2019 en voru 58.834 milljónir króna í lok árs 2018.

Vaxtaberandi skuldir voru 16.473 milljónir króna í lok 1H 2019 samanborið við 17.231 milljón króna í lok árs 2018. Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 15.963 milljónir króna í lok 1H og lækkuðu um 22 milljónir króna frá árslokum 2018. Hlutfall hreinna vaxtaberandi skulda á móti EBITDA síðastliðinna tólf mánaða var 1,65. Markmið félagsins er að hlutfallið sé á bilinu 1,5 til 2,5.

Eigið fé félagsins nam 36.285 milljónum króna í lok 1H og eiginfjárhlutfall félagsins var 56,3%.

30.6.2019 31.12.2018
Fastafjármunir 56.953 50.956
Veltufjármunir 7.522 7.878
Eignir alls 64.475 58.834
Eigið fé 36.285 35.202
Langtimaskuldir 20.732 16.529
Skammtímaskuldir 7.458 7.103
Skuldir og eigið fé alls 64.475 58.834
Eiginfjárhlutfall 56,3% 59,8%

Helstu atburðir á 2F 2019

  • Fjöldi starfsmanna vann ötullega að undirbúningi Enska boltans sem nú er hjá Símanum. Um er að ræða mörg verkefni, stór og smá sem öll hafa smollið saman á þriðja ársfjörðungi svo að Síminn Sport geti synt og sagt frá ensku úrvalsdeildinni með sóma.
  • Farsímakerfi Símans fagnar 25 ára afmæli sínu en gangsetning kerfisins var 15. ágúst 1994. Þá var kerfið aðeins með 11 sendistaði sem voru á höfuðborgarsvæðinu, Reykjanesi og Akureyri. Í dag er kerfið landsdekkandi á landi og sjó, fjöldi senda nær þúsund ásamt því að eiginleikar kerfisins eru allt aðrir í dag þó þessar tækninýjungar

Síminn

byggi á sama grunni og áður. Gott samstarf við Ericsson ásamt reynslumiklum tæknimönnum Símans hefur gert allar uppfærslur og rekstur þægilegri en ella.

  • Síminn tilkynnti útfösun á PSTN talsímakerfinu sem gerð verður í skrefum á næsta ári. Kerfið sem byggir á þjónustu yfir koparstrengi hefur þjónað landsmönnum í yfir 35 ár og við tekur fjórða kynslóð talsímakerfa þar sem tal er flutt yfir IP net.
  • Efnisveita Símans, Sjónvarp Símans Premium heldur áfram stöðugum vexti. Viðskiptavinum fjölgar og áhorfsmet eru slegin í hverjum mánuði þökk sé fjölbreyttu úrvali efnis. Síminn smiðaði nytt umsjónarkerfi frá grunni til að halda utan um allt efni sem kemur inn frá birgjum. Kerfið vinnur efnið sjálfvirkt áfram fyrir streymi, línulega dagskrá og ólík tæki notenda. Kerfið eykur sjálfvirkni, minnkar villuhættu og færir Símanum nákvæmari áhorfsmælingar en áður.

Horfur

Spá fyrir árið 2019 er óbreytt og gerir ráð fyrir að EBITDA félagsins verði á bilinu 10,2 til 10,7 milljarðar króna. Áætlað er að fjárfestingar verði á bilinu 6,0 til 6,4 milljarðar króna.

Kynningarfundur 28. ágúst 2019

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn miðvikudaginn 28. ágúst kl. 8:30 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík.

Á fundinum munu Orri Hauksson forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum.

Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á heimasíðu Símans

www.siminn.is/forsida/siminn/fjarfestar/fjarhagsupplysingar/uppgjor

og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.

Hægt er að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu á vefslóðinni:

https://livestream.com/accounts/11153656/events/8776671/player

Fjárhagsdagatal 2019

  • Afkoma 3F 2019 29. október 2019
  • Ársuppgjör 2019 25. február 2020
  • Aðalfundur 2020 19. mars 2020

Nánari upplýsingar um uppgjórið veita:

Orri Hauksson, forstjóri Símans, s. 550 6003 ([email protected])

Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans, s. 550 6003 ([email protected])

Síminn hf.

Síminn á og rekur fyrirtækin Símann, Mílu, Sensa, Farsímagreiðslur og Radiómiðun. Síminn er stærsta fjarskiptafyrirtæki landsins og veitir viðskiptavinum, bæði einstaklingum og fyrirtækjum, heildstætt vöruframboð á sviði fjarskipta, afþreyingar og upplýsingatækni.