Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Síminn Interim / Quarterly Report 2019

Oct 29, 2019

2203_rns_2019-10-29_271a9eb2-e546-45a7-9a16-f812a90e71b8.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

{# SEO P0-1: filing HTML is rendered server-side so Googlebot sees the full text without executing JS or following an iframe to a Disallow'd CDN path. The content has already been sanitized through filings.seo.sanitize_filing_html. #}

Síminn

  1. október 2019

Fréttatilkynning: Afkoma Símans hf. á 3F 2019

Umfang sjónvarpsbjónustu fer stöðugt vaxandi

Samanburðarfjárhæðir á þriðja ársfjórðungi 2018 hafa verið uppfærðar í samræmi við breytta meðhöndlun á sýningarrétti sjónvarpsefnis.

  • Tekjur á þriðja ársfjórðungi (3F) 2019 námu 7.098 milljónum króna samanborið við 6.969 milljónir króna á sama tímabili 2018 og hækka um 1,9% milli tímabila.
  • Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði EBITDA nam 2.817 milljónum króna á 3F 2019 samanborið við 2.607 milljónir króna á sama tímabili 2018 og hækkar því um 210 milljónir króna eða 8,1% frá sama tímabili í fyrra. EBITDA hlutfallið er 39,7% fyrir þriðja ársfjórðung 2019 en var 37,4% á sama tímabili 2018. Að teknu tilliti til breytinga vegna IFRS 16 þá nam EBITDA á 3F 2018 2.802 milljón króna og EBITDA hlutfall var 40,2%.
  • Hagnaður á 3F 2019 nam 897 milljónum króna samanborið við 978 milljónir króna á sama tímabili 2018.
  • Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta nam 4.024 milljónum króna á 3F 2019 en var 2.515 milljónir króna á sama tímabili 2018. Eftir vexti og skatta nam handbært fé frá rekstri 3.590 milljónum króna á 3F 2019 en 2.266 milljónum króna á sama tímabili 2018.
  • Vaxtaberandi skuldir námu 16,1 milljörðum króna í lok 3F 2019 en voru 17,2 milljarðar króna í árslok 2018. Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 15,6 milljarðar króna í lok 3F 2019 en voru 16,0 milljarðar króna í árslok 2018.
  • Hrein fjármagnsgjöld námu 232 milljónum króna á 3F 2019 en voru 211 milljónir króna á sama tímabili 2018 þar af eru áhrif af breytingum vegna IFRS 16 67 milljónir króna á 3F 2019. Fjármagnsgjöld námu 296 milljónum króna, fjármunatekjur voru 55 milljónir króna og gengishagnaður var 9 milljónir króna.
  • Eiginfjárhlutfall Símans hf. var 55,4% í lok 3F 2019 og eigið fé 36,3 milljarðar króna.

Orri Hauksson, forstjóri:

„Við erum sátt við rekstur samstæðunnar á þriðja ársfjórðungi. Ófyrirséðir atburðir voru fáir og EBITDA framlegð eykst lítillega milli ára. Fjarskiptarekstur Símans og Mílu er á sínum vænta gangi á síðari hluta þessa árs, helstu breytingum á reiki og heildsölu er nú lokið. Meðalverð þokast upp á einstaklingsmarkaði, eftir margra ára tímabil skarpra lækkana. Enn sér þó ekki fyrir endann á verðþrýstingi á fyrirlækjamarkaði. Sala á skýjaþjónustu hefur aukist hratt á árinu og er Sensa í stórum verkefnum er snúa að skýjavæðingu. Þetta hefur áhrif til framlegðarlækkunar á þeirri þjónustu sem færist upp í skýið. Fyrirtæki eru í auknum mæli að nýta sér


Síminn

skýjabjónustu og er mikil og aukin eftirspurn eftir sérfraeðiaðstoð og lausnum sem tengjast þeirri vegferð og er Sensa að styrkja sig enn frekar á þeim vettvangi.

Góður tekjuvöxtur er í sjónvarpsrekstri milli ára. Síminn Sport hefur notið velgengni umfram væntingar frá því varan fór í loftið á miðjum þriðja fjörðungi. Vel hefur til dæmis gengið að semja um dreifingu vörunnar yfir öll fjarskipta- og sjónvarpsdreifikerfi landsins. Nær enska úrvalsdeildin til allra landsmanna og við sjáum áhugann fara vaxandi, með þeirri vönduðu og sérlega hagstæðu þjónustu sem Síminn Sport er. Við höfum því áfram góðar væntingar til vörunnar næstu mánuði.

Þá hefur Síminn reynt að semja um aldreifingu fyrir Sjónvarp Símans Premium, helstu sjónvarpsvöru okkar, en ekki gengið sem skyldi fram að þessu. Ástæðan er mótstaða Sýnar gegn því að selja aðgang að dreifikerfum í sinni umsjá fyrir Sjónvarp Símans Premium, sem er sú íslenska efnisveita sem langmest er notuð. Síminn verður þannig af möguleikum til aukinnar tekjusköpunar samhliða því að IPTV viðskiptavinir Sýnar hafa ekki möguleika á að kaupa Sjónvarp Símans Premium. Þessi skekkja mun vonandi leiðréttast á næsta ári.

Kostnaðaraðhald er og verður áfram í forgrunni í rekstri Símans. Milli ára fækkar stöðugildum um 40 og má búast við svipaðri breytingu á nýjan leik fram til næsta hausts. Fjárfestingar samstæðunnar hafa verið háar á þessu ári, eins og fyrir hefur legið. Hröð ljósleiðaravæðing Milu skýrir stærsta hluta fjárfestinganna, sem eru langtímafjárfestingar sem efla verðgildi innviða í eigu samstæðunnar verulega á komandi árum og áratugum. Einnig ýtir breytt meðhöndlun sjónvarpsréta fjárfestingatölum upp. Markvisst er einnig fjárfest í tæknirekstri Símans og slíkar uppfærslur tækniinnviða munu halda sér til lengri tíma.

Fjárfestingar samstæðunnar í heild munu fara lækkandi á næstu misserum frá því sem nú er. Stafar sú lækkun fyrst og fremst af því hve langt ljósleiðaraverkefnið er komið. Lækkun fjárfestinga nemur í heild nokkur hundruðum milljónum milli ára á næsta ári."


Síminn

Helstu niðurstöður í rekstri á fyrstu níu mánuðum 2019

Rekstur

9M 2019 9M 2018 Breyting Breyting %
Rekstrartekjur 20.539 20.505 34 0,2%
Kostnaðarverð sölu (10.539) (10.283) (256) 2,5%
Framlegð 10.000 10.222 (222) -2,2%
Hlutfall af rekstrartekjum 48,7% 49,9%
Aðrar rekstrartekjur 636 491 145 29,5%
Rekstrarkostnaður (6.884) (6.711) (173) 2,6%
Rekstrarhagnaður 3.752 4.002 (250) -6,2%
Hlutfall af rekstrartekjum 18,3% 19,5%
Fjármunatekjur 151 153 (2) -1,3%
Fjármagnsgjöld (953) (727) (226) 31,1%
Gengismunur (12) (9) (3)
Hrein fjármagnsgjöld (814) (583) (231) 39,6%
Tekjuskattur (628) (701) 73 -10,4%
Hagnaður 2.310 2.718 (408)
Afskriftir (4.036) (3.395) (641)
EBITDA* 7.788 7.397 391 5,3%
Hlutfall 36,8% 35,2%
EBIT 3.752 4.002 (250)
Hlutfall 17,7% 19,1%
  • Endurgert m.v. breytta framsetningu á sýningarrétti sjónvarpsefnis

Sala á 9M 2019 nam 21.175 milljónum króna samanborið við 20.996 milljónir króna á sama tímabili árið 2018, sem er 0,9% vöxtur milli ára. Tekjur af farsíma námu 4.308 milljónum króna og lækkuðu um 335 milljónir króna eða 7,2% á milli tímabila, þar af nemur lækkun vegna heildsölu og reikiþjónustu 250 milljónum króna. Tekjur af talsíma náum 1.368 milljónum króna og lækkuðu um 4,1%. Tekjur af gagnaflutningi námu 6.420 milljónum króna og lækkuðu um 357 milljónir króna eða 5,3% á milli tímabila. Tekjur af sjónvarpsþjónustu námu 4.054 milljón króna og hækkuðu um 555 milljónir króna eða 15,9% á milli tímabila. Tekjur af upplýsingatækni námu 2.737 milljón króna og hækkuðu um 294 milljónir króna eða 12,0% á milli tímabila. Tekjur af vörusölu voru 1.321 milljónir króna og lækka um 111 milljónir króna milli tímabila.

Framlegð á 9M 2019 nam 10.000 milljónum króna og lækkaði um 222 milljónir króna eða 2,2% frá sama tímabili árið 2018. Rekstrarkostnaður nam 6.884 milljónum króna og hækkaði um 173 milljónir króna eða 2,6% frá sama tímabili árið 2018.

Rekstrarhagnaður félagsins fyrir afskriftir og fjármagnsliði EBITDA var 7.788 milljónir króna á 9M 2019 en var 7.397 milljónir króna á sama tímabili árið 2018 og hækkaði því um 391 milljónir króna milli tímabila eða um 5,3%. EBITDA hlutfallið er 36,8% en var 35,2% á sama tímabili árið 2018. Að teknu tilliti til breytinga vegna IFRS 16 þá nam EBITDA á 9M 2018 7.989 milljónum króna og EBITDA hlutfall var 38,1%.


Síminn

Afskriftir félagsins námu 4.036 milljónum króna á 9M 2019 samanborið við 3.395 milljónir króna á sama tímabili árið 2018 og hækka um 641 milljónir króna milli tímabila. Að teknu tilliti til breytinga vegna IFRS 16 þá eru afskriftir á 9M 2018 3.883 milljónir króna.

Hrein fjármagnsgjöld voru 814 milljónir króna á 9M 2019 og hækkuðu um 231 milljón króna á milli tímabila þar af eru áhrif af breytingum vegna IFRS 16 204 milljónir króna. Áætlaðar voru 50 milljónir króna vegna dóms Héraðsdóms Reykjavíkur í svokölluðu TSC máli. Gjaldfærð varúðarfærsla vegna málsins nemur samtals 100 milljónum króna og var færð á 1F 2019. Hagnaður tímabilsins nam 2.310 milljónum króna samanborið við 2.718 milljónir króna á sama tímabili árið 2018.

Sjóðstreymi

Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta var 8.173 milljónir króna á 9M 2019 samanborið við 7.343 milljónir króna á sama tímabili árið 2018. Eftir vexti og skatta nam handbært fé frá rekstri 7.036 milljón króna á 9M 2019 samanborið við 6.397 milljónir króna á sama tímabili árið 2018.

Fjárfestingarhreyfingar voru 4.984 milljónir króna á 9M 2019 samanborið við 3.798 milljónir króna á sama tímabili árið 2018.

img-0.jpeg

Efnahagur

Heildareignir félagsins námu 65.404 milljónum króna í lok 9M 2019 en voru 58.834 milljónir króna í lok árs 2018.

Vaxtaberandi skuldir voru 16.128 milljónir króna í lok 9M 2019 samanborið við 17.231 milljón króna í lok árs 2018. Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 15.571 milljónir króna í lok 9M og lækkuðu um 414 milljónir króna frá árslokum 2018. Hlutfall hreinna vaxtaberandi skulda á móti EBITDA síðastliðinna tólf mánaða var 1,57. Markmið félagsins er að hlutfallið sé á bilinu 1,5 til 2,5.

30.9.2019 31.12.2018
Fastafjármunir 58.528 50.956
Veltufjármunir 6.876 7.878
Eignir alls 65.404 58.834
Eigið fé 36.240 35.202
Langtímaskuldir 20.690 16.529
Skammtímaskuldir 8.474 7.103
Skuldir og eigið fé alls 65.404 58.834
Eiginfjárhlutfall 55,4% 59,8%

Eigið fé félagsins nam 36.240 milljónum króna í lok 9M og eiginfjárhlutfall félagsins var 55,4%.

Helstu atburðir á 3F 2019

  • Síminn Sport hefur farið vel af stað. Sala áskrifta er yfir áætlunum og áhorf er mikið. Aðdáendur enska boltans virðast taka vel í þær áherslur sem að við höfum lagt upp með eins og UHD útsendingar og að hafa dagskrárgerðarfólk á staðnum þegar að stórleikir fara fram.
  • Farsímakerfi Símans sem fagnaði 25 ára afmæli fyrr á árinu nær nú til 99,4% landsmanna. 67 nýir 4G sendar hafa verið settir upp á árinu og afköst stóraukin á 61

Síminn

stöðum til viðbótar. Við fögnuðum einnig óháðum mælingum. Tæknivarpsins sem sýndu að farsímakerfi Símans er hraðasta farsímakerfi landsins.

  • Yfir 30 stafrænir starfsmenn eru nú í vinnu allan sólarhringinn hjá Símanum en þjarkavæðing hefur hlotið aukið vægi. Þjarkarnir sjálfvirknivæða marga ferla og síendurtekna vinnu eins og t.d. innslátt í grunnkerfi sem minnkar rekstarkostnað og eykur gæði þar sem villuhætta er nær engin.
  • Sjónvarp Símans Premium heldur áfram að vaxa, áskrifendur hafa aldrei verið fleiri. Fjölbreytt efnisframboð og öflug innlend dagskrárgerð gerir það svo að verkum að áhorfsmet efnisveitunnar halda áfram að falla. Að setja nýjar þáttaraðir inn í heilu lagi af því efni sem Síminn framleiðir í stað þess að sýna einn þátt á viku vekur einnig ánægju áskrifenda og við munum halda því áfram. Síminn hefur formlega óskað eftir því við Sýn hf. að Sjónvarpi Símans Premium verði dreift yfir þeirra sjónvarpskerfi.
  • Öryggismál fyrirtækja hafa verið í brennidepli hjá Sensa að undanförnu. Tími og kraftur hefur verið settur í það að aðstoða fyrirtæki að verjast tölvurárásum á tölvuerfi og starfsmenn. Áherslan er á öryggis- og heilbrigðisskoðun á tölvukerfum ásamt öryggishugvekju fyrir starfsmenn, einkum starfsmenn og stjórnendur sem hafa heimild til að óska eftir og sjá um millifærslur fjármuna.

Horfur

Spá fyrir árið 2019 er óbreytt og gerir ráð fyrir að EBITDA félagsins verði á bilinu 10,2 til 10,7 milljarðar króna. Áætlað er að fjárfestingar verði á bilinu 6,0 til 6,4 milljarðar króna.

Kynningarfundur 30. október 2019

Kynningarfundur fyrir markaðsæðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn miðvikudaginn 30. október kl. 8:30 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík.

Á fundinum munu Orri Hauksson forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum.

Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á heimasiðu Símans

https://www.siminn.is/umsimann/uppgjor og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.

Hægt er að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu á vefslóðinni:

https://livestream.com/accounts/11153656/events/8858806/player

Fjárhagsdagatal 2019

  • Ársuppgjör 2019 25. február 2020
  • Aðalfundur 2020 19. mars 2020

Nánari upplýsingar um uppgjórið veita:

Orri Hauksson, forstjóri Símans, s. 550 6003 ([email protected])

Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans, s. 550 6003 ([email protected])

Síminn hf.

Síminn á og rekur fyrirtækin Símann, Mílu, Sensa, Farsímagreiðslur og Radíómiðun. Síminn er stærsta fjarskiptafyrirtæki landsins og veitir viðskiptavinum, bæði einstaklingum og fyrirtækjum, heildstætt vöruframboð á sviði fjarskipta, afbreyingar og upplýsingatækni.