Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Síminn Interim / Quarterly Report 2019

Oct 29, 2019

2203_rns_2019-10-29_a9a9f989-0006-4f05-9ed0-14c00f1d73cd.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

{# SEO P0-1: filing HTML is rendered server-side so Googlebot sees the full text without executing JS or following an iframe to a Disallow'd CDN path. The content has already been sanitized through filings.seo.sanitize_filing_html. #}

img-0.jpeg

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu

  1. janúar til 30. september 2019

Síminn hf.
Ármúla 25
108 Reykjavík
Kt. 460207-0880


Efnisyfirlit

Bls.

Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra... 2
Rekstrarreikningur... 3
Efnahagsreikningur... 4
Eiginfjáryfirlit... 5
Sjóðstreymisyflit... 6
Skýringar... 7 - 12
Ársfjórðungsyflit... 13

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. september 2019


Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra

Árshlutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning Símans hf. og dótturfélaga hans. Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34 eins og hann hefur verið sambykktur af Evrópusambandinu. Breyting var gerð á reikningsskilaaðferð vegna sjónvarpsrétta félagsins. Vísað er í skýringu 3 til nánari útskýringar. Árshlutareikningurinn er hvorki endurskoðaður né kannaður af endurskoðendum félagsins.

Heildartekjur samstæðunnar á tímabilinu 1. janúar til 30. september voru 21.175 m.kr. samkvæmt rekstrarreikningi samanborið við 20.996 m.kr. á sama tímabili árið 2018. Hagnaður var af rekstri samstæðunnar sem nam 2.310 m.kr. samanborið við hagnað að fjárhæð 2.718 m.kr. á sama tímabili 2018. Eignir samstæðunnar námu 65.404 m.kr. samkvæmt efnahagsreikningi. Eigið fé nam 36.240 m.kr. og var eiginfjárhlutfallið 55,4%. Síminn hf. greiddi á tímabilinu arð að fjárhæð 330 m.kr. til hluthafa sinna.

Á aðalfundi Símans hf. þann 21. mars 2019 var sambykkt tillaga stjórnar félagsins um endurkaupaáætlun á bréfum félagsins að hámarki 1.310 m.kr. að kaupverði. Í samræmi við endurkaupaáætlunina, sem sambykkt var á aðalfundinum, voru keypt eigin bréf að nafnvirði 205 m.kr fyrir 942 m.kr. að markaðsvirði. Að öðru leyti vísast til árshlutareiknings um breytingar á eigin fé samstæðunnar.

Yfirlýsing stjórnar og forstjóra

Samkvæmt bestu vitneskju stjórnar og forstjóra er árshlutareikningur samstæðunnar í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið staðfestur af Evrópusambandinu. Er það álit stjórnar og forstjóra að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af rekstrarafkomu samstæðunnar á tímabilinu 1. janúar til 30. september 2019, eignum, skuldum og fjárhagsstöðu hennar 30. september 2019 og breytingu á handbæru fé á tímabilinu 1. janúar til 30. september 2019. Jafnframt er það álit stjórnar og forstjóra að árshlutareikningurinn gefi glöggt yfirlit um þróun og árangur í rekstri samstæðunnar og stöðu hennar og lýsi helstu áhættuþáttum og óvissu sem samstæðan býr við.

Stjórn og forstjóri Símans hf. hafa í dag fjallað um árshlutareikning félagsins fyrir tímabilið 1. janúar til 30. september 2019 og staðfesta hann með undirritun sinni.

Reykjavík, 29. október 2019

Stjórn

Bertrand B. Kan, formaður

Helga Valfells, varaformaður

Bjarni Þorvarðarson

Ksenia Nekrasova

Sylvía Kristín Ólafsdóttir

Forstjóri

Orri Hauksson

Síminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. september 2019


Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu
1. janúar til 30. september 2019

Skýr. 2019 2018 2019 2018
1.7.-30.9. 1.7.-30.9. 1.1.-30.9. 1.1.-30.9.
Sala 5 6.958 6.828 20.539 20.505
Kostnaðarverð sólú 6 (3.523) (3.371) (10.539) (10.283)
Framlegð 3.435 3.457 10.000 10.222
Aðrar rekstrartekjur 140 141 636 491
Rekstrarkostnaður 7 (2.208) (2.156) (6.884) (6.711)
Rekstrarhagnaður 1.367 1.442 3.752 4.002
Fjármunatekjur 55 49 151 153
Fjármagnsgjöld (296) (246) (953) (727)
Gengismunur 9 (14) (12) (9)
Hrein fjármagnsgjöld 8 (232) (211) (814) (583)
Hagnaður fyrir tekjuskatt 1.135 1.231 2.938 3.419
Reiknaðir skattar (238) (253) (628) (701)
Hagnaður tímabilsins 897 978 2.310 2.718
Heildarhagnaður tímabilsins 897 978 2.310 2.718
EBITDA* 2.817 2.607 7.788 7.397
Hagnaður á hlut
Grunnhagnaður á hlut 0,10 0,11 0,26 0,30

*Endurgert, sjá nánar í skýringu 3.

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. september 2019
Fjárhæðir eru í milljónum króna


Efnahagsreikningur 30. september 2019

Skýr. 30.9.2019 31.12.2018 Endurgert*
Eignir
Fastafjármunir
Rekstrarfjármunir 3 23.875 18.059
Óefnislegar eignir 34.203 32.473
Aðrar eignir 9 450 424
Fastafjármunir 58.528 50.956
Veltufjármunir
Birgðir 10 1.702 1.437
Viðskiptakrófur 11 3.638 4.313
Aðrar skammtímakrófur 12 979 882
Handbært fé 557 1.246
Veltufjármunir 6.876 7.878
Eignir samtals 65.404 58.834
Eigið fé
Hlutafé 8.828 9.033
Yfirverðsreikningur 14.815 15.552
Annað eigið fé 154 154
Annað bundið eigið fé 460 456
Óráðstafað eigið fé 11.983 10.007
Eigið fé 36.240 35.202
Skuldir
Langtímaskuldir
Skuldabréfalán 14.758 15.631
Leiguskuldbindingar 3 4.744 0
Viðskiptaskuldir 353 0
Tekjuskattsskuldbinding 13 835 898
Langtímaskuldir 20.690 16.529
Skammtímaskuldir
Skuldir við lánastofnanir 220 450
Viðskiptaskuldir 3.298 2.997
Næsta árs afborganir langtímaskulda 1.150 1.150
Næsta árs afborganir leiguskuldbindinga 3 546 0
Skattar til greiðslu 1.088 766
Aðrar skammtímaskuldir 14 2.172 1.740
Skammtímaskuldir 8.474 7.103
Skuldir samtals 29.164 23.632
Eigið fé og skuldir samtals 65.404 58.834

*Endurgert, sjá nánar í skýringu 3.

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. september 2019

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Eiginfjáryfirlit 30. september 2019

Hlutafé Yfirverðs-reikningur Annað eigið fé Annað bundið eigið fé Óráðstafað eigið fé Eigið fé samtals
Eigið fé 1.1.2018 9.247 16.406 201 1.041 9.386 36.281
Hagnaður tímabilsins 602 2.116 2.718
Greiddur arður (0,033588 á hlut) ( 311) ( 311)
Keypt eigin bréf ( 280) ( 962) ( 1.242)
Fært á bundið eigið fé ( 231) 231 0
Áfallinn kostnaður vegna kaupréttarsamninga 14 14
Eigið fé 30.9.2018 8.967 15.444 215 1.412 11.422 37.460
Eigið fé 1.1.2019 9.033 15.552 154 456 10.007 35.202
Hagnaður tímabilsins 2.310 2.310
Greiddur arður (0,036534 á hlut) ( 330) ( 330)
Keypt eigin bréf ( 205) ( 737) ( 942)
Fært á bundið eigið fé 4 ( 4) 0
Eigið fé 30.9.2019 8.828 14.815 154 460 11.983 36.240

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. september 2019

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Sjóðstreymisyflrit 1. janúar til 30. september 2019

Skýr. 2019 2018 2019 2018
1.7.-30.9. 1.7.-30.9. Endurgert* 1.1.-30.9. 1.1.-30.9. Endurgert*
Rekstrarhreyfingar
Rekstrarhagnaður samkvæmt rekstrarreikningi 1.367 1.442 3.752 4.002
Rekstrarliðir sem ekki hafa áhrif á fjárstreymi:
Afskriftir 1.450 1.165 4.036 3.395
Söluhagnaður varanlegra rekstrarfjármuna (2) (1) (167) (105)
Aðrir liðir sem ekki hafa áhrif á fjárstreymi 0 6 0 18
2.815 2.612 7.621 7.310
Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum:
Birgðir, (hækkun) lækkun (181) (194) (305) 174
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur, (hækkun) lækkun (50) 65 (180) 227
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir, hækkun (lækkun) 1.440 32 1.037 (368)
Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum 1.209 (97) 552 33
Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta 4.024 2.515 8.173 7.343
Innborgaðir vextir 53 46 144 149
Greiddir vextir (293) (243) (912) (730)
Greiddir skattar (194) (52) (369) (365)
Handbært fé frá rekstri 3.590 2.266 7.036 6.397
Fjárfestingarhreyfingar
Fjárfesting í rekstrarfjármunum (1.113) (1.156) (3.298) (3.358)
Fjárfesting í óefnislegum eignum (1.003) (42) (1.720) (575)
Söluverð rekstrarfjármuna 1 6 4 133
Skuldabréfaeign, breyting 0 0 28 28
Kaup á eignarhlutum í dótturfélögum, að frádregnu handbæru fé 0 0 0 (26)
Aðrar fjárfestingar 0 0 2 0
Fjárfestingarhreyfingar (2.115) (1.192) (4.984) (3.798)
Fjármögnunarhreyfingar
Greiddur arður 0 0 (330) (311)
Kaup eigin bréfa (942) 0 (942) (1.242)
Sala eigin bréfa 0 174 0 174
Afborganir langtimalána (287) (287) (862) (862)
Afborganir leguskuldbindinga (138) 0 (402) 0
Skammtímalán, breyting (57) (575) (230) (500)
Fjármögnunarhreyfingar (1.424) (688) (2.766) (2.741)
Hækkun (lækkun) á handbæru fé 51 386 (714) (142)
Áhrif gengisbreytinga á handbært fé (4) 1 25 (6)
Handbært fé í byrjun tímabilsins 510 183 1.246 718
Handbært fé í lok tímabilsins 557 570 557 570

*Endurgert, sjá nánar í skýringu 3.

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. september 2019

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

1. Starfsemi

Síminn hf. er hlutafélag og starfar á grundvelli laga nr. 2/1995 um hlutafélög. Höfuðstöðvar félagsins eru að Ármúla 25 í Reykjavík. Samstæðuárs hlutareikningur fyrir tímabilið janúar til september 2019 hefur að geyma árs hlutareikning félagsins og dótturfélaga þess sem vísað er til í heild sem "félagsins" og til einstakra félaga sem "dótturfélaga". Meginstarfsemi félagsins er á sviði fjarskipta, afbreyingar og upplýsingatæki.

2. Grundvöllur reikningsskilanna

Yfirlýsing um að alþjóðlegum reikningsskilastöðlum sé fylgt

Árs hlutareikningur félagsins er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árs hlutareikninga, IAS 34. Samandreginn árs hlutareikningur Símans hf. inniheldur ekki allar þær upplýsingar sem krafist er í fullbúnum ársreikningi og ætti að lesa í samhengi við ársreikning félagsins fyrir árið 2018. Valdar skýringar eru með árs hlutareikningnum til að skýra og upplýsa um rekstur félagsins á tímabilinu og breytingar á fjárhagslegri stöðu frá síðasta ársreikningi.

Hægt er að nálgast ársreikninginn á vef félagsins, www. siminn.is og á vef Kauphallar Íslands: www. nasdaqomxnordic.com.

Félagið hefur innleitt reikningsskilastaðal IFRS 16 fyrir reikningsár sem hófst 1. janúar 2019. Breytingum á reikningsskilaðferðum er lýst í skýringu 3.

Stjórn og forstjóri félagsins samþykktu árs hlutareikninginn og heimiluðu birtingu hans á stjórnarfundi þann 29. október 2019.

Grundvöllur matsaðferða

Samstæðuárs hlutareikningurinn er gerður samkvæmt kostnaðarverðsæðferð.

Starfrækslugjaldmiðill og framsetningargjaldmiðill

Árs hlutareikningurinn er gerður í íslenskum krónum sem er starfrækslugjaldmiðill félagsins og eru fjárhæðir birtar í milljónum króna nema annað sé tekið fram.

Mat og ákvarðanir

Gerð samstæðuárs hlutareikningins í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla krefst þess að stjórnendur taki ákvarðanir, meti og gefi sér forsendur sem hafa áhrif á beitingu reikningsskilaðferða og birtar fjárhæðir eigna, skulda, tekna og gjalda. Endanlegar niðurstöður kunna að verða frábrugðnar þessu mati.

3. Breytingar á reikningsskilaðferðum

Við gerð árs hlutareikningins er beitt sömu reikningsskilaðferðum og beitt var við gerð ársreiknings félagsins fyrir árið 2018 að undanskildum breytingum sem lýst er hér að neðan.

Félagið hefur innleitt reikningsskilastaðal IFRS 16 fyrir reikningsár sem hófst 1. janúar 2019. Breyting er einnig gerð við meðferð sjónvarpsréttar. Sjónvarpsréttur hefur hingað til verið færður til eignar sem birgðir samkvæmt IAS 2 og gjaldfærður sem efniskostnaður. Vegna mikilla breytinga á umhverfi og viðskiptamódeli sjónvarps undanfarin ár er sjónvarpsréttur félagsins færður frá 1. janúar 2019 sem óefnisleg eign samkvæmt IAS 38 og afskrifaður á samningstíma.

IFRS 16 Leigusamningar

IFRS 16 kynnir heildstætt líkan sem felur í sér færslu leigusamninga í efnahagsreikning. Félagið, sem leigutaki, hefur fært til eignar nýtingarrétt sem endurspeglar rétt félagsins til notkunar eigna og á móti skuld vegna framtíðarleigugreiðslna. Samkvæmt staðlinum þarf ekki að færa í efnahagsreikning leigusamninga til skemmri tíma en eins árs og leigu á ódýrum eignum. Ákvæði um leigusala munu ekki breytast verulega frá gildandi staðli sem áfram flokkar leigusamninga í fjármögnunarleigusamninga eða rekstrarleigusamninga.

Félagið hefur innleitt IFRS 16 miðað við aðferð uppsafnaðra áhrifa (e. modified retrospective approach), þar sem leigueignir eru jafnar leiguskuldum á upptökudegi 1.1.2019. Samkvæmt þeirri aðferð hefur samanburðartölum fyrir árið 2018 ekki verið breytt, þ.e. þær eru færðar samkvæmt IAS 17 og öðrum tengdum stöðlum. Breytingarnar eru skýrðar út hér að neðan.

Siminn hf. - Samandreginn árs hlutareikningur samstæðu 30. september 2019
Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

3. Breytingar á reikningsskilaaðferðum, frh.:

Leigusamningar þar sem samstæðan er leigutaki

Félagið hefur fært eignir og skuldir vegna leigusamninga um húsnæði, aðstöðuleigu, bifreiða og ljósleiðara. Eðli kostnaðar tengdum þessum leigusamningum hefur breyst þannig að félagið afskrifar nýtingarrétt og færir vaxtagjöld af leiguskuld en áður voru leigugreiðslur færðar meðal rekstrargjalda.

Áður voru leigugreiðslur færðar til gjalda línulega yfir leigutíma og einvörðungu færðar eignir eða skuldir ef tímamunur myndáðist milli greiðslu leigu og gjaldfærslu kostnaðar.

Leigueignir sem færðar eru inn í efnahagsreikning vegna innleiðingar IFRS 16 eru færðar í rekstrarfjármuni, og flokkast þar með sambærilegum eignum sem félagið á fyrir. Bókfært verð leigueigna er eftirfarandi:

Fjarskipta-búnaður Fasteignir og lóðir Bifreiðar Samtals
Staða 1.1.2019 156 5.350 61 5.567
Staða 30.9.2019 151 5.036 55 5.242

Í efnahagsreikningi er skuldbinding vegna leigusamninga flokkuð sem langtímaskuld að frádreginni næsta árs afborgun.

Leigusamningar þar sem samstæðan er leigusali

Innleiðing IFRS 16 hefur ekki áhrif á samninga þar sem félagið er leigusali.

Áhrif innleiðingar á uppgjörstímabilinu

Vegna innleiðingar IFRS 16 er bókfærð staða leigueignar 5.242 m.kr. og leiguskuldar 5.290 m.kr. þann 30. september 2019.

Sömuleiðis er færð afskrift af leigueign og vaxtagjöld af leiguskuldbindingu. Á tímabilinu 1. janúar til 30. september er gjaldfærð afskrift undir rekstrarkostnaði vegna leigueigna 502 m.kr. og 204 m.kr. í vaxtagjöld vegna leiguskuldbindinga. Afborgun af leiguskuldbindingu er 402 m.kr.

Sjónvarpsréttur, breyting á reikningsskilaaðferð

Sjónvarpsréttur félagsins er nú færður sem óefnisleg eign í fastafjármunum en var áður færður sem birgðir í veltufjármunum. Vegna þessarar breytingar hefur samanburðarfjárhæðum í efnahagsreikningi 31.12.2018 verið breytt. 763 m.kr. eru nú færðar sem óefnisleg eign en voru áður færðar í birgðum og 150 m.kr. eru nú færðar sem fyrirframgreiddur kostnaður en voru áður færðar í birgðum. Breytingin hefur engin áhrif á eigið fé.

Einnig er gerð breyting á framsetningu innan kostnaðarverðs sólu fyrir tímabilið 1. janúar til 30. september 2018. Kostnaðarverð seldrar þjónustu, þ.e. efniskostnaður, lækkar um 553 m.kr. og afskriftir hækka um sömu fjárhæð. Sjá skýringu 6.

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. september 2019

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

4. Starfsþáttayfirlit

Yfirlit um starfsþætti veitir upplýsingar um einstaka þætti í rekstri félagsins og er sett fram með sama hætti og regluleg skýrslugjóf til stjórnar félagsins.

Starfsemi félagsins skiptist í sjö starfsþætti sem selja vörur og þjónustu á mismunandi mörkuðum. Starfsþættirnir eru:

Starfsþáttur Lýsing
Farsímapjónusta: Farsímapjónusta innanlands og erlendis, hvort sem heldur er hefðbundin GSM þjónusta, gervihnattapjónusta eða önnur farsímapjónusta.
Talsímapjónusta: Talsímapjónusta fyrir fyrirtæki og einstaklinga.
Gagnaflutningur: Gagnaflutningsþjónusta, þ.m.t. xDSL þjónusta, GPON, Internet, IP net, stofnnet, heimtaugar og aðgangsnet.
Sjónvarpsþjónusta: Dreifing á sjónvarpsefni, áskrift, notkun og auglýsingar á miðlum félagsins.
Upplýsingatækni: Upplýsingatækniþjónusta, þ.m.t. mánaðargjöld, útseld þjónusta og vörusala.
Vörusala búnðar: Sala á fjarskiptabúnaði og fylgihlutum.
Annað: Útseld vinna vegna fjarskipta, þ.m.t. vettvangþjónusta og aðstöðuleiga.

Starfsþættir 1.1.-30.9. 2019

Farsíma-þjónusta Talsíma-þjónusta Gagna-flutningur Sjónvarps-þjónusta Upplýsingatækni Vörusala búnðar Annað Samtals
Rekstrartekjur 4.308 1.368 6.420 4.054 2.737 1.321 967 21.175
Óskipt rekstrargjöld ( 13.387)
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta 7.788
Afskriftir ( 4.036)
Hrein fjármagnsgjöld ( 814)
Skattar ( 628)
Hagnaður tímabilsins 2.310
Fjárfestingar ( 5.014)
Óskiptar eignir 30.9.2019 65.404
Óskiptar skuldir 30.9.2019 29.164

Starfsþættir 1.1.-30.9. 2018

Farsíma-þjónusta Talsíma-þjónusta Gagna-flutningur Sjónvarps-þjónusta Upplýsingatækni Vörusala búnðar Annað Samtals
Rekstrartekjur 4.643 1.427 6.777 3.499 2.443 1.432 775 20.996
Óskipt rekstrargjöld ( 13.599)
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta 7.397
Afskriftir ( 3.395)
Hrein fjármagnsgjöld ( 583)
Skattar ( 701)
Hagnaður tímabilsins 2.718
Fjárfestingar ( 3.800)
Óskiptar eignir 30.9.2018 60.569
Óskiptar skuldir 30.9.2018 22.931

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. september 2019

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

5. Sala

Seld þjónusta og vörur greinast þannig: 1.1.-30.9. 1.1.-30.9.
Sala á þjónustu 17.785 17.899
Vörusala upplýsingatækni og fjarskipta 2.754 2.606
20.539 20.505

Enginn einstakur viðskiptavinur er með meira en 10% af sölu félagsins.

6. Kostnaðarverð sölu

Kostnaðarverð sölu greinist þannig: Endurgert
Laun og launatengd gjöld 2.483 2.497
Kostnaðarverð seldrar þjónustu 2.627 2.507
Samtengijöld 561 711
Kostnaðarverð seldra vara 2.545 2.338
Eignfærð vinna ( 636) ( 638)
Afskriftir 2.959 2.868
10.539 10.283

Kostnaðarverð seldrar þjónustu samanstendur af; efnis kostnaði, þjónustusamningum, leyfis gjöldum, aðkeyptri þjónustu og fjarskiptakostnaði.

7. Rekstrarkostnaður

Rekstrarkostnaður greinist þannig:

Laun og launatengd gjöld 3.331 3.302
Markaðs- og sölukostnaður 433 401
Húsnaðis- og bifreiðakostnaður 541 1.073
Tölvu- og hugbúnaðarkostnaður 661 705
Skrifstofu- og stjórnunarkostnaður 841 702
Afskriftir 1.077 528
6.884 6.711

8. Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld

Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld greinast þannig:

Fjármunatekjur
Vaxtatekjur af bankainnistæðum og kröfum 147 151
Fenginn arður og söluhagnaður af eignarhlutum 4 2
151 153
Fjármagnsgjöld
Vaxtagjöld ( 674) ( 706)
Vaxtagjöld vegna leiguskuldbindinga ( 204) 0
Önnur fjármagnsgjöld ( 75) ( 21)
( 953) ( 727)
Gengismunur ( 12) ( 9)
Hrein fjármagnsgjöld ( 814) ( 583)

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. september 2019

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

9. Aðrar eignir 30.9.2019 31.12.2018
Aðrar eignir greinast þannig:
Fjárfesting í öðrum félögum 47 46
Sjónvarpsefni til sýningar 182 149
Fyrirframgreiddur kostnaður 13 15
Langtímakröfur 208 214
Aðrar eignir samtals 450 424
10. Birgðir
Birgðir greinast þannig:
Vörur til endursölu og rekstrarvörubirgðir 1.152 1.333
Sjónvarpsefni til sýningar 550 104
Birgðir samtals 1.702 1.437
11. Viðskiptakröfur
Viðskiptakröfur greinast þannig:
Viðskiptakröfur 3.801 4.508
Niðurfærsla viðskiptakrafna ( 163) ( 195)
Viðskiptakröfur samtals 3.638 4.313
12. Aðrar skammtímakröfur
Aðrar skammtímakröfur greinast þannig:
Fyrirframgreiddur kostnaður 653 767
Aðrar skammtímakröfur 326 115
Aðrar skammtímakröfur samtals 979 882
13. Tekjuskattsskuldbinding
Hreyfingar á reiknaðri tekjuskattsskuldbindingu greinast á eftirfarandi hátt:
Reiknuð tekjuskattsskuldbinding í ársbyrjun 898 817
Tekjuskattur tímabilsins 612 825
Skattar til greiðslu á næsta ári ( 675) ( 744)
Tekjuskattsskuldbinding samtals 835 898
14. Aðrar skammtímaskuldir
Aðrar skammtímaskuldir greinast þannig:
Áfallinn kostnaður 786 836
Ögreidd laun og launatengd gjöld 631 330
Ögreiddur virðisaukaskattur 743 562
Aðrar skammtímaskuldir 12 12
Aðrar skammtímaskuldir samtals 2.172 1.740

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. september 2019

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

15. Óvissa

Félagið stendur í málarekstri vegna mála sem snúa að tülkunum á fjarskipta, fjölmiðla- og samkeppnislögum. Sýn hf. (Vodafone) hefur stefnt félaginu til greiðslu skaðabóta vegna meints ólögmæts verðprýstings. Nemur stefnufjárhæð í málinu ríflega níu hundruð milljónum króna. Inter, sem eru samtök aðila er veita internetþjónustu, sendu Símanum kröfu árið 2015 og kröfðust skaðabóta að fjárhæð allt að þremur milljörðum króna vegna meintra brota á samkeppnislögum. Þrjú félög innan samtakanna óskuðu eftir dómkvaðningu matsmanna og sendu í kjólfarið breyttar kröfur sem nema rúmlega 300 milljónum króna. Síminn hafnaði kröfunni þar sem skilyrði skaðabótaskylu væri ekki fyrir hendi. Tólvun stefndi máli til Héraðsdóms til greiðslu skaðabóta aðallega að fjárhæð tæplega 7 milljónir króna, auk vaxta og kostnaðar. Snerpa gerði slíkt hið sama og gerði aðallega kröfu um greiðslu skaðabóta að fjárhæð tæplega 40 milljónir króna, auk vaxta og kostnaðar. Hringiðan stefndi Símanum einnig fyrir Héraðsdómi og gerði aðallega kröfu að fjárhæð 899 milljónir króna, auk vaxta og kostnaðar. TSC ehf. höfðaði mál gegn Símanum til greiðslu skaðabóta vegna meintra brota á ákvörðun samkeppnisráðs nr. 10/2015. Nam stefnufjárhæðin rúmlega hundrað milljónum króna, auk kostnaðar og vaxta. Héraðsdómur komast að þeirri niðurstöðu að Símanum bæri að greiða 50 milljónir króna auk kostnaðar, vaxta og dráttarvaxta. Félagið hefur hafnað málatilbúnaði gagnaðila í öllum málunum og gagnstefnt Vodafone. Í máli Vodafone gegn Símanum og gagnstefnu Símans gegn Vodafone sýknaði Héraðsdómur Reykjavíkur bæði félög af kröfum hvors annars en málinu hefur verið áfrýjað til Landsréttar. Síminn hefur einnig áfrýjað dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli TSC ehf. gegn Símanum til Landsréttar og hefur TSC einnig gagnstefnt málinu. Í tilfelli Tólvunar, Snerpu og Hringiðunnar mun Síminn skila greinargerð á næstunni þar sem málatilbúnaði félaganna er hafnað.

Síminn og Vodafone hafa átt í ágreiningi í tengslum við dreifingu á sjónvarpsefni. Póst- og fjarskiptastofnun komst að þeirri niðurstöðu að Síminn hefði farið gegn fjölmiðlalögum sbr. ákvörðun PFS nr. 10/2018. Lagði stofnun á sekt að fjárhæð 9 milljónir króna sem félagið hefur þegar greitt. Síminn telur háttsemi félagsins sé í fullu samræmi við ákvæði fjölmiðlalaga og hefur höfðað mál til ógildingar ákvörðunar Póst- og fjarskiptastofnunar. Í kjólfarið sendi Vodafone kröfu til Símans um greiðslu skaðabóta að fjárhæð 1,9 milljarðar króna. Síminn hafnaði kröfunni og benti á að það mætti hvorki ráða af erindi Vodafone að skilyrði skaðabótaskylu væri fyrir hendi né heldur væri gerð tilraun til að færa sönnur á ætlað tjón Vodafone. Að mati Símans var um tilhæfulausa kröfu að ræða og vísaði Héraðsdómur Reykjavíkur kröfu Vodafone frá dómi vegna vanreifunar. Vodafone lagði fram beiðni um dómkvaðningu matsmanna. Þá hefur Gagnaveita Reykjavíkur sent Símanum kröfu um greiðslu að fjárhæð 1,3 milljarða króna. Síminn hafnaði kröfunni og benti á að það mætti ekki ráða af erindi Gagnaveitunnar að skilyrði skaðabótaskylu væri fyrir hendi. Að mati Símans er um tilhæfulausa kröfu að ræða. Vodafone lagði fram kvörtun til Samkeppniseftirlitsins vegna fyrirkomulags við sölu á útsendingum frá ensku úrvalsdeildinni og gerði kröfu um heildsölúaðgang að SíminnSport. Samkeppniseftirlitið birti frummat sitt í júli og taldi að ákveðið fyrirkomulag gæti farið í bága við samkeppinslög og afleiddar ákvarðanir. Stofnun undirstrikaði að um frummat væri að ræða sem gæti breyst og kallaði samhliða eftir frekari gögnum. Síminn telur að afstaða Samkeppniseftirlitsins sé í andstöðu við fyrri framkvæmd og án stuðnings til viðhlítandi gagna. Félagið er þeirrar skoðunar að fyrirkomulag um sölu á þjónustu félagsins sé fyllilega í samræmi við samkeppnislög.

Í desember 2015 samþykkti Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu kröfu félagsins um að lagt yrði lögbann á Vodafone vegna dreifingar á myndefni með ólínulegum hætti. Félagið höfðaði í kjólfarið staðfestingarmál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur en dómurinn samþykkti kröfu Símans þann 28. apríl 2018. Vodafone áfrýjaði málinu til Hæstaréttar en með dómi dags. 18. október 2018 staðfesti Hæstiréttur dóm Héraðsdóms. Í dómi Hæstaréttar kom fram að Síminn hefði sýnt nægilega fram á að fjárhagslegt tjón kunni að hafa hlotist af háttsemi Vodafone. Síminn stefndi Vodafone fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur vegna málins og gert kröfu um greiðslu skaðabóta að fjárhæð 555 milljónir króna. Héraðsdómur vísað málinu frá en Síminn kærði þann úrskurð til Landsréttar.

Þrátt fyrir að óvissa sé um niðurstöður þessara mála er það mat stjórnenda að ekki komi til verulegra fjárútláta vegna þeirra. Í þeim tilvikum sem talið er að félagið geti þurft að greiða bætur vegna málareksturs á hendur þess er sá kostnaður áætlaður af stjórnendum félagsins og færður í reikningsskil þess.

16. Atburðir eftir reikningsskiladag

Engir atburðir hafa átt sér stað eftir lok reikningsskiladags sem höfðu áhrif á árshlutareikninginn eða veita þarf upplýsingar um.

Síminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. september 2019

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Ársfjórðungsyfirlit

Rekstur samstæðunnar greinist þannig á ársfjórðunga:

1 F 2019 2 F 2019 3 F 2019 Samtals
Sala 6.773 6.808 6.958 20.539
Kostnaðarverð sól ( 3.425) ( 3.591) ( 3.523) ( 10.539)
Framlegð 3.348 3.217 3.435 10.000
Aðrar rekstrartekjur 189 307 140 636
Rekstrarkostnaður ( 2.430) ( 2.246) ( 2.208) ( 6.884)
Rekstrarhagnaður 1.107 1.278 1.367 3.752
Hrein fjármagnsgjöld ( 313) ( 269) ( 232) ( 814)
Hagnaður fyrir tekjuskatt 794 1.009 1.135 2.938
Tekjuskattur ( 179) ( 211) ( 238) ( 628)
Hagnaður tímabilsins 615 798 897 2.310
EBITDA 2.369 2.602 2.817 7.788
1 F 2018 2 F 2018 3 F 2018 4 F 2018
--- --- --- --- ---
Sala 6.756 6.921 6.828 7.420
Kostnaðarverð sól ( 3.302) ( 3.610) ( 3.371) ( 4.196)
Framlegð 3.454 3.311 3.457 3.224
Aðrar rekstrartekjur 118 232 141 124
Rekstrarkostnaður ( 2.275) ( 2.280) ( 2.156) ( 2.443)
Virðisrýrnun 0 0 0 ( 2.990)
Rekstrarhagnaður 1.297 1.263 1.442 ( 2.085)
Hrein fjármagnsgjöld ( 182) ( 190) ( 211) ( 205)
Hagnaður fyrir tekjuskatt 1.115 1.073 1.231 ( 2.290)
Tekjuskattur ( 228) ( 220) ( 253) ( 146)
Hagnaður tímabilsins 887 853 978 ( 2.436)
EBITDA* 2.404 2.386 2.607 2.124

*Endurgert, sjá nánar í skýringu 3.

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. september 2019

Fjórhæðir eru í milljónum króna