AI assistant
Síminn — Interim / Quarterly Report 2017
Feb 19, 2018
2203_rns_2018-02-19_bc82ea2b-f453-4dd8-82f0-e698f6258824.pdf
Interim / Quarterly Report
Open in viewerOpens in your device viewer
Síminn
- febrúar 2018
Fréttatilkynning: Afkoma Símans hf. á fjórða ársfjórðungi 2017 og á árinu 2017
Hagnaður Símans eykst um 11,7% milli ára
Árið 2017
- Heildartekjur árið 2017 námu 28.433 milljónum króna samanborið við 29.572 milljónir króna árið 2016, sem er 3,9% samdráttur milli ára. Talsverðar breytingar hafa orðið á rekstri samstæðunnar sem skýra tekjusamdrátt. Leiðrétt fyrir aflagðri starfsemi dregst velta saman um 1,8% milli ára.
- Rekstrarhagnaður árið 2017 nam 4.919 milljónum króna samanborið við 4.626 milljónir króna árið 2016 og hækkar um 293 milljónir króna eða 6,3% milli ára.
- Hagnaður á árinu 2017 nam 3.076 milljónum króna samanborið við 2.755 milljónir króna árið 2016 og eykst um 11,7% milli ára.
Fjórði ársfjórðungur 2017
- Tekjur á fjórða ársfjórðungi 2017 námu 7.500 milljónum króna samanborið við 7.945 milljónir króna á sama tímabili 2016. Samdráttur milli ára skýrist nær alfaríð af lægri sölu Sensa en tekjur á fjórða ársfjórðungi 2016 voru óvenju miklar hjá félaginu, bæði í vörusölu og þjónustu.
- Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði EBITDA nam 1.930 milljónum króna á fjórða ársfjórðungi 2017 samanborið við 2.103 milljónir króna á sama tímabili 2016. Samdrátt á milli tímabila má að stórum hluta rekja til kostnaðar vegna starfslokasamninga á fjórða ársfjórðungi 2017. EBITDA hlutfallið er 25,7% fyrir fjórða ársfjórðung 2017 en var 26,5% á sama tímabili 2016.
- Hagnaður á fjórða ársfjórðungi 2017 nam 607 milljónum króna samanborið við 601 milljónir króna á sama tímabili 2016.
- Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta nam 2.065 milljónum króna á fjórða ársfjórðungi 2017 en var 2.241 milljón króna á sama tímabili 2016. Eftir vexti og skatta nam handbært fé frá rekstri 1.285 milljónum króna á fjórða ársfjórðungi 2017 en nam 2.106 milljónum króna á sama tímabili 2016. Greiddir skattar námu 593 milljónum króna á ársfjórðungnum.
- Vaxtaberandi skuldir námu 18,4 milljörðum króna í lok árs 2017 en voru 22,9 milljarðar króna í árslok 2016. Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 17,7 milljarðar króna í lok árs 2017 en voru 19,3 milljarðar króna í lok árs 2016.
Síminn
- Hrein fjármagnsgjöld námu 343 milljónum króna á fjórða ársfjórðungi 2017 en voru 370 milljónir króna á sama tímabili 2016. Fjármagnsgjöld námu 400 milljónum króna, fjármunatekjur voru 55 milljónir króna og gengishagnaður var 2 milljónir króna.
- Eiginfjárhlutfall Símans hf. var 59,9% í lok árs 2017 og eigið fé 36,3 milljarðar króna.
Orri Hauksson, forstjóri:
„Við erum stolt af afkomu Símans og dótturfélaga árið 2017. Stefna undanfarinna ára hefur verið að skerpa rekstur samstæðunnar utan um kjarnastarfsemina sem hefur skilað góðum árangri á hörðum samkeppnismarkaði. Hagnaður ársins jókst um tæp tólf prósent milli ára og EBITDA framlegð samstæðunnar er yfir 30% af tekjum. Tekjur lækkuðu vegna lægri verða á farsímamarkaði, minni búnáðarsölu og aflagðrar starfsemi. Kostnaðurinn lækkaði hins vegar enn hraðar, til að mynda dróst launaliðurinn saman um 642 milljónir milli ára. Skuldir lækkuðu á árinu um rúma fimm milljarða.
Við heldum áfram að bæta við ánægðum viðskiptavinum í internet- og farsímabjónustu, en sérstaklega í Premium efnisbjónustu okkar í sjónvarpi. Íslendingar gátu í fyrsta sinn í fyrra horft á 4K háskerpuútsendingar, tekið IPTV myndlykilinn með í fríið og greitt með farsímanum í verslunum.
Síminn – og dótturfélögin Míla og Sensa – hafa markvisst fjárfest í sterkara sambandi sínu við viðskiptavini undanfarin misseri. Uppbygging Símasamstæðunnar á ríkan þátt í því að Sameinuðu þjóðirnar útnefndu Ísland á síðasta ári með hæstu einkunn allra landa í heiminum í fjarskipta- og upplýsingatækni. Útbreiðsla ljósnetstengingja Mílu jókst hratt á landsbyggðinni og 60% heimila á höfuðborgarsvæðinu höfðu í árslok möguleika á ljósleiðara félagsins. Alls 98,2% heimila landsmanna eru nú dekkuð með heimsklassa 4G sambandi Símans.
Fjárfestingar hafa skilað sér í stöðugri kerfum, sjálfvirkari þjónustu og einfaldari ferlum. Á síðasta ári fækkaði símtölum í þjónustuver Símans um 20%. Þrátt fyrir að fækkað hafi í starfsliði samstæðunnar um 11% á síðasta ári og hjá móðurfélaginu um tæpan fjórðung á undanförnum tveimur árum, mælum við aukna ánægju viðskiptavina okkar. Fjárfest var fyrir 4,8 milljarð í fyrra, en fjárfestingabörfin verður minni fram á við.
Við munum áfram skapa ný tækifæri í rekstri samstæðunnar. Má nefna nýlegan samning við Verne Global sem gerir búnáðarrekstur samstæðunnar mun hagkvæmari en fyrr. Aðalatriðið er að Sensa og Síminn fá þarna tækifæri til að bjóða hýsingu og stórvikan tölvurekstur á innlendum og erlendum vettvangi. Stefna Símans og dótturfélaga er að veita framúrskarandi þjónustu og auka með þeim hætti virði fjárfesta félagsins.“
Helstu niðurstöður í rekstri árið 2017
Reikningsskilaaðferðir og samþykkt árshlutareiknings
Ársreikningurinn hefur að geyma samstæðureikning Símans hf. og dótturfélaga hans fyrir árið 2017. Stjórn og forstjóri Símans hf. hafa í dag fjallað um samstæðuársreikning félagsins fyrir árið 2017 og staðfesta hann með undirritun sinni.
Síminn
Rekstur
| 4F 2017 | 4F 2016 | Breyting % | 2017 | 2016 | Breyting % | |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Rekstrartekjur | 7.389 | 7.773 | -4,9% | 27.992 | 29.037 | -3,6% |
| Kostnadarverð sól | (4.105) | (4.302) | -4,6% | (14.418) | (15.387) | -6,3% |
| Framlegð | 3.284 | 3.471 | -5,4% | 13.574 | 13.650 | -0,6% |
| Hlutfall af rekstrartekjum | 44,4% | 44,7% | 48,5% | 47,0% | ||
| Aðrar rekstrartekjur | 111 | 172 | -35,5% | 441 | 535 | -17,6% |
| Rekstarkostnadar | (2.404) | (2.466) | -2,5% | (9.096) | (9.559) | -4,8% |
| Rekstrarhagnaður | 991 | 1.177 | -15,8% | 4.919 | 4.626 | 6,3% |
| Hlutfall af rekstrartekjum | 13,4% | 15,1% | 17,6% | 15,9% | ||
| Fjörmunatekjur | 55 | 232 | -76,3% | 398 | 765 | -48,0% |
| Fjörmagnsgjöld | (400) | (584) | -31,5% | (1.535) | (1.884) | -18,5% |
| Gengismunur | 2 | (18) | -111,1% | 14 | 21 | -33,3% |
| Hrein fjármagsgjöld | (343) | (370) | -7,3% | (1.123) | (1.098) | 2,3% |
| Tekjuskattur | (41) | (205) | -80,0% | (720) | (772) | -6,7% |
| Hagnaður tímabils | 607 | 601 | 1,0% | 3.076 | 2.755 | 11,7% |
| Afskriftir og virðisrýrnun | (939) | (926) | 1,4% | (3.688) | (3.619) | 1,9% |
| EBITDA | 1.930 | 2.103 | -8,2% | 8.607 | 8.245 | 4,4% |
| Hlutfall | 25,7% | 26,5% | 30,3% | 27,9% | ||
| EBIT | 991 | 1.177 | -15,8% | 4.919 | 4.626 | 6,3% |
| Hlutfall | 13,2% | 14,8% | 17,3% | 15,6% |
Heildartekur árið 2017 námu 28.433 milljónum króna samanborið við 29.572 milljónir króna árið 2016, sem er 3,9% samdráttur milli ára. Leiðrétt fyrir aflagðri starfsemi dregst velta saman um 527 milljónir króna eða 1,8%. Undir aflagða starfsemi fellur rekstur dótturfélaganna Staka og Talenta, rekstur sjónvarpsbjónustu vegna EM 2016 í fótbolta sem og útvarpsstöðvarinnar K100.
Tekjur af farsíma námu 6.652 milljónum króna og drógust saman um 538 milljónir króna milli ára eða 7,5%. Samdráttur skýrist meðal annars af lægri tekjum af reikibjónustu en einnig hafa meðaltekjur af hverjum viðskiptavin í farsíma (ARPU) farið lækkandi. Tekjur af talsíma námu 2.096 milljónum króna og lækkuðu um 143 milljónir króna eða 6,4%. Tekjur af gagnaflutningi námu 8.583 milljónum króna og jukust um 85 milljónir króna eða sem nemur 1,0% á milli ára. Tekjur af sjónvarpsbjónustu voru 4.118 milljónir króna og hækka um 56 milljónir króna eða 1,4%. Ef leiðrétt er fyrir tekjum sjónvarpsbjónustu af aflagðri starfsemi árið 2016 er tekjuvöxtur sjónvarpsbjónustunnar rúm 15% á árinu 2017. Tekjur af upplýsingatækni námu 4.111 milljónum króna og lækkuðu um 508 milljónir króna milli ára eða 11,0%. Samdráttur í tekjum af upplýsingatækni skýrist af sölu á dótturfélögunum Staka og Talenta en ytri tekjur þeirra námu 125 milljónum króna árið 2016 en einnig var óvenju mikil vörusala hjá Sensa á fjörða ársfjörðungi árið 2016.
Framlegð árið 2017 nam 13.574 milljónum króna og lækkar um 76 milljónir króna eða 0,6% frá árinu 2016. Rekstarkostnadur nam 9.096 milljónum króna og lækkar um 463 milljónir króna eða 4,8% frá 2016. Verulegur árangur náðist í lækkuð á kostnaði árið 2016 og hélt sá góði árangur áfram árið 2017 sem skilar sér í hærra framlegðarhlutfalli hjá félaginu.
Rekstrarhagnaður félagsins fyrir afskriftir EBITDA nam 8.607 milljónum króna árið 2017 en var 8.245 milljónir króna árið 2016. EBITDA hlutfallið hækkar milli ára og var 30,3% samanborið við 27,9% árið 2016. Markaðs- og sölukostnadur lækkar um 66 milljónir króna milli ára, húsnæðis- og bifreiðakostnadur lækkar um 29 milljónir króna og skrifstofu- og stjörnunarkostnadur lækkar um 144 milljónir króna sem er meðal annars afleiðing af fækkun
Síminn
stöðugilda. Tölvu- og hugbúnaðarkostnaður hækkar vegna útvistunar á starfsemi meðal annars dótturfélaganna Staka og Talenta en einnig hefur starfsemi vegna reikningagerðar og reksturs á vöruhúsi verið útvistað. Samtals lækkar launaliður hjá félaginu um 642 milljónir króna á milli ára eða um 7,4% og meðalfjöldi stöðugilda fækkar um 78 og voru 727 að meðaltali á árinu 2017. Um þriðjung af lækkun launaliðar má rekja til aflagðrar starfsemi.
Afskriftir félagsins voru 3.688 milljónir króna árið 2017 samanborið við 3.619 milljónir króna árið 2016.
Hrein fjármagnsgjöld voru 1.123 milljónir króna árið 2017 og hækka um 25 milljónir króna á milli ára. Fjármunatekjur voru 398 milljónir króna og lækkuðu um 367 milljónir króna milli ára en árið 2016 voru tekjur vegna sölu á eignarhlutum í félögum 289 milljónir króna. Fjármagnsgjöld voru 1.535 milljónir króna og lækkuðu um 349 milljónir króna. Vaxtagjöld og verðbætur lækka um 441 milljón króna milli ára en gengið var frá endurfjármögnun á skuldum félagsins á árinu sem skilar lægri fjármagnsgjöldum. Meðal fjármagnsgjalda 2016 var niðurfærsla á virði Sensa DK upp á 180 milljónir króna. Gjaldfærsla vegna fjárfestinga árið 2017 er 147 milljónir króna, þar af er tap vegna Sensa DK 113 milljónir króna. Kostnaður vegna endurfjármögnunar nam 112 milljónum króna og er færður meðal annarra fjármagnsgjalda.
Gjaldfærður tekjuskattur er 720 milljónir króna og lækkar um 52 milljónir króna milli ára.
Heildarhagnaður félagsins eftir skatta er 3.076 milljónir króna árið 2017 samanborið við 2.755 milljónir króna árið 2016 og hækkar um 11,7% milli ára.
Sjóðstreymi
Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta var 9.096 milljónir króna árið 2017 samanborið við 7.893 milljónir króna árið 2016.
Fjárfestingarhreyfingar voru 4.586 milljónir króna árið 2017 samanborið við 4.531 milljón króna 2016. Þar af voru fjárfestingar í rekstrarfjármunum 4.791 milljón króna sem er hækkun um 135 milljónir króna frá 2016. Hlutfall fjárfestinga af veltu var 16,9% árið 2017 samanborið við 15,7% árið 2016.

Aðrar fjárfestingarhreyfingar eru jákvæðar um 205 milljónir króna árið 2017 samanborið við 125 milljónir króna árið 2016. Jákvæðar hreyfingar skýrast af breytingum á skuldabréfaeign árið 2017 og sölu á eignarhlutum í dótturfélögum árið 2016.
Handbært fé félagsins lækkaði um tæpa 3 milljarða á árinu sem skýrist af ákvörðun félagsins að nýta handbært fé til lækkunar skulda þegar lán voru endurfjármögnuð um mitt ár.
Síminn
Efnahagur
Heildareignir félagsins voru 60.612 milljónir króna í lok árs 2017 og hafa lækkað um 3.367 milljónir króna frá því í lok árs 2016.
Vaxtaberandi skuldir voru 18.431 milljónir króna í árslok 2017 samanborið við 22.944 milljónir króna í lok árs 2016 og hafa því lækkað um 4.513 milljónir króna á árinu. Hreinar vaxtaberandi skuldir
| 31.12.2017 | 31.12.2016 | |
|---|---|---|
| Fastafjármunir | 52.343 | 52.055 |
| Veltufjármunir | 8.269 | 11.924 |
| Eignir alls | 60.612 | 63.979 |
| Eigið fé | 36.281 | 34.260 |
| Langtímaskuldir | 17.598 | 22.010 |
| Skammttímaskuldir | 6.733 | 7.709 |
| Skuldir og eigið fé alls | 60.612 | 63.979 |
| Eiginfjárhlutfall | 59,9% | 53,5% |
voru 17.713 milljónir króna í lok árs 2017 og lækkuðu um 1.564 milljónir króna frá árslokum 2016. Hlutfall hreinna vaxtaberandi skulda á móti EBITDA ársins var 2,06 og hefur lækkað verulega á undanförnum árum. Markmið félagsins er að áðurnefnt hlutfall sé á bilinu 1,5 til 2,5. Félagið nýtti heimild í skilmálum útgáfulýsingar skuldabréfaflokks SKIPTI 13 01 og greiddi hann upp að fullu þann 5. júlí síðastliðinn. Överðtryggðar skuldir félagsins voru einnig endurfjármagnaðar á sama tíma, sjá nánar í skýringu 22 í ársreikningi.
Eigið fé félagsins var 36.281 milljónir króna í lok árs 2017 og eiginfjárhlutfall félagsins var 59,9%.
Samruni Símans hf. og On-Waves ehf. var staðfestur á þriðja ársfjörðungi og miðast hann við 1. janúar 2017. Þá gerði félagið samkomulag við minnihlutaeigendur í Sensa DK Aps um að þeir tækju yfir rekstur þess félags frá og með lokum nóvember 2017.
Nokkrir nýir alþjóðlegir reikningsskilastaðlar og endurbætur á stöðlum gilda fyrir reikningsár sem hefst eftir 1. janúar 2018 og er heimilt að beita fyrir gildistöku þeirra. Samstæðan hefur ekki nýtt heimildirnar við gerð þessa samstæðureiknings.
Samstæðunni ber að innleiða reikningsskilastaðal IFRS 15 fyrir reikningsár sem hefst 1. janúar 2018 eða síðar. Reikningsskilastaðallinn inniheldur nýja viðmiðun við skráningu tekna og kemur í stað reglna um tekjuskráningar sem áður var að finna í IAS 11 og IAS 18. Búið er að fara yfir núverandi tekjuskráningu samstæðunnar og meta áhrif af innleiðingu staðalsins. Það er mat stjórnenda að áhrifin séu óveruleg og hafi ekki í för með sér breytingar á eigir fé samstæðunnar 1. janúar 2018.
Samstæðunni ber að innleiða reikningsskilastaðal IFRS 16 fyrir reikningsár sem hefjast eftir 1. janúar 2019. Reikningsskilastaðallinn breytir skráningu leigusamninga verulega og kemur í stað reglna um leigusamninga sem áður var að finna í IAS 17. Með nýjum staðli ber að færa rekstrarleigusamninga í efnahagsreikning samstæðunnar sem mun hækka fjárhæðir eigna og skulda. Rekstrarleigusamningar eru nú gjaldfærðir eftir því sem þeir falla til, en eignir og skuldir vegna réttinda og skuldbindinga samstæðunnar samkvæmt slíkum samningum hafa ekki verið færðir í efnahagsreikning. Stjórnendur telja að innleiðing á staðlinum muni hafa umtalsverð áhrif á bæði rekstrar- og efnahagsreikning samstæðunnar. Félagið hefur ekki metið fjárhæðir í þessu samhengi en vísað er í skýringu 27 þar sem fram kemur að leiguskuldbindingar samstæðunnar nema 3.075 milljónum króna í árslok 2017.
Samstæðunni ber að innleiða reikningsskilastaðal IFRS 9 fyrir reikningsár sem hefst 1. janúar 2018 eða síðar. Reikningsskilastaðallinn inniheldur nýja viðmiðun vegna flokkunar og mats fjáreigna, en flokkarnir verða þrír: fjáreignir á kostnaðarverði, fjáreignir á gangvirði gegnum aðra heildarafkomu og fjáreignir á gangvirði gegnum rekstur. Staðallinn gerir nýjar kröfur um
5
Síminn
flokkun og mat á fjármálagerningum sem og nýjar reglur um virðisrýrnun þeirra og auknar kröfur um upplýsingagjóf. Staðallinn kemur í stað reglna sem áður var að finna í IAS 39. Það er mat stjórnenda að upptaka IFRS 9 muni ekki hafa verulegar breytingar í för með sér fyrir samstæðuna.
Á aðalfundi Símans hf. þann 16. mars 2017 var samþykkt tillaga stjórnar félagsins um að lækka hlutafé félagsins til jöfnunar á eigin hlutum. Lækkunin nam 206 m.kr. að nafnverði. Félagið greiddi á árinu arð að fjárhæð 275 milljónir króna til hluthafa sinna. Einnig keypti félagið eigin bréf að nafnvirði 275 milljónir króna í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins, sem samþykkt var á aðalfundi félagsins þann 16. mars 2017. Kaupum samkvæmt endurkaupaáætluninni lauk þann 2. nóvember 2017. Heildarkaupverð var 1.102 milljónir króna og meðalgengi á endurkaupum var 4,01.
Skráð hlutafé félagsins nam í árslok 9.444 milljónum króna en félagið á eigin hluti að nafnverði 197 milljónir króna eða sem nemur 2,08% af hlutafé félagsins. Hlutaféð er í einum flokki, sem skráður er í Kauphöll Íslands og njóta allir hlutir sömu réttinda. Hlutafé í árslok skiptist á 1.124 hluthafa en þeir voru 1.473 í ársbyrjun.
Stjórn félagsins leggur til að 10% af hagnaði ársins, 310 m.kr. verði greiddur út sem arður á árinu 2018 vegna ársins 2017. Þá leggur stjórn félagsins einnig til að farið verði í framkvæmd endurkaupaáætlunar á hlutabréfum í félaginu fyrir fjárhæð sem nemur allt að 40% af hagnaði félagsins á árinu 2017.
Helstu viðburðir á fjórða ársfjörðungi 2017
- Ljósleiðari til heimila á höfuðborgarsvæðinu. Eftir tveggja ára uppbýggingu eiga ríflega 60% heimila á höfuðborgarsvæðinu nú möguleika á ljósleiðara Mílu. Fjöldi heimila með ljósleiðara þrefaldaðist á árinu og hóf Míla að bjóða 1 Gb/s tengingar á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri.
- Meiri hraði á landsbýggðinni. Samhliða lagningu ljósleiðara á höfuðborgarsvæðinu hefur Míla haldið áfram uppbýggingu á landsbýggðinni. Öll heimili í Ólafsvík, Stykkishólmi og á Dalvík voru tengd Ljósneti auk þess sem íbúar Holtahverfis á Ísafirði fengu Ljósnet og lokið var við uppbýggingu Ljósnets í Fjarðabyggð.
- 4G þjónusta til 98,2% landsmanna. 70 nýir háhraðasendar frá Ericsson voru settir upp á árinu 2017. Síminn fékk úthlutað 700 Mhz tíðni í útboði Póst- og fjarskipta-stofnunar og er einn um hana hér á landi. Því lægri tíðni, því meiri drægni. Síminn á nú þrjú landsdekkandi farsímanet og setur nú upp senda sem ná allt að 1 Gb/s hraða.
- Meiri gæði þjónustunnar. Símtölum í þjónustuver Símans fækkaði um 20% milli ára. Árangurinn má fyrst og fremst þakka stöðugleika kerfa og öflugri verkferlum.
- Síminn Pay á markað. Greiða má með Síminn Pay í vel á þriðja hundrað verslunum. SíminnPay appið er í boði fyrir alla, óháð fjarskiptafyrtæki og banka og virkar fyrir öll íslensk debet- og kreditkort. Síminn Pay er ein af afurðum fjártækninnar og gefur fólki færi á að skilja veskið eftir heima. Lausnin gerir sölaðilum kleift að þekkja viðskipta-vini sína betur, bjóða þeim upp á nýjungar og gefur þeim tækifæri til að auka skilvikni í rekstri.
- Stella Blómkvist sló í gegn. Þættirnir um Stellu Blómkvist voru frumsýndir í Sjónvarpi Símans Premium í nóvember. Voru þeir pantaðir 230 þúsund sinnum fram til áramóta.
Síminn
Framtíð Símans í sjónvarpi er björt enda trompin mörg – fram undan er til að mynda þáttaröð gerð eftir bók Yrsu Sigurðardóttur, DNA ásamt The Trip í leikstjórn Baldvins Z.
- Sjónvarp Símans Premium. Vel á fjórða tug þúsunda heimila nutu Sjónvarps Símans Premium í lok árs og fjölgaði áskrifendum um tæpan þriðjung á árinu. Klukkustundum af gæðaefni, m.a. frá CBS, Showtime, Disney, Lucasfilm, 20th Century FOX og NBC Universal, fjölgaði um 1.300 á árinu og voru 7.300 í lok þess.
- Tvennskonar Prenna. Síminn kynnti nýja Prennuleið á markað á ársfjörðungnum með 5 GB fyrir 2.000 krónur til að mæta aukinni samkeppni á farsímamarkaði.
- Ný verslun í Ármúla. Síminn opnaði nýja og stærri verslun í Ármúla í nóvember. Síminn mun einnig opna nýja verslun á Akureyri á næstu víkum og flytur þá af Glerártorgi í miðbæinn.
- 2 fyrir 1 með Símanum. Joe & The Juice, Út í bláinn í Perlunni og Public House voru meðal þeirra fyrirtækja sem buðu viðskiptavinum Símans fyrstu 2 fyrir 1 tilboðin. Allir viðskiptavinir með farsímaþjónustu fá nú meira fyrir minna með Símanum.
Helstu viðburðir það sem af er árinu 2018
- Síminn framúrskarandi fyrirtæki. Síminn er á lista Creditinfo yfir framúrskarandi fyrirtæki. Að þessu sinni komust 2,2% fyrirtækja á lista Creditinfo af þeim rúmlega 38.500 sem skráð eru í hlutafélagaskrá og situr Síminn í 14. sæti stórra fyrirtækja á listanum.
- Síminn og Sensa í samstarf við Verne Global. Síminn, Sensa og Verne Global hafa tekið höndum saman og ætla að bjóða á alþjóðamarkaði eina bestu net- og hýsingaraðstöðu á Íslandi. Síminn flytur fjóra af sex hýsingarsölum sínum í gagnaver Verne Global og Sensa hyggst vikka út og bæta hýsingar- og fagþjónustu sína.
- 10X gagnamagn í farsíma. Síminn tifaldar gagnamagn farsímaáskrifta allra fjölskyldna sem einnig eru með Heimilispakkann. Hvert heimili getur tifaldað gagnamagn allt að sex farsímanúmera. 10x eykur virði fyrir viðskiptavini Símans.
- Síminn býður Spotify Family. Stanslaust stuð verður á heimilum landsmanna sem kjósa að hafa Spotify áskrift hjá Símanum, því frá febrúarmánuði fær öll fjölskyldan aðgang að tónlistarveitunni fyrir eitt verð. Þá streyma farsímaviðskiptavinir Símans Spotify Premium tónlistinni um snjalltækin án þess að það telji af gagnamagninu.
- Síminn valinn fyrirmyndarfyrirtæki í forvörnum. VÍS verðlaunaði Símann á dögunum. Dómnefnd taldi Símann fyrirmyndarfyrirtæki í forvörnum og öryggismálum, að Síminn starfi samkvæmt vottuðu öryggisstjórnunarkerfi og viðhaldi öflugri öryggisvitund sinni með reglubundinni vitundarvakningu.
- Nýtt viðmót í Sjónvarpi Símans. Síminn kynnir á fyrsta ársfjörðungi 2018 nýtt viðmót sjónvarpsbjónustunnar fyrir viðskiptavinum. Viðmótið er hannað af sérfræðingum félagsins og verður öflugra og fjölbreyttara. Til að mynda verður hægt að horfa á Youtube í gegnum það og fá upp texta á ólíkum tungumálum.
- Háhraðasendar í farsíma. Hægt verður að njóta allt að 1 Gb/s hraða um farsímanetið á vormánuðum. Síminn vinnur að því að koma upp öflugum sendum á mannmörgum stöðum. Þá er unnið að því að efla 4G netið með 700 Mhz tíðninni víða á landsbyggðinni sem eykur hraðann mjög.
Síminn
- Gagnamagn í útlöndum lækkar í verði. Vegna hagstæðari reikisamninga lækkar Síminn verð á gagnanotkun í farsíma í fjölda landa um rúm 80% þann 1. mars næstkomandi. Verðið fer úr 575 krónum í 99 krónur fyrir megabætið. Verðlækkunin nær m.a. til Bandaríkjanna, Ástralíu, Kanada, Kína og Ísraels.
Horfur fyrir árið 2018
Spá fyrir árið 2018 gerir ráð fyrir að EBITDA félagsins verði á bilinu 8,4 til 8,8 milljarðar króna. Áætlað er að fjárfestingar verði á bilinu 4,3 til 4,6 milljarðar króna.
Kynningarfundur 20. febrúar 2018
Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn á morgun þriðjudaginn 20. febrúar kl. 8:30 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík.
Á fundinum munu Orri Hauksson forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum.
Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á heimasíðu Símans www.siminn.is/siminn/fjarfestar/fjarhagsupplysingar/uppgjor og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.
Hægt er að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu á vefslóðinni:
https://livestream.com/accounts/11153656/events/8021782/player
Fjárhagsdagatal 2018
- Aðalfundur 2018 15. mars 2018
- Afkoma 1F 2018 26. apríl 2018
- Afkoma 2F 2018 30. ágúst 2018
- Afkoma 3F 2018 25. október 2018
- Ársuppgjör 2018 21. febrúar 2019
- Aðalfundur 2019 21. mars 2019
Nánari upplýsingar um uppgjörð veita:
Orri Hauksson, forstjóri Símans, s. 550-6003 ([email protected])
Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans s. 550-6003 ([email protected])
Síminn hf.
Síminn á og rekur fyrirtækin Síminn, Mílu, Sensa og Radiómiðun. Síminn er stærsta fjarskiptafyrirtæki landsins og veitir viðskiptavinum, bæði einstaklingum og fyrirtækjum, heildstætt vöruframboð á sviði fjarskipta, afþreyingar og upplýsingatækni.