AI assistant
Síminn — Interim / Quarterly Report 2018
Apr 24, 2018
2203_rns_2018-04-24_f25216c3-0582-4070-b3fb-3aee2a7ec62d.pdf
Interim / Quarterly Report
Open in viewerOpens in your device viewer
Síminn
- apríl 2018
Fréttatilkynning: Afkoma Símans hf. á 1F 2018
Tekjur og hagnaður aukast milli ára
- Tekjur á fyrsta ársfjórðungi (1F) 2018 námu 6.874 milljónum króna samanborið við 6.723 milljónir króna á sama tímabili 2017 og hækka því um 151 milljón króna eða 2,2%.
- Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði EBITDA nam 2.231 milljónum króna á 1F 2018 samanborið við 2.099 milljónir króna á sama tímabili 2017 og hækkar því um 132 milljónir króna eða 6,3% frá sama tímabili í fyrra. EBITDA hlutfallið er 32,5% fyrir fyrsta ársfjórðung 2018 en var 31,2% á sama tímabili 2017.
- Hagnaður á 1F 2018 nam 887 milljónum króna samanborið við 774 milljónir króna á sama tímabili 2017.
- Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta nam 2.390 milljónum króna á 1F 2018 en var 2.427 milljónir króna á sama tímabili 2017. Eftir vexti og skatta nam handbært fé frá rekstri 2.043 milljónum króna á 1F 2018 en 2.096 milljónum króna á sama tímabili 2017.
- Vaxtaberandi skuldir námu 17,6 milljórðum króna í lok 1F 2018 en voru 18,4 milljarðar króna í árslok 2017. Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 16,8 milljarðar króna í lok 1F 2018 samanborið við 17,7 milljarðar króna í árslok 2017.
- Hrein fjármagnsgjöld námu 182 milljónum króna á 1F 2018 en voru 207 milljónir króna á sama tímabili 2017. Fjármagnsgjöld námu 241 milljón króna, fjármunatekjur voru 52 milljónir króna og gengishagnaður var 7 milljónir króna.
- Eiginfjárhlutfall Símans hf. var 61,4% í lok 1F 2018 og eigið fé 37,2 milljarðar króna.
Orri Hauksson, forstjóri:
„Árið 2018 fer vel af stað. Tekjur aukast milli ára og afkoma batnar. Sú jákvæða þróun á sér ýmsar skýringar. Yngri viðskiptavinum hefur fjölgað hratt í farsima undanfarna mánuði, sérstaklega vegna velgengni Þrennunnar. Sjónvarpsbjónusta Símans nýtur mikillar hylli hjá krófuhörðum íslenskum neytendum. Breytingarnar á afþreyingarbjónustu félagsins á undanförnum árum hafa haft það að markmiði að auka þægindi og val viðskiptavinarins, meðal annars um það hvenær hann horfir á sjónvarp og hvaða efni hann kýs. Sú stefna hefur hitt í mark, eins og breytt notkunarmynstur á þjónustu okkar sýnir. Stóraukin gagnanotkun erlendra ferðamanna á Íslandi veldur því einnig að reikitekjur hafa náð þeim upphæðum sem þær voru í á sama fjórðungi í fyrra, fyrir roam-like-at-home reglugerðarbreytinguna. Sjóðstregmi samstæðunnar er gott og stendur vel undir fjárfestingum félagsins og breyttum
Síminn
efnahagsreikningi, sem var minnkaður í fyrra þar sem dregið var bæði úr lánsfjármögnun og handbæru fé.
Verð á ýmsum vörum Símans hefur byrjað að þokast upp á við á ný og þannig verða til að mynda vissar verðbreytingar nú um næstu mánaðamót. Eins og þekkt er hafa laun og ýmsir aðrir kostnaðarliðir á Íslandi hækkað hratt undanfarin ár. Þannig hækka samningsbundin laun um 3% enn á ný um næstu mánaðarmót. Áfram skiptir því máli að slaka ekki á kostnaðaraðhaldi í rekstri samstæðunnar og unnið er að frekari einföldun, aflagningu eldri kerfa og mun meiri sjálfvirkni en fyrr.
Uppbygging Mílu á fjarskiptainnviðum landsins heldur áfram á góðum dampi. Nýlega tókst með félaginu og Gagnaveitu Reykjavíkur samkomulag um samvinnu við framkvæmdir, sem eru dýrasti þáttur fjárfestinga í ljósleiðarakerfum. Þetta samstarf mun draga verulega úr kostnaði Mílu við tengingu hvers nýs heimilis. Mögulega munu einnig færast nær okkur í tíma verkefni á ýmsum svæðum, sem ella hefðu beðið.
Íslensk fyrirtæki hafa haldið nokkuð að sér höndum undanfarna mánuði í innkaupum á upplýsingatæknivörum. Sensa varð fyrir áhrifum af þessari sveiflu í fjörðungnum en fastir þjónustusamningar og verkefnastaðan gefa góðar væntingar um framhaldið. Sensa og Síminn eru komin vel af stað með að færa gagnaversþjónustu sína til Verne Global á Suðurnesjum, sem mun spara samstæðunni verulegan rekstrarkostnað í framtíðinni. Eins gefur samstarfið við Verne kost á að selja heimsklassa gagnaversþjónustu inn á nýja markaði, en fyrstu nýju viðskiptavinirnir hafa þegar byrjað að nýta sér þjónustu sem samstæðan veitir út úr fasteignum Verne, byggða á þeim hagstæðu orkusamningum sem Verne gerði við íslenska raforkuframleiðendur fyrir meira en áratug.
Síminn nær nú til nær allra heimila landsins með 4G kerfi sínu og hefur sett upp farsímasenda sem ná 1 Gb/s hraða. Sameinuðu þjóðirnar veittu íslensku þjóðinni nýlega viðurkenningu, þar sem mælingar samtakanna sýna að Ísland er orðið þróaðasta landið í heiminum í fjarskipta- og upplýsingatækni. En það þýðir ekki að við séum komin á endapunkt. Á næstunni mun Síminn til dæmis kynna spennandi nýjungar í sjónvarps- og afþreyingarþjónustu sinni fyrir snjalltæki, auk þess sem dreifing okkar helstu sjónvarpsvara mun fara yfir fleiri net en fyrr. Við lítum því með bjartsýni til næstu missera, hvort sem er fyrir hönd viðskiptavina okkar eða hluthafa.
Helstu niðurstöður í rekstri 1F 2018
Reikningsskilaaðferðir og samþykkt árshlutareiknings
Árshlutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning Símans hf. og dótturfélaga hans. Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34 eins og hann hefur verið samþykktur af Evrópusambandinu. Árshlutareikningur samstæðunnar fyrir tímabilið 1. janúar til 31. mars 2018 er hvorki endurskoðaður né kannaður af endurskoðendum félagsins.
Stjórn og forstjóri félagsins samþykktu árshlutareikninginn og heimiluðu birtingu hans á stjórnarfundi þann 24. apríl 2018.
Síminn
Rekstur
| 1F 2018 | 1F 2017 | Breyting | Breyting % | |
|---|---|---|---|---|
| Rekstrartekjur | 6.756 | 6.602 | 154 | 2,3% |
| Kostnaðarverð sölü | (3.302) | (3.246) | (56) | 1,7% |
| Framlegð | 3.454 | 3.356 | 98 | 2,9% |
| Hlutfall af rekstrartekjum | 51,1% | 50,8% | ||
| Aðrar rekstrartekjur | 118 | 121 | (3) | -2,5% |
| Rekstrarkostnaður | (2.275) | (2.290) | 15 | -0,7% |
| Rekstrarhagnaður | 1.297 | 1.187 | 110 | 9,3% |
| Hlutfall af rekstrartekjum | 19,2% | 18,0% | ||
| Fjármunatekjur | 52 | 135 | (83) | -61,5% |
| Fjármagnsgjöld | (241) | (352) | 111 | -31,5% |
| Gengismunur | 7 | 10 | (3) | -30,0% |
| Hrein fjármagnsgjöld | (182) | (207) | 25 | -12,1% |
| Tekjuskattur | (228) | (206) | (22) | 10,7% |
| Hagnaður tímabils | 887 | 774 | 113 | 14,6% |
| Afskriftir og virðisrýrnun | (934) | (912) | (22) | 2,4% |
| EBITDA | 2.231 | 2.099 | 132 | 6,3% |
| Hlutfall | 32,5% | 31,2% | ||
| EBIT | 1.297 | 1.187 | 110 | 9,3% |
| Hlutfall | 18,9% | 17,7% |
Sala á 1F 2018 nam 6.874 milljónum króna samanborið við 6.723 milljónir króna á sama tímabili árið 2017, sem er 2,2% vöxtur milli ára. Ef leiðrétt er fyrir aflagðri starfsemi er tekjuvöxturinn 3,6%. Tekjur af farsima námu 1.541 milljón króna og lækkuðu um 41 milljón króna eða 2,6% á milli tímabila. Tekjur af gagnaflutningi námu 2.260 milljónum króna og hækkuðu um 188 milljónir króna eða 9,1% á milli tímabila. Tekjur af sjónvarpsþjónustu námu 1.167 milljónum króna og hækkuðu um 161 milljón króna eða 16,0% á milli tímabila. Tekjur af upplýsingatækni námu 702 milljónum króna og lækkuðu um 198 milljónir króna eða 22,0% á milli tímabila.
Um 90 milljónir króna af samdrætti í upplýsingatækni skýrast af sölü Sensa Dk en félagið var selt í lok árs 2017. Annar samdráttur er meðal annars tilkominn vegna lækkuðar á vörusölü tengt upplýsingatækni en sala þar er mjög breytileg eftir tímabilum. Hlutur gagnaflutnings og sjónvarpsþjónustu af heildartekjum félagsins heldur áfram að stækka og er nú rétt um helmingur af tekjum samstæðunnar.
Framlegð á 1F 2018 nam 3.454 milljónum króna og hækkaði um 98 milljónir króna eða 2,9% frá sama tímabili árið 2017. Rekstrarkostnaður nam 2.275 milljónum króna og lækkaði um 15 milljónir króna eða 0,7% frá sama tímabili árið 2017.
Rekstrarhagnaður félagsins fyrir afskriftir og fjármagnsliði EBITDA var 2.231 milljónir króna á 1F 2018 en var 2.099 milljónir króna á sama tímabili árið 2017 og hækkaði því um 132 milljónir króna milli tímabila eða um 6,3%. EBITDA hlutfallið er 32,5% en var 31,2% á sama tímabili árið 2017.
Afskriftir félagsins námu 934 milljónum króna á 1F 2018 samanborið við 912 milljónir króna á sama tímabili árið 2017.
Hrein fjármagnsgjöld voru 182 milljónir króna á 1F 2018 og lækkuðu um 25 milljónir króna á milli tímabila.
Síminn
Hagnaður tímabilsins nam 887 milljónum króna samanborið við 774 milljónir króna á sama tímabili árið 2017.
Sjóðstreymi
Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta var 2.390 milljónir króna á 1F 2018 samanborið við 2.427 milljónir króna á sama tímabili árið 2017. Eftir vexti og skatta nam handbært fé frá rekstri 2.043 milljónir króna á 1F 2018 samanborið við 2.096 milljónir króna á sama tímabili árið 2017.
Fjárfestingarhreyfingar voru 1.154 milljónir króna á 1F 2018 samanborið við 1.040 milljónir króna á sama tímabili árið 2017. Þar af voru fjárfestingar í rekstrarfjármunum CAPEX 1.182 milljónir króna sem er hækkun um 135 milljónir króna frá sama tímabili árið 2017. Hlutfall fjárfestinga af veltu var 17,2% á 1F 2018 samanborið við 15,6% á sama tímabili árið 2017.

Efnahagur
Heildareignir félagsins námu 60.554 milljónum króna í lok 1F 2018 en voru 60.612 milljónir króna í lok árs 2017.
Vaxtaberandi skuldir voru 17.643 milljónir króna í lok 1F 2018 samanborið við 18.431 milljón króna í lok árs 2017. Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 16.838 milljónir króna í lok fyrsta ársfjórðungs og lækkuðu um 875 milljónir króna frá árslokum 2017. Hlutfall hreinna vaxtaberandi skulda á móti EBITDA síðastliðinna tólf mánaða var 1,93. Markmið félagsins er að hlutfallið sé á bilinu 1,5 til 2,5.
| 31.3.2018 | 31.12.2017 | |
|---|---|---|
| Fastafjármunir | 52.511 | 52.343 |
| Veltufjármunir | 8.043 | 8.269 |
| Eignir alls | 60.554 | 60.612 |
| Eigið fé | 37.174 | 36.281 |
| Langtimaskuldir | 17.296 | 17.598 |
| Skammtímaskuldir | 6.084 | 6.733 |
| Skuldir og eigið fé alls | 60.554 | 60.612 |
| Eiginfjárhlutfall | 61,4% | 59,9% |
Eigið fé félagsins nam 37.174 milljónum króna í lok fyrsta ársfjórðungs og eiginfjárhlutfall félagsins var 61,4%.
Helstu atburðir á 1F 2018
- Enn fleiri heimili með möguleika á ljósleiðara Mílu. Um 54 þúsund heimili á höfuðborgarsvæðinu geta nú fengið aðgang að ljósleiðarakerfi Mílu ásamt því að Míla mun eignast og reka ljósleiðarakerfi í nokkrum sveitarfélögum á landsbyggðinni.
- Hraðara 4G net. Fyrstu 4,5G+ sendarnir voru settir upp á höfuðborgarsvæðinu sem skila allt að 1 Gb/s hraða ásamt því að 4G kerfið var þétt á landinu öllu með uppsetningum á nýjum sendum.
- Fjölskyldan öll nýtur nú Spotify Premium. Síminn setti Spotify Family á markað en með áskriftinni geta allt að sex notendur verið undir einni áskrift og þannig hætt að
Síminn
deila einni áskrift. Streymi á Spotify telur svo ekki af inni fõldu gagnamagni hjá viðskiptavinum Símans með farsima.
- VÍS verðlaunar Símann. Síminn hlaut forvarnarverðlaun VÍS sem endurspeglar þá miklu vinnu sem Síminn hefur lagt í forvarnir og öryggi. Síminn starfar samkvæmt vottuðu öryggisstjórnunarkerfi og heldur reglubundnar vitundarvakningarkynningar fyrir alla starfsmenn.
- Prenna sækir í sig veðrið. Farsímaleiðin Prenna hefur verið á miklu flugi og þá sérstaklega hjá yngri kynslóðinni enda mikið innifalið gagnamagn í áskriftarleiðinni sem hentar þeim vel.
- Síminn Pay og Verifone í samstarf. Um 200 sölustaðir taka á móti greiðslum í gegnum Síminn Pay í dag en með samstarfinu við Verifone kemst Síminn Pay í enn fleiri posa og innleiðing Síminn Pay við greiðslukerfi verður enn einfaldari.
Horfur
Spá fyrir árið 2018 er óbreytt og gerir ráð fyrir að EBITDA félagsins verði á bilinu 8,4 til 8,8 milljarðar króna. Áætlað er að fjárfestingar verði á bilinu 4,3 til 4,6 milljarðar króna.
Kynningarfundur 25. apríl 2018
Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn á morgun miðvikudaginn 25. apríl kl. 8:30 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík.
Á fundinum munu Orri Hauksson forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum.
Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á heimasíðu Símans
www.siminn.is/forsida/siminn/fjarfestar/fjarhagsupplysingar/uppgjor
og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.
Hægt er að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu á vefslóðinni:
https://livestream.com/accounts/11153656/events/8151236/player
Fjárhagsdagatal 2018
- Afkoma 2F 2018 30. ágúst 2018
- Afkoma 3F 2018 25. október 2018
- Ársuppgjör 2018 21. febrúar 2019
- Aðalfundur 2019 21. mars 2019
Nánari upplýsingar um uppgjórið veita:
Orri Hauksson, forstjóri Símans, s. 550 6003 ([email protected])
Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans s. 550 6003 ([email protected])
Síminn hf.
Síminn á og rekur fyrirtækin Símann, Mílu, Sensa og Radiómiðun. Síminn er stærsta fjarskiptafyrirtæki landsins og veitir viðskiptavinum, bæði einstaklingum og fyrirtækjum, heildstætt vöruframboð á sviði fjarskipta, afþreyingar og upplýsingatæki.