Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Síminn Interim / Quarterly Report 2018

Aug 28, 2018

2203_rns_2018-08-28_a20f63d9-cda8-4808-a232-e4e7f7ef6600.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

{# SEO P0-1: filing HTML is rendered server-side so Googlebot sees the full text without executing JS or following an iframe to a Disallow'd CDN path. The content has already been sanitized through filings.seo.sanitize_filing_html. #}

Síminn

  1. ágúst 2018

Fréttatilkynning: Afkoma Símans hf. á 2F 2018

Hagnaður eykst milli ára

  • Tekjur á öðrum ársfjórðungi (2F) 2018 námu 7.153 milljónum króna samanborið við 7.254 milljónir króna á sama tímabili 2017. Leiðrétt fyrir seldri starfsemi eru tekjur nánast óbreyttar á milli ára.
  • Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði EBITDA nam 2.216 milljónum króna á 2F 2018 samanborið við 2.191 milljónir króna á sama tímabili 2017 og hækkar því um 25 milljónir króna eða 1,2% frá sama tímabili í fyrra. EBITDA hlutfallið er 31,0% fyrir annan ársfjórðung 2018 en var 30,2% á sama tímabili 2017.
  • Hagnaður á 2F 2018 nam 853 milljónum króna samanborið við 790 milljónir króna á sama tímabili 2017.
  • Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta nam 2.118 milljónum króna á 2F 2018 en var 1.986 milljónir króna á sama tímabili 2017. Eftir vexti og skatta nam handbært fé frá rekstri 1.768 milljónum króna á 2F 2018 en 1.864 milljónum króna á sama tímabili 2017.
  • Vaxtaberandi skuldir námu 17,9 milljórðum króna í lok 2F 2018 en voru 18,4 milljarðar króna í árslok 2017. Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 17,7 milljarðar króna í lok 2F 2018 og eru óbreyttar frá árslokum 2017.
  • Hrein fjármagnsgjöld námu 190 milljónum króna á 2F 2018 en voru 258 milljónir króna á sama tímabili 2017. Fjármagnsgjöld námu 240 milljónum króna, fjármunatekjur voru 52 milljónir króna og gengistap var 2 milljónir króna.
  • Eiginfjárhlutfall Símans hf. var 60,8% í lok 2F 2018 og eigið fé 36,5 milljarðar króna.

Orri Hauksson, forstjóri:

„Við erum ánægð með áframhaldandi rekstrarbata samstæðunnar á öðrum ársfjórðungi. Framlegð eykst lítillega miðað við fyrra ár og rekstrarkostnaður heldur áfram að þokast niður. Niðurstaðan batnar þannig á fyrri árshelmingi í heild.

Reikitekjur og umferð í farsíma voru heldur lægri í vor en í upphafi árs. Sjónvarp, internet og upplýsingatækni áttu hins vegar prýðis fjórðung. Þá er sérstaklega ánægjulegt að minnast á árangur þrennunnar sem gekk mjög vel á fjórðungnum. Við sjáum þar sífellt fleiri unga viðskiptavini koma til Símans í farsímaviðskipti. Sveiflur í fjarskiptatekjum innan ársins hafa minnkað undanfarin ár með breyttu vóruframboði og sjónvarpsvörur félagsins eru nú eftirsóttar allan ársins hring, einnig um hásumar. Á þriðja ársfjórðungi kynntum við nýja lausn til leiks, Sjónvarps Símans fyrir alla, sem mun tryggja að allir landsmenn geta nálgast áskriftarþjónustu Símans óháð neti. Dótturfyrirtæki Símans skiluðu einnig jákvæðri niðurstöðu


Síminn

bar sem tekjur af bjónustu Sensa í upplýsingatækni jukust frá fyrri fjórðungi, en þær sveiflast iðulega innan árs. Míla náði góðum árangri í að ná stórum nýjum viðskiptum.

Framkvæmdastigið í landinu er hátt um þessar mundir og fjárfestingar samstæðunnar á tímabilinu eru umtalsverðar, ekki síst í innviðum sem duga munu áratugum saman. Uppbygging á ljósleiðara Mílu á höfuðborgarsvæðinu heldur áfram og nú er áherslan á að deila kostnaði með Gagnaveitu Reykjavíkur þar sem því er komið við. Til viðbótar er Míla að opna á nýjar ljósleiðaratengingar viða um land þar sem verklegar framkvæmdir fara fram. Eftir að hafa náð toppi á síðasta ári lækka heildarfjárfestingar samstæðunnar hins vegar rólega frá og með þessu ári.

Undanfarin ár hefur áherslan í rekstri verið að einfalda samstæðuna, fækka vörum og auka sjálfvirkni. Einingum hefur verið spyrt saman með hagkvæmari hætti en fyrr og aðgerðum er útvistað sem ekki teljast til kjarnastarfsemi. Við innleiddum persónuverndarlöggjöf Evrópusambandsins í vor og geta viðskiptavinir samstæðunnar nú með hraðvirkari hætti fengið til sín þær upplýsingar um sig sem til eru hér innanhúss. Kröfuharðir íslenskir neytendur vilja geta afgreitt sig sem mest sjálfir og fá fyrirsjáanlega og skýra reikninga. Við höfum treyst í sessi verkefni sem lúta að upplífun viðskiptavinarins með sérstöku verkefnateymi um stafræna þróun. Þar mun samstarf okkar við hinn alþjóðlega fjarskiptarisa Telefonica veitir okkur góða leiðsögn í nokkrum lykil langtíma stefnumiðum okkar, svo sem að fækka þjónustusimtölum enn frekar, halda áfram að auka stöðugleika kerfa og lækka kostnað við tæknirekstur.

Helstu niðurstöður í rekstri á fyrstu sex mánuðum 2018

Reikningsskilaaðferðir og samþykkt árshlutareiknings

Árshlutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning Símans hf. og dótturfélaga hans. Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34 eins og hann hefur verið samþykktur af Evrópusambandinu.

Stjórn og forstjóri félagsins samþykktu árshlutareikninginn og heimiluðu birtingu hans á stjórnarfundi þann 28. ágúst 2018.


Síminn

Rekstur

1H 2018 1H 2017 Breyting Breyting %
Rekstrartekjur 13.677 13.747 ( 70) -0,5%
Kostnaðarverð sölü ( 6.912) ( 6.933) 21 -0,3%
Framlegð 6.765 6.814 ( 49) -0,7%
Hlutfall af rekstrartekjum 49,5% 49,6%
Aðrar rekstrartekjur 350 230 120 52,2%
Rekstrarkostnaður ( 4.555) ( 4.579) 24 -0,5%
Rekstrarhagnaður 2.560 2.465 95 3,9%
Hlutfall af rekstrartekjum 18,7% 17,9%
Fjármunatekjur 104 269 ( 165) -61,3%
Fjármagnsgjöld ( 481) ( 742) 261 -35,2%
Gengismunur 5 8 ( 3) -37,5%
Hrein fjármagnsgjöld ( 372) ( 465) 93 -20,0%
Tekjuskattur ( 448) ( 436) ( 12) 2,8%
Hagnaður tímabilsins 1.740 1.564 176 11,3%
Afskriftir ( 1.887) ( 1.825) ( 62) 3,4%
EBITDA 4.447 4.290 157 3,7%
Hlutfall 31,7% 30,7%
EBIT 2.560 2.465 95 3,9%
Hlutfall 18,3% 17,6%

Tekjur á 1H 2018 námu 14.027 milljónum króna samanborið við 13.977 milljónir króna á sama tímabili árið 2017, sem er 0,4% vöxtur milli ára. Ef leiðrétt er fyrir seldri starfsemi er tekjuvöxturinn 1,6%. Tekjur af farsíma námu 3.038 milljónum króna og lækkuðu um 166 milljónir króna eða 5,2% á milli tímabila. Tekjur af talsímaþjónustu námu 961 milljónum króna og lækkuðu um 99 milljónir króna eða 9,3% á milli tímabila. Tekjur af gagnaflutningi námu 4.624 milljónum króna og hækkuðu um 439 milljónir króna eða 10,5% á milli tímabila. Tekjur af sjónvarpsþjónustu námu 2.309 milljónum króna og hækkuðu um 284 milljónir króna eða 14,0% á milli tímabila. Tekjur af upplýsingatækni námu 1.582 milljónum króna og lækkuðu um 607 milljónir króna eða 27,7% á milli tímabila.

Um 170 milljónir króna af samdrætti í upplýsingatækni skýrast af sölu Sensa DK en félagið var selt í lok árs 2017. Annar samdráttur er tilkominn vegna lækkuðar á vörusölu tengt upplýsingatækni en sala þar er mjög breytileg eftir tímabilum. Hlutur gagnaflutnings og sjónvarpsþjónustu af heildartekjum félagsins heldur áfram að stækka og er nú rétt um helmingur af tekjum samstæðunnar.

Framlegð á 1H 2018 nam 6.765 milljónum króna og lækkaði um 49 milljónir króna eða 0,7% frá sama tímabili árið 2017. Rekstrarkostnaður nam 4.555 milljónum króna og lækkaði um 24 milljónir króna eða 0,5% frá sama tímabili árið 2017.

Rekstrarhagnaður félagsins fyrir afskriftir og fjármagnsliði EBITDA var 4.447 milljónir króna á 1H 2018 en var 4.290 milljónir króna á sama tímabili árið 2017 og hækkaði því um 157 milljónir


Síminn

króna milli tímabila eða um 3,7%. EBITDA hlutfallið er 31,7% en var 30,7% á sama tímabili árið 2017.

Afskriftir félagsins námu 1.887 milljónum króna á 1H 2018 samanborið við 1.825 milljónir króna á sama tímabili árið 2017.

Hrein fjármagnsgjöld voru 372 milljónir króna á 1H 2018 og lækkuðu um 93 milljónir króna á milli tímabila.

Hagnaður tímabilsins nam 1.740 milljónum króna samanborið við 1.564 milljónir króna á sama tímabili árið 2017 og hækkar hagnaður því um 176 milljónir króna milli tímabila eða um 11,3%.

Sjóðstreymi

Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta var 4.508 milljónir króna á 1H 2018 samanborið við 4.413 milljónir króna á sama tímabili árið 2017. Eftir vexti og skatta nam handbært fé frá rekstri 3.811 milljónum króna á 1H 2018 samanborið við 3.960 milljónir króna á sama tímabili árið 2017. Greiddir skattar hækka um 297 milljónir króna milli tímabila.

Fjárfestingarhreyfingar voru 2.286 milljónir króna á 1H 2018 samanborið við 2.443 milljónir króna á sama tímabili árið 2017 og lækka um 157 milljónir króna milli tímabila. Þar af voru fjárfestingar í rekstrarfjármunum CAPEX 2.288 milljónir króna sem er lækkuð um 176 milljónir króna frá sama tímabili árið 2017. Hlutfall fjárfestinga af veltu var 16,3% á 1H 2018 samanborið við 17,6% á sama tímabili árið 2017.

Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta

img-0.jpeg

Efnahagur

Heildareignir félagsins námu 60.042 milljónum króna í lok 1H 2018 en voru 60.612 milljónir króna í lok árs 2017.

Vaxtaberandi skuldir voru 17.930 milljónir króna í lok 1H 2018 samanborið við 18.431 milljónir króna í lok árs 2017. Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 17.747 milljónir króna í

30.6.2018 31.12.2017
Fastafjármunir 52.976 52.343
Veltufjármunir 7.066 8.269
Eignir alls 60.042 60.612
Eigið fé 36.480 36.281
Langtímaskuldir 17.014 17.598
Skammtímaskuldir 6.548 6.733
Skuldir og eigið fé alls 60.042 60.612
Eiginfjárhlutfall 60,8% 59,9%

lok annars ársfjörðungs og eru nær óbreyttar frá árslokum 2017. Hlutfall hreinna vaxtaberandi skulda á móti EBITDA síðastliðna tólf mánuði var 2,02. Markmið félagsins er að hlutfallið sé á bilinu 1,5 til 2,5.

Eigið fé félagsins nam 36.480 milljónum króna í lok annars ársfjörðungs og eiginfjárhlutfall félagsins var 60,8%.


Síminn

Helstu atburðir á 2F 2018

  • Áskrifendur að Sjónvarpi Símans Premium, efnisveitunni okkar slógu öll áhorfsmet. Fjölbreytt úrval og stöðug endurnýjun á efni gerði það að verkum að áhorfsmet var slegið í hverjum mánuði.
  • Síminn steig stór skref í sjálfvirknivæðingu og hóf þarkavæðingu fyrir alvoru. Tæknin getur þannig unnið flókin og tímafrek verk á nokkrum sekúndum og með beinum hætti skilað bættum rekstri og ánægðari viðskiptavinum.
  • Síminn Pay stytti raðir í efstu deild. Í stað þess að bíða í röð gátu allir notendur Símans Pay smáforritsins greitt sig inn á knattsprýnuvelli án þess að bíða í röð.
  • Viðskiptavinir Símans með farsíma fáð þætti í símann. Þættir í símann veita öllum farsímanotendum Símans aðgang að úrvali efnis úr Sjónvarpi Símans Premium sem hluta af áskriftarkjörum þeirra.
  • Samskiptasáttmáli Símans. Starfsfólk Símans tók höndum saman og samþykkti sameiginlegan sáttmála gegin einelti og áreitni og stuðla að gagnkvæmri virðingu, trausti og fagmennsku.
  • Á þriðja ársfjörðungi varð Sjónvarp Símans opið fyrir alla, óháð neti. Á 2F kynntum við nýja vöru sem fór á markað á 3F en myndlykill Símans getur nú fært Sjónvarp Símans Premium heim í stofu óháð neti og er þannig fyrir alla. Virkar þjónusta hvort sem er yfir ljósleiðara, kopar eða farsímakerfi.
  • GR samstarf. Í apríl gerðu Míla og Gagnaveita Reykjavíkur með sér samkomulag um samstarf við lagningu ljósleiðara til um 4.200 heimila á höfuðborgarsvæðinu. Með samstarfinu næst meiri hagræðing með því að koma í veg fyrir tvíverknað, verktími styttist og jarðrask verður minna. Svæðin sem um ræðir eru í Garðabæ, Hafnafirði og Mosfellsbæ. Þá hafa svæði í Borgarnesi og Ásbrú bæst við verkefnið.
  • Uppbygging nýs burðarnets fyrir Kópavogsbæ. Míla hefur unnið að stóru verkefni við uppbyggingu á nýju burðarneti fyrir Kópavogsbæ. Verkefnið sem boðið var út í lok síðasta árs felur í sér samtengingu og tvitenningar lykil fjarskiptastaða og stofnana bæjarins.
  • Tilkynnt um ljósleiðara Mílu á Selfossi og í Reykjanesbæ. Í byrjun maí var tilkynnt um að opnað yrði fyrir pantanir á ljósleiðaratengingum til um 1.500 heimila í Reykjanesbæ og á Selfossi í lok júli. Um er að ræða heimili þar sem þegar eru til staðar rör inn í hús og aðeins á eftir að koma ljósleiðarastreng fyrir.
  • Dreifbýli. Míla hefur haft fjölþætta aðkomu að uppbyggingu ljósleiðara í dreifbýli hjá sveitafélögum við um land. Þau helstu eru Skagafjörður, Húnaping vestra, Snæfellsnes, Rangárþing Eystra og Grímsnes- og Grafningshreppur. Aðkoma Mílu er margvísleg, allt frá rágjóf og hönnun kerfa, upp í lagningu strengja í jörð.

Síminn

Horfur

Spá fyrir árið 2018 er óbreytt og gerir ráð fyrir að EBITDA félagsins verði á bilinu 8,4 til 8,8 milljarðar króna. Áætlað er að fjárfestingar verði á bilinu 4,3 til 4,6 milljarðar króna.

Kynningarfundur 29. ágúst 2018

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn á morgun miðvikudaginn 29. ágúst kl. 8:30 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík.

Á fundinum munu Orri Hauksson forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum.

Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á heimasíðu Símans

www.siminn.is/forsida/siminn/fjarfestar/fjarhagsupplysingar/uppgjor

og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.

Hægt er að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu á vefslóðinni:

https://livestream.com/accounts/11153656/events/8330642/player

Fjárhagsdagatal 2018

  • Afkoma 3F 2018 30. október 2018
  • Ársuppgjör 2018 26. február 2019
  • Aðalfundur 2019 21. mars 2019

Nánari upplýsingar um uppgjörð veita:

Orri Hauksson, forstjóri Símans, s. 550 6003 ([email protected])

Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans s. 550 6003 ([email protected])

Síminn hf.

Síminn á og rekur fyrirtækin Síminn, Mílu, Sensa, Farsímagreiðslur og Radiómiðun. Síminn er stærsta fjarskiptafyrirtæki landsins og veitir viðskiptavinum, bæði einstaklingum og fyrirtækjum, heildstætt vöruframboð á sviði fjarskipta, afþreyingar og upplýsingatækni.