Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Síminn Interim / Quarterly Report 2018

Oct 30, 2018

2203_rns_2018-10-30_4e57a2e6-cc8b-47ec-9d28-ac656cdb0eca.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

{# SEO P0-1: filing HTML is rendered server-side so Googlebot sees the full text without executing JS or following an iframe to a Disallow'd CDN path. The content has already been sanitized through filings.seo.sanitize_filing_html. #}

Síminn

  1. október 2018

Fréttatilkynning: Afkoma Símans hf. á 3F 2018

Sterkur fjórðungur hjá Símanum

  • Tekjur á þriðja ársfjórðungi (3F) 2018 námu 6.969 milljónum króna samanborið við 6.956 milljónir króna á sama tímabili 2017. Leiðrétt fyrir seldri starfsemi hækka tekjur um 51 milljón króna á milli ára.
  • Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði EBITDA nam 2.397 milljónum króna á 3F 2018 samanborið við 2.387 milljónir króna á sama tímabili 2017 og hækkar því um 10 milljónir króna eða 0,4% frá sama tímabili í fyrra. EBITDA hlutfallið er 34,4% fyrir þriðja ársfjórðung 2018 en var 34,3% á sama tímabili 2017.
  • Hagnaður á 3F 2018 nam 978 milljónum króna samanborið við 905 milljónir króna á sama tímabili 2017.
  • Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta nam 2.515 milljónum króna á 3F 2018 en var 2.618 milljónir króna á sama tímabili 2017. Eftir vexti og skatta nam handbært fé frá rekstri 2.266 milljónum króna á 3F 2018 en 2.178 milljónum króna á sama tímabili 2017.
  • Vaxtaberandi skuldir námu 17,1 milljarði króna í lok 3F 2018 en voru 18,4 milljarðar króna í árslok 2017. Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 16,5 milljarðar króna í lok 3F 2018 og lækka um 1,2 milljarða króna frá árslokum 2017.
  • Hrein fjármagnsgjöld námu 211 milljónum króna á 3F 2018 en voru 315 milljónir króna á sama tímabili 2017. Fjármagnsgjöld námu 246 milljónum króna, fjármunatekjur voru 49 milljónir króna og gengistap var 14 milljónir króna.
  • Eiginfjárhlutfall Símans hf. var 62,1% í lok 3F 2018 og eigið fé 37,6 milljarðar króna.

Orri Hauksson, forstjóri:

„Við erum ánægð með að geta greint frá því að rekstur Símasamstæðunnar gengur prýðilega á flestum sviðum. Samkeppnin um íslenska neytendur hefur sjaldan verið harðari, en viðskiptavinum fjölgar áfram milli ársfjórðunga. Sjónvarpafurðir okkar njóta sérstakrar hylli og eins skipta talvert fleiri farsímanotendur yfir til Símans um þessar mundir en þeir sem fara frá okkur. Sérstaklega er gleðiilegt að bjóða yngri viðskiptavini velkomna, sem nýta sér krakkakort og fyrirfram greiddu lausnina Þrennu. Internet viðskiptavinum hefur jafnframt fjölgað og gagnanotkun eykst jafnt og þétt, hvort sem er í farsíma eða fastlínu. Upplýsingatæknihluti samstæðunnar átti góðan fjórðung og Míla heldur áfram að byggja upp ljósleiðaranet sitt á hagkvæman hátt.

Vegna góðs gengis í kjarnavörum okkar í smásölu aukast tekjur, EBITDA og hagnaður samstæðunnar lítillega í heild á milli ára á þriðja ársfjórðungi, þrátt fyrir að reiki og heildsala


Síminn

dragist saman. Eins vaxa tekjur, EBITDA og hagnaður á árinu í heild. Tekjur af upplýsingatækni eru sveiflukenndar innan ársins sem fyrr, en jukust hjá Sensa á þriðja ársfjörðungi. Þá er verkefnastaða Sensa sterk það sem eftir lifir árs. Uppbygging Mílu á ljósleiðarakerfi sínu gengur markvisst fyrir sig og eru viðskiptavinir færðir yfir á nýjar tengingar með hagkvæmum og stöðugum hætti í hverri viku. Slík breyting einfaldar rekstrarumhverfi samstæðunnar og lækkar rekstrarkostnað til lengri tíma. Næstu ár verða nýtt til tryggja framtíðargæði tenginga á landinu öllu. Bitahraðar til heimila og fyrirtækja verða á heimsmælikvarða, en á meðan uppbyggingin fer fram munum við áfram sinna þörfum viðskiptavina með prýði.

Auglýsingar í miðlum Símans taka nú mið af nýrri tækni og hegðunarbreytingum nútimasamfélags. Minna er selt en áður inn í almennar sjónvarpsútsendingar, en slíkar aðferðir eru almennt teknar að dala í vestrænum heimi, auk þess sem fjölmiðlarekstur ríkisins nýtur yfirburðastöðu á Íslandi í línulegum auglýsingum. Nú er tæpur helmingur auglýsingatekna Símans fenginn með aðferðafræði sem ekki var til í sjónvarpi fyrir þremur árum, en sem samfélagsmiðlar hafa löngum beislað með árangursríkum hætti. Þannig sjá mismunandi markhópar ólíkar ólínulegar auglýsingar. Fyrirhugað er að tengja auglýsingar í sjónvarpskerfum Símans við sömu viðskiptavini út fyrir sjónvarpskerfið í framtíðinni, svo sem í vinsæl forrit í farsíma og tölvum.

Rekstrarkostnaður samstæðunnar helst í vel viðunandi horfi á fjörðungnum, en í spilunum eru hækkanir ýmissa aðfanga. Kostnaður er í stöðugri endurskoðun hjá okkur og við sjáum áfram tækifæri í að draga úr ýmsum kostnaði til mótvægis við gengis- og launabreytingar.

Helstu niðurstöður í rekstri á fyrstu níu mánuðum 2018

Reikningsskilaaðferðir og samþykkt árshlutareiknings

Árshlutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning Símans hf. og dótturfélaga hans. Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34 eins og hann hefur verið samþykktur af Evrópusambandinu.

Stjórn og forstjóri Símans hf. hafa í dag fjallað um árshlutareikning félagsins fyrir tímabilið 1. janúar til 30. september 2018 og staðfesta hann með undirritun sinni.


Síminn

Rekstur

9M 2018 9M 2017 Breyting Breyting %
Rekstrartekjur 20.505 20.603 ( 98) -0,5%
Kostnadarverð sól ( 10.283) ( 10.313) 30 -0,3%
Framlegð 10.222 10.290 ( 68) -0,7%
Hlutfall af rekstrartekjum 49,9% 49,9%
Aðrar rekstrartekjur 491 330 161 48,8%
Rekstrarkostnadar ( 6.711) ( 6.692) ( 19) 0,3%
Rekstrarhagnaður 4.002 3.928 74 1,9%
Hlutfall af rekstrartekjum 19,5% 19,1%
Fjármunatekjur 153 343 ( 190) -55,4%
Fjármagnsgjöld ( 727) ( 1.135) 408 -35,9%
Gengismunur ( 9) 12 ( 21) -175,0%
Hrein fjármagnsgjöld ( 583) ( 780) 197 -25,3%
Tekjuskattur ( 701) ( 679) ( 22) 3,2%
Hagnaður tímabils 2.718 2.469 249 10,1%
Afskriftir ( 2.842) ( 2.749) ( 93) 3,4%
EBITDA 6.844 6.677 167 2,5%
Hlutfall 32,6% 31,9%
EBIT 4.002 3.928 74 1,9%
Hlutfall 19,1% 18,8%

Tekjur á fyrstu 9 mánuðum 2018 námu 20.996 milljónum króna samanborið við 20.933 milljónir króna á sama tímabili árið 2017, sem er 0,3% vöxtur milli ára. Ef leiðrétt er fyrir seldri starfsemi er tekjuvöxturinn 1,3%. Tekjur af farsíma námu 4.643 milljónum króna og lækkuðu um 383 milljónir króna eða 7,6% á milli tímabila. Tekjur af talsímaþjónustu námu 1.427 milljónum króna og lækkuðu um 137 milljónir króna eða 8,8% á milli tímabila. Tekjur af gagnaflutningi námu 6.777 milljónum króna og hækkuðu um 404 milljónir króna eða 6,3% á milli tímabila. Tekjur af sjónvarpsbjónustu námu 3.499 milljónum króna og hækkuðu um 469 milljónir króna eða 15,5% á milli tímabila. Tekjur af upplýsingatækni námu 2.443 milljónum króna og lækkuðu um 521 milljónir króna eða 17,6% á milli tímabila. 209 milljónir króna af samdrætti í upplýsingatækni skýrast af sól. Sensa DK en félagið var selt í lok árs 2017. Annar samdráttur í upplýsingatækni er tilkominn vegna lækkuðar á vörusölu en sala þar er mjög breytileg eftir tímabilum. Hlutur gagnaflutnings og sjónvarpsbjónustu af heildartekjum félagsins heldur áfram að stækka og er nú rétt um helmingur af tekjum samstæðunnar.

Framlegð á fyrstu 9 mánuðunum 2018 nam 10.222 milljónum króna og lækkaði um 68 milljónir króna eða 0,7% frá sama tímabili árið 2017. Þar af er hækkuð á afskriftum hjá Milu 105 milljónir króna. Rekstrarkostnadar nam 6.711 milljónum króna og hækkaði um 19 milljónir króna eða 0,3% frá sama tímabili árið 2017.

Rekstrarhagnaður félagsins fyrir afskriftir og fjármagnsliði EBITDA var 6.844 milljónir króna á fyrstu 9 mánuðunum 2018 en var 6.677 milljónir króna á sama tímabili árið 2017 og hækkaði


Síminn

pví um 167 milljónir króna milli tímabila eða um 2,5%. EBITDA hlutfallið er 32,6% en var 31,9% á sama tímabili árið 2017.

Afskriftir félagsins námu 2.842 milljónum króna á fyrstu 9 mánuðum 2018 samanborið við 2.749 milljónir króna á sama tímabili árið 2017.

Hrein fjármagnsgjöld voru 583 milljónir króna á fyrstu 9 mánuðum 2018 og lækkuðu um 197 milljónir króna á milli tímabila.

Hagnaður tímabilsins nam 2.718 milljónum króna samanborið við 2.469 milljónir króna á sama tímabili árið 2017 og hækkar hagnaður um 249 milljónir króna milli tímabila eða um 10,1%.

Sjóðstreymi

Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta var 7.023 milljónir króna á fyrstu 9 mánuðum 2018 samanborið við 7.031 milljónir króna á sama tímabili árið 2017. Eftir vexti og skatta nam handbært fé frá rekstri 6.077 milljónum króna á fyrstu 9 mánuðum 2018 samanborið við 6.138 milljónir króna á sama tímabili árið 2017. Greiddir skattar hækka um 343 milljónir króna milli tímabila.

Fjárfestingarhreyfingar voru 3.478 milljónir króna á fyrstu 9 mánuðum 2018 samanborið við 3.726 milljónir króna á sama tímabili árið 2017 og lækka um 248 milljónir króna milli tímabila. Þar af voru fjárfestingar í rekstrarfjármunum CAPEX 3.480 milljónir króna sem er lækkuð um 339 milljónir króna frá sama tímabili árið 2017. Hlutfall fjárfestinga af veltu var 16,6% á fyrstu 9 mánuðum 2018 samanborið við 18,2% á sama tímabili árið 2017.

Handbært fé frá rekstri án
vaxta og skatta

img-0.jpeg

Efnahagur

Heildareignir félagsins námu 60.569 milljónum króna í lok þriðja ársfjórðungs 2018 en voru 60.612 milljónir króna í lok árs 2017.

Vaxtaberandi skuldir voru 17.068 milljónir króna í lok þriðja ársfjórðungs 2018 samanborið við 18.431 milljónir króna í lok árs 2017. Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 16.498 milljónir króna í lok þriðja ársfjórðungs og lækka um 1.215 frá árslokum 2017. Hlutfall hreinna vaxtaberandi skulda á móti EBITDA síðastliðna tólf mánuði var 1,88. Markmið félagsins er að hlutfallið sé á bilinu 1,5 til 2,5.

Eigið fé félagsins nam 37.638 milljónum króna í lok þriðja ársfjórðungs og eiginfjárhlutfall félagsins var 62,1%.

4


Síminn

Helstu atburðir á 3F 2018

  • Sjónvarpsbjónusta Símans, óháð neti. Nú virkar myndlykill Símans hjá öllum, óháð neti. Skiptir engu hvort sambandið komi yfir kopar, ljósleiðara eða farsímanet.
  • Sjónvarp Símans Premium slær enn eitt áhorfsmetið. Pantanir í Sjónvarpi Símans Premium hafa aldrei verið fleiri, veðrið í sumar hefur eflaust haft eitthvað að segja en úrval og gæði efnis í efnisveitunni okkar líka.
  • Stafræn vegferð. Tvö stór tilraunaverkefni (Snjallari reikningar og Gagnagnótt) í vegferð okkar að ná enn betri tökum á stafrænum heimi voru gangsett.
  • Enn frekari uppbygging á 4G og 4.5G. Tæplega 50 nýir sendistaðir voru gangsettir í sumar og haust á landsbyggðinni sem geta þjónað bæði á landi og sjó. 13 sendar af 50 voru gangsettir á Vestfjörðum.
  • Prenna vex og dafnar. Fyrirframgreidda farsímaáskriftin Prenna hefur bætt við sig nýjum áskrifendum í hverjum mánuði á þessu ári og ekkert lát er á vexti þjónustunnar.
  • Samstarf Mílu og Gagnaveitu Reykjavíkur (GR). Fyrstu svæðin sem unnin voru í samstarfi við GR hafa nú verið afhent. Samstarfið hefur gengið ágætlega og má gera ráð fyrir að framhald veði á nýjum svæðum þar sem GR hefur tilkynnt áform um uppbýggingu.
  • Stöðug aukning í ljósleiðaratengingum. Byrjað er að afhenda nýjar ljósleiðaratengingar til viðskiptavina Mílu bæði í Reykjanesbæ og á Selfossi í samræmi við áætlanir þar um. Stöðugt bætast við ný heimili sem hafa aðgang að ljósleiðara Mílu víða um land. Öll ný hús eru tengd með ljósleiðara en einnig eru í gangi fjölmörg verkefni, sérstaklega í dreifbýli þar sem heimili sem aðeins höfðu aðgang að talsíma fá nú aðgang að öflugri nettengingu með ljósleiðara.
  • Breytingar á Landssímahúsi. Mikil vinna hefur staðið yfir í Landssímahúsi vegna breytinga á húsnæðinu í hótel. Í húsinu er ein mikilvægasta fjarskiptamiðstöð landsins sem þjónar stóru svæði í mið- og vesturbæ en á því svæði eru margar af helstu stofnunum landsins. Gríðarlega mikilvægt er að vandað sé til allra verka í þessu verkefni af hálfu húseiganda til að tryggja að ekki veði stór áföll sem geta haft mikil samfélagsleg áhrif.

Horfur

Spá fyrir árið 2018 er óbreytt og gerir ráð fyrir að EBITDA félagsins veði á bilinu 8,4 til 8,8 milljarðar króna. Áætlað er að fjárfestingar veði á bilinu 4,3 til 4,6 milljarðar króna.

Kynningarfundur 31. október 2018

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins veður haldinn á morgun miðvikudaginn 31. október kl. 8:30 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík.

Á fundinum munu Orri Hauksson forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum.

Kynningarefni fundarins veður hægt að nálgast á heimasíðu Símans

www.siminn.is/forsida/siminn/fjarfestar/fjarhagsupplysingar/uppgjor

og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.


Síminn

Hægt er að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu á vefslóðinni:

https://livestream.com/accounts/11153656/events/8423882/player

Fjárhagsdagatal 2018

  • Ársuppgjör 2018
  • febrúar 2019
  • Aðalfundur 2019
  • mars 2019

Nánari upplýsingar um uppgörið veita:

Orri Hauksson, forstjóri Símans, s. 550 6003 ([email protected])

Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans s. 550 6003 ([email protected])

Síminn hf.

Síminn á og rekur fyrirtækin Símann, Mílu, Sensa, Farsímagreiðslur og Radíómiðun. Síminn er stærsta fjarskiptafyrirtæki landsins og veitir viðskiptavinum, bæði einstaklingum og fyrirtækjum, heildstætt vöruframboð á sviði fjarskipta, afþreyingar og upplýsingatækni.