Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Síminn Interim / Quarterly Report 2017

Apr 26, 2017

2203_rns_2017-04-26_d29393c8-acc1-4866-8640-111b99365ac1.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

{# SEO P0-1: filing HTML is rendered server-side so Googlebot sees the full text without executing JS or following an iframe to a Disallow'd CDN path. The content has already been sanitized through filings.seo.sanitize_filing_html. #}

Síminn

  1. apríl 2017

Fréttatilkynning: Afkoma Símans hf. á fyrsta ársfjórðungi 2017

Hagnaður Símans eykst milli ára

Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði EBITDA
eykst um 30,8% milli tímabila

  • Tekjur á fyrsta ársfjórðungi 2017 námu 6.723 milljónum króna samanborið við 6.882 milljónir króna á sama tímabili 2016.
  • Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði EBITDA nam 2.099 milljónum króna á fyrsta ársfjórðungi 2017 samanborið við 1.605 milljónir króna á sama tímabili 2016 og hækkar því um 494 milljónir króna eða 30,8% frá sama tímabili í fyrra. EBITDA hlutfallið er 31,2% fyrir fyrsta ársfjórðung 2017 en var 23,3% á sama tímabili 2016.
  • Hagnaður á fyrsta ársfjórðungi 2017 nam 774 milljónum króna samanborið við 310 milljónir króna á sama tímabili 2016.
  • Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta nam 2.427 milljónum króna á fyrsta ársfjórðungi 2017 en var 1.333 milljónir króna á sama tímabili 2016. Eftir vexti og skatta nam handbært fé frá rekstri 2.096 milljónum króna á fyrsta ársfjórðungi 2017 en 896 milljónum króna á sama tímabili 2016.
  • Vaxtaberandi skuldir námu 22,5 milljórðum króna í lok fyrsta ársfjórðungs 2017 en voru 22,9 milljarðar króna í árslok 2016. Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 18,2 milljarðar króna í lok fyrsta ársfjórðungs 2017.
  • Hrein fjármagnsgjöld námu 207 milljónum króna á fyrsta ársfjórðungi 2017 en voru 296 milljónir króna á sama tímabili 2016. Fjármagnsgjöld námu 352 milljónum króna, fjármunatekjur voru 135 milljónir króna og gengishagnaður var 10 milljónir króna.
  • Eiginfjárhlutfall Símans hf. var 55,1% í lok fyrsta ársfjórðungs 2017 og eigið fé 35,0 milljarðar króna.

Orri Hauksson, forstjóri:

„Starfsfólki samstæðunnar tókst að fylgja árangrinum sem náðist á síðari hluta ársins 2016 vel eftir. Rekstur þessa fyrsta fjórðungs batnar myndarlega milli ára, sem fyrst og fremst má þakka markvissum aðgerðum við að lækka kostnað hjá samstæðunni, aukinni sölu Sensa á þjónustu og lausnum sem og vaxandi eftirspurn eftir sjónvarpsþjónustu Símans.

Síminn gekk frá nýjum viðamiklum samningi við kvikmyndaverið Disney á fjórðungnum, sem styrkir sjónvarpsþjónustuna enn frekar. Viðskiptavinum í áskriftarleigu okkar, Sjónvarpi Símans Premium, fjölgar hratt og telja þeir nú yfir 30 þúsund.


Síminn

Samstæðan ver þessi misserin háum fjárhæðum í að uppfæra kerfi sín. Markmiðið er að styrkja undirstöðurnar fyrir samkeppni framtíðarinnar. Míla heldur áfram að ljósleiðaravæða höfuðborgarsvæðið og hefur tengt á sjöunda þúsund heimila við ljósleiðara sinn það sem af er ári, til viðbótar við þau 30 þúsund sem þegar höfðu verið tengd. Tugir nýrra 4G senda voru settir upp til að efla enn frekar hraðasta farsímakerfi landsins. Nú standa yfir prófanir á nýjum og enn hraðari sendum sem ná 300 megabita hraða. Kostnaður beggja fjárfestingaverkefna er hagstæður sem veldur því að útbreiðslan er hröð.

Við vinnum sem fyrr hörðum höndum að því að standa undir kröfum viðskiptavina okkar og erum á réttri leið með frábært sjónvarpsefni, hraða uppfærslu fastlínuinnviða og framúrskarandi farsímakerfi. Próunin er hröð og við hlökkum til keppa áfram um hylli neytenda. Afkoman nú í upphafi árs styrkir þá trú okkar að grunnurinn sem lagður hefur verið sé traustur."

Helstu niðurstöður í rekstri fyrsta ársfjörðungs 2017

Reikningsskilaaðferðir og samþykkt árshlutareiknings

Árshlutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning Símans hf. og dótturfélaga hans.

Stjórn og forstjóri Símans hf. hafa í dag fjallað um samstæðuárshlutareikning félagsins fyrir tímabilið 1. janúar til 31. mars 2017 og staðfesta hann með undirritun sinni.

Rekstur

1F 2017 1F 2016 Breyting %
Rekstrartekjur 6.602 6.784 -2,7%
Kostnaðarverð sölu (3.246) (3.665) -11,4%
Framlegð 3.356 3.119 7,6%
Hlutfall af rekstrartekjum 50,8% 46,0%
Aðrar rekstrartekjur 121 98 23,5%
Rekstrarkostnaður (2.290) (2.479) -7,6%
Rekstrarhagnaður 1.187 738 60,8%
Hlutfall af rekstrartekjum 18,0% 10,9%
Fjármunatekjur 135 124 8,9%
Fjármagnsgjöld (352) (435) -19,1%
Gengismunur 10 15 -33,3%
Hrein fjármagnsgjöld (207) (296) -30,1%
Tekjuskattur (206) (132) 56,1%
Hagnaður tímabils 774 310 149,7%
Afskriftir og virðisrýrnun (912) (867) 5,2%
EBITDA 2.099 1.605 30,8%
Hlutfall 31,2% 23,3%
EBIT 1.187 738 60,8%
Hlutfall 17,7% 10,7%

Síminn

Sala á fyrsta ársfjórðungi árið 2017 nam 6.723 milljónum króna samanborið við 6.882 milljónir króna á sama tímabili árið 2016, sem er 2,3% samdráttur milli ára. Tekjur af farsíma námu 1.582 milljónum króna og lækkuðu um 4,1% á milli tímabila. Tekjur af gagnaflutningi námu 2.072 milljónum króna og lækkuðu um 120 milljónir króna eða sem nemur 5,5% á milli tímabila. Tekjur af sjónvarpsþjónustu námu 1.006 milljónum króna og jukust um 118 milljónir króna eða sem nemur 13,3% á milli tímabila. Tekjur af upplýsingatækni námu 900 milljónum króna og lækkuðu um 58 milljónir króna eða 6,1% á milli tímabila.

Framlegð á fyrsta ársfjórðungi 2017 nam 3.356 milljónum króna og hækkaði um 237 milljónir króna eða 7,6% frá sama tímabili árið 2016. Rekstrarkostnaður nam 2.290 milljónum króna og lækkaði um 189 milljónir króna eða 7,6% frá sama tímabili árið 2016.

Rekstrarhagnaður félagsins fyrir afskriftir og fjármagnsliði EBITDA var 2.099 milljónir króna á fyrsta ársfjórðungi árið 2017 en var 1.605 milljónir króna á sama tímabili árið 2016 og hækkaði því um 494 milljónir króna milli tímabila eða um 30,8%. EBITDA hlutfallið er 31,2% en var 23,3% á sama tímabili árið 2016.

Afskriftir félagsins námu 912 milljónum króna á fyrsta ársfjórðungi árið 2017 samanborið við 867 milljónir króna á sama tímabili árið 2016.

Hrein fjármagnsgjöld voru 207 milljónir króna á fyrsta ársfjórðungi árið 2017 og lækkuðu um 89 milljónir króna á milli tímabila.

Hagnaður tímabilsins nam 774 milljónum króna samanborið við 310 milljónir króna á sama tímabili árið 2016.

Sjóðstreymi

Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta var 2.427 milljónir króna á fyrsta ársfjórðungi árið 2017 samanborið við 1.333 milljónir króna á sama tímabili árið 2016.

Fjárfestingar í rekstrarfjármunum CAPEX námu 1.195 milljónum króna sem er hækkun um 289 milljónir króna frá sama tímabili árið 2016. Hlutfall fjárfestinga af veltu var 17,8% á fyrsta ársfjórðungi árið 2017 samanborið við 13,2% á sama tímabili árið 2016.

img-0.jpeg


Síminn

Efnahagur

31.3.2017 31.12.2016
Fastafjármunir 52.146 52.055
Veltufjármunir 11.450 11.924
Eignir alls 63.596 63.979
Eigið fé 35.044 34.260
Langtímaskuldir 21.586 22.010
Skammtímaskuldir 6.966 7.709
Skuldir og eigið fé alls 63.596 63.979
Eiginfjárhlutfall 55,1% 53,5%

Heildareignir félagsins námu 63.596 milljónum króna í lok fyrsta ársfjórðungs en voru 63.979 milljónir króna í lok árs 2016.

Vaxtaberandi skuldir voru 22.505 milljónir króna í lok fyrsta ársfjórðungs samanborið við 22.944 milljónir króna í lok árs 2016. Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 18.240 milljónir króna í lok fyrsta ársfjórðungs og lækkuðu um 1.037 milljónir króna frá árslokum 2016. Hlutfall hreinna vaxtaberandi skulda á móti EBITDA síðastliðinna tólf mánaða var 2,09.

Eigið fé félagsins nam 35.044 milljónum króna í lok fyrsta ársfjórðungs og eiginfjárhlutfall félagsins var 55,1%.

Helstu atburðir á fyrsta ársfjórðungi 2017

  • Dúsundir heimila í ljósleiðarahópi Milu. Yfir sex þúsund heimili bættust í hóp þeirra 30 þúsund sem eiga möguleika á ljósleiðaratengingu Milu – og á allt að eins gígabita hraða. Þeim fjölgaði hraðar en búist var við vegna veðurblíðu nú í vetur. Áætlað er að 65% heimila á höfuðborgarsvæðinu geti tengst ljósleiðara Milu þegar árinu lýkur.
  • Disney velur Símann sem heimahöfn. Síminn og Disney hafa gert viðameiri samstarfsamning. Kvikmyndir undir merkjum Disney, Marvel og Star Wars verða því innan Sjónvarps Símans Premium næstu þrjú ár og prýða kvikmyndirnar hátiðardagskrár Sjónvarps Símans í opinni dagskrá.
  • 4G+ sendar sem ná 300 Mb/s hraða prófaðir. Sendar sem ná 300 megabita hraða eru nú í prófunum hjá Símanum. Fjöldi senda Símans flokkast nú til 4G+. Neytendur mældu farsímanet Símans það hraðasta hér á landi frá miðju ári 2016 með hraðaprófunum Speedtest frá Ookla.
  • Sensa með Amazon. Sensa býður nú skýjaþjónustuna Amazon Web Services (AWS) og er eini samstarfsaðili (e. certified partner) þessa alþjóðarisa hér á landi. Með AWS fjölgar þjónustuleiðum í Skýjavist á nýju hýsingarneti Sensa sem eykur hagræðingu og sveigjanleika hjá viðskiptavinum.
  • Síminn með nýjung á auglýsingamarkaði. Auglýsendur geta í fyrsta sinn valið ákveðin landsvæði umfram önnur þegar þeir auglýsa í sjónvarpi. Síminn býður auglýsingapláss eftir póstnúmerum í efnisveitu sinni Sjónvarpi Símans Premium og bregst þannig við breyttum sjónvarpsvenjum.

Síminn

  • 8.000 børn fylgja foreldrunum til Símans. Farsímaviðskiptavinir Símans hafa verið iðnir við að bæta bórnum við fyrirtækja- eða Endalaust snjalláskrift sínar. 8.000 børn hringja og senda sms án endurgjalds og fá auk þess 1 GB gagnamagn mánaðarlega.
  • Síminn útvistar til Comarch. Síminn hefur lækkað kostnað og aukið afkastagetu með útvistun eftirlits og reksturs nýja reikningakerfis síns til Comarch. Þetta pólska upplýsingatæknifélag hefur borið ábyrgðina frá haustmánuðum með þessum árangri.
  • Gagnaflutningur um farsíma ríflega tvöfaldast. Ekkert lát er á aukinni gagnanotkun viðskiptavina Símans. Hún jókst um 110% milli marsmánaða, sem er meira en árið á undan þegar aukningin var rúm 80%.
  • Ávinningur af samstarfinu við Telefónica. Síminn fagnar samstarfi við spænska alþjóðafjarskiptafélagið Telefónica og telur það þegar hafa einfaldað ákvarðanatöku, skilað fyrirtækinu töluverðu hagræði og árangri í samningaviðræðum við birgja. Samstarfið nær meðal annars til innkaupa, reikiþjónustu, vöruþróunar og nýsköpunar.

Helstu atburðir frá öðrum ársfjörðungi 2017

  • Sjónvarp Símans í aldreifingu. Heimilum sem ná útsendingu Sjónvarps Símans fjölgaði um þrjátíu þúsund nú fyrir páska. Sjónvarpsstöðinni, sem áður var aðeins dreift um gagnvirkt sjónvarpskerfi, er nú dreift rétt eins og RÚV og næst því hvar sem móttaka sjónvarps er möguleg.
  • Tökur hafnar á Stellu Blómkvist. Tökur eru hafnar á nýrri íslenskri þáttaröð um Stellu Blómkvist, sem Poldark-stjarnan Heiða Rún Sigurðardóttir leikur. Þættirnir verða þeir fyrstu íslensku sem frumsýndir eru allir í einu og verða þeir í efnisveitu Símans í haust. Í framhaldi verða þeir sýndir í Sjónvarpi Símans.
  • Borgað með Símanum. Síminn er í startholunum með greiðslulausn sem gerir snjallsímann að veski viðskiptavina. Hægt verður að borga fyrir vörur og þjónustu í verslunum með símtækinu einu.

Horfur

Spá fyrir árið 2017 er óbreytt og gerir ráð fyrir að EBITDA hagnaður félagsins verði á bilinu 8,3 til 8,7 milljarðar króna. Áætlað er að fjárfestingar verði á bilinu 4,5 til 4,8 milljarðar króna.

Kynningarfundur 27. apríl 2017

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn á morgun fimmtudaginn 27. apríl kl. 8:30 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík.

Á fundinum munu Orri Hauksson forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum.

Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á heimasíðu Símans www.siminn.is/siminn/fjarfestar/ og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.

Hægt er að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu á vefslóðinni:

https://livestream.com/accounts/11153656/events/7292232/player


Síminn

Fjárhagsdagatal 2017

  • Afkoma annars ársfjórðungs 2017 24. ágúst 2017
  • Afkoma þriðja ársfjórðungs 2017 26. október 2017
  • Afkoma fjórða ársfjórðungs og ársuppgjör 2017 15. febrúar 2018
  • Aðalfundur 2018 15. mars 2018

Nánari upplýsingar um uppgjörið veita:

Orri Hauksson, forstjóri Símans, s. 550-6003 ([email protected])

Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans s. 550-6003 ([email protected])

Síminn hf.

Síminn á og rekur fyrirtækin Símann, Milu, Sensa, On-Waves, Radiómiðun og Sensa Aps í Danmörku. Síminn er stærsta fjarskiptafyrirtæki landsins og veitir viðskiptavinum, bæði einstaklingum og fyrirtækjum, heildstætt vöruframboð á sviði fjarskipta, afþreyingar og upplýsingatækni.

6