AI assistant
Síminn — Interim / Quarterly Report 2017
Aug 24, 2017
2203_rns_2017-08-24_97fc5669-b9a2-444c-8ee5-248999f01402.pdf
Interim / Quarterly Report
Open in viewerOpens in your device viewer
Síminn
- ágúst 2017
Fréttatilkynning: Afkoma Símans hf. á öðrum ársfjórðungi 2017
Síminn skilar góðum árangri
Rekstrarhagnaður eykst um 39,3% og hagnaður eykst um 52,3% fyrstu sex mánuði ársins 2017 samanborið við sama tímabil árið 2016
- Tekjur á öðrum ársfjórðungi 2017 námu 7.254 milljónum króna samanborið við 7.475 milljónir króna á sama tímabili 2016.
- Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði EBITDA nam 2.191 milljónum króna á öðrum ársfjórðungi 2017 samanborið við 1.954 milljónir króna á sama tímabili 2016 og hækkar því um 237 milljónir króna eða 12,1% frá sama tímabili í fyrra. EBITDA hlutfallið er 30,2% fyrir annan ársfjórðung 2017 en var 26,1% á sama tímabili 2016.
- Hagnaður á öðrum ársfjórðungi 2017 nam 790 milljónum króna samanborið við 716 milljónir króna á sama tímabili 2016.
- Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta nam 1.986 milljónum króna á öðrum ársfjórðungi 2017 en var 1.638 milljónir króna á sama tímabili 2016. Eftir vexti og skatta nam handbært fé frá rekstri 1.864 milljónum króna á öðrum ársfjórðungi 2017 en nam 1.492 milljónum króna á sama tímabili 2016.
- Vaxtaberandi skuldir námu 22,3 milljörðum króna í lok annars ársfjórðungs 2017 en voru 22,9 milljarðar króna í árslok 2016. Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 18,4 milljarðar króna í lok annars ársfjórðungs 2017.
- Hrein fjármagnsgjöld námu 258 milljónum króna á öðrum ársfjórðungi 2017 en voru 163 milljónir króna á sama tímabili 2016. Fjármagnsgjöld námu 390 milljónum króna, fjármunatekjur voru 134 milljónir króna og gengistap var 2 milljónir króna.
- Eiginfjárhlutfall Símans hf. var 54,9% í lok annars ársfjórðungs 2017 og eigið fé 35,3 milljarðar króna.
Orri Hauksson, forstjóri:
„Góð afkoma Símans skýrist af því að tekist hefur að stýra rekstrinum í takt við tekjuöflun félagsins. Hagnaðurinn eykst og reksturinn styrkist. Veltan dregst hins vegar saman og eru hörð verðsamkeppni og lægri reikigjöld helstu ytri áhrifavaldarnir um þessar mundir. Auk þess hefur orðið nokkur breyting á starfseminni frá fyrri hluta árs 2016. Félagið seldi Staka, Talenta og útvarpsrekstur auk þess sem EM karla hafði talsverð áhrif á tekjur félagsins á fyrri hluta árs 2016. Velta þessara eininga var nokkru hærri en sem nemur tekjusamdrætti milli ára. Það er ekkert nýtt eða óvænt að fjarskiptamarkaðurinn taki örum breytingum. Vörur vaxa eða hninga
Síminn
hratt því er stöðug nýsköpun og þróun á innviðum nauðsynleg til að ná árangri til lengri tíma. Sem dæmi má nefna að Síminn kynnir þessa dagana nýja og þægilega greiðslulausn þar sem snjallsíminn tekur við hlutverki greiðslukorta.
Sjónvarpsþjónusta Símans tók stökk fram á við á ársfjörðungnum þegar 4K myndgæði voru kynnt til leiks. Snjallvæðingin heldur einnig áfram og nú býður Síminn viðskiptavinum að gera bílinn snjallari. Sensa treysti samstarf sitt við tæknirisann Cisco og Míla bætti þúsundum heimila í hóp þeirra sem eiga möguleika á ljósleiðaratengingu. Framþróunin heldur áfram. Síminn hefur nú tryggt sér farsímatiðnir sem styrkja samband í dreifbýli, innanhúss og auka hraða í fjölmenni. Síminn er afar vel í sveit settur því Speedtest frá Ookla vottaði farsímakerfi okkar það hraðasta annað árið í röð.
Þótt reksturinn hafi styrkst svo um munar á þessum fyrri árshluta er ljóst að óvissuástand ríkir um stóran hluta heildsölutekna samstæðunnar þar sem tveir af helstu keppinautum á fjarskiptamarkaði leitast við að sameinast. Áfram verður unnið að því að lækka kostnað Símasamstæðunnar, en lykilatriðið er að vera vel í stakk búin fyrir sívaxandi kröfur viðskiptavina. Bættir innviðir, afþreying og þjónustuforskot marka leið okkar í samkeppninni."
Helstu niðurstöður í rekstri á fyrri helmingi ársins 2017
Reikningsskilaaðferðir og samþykkt árshlutareiknings
Árshlutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning Símans hf. og dótturfélaga hans.
Stjórn og forstjóri Símans hf. hafa í dag fjallað um samstæðuárshlutareikning félagsins fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2017 og staðfesta hann með undirritun sinni.
Rekstur
| 2F 2017 | 2F 2016 | Breýting % | 1H 2017 | 1H 2016 | Breýting % | |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Rekstrartekjur | 7.145 | 7.351 | -2,8% | 13.747 | 14.135 | -2,7% |
| Kostnaðarverð sölu | (3.687) | (3.953) | -6,7% | (6.933) | (7.618) | -9,0% |
| Framlegð | 3.458 | 3.398 | 1,8% | 6.814 | 6.517 | 4,6% |
| Hlutfall af rekstrartekjum | 48,4% | 46,2% | 49,6% | 46,1% | ||
| Aðrar rekstrartekjur | 109 | 124 | -12,1% | 230 | 222 | 3,6% |
| Rekstarkostnaður | (2.289) | (2.490) | -8,1% | (4.579) | (4.969) | -7,8% |
| Rekstrarhagnaður | 1.278 | 1.032 | 23,8% | 2.465 | 1.770 | 39,3% |
| Hlutfall af rekstrartekjum | 17,9% | 14,0% | 17,9% | 12,5% | ||
| Fjörmunatekjur | 134 | 300 | -55,3% | 269 | 424 | -36,6% |
| Fjörmagmsgjöld | (390) | (467) | -16,5% | (742) | (902) | -17,7% |
| Gengismunur | (2) | 4 | -150,0% | 8 | 19 | -57,9% |
| Hrein fjármagsgjöld | (258) | (163) | 58,3% | (465) | (459) | 1,3% |
| Tekjuskattur | (230) | (153) | 50,3% | (436) | (285) | 53,0% |
| Hagnaður tímabils | 790 | 716 | 10,3% | 1.564 | 1.026 | 52,4% |
| Afskriftir og virðisrýrnun | (913) | (922) | -1,0% | (1.825) | (1.789) | 2,0% |
| EBITDA | 2.191 | 1.954 | 12,1% | 4.290 | 3.559 | 20,5% |
| Hlutfall | 30,2% | 26,1% | 30,7% | 24,8% | ||
| EBIT | 1.278 | 1.032 | 23,8% | 2.465 | 1.770 | 39,3% |
| Hlutfall | 17,6% | 13,8% | 17,6% | 12,3% |
Síminn
Sala á fyrri helmingi ársins 2017 nam 13.747 milljónum króna samanborið við 14.135 milljónir króna á sama tímabili árið 2016, sem er 2,7% samdráttur milli ára. Tekjur af farsíma námu 3.204 milljónum króna og lækkuðu um 7,6% á milli tímabila. Tekjur af gagnaflutningi námu 4.185 milljónum króna og lækkuðu um 152 milljónir króna eða sem nemur 3,5% á milli tímabila. Tekjur af sjónvarpsþjónustu námu 2.025 milljónum króna og standa í stað á milli tímabila. Tekjur af upplýsingatækni námu 2.189 milljónum króna og hækkuðu um 107 milljónir króna eða 5,1% á milli tímabila.
Framlegð á fyrri helmingi ársins 2017 nam 6.814 milljónum króna og hækkaði um 297 milljónir króna eða 4,6% frá sama tímabili árið 2016. Rekstrarkostnaður nam 4.579 milljónum króna og lækkaði um 390 milljónir króna eða 7,8% frá sama tímabili árið 2016.
Rekstrarhagnaður félagsins fyrir afskriftir og fjármagnsliði EBITDA var 4.290 milljónir króna á fyrri helmingi ársins 2017 en var 3.559 milljónir króna á sama tímabili árið 2016 og hækkaði því um 731 milljónir króna milli tímabila eða um 20,5%. EBITDA hlutfallið er 30,7% en var 24,8% á sama tímabili árið 2016.
Afskriftir félagsins námu 1.825 milljónum króna á fyrri helmingi ársins 2017 samanborið við 1.789 milljónir króna á sama tímabili árið 2016.
Hrein fjármagnsgjöld voru 465 milljónir króna á fyrri helmingi ársins 2017 og hækkuðu um 6 milljónir króna frá sama tímabili 2016.
Hagnaður tímabilsins nam 1.564 milljónum króna samanborið við 1.026 milljónir króna á sama tímabili árið 2016 og hækkaði því um 538 milljónir króna milli tímabila eða um 52,4%.
Sjóðstreymi
Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta var 4.413 milljónir króna á fyrri helmingi ársins 2017 samanborið við 2.971 milljónir króna á sama tímabili árið 2016.
Fjárfestingar í rekstrarfjármunum CAPEX námu 2.613 milljónum króna sem er hækkuð um 649 milljónir króna frá sama tímabili árið 2016. Hlutfall fjárfestinga af veltu var 18,7% á fyrri helmingi ársins 2017 samanborið við 13,7% á sama tímabili árið 2016.

Síminn
Efnahagur
| 30.6.2017 | 31.12.2016 | |
|---|---|---|
| Fastafjármunir | 52.564 | 52.055 |
| Veltufjármunir | 11.683 | 11.924 |
| Eignir alls | 64.247 | 63.979 |
| Eigið fé | 35.256 | 34.260 |
| Langtímaskuldir | 21.423 | 22.010 |
| Skammtímaskuldir | 7.568 | 7.709 |
| Skuldir og eigið fé alls | 64.247 | 63.979 |
| Eiginfjárhlutfall | 54,9% | 53,5% |
Heildareignir félagsins námu 64.247 milljónum króna í lok annars ársfjórðungs 2017 en voru 63.979 milljónir króna í lok árs 2016.
Vaxtaberandi skuldir voru 22.329 milljónir króna í lok annars ársfjórðungs samanborið við 22.944 milljónir króna í lok árs 2016. Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 18.433 milljónir króna í lok annars ársfjórðungs og lækkuðu um 844 milljónir króna frá árslokum 2016. Hlutfall hreinna vaxtaberandi skulda á móti EBITDA síðastliðinna tólf mánaða var 2,05.
Eigið fé félagsins nam 35.256 milljónum króna í lok annars ársfjórðungs og eiginfjárhlutfall félagsins var 54,9%.
Félagið nýtti heimild í skilmálum útgáfulýsingar skuldabréfaflokks SKIPTI 13 01 og greiddi hann upp að fullu þann 5. júlí síðastliðinn. Eftirstöðvar skuldabréfaflokksins voru 6.960 milljónir króna. Överðtryggðar skuldir félagsins voru einnig endurfjármagnaðar á sama tíma. Jafnframt voru um 3 milljarðar af handbæru fé félagsins nýttir til lækkunar skulda. Ný fjármögnun félagsins samanstendur af överðtryggðu bankaláni með breytilegum vöxtum að fjárhæð 18,4 milljarðar og að auki hefur félagið aðgang að lánalínum upp á 2 milljarða.
Helstu atburðir á öðrum ársfjórðungi 2017
- Síminn með hraðasta farsímanetið. Farsímanet Símans mældist það hraðasta hér á landi á fyrri árshelmingi 2017, samkvæmt Speedtest frá Ookla. Hraðaskor Símans mældist 47,61 Mb/s. Meðalniðurhalshraðinn jókst þrátt fyrir aukna gagnanotkun og mældist 51,16 Mb/s og upphalshraðinn 21,12 Mb/s.
- Púsundir heimila geta tengst ljósleiðara Mílu. Á öðrum ársfjórðungi voru 4.200 heimili tengd ljósleiðaranum í viðbót við þau 36 þúsund sem þegar geta nýtt ljósleiðarann. Míla stefnir á að 55 þúsund heimili hafi möguleika á 1 GB ljósleiðaratengingu í árslok.
- Síminn gerir bílinn snjallari. Síminn kynnti nýja snjalllausn svo fylgjast megi með akstrinum á hagkvæman og áhrifaríkan hátt. Snjalllausnin gefur bæði einstaklingum og fyrirtækjum yfirsýn á rauntíma. Notendur fá upplýsingar um eyðslu og aksturslag. Þeir fá einkunn og upplýsingar sem nýtast og eru því aldrei úti að aka undir stýri.
- Hagræðing með Sensa. Kostnaður samstæðunnar við upplýsingatækni hefur lækkað umtalsvert eftir að Sensa tók við henni fyrir rúmum tveimur árum. Hann lækkaði um
Síminn
fimmtung í fyrra. Búist er við að aukin notkun á skýja- og innviðabjónustu (Cloud & IaaS) Sensa bæti enn árangurinn í ár fyrir bæði Símann og aðra viðskiptavini Sensa.
- Síminn eflir 4G með nýjum tíðnum. Síminn tryggði sér aukna útbreiðslu á 4G kerfinu sínu með nýju leyfi á 700 og 2600 MHz tíðnum sem og á 2100 MHz. Síminn situr einn að 700 MHz tíðni sem er sú langdrægasta. 4G kerfi Símans nær til 98% landsmanna, hröðustu sendarnir ná allt að 300 Mb/s hraða og flokkast fjöldi stöðva til 4G+.
- Árangur við breytt skipulag. Tækni- og þjónustusvið Símans sameinuðust á ársfjörðungnum og Miðlar og markaðir runnu saman við Sölusviðið. Breytt skipurit eflir Símann sem sést á betri niðurstöðum mælinga á þjónustu og ímynd sem og góðri sölu lykilvara yfir sumarmánuðina.
- 4K háskerpa hjá Símanum. Tímamót urðu í sjónvarpsútsendingu í maí þegar Síminn setti fyrstu 4K ultra HD myndgæða sjónvarpsrásina í loftið. Þá bættust um 25 þúsund heimili í hóp þeirra sem ná nú útsendingu stöðvarinnar Sjónvarps Símans.
- Ljósnetið vex á landsbyggðinni. Garður, Sandgerði, Stykkishólmur og Neskaupstaður eru komin í hóp bæja sem eru að fullu Ljósnetstengd. 92% heimila landsins geta notið háhráðatenginga um kerfi Mílu og eru innviðir félagsins ein helsta ástæða þess að Ísland er fremst Norðurlanda í háhráðatengingum.
- Íslandsverð á meginlandi Evrópu. Frá 15. júní hafa farsímanotendur greitt sama verð fyrir notkun innan Evrópusambandsins og EES-svæðisins vegna nýrra reikireglna. Notkunin margfaldaðist – bæði meðal ferðamanna hér á landi og landsmanna á faraldsfæti.
- Endurnýjun hjá Sensa. Ekki aðeins fékk dótturfélagið Sensa Gold Partner vottun Cisco endurnýjaða heldur einnig nýja stjórn félagsins á árfjörðungnum. Með innkomu Brynju Baldursdóttur og Guðrúnar Ólafsdóttur í stjórnina sitja þar nú fleiri konur en karlar. Sensa er eitt með Gold Partner vottun Cisco hér á landi.
- Myndlykillinn með í fríið. Taka má nýjustu kynslóð myndlykla Símans með í fríið. Myndlykillinn frá SagemCom býður ekki aðeins 4K háskerpumyndgæði heldur einnig möguleika á að tengjast þráðlaust um WiFi hvort sem er um heimanet eða farsímanet.
Helstu viðburðir framundan
- Borgað með símanum. Hægt er að borga með símtækinu fyrir vörur og þjónustu í fjölda verslana hjá völdum sölaðilum í gegnum Síminn Pay. Appið er einfalt í notkun og þægilegt enda er greitt fyrir vörurnar án þess að veskið sé með í för. Prófanir ganga vel og Síminn Pay orðið að veruleika.
- Stjörnum prýtt sjónvarp hjá Símanum. Stella Blómkvist, leikin þáttaröð í framleiðslu Sagaflim, er stóra stjarna vetrarins. Þá er Síminn með þriggja ára samstarfsamning við kvikmyndarisann Disney og Lucasflim um Star Wars og aðrar stórmyndir allt árið um kring. Áherslan er á allar sjö Star Wars myndirnar í ágúst.
- Sanngjörn notkun í Evrópu. Síminn ætlar að styðjast við reglur Evrópusambandsins um sanngjarna farsímanotkun innan þess til að standa vörð um lágt verð farsímanotkunar hér á landi. Stórnotendur munu því greiða aukalega fyrir farsímanotkun á meðan aðrir reika sem fyrr óáreittir með farsímann á ferð um meginlandið.
Síminn
Horfur
Spá fyrir árið 2017 er óbreytt og gerir ráð fyrir að EBITDA félagsins verði á bilinu 8,3 til 8,7 milljarðar króna. Áætlað er að fjárfestingar verði á bilinu 4,5 til 4,8 milljarðar króna.
Kynningarfundur 25. ágúst 2017
Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn á morgun föstudaginn 25. ágúst kl. 8:30 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík.
Á fundinum munu Orri Hauksson forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum.
Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á heimasíðu Símans www.siminn.is/siminn/fjarfestar/fjarhagsupplysingar/uppgjor og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.
Hægt er að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu á vefslóðinni:
https://livestream.com/accounts/11153656/events/7657334/player
Fjárhagsdagatal 2017
- Afkoma þriðja ársfjórðungs 2017 26. október 2017
- Afkoma fjórða ársfjórðungs og ársuppgjör 2017 15. febrúar 2018
- Aðalfundur 2018 15. mars 2018
Nánari upplýsingar um uppgjörð veita:
Orri Hauksson, forstjóri Símans, s. 550-6003 ([email protected])
Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans s. 550-6003 ([email protected])
Síminn hf.
Síminn á og rekur fyrirtækin Símann, Milu, Sensa, On-Waves, Radiómiðun og Sensa Aps í Danmörku. Síminn er stærsta fjarskiptafyrirtæki landsins og veitir viðskiptavinum, bæði einstaklingum og fyrirtækjum, heildstætt vöruframboð á sviði fjarskipta, afþreyingar og upplýsingatækni.