AI assistant
Síminn — Interim / Quarterly Report 2017
Oct 25, 2017
2203_rns_2017-10-25_c0e10c1f-083f-4ab2-abd7-b43129268ff5.pdf
Interim / Quarterly Report
Open in viewerOpens in your device viewer
Síminn
- október 2017
Fréttatilkynning: Afkoma Símans hf. á þriðja ársfjórðungi 2017
Hagnaður Símans vex um 15% á fyrstu níu mánuðum ársins
- Tekjur á þriðja ársfjórðungi 2017 námu 6.956 milljónum króna samanborið við 7.270 milljónir króna á sama tímabili 2016.
- Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði EBITDA nam 2.387 milljónum króna á þriðja ársfjórðungi 2017 samanborið við 2.583 milljónir króna á sama tímabili 2016. EBITDA hlutfallið er 34,3% fyrir þriðja ársfjórðung 2017 en var 35,5% á sama tímabili 2016.
- Hagnaður á þriðja ársfjórðungi 2017 nam 905 milljónum króna samanborið við 1.128 milljónir króna á sama tímabili 2016.
- Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta nam 2.618 milljónum króna á þriðja ársfjórðungi 2017 en var 2.681 milljón króna á sama tímabili 2016. Eftir vexti og skatta nam handbært fé frá rekstri 2.178 milljónum króna á þriðja ársfjórðungi 2017 en nam 2.268 milljónum króna á sama tímabili 2016.
- Vaxtaberandi skuldir námu 18,2 milljórðum króna í lok þriðja ársfjórðungs 2017 en voru 22,9 milljarðar króna í árslok 2016. Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 17,9 milljarðar króna í lok þriðja ársfjórðungs 2017.
- Hrein fjármagnsgjöld námu 315 milljónum króna á þriðja ársfjórðungi 2017 en voru 269 milljónir króna á sama tímabili 2016. Fjármagnsgjöld námu 393 milljónum króna, fjármunatekjur voru 74 milljónir króna og gengishagnaður var 4 milljónir króna.
- Eiginfjárhlutfall Símans hf. var 59,2% í lok þriðja ársfjórðungs 2017 og eigið fé 36 milljarðar króna.
Orri Hauksson, forstjóri:
„Rekstur Símasamstæðunnar gengur vel í ár og er samkvæmt væntingum. EBITDA er rúmum hálfum milljarði hærri en fyrstu níu mánuðina í fyrra, þrátt fyrir samdrátt í reiki og verðlækkanir í smásölu. Viðskiptavinum með farsíma hefur fjölgað og kynntar hafa verið nýjungar sem lofa góðu inn í framtíðina. Samstarfsáðilar okkar hafa áttáð sig hratt á tækifærunum í Síminn Pay, sjávarútvegurinn fagnar örygginu sem Líflínan býður þeim og vinsældir Sjónvarps Símans Premium vaxa stöðugt.
Síminn
Síminn býður upp á hraðasta farsímanet landsins, sem óháðir aðilar hafa staðfest annað árið í röð og yfir helmingur heimila á höfuðborgarsvæðinu á nú kost á að tengjast ljósleiðara Mílu. Samstæðan nýtur afraksturs mikilla fjárfestinga í innviðum undanfarin misseri, sem nýtist viðskiptavinum hennar og hluthöfum til framtíðar. Fjárfestingar hafa náð hámarki og í kjólfarið mun sterkt fjárflæði frá rekstri samstæðunnar hægt og rólega nýtast beint til aukinnar fjármunamyndunar.
Efnahagsreikningurinn var einfaldaður í upphafi fjórðungsins með endurskipulagningu skulda og handbærs fjár. Samstæðan er nú með sveigjanlegri rekstur og efnahag en fyrr og þannig vel í stakk búin til að bregðast við samkeppni og nýta tækifæri til sóknar."
Helstu niðurstöður í rekstri á fyrstu níu mánuðum ársins 2017
Reikningsskilaaðferðir og samþykkt árshlutareiknings
Árshlutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning Símans hf. og dótturfélaga hans.
Stjórn og forstjóri Símans hf. hafa í dag fjallað um samstæðuárshlutareikning félagsins fyrir tímabilið 1. janúar til 30. september 2017 og staðfesta hann með undirritun sinni.
Rekstur
| 3F 2017 | 3F 2016 | Breyting % | 9M 2017 | 9M 2016 | Breyting % | |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Rekstrartekjur | 6.856 | 7.129 | -3,8% | 20.603 | 21.264 | -3,1% |
| Kostnaðarverð sól | (3.380) | (3.467) | -2,5% | (10.313) | (11.085) | -7,0% |
| Framlegð | 3.476 | 3.662 | -5,1% | 10.290 | 10.179 | 1,1% |
| Hlutfall af rekstrartekjum | 50,7% | 51,4% | 49,9% | 47,9% | ||
| Aðrar rekstrartekjur | 100 | 141 | -29,1% | 330 | 363 | -9,1% |
| Rekstrarkostnaður | (2.113) | (2.124) | -0,5% | (6.692) | (7.093) | -5,7% |
| Rekstrarhagnaður | 1.463 | 1.679 | -12,9% | 3.928 | 3.449 | 13,9% |
| Hlutfall af rekstrartekjum | 21,3% | 23,6% | 19,1% | 16,2% | ||
| Fjármunatekjur | 74 | 109 | -32,1% | 343 | 533 | -35,6% |
| Fjármagnsgjöld | (393) | (398) | -1,3% | (1.135) | (1.300) | -12,7% |
| Gengismunur | 4 | 20 | -80,0% | 12 | 39 | -69,2% |
| Hrein fjármagnsgjöld | (315) | (269) | 17,1% | (780) | (728) | 7,1% |
| Tekjuskattur | (243) | (282) | -13,8% | (679) | (567) | 19,8% |
| Hagnaður tímabils | 905 | 1.128 | -19,8% | 2.469 | 2.154 | 14,6% |
| Afskriftir og virðisrýrnun | (924) | (904) | 2,2% | (2.749) | (2.693) | 2,1% |
| EBITDA | 2.387 | 2.583 | -7,6% | 6.677 | 6.142 | 8,7% |
| Hlutfall | 34,3% | 35,5% | 31,9% | 28,4% | ||
| EBIT | 1.463 | 1.679 | -12,9% | 3.928 | 3.449 | 13,9% |
| Hlutfall | 21,0% | 23,1% | 18,8% | 15,9% |
Sala á fyrstu níu mánuðum ársins 2017 nam 20.603 milljónum króna samanborið við 21.264 milljónir króna á sama tímabili árið 2016, sem er 3,1% samdráttur milli ára. Samdráttur milli tímabila skýrist að mestu af aflagðri starfsemi. Einingar voru seldar en einnig voru tilfallandi tekjur í sjónvarpi árið 2016. Aðrar rekstrartekjur námu 330 milljónum króna og lækka um 33 milljónir króna milli tímabila. Tekjur af farsíma námu 5.026 milljónum króna og lækkuðu um 7,8% á milli tímabila. Tekjur af gagnaflutningi námu 6.373 milljónum króna og lækkuðu um 94 milljónir króna eða 1,5% á milli tímabila. Tekjur af sjónvarpsbjónustu námu 3.030 milljónum
Síminn
króna og lækkau um 35 milljónir króna eða 1,1% á milli tímabila. Tekjur af upplýsingatækni námu 2.964 milljónum króna og hækkuðu um 20 milljónir króna eða 0,7% á milli tímabila.
Framlegð á fyrstu níu mánuðum ársins 2017 nam 10.290 milljónum króna og hækkaði um 111 milljónir króna eða 1,1% frá sama tímabili árið 2016. Rekstrarkostnaður nam 6.692 milljónum króna og lækkaði um 401 milljón króna eða 5,8% frá sama tímabili árið 2016.
Rekstrarhagnaður félagsins fyrir afskriftir og fjármagnsliði EBITDA var 6.677 milljónir króna á fyrstu níu mánuðum ársins 2017 en var 6.142 milljónir króna á sama tímabili árið 2016 og hækkaði því um 535 milljónir króna milli tímabila eða um 8,7%. EBITDA hlutfallið er 31,9% en var 28,4% á sama tímabili árið 2016.
Afskriftir félagsins námu 2.749 milljónum króna á fyrstu níu mánuðum ársins 2017 samanborið við 2.693 milljónir króna á sama tímabili árið 2016.
Hrein fjármagnsgjöld voru 780 milljónir króna á fyrstu níu mánuðum ársins 2017 og hækkuðu um 52 milljónir króna frá sama tímabili árið 2016.
Hagnaður tímabilsins nam 2.469 milljónum króna samanborið við 2.154 milljónir króna á sama tímabili árið 2016 og hækkaði því um 315 milljónir króna milli tímabila eða um 14,6%.
Sjóðstreymi
Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta var 7.031 milljón króna á fyrstu níu mánuðum ársins 2017 samanborið við 5.652 milljónir króna á sama tímabili árið 2016.
Nettó fjárfestingar í rekstrarfjármunum CAPEX námu 3.819 milljónum króna sem er hækkuðum um 1.012 milljónir króna frá sama tímabili árið 2016. Hlutfall fjárfestinga af veltu var 18,2% á fyrstu níu mánuðum ársins 2017 samanborið við 13,0% á sama tímabili árið 2016.

Efnahagur
| 30.9.2017 | 31.12.2016 | |
|---|---|---|
| Fastafjármunir | 53.081 | 52.055 |
| Veltufjármunir | 7.706 | 11.924 |
| Eignir alls | 60.787 | 63.979 |
| Eigið fé | 35.988 | 34.260 |
| Langtímaskuldir | 17.819 | 22.010 |
| Skammtímaskuldir | 6.980 | 7.709 |
| Skuldir og eigið fé alls | 60.787 | 63.979 |
| Eiginfjárhlutfall | 59,2% | 53,5% |
Síminn
Heildareignir félagsins námu 60.787 milljónum króna í lok þriðja ársfjórðungs 2017 en voru 63.979 milljónir króna í lok árs 2016.
Vaxtaberandi skuldir voru 18.219 milljónir króna í lok þriðja ársfjórðungs samanborið við 22.944 milljónir króna í lok árs 2016. Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 17.886 milljónir króna í lok þriðja ársfjórðungs og lækkuðu um 1.391 milljón króna frá árslokum 2016. Hlutfall hreinna vaxtaberandi skulda á móti EBITDA síðastliðinna tólf mánaða var 1,97.
Eigið fé félagsins nam 35.988 milljónum króna í lok þriðja ársfjórðungs og eiginfjárhlutfall félagsins var 59,2%.
Félagið nýtti heimild í skilmálum útgáfulýsingar skuldabréfaflokks SKIPTI 13 01 og greiddi hann upp að fullu þann 5. júlí síðastliðinn. Eftirstöðvar skuldabréfaflokksins voru 6.960 milljónir króna. Överðtryggðar skuldir félagsins voru einnig endurfjármagnaðar á sama tíma. Jafnframt voru um 3 milljarðar af handbæru fé félagsins nýttir til lækkunar skulda. Ný fjármögnun félagsins samanstendur af överðtryggðu bankaláni með breytilegum vöxtum að fjárhæð 18,2 milljarðar og að auki hefur félagið aðgang að lánalínum upp á 2 milljarða.
Helstu atburðir á þriðja ársfjórðungi 2017
-
Síminn Pay á yfir 100 stöðum. Nú má greiða með símanum í yfir 100 verslunum víðsvegar um landið. Stórfyrirtæki hafa bæst í hóp þeirra sem hófu leika með greiðslulausninni Síminn Pay. Nettó, Samkaup Strax og Úrval, Olís og Kaffitár eru þar á meðal og því orðið raunhæft að skilja veskið eftir heima og greiða með Símanum.
-
Hraðasta farsímanetið stækkar. Fimmtíu nýir farsímasendar frá Ericsson hafa verið settir upp á árinu. Síminn er einn með 700 Mhz senda hér á landi sem ná enn betri útbreiðslu. Farsímanet Símans mældist það hraðasta hér á landi á bæði fyrri árshelmingi 2017 og þeim síðari 2016, samkvæmt Speedtest frá Ookla – og netið eflist enn.
-
Yfir helmingur höfuðborgarheimila nær ljósleiðara Mílu. 47 þúsund heimili eða um 55% heimila á höfuðborgarsvæðinu eiga möguleika á ljósleiðara Mílu vegna kröftugrar uppyggingar hennar bæði í ár og fyrra. Stefnt er að því að það eigi við um 65% þeirra í árslok. Míla býður 1 Gb/s tengingar þvert á fjarskiptafélög.
-
Aukið úrval í Sjónvarpi Símans Premium. Vel á fimmta tug þáttaraða bættust við Sjónvarp Símans Premium á tímabilinu. Helstu samstarfsaðilar í erlendu efnisframboði eru CBS, Showtime, Disney, Lucasfilm, 20th Century FOX og NBC Universal.
-
Prenna vex. Þjónustuleiðin Prenna fyrir farsíma innifelur nú 18 GB gagnamagn eða tvöfalt meira en áður. Samkeppni um farsímanotendur er einkar hörð og er Prenna ákjósanleg leið fyrir unga notendur, sem þurfa mikið fyrir lítið á hraðasta farsímaneti landsins. Þá er streymi af Spotify innifalið.
-
Líflína milli lækna og sjómanna. Líflína er framfaraskref fyrir sjómenn og unnin í samstarfi við sjúkrahúsið á Akureyri. Líflínan er gott dæmi um hvernig Síminn stuðlar að tækniframförum í heilbrigðisgeiranum, en með henni fá sjómenn beint samband við lækni í landi. Líflínan var kynnt á sjávarútvegssýningunni í september.
-
Meiri hraði á landsbyggðinni. Míla lagði Ljósnet til allra heimila í Ólafsvík, í Stykkishólmi og á Dalvík á þriðja ársfjórðungi. Þá fengu íbúar Holtahverfis á Ísafirði einnig sína Ljósnetstengingu. Samhliða lagningu ljósleiðara á höfuðborgarsvæðinu hefur Míla því haldið áfram uppyggingu á landsbyggðinni.
Síminn
- Sjáumst.is fjarfundabjónustan í miklum vexti. Sjáumst.is fjarfundabjónusta Sensa hefur haldið áfram að vaxa á árinu. Augljóst er að aukin eftirspurn er eftir meiri gæðum og betri upplifun á fundum viðskiptavina Sensa. Stærsti viðskiptavinur bjónustunnar er að nýta yfir 250 fundartíma í hverjum mánuði. Sensa leggur mikla áherslu á öryggi og er með ISO 27001:2013 vottun.
- Sanngjörn notkun í Evrópu. Síminn hefur sett reglur um sanngjarna farsímanotkun innan Evrópusambandsins (e. Fair Use Policy) til að standa vörð um lágt verð farsímanotkunar hér á landi. Sama verð gildir um símtöl og SMS en stórnotendur greiða nú aukalega fyrir mikið gagnamagn en áskriftir með innan við 5 GB skerðast ekki.
- Síminn á allra vörum. Síminn stóð við bakið á átakinu. Á allra vörum. Tugir milljónas söfnuðust í átakinu til byggingar húsnæðis fyrir konur og börn sem flúið hafa ofbeldi. Söfunarþátturinn var sendur út frá bjónustuveri Símans.
- Aldrei meira innlent efni í Sjónvarpi Símans. Framleiðsla á innlendu efni fyrir Símann þennan sjónvarpsvetur hefur aldrei verið meiri. Fimm innlendar þáttaraðir verða frumsýndar en bæði Ný sýn og Biggest Loser Ísland snéru aftur í Sjónvarp Símans. Stella Blómkvist ber hæst í innlendri framleiðslu og verður frumsýnd 24. nóvember í Sjónvarpi Símans Premium.
Helstu viðburðir framundan
Krakkar fá sitt í Sjónvarp Símans Premium. Síminn byggir upp fyrir börnin og eykur við barnaefni í Heimilispakkanum. Barnafjölskyldur í viðskiptum við Símann fá enn betra tækifæri á góðum stundum. Dóra landkönnuður, Svampur Sveinsson, Díegó, Ninja Skjaldbökurnar, Mörgæsirnar og sjálf Hvolpasveitin finnast nú innan pakkans.
- Framfarir í sjónvarpsbjónustu Símans. Síminn kynnir ráðgjafa innan sjónvarpsbjónustunnar sem bendir áhorfandanum á hentugt efni. Síminn hefur verið í fararbroddi nýjunga hér á landi í gagnvirku sjónvarpi og verður allt viðmótið uppfært í takti við það nýjasta á næstunni. Það á einnig við um sjónvarpsappið.
- Verslun í Ármúla stækkar. Síminn stefnir á að stækka verslun sína í Ármúla fyrir áramót. Hún verður þrefalt stærri en nú enda afar vinsæl meðal viðskiptavina. Verslun Símans á Akureyri flytur af Glerártorgi í miðbæinn á nýju ári. Með breytingunum vill Síminn ná enn betur til viðskiptavina sinna.
Horfur
Spá fyrir árið 2017 er óbreytt og gerir ráð fyrir að EBITDA félagsins verði á bilinu 8,3 til 8,7 milljarðar króna. Áætlað er að fjárfestingar verði á bilinu 4,5 til 4,8 milljarðar króna.
Kynningarfundur 26. október 2017
Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn á morgun fimmtudaginn 26. október kl. 8:30 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík.
Á fundinum munu Orri Hauksson forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum.
Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á heimasíðu Símans www.siminn.is/siminn/fjarfestar/fjarhagsupplysingar/uppgjor og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.
Síminn
Hægt er að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu á vefslóðinni:
https://livestream.com/accounts/11153656/events/7801093/player
Fjárhagsdagatal 2017
- Afkoma fjórða ársfjórðungs og ársuppgjör 2017 15. febrúar 2018
- Aðalfundur 2018 15. mars 2018
Nánari upplýsingar um uppgörið veita:
Orri Hauksson, forstjóri Símans, s. 550-6003 ([email protected])
Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans s. 550-6003 ([email protected])
Síminn hf.
Síminn á og rekur fyrirtækin Símann, Milu, Sensa, Radiómiðun og Sensa Aps í Danmörku. Síminn er stærsta fjarskiptafyrirtæki landsins og veitir viðskiptavinum, bæði einstaklingum og fyrirtækjum, heildstætt vöruframboð á sviði fjarskipta, afþreyingar og upplýsingatækni.