AI assistant
Síminn — Interim / Quarterly Report 2016
Apr 28, 2016
2203_rns_2016-04-28_2b415eb3-3793-4630-ab5a-d30decd38caf.pdf
Interim / Quarterly Report
Open in viewerOpens in your device viewer
Síminn
- apríl 2016
Fréttatilkynning: Afkoma Símans hf. á fyrsta ársfjórðungi 2016
Harðnandi samkeppni og hagræðing hjá Símanum
- Tekjur voru 6.882 milljónir króna á fyrsta ársfjórðungi
- EBITDA nam 1.605 milljónum króna
- Hagnaður tímabilsins nam 310 milljónum króna
-
Hörð samkeppni og aukinn launakostnaður á þessum fyrstu mánuðum
-
Tekjur á fyrsta ársfjórðungi 2016 námu 6.882 milljónum króna samanborið við 7.133 milljónir króna á sama tímabili 2015.
- Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði EBITDA nam 1.605 milljónum króna á fyrsta ársfjórðungi 2016 samanborið við 1.961 milljónir króna á sama tímabili 2015. EBITDA hlutfallið er 23,3% fyrir fyrsta ársfjórðung 2016 en var 27,5% á sama tímabili 2015.
- Hagnaður á fyrsta ársfjórðungi 2016 nam 310 milljónum króna samanborið við 792 milljónir króna á sama tímabili 2015.
- Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta nam 1.333 milljónum króna á fyrsta ársfjórðungi 2016 en var 2.452 milljónir króna á sama tímabili 2015. Eftir vexti og skatta nam handbært fé frá rekstri 896 milljónum króna á fyrsta ársfjórðungi 2016 en 1.841 milljónum króna á sama tímabili 2015.
- Vaxtaberandi skuldir námu 24,0 milljórðum króna í lok fyrsta ársfjórðungs 2016 en voru 24,2 milljarðar í árslok 2015. Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 20,2 milljarðar króna í lok fyrsta ársfjórðungs 2016.
- Hrein fjármagnsgjöld námu 296 milljónum króna á fyrsta ársfjórðungi 2016 en voru 123 milljónir króna á sama tímabili 2015. Fjármagnsgjöld námu 435 milljónum króna, fjármunatekjur voru 124 milljónir króna og gengishagnaður 15 milljónir króna.
- Eiginfjárhlutfall Símans hf. var 53,1% í lok fyrsta ársfjórðungs 2016 og eigið fé 33,1 milljarðar króna.
Síminn
Orri Hauksson, forstjóri:
„Að baki eru viðburðaríkir mánuðir. Teknar voru mikilvægar ákvarðanir sem renna styrkari stoðum undir Símann til framtíðar á líflegum íslenskum fjarskiptamarkaði. Fyrsti ársfjörðungur var krefjandi og styrkir okkur í trúnni um að viðskiptavinurinn sækist í auknum mæli eftir nýjungum, þjónustu og virði.
Tekjur Símans af gagnaflutningi og upplýsingatækni jukust áfram. Sala auglýsinga á SkjáEinum í opinni dagskrá reyndist torsótt á fyrsta ársfjörðungi, en heldur horfir nú til betri vegar þar. Við umbreyttum vörurváli okkar síðastliðið haust sem lækkaði áskriftartekjur í sjónvarpi um hríð, en við erum ánægð að sjá að áskrifendur að gagnvirkri áskriftarþjónustu hjá Símanum eru nú orðnir fleiri en voru áður að hinni línulegu áskriftarsjónvarpsstöð SkjáEinum. Sjónvarpsvörur okkar fá aukinn kraft á næstu víkum þegar þjóðin fer á EM í Frakklandi með Símanum.
Verðsamkeppni harðnaði, sérstaklega á farsímamarkaðinum, auk þess sem ófyrirséðar launahækkanir vegna svokallaðs SALEK-samkomulags juku kostnað samstæðunnar umtalsvert í einu vetfangi. Við réðumst því í að stilla liðsheildinni upp að nýju með hagræðingu í huga um leið og sett var skarpari áhersla á vöruþróun og framtíðartekjur.
Á þessum fyrsta ársfjörðungi hefur stöðugildum innan samstæðunnar fækkað um nær 80 og telur sala á dótturfélögunum Staka og Talenta rúman þriðjung þar af. Hækkun milli ára á öðrum rekstrarkostnaði skýrist helst af þeim veigamiklu breytingum á starfsmannahaldi sem hafa verið gerðar sem lækka kostnað fram á við.
Afkomuspa okkar fyrir árið 2016 er óbreytt frá því sem tilkynnt var um í upphafi árs. Horfur næst stærsta dótturfélags Símans, Sensa, eru góðar út árið. Auk þess mun það stærsta, Mila, nýta innviði sína til þess að fjölga enn hraðari tengingum á næstu mánuðum. Verkefni samstæðunnar næstu mánuði eru afar spennandi.“
Helstu niðurstöður í rekstri fyrsta ársfjörðungs 2016
Reikningsskilaaðferðir og samþykkt árshlutareiknings
Árshlutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning Símans hf. og dótturfélaga hans. Stjórn og forstjóri félagsins hafa samþykkt árshlutareikning samstæðu félagsins fyrir fyrsta ársfjörðung ársins 2016.
Rekstur
Sala á fyrsta ársfjörðungi árið 2016 nam 6.882 milljónum króna samanborið við 7.133 milljónir króna á sama tímabili árið 2015, sem er 3,5% samdráttur milli ára. Tekjur af gagnaflutningi námu 2.192 milljónum króna og jukust um 102 milljónir króna eða sem nemur 5% á milli ára. Tekjur af upplýsingatækni jukust um 148 milljónir króna eða 18% á milli ársfjörðunga. Tekjur af sjónvarpsþjónustu drógust saman um 129 milljónir króna eða sem nemur 13% á milli ára. Tekjur af farsíma námu 1.650 milljónum króna drógust saman um tæplega 10% á milli ára.
Síminn
Framlegð á fyrsta ársfjórðungi 2016 nam 3.119 milljónum króna og hækkaði um 37 milljónir króna eða 1,2% frá sama tímabili árið 2015. Rekstrarkostnaður án afskrifta nam 2.315 milljónum króna og hækkaði um 328 milljónir króna eða 16,5% frá sama ársfjórðungi 2015. Hér vegur þyngst aukinn launakostnaður vegna kjarasamninga og einskiptisgjaldfærsla vegna hagræðingaraðgerða.
Rekstrarhagnaður félagsins fyrir afskriftir EBITDA var 1.605 milljónir króna á fyrsta ársfjórðungi árið 2016 en var 1.961 milljónir króna á sama tímabili árið 2015. EBITDA hlutfallið er 23,3% en var 27,5% á sama tímabili árið 2015.
Afskriftir félagsins námu 867 milljónum króna á fyrsta ársfjórðungi árið 2016 samanborið við 882 milljónir króna á sama tímabili árið 2015.
Hrein fjármagnsgjöld voru 296 milljónir króna á fyrsta ársfjórðungi árið 2016 og hækka um 173 milljónir króna á milli ára. Mesta breytingin er á gengismun en tekjur af gengisbreytingum lækka um 177 milljónir króna milli ára. Pessi lækkun skýrist fyrst fremst af því að árið 2015 hafði félagið gengishagnað af fjármunaeign í erlendum gjaldeyri vegna krafna á hendur Glitni sem seldar voru haustið 2014.
Heildarhagnaður félagsins eftir skatta nam 310 milljónum króna samanborið við 792 milljónir króna á sama tímabili árið 2015.
Sjóðstrey mi
Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta var 1.333 milljónir króna á fyrsta ársfjórðungi árið 2016 samanborið við 2.452 milljónir króna á sama tímabili árið 2015.
Fjárfestingar í rekstrarfjármunum CAPEX námu 906 milljónum króna sem er lækkun um 433 milljónir króna frá sama tímabili árið 2015. Hlutfall fjárfestinga af veltu var 13,2% á fyrsta ársfjórðungi árið 2016 samanborið við 18,8% á sama tímabili árið 2015. Lækkunin skýrist helst af óvenju miklum fjárfestingum á fyrsta ársfjórðungi árið 2015 meðal annars vegna styrkingar á fastlínuneti félagsins.
Efnahagur
Heildareignir félagsins námu 62.431 milljónum króna í lok fyrsta ársfjórðungs en voru 62.127 milljónir króna í lok árs 2015.
Vaxtaberandi skuldir voru 23.980 milljónir króna í lok fyrsta ársfjórðungs samanborið við 24.155 milljónir króna í lok árs 2015. Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 20.170 milljónir króna í lok fyrsta ársfjórðungs og hækkuðu um 86 milljónir króna frá árslokum 2015. Hlutfall hreinna vaxtaberandi skulda á móti EBITDA síðastliðinna tólf mánaða var 2,62.
Eigið fé félagsins nam 33.128 milljónum króna í lok fyrsta ársfjórðungs og eiginfjárhlutfall félagsins var 53,1%.
Helstu atburðir á fyrsta ársfjórðungi 2016
- Farsímanet Símans stækkar og eflist með hverjum mánuði. 4G farsímanet Símans nær nú til 90% landsmanna og 3G netið til 99% þeirra. Garður, Djúpivogur, Skógar undir Eyjafjöllum, Vík, Kirkjubæjarklaustur, Öndverðarnes, Hrafnagil og Borgarfjörður eystri hafa öll bæst við sterkt 4G samband Símans á árinu. Stefnt er að því að ná til 93,5% landsmanna í árslok.
Síminn
- Síminn fækkaði netáskriftarleiðum úr átta í þrjár og stækkaði þær til að mæta síaukinni þörf heimila fyrir bandvíd. Breytingin einfaldar ekki aðeins viðskiptavinum valið heldur lækkar einnig kostnað við utanumhald innan félagsins.
- Síminn seldi allt hlutafé sitt í dótturfélögunum Talenta og Staka Automation á þessum fyrsta ársfjórðungi. Salan er hluti stefnumörkunar félagsins. Síminn, Sensa og Míla eru innan kjarnastarfsemi þess. Vinna við áreiðanleikakönnun er í gangi auk þess sem samningurinn er háður samþykki Samkeppniseftirlitsins.
- Aldrei hafa fleiri verið með SkjáEinn hjá Símanum en þessa fyrstu mánuði ársins. Áhorf á forsýningar þátta eykst stöðugt sem og áhorf á þáttaraðirnar rúmlega 120 sem fylgja. Þessi öflugi efnisbanki slær met í hverjum mánuði og stefnir í 550 þúsund streymda þætti þennan mánuðinn.
- Síminn sýndi þriðju útgáfu Biggest Loser Ísland á árinu og krýndi SkjárEinn sigurvegara í fyrstu viku apríl. Áhorfið var mikið og sáu á ríflega 40% tólf til 49 ára síðasta þáttinn á SkjáEinum.
- Síminn breytti Heimilispakkanum sem inniheldur allar helstu vörur hans á markaði. Breytingarnar tóku gildi nú um mánaðamótin. Sjónvarpsefni innan hans jókst og er nærri 5.000 klukkustundir. Þá fimmfaldaðist gagnamagnið sem fylgir um leið og verð pakkans hækkaði um 1.000 krónur.
- Síminn kynnti fjölskyldupakka í farsíma þar sem öll fjölskyldan saman greiðir aðeins 8.100 krónur á mánuði. Fjölskyldukorti er þá bætt við Endalaust áskriftarleið með 30 GB sem þeir fullorðnu samnýta en börnin fá sitt GB hvert og tala endalaust án aukakostnaðar.
Helstu viðburðir á öðrum ársfjórðungi
- EM 2016 í knattspyrnu hefst 10. júní og mætir karlalandslið Íslands þá á sitt fyrsta stórmót. Augu Íslendinga verða væntanlega límd við sjónvarpið, símann eða spjaldtölvuna þegar leikirnir fara fram. Við fórum öll á EM með Símanum. 25 leikir verða í opinni dagskrá en 26 leikir í áskrift í Sjónvarpi Símans og á myndlyklum keppinauta.
- Við hjá Símanum erum stolt af Sjónvarpi Símans enda þjónustan þróuð innanhúss af okkar fólki. Nýtt viðmót hefur verið kynnt til leiks sem breytir ásýnd SkjáEins hjá Símanum ásamt því að nýir eiginleikar sem bæta upplifunina hafa bæst við.
- Nýjasta tækniþróun gerir öllum kleift að breyta farsíma sínum í stjórntæki fyrir heimilið. Síminn mun á næstu mánuðum bjóða þjónustu sem mun gera viðskiptavinum kleift að fylgjast með og stjórna ýmsum tækjum heimilisins í gegnum snjalltækin hvar og hvenær sem er.
- Síminn opnaði nýja verslun í Ármúla 25 á dögunum um leið og þeirri í Ármúla 27 var lokað. Stefnt er að því að auka enn þjónustuna við fyrirtæki. Þau geta hitt þjónustufulltrúa sinn í nýju versluninni og gengið að sínu vísu. Þótt áherslan sé aukin á fyrirtæki eru sem fyrr allir velkomnir og hlakkar Síminn til að taka á móti viðskiptavinum á nýjum stað.
Síminn
Horfur
Spá fyrir árið 2016 er óbreytt og gerir ráð fyrir að EBITDA hagnaður félagsins verði á bilinu 8,1 til 8,5 milljarðar króna. Áætlað er að fjárfestingar sem hlutfall af tekjum árið 2016 verði á bilinu 15% til 16% og hagnaður ársins verði á bilinu 2,2 til 2,6 milljarðar króna.
Kynningarfundur 29. febrúar 2016
Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn á morgun föstudaginn 29. febrúar kl. 8:30 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík.
Á fundinum munu Orri Hauksson forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum.
Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á heimasiðu Símans www.siminn.is/siminn/fjarfestar/ og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.
Fjárhagsdagatal 2016
- Afkoma 2F 2016 25. ágúst 2016
- Afkoma 3F 2016 27. október 2016
- Afkoma 4F og ársuppgjör 2016 16. febrúar 2017
- Aðalfundur 2017 16. mars 2017
Nánari upplýsingar um uppgjörð veita:
Orri Hauksson, forstjóri Símans, s. 550-6003 ([email protected])
Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans s. 550-6003 ([email protected])
Síminn hf.
Síminn á og rekur fyrirtæki sem starfa einkum á sviði fjarskipta og upplýsingatæki. Innan samstæðunnar eru eftirtalin fyrirtæki: Síminn, Míla, Sensa, Staki, On-Waves Radiómiðun, Talenta og Sensa DK í Danmörku.