Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Síminn Interim / Quarterly Report 2016

Aug 25, 2016

2203_rns_2016-08-25_53337411-743f-4200-9ec8-a06d19a00bc8.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

{# SEO P0-1: filing HTML is rendered server-side so Googlebot sees the full text without executing JS or following an iframe to a Disallow'd CDN path. The content has already been sanitized through filings.seo.sanitize_filing_html. #}

Síminn

  1. ágúst 2016

Fréttatilkynning: Afkoma Símans hf. á öðrum ársfjórðungi 2016

Betri afkoma milli fjórðunga hjá Símanum

  • Tekjur á öðrum ársfjórðungi 2016 voru 7.475 milljónir króna samanborið við 7.482 milljónir króna á sama tímabili 2015.
  • Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði EBITDA var 1.954 milljónir króna á öðrum ársfjórðungi 2016 samanborið við 2.062 milljónir króna á sama tímabili 2015. EBITDA hlutfallið var 26,1% fyrir annan ársfjórðung 2016 en var 27,6% á sama tímabili 2015.
  • Hagnaður á öðrum ársfjórðungi 2016 var 716 milljónir króna samanborið við 532 milljónir króna á sama tímabili 2015.
  • Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta var 1.638 milljónir króna á öðrum ársfjórðungi 2016 en var 1.691 milljónir króna á sama tímabili 2015. Eftir vexti og skatta var handbært fé frá rekstri 1.492 milljónir króna á öðrum ársfjórðungi 2016 en 1.432 milljónir króna á sama tímabili 2015.
  • Vaxtaberandi skuldir voru 23,6 milljarður króna í lok annars ársfjórðungs 2016 en voru 24,2 milljarðar í árslok 2015. Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 21,1 milljarðar króna í lok annars ársfjórðungs 2016.
  • Hrein fjármagnsgjöld voru 163 milljónir króna á öðrum ársfjórðungi 2016 en voru 474 milljónir króna á sama tímabili 2015. Fjármagnsgjöld voru 467 milljónir króna, fjármunatekjur voru 300 milljónir króna og gengishagnaður 4 milljónir króna.
  • Eiginfjárhlutfall Símans hf. var 52,4% í lok annars ársfjórðungs 2016 og eigið fé 32,5 milljarðar króna.

Orri Hauksson, forstjóri:

„Afkoma Símans breyttist til batnaðar milli ársfjórðunga hjá Símanum, eftir miklar verðlækkanir á farsímamarkaði á fyrsta fjórðungi sem og ófyrirséðar launahækkanir sem fylgdu SALEK-samkomulaginu. Áskrifendur að nærri ársgamalli efnisveitu Símans hafa ekki verið fleiri, ungu fólki fjölgaði í viðskiptum við Símann í gegnum Endalaust fjölskylduáskriftina og reikitekjur hækkuðu svo um munar.


Síminn

Hátt í 100 þúsund heimili eiga orðið möguleika á 100 Mb/s tengingu eða meira hjá Símanum. Prófanir á 1 Gb/s hraða eru hafnar og Mílu miðar vel áfram í ljósleiðarauppbyggingu sinni. Þá náði 4G kerfi Símans í lok tímabilsins til 93% landsmanna. Með Símanum eru fjarskipti á Íslandi á heimsmælikvarða.

Unnið hefur verið hörðum höndum að hnitmiðaðri rekstri og lægri kostnaði innan samstæðunnar. Samkeppniseftirlitið samþykkti sölu Símans á Talenta og Staka til Deloitte á fjörðungnum. Dótturfélögin On-Waves og danskt dótturfélag Sensa draga afkomu samstæðunnar niður á fyrri helmingi ársins og er rekstur þeirra í endurskoðun. Þá krefst næsta launahækkun SALEK enn frekara aðhalds í rekstri Símans sjálfs.

EM 2016 í Frakklandi setti mark sitt á starfsemina á þessum öðrum ársfjörðungi. Síminn er stoltur af því að hafa sannað sig sem öflugt afþreyingarfyrirtæki í sjónvarpi. Byggt verður á styrkum grunni Símans til framtíðar."

Helstu niðurstöður í rekstri á fyrri helmingi ársins 2016

Reikningsskilaaðferðir og samþykkt árshlutareiknings

Árshlutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning Símans hf. og dótturfélaga hans. Stjórn og forstjóri Símans hf. hafa í dag fjallað um samstæðuárshlutareikning félagsins fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2016 og staðfesta hann með undirritun sinni.

Rekstur

2F 2016 2F 2015 Breyting % 6M 2016 6M 2015 Breyting %
Rekstrartekjur 7.351 7.373 -0,3% 14.135 14.387 -1,8%
Kostnaðarverð sölu (3.953) (3.876) 2,0% (7.618) (7.808) -2,4%
Framlegð 3.398 3.497 -2,8% 6.517 6.579 -0,9%
Hlutfall af rekstrartekjum 46,2% 47,4% 46,1% 45,7%
Aðrar rekstrartekjur 124 109 13,8% 222 228 -2,6%
Rekstarkostnaður (2.490) (2.380) 4,6% (4.969) (4.502) 10,4%
Rekstrarhagnaður 1.032 1.226 -15,8% 1.770 2.305 -23,2%
Hlutfall af rekstrartekjum -14,0% -16,6% -12,5% -16,0%
Fjármunatekjur 300 105 185,7% 424 205 106,8%
Fjármagnsgjöld (467) (497) -6,0% (902) (912) -1,1%
Gengismunur 4 (82) -104,9% 19 110 -82,7%
Hrein fjármagnsgjöld (163) (474) -65,6% (459) (597) -23,1%
Áhrif hlutdeildarfélaga 0 (33) -100,0% 0 (33) -100,0%
Tekjuskattur (153) (187) -18,2% (285) (351) -18,8%
Hagnaður tímabils 716 532 34,6% 1.026 1.324 -22,5%
Afskriftir og virðisrýmun (922) (836) 10,3% (1.789) (1.718) 4,1%
EBITDA 1.954 2.062 -5,2% 3.559 4.023 -11,5%
Hlutfall 26,1% 27,6% 24,8% 27,5%
EBIT 1.032 1.226 -15,8% 1.770 2.305 -23,2%
Hlutfall 13,8% 16,4% 12,3% 15,8%

Sala á fyrri helmingi ársins 2016 nam 14.357 milljónum króna samanborið við 14.615 milljónir króna á sama tímabili árið 2015, sem er 1,8% samdráttur milli ára. Tekjur af gagnaflutningi námu 4.337 milljónum króna og jukust um 166 milljónir króna eða sem nemur 4% á milli ára.


Síminn

Tekjur af upplýsingatækni jukust um 112 milljónir króna eða 5,7% á milli ára. Tekjur af sjónvarpsbjónustu voru 2.029 milljónir króna og standa því sem næst í stað og tekjur af farsíma námu 3.466 milljónum króna og drógust saman um 7,2% á milli ára.

Framlegð á fyrri helmingi ársins 2016 nam 6.517 milljónum króna og lækkáði um 62 milljónir króna eða 0,9% frá sama tímabili árið 2015. Rekstrarkostnaður nam 4.969 milljónum króna og hækkaði um 467 milljónir króna eða 10,4% frá sama tímabili 2015. Hér vegur þyngst aukinn launakostnaður vegna kjarasamninga.

Rekstrarhagnaður félagsins fyrir afskriftir EBITDA var 3.559 milljónir króna á fyrri helmingi ársins 2016 en var 4.023 milljónir króna á sama tímabili árið 2015. EBITDA hlutfallið var 24,8% en var 27,5% á sama tímabili árið 2015.

Afskriftir félagsins voru 1.789 milljónir króna á fyrri helmingi ársins 2016 samanborið við 1.718 milljónir króna á sama tímabili árið 2015.

Hrein fjármagnsgjöld voru 459 milljónir króna á fyrri helmingi ársins 2016 og lækka um 138 milljónir króna á milli ára. Lækkunin skýrist aðallega af 209 milljón króna söluhagnaði vegna sölu á dótturfélögunum Staka og Talentu en á móti lækkar gengishagnaður um 91 milljón króna milli ára.

Heildarhagnaður félagsins eftir skatta var 1.026 milljónir króna á fyrri helmingi ársins 2016 samanborið við 1.324 milljónir króna á sama tímabili árið 2015.

Sjóðstreymi

Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta var 2.971 milljónir króna á fyrri árshelmingi 2016 samanborið við 4.143 milljónir króna á sama tímabili árið 2015.

Fjárfestingahreyfingar voru 1.937 milljónir króna samanborið við 2.681 milljónir króna á sama tímabili 2015. Þar af voru fjárfestingar í rekstrarfjármunum CAPEX 1.964 milljónir króna á fyrri árshelmingi 2016 sem er lækkun um 420 milljónir króna frá sama tímabili árið 2015. Hlutfall fjárfestinga af veltu var 13,7% á fyrri árshelmingi árið 2016 samanborið við 16,3% á sama tímabili árið 2015. Lækkunin skýrist helst af óvenju miklum fjárfestingum á fyrsta ársfjörðungi árið 2015 meðal annars vegna styrkingar á fastlínuneti félagsins.

img-0.jpeg


Síminn

Efnahagur

30.6.2016 31.12.2015
Fastafjármunir 51.293 50.392
Veltufjármunir 10.808 11.735
Eignir alls 62.101 62.127
Eigið fé 32.549 32.801
Langtímaskuldir 22.436 23.051
Skammtímaskuldir 7.116 6.275
Skuldir og eigið fé alls 62.101 62.127
Eiginfjárhlutfall 52,4% 52,8%

Heildareignir félagsins voru 62.101 milljónir króna í lok annars ársfjórðungs og eru nær óbreyttar frá því í lok árs 2015.

Vaxtaberandi skuldir voru 23.584 milljónir króna í lok annars ársfjórðungs 2016 samanborið við 24.155 milljónir króna í lok árs 2015. Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 21.087 milljónir króna í lok annars ársfjórðungs og hækkuðu um 1.003 milljónir króna frá árslokum 2015. Hlutfall hreinna vaxtaberandi skulda á móti EBITDA síðastliðinna tólf mánaða var 2,78. Hækkun hreinna vaxtaberandi skulda skýrist aðallega af lækkun á handbæru fé í kjólfar arðgreiðslu og endurkaupum á eigin bréfum félagsins.

Eigið fé félagsins var 32.549 milljónir króna í lok annars ársfjórðungs 2016 og eiginfjárhlutfall félagsins var 52,4%.

Helstu atburðir á öðrum ársfjórðungi 2016

  • Tugbúsundir fjölskyldna fylgdust með EM í Frakklandi á miðlum Símans sem fengu ný nöfn á sama tíma. SkjárEinn heitir nú Sjónvarp Símans og efnisveita Símans ber nú nafnið Sjónvarp Símans Premium. Allt að 99% sjónvarpsáhorfenda voru með stillt á einstakar útsendingar Símans frá EM, sem stýrt var af Þorsteini J. Þáttagerðin vakti athygli viða um heim. Ríflega sextán milljónir sáu til að mynda víkingaklappið á Arnarhóli og litríkar lýsingar Gumma Ben nutu heimsathygli.
  • Nýtt reikningagerðarkerfi, CBS, hefur leyst það gamla af hólmi. Þrjú ár eru síðan samið var við framsækið pólskt upplýsingatæknifyrirtæki Comarch og hafa um 150 manns komið að innleiðingu kerfisins með einum eða öðrum hætti þessi ár.
  • Á annað hundrað fyrirtækja hafa kynnst nýrri skýjalausn Sensa sem kynnt var á ársfjórðungnum, SkýjaVist. Hún eykur hagkvæmni og hreyfanleika í rekstri. Þá kynnti Sensa fjarfundarbúnaðinn Sjáumst þar sem nálgast má fundinn úr ólíkum tækjum og hvort sem er frá Apple eða Microsoft. Sensa hefur nú einnig stækkað gagnaver sitt sem uppfyllir framtíðarkröfur félagsins í Hybrid IT lausnum.
  • Hátt í 100 þúsund heimili eiga orðið möguleika á 100 Mb/s tengingu eða meira hjá Símanum. Prófanir á 1 Gb/s eru hafnar og miðar Mílu vel áfram í ljósleiðara-uppbyggingu sinni. Hvergi er slakað á við að halda fjarskiptum landsmanna í fremstu röð.
  • 4G farsímanet Símans óx úr því að ná til 90% landsmanna á fyrsta ársfjórðungi í að ná til nærri 93% á öðrum ársfjórðungi. Stefnt er að því að ná til 93,5% við árslok. Á þriðja tug minni þéttbýlisstaða hafa verið tengdir 4G það sem af er ári sem og fjöldi heiða, dala og sjávarsvæða. Þá hefur farsímanet á stærri stöðum verið þétt.

Síminn

  • Síminn opnaði nýja verslun í höfuðstöðvum sínum um leið og verslun í Ármúla 27 var lokað. Samhliða var húsnæði í Ármúla 27 skilað og hefur þúsundum fermetra af leiguhúsnæði verður skilað á árinu sem lækkar rekstrarkostnaðinn. Þjónusta við fyrirtæki er í fókus í nýju versluninni.
  • Innifalið gagnamagn í Endalaust snjalláskrift sexfaldaðist á fjórðungnum. Hörð verðsamkeppni hefur verið á farsímamarkaði það sem af er ári og miðar þjónusta Símans að því að mæta síaukinni notkun á farsímanetinu. Hún jókst um yfir 100% milli júnímánaða nú og í fyrra.
  • Gagnanotkun erlendra ferðamanna sem reika hér á landi hefur fjórfaldast milli ára. Uppbygging 4G hjá Símanum hefur nú í sumar einnig miðað að því að þjónusta ferðamenn enn betur.
  • Starfsemi Símans móðurfélags ber nú ISO 27001 vottun um upplýsingaöryggi sem tryggir fagleg, vottuð vinnubrögð starfseminnar. Þá var ISO vottun Sensa endurnýjuð á þessum öðrum ársfjórðungi og nær hún nú einnig yfir allt fyrirtækið og starfsemi þess.
  • Síminn með dótturfélagi sínu Radíomiðun kynnti sérsniðna sjónvarpsþjónustu fyrir sjómenn. Sjómenn eiga því í fyrsta sinn sína eigin gagnvirku sjónvarpsstöð; Sjóvarp Símans. Sjómenn nota nú Tímaflakk í fyrsta sinn á sjó og geta séð ógrynni innlends efnis í Frelsi.

Horfur

Spá fyrir árið 2016 er óbreytt og gerir ráð fyrir að EBITDA hagnaður félagsins verði á bilinu 8,1 til 8,5 milljarðar króna. Áætlað er að fjárfestingar sem hlutfall af tekjum árið 2016 verði á bilinu 15% til 16% og hagnaður ársins verði á bilinu 2,2 til 2,6 milljarðar króna.

Kynningarfundur 26. ágúst 2016

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn á morgun föstudaginn 26. ágúst kl. 8:30 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík.

Á fundinum munu Orri Hauksson forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum.

Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á heimasíðu Símans www.siminn.is/siminn/fjarfestar/ og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.

Hægt er að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu á vefslóðinni: http://livestream.com/accounts/11153656/events/6219098/player


Síminn

Fjárhagsdagatal 2016

  • Afkoma 3F 2016 27. október 2016
  • Afkoma 4F og årsuppgjør 2016 16. febrúar 2017
  • Adalfundur 2017 16. mars 2017

Nánari upplýsingar um uppgjořió veita:

Orri Hauksson, forstjóri Símans, s. 550-6003 ([email protected])

Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans s. 550-6003 ([email protected])

Síminn hf.

Síminn á og rekur fyrirtæki sem starfa einkum á sviði fjarskipta og upplýsingatækni. Innan samstæðunnar eru eftirtalin fyrirtæki: Síminn, Míla, Sensa, On-Waves, Radiómiðun, Farsímagreiðslur og Sensa DK í Danmörku.