Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Síminn Interim / Quarterly Report 2016

Aug 25, 2016

2203_rns_2016-08-25_f551bbd5-02df-437e-85b1-9fc57dd4b8f1.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

{# SEO P0-1: filing HTML is rendered server-side so Googlebot sees the full text without executing JS or following an iframe to a Disallow'd CDN path. The content has already been sanitized through filings.seo.sanitize_filing_html. #}

img-0.jpeg

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu

  1. janúar til 30. júní 2016

Síminn hf.
Ármúla 25
108 Reykjavík
Kt. 460207-0880


Efnisyfirlit

Bls.

Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra... 2
Könnunaráritun óháðs endurskoðanda... 3
Rekstrarreikningur... 4
Yfirlit um heildarafkomu... 5
Efnahagsreikningur... 6
Eiginfjáryfirlit... 7
Sjóðstreymisyflit... 8
Skýringar... 9 - 13
Ársfjórðungsyfirlit... 14

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. júní 2016


Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra

Árshlutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning Símans hf. og dótturfélaga hans. Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34 eins og hann hefur verið samþykktur af Evrópusambandinu.

Heildartekjur samstæðunnar á tímabilinu 1. janúar til 30. júní 2016 voru 14.357 m.kr. samkvæmt rekstrarreikningi samanborið við 14.615 m.kr. á sama tímabili árið 2015. Hagnaður var af rekstri samstæðunnar sem nam 1.026 m.kr. samanborið við hagnað að fjárhæð 1.324 m.kr. á sama tímabili árið 2015. Eignir samstæðunnar námu 62.101 m.kr. samkvæmt efnahagsreikningi. Eigið fé nam 32.549 m.kr. og var eiginfjárhlutfallið 52,4%. Félagið greiddi á tímabilinu arð að fjárhæð 575 m.kr til hluthafa sinna. Að öðru leyti vísast til árshlutareiknings um breytingar á eigin fé samstæðunnar.

Í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins, sem samþykkt var á aðalfundi félagsins þann 10. mars 2016, voru keypt eigin bréf að nafnvírði 243 m.kr. Kaupum samkvæmt endurkaupaáætluninni lauk þann 1. júní 2016 og á félagið nú 2,52% af hlutafé félagsins.

Í byrjun mars keypti félagið allt hlutafé í Farsimagreiðslum ehf. en fyrir átti félagið 55,5% hlut. Í lok júní seldi félagið tvö af dótturfélögum sínum, Staka automation ehf. og Talentu ehf. Söluhagnaður af viðskiptunum nam 189 m.kr sem tekjufærður er í rekstrarreikningi félagsins. Áhrif sölunnar á efnahagsreikning félagsins eru óveruleg.

Yfirlýsing stjórnar og forstjóra

Samkvæmt bestu vitneskju stjórnar og forstjóra er árshlutareikningur samstæðunnar í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga IAS 34 eins og hann hefur verið staðfestur af Evrópusambandinu. Er það álit stjórnar og forstjóra að samstæðuárshlutareikningurinn gefi glögga mynd af rekstrarafkomu samstæðunnar á tímabilinu 1. janúar til 30. júní 2016, eignum, skuldum og fjárhagsstöðu hennar 30. júní 2016 og breytingu á handbæru fé á tímabilinu 1. janúar til 30. júní 2016. Jafnframt er það álit stjórnar og forstjóra að samstæðuárshlutareikningurinn gefi glöggt yfirlit um þróun og árangur í rekstri samstæðunnar og stöðu hennar og lýsi helstu áhættuþáttum og óvissu sem samstæðan býr við.

Stjórn og forstjóri Símans hf. hafa í dag fjallað um samstæðuárshlutareikning félagsins fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2016 og staðfesta hann með undirritun sinni.

Reykjavík, 25. ágúst 2016

Stjórn

Sigriður Hrólfsdóttir, formaður

Heiðrún Jónsdóttir, varaformaður

Bertrand B. Kan

Birgir S. Bjarnason

Stefán Árni Auðólfsson

Forstjóri

Orri Hauksson

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. júní 2016


Könnunaráritun óháðs endurskoðanda

Til stjórnar og hluthafa Símans hf.

Við höfum kannað meðfylgjandi samandreginn árshlutareikning samstæðu Símans hf. fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2016, sem hefur að geyma rekstrarreikning og yfirlit um heildarafkomu, efnahagsreikning, eiginfjáryfirlit, sjóðstreymisyfirlit og skýringar.

Stjórn og framkvæmdastjóri félagsins eru ábyrg fyrir gerð og glöggri framsetningu árshlutareikningsins í samræmi við alþjóðlegan staðal um árshlutareikninga, IAS 34. Ábyrgð okkar felst í ályktun okkar um árshlutareikninginn sem byggir á könnuninni.

Umfang könnunar

Könnun okkar var unnin í samræmi við alþjóðlegan staðal ISRE 2410 um. Könnun óháðs endurskoðanda á árshlutareikningum. Könnun árshlutareiknings felur í sér fyrirspurnir, einkum til starfsmanna sem eru ábyrgir fyrir fjármálum og reikningsskilum, ásamt greiningum og öðrum. Könnunaraðgerðum. Könnun er talsvert umfangsminni en endurskoðun sem unnin er í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla og er því ekki víst að við fáum vitneskju um. Oll mikilvæg atriði sem gætu komið í ljós við endurskoðun. Þar af leiðandi látum við ekki í ljós álit á árshlutareikningnum.

Ályktun

Við könnun okkar kom ekkert fram sem bendir til annars en að meðfylgjandi samandreginn árshlutareikningur samstæðunnar sé í öllum meginatriðum í samræmi við IAS 34 „Árshlutareikningar“.

Reykjavík, 25. ágúst 2016

KPMG ehf.

Síminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. júní 2016


Rekstrarreikningur 1. janúar til 30. júní 2016

Skýr. 2016 2015 2016 2015
1.4.-30.6.* 1.4.-30.6.* 1.1.-30.6. 1.1.-30.6.
Sala 6 7.351 7.373 14.135 14.387
Kostnaðarverð sólú 7 ( 3.953) ( 3.876) ( 7.618) ( 7.808)
Framlegð 3.398 3.497 6.517 6.579
Aðrar rekstrartekjur 124 109 222 228
Rekstrarkostnaður 8 ( 2.490) ( 2.380) ( 4.969) ( 4.502)
Rekstrarhagnaður 1.032 1.226 1.770 2.305
Fjármunatekjur 300 105 424 205
Fjármagnsgjöld ( 467) ( 497) ( 902) ( 912)
Gengismunur 4 ( 82) 19 110
Hrein fjármagnsgjöld 9 ( 163) ( 474) ( 459) ( 597)
Áhrif hlutdeildarfélaga 0 ( 33) 0 ( 33)
Hagnaður fyrir tekjuskatt 869 719 1.311 1.675
Tekjuskattur ( 153) ( 187) ( 285) ( 351)
Hagnaður tímabilsins 716 532 1.026 1.324
EBITDA 1.954 2.062 3.559 4.023
Skipting hagnaðar
Hluthafar móðurfélags 732 534 1.049 1.326
Minnihltuti ( 16) ( 2) ( 23) ( 2)
Hagnaður tímabilsins 716 532 1.026 1.324
Hagnaður á hlut
Grunnhagnaður á hlut 0,08 0,06 0,11 0,14
Þynntur hagnaður á hlut 0,08 0,06 0,11 0,14

Skýringar á blaðsíðum 9 - 13 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuárshlutareikningnum.

  • Ekki kannað

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. júní 2016

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Yfirlit um heildarafkomu 1. janúar til 30. júní 2016

Skýr. 2016 2015 2016 2015
1.4.-30.6.* 1.4.-30.6.* 1.1.-30.6. 1.1.-30.6.
Hagnaður tímabilsins 716 532 1.026 1.324
Rekstrarliðir sem kunna að verða endurflokkaðir í rekstrarreikningi
Þýðingarmunur vegna starfsemi erlendra dótturfélaga ( 14) 1 ( 16) ( 33)
Heildarhagnaður tímabilsins 702 533 1.010 1.291
Heildarhagnaður tímabilsins skiptist þannig
Hluthafar móðurfélags 718 535 1.033 1.293
Minnihluti ( 16) ( 2) ( 23) ( 2)
Heildarhagnaður tímabilsins 702 533 1.010 1.291

Skýringar á blaðsíðum 9 - 13 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuárs hlutareikningnum.

  • Ekki kannað

Siminn hf. - Samandreginn árs hlutareikningur samstæðu 30. júní 2016

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Efnahagsreikningur 30. júní 2016

Skýr. 30.6.2016 31.12.2015
Eignir
Fastafjármunir
Rekstrarfjármunir 15.258 15.175
Viðskiptavild 31.407 31.404
Öefnislegar eignir 3.160 3.084
Aðrar eignir 10 1.468 729
Fastafjármunir 51.293 50.392
Veltufjármunir
Birgðir 11 1.946 2.162
Viðskiptakrófur 12 5.313 4.932
Aðrar skammtímakrófur 13 1.052 570
Handbært fé 2.497 4.071
Veltufjármunir 10.808 11.735
Eignir alls 62.101 62.127
Eigið fé
Hlutafé 9.407 9.650
Yfirverðsreikningur 17.049 17.556
Annað eigið fé 417 309
Þýðingarmunur 525 541
Óráðstafað eigið fé 5.309 4.836
Eigið fé hluthafa móðurfélags 32.707 32.892
Hlutdeild minnihluta ( 158) ( 91)
Eigið fé samtals 32.549 32.801
Skuldir
Langtímaskuldir
Skuldabréfalán 14 22.211 22.788
Tekjuskattsskuldbinding 15 225 263
Langtímaskuldir 22.436 23.051
Skammtímaskuldir
Viðskiptaskuldir 2.794 2.965
Næsta árs afborganir langtímaskulda 14 1.373 1.367
Skattar til greiðslu 342 38
Aðrar skammtímaskuldir 16 2.607 1.905
Skammtímaskuldir 7.116 6.275
Skuldir samtals 29.552 29.326
Eigið fé og skuldir alls 62.101 62.127

Skýringar á blaðsíðum 9 - 13 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuárshlutareikningnum.

Síminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. júní 2016

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Eiginfjáryfirlit 30. júní 2016

Hlutafé Yfirverðs-reikningur Annað eigið fé Þýðingar-munur Óráðstafað eigið fé Eigið fé hluthafa móðurfélags Hlutdeild minnihluta Eigið fé samtals
Eigið fé 1.1.2015 9.650 35.520 246 606 ( 16.016) 30.006 ( 75) 29.931
Hagnaður (tap) tímabilsins 1.326 1.326 ( 2) 1.324
Þýðingarmunur ( 33) ( 33) ( 33)
Heildarafkoma tímabilsins ( 33) 1.326 1.293 ( 2) 1.291
Yfirverði jafnað á móti tapi ( 17.964) 17.964 0
Breyting á minnihlutaeign 0 ( 2) ( 2)
Eigið fé 30.6.2015 9.650 17.556 246 573 3.274 31.299 ( 79) 31.220
Eigið fé 1.1.2016 9.650 17.556 309 541 4.836 32.892 ( 91) 32.801
Hagnaður (tap) tímabilsins 1.049 1.049 ( 23) 1.026
Þýðingarmunur ( 16) ( 16) ( 16)
Heildarafkoma tímabilsins ( 16) 1.049 1.033 ( 23) 1.010
Greiddur arður (0,0596 á hlut) ( 576) ( 576) ( 1) ( 577)
Keypt eigin bréf ( 243) ( 507) ( 750) ( 750)
Breyting á minnihlutaeign 0 ( 43) ( 43)
Áfallinn kostnaður vegna kaupréttarsamninga 108 108 108
Eigið fé 30.6.2016 9.407 17.049 417 525 5.309 32.707 ( 158) 32.549

Samkvæmt breytingum sem gerðar hafa verið á lögum nr. 3/2006 um ársreikninga ber félögum að færa hlutdeild í afkomu dóttur- eða hlutdeildarfélaga, sem færð er í rekstrarreikning og er umfram móttekinn arð eða þann arð sem ákveðið hefur verið að úthluta, á bundinn hlutdeildarreikning meðal eigin fjár. Áhrif ákvæðisins hafa ekki verið metin til fulls en ákveðin óvissa ríkir um gildistöku þess og framkvæmd.

Skýringar á blaðsíðum 9 - 13 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðúárshlutareikningnum.

Síminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. júní 2016

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Sjóðstreymisyflrit 1. janúar til 30. júní 2016

Skýr. 2016 2015 2016 2015
1.4.-30.6.* 1.4.-30.6.* 1.1.-30.6. 1.1.-30.6.
Rekstrarhreyfingar
Rekstrarhagnaður samkvæmt rekstrarreikningi 1.032 1.226 1.770 2.305
Rekstrarliðir sem ekki hafa áhrif á fjárstreymi:
Afskriftir og virðisrýrnun 922 836 1.789 1.718
Söluhagnaður varanlegra rekstrarfjármuna ( 17) ( 9) ( 19) ( 21)
Aðrir liðir sem ekki hafa áhrif á fjárstreymi 43 0 107 0
1.980 2.053 3.647 4.002
Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum ( 342) ( 362) ( 676) 141
Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta 1.638 1.691 2.971 4.143
Innborgaðir vextir 128 101 238 186
Greiddir vextir ( 271) ( 287) ( 813) ( 835)
Greiddir skattar ( 3) ( 73) ( 8) ( 221)
Handbært fé frá rekstri 1.492 1.432 2.388 3.273
Fjárfestingarhreyfingar
Fjárfesting í rekstrarfjármunum ( 933) ( 894) ( 1.702) ( 2.048)
Fjárfesting í óefnislegum eignum ( 125) ( 151) ( 262) ( 336)
Söluverð rekstrarfjármuna 34 16 38 51
Skuldabréfaeign, breyting ( 64) 0 ( 53) ( 41)
Kaup á eignarhlutum í dótturfélögum 0 ( 307) ( 50) ( 307)
Sala á eignarhlutum í dótturfélögum 234 0 234 0
Aðrar fjárfestingar ( 142) 0 ( 142) 0
Fjárfestingarhreyfingar ( 996) ( 1.336) ( 1.937) ( 2.681)
Fjármögnunarhreyfingar
Greiddur arður ( 576) ( 1) ( 577) ( 1)
Keypt eigin bréf ( 750) 0 ( 750) 0
Afborganir langtímalána ( 228) ( 261) ( 684) ( 715)
Fjármögnunarhreyfingar ( 1.554) ( 262) ( 2.011) ( 716)
Lækkun á handbæru fé ( 1.058) ( 166) ( 1.560) ( 124)
Áhrif gengisbreytinga á handbært fé ( 5) ( 95) ( 14) 103
Handbært fé í byrjun tímabilsins 3.560 4.247 4.071 4.007
Handbært fé í lok tímabilsins 2.497 3.986 2.497 3.986

Skýringar á blaðsiðum 9 - 13 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuárshlutareikningnum.

  • Ekki kannað

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. júní 2016

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

1. Starfsemi

Síminn hf. er hlutafélag og starfar á grundvelli laga nr. 2/1995 um hlutafélög. Höfuðstöðvar félagsins eru að Ármúla 25 í Reykjavík. Samstæðuárs hlutareikningur fyrir tímabilið janúar til júní 2016 hefur að geyma árs hlutareikning félagsins og dótturfélaga þess sem vísað er til í heild sem "félagsins" og til einstakra félaga sem "dótturfélaga".

2. Grundvöllur reikningsskilanna

Árs hlutareikningur félagsins er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árs hlutareikninga, IAS 34. Samandreginn árs hlutareikningur Símans hf. inniheldur ekki allar þær upplýsingar sem krafist er í fullbúnum ársreikningi og ætti að lesa í samhengi við ársreikning félagsins fyrir árið 2015. Hægt er að nálgast ársreikninginn á vef félagsins, www.siminn.is og á vef Kauphallar Íslands: www.nasdaqomxnordic.com.

Stjórn og forstjóri félagsins samþykktu árs hlutareikninginn og heimiluðu birtingu hans á stjórnarfundi þann 25. ágúst 2016.

3. Mikilvægar reikningsskilaðferðir

Við gerð árs hlutareikningsins er beitt sömu reikningsskilaðferðum og beitt var við gerð ársreiknings félagsins fyrir árið 2015.

Samstæðuárs hlutareikningurinn er gerður í íslenskum krónum sem er starfrækslugjaldmiðill félagsins og eru fjárhæðir birtar í milljónum króna nema annað sé tekið fram. Hann er gerður samkvæmt kostnaðarverðsæferð.

4. Mat og ákvarðanir

Við gerð árs hlutareiknings þurfa stjórnendur, í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla að taka ákvarðanir, meta og draga ályktanir sem hafa áhrif á eignir og skuldir á reikningsskiladegi, upplýsingar í skýringum og tekjur og gjöld. Við mat og ályktanir er byggt á reynslu og ýmsum öðrum þáttum sem taldir eru viðeigandi og myndu grundvöll þeirra ákvarðana sem teknar eru um bókfært verð eigna og skulda sem ekki liggur fyrir með öðrum hætti. Raunverulegt verð getur orðið annað en slíkt mat.

5. Starfsþáttayfirlit

Yfirlit um starfsþætti veitir upplýsingar um einstaka þætti í rekstri félagsins og er sett fram með sama hætti og regluleg skýrslugjöf til stjórnar félagsins.

Félagið skiptist í sjö starfsþætti sem selja vörur og þjónustu á mismunandi mörkuðum. Starfsþættirnir eru :

Starfsþáttur: Lýsing:
Farsímabjónusta: Tekjur félagsins af farsímabjónustu innanlands og erlendis, hvort sem heldur er hefðbundin GSM þjónusta, gervihnattabjónusta, farsímabjónusta í heildsölu eða önnur farsímabjónusta.
Talsímabjónusta: Tekjur af talsímabjónustu í heildsölu og smásölu.
Gagnaflutningur: Tekjur af gagnaflutningsbjónustu í heildsölu og smásölu, þ.m.t. xDSL þjónusta, GPON, Internet, IP net, stofnnet, heimtaugar og aðgangsnet.
Sjónvarpsbjónusta: Tekjur vegna dreifingar á sjónvarpsefni, áskriftar, notkunar og auglýsinga á miðlum félagsins.
Upplýsingatækni: Tekjur af upplýsingatækniþjónustu, þ.m.t. afnotagjöld, útseld vinna og þjónusta og vörusala.
Vörusala búnðar: Tekjur vegna sölu á fjarskiptabúnaði og fylgihlutum.
Annað: Tekjur m.a. af útseldri vinnu vegna fjarskipta (þ.m.t. vettvangsþjónusta) og aðstöðuleigu.

Síminn hf. - Samandreginn árs hlutareikningur samstæðu 30. júní 2016
Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

5. Starfsbáttayfirlit, frh.:

Starfsbættir 1.1.-30.6.2016

Farsími Talsími Gagna-flutningur Sjónvarps-bjónusta Upplýsinga-tækni Vörusala Annað Samtals
Rekstrartekjur ... 3.466 1.143 4.337 2.029 2.082 871 429 14.357
Óskipt rekstrargjöld ( 10.798)
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta 3.559
Afskriftir og virðisrýrnun ( 1.789)
Hrein fjármagnsgjöld ( 459)
Áhrif hlutdeildarfélaga 0
Skattar ( 285)
Hagnaður tímabilsins 1.026
Fjárfestingar ( 1.926)
Óskiptar eignir 30.6.2016 62.101
Óskiptar skuldir 30.6.2016 29.552

Starfsbættir 1.1.-30.6.2015

Farsími Talsími Gagna-flutningur Sjónvarps-bjónusta Upplýsinga-tækni Vörusala Annað Samtals
Rekstrartekjur ... 3.733 1.325 4.171 2.015 1.970 924 477 14.615
Óskipt rekstrargjöld ( 10.592)
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta 4.023
Afskriftir ( 1.718)
Hrein fjármagnsgjöld ( 597)
Áhrif hlutdeildarfélaga ( 33)
Skattar ( 351)
Hagnaður tímabilsins 1.324
Fjárfestingar ( 2.333)
Óskiptar eignir 30.6.2015 60.159
Óskiptar skuldir 30.6.2015 29.470

6. Sala

2016 2015

Seld bjónusta og vörur greinast bannig: 1.1.-30.6. 1.1.-30.6.

Sala á bjónustu 12.259 12.445

Vörusala 1.876 1.942

14.135 14.387

Enginn einstakur viðskiptavinur er með meira en 10% af sölu félagsins.

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. júní 2016

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

7. Kostnaðarverð sölu 2016 2015
1.1.-30.6. 1.1.-30.6.
Laun og launatengd gjöld 2.141 1.954
Kostnaðarverð seldrar þjónustu 2.170 2.303
Samtengigjöld 501 554
Kostnaðarverð seldra vara 1.730 1.804
Eignfærð vinna ( 337) ( 254)
Afskriftir 1.413 1.447
7.618 7.808
8. Rekstrarkostnaður
Laun og launatengd gjöld 2.526 2.180
Markaðs- og sölukostnaður 349 368
Húsnaðis- og bifreiðakostnaður 721 735
Tölvu- og hugbúnaðarkostnaður 208 257
Afskrifaðar tapaðar kröfur 74 83
Annar rekstrarkostnaður 716 608
Afskriftir og virðisrýrnun 375 271
4.969 4.502

9. Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld

Fjármunatekjur
Vaxtatekjur 234 204
Arður og söluhagnaður af eignarhlutum 190 1
424 205
Fjármagnsgjöld
Vaxtagjöld ( 788) ( 788)
Verðbætur ( 102) ( 106)
Önnur fjármagnsgjöld ( 12) ( 18)
( 902) ( 912)
Gengismunur 19 110
Hrein fjármagnsgjöld ( 459) ( 597)

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. júní 2016

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

10. Aðrar eignir 30.6.2016 31.12.2015
Fjárfesting í hlutdeildarfélögum 47 86
Fjárfesting í öðrum félögum 193 12
Sjónvarpsefni til sjýningar 346 314
Fyrirframgreiddur kostnaður 530 0
Langtímakröfur 352 317
Aðrar fjármunaeignir samtals 1.468 729

11. Birgðir

Rekstrarvörubirgðir 1.223 1.192
Verk í vinnslu 141 76
Sjónvarpsefni til sjýningar 582 894
Birgðir samtals 1.946 2.162

12. Viðskiptakröfur

Viðskiptakröfur 5.807 5.381
Niðurfærsla viðskiptakrafna ( 494) ( 449)
Viðskiptakröfur samtals 5.313 4.932

13. Aðrar skammtímakröfur

Fyrirframgreiddur kostnaður 643 351
Aðrar skammtímakröfur 409 219
Samtals aðrar skammtímakröfur 1.052 570

14. Langtímaskuldir

Lán félagsins greinast niður á gjaldmiðla á eftirfarandi hátt:

Skuldir í ISK, óverðtryggðar 16.308 16.783
Skuldir í ISK, verðtryggðar 7.266 7.372
Kaupleiga, langtímaskuldbinding 10 0
Næsta árs afborganir ( 1.373) ( 1.367)
--- --- ---
22.211 22.788

Afborganir langtímaskulda greinast þannig:

Innan 12 mánaða 1.373 1.367
Frá 12 - 24 mánuðum 1.373 1.367
Frá 24 - 36 mánuðum 1.373 1.367
Frá 36 - 48 mánuðum 13.882 14.351
Frá 48 - 60 mánuðum 423 417
Afborganir síðar 5.160 5.286
Heildarlán að meðtöldum næsta árs afborgunum 23.584 24.155

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. júní 2016

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

15. Tekjuskattsskuldbinding / (reiknuð skattaeign)

30.6.2016 31.12.2015

Hreyfingar á reiknaðri tekjuskattsskuldbindingu / (skattaeign) greinast á eftirfarandi hátt:

Reiknuð tekjuskattsskuldbinding (eign) í ársbyrjun. 263 ( 141)
Gengismunur. ( 1) 2
Vegna kaupa á félagi. 1 6
Skattur samkvæmt rekstrarreikningi. 274 434
Skattar til greiðslu á næsta ári. ( 312) ( 38)
Tekjuskattsskuldbinding. 225 263

16. Aðrar skammtímaskuldir

Áfallinn kostnaður 1.194 1.107
Ógreidd laun og launatengd gjöld 671 215
Ógreiddur virðisaukaskattur 643 573
Aðrar skammtímaskuldir 99 10
Samtals aðrar skammtímaskuldir 2.607 1.905

17. Óvissa

Félagið stendur í málarekstri vegna mála sem snúa að tülkunum á fjarskipta, fjölmiðla- og samkeppnislögum. Fjarskipti hf. (Vodafone) hafa stefnt félaginu til greiðslu skaðabóta vegna meints ólögmæts verðprýstings. Nemur stefnufjárhæð í málinu ríflega níu hundruð milljónum króna. Inter sem eru samtök aðila er veita internetpjónustu hafa sent kröfu og krafist skaðabóta að fjárhæð allt að premur milljörðum króna vegna meintra brota á samkeppnislögum. Félög innan samtakanna hafa í kjólfarið óskað eftir dómkvaðningu matsmanna. TSC ehf. hefur stefnt félaginu til greiðslu skaðabóta vegna meintra brota á ákvörðun samkeppnisráðs nr. 10/2015. Nemur stefnufjárhæðin rúmlega hundrað milljónum króna. Félagið hefur hafnað málatilbúnaði gagnaðila í öllum málunum og gagnstefnt Fjarskiptum hf.

Síminn og Vodafone hafa átt í ágreiningi í tengslum við dreifingu á sjónvarpsefni. Samkeppniseftirlitið og Póst- og fjarskiptastofnun hafa til meðferðar kvartanir Vodafone gegn Símanum vegna meintra brota samkeppnis- og/eða fjölmiðlalögum. Félagið telur að háttsemi þess sé í fullu samræmi við ákvæði samkeppnis- og fjölmiðlalaga. Síðastliðinn desember samþykkti Sýslumaður á höfuðborgasvæðinu kröfu Símans um að lagt yrði lögbann á Vodafone vegna dreifingar á myndefni með ólinulegum hætti. Síminn höfðaði í kjólfarið staðfestingarmál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

Prátt fyrir að óvissa sé um niðurstöður þessara mála er það mat stjórnenda að ekki komi til verulegra fjárútláta vegna þeirra. Í þeim tilvikum sem talið er að félagið geti þurft að greiða bætur vegna málareksturs á hendur því er sá kostnaður áætlaður af stjórnendum félagsins og færðar í reikningsskil þess.

18. Breytingar á samstæðu

Félagið seldi í lok júní allan hlut sinn í tveimur af dótturfélögum sínum, Staka automation ehf. og Talenta ehf. Söluhagnaður af viðskiptunum nam 189 m.kr sem tekjufærður er í rekstrarreikningi félagsins. Áhrif sölunnar á efnahagsreikning félagsins eru óveruleg.

19. Atburðir eftir reikningsskiladag

Engir atburðir hafa átt sér stað eftir lok reikningsskiladags sem krefjast lagfæringar eða breytingar á árshlutareikningi.

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. júní 2016

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Ársfjórðungsyfirlit - ekki kannað

1 F 2016 2 F 2016 Samtals
Sala 6.784 7.351 14.135
Kostnaðarverð sól ( 3.665) ( 3.953) ( 7.618)
Framlegð 3.119 3.398 6.517
Aðrar rekstrartekjur 98 124 222
Rekstrarkostnaður ( 2.479) ( 2.490) ( 4.969)
Rekstrarhagnaður 738 1.032 1.770
Hrein fjármagnsgjöld ( 296) ( 163) ( 459)
Áhrif hlutdeildarfélaga 0 0 0
Hagnaður fyrir tekjuskatt 442 869 1.311
Tekjuskattur ( 132) ( 153) ( 285)
Hagnaður tímabilsins 310 716 1.026
EBITDA 1.605 1.954 3.559
1 F 2015 2 F 2015 3 F 2015
--- --- --- ---
Sala 7.014 7.373 7.517
Kostnaðarverð sól ( 3.932) ( 3.876) ( 3.843)
Framlegð 3.082 3.497 3.674
Aðrar rekstrartekjur 119 109 39
Rekstrarkostnaður ( 2.122) ( 2.380) ( 2.188)
Rekstrarhagnaður 1.079 1.226 1.525
Hrein fjármagnsgjöld ( 123) ( 474) ( 425)
Áhrif hlutdeildarfélaga 0 ( 33) 0
Hagnaður fyrir tekjuskatt 956 719 1.100
Tekjuskattur ( 164) ( 187) ( 228)
Hagnaður tímabilsins 792 532 872
EBITDA 1.961 2.062 2.365

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. júní 2016

Fjórhæðir eru í milljónum króna