AI assistant
Síminn — Interim / Quarterly Report 2016
Oct 27, 2016
2203_rns_2016-10-27_a1ba9117-ec13-4b9a-b5d4-fb685a9cb0de.pdf
Interim / Quarterly Report
Open in viewerOpens in your device viewer
Síminn
- október 2016
Fréttatilkynning: Afkoma Símans hf. á þriðja ársfjórðungi 2016
Skilvirkari rekstur skilar
Símanum árangri
- Tekjur á þriðja ársfjórðungi 2016 voru 7.270 milljónir króna samanborið við 7.555 milljónir króna á sama tímabili 2015.
- Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði EBITDA var 2.583 milljónir króna á þriðja ársfjórðungi 2016 samanborið við 2.365 milljónir króna á sama tímabili 2015. EBITDA hlutfallið var 35,5% fyrir þriðja ársfjórðung 2016 en var 31,3% á sama tímabili 2015.
- Hagnaður á þriðja ársfjórðungi 2016 var 1.128 milljónir króna samanborið við 873 milljónir króna á sama tímabili 2015.
- Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta var 2.681 milljónir króna á þriðja ársfjórðungi 2016 en var 2.557 milljónir króna á sama tímabili 2015. Eftir vexti og skatta var handbært fé frá rekstri 2.268 milljónir króna á þriðja ársfjórðungi 2016 en 2.046 milljónir króna á sama tímabili 2015 og hækkar um 222 milljónir króna milli ára.
- Vaxtaberandi skuldir voru 23,4 milljarður króna í lok þriðja ársfjórðungs 2016 en voru 24,2 milljarðar í árslok 2015. Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 19,6 milljarðar króna í lok þriðja ársfjórðungs 2016.
- Hrein fjármagnsgjöld voru 269 milljónir króna á þriðja ársfjórðungi 2016 en voru 424 milljónir króna á sama tímabili 2015. Fjármagnsgjöld voru 398 milljónir króna, fjármunatekjur voru 109 milljónir króna og gengishagnaður 20 milljónir króna.
- Eiginfjárhlutfall Símans hf. var 53,9% í lok þriðja ársfjórðungs 2016 og eigið fé 33,7 milljarðar króna.
Orri Hauksson, forstjóri:
„Við erum stolt af árangrinum á þriðja ársfjórðungi, en rekstrarhagnaður fyrir afskriftir jókst um tæpar 220 milljónir króna milli ára. Fjarskiptamarkaðurinn er einkar líflegur um þessar mundir og samkeppnin hörð. Góð þjónusta til viðskiptavina og aukinn straumur ferðamanna léku lykilhlutverk í bættri afkomu samstæðunnar milli ára. Þess utan er viðsnúningurinn frá fyrri hluta árs ekki síst afrakstur hagræðingar innan samstæðunnar, til að mæta auknum launakostnaði og verðlækkunum. Þannig hefur stöðugildum fækkað um 14% á árinu hjá
Síminn
móðurfélagi Símans hf. Þá hafa dótturfélög verið seld og reksturinn einfaldaður, til að ná skýrari fókus á kjarnastarfsemi og auka samkeppnishæfi.
Virði áskrifta fyrir viðskiptavini hefur vaxið á fjarskiptamarkaðnum. Það sjá áskrifendur Heimilispakkans, sem fjölgar ört, og eins hafa Fjölskyldu- og Krakkakort í farsíma slegið í gegn. Upplýsingatæknieining samstæðunnar, Sensa, mun eiga mjög gott ár. Innviðafélagið Míla mun tengja 30 þúsund heimili með ljósleiðara fyrir árslok, en þetta átak fer fram án jarðraskis og með afar lágum framkvæmdakostnaði. Starfsmenn samstæðunnar hafa gert vel í rekstri hennar það sem af er ári og rekstrarspáin er óbreytt fyrir árið í heild."
Helstu niðurstöður í rekstri á fyrstu níu mánuðum ársins 2016
Reikningsskilaaðferðir og samþykkt árshlutareiknings
Árshlutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning Símans hf. og dótturfélaga hans. Stjórn og forstjóri Símans hf. hafa í dag fjallað um samstæðuárshlutareikning félagsins fyrir tímabilið 1. janúar til 30. september 2016 og staðfesta hann með undirritun sinni.
Rekstur
| 3F 2016 | 3F 2015 | Breýting % | 9M 2016 | 9M 2015 | Breýting % | |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Rekstrartekjur | 7.129 | 7.516 | -5,1% | 21.264 | 21.903 | -2,9% |
| Kostnaðarverð sölu | (3.467) | (3.842) | -9,8% | (11.085) | (11.650) | -4,8% |
| Framlegð | 3.662 | 3.674 | -0,3% | 10.179 | 10.253 | -0,7% |
| Hlutfall af rekstrartekjum | 51,4% | 48,9% | 47,9% | 46,8% | ||
| Aðrar rekstrartekjur | 141 | 39 | 261,5% | 363 | 267 | 36,0% |
| Rekstrarkostnaður | (2.124) | (2.188) | -2,9% | (7.093) | (6.690) | 6,0% |
| Rekstrarhagnaður | 1.679 | 1.525 | 10,1% | 3.449 | 3.830 | -9,9% |
| Hlutfall af rekstrartekjum | -23,6% | -20,3% | -16,2% | -17,5% | ||
| Fjármunatekjur | 109 | 106 | 2,8% | 533 | 311 | 71,4% |
| Fjármagnsgjöld | (398) | (490) | -18,8% | (1.300) | (1.403) | -7,3% |
| Gengismunur | 20 | (40) | -150,0% | 39 | 70 | -44,3% |
| Hrein fjármagnsgjöld | (269) | (424) | -36,6% | (728) | (1.022) | -28,8% |
| Áhrif hlutdeildarfélaga | 0 | 0 | 0 | (33) | -100,0% | |
| Tekjuskattur | (282) | (228) | 23,7% | (567) | (579) | -2,1% |
| Hagnaður tímabils | 1.128 | 873 | 29,2% | 2.154 | 2.196 | -1,9% |
| Afskriftir og virðisrýrnun | (904) | (840) | 7,6% | (2.693) | (2.558) | 5,3% |
| EBITDA | 2.583 | 2.365 | 9,2% | 6.142 | 6.388 | -3,9% |
| Hlutfall | 35,5% | 31,3% | 28,4% | 28,8% | ||
| EBIT | 1.679 | 1.525 | 10,1% | 3.449 | 3.830 | -9,9% |
| Hlutfall | 23,1% | 20,2% | 15,9% | 17,3% |
Heildartekjur á fyrstu níu mánuðum ársins 2016 nam 21.627 milljónum króna samanborið við 22.170 milljónir króna á sama tímabili árið 2015, sem er 2,4% samdráttur milli ára. Tekjur af gagnaflutningi námu 6.467 milljónum króna og jukust um 188 milljónir króna eða sem nemur 3% á milli ára. Tekjur af upplýsingatækni lækkuðu um 140 milljónir króna milli ára eða 4,5%. Tekjur af sjónvarpsþjónustu voru 3.065 milljónir króna og hækka um 122 milljónir króna eða 4,1% og tekjur af farsíma námu 5.454 milljónum króna og drógust saman um 5,9% á milli ára.
Síminn
Framlegð á fyrstu níu mánuðum ársins 2016 nam 10.179 milljónum króna og lækkaði um 74 milljónir króna eða 0,7% frá sama tímabili árið 2015. Rekstrarkostnaður nam 7.093 milljónum króna og hækkaði um 403 milljónir króna eða 6% frá sama tímabili 2015. Hér vegur þyngst aukinn launakostnaður vegna kjarasamninga.
Rekstrarhagnaður félagsins fyrir afskriftir EBITDA var 6.142 milljónir króna á fyrstu níu mánuðum ársins 2016 en var 6.388 milljónir króna á sama tímabili árið 2015. EBITDA hlutfallið var 28,4% en var 28,8% á sama tímabili árið 2015.
Afskriftir félagsins voru 2.692 milljónir króna á fyrstu níu mánuðum ársins 2016 samanborið við 2.557 milljónir króna á sama tímabili árið 2015.
Hrein fjármagnsgjöld voru 728 milljónir króna á fyrstu níu mánuðum ársins 2016 og lækka um 294 milljónir króna á milli ára. Lækkunin skýrist aðallega af 209 milljón króna söluhagnaði vegna sölu á dótturfélögunum Staka og Talentu og lækkun fjármagnsgjalda.
Heildarhagnaður félagsins eftir skatta var 2.154 milljónir króna á fyrstu níu mánuðum ársins 2016 samanborið við 2.196 milljónir króna á sama tímabili árið 2015.
Sjóðstrey mi
Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta var 5.652 milljónir króna á fyrstu níu mánuðum ársins 2016 samanborið við 6.700 milljónir króna á sama tímabili árið 2015.
Fjárfestingahreyfingar voru 2.834 milljónir króna samanborið við 3.805 milljónir króna á sama tímabili 2015. Þar af voru fjárfestingar í rekstrarfjármunum CAPEX 2.850 milljónir króna á fyrstu níu mánuðunum 2016

sem er lækkun um 663 milljónir króna frá sama tímabili árið 2015. Hlutfall fjárfestinga af veltu var 13,2% á fyrstu níu mánuðum árið 2016 samanborið við 15,9% á sama tímabili árið 2015. Lækkunin skýrist helst af óvenju miklum fjárfestingum á fyrsta ársfjörðungi árið 2015 meðal annars vegna styrkingar á fastlínuneti félagsins.
Efnahagur
| 30.9.2016 | 31.12.2015 | |
|---|---|---|
| Fastafjármunir | 51.212 | 50.392 |
| Veltufjármunir | 11.222 | 11.735 |
| Eignir alls | 62.434 | 62.127 |
| Eigið fé | 33.664 | 32.801 |
| Langtímaskuldir | 21.995 | 23.051 |
| Skammtímaskuldir | 6.775 | 6.275 |
| Skuldir og eigið fé alls | 62.434 | 62.127 |
| Eiginfjárhlutfall | 53,9% | 52,8% |
Heildareignir félagsins voru 62.434 milljónir króna í lok þriðja ársfjörðungs og hafa hækkað um 307 milljónir króna frá því í lok árs 2015.
Síminn
Vaxtaberandi skuldir voru 23.369 milljónir króna í lok þriðja ársfjórðungs 2016 samanborið við 24.155 milljónir króna í lok árs 2015. Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 19.646 milljónir króna í lok þriðja ársfjórðungs og lækkuðu um 438 milljónir króna frá árslokum 2015. Hlutfall hreinna vaxtaberandi skulda á móti EBITDA síðastliðinna tólf mánaða var 2,52.
Eigið fé félagsins var 33.664 milljónir króna í lok þriðja ársfjórðungs 2016 og eiginfjárhlutfall félagsins var 53,9%.
Helstu atburðir á þriðja ársfjórðungi 2016
- 1 Gb/s netteningar bjóðast viðskiptavinum á nýju ári en Míla stefnir á að veita 30.000 heimilum möguleika á ljósleiðara fyrir árslok og að flest heimili á höfuðborgarsvæðinu verði tengd ljósleiðara Mílu innan tveggja ára. Framkvæmdir eru á áætlun og 500 Mb/s tengingar þegar í boði. Framkvæmdirnar taka aðeins brot af þeim tíma sem þekkst hefur hér á landi og kostnaðurinn er lægri enda innviðir félagsins ríkir. Mílu gefst færi á að veita allt að 10 Gb/s hraða í náinni framtíð.
- Sjötta hvert heimili í landinu er nú áskrifandi að Sjónvarpi Símans Premium, efnisveitu Símans sem kynnt var til leiks fyrir ári, eða yfir tuttugu þúsund. Þeim fjölgaði um riflega tvö þúsund á ársfjórðungnum. 33 glænýjar þáttaraðir líta dagsins ljós í vetur og eru yfir 5.500 klukkustundir af fjölbreyttu efni 20th Century Fox, Disney, CBS, NBC og Showtime í efnisveitunni.
- Fjölskyldur þekkja vel gæði sjónvarpsþjónustu Símans og nýjungagirni. Fyrst með gagnvirkt sjónvarp hér á landi sem og gagnvirka efnisveitu. Síminn er með einn vinsælasta íslenska sjónvarpsviðburðinn, app að þjónustunni, einfalt viðmót og býður nú viðskiptavinum nýja Ultra HD lykla sem bera 4K útsendingar.
- Riflega sex þúsund börn eru komin með Krakkakort, meira en tvöfalt fleiri en á fyrri hluta árs. Viðskiptavinir með fyrirtækjafarsíma eða Endalaust snjalla áskrift geta bætt börnum sínum við án aukakostnaðar. Þau fá 1 GB til umráða og kynnast öflugu farsímaneti Símans frá fyrstu hendi.
- Sensa endurnýjaði ISO 27001: 2013 vottun sína um upplýsingaöryggi til þriggja ára á þessum ársfjórðungi og jók umfang hennar. Hún tekur til allrar starfseminnar. Þá gerði þetta vaxandi upplýsingatæknifyrirtæki rammasamning við Ríkiskaup í hýsingu og rekstri upplýsingatæknikerfa á tímabilinu og endurnýjaði Cisco gull vottunina, en Sensa er eina fyrirtækið á landinu með slíka.
- Nýir og endurnýjaðir samningar á fyrirtækjamarkaði eru nú þegar riflega helmingi fleiri en allt árið í fyrra. Hörð samkeppni ríkir á markaðnum og verð hefur lækkað. Tekjur Símans af fyrirtækjum hafa í heildina hækkað vegna þessa góða árangurs.
Helstu viðburðir framundan
- Síminn sér framtíð í snjallari heimilum og gefur viðskiptavinum nú tækifæri til að prófa sig áfram með komandi nýjungar á markaðnum. Tuttugu fjölskyldna tilraunahópur mun geta fylgjast betur með eigum sínum með aðstoð fjarskipta – og Símans, áður en varan kemur á markað.
- Síminn opnar glænýja verslun sína í Smáralind á nýjum stað nú á næstu dögum. Verslunin verður stærri en sú fyrri og aðgengið betra. Hún er við nýja göngugötu innan verslunarmiðstöðvarinnar, í námunda við Hagkaup, ÁTVR og Útilíf.
Síminn
- The Voice fór af stað með hvelli föstudaginn 21. Október. Landsmenn sáu í opinni dagskrá Sjónvarps Símans þjálfarana Helga, Sölku Sól, Svölu og Unnstein velja í lið sín fyrir komandi átök næstu tíu vikurnar. Síminn framleiðir þættina í samstarfi við Saga Film og drífur þáttagerð sem þessi auglýsingasölu félagsins áfram.
Horfur
Spá fyrir árið 2016 er óbreytt og gerir ráð fyrir að EBITDA hagnaður félagsins verði á bilinu 8,1 til 8,5 milljarðar króna. Áætlað er að fjárfestingar sem hlutfall af tekjum árið 2016 verði á bilinu 13,5% til 14,5% sem er lækkun frá fyrri spá sem var 15% til 16% af tekjum. Hagnaður ársins verði á bilinu 2,2 til 2,6 milljarðar króna.
Kynningarfundur 28. október 2016
Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn á morgun föstudaginn 28. október kl. 8:30 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík.
Á fundinum kynna Orri Hauksson forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum.
Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á heimasíðu Símans www.siminn.is/siminn/fjarfestar/ og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.
Hægt er að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu á vefslóðinni:
livestream.com/accounts/11153656/events/6524138/player
Fjárhagsdagatal 2016
- Afkoma 4F og ársuppgjör 2016
- február 2017
- Aðalfundur 2017
- mars 2017
Nánari upplýsingar um uppgjórið veita:
Orri Hauksson, forstjóri Símans, s. 550-6003 ([email protected])
Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans s. 550-6003 ([email protected])
Síminn hf.
Síminn á og rekur fyrirtækin Símann, Mílu, Sensa, On-Waves, Radiómiðun og Sensa DK í Danmörku. Síminn er stærsta fjarskiptafyrirtæki á landsins og veitir viðskiptavinum, bæði einstaklingum og fyrirtækjum, heildstætt vöruframboð á sviði fjarskipta, upplýsingatækni og afþreyingu.