Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Síminn Interim / Quarterly Report 2016

Oct 27, 2016

2203_rns_2016-10-27_600f6be5-d9a5-4b70-b947-a07792476b79.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

{# SEO P0-1: filing HTML is rendered server-side so Googlebot sees the full text without executing JS or following an iframe to a Disallow'd CDN path. The content has already been sanitized through filings.seo.sanitize_filing_html. #}

img-0.jpeg

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu

  1. janúar til 30. september 2016

Síminn hf.
Ármúla 25
108 Reykjavík
Kt. 460207-0880


Efnisyfirlit

Bls.

Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra... 2
Rekstrarreikningur... 3
Yfirlit um heildarafkomu... 4
Efnahagsreikningur... 5
Eiginfjáryfirlit... 6
Sjóðstreymisyfirlit... 7
Skýringar... 8 - 12
Ársfjórðungsyfirlit... 13

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. september 2016


Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra

Árshlutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning Símans hf. og dótturfélaga hans. Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34 eins og hann hefur verið samþykktur af Evrópusambandinu.

Heildartekjur samstæðunnar á tímabilinu 1. janúar til 30. september 2016 voru 21.627 m.kr. samkvæmt rekstrarreikningi samanborið við 22.170 m.kr. á sama tímabili árið 2015. Hagnaður var af rekstri samstæðunnar sem nam 2.154 m.kr. samanborið við hagnað að fjárhæð 2.196 m.kr. á sama tímabili árið 2015. Eignir samstæðunnar námu 62.434 m.kr. samkvæmt efnahagsreikningi. Eigið fé nam 33.664 m.kr. og var eiginfjárhlutfallið 53,9%. Félagið greiddi á tímabilinu arð að fjárhæð 575 m.kr til hluthafa sinna. Að öðru leyti vísast til árshlutareiknings um breytingar á eigin fé samstæðunnar.

Í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins, sem samþykkt var á aðalfundi félagsins þann 10. mars 2016, voru keypt eigin bréf að nafnvírði 243 m.kr. Kaupum samkvæmt endurkaupaáætluninni lauk þann 1. júní 2016 og á félagið nú 2,13% af hlutafé félagsins.

Í byrjun mars keypti félagið allt hlutafé í Farsimagreiðslum ehf. en fyrir átti félagið 55,5% hlut. Í lok júní seldi félagið tvö af dótturfélögum sínum, Staka automation ehf. og Talentu ehf. Söluhagnaður af viðskiptunum nam 189 m.kr sem tekjufærður er í rekstrarreikningi félagsins. Áhrif sölunnar á efnahagsreikning félagsins eru óveruleg.

Yfirlýsing stjórnar og forstjóra

Samkvæmt bestu vitneskju stjórnar og forstjóra er árshlutareikningur samstæðunnar í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga IAS 34 eins og hann hefur verið staðfestur af Evrópusambandinu. Er það álit stjórnar og forstjóra að samstæðuárshlutareikningurinn gefi glögga mynd af rekstrarafkomu samstæðunnar á tímabilinu 1. janúar til 30. september 2016, eignum, skuldum og fjárhagsstöðu hennar 30. september 2016 og breytingu á handbæru fé á tímabilinu 1. janúar til 30. september 2016. Jafnframt er það álit stjórnar og forstjóra að samstæðuárshlutareikningurinn gefi glöggt yfirlit um þróun og árangur í rekstri samstæðunnar og stöðu hennar og lýsi helstu áhættuþáttum og óvissu sem samstæðan býr við.

Stjórn og forstjóri Símans hf. hafa í dag fjallað um samstæðuárshlutareikning félagsins fyrir tímabilið 1. janúar til 30. september 2016 og staðfesta hann með undirritun sinni.

Reykjavík, 27. október 2016

Stjórn

Sigriður Hrólfsdóttir, formaður

Heiðrún Jónsdóttir, varaformaður

Bertrand B. Kan

Birgir S. Bjarnason

Stefán Árni Auðólfsson

Forstjóri

Orri Hauksson

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. september 2016


Rekstrarreikningur 1. janúar til 30. september 2016

| | Skýr. | 2016
1.7.-30.9. | 2015
1.7.-30.9. | 2016
1.1.-30.9. | 2015
1.1.-30.9. |
| --- | --- | --- | --- | --- | --- |
| Sala | 6 | 7.129 | 7.516 | 21.264 | 21.903 |
| Kostnaðarverð sól | 7 | ( 3.467) | ( 3.842) | ( 11.085) | ( 11.650) |
| Framlegð | | 3.662 | 3.674 | 10.179 | 10.253 |
| Aðrar rekstrartekjur | | 141 | 39 | 363 | 267 |
| Rekstrarkostnaður | 8 | ( 2.124) | ( 2.188) | ( 7.093) | ( 6.690) |
| Rekstrarhagnaður | | 1.679 | 1.525 | 3.449 | 3.830 |
| Fjármunatekjur | | 109 | 106 | 533 | 311 |
| Fjármagnsgjöld | | ( 398) | ( 490) | ( 1.300) | ( 1.403) |
| Gengismunur | | 20 | ( 40) | 39 | 70 |
| Hrein fjármagnsgjöld | 9 | ( 269) | ( 424) | ( 728) | ( 1.022) |
| Áhrif hlutdeildarfélaga | | 0 | 0 | 0 | ( 33) |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | | 1.410 | 1.101 | 2.721 | 2.775 |
| Tekjuskattur | | ( 282) | ( 228) | ( 567) | ( 579) |
| Hagnaður tímabilsins | | 1.128 | 873 | 2.154 | 2.196 |
| EBITDA | | 2.583 | 2.365 | 6.142 | 6.388 |
| Skipting hagnaðar | | | | | |
| Hluthafar móðurfélags | | 1.143 | 877 | 2.192 | 2.202 |
| Minnihltuti | | ( 15) | ( 4) | ( 38) | ( 6) |
| Hagnaður tímabilsins | | 1.128 | 873 | 2.154 | 2.196 |
| Hagnaður á hlut | | | | | |
| Grunnhagnaður á hlut | | 0,12 | 0,09 | 0,23 | 0,23 |
| Þynntur hagnaður á hlut | | 0,12 | 0,09 | 0,22 | 0,23 |

Skýringar á blaðsíðum 8 - 12 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuárshlutareikningnum.

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. september 2016

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Yfirlit um heildarafkomu 1. janúar til 30. september 2016

Skýr. 2016 2015 2016 2015
1.7.-30.9. 1.7.-30.9. 1.1.-30.9. 1.1.-30.9.
Hagnaður tímabilsins 1.128 873 2.154 2.196
Rekstrarliðir sem kunna að verða endurflokkaðir í rekstrarreikningi
Þýðingarmunur vegna starfsemi erlendra dótturfélaga ( 35) ( 19) ( 51) ( 52)
Heildarhagnaður tímabilsins 1.093 854 2.103 2.144
Heildarhagnaður tímabilsins skiptist þannig
Hluthafar móðurfélags 1.108 858 2.141 2.150
Minnihluti ( 15) ( 4) ( 38) ( 6)
Heildarhagnaður tímabilsins 1.093 854 2.103 2.144

Skýringar á blaðsíðum 8 - 12 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuárshlutareikningnum.

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. september 2016

Fjórhæðir eru í milljónum króna


Efnahagsreikningur 30. september 2016

Skýr. 30.9.2016 31.12.2015
Eignir
Fastafjármunir
Rekstrarfjármunir 15.238 15.175
Viðskiptavild 31.407 31.404
Óefnislegar eignir 3.145 3.084
Aðrar eignir 10 1.422 729
Fastafjármunir 51.212 50.392
Veltufjármunir
Birgðir 11 2.143 2.162
Viðskiptakrófur 12 4.747 4.932
Aðrar skammtímakrófur 13 837 570
Handbært fé 3.495 4.071
Veltufjármunir 11.222 11.735
Eignir alls 62.434 62.127
Eigið fé
Hlutafé 9.444 9.650
Yfirverðsreikningur 17.105 17.556
Annað eigið fé 345 309
Þýðingarmunur 490 541
Óráðstafað eigið fé 6.452 4.836
Eigið fé hluthafa móðurfélags 33.836 32.892
Hlutdeild minnihluta ( 172) ( 91)
Eigið fé samtals 33.664 32.801
Skuldir
Langtímaskuldir
Skuldabréfalán 14 21.767 22.788
Tekjuskattsskuldbinding 15 228 263
Langtímaskuldir 21.995 23.051
Skammtímaskuldir
Viðskiptaskuldir 2.522 2.965
Næsta árs afborganir langtímaskulda 14 1.374 1.367
Skattar til greiðslu 621 38
Aðrar skammtímaskuldir 16 2.258 1.905
Skammtímaskuldir 6.775 6.275
Skuldir samtals 28.770 29.326
Eigið fé og skuldir alls 62.434 62.127

Skýringar á blaðsiðum 8 - 12 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuárshlutareikningnum.

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. september 2016

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Eiginfjáryfirlit 30. september 2016

Hlutafé Yfirverðs-reikningur Annað eigið fé Þýðingar-munur Óráðstafað eigið fé Eigið fé hluthafa móðurfélags Hlutdeild minnihluta Eigið fé samtals
Eigið fé 1.1.2015 9.650 35.520 246 606 ( 16.016) 30.006 ( 75) 29.931
Hagnaður (tap) tímabilsins 2.202 2.202 ( 6) 2.196
Þýðingarmunur ( 52) ( 52) ( 52)
Heildarafkoma tímabilsins ( 52) 2.202 2.150 ( 6) 2.144
Yfirverði jafnað á móti tapi ( 17.964) 17.964 0 0
Áfallinn kostnaður vegna kaupréttarsamninga 12 12 12
Breyting á minnihlutaeign 0 ( 3) ( 3)
Eigið fé 30.9.2015 9.650 17.556 258 554 4.150 32.168 ( 84) 32.084
Eigið fé 1.1.2016 9.650 17.556 309 541 4.836 32.892 ( 91) 32.801
Hagnaður (tap) tímabilsins 2.192 2.192 ( 38) 2.154
Þýðingarmunur ( 51) ( 51) ( 51)
Heildarafkoma tímabilsins ( 51) 2.192 2.141 ( 38) 2.103
Greiddur arður (0,0596 á hlut) ( 576) ( 576) ( 1) ( 577)
Keypt eigin bréf ( 243) ( 507) ( 750) ( 750)
Breyting á minnihlutaeign 0 ( 42) ( 42)
Áfallinn kostnaður vegna kaupréttarsamninga 36 36 36
Innlausn kaupréttarsamninga 37 56 93 93
Eigið fé 30.9.2016 9.444 17.105 345 490 6.452 33.836 ( 172) 33.664

Samkvæmt breytingum sem gerðar hafa verið á lögum nr. 3/2006 um ársreikninga ber félögum að færa hlutdeild í afkomu dóttur- eða hlutdeildarfélaga, sem færð er í rekstrarreikning og er umfram móttekinn arð eða þann arð sem ákveðið hefur verið að úthluta, á bundinn hlutdeildarreikning meðal eigin fjár. Áhrif ákvæðisins hafa ekki verið metin til fulls en ákveðin óvissa ríkir um gildistöku þess og framkvæmd.

Skýringar á blaðsíðum 8 - 12 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðúárshlutareikningnum.

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. september 2016

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Sjóðstreymisyflrit 1. janúar til 30. september 2016

Skýr. 2016 2015 2016 2015
1.7.-30.9. 1.7.-30.9. 1.1.-30.9. 1.1.-30.9.
Rekstrarhreyfingar
Rekstrarhagnaður samkvæmt rekstrarreikningi 1.679 1.525 3.449 3.830
Rekstrarliðir sem ekki hafa áhrif á fjárstreymi:
Afskriftir og virðisrýrnun 904 840 2.693 2.558
Söluhagnaður varanlegra rekstrarfjármuna ( 2) 0 ( 21) ( 21)
Aðrir liðir sem ekki hafa áhrif á fjárstreymi ( 72) 0 35 0
2.509 2.365 6.156 6.367
Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum 172 192 ( 504) 333
Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta 2.681 2.557 5.652 6.700
Innborgaðir vextir 105 90 343 276
Greiddir vextir ( 516) ( 546) ( 1.329) ( 1.381)
Greiddir skattar ( 2) ( 55) ( 10) ( 276)
Handbært fé frá rekstri 2.268 2.046 4.656 5.319
Fjárfestingarhreyfingar
Fjárfesting í rekstrarfjármunum ( 797) ( 1.027) ( 2.499) ( 3.075)
Fjárfesting í óefnislegum eignum ( 89) ( 102) ( 351) ( 438)
Söluverð rekstrarfjármuna 5 5 43 56
Skuldabréfaeign, breyting 17 0 ( 36) ( 41)
Kaup á eignarhlutum í dótturfélögum 0 0 ( 50) ( 307)
Sala á eignarhlutum í dótturfélögum 0 0 234 0
Aðrar fjárfestingar ( 33) 0 ( 175) 0
Fjárfestingarhreyfingar ( 897) ( 1.124) ( 2.834) ( 3.805)
Fjármögnunarhreyfingar
Greiddur arður 0 0 ( 577) ( 1)
Viðskipti með eigir bréf 93 0 ( 657) 0
Afborganir langtímalána ( 458) ( 455) ( 1.142) ( 1.170)
Fjármögnunarhreyfingar ( 365) ( 455) ( 2.376) ( 1.171)
Hækkun (lækkun) á handbæru fé 1.006 467 ( 554) 343
Áhrif gengisbreytinga á handbært fé ( 8) ( 38) ( 22) 65
Handbært fé í byrjun tímabilsins 2.497 3.986 4.071 4.007
Handbært fé í lok tímabilsins 3.495 4.415 3.495 4.415

Skýringar á blaðsíðum 8 - 12 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuárshlutareikningnum.

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. september 2016

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

1. Starfsemi

Síminn hf. er hlutafélag og starfar á grundvelli laga nr. 2/1995 um hlutafélög. Höfuðstöðvar félagsins eru að Ármúla 25 í Reykjavík. Samstæðuárs hlutareikningur fyrir tímabilið janúar til september 2016 hefur að geyma árs hlutareikning félagsins og dótturfélaga þess sem vísað er til í heild sem "félagsins" og til einstakra félaga sem "dótturfélaga".

2. Grundvöllur reikningsskilanna

Árs hlutareikningur félagsins er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árs hlutareikninga, IAS 34. Samandreginn árs hlutareikningur Símans hf. inniheldur ekki allar þær upplýsingar sem krafist er í fullbúnum ársreikningi og ætti að lesa í samhengi við ársreikning félagsins fyrir árið 2015. Hægt er að nálgast ársreikninginn á vef félagsins, www.siminn.is og á vef Kauphallar Íslands: www.nasdaqomxnordic.com.

Stjórn og forstjóri félagsins samþykktu árs hlutareikninginn og heimiluðu birtingu hans á stjórnarfundi þann 27. október 2016.

3. Mikilvægar reikningsskilaðferðir

Við gerð árs hlutareikningsins er beitt sömu reikningsskilaðferðum og beitt var við gerð ársreiknings félagsins fyrir árið 2015.

Samstæðuárs hlutareikningurinn er gerður í íslenskum krónum sem er starfrækslugjaldmiðill félagsins og eru fjárhæðir birtar í milljónum króna nema annað sé tekið fram. Hann er gerður samkvæmt kostnaðarverðsæferð.

4. Mat og ákvarðanir

Við gerð árs hlutareiknings þurfa stjórnendur, í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla að taka ákvarðanir, meta og draga ályktanir sem hafa áhrif á eignir og skuldir á reikningsskiladegi, upplýsingar í skýringum og tekjur og gjöld. Við mat og ályktanir er byggt á reynslu og ýmsum öðrum þáttum sem taldir eru viðeigandi og mynda grundvöll þeirra ákvarðana sem teknar eru um bókfært verð eigna og skulda sem ekki liggur fyrir með öðrum hætti. Raunverulegt verð getur orðið annað en slíkt mat.

5. Starfsþáttayfirlit

Yfirlit um starfsþætti veitir upplýsingar um einstaka þætti í rekstri félagsins og er sett fram með sama hætti og regluleg skýrslugjöf til stjórnar félagsins.

Félagið skiptist í sjö starfsþætti sem selja vörur og þjónustu á mismunandi mörkuðum. Starfsþættirnir eru :

Starfsþáttur: Lýsing:
Farsímapjónusta: Tekjur félagsins af farsímapjónustu innanlands og erlendis, hvort sem heldur er hefðbundin GSM þjónusta, gervihnattapjónusta, farsímapjónusta í heildsölu eða önnur farsímapjónusta.
Talsímapjónusta: Tekjur af talsímapjónustu í heildsölu og smásölu.
Gagnaflutningur: Tekjur af gagnaflutningsþjónustu í heildsölu og smásölu, þ.m.t. xDSL þjónusta, GPON, Internet, IP net, stofnnet, heimtaugar og aðgangsnet.
Sjónvarpsþjónusta: Tekjur vegna dreifingar á sjónvarpsefni, áskriftar, notkunar og auglýsinga á miðlum félagsins.
Upplýsingatækni: Tekjur af upplýsingatækniþjónustu, þ.m.t. afnotagjöld, útseld vinna og þjónusta og vörusala.
Vörusala búnðar: Tekjur vegna sölu á fjarskiptabúnaði og fylgihlutum.
Annað: Tekjur m.a. af útseldri vinnu vegna fjarskipta (þ.m.t. vettvangsþjónusta) og aðstöðuleigu.

Síminn hf. - Samandreginn árs hlutareikningur samstæðu 30. september 2016
Fjörhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

5. Starfsbáttayfirlit, frh.:

Starfsbættir 1.1.-30.9. 2016

Farsími Talsími Gagna-flutningur Sjónvarps-bjónusta Upplýsinga-tækni Vörusala Annað Samtals
Rekstrartekjur ... 5.454 1.691 6.467 3.065 2.944 1.316 690 21.627
Óskipt rekstrargjöld ( 15.485)
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta 6.142
Afskriftir og virðisrýrnun ( 2.693)
Hrein fjármagnsgjöld ( 728)
Skattar ( 567)
Hagnaður tímabilsins 2.154
Fjárfestingar ( 2.807)
Óskiptar eignir 30.9.2016 62.434
Óskiptar skuldir 30.9.2016 28.770

Starfsbættir 1.1.-30.9. 2015

Farsími Talsími Gagna-flutningur Sjónvarps-bjónusta Upplýsinga-tækni Vörusala Annað Samtals
Rekstrartekjur ... 5.793 1.988 6.279 2.943 3.084 1.357 726 22.170
Óskipt rekstrargjöld ( 15.782)
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta 6.388
Afskriftir og virðisrýrnun ( 2.558)
Hrein fjármagnsgjöld ( 1.022)
Áhrif hlutdeildarfélaga ( 33)
Skattar ( 579)
Hagnaður tímabilsins 2.196
Fjárfestingar ( 3.457)
Óskiptar eignir 30.9.2015 61.885
Óskiptar skuldir 30.9.2015 29.801

6. Sala

2016 2015

Seld bjónusta og vörur greinast bannig: 1.1.-30.9. 1.1.-30.9.

Sala á bjónustu 18.542 18.916

Vörusala 2.722 2.987

21.264 21.903

Enginn einstakur viðskiptavinur er með meira en 10% af sölu félagsins.

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. september 2016

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

7. Kostnaðarverð sölu 2016 2015
1.1.-30.9. 1.1.-30.9.
Laun og launatengd gjöld 2.964 2.761
Kostnaðarverð seldrar þjónustu 3.213 3.534
Samtengigjöld 766 845
Kostnaðarverð seldra vara 2.499 2.746
Eignfærð vinna ( 476) ( 375)
Afskriftir 2.119 2.139
11.085 11.650

8. Rekstrarkostnaður

Laun og launatengd gjöld 3.547 3.150
Markaðs- og sölukostnaður 525 592
Húsnaðis- og bifreiðakostnaður 1.102 1.132
Tölvu- og hugbúnaðarkostnaður 367 386
Afskrifaðar tapaðar kröfur 98 109
Annar rekstrarkostnaður 881 903
Afskriftir og virðisrýrnun 573 418
7.093 6.690

9. Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld

Fjármunatekjur
Vaxtatekjur 343 310
Arður og söluhagnaður af eignarhlutum 190 1
533 311
Fjármagnsgjöld
Vaxtagjöld ( 1.165) ( 1.190)
Verðbætur ( 117) ( 177)
Önnur fjármagnsgjöld ( 18) ( 36)
( 1.300) ( 1.403)
Gengismunur 39 70
Hrein fjármagnsgjöld ( 728) ( 1.022)

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. september 2016

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

10. Aðrar eignir 30.9.2016 31.12.2015
Fjárfesting í hlutdeildarfélögum 47 86
Fjárfesting í öðrum félögum 225 12
Sjónvarpsefni til sjýningar 346 314
Fyrirframgreiddur kostnaður 477 0
Langtímakröfur 327 317
Aðrar fjármunaeignir samtals 1.422 729

11. Birgðir

Rekstrarvörubirgðir 1.291 1.192
Verk í vinnslu 130 76
Sjónvarpsefni til sjýningar 722 894
Birgðir samtals 2.143 2.162

12. Viðskiptakröfur

Viðskiptakröfur 5.240 5.381
Niðurfærsla viðskiptakrafna ( 493) ( 449)
Viðskiptakröfur samtals 4.747 4.932

13. Aðrar skammtímakröfur

Fyrirframgreiddur kostnaður 543 351
Aðrar skammtímakröfur 294 219
Samtals aðrar skammtímakröfur 837 570

14. Langtímaskuldir

Lán félagsins greinast niður á gjaldmiðla á eftirfarandi hátt:

Skuldir í ISK, óverðtryggðar 15.992 16.783
Skuldir í ISK, verðtryggðar 7.139 7.372
Kaupleiga, langtímaskuldbinding 10 0
Næsta árs afborganir ( 1.374) ( 1.367)
--- --- ---
21.767 22.788

Afborganir langtímaskulda greinast þannig:

Innan 12 mánaða 1.374 1.367
Frá 12 - 24 mánuðum 1.374 1.367
Frá 24 - 36 mánuðum 14.516 1.367
Frá 36 - 48 mánuðum 424 14.351
Frá 48 - 60 mánuðum 424 417
Afborganir síðar 5.029 5.286
Heildarlán að meðtöldum næsta árs afborgunum 23.141 24.155

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. september 2016
Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

15. Tekjuskattsskuldbinding / (reiknuð skattaeign)

30.9.2016 31.12.2015

Hreyfingar á reiknaðri tekjuskattsskuldbindingu / (skattaeign) greinast á eftirfarandi hátt:

Reiknuð tekjuskattsskuldbinding (eign) í ársbyrjun. 263 ( 141)
Gengismunur. ( 2) 2
Vegna sölu/kaupa á félagi. 1 6
Skattur samkvæmt rekstrarreikningi. 551 434
Skattar til greiðslu á næsta ári. ( 585) ( 38)
Tekjuskattsskuldbinding. 228 263

16. Aðrar skammtímaskuldir

Áfallinn kostnaður 887 1.107
Ógreidd laun og launatengd gjöld 320 215
Ógreiddur virðisaukaskattur 885 573
Aðrar skammtímaskuldir 166 10
Samtals aðrar skammtímaskuldir 2.258 1.905

17. Óvissa

Félagið stendur í málarekstri vegna mála sem snúa að tülkunum á fjarskipta, fjölmiðla- og samkeppnislögum. Fjarskipti hf. (Vodafone) hafa stefnt félaginu til greiðslu skaðabóta vegna meints ólögmæts verðprýstings. Nemur stefnufjárhæð í málinu ríflega níu hundruð milljónum króna. Inter, sem eru samtök aðila er veita internetpjónustu, hafa sent kröfu og krafist skaðabóta að fjárhæð allt að premur milljörðum króna vegna meintra brota á samkeppnislögum. Félög innan samtakanna hafa í kjólfarið óskað eftir dómkvaðningu matsmanna. TSC ehf. hefur stefnt félaginu til greiðslu skaðabóta vegna meintra brota á ákvörðun samkeppnisráðs nr. 10/2015. Nemur stefnufjárhæðin rúmlega hundrað milljónum króna. Félagið hefur hafnað málatilbúnaði gagnaðila í öllum málunum og gagnstefnt Fjarskiptum hf.

Síminn og Vodafone hafa átt í ágreiningi í tengslum við dreifingu á sjónvarpsefni. Samkeppniseftirlitið og Póst- og fjarskiptastofnun hafa til meðferðar kvartanir Vodafone gegn Símanum vegna meintra brota á samkeppnis- og/eða fjölmiðlalögum. Félagið telur að háttsemi þess sé í fullu samræmi við ákvæði samkeppnis- og fjölmiðlalaga. Síðastliðinn desember samþykkti Sýslumaður á höfuðborgarsvæðinu kröfu félagsins um að lagt yrði lögbann á Vodafone vegna dreifingar á mynddefni með ólínulegum hætti. Félagið höfðaði í kjólfarið staðfestingarmál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

Þrátt fyrir að óvissa sé um niðurstöður þessara mála er það mat stjórnenda að ekki komi til verulegra fjárútláta vegna þeirra. Í þeim tilvikum sem talið er að félagið geti þurft að greiða bætur vegna málareksturs á hendur þess er sá kostnaður áætlaður af stjórnendum félagsins og færður í reikningsskil þess.

18. Breytingar á samstæðu

Félagið seldi í lok júní allan hlut sinn í tveimur af dótturfélögum sínum, Staka automation ehf. og Talenta ehf. Söluhagnaður af viðskiptunum nam 189 m.kr sem tekjufærður er í rekstrarreikningi félagsins. Áhrif sölunnar á efnahagsreikning félagsins eru óveruleg.

19. Atburðir eftir reikningsskiladag

Engir atburðir hafa átt sér stað eftir lok reikningsskiladags sem krefjast lagfæringar eða breytingar á árshlutareikningi.

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. september 2016

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Ársfjörðungsyfirlit

1 F 2016 2 F 2016 3 F 2016 Samtals
Sala 6.784 7.351 7.129 21.264
Kostnaðarverð sól ( 3.665) ( 3.953) ( 3.467) ( 11.085)
Framlegð 3.119 3.398 3.662 10.179
Aðrar rekstrartekjur 98 124 141 363
Rekstrarkostnaður ( 2.479) ( 2.490) ( 2.124) ( 7.093)
Rekstrarhagnaður 738 1.032 1.679 3.449
Hrein fjármagnsgjöld ( 296) ( 163) ( 269) ( 728)
Hagnaður fyrir tekjuskatt 442 869 1.410 2.721
Tekjuskattur ( 132) ( 153) ( 282) ( 567)
Hagnaður tímabilsins 310 716 1.128 2.154
EBITDA 1.605 1.954 2.583 6.142
1 F 2015 2 F 2015 3 F 2015 4 F 2015
--- --- --- --- ---
Sala 7.014 7.373 7.517 7.964
Kostnaðarverð sól ( 3.932) ( 3.876) ( 3.843) ( 4.781)
Framlegð 3.082 3.497 3.674 3.183
Aðrar rekstrartekjur 119 109 39 272
Rekstrarkostnaður ( 2.122) ( 2.380) ( 2.188) ( 2.642)
Rekstrarhagnaður 1.079 1.226 1.525 813
Hrein fjármagnsgjöld ( 123) ( 474) ( 425) ( 265)
Áhrif hlutdeildarfélaga 0 ( 33) 0 ( 15)
Hagnaður fyrir tekjuskatt 956 719 1.100 533
Tekjuskattur ( 164) ( 187) ( 228) 146
Hagnaður tímabilsins 792 532 872 679
EBITDA 1.961 2.062 2.365 1.654

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. september 2016

Fjórhæðir eru í milljónum króna