AI assistant
Síminn — Interim / Quarterly Report 2015
Oct 29, 2015
2203_rns_2015-10-29_cb95179b-6bbb-466c-b8a4-9cf002f58fbf.pdf
Interim / Quarterly Report
Open in viewerOpens in your device viewer
Síminn
- október 2015
Fréttatilkynning: Afkoma Símans hf. eftir þriðja ársfjörðung 2015
Rekstur Símans stöðugur
- Tekjur voru 22.170 milljónir króna fyrstu níu mánuði ársins
- Rekstrarhagnaður nam 3.830 milljónum króna
-
Hagnaður tímabilsins nam 2.196 milljónum króna
-
Tekjur á þriðja ársfjörðungi námu 7.555 milljónum króna samanborið við 7.089 milljónir króna á sama tímabili í fyrra, tekjuvöxturinn nemur 6,6%. Fyrstu níu mánuði 2015 dróst sala saman um 0,9%, nam 22,2 milljörðum króna samanborið við 22,4 milljarða á sama tímabili í fyrra. Tekjuvöxtur nemur 1,1% milli ára ef leiðrétt er fyrir áhrifum af tekjum hjá Siminn Danmark en félagið var selt 1. apríl 2014.
- Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) nam 2.365 milljónum króna á þriðja ársfjörðungi 2015 samanborið við 2.452 milljónir króna á sama tíma árið 2014. EBITDA fyrstu níu mánuði ársins 2015 nam rétt tæpum 6,4 milljörðum króna en rúmlega 6,4 milljörðum árið 2014. EBITDA hlutfallið er 28,8% fyrstu níu mánuði ársins líkt og fyrstu níu mánuði ársins 2014.
- Hagnaður á þriðja ársfjörðungi nam 873 milljónum króna samanborið við 1.200 milljónir króna á sama tímabili 2014. Hagnaður fyrstu níu mánuðina nam tæpum 2,2 milljörðum króna samanborið við 2,5 milljarða króna á sama tímabili í fyrra.
- Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta nam 2.557 milljónum króna á þriðja ársfjörðungi en var 2.615 milljónir króna á sama tímabili í fyrra. Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta nam 6,7 milljörðum króna fyrstu níu mánuðina ársins samanborið við 6,6 milljarða á fyrstu níu mánuðum 2014. Eftir vexti og skatta nam handbært fé frá rekstri 2.046 milljónum króna á þriðja ársfjörðungi en 5,3 milljörðum króna á fyrstu níu mánuðum ársins sem er sambærilegt við handbært fé frá rekstri á sama tímabili í fyrra.
- Vaxtaberandi skuldir námu 24,4 milljörðum króna 30. september 2015 en voru 25,4 milljarðar í árslok 2014. Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 20 milljarðar króna í lok september og hafa lækkað um 1,4 milljarða frá áramótum.
- Hrein fjármagnsgjöld voru 1.022 milljónir króna fyrstu níu mánuði ársins. Vaxtagjöld námu 1.403 milljónum króna, fjármunatekjur voru 311 milljónir króna og gengishagnaður 70 milljónir króna.
- Eiginfjárhlutfall Símans hf. var 51,8% í lok tímabils og eigið fé 32,1 milljarðar króna.
Síminn
Orri Hauksson, forstjóri:
„Fyrsta uppgjör Símans á markaði er í samræmi við þau skilaboð sem gefin voru í aðdraganda skráningarinnar. Einföldun hefur verið meginstefið að undanförnu. Það á ekki aðeins við um uppbýggingu samstæðunnar heldur einnig þegar litið er til vöruframboðsins. Áherslan hefur færst frá einingaverði til fastra greiðslna á farsímamarkaði og hafa viðskiptavinir einnig kosið úrval vara Símans í einum pakka. Það minnkar sveiflur í rekstrinum. Á næstu misserum má ætla að þessar breytingar skili sér í hagkvæmari rekstri og aukinni framlegð. Við hjá Símanum höldum full sjálfstrausts inn á markaðinn eftir umfangsmikinn undirbúning fyrir skráningu félagsins. Ég vil nota tækifærið og þakka samstarfsfólki fyrir dug og elju í aðdraganda hennar.“
Helstu niðurstöður í rekstri fyrstu níu mánaða ársins 2015
Reikningsskilaaðferðir og samþykkt árshlutareiknings
Árshlutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning Símans hf. og dótturfélaga hans. Samstæðureikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34 eins og hann hefur verið samþykktur af Evrópusambandinu. Árshlutareikningur samstæðunnar fyrir tímabilið 1. janúar til 30. september 2015 er hvorki endurskoðaður né kannaður af endurskoðendum félagsins.
Stjórn og forstjóri Símans hf. hafa staðfest árshlutareikning samstæðu félagsins fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2015.
Rekstur
Sala á fyrstu þremur ársfjörðungunum 2015 nam 22.170 m.kr. samanborið við 22.373 m.kr. árið áður, sem er 0,9% lækku milli ára. Sé hins vegar tekið tillit til lækku nar tekna í kjölfar sölu á Síminn Danmark er tekjuvöxtur félagsins 1,1% milli ára.
Rekstrarhagnaður félagsins fyrir afskriftir (EBITDA) var 6.388 m.kr. miðað við 6.449 m.kr. árið áður. EBITDA hlutfallið er 28,8% sem er sama hlutfall og fyrir sama tímabilið árið 2014.
Afskriftir félagsins námu 2.558 m.kr. á tímabilinu samanborið við 2.703 m.kr. á sama tímabili árið áður.
Hrein fjármagnsgjöld voru 1.022 m.kr. fyrstu níu mánuði ársins og hækka um rúmar 400 m.kr. á milli ára. Mesta breytingin er í fjármunatekjum en þær lækka um 491 m.kr. milli ára.
Heildarhagnaður félagsins eftir skatta nam 2.196 m.kr. samanborið við 2.537 m.kr. fyrstu níu mánuði árið 2014.
Sjóðstreymi
Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta var 6.700 m.kr. á fyrstu níu mánuðum ársins 2015 en var 6.623 m.kr. á sama tímabili 2014.
Fjárfestingar í rekstrarfjármunum (CAPEX) námu 3.513 m.kr. en voru 3.223 m.kr. árið áður. Hlutfall fjárfestinga af veltu var 15,8% fyrstu níu mánuði ársins 2015 samanborið við 14,4% á sama tíma árið 2014.
Síminn
Efnahagur
Heildareignir félagsins námu 61.885 m.kr. í lok tímabils en voru 61.047 m.kr. í lok árs 2014. Vaxtaberandi skuldir voru 24.434 m.kr. í lok tímabils en voru 25.429 m.kr. í lok árs 2014. Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 20.019 m.kr. í lok tímabils og lækkuðu um 1.403 m.kr. frá árslokum 2014.
Eigið fé félagsins nam 32.084 m.kr. í lok tímabils og eiginfjárhlutfall félagsins var 51,8%.
Helstu atburðir á þriðja ársfjórðungi 2015
Síminn á markað
Stjórn Símans óskaði eftir því undir lok septembermánaðar að hlutabréf félagsins yrðu tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland. Vonir stóðu til þess að viðskiptin gætu hafist 15. október og stóðst dagsetningin. Hluthafafundur 8. september hafði þá samþykkt valréttaráætlun sem veitir starfsmönnum Símans og dótturfélaga utan Milu kauprétt til þriggja ára fyrir allt að sex hundruð þúsund krónur á ári.
SkjárEinn tekur stakkaskiptum
SkjáEinum var gerbylt í september. Hann er nú bæði í opinni línulegri dagskrá á landsvísu og fæst einnig sem gagnvirk efnisveita í áskrift hjá Símanum. SkjárEinn hjá Símanum er því orðinn að efnisveituheimi þar sem nálgast má ógrynni sjónvarpsefnis þegar hentar. Síminn herjar nú á nútimasjónvarpsmarkað, en áskriftinni að SkjáEinum hjá Símanum fylgir einnig Tímaflakk, SkjáFrelsi, frum- og forsýningar þátta. Sjá má dagskrá kvöldsins að morgni í sjónvarpi Símans.
Ljósleiðari á 30 þúsund heimili
Míla tilkynnti í september að hún mun setja aukinn kraft í ljósleiðaravæðingu heimila og tengja 30.000 heimili á höfuðborgarsvæðinu fyrir lok næsta árs. Uppbyggingin er til viðbótar við þau heimili sem þegar eru tengdar með ljósleiðara.
4G sjósambandið vex
Síminn hélt áfram að efla 4G sambönd fyrir sjófarendur á þessum ársfjórðungi. Settir voru upp nýir sendar á Hænuvíkurhálsi og á Bolafjalli sem ná yfir hafsvæðið um kring. Síminn hefur nú sett upp 4G samband fyrir sjófarendur í Skutulsfirði, Seyðisfirði, Eyjafirði, Norðfirði, hluta Breiðafjarðar og á Skjálfanda sem og í Patreksfirði. Auk þess hefur verið byggt upp á landi og nær 4G samband Símans nú til 86,5% landsmanna.
Síminn byggir upp með Ericsson
Síminn tilkynnti í september um fimm ára samstarfssamning við Ericsson um frekari útbreiðslu og enn öflugra farsímanet. Samhliða uppsetningu 4G LTE snjallsenda verður farsímakerfið allt uppfært til að tryggja uppbyggingu netkerfis á heimsmælikvarða.
Ágreiningur
Í kjölfar þess að Síminn hóf að senda SkjáEinn út í opinni línulegri dagskrá kom upp ágreiningur á milli Símans og Fjarskipta hf. (Vodafone) varðandi tülkun á samningi milli félaganna um dreifingu á SkjáEinum. Báðir aðilar hafa sent kvörtun til Samkeppniseftirlitsins auk þess sem Síminn hefur sent kvörtun til Póst- og fjarskiptastofnunar. Samkeppniseftirlitið sendi Símanum
Síminn
erindi Vodafone til umsagnar og tilkynnti að stofnunin hefði ákveðið að taka erindið til rannsóknar. Málið er til skoðunar hjá viðkomandi stofnunum en á frumstigi og óvíst hvað verður um framhald málsins, þar af leiðandi er óvíst hvort framangreindur ágreiningur milli félaganna hafi áhrif á rekstur og efnahag Símans.
Horfur
Horfur í rekstri Símans eru góðar. Áætlað er að EBITDA hagnaður félagsins verði á bilinu 8,0 til 8,3 milljarðar króna á árinu 2015 og að fjárfestingar sem hlutfall af tekjum verði á bilinu 15% til 16%.
Kynningarfundur 30. október 2015
Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn föstudaginn 30. október nk. í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík. Fundurinn hefst kl. 8:30.
Á fundinum munu Orri Hauksson forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum.
Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasiðu Símans www.siminn.is/siminn/fjarfestar/ og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.
Nánari upplýsingar um uppgjórið veita:
Orri Hauksson, forstjóri Símans, s. 550-6003. ([email protected])
Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans s. 550-6003. ([email protected])
Síminn hf.
Síminn á og rekur fyrirtæki sem starfa einkum á sviði fjarskipta og upplýsingatækni. Innan samstæðunnar eru eftirtalin fyrirtæki: Síminn, Míla, Sensa, Staki, On-Waves Radiomiðun, Talenta og Sensa DK í Danmörku.