AI assistant
Síminn — Earnings Release 2022
Feb 14, 2023
2203_rns_2023-02-14_788cb112-fd20-4253-b570-d2a272be79e8.pdf
Earnings Release
Open in viewerOpens in your device viewer
Síminn
- febrúar 2023
Fréttatilkynning: Afkoma Símans hf. á 4F 2022
Viðburðaríkt ár að baki
- Tekjur á fjórða ársfjórðungi (4F) 2022 námu 6.233 m.kr. samanborið við 6.464 m.kr. á sama tímabili 2021. Samdráttur í tekjum má rekja til vörusölu búnaðar sem dróst saman um fjórðung og sölu á fjarskiptabúnaði til Mílu árið 2021. Sé horft til kjarnavara félagsins er tekjuvöxtur 4,2%.
- Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) nam 1.633 m.kr. á 4F 2022 og hækkar því um 350 m.kr. eða 27,3%. EBITDA hlutfallið er 26,2% fyrir 4F 2022 en var 19,8% á sama tímabili 2021. Rekstrarhagnaður (EBIT) nam 703 m.kr. á 4F 2022 samanborið við 373 m.kr. á sama tímabili 2021. Án niðurfellingar stjórnvaldssektar að fjárhæð 200 m.kr. er EBITDA á 4F 2022 1.433 m.kr. (23,0%) og EBIT 503 m.kr. (8,1%).
- Hrein fjármagnsgjöld námu 389 m.kr. á 4F 2022 en námu 13 m.kr. á sama tímabili 2021. Fjármagnsgjöld námu 223 m.kr., fjármunatekjur voru 361 m.kr. og gengistap nam 145 m.kr. Undir fjármagnsliðnum er nú færð neikvæð gangvirðisbreyting skuldabréfs vegna sölu Mílu sem nemur 382 m.kr.
- Hagnaður á 4F 2022 nam 670 m.kr. að teknu tilliti til aflagðrar starfsemi. Hagnaður af áframhaldandi starfsemi á 4F 2022 nam 381 m.kr. samanborið við 310 m.kr. á sama tímabili 2021.
- Vaxtaberandi skuldir samstæðu að leiguskuldbindingum meðtöldum námu 8,9 ma.kr. í árslok 2022, en voru 8,3 ma.kr. í árslok 2021. Handbært fé í árslok 2022 nam 3,7 ma.kr., en var 3,5 ma.kr. í árslok 2021. Staða útlána hjá Símanum Pay var 1,7 ma.kr. í árslok 2022, en var 1,2 ma.kr. í árslok 2021.
- Eiginfjárhlutfall Símans var 68,9% í árslok 2022 og eigið fé 35,3 ma.kr.
Orri Hauksson, forstjóri:
„Árið 2022 var eitt viðburðaríkasta árið í sögu Símans, sem í haust spannar 117 ár. Má segja að hver stórviðburðurinn hafi rekið annan allt til ársloka. Eitt það ánægjulegasta fyrir hluthafa var rekstrarafkoman síðustu mánuði ársins, sem leiddi til þess að niðurstaða ársins var sú besta í rekstrarsögu félagsins, þótt horft sé fram hjá hagnaði af sölu Mílu.
Við erum afar stolt af þessum árangri enda var margt sem keppti um athygli starfsmanna og stjórnenda á árinu. Má þar nefna skipulagsbreytingar, mannabreytingar og nýjar vörur sem kynntar voru til leiks. Við jukum fjölbreytileika í hópi stjórnenda og bjuggum fyrirtækið undir nýja framtíð með því að stytta boðleiðir innan þess. Títtnefnt söluferli Mílu var auk þess afar
Síminn
fyrirferðarmikið og reyndist langvinnt fram úr hófi. Í því ferli fluttust yfir 10 milljarðar króna frá íslenskum hluthöfum Símans til fjárfesta á meginlandi Evrópu.
Hitt er jákvætt, að viðskiptin hlutu á endanum samþykki samkeppnisyfirvalda og að sölunni lokinni stendur Síminn sem sterkt eignalétt þjónustufélag. Við teljum okkur nú geta sinnt kröfuhörðum viðskiptavinum félagsins til framtíðar af aukinni lipurð og hagkvæmni. Nú þegar Síminn á Mílu ekki lengur treystum við því að eftirlitsaðilar aflétti þungum opinberum kvöðum svo félagið öðlist langþráð athafnafrelsi til að keppa á markaði á jafnréttisgrundvelli, neytendum til heilla.
Eftir að samningar um sölu Mílu tókust upphaffega í október 2021 ákvað stjórn félagsins að stjórnendur skyldu kanna hvort félagið gæti nýtt það fé, sem vænta mátti úr sölunni, að hluta eða öllu leyti í arðbærari verkefni en þau sem hluthafar Símans gætu með góðu móti fundið á eigin spýtur. Í ljós kom að mögulegar fjárfestingar Símans á Íslandi verða ekki af þeirri stærðargráðu að þörf sé á söluverðmæti Mílu. Þá kom í ljós að hluthafar Símans telja almennt ekki að hið skráða rekstrarfélag Síminn hf. eigi að varðveita á eigin bókum háar upphæðir til að leita að verkefnum fyrir Símann utan Íslands.
Verkefni stjórnenda varð því að koma söluverðmæti Mílu í hendur hluthafa á fumlausan hátt. Pannig var hlutafé fært niður og greitt til hluthafa að upphæð 31,5 milljarðar króna í nóvember síðastliðnum og verður gert á ný í lok mars að upphæð 15,7 milljarðar króna, fallist aðalfundur á tillögur stjórnar. Síðari greiðsluna varð gerlegt að inna af hendi í formi reiðufjár eftir að seljendalán vegna sölu Mílu var selt. Mikill meirihluti hlutafjár Símans er í eigu íslenskra lífeyrissjóða og njóta því allir landsmenn góðs af þessum ríkulegu greiðslum til hluthafa. Skapist í framtíðinni fjárfestingatækifæri fyrir Símann af slíkri stærðargráðu, að þau útheimti á ný aukna fjármögnun til handa félaginu, mun samtalið snúast við og stjórn og stjórnendur munu þá óska eftir nýju hlutafé frá hluthöfum.
Nokkur atriði þróuðust gegin hagsmunum Símans í lok síðasta árs. Pannig lækkaði gengi íslensku krónunnar, sem hækkaði umtalsverðan hluta aðfanga Símans í krónum talið. Kjarasamningarnir sem Samtök atvinnulífsins náðu við flest verkalýðsfélög í landinu voru fagnaðarefni í sjálfu sér, en reyndust heldur dýrari en búist hafði verið við. Afturvirkni samninganna jók einnig launakostnað ársins 2022 umfram væntingar.
Margir góðir áfangar náðust í rekstrinum. Pannig má nefna að bandarískí sjónvarpsrisinn HBO valdi Símann í lok árs til að miðla gæðaefni sínu til Íslendinga næstu misseri. Bætir það með markvissum hætti sjónvarpsþjónustu Símans til handa viðskiptavinum sínum. Yfirvöld hafa einnig sett fram langtímaáætlanir um 5G tíðnileyfi. Því ber að fagna, þar sem Síminn getur nú með birgjum sínum, Mílu og Ericsson, hannað örugga 5G þjónustu sína til langrar framtíðar um land allt. Í lok síðasta árs tók Síminn einnig nýtt skref inn í heim fjártækni og stafrænnar lánapjónustu til landsmanna, með útgáfu veltukorts í farsíma. Viðtökurnar hafa verið umfram væntingar og ánægjulegt að geta boðið lántakendum upp á sveigjanlega kosti. Fleiri spennandi nýjungar eru á leiðinni.
Síminn fjárfesti umtalsvert í uppfærslu innri kerfa og sjónvarpsefni á síðasta ári. Fjárfestingar félagsins fara nú lækkandi, verða þó áfram umtalsverðar í ár en úr þeim dregur hratt í kjölfarið. Í heild leiðir öll framangreind þróun til þess að starfsmenn og stjórnendur Símans horfa björtum augum til framtíðar."
Síminn
Helstu niðurstöður í rekstri árið 2022
Rekstur samstæðu
| Rekstrarreikningur | 4F | 12M | ||||
|---|---|---|---|---|---|---|
| 2022 | 2021 | % | 2022 | 2021 | % | |
| Rekstrartekjur | 6.233 | 6.464 | -3,6% | 24.572 | 24.543 | 0,1% |
| Kostnaðarverð sölu | (3.874) | (4.292) | -9,7% | (14.914) | (15.533) | -4,0% |
| Rekstrarkostnaður | (1.656) | (1.799) | -7,9% | (6.713) | (6.750) | -0,5% |
| EBIT | 703 | 373 | 88,5% | 2.945 | 2.260 | 30,3% |
| Hrein fjármagnsgjöld | (389) | (13) | 2892,3% | (546) | (114) | 378,9% |
| Tekjuskattur | 67 | (50) | -234,0% | (337) | (411) | -18,0% |
| Hagnaður tímabils af áframhaldandi starfsemi | 381 | 310 | 22,9% | 2.062 | 1.735 | 18,8% |
| Aflögð starfsemi | 289 | 344 | -16,0% | 36.205 | 3.478 | 941,0% |
| Hagnaður tímabils | 670 | 654 | 2,4% | 38.267 | 5.213 | 634,1% |
| EBITDA | 1.633 | 1.283 | 27,3% | 6.149 | 5.502 | 11,8% |
| Hagnaður á hlut af áframhaldandi starfsemi | 0,08 | 0,05 | 60,0% | 0,31 | 0,23 | 34,8% |
Sala árið 2022 nam 24.572 m.kr. samanborið við 24.543 m.kr. árið 2021, sem er 0,1% vöxtur milli ára. Sé horft til kjarnavara félagsins er tekjuvöxtur 3,7%, en samdráttur er í öðrum tekjum. Tengist sá samdráttur að mestu leyti vörusölu búnaðar sem dróst saman um tæp 15%, sölu á fjarskiptabúnaði til Mílu árið 2021 og tekjum af endursölu Spotify, en Síminn hætti endursölu Spotify í ársbyrjun 2022.
Tekjur af farsíma námu 6.029 m.kr. og hækkuðu um 425 m.kr. eða 7,6% á milli ára. Tekjur af talsíma námu 1.342 m.kr. og lækkuðu um 14,6% á milli ára. Tekjur af gagnaflutningi námu 7.591 m.kr. og hækkuðu um 249 m.kr. eða 3,4% á milli ára. Tekjur af sjónvarpsþjónustu námu 6.722 m.kr. og hækkuðu um 339 m.kr. eða 5,3% á milli ára. Tekjur af vörusölu námu 1.838 m.kr. og lækkuðu um 310 m.kr. eða 14,4% á milli ára. Aðrar tekjur námu 1.050 m.kr. og lækkuðu um 444 m.kr. á milli ára. Lækkunin er vegna Spotify og sölu á fjarskiptabúnaði til Mílu samtals að fjárhæð 500 m.kr., en aðrir liðir hækkuðu um 55 m.kr.
Kostnaðarverð seldrar þjónustu nam 14.914 m.kr. og lækkaði um 619 m.kr. eða 4,0% frá árinu 2021 sem skýrist að stórum hluta af lækkun á kostnaðarverði seldra vara sem lækkar vegna minni vörusölu. Rekstrarkostnaður nam 6.713 m.kr. og lækkaði um 37 m.kr. eða 0,5% frá árinu 2021.
EBITDA, þ.e. rekstrarhagnaður félagsins fyrir afskriftir og fjármagnsliði, var 6.149 m.kr. árið 2022 en var 5.502 m.kr. árið 2021 og hækkaði um 647 m.kr. á milli ára eða 11,8%. EBITDA hlutfallið var 25,0% árið 2022, en var 22,4% á árið 2021. Sé leiðrétt fyrir niðurfellingu á stjórnvaldssekt á fjórða ársfjörðungi ársins 2022 að fjárhæð 200 m.kr. er EBITDA 5.949 m.kr. og EBITDA hlutfallið 24,2%.
Afskriftir félagsins námu 3.204 m.kr. árið 2022 samanborið við 3.242 m.kr. árið 2021 og lækka um 38 m.kr. á milli ára.
Hrein fjármagnsgjöld voru 546 m.kr. árið 2022, en námu 114 m.kr. árið 2021.
Síminn
Hagnaður árið 2022 nam 38.267 m.kr. Hagnaður af áframhaldandi starfsemi nam 2.062 m.kr. samanborið við 1.735 m.kr. árið 2021.
Sjóðstreymi
Rekstrarhreyfingar námu samtals 6.092 m.kr. árið 2022 samanborið við 5.501 m.kr. árið 2021. Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum árið 2022 skiluðu 2.042 m.kr.
Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta var því 8.134 m.kr. árið 2022 samanborið við 4.402 m.kr. árið 2021. Eftir vexti og skatta nam handbært fé frá rekstri 7.240 m.kr. árið 2022 samanborið við 3.760 m.kr. árið 2021.
Fjárfestingahreyfingar voru jákvæðar sem nam 26.861 m.kr. árið 2022, þar af nam greiðsla vegna sölu Mílu að frádregnum sölukostnaði 31.637 m.kr. Á þriðja fjórðungi færðist stór hluti fyrirframgreiddum kostnaði í fjárfestingu.
| Sjóðstreymi | 2022 | 2021 |
|---|---|---|
| Rekstrarhagnaður tímabils | 2.945 | 2.260 |
| Afskriftir | 3.204 | 3.242 |
| Söluhagnaður varanlegra rekstrarfjármuna | (57) | (1) |
| Samtals rekstrarhreyfingar | 6.092 | 5.501 |
| Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum | 2.042 | (1.099) |
| Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta | 8.134 | 4.402 |
| Nettó greiddir vextir | (12) | (77) |
| Greiddir skattar | (882) | (565) |
| Handbært fé frá rekstri | 7.240 | 3.760 |
| Fjárfestingarhreyfingar | 26.861 | 19.031 |
| Fjármögnunarhreyfingar | (33.889) | (20.018) |
| Breytingar á handbæru fé | 212 | 2.773 |
| Áhrif gengisbreytinga á handbært fé | 0 | 1 |
| Handbært fé í upphafi tímabils | 3.509 | 735 |
| Handbært fé í lok tímabilsins | 3.721 | 3.509 |
Fjármögnunarhreyfingar voru neikvæðar sem nam 33.889 m.kr. árið 2022 en í kjölfarið á sölu Mílu var hlutafé félagsins lækkað með útgreiðslu sem nam 30,5 ma.kr.
Síminn
Efnahagur
Heildareignir félagsins námu 51.181 m.kr. í lok árs 2022 en voru 69.727 m.kr. í lok árs 2021.
Vaxtaberandi skuldir að leiguskuldbindingum meðtöldum voru 8.867 m.kr. í lok árs 2022 samanborið við 8.294 m.kr. í lok árs 2021. Handbært fé í árslok 2022 nam 3.721 m.kr. samanborið við 3.509 m.kr. í árslok 2021. Hreinar vaxtaberandi skuldir með leiguskuldbindingum og útlánum Símans Pay voru 3.449 m.kr. í árslok 2022 samanborið við 3.571 m.kr. í árslok 2021.
Pann 29. janúar sl. var gengið frá sölu skuldabréfs sem Síminn fékk sem hluta af söluandvirði Mílu. Bréfið er fært meðal veltufjármana á gangvirði í árslok 2022, sem er tæpir 15,7 ma.kr.
Eigið fé félagsins nam 35.261 m.kr. í lok árs 2022 og eiginfjárhlutfall félagsins var 68,9%.
| Eignir | 31.12.2022 | 31.12.2021 |
|---|---|---|
| Rekstrarfjármunir | 2.466 | 2.219 |
| Leigueignir | 941 | 753 |
| Òefnislegar eignir | 22.122 | 19.403 |
| Aðrar eignir | 580 | 675 |
| Fastafjármunir | 26.109 | 23.050 |
| Eignir flokkaðar til sölu | 0 | 36.929 |
| Verðbréf færð á gangvirði | 15.687 | 0 |
| Handbært fé | 3.721 | 3.509 |
| Aðrir veltufjármunir | 5.664 | 6.239 |
| Veltufjármunir | 25.072 | 46.677 |
| Eignir alls | 51.181 | 69.727 |
| Skuldir og eigið fé | 31.12.2022 | 31.12.2021 |
| --- | --- | --- |
| Eigið fé | 35.261 | 31.079 |
| Eigið fé | 35.261 | 31.079 |
| Skuldabréfalán | 5.956 | 5.943 |
| Leiguskuldbinding | 731 | 653 |
| Viðskiptaskuldir | 639 | 0 |
| Tekjuskattsskuldbinding | 89 | 604 |
| Langtimaskuldir | 7.415 | 7.200 |
| Skuldir flokkaðar til sölu | 0 | 25.826 |
| Aðrar skammtímaskuldir | 8.505 | 5.622 |
| Skammtímaskuldir | 8.505 | 31.448 |
| Skuldir og eigið fé alls | 51.181 | 69.727 |
Um starfsemina
- Í desember 2022 gerði Síminn viðtækan samstarfssamning við bandaríska sjónvarpsframleiðandann HBO sem tryggir Sjónvarpi Símans aðgang að því nýjasta úr smiðju HBO og HBO Max ásamt fjölda eldri titla. Vinsælda þessa efnis er þegar farið að gæta hjá Símanum, bæði í fjölgun Premium viðskipavina og í gríðarlegri aukningu spilana á efni sem nú í janúar fóru í fyrsta sinn yfir 5 milljónir.
- Síminn Pay setti á markað Léttkort í nóvember þar sem boðið er upp á sveigjanlegar greiðslur og viðskiptavinir greiða á sínum hraða. Kortið er 100% stafrænt og aðgengilegt í símtækjum viðskiptavina. Viðskiptavinir með farsimaáskrift hjá Símanum njóta sérstakra kjara þar sem m.a. er ekkert gjaldeyrisálag á erlendar færslur. Kortið var tekið í notkun í Apple Pay í nóvember 2022 og í janúar 2023 í Google Pay. Um áramót var staða útlána með léttkortum þegar komin yfir 200 m.kr.
- Við sölu á dótturfélaginu Mílu á þriðja ársfjörðungi 2022 fékk Síminn hluta af söluandvirði greitt í formi skuldabréfs, samtals 17,5 ma.kr. Skuldabréfið var framseljanlegt, til þriggja ára og bar 4% vexti. Í lok janúar sl. seldi Síminn skuldabréfið til félags á vegum Ardian, kaupanda Mílu, fyrir 15,7 ma.kr. Í kjölfar sölu skuldabréfsins er söluandvirði Mílu að fullu innheimt.
- Uppbygging 5G kerfis Símans heldur áfram, en um áramót var búið að gangsetja yfir 80 senda um allt land. 5G væðingu er hvergi nærri lokið en gert er ráð fyrir 60 nýjum sendistöðum til viðbótar á þessu ári. Farsimasamband á Snæfellsnesi hefur verið bætt, m.a. með uppsetning á 5G sendum í Ólafsvík og Stykkishólmi og bættri útbreiðslu og hraða á öðrum stöðum. Auk höfuðborgarsvæðisins verður farið í 5G væðingu á Dalvík, Ólafsfirði, Siglufirði, Patreksfirði, Bíldudal og Tálknafirði fram að sumri.
Síminn
- Aðalfundur Símans verður haldinn á Hilton Nordica þann 9. mars nk. Á fundinum verða meðal annars bornar fram tillögur um 500 m.kr. arðgreiðslu og lækku hlutafjár um 185 milljónir hluta með jöfnun á eigin hlutum félagsins. Um er að ræða 4,2% af útgefnum hlutum í félaginu. Auk þess verður borin upp tillaga um að lækka hlutafé félagsins með 15,7 ma.kr. greiðslu til hluthafa. Um er að ræða sömu fjárhæð og fékkst fyrir skuldabréfið vegna sölu Mílu.
Horfur fyrir árið 2023
Spá fyrir árið 2023 gerir ráð fyrir að EBITDA samstæðunnar verði á bilinu 5,9 til 6,3 ma.kr. Áætlað er að fjárfestingar verði á bilinu 3,6 til 3,9 ma.kr. án fjárfestinga í tíðnileyfum.
Kynningarfundur 15. febrúar 2023
Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn miðvikudaginn 15. febrúar 2023 kl. 8:30 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík. Hluthafar, fjárfestar og markaðsaðilar eru sérstaklega boðnir velkomnir á fundinn. Á fundinum munu Orri Hauksson forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum. Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast í fréttakerfi Nasdaq Iceland og á heimasiðu Símans https://www.siminn.is/fjarfestar/uppgjor-og-arsskyrslur.
Jafnframt verður hægt að fylgjast með fundinum í netstreymi á vefslóðinni:
https://www.siminn.is/fjarfestakynning.
Þeir sem vilja bera upp spurningar geta sent þær á [email protected] og verður þeim svarað í lok fundarins.
Fjárhagsdagatal 2023
Aðalfundur 2023 9. mars 2023
Uppgjör 1F 2023 25. apríl 2023
Uppgjör 2F 2023 22. ágúst 2023
Uppgjör 3F 2023 31. október 2023
Ársuppgjör 2023 20. febrúar 2024
Aðalfundur 2024 14. mars 2024
Nánari upplýsingar um uppgjörði veita:
Orri Hauksson, forstjóri Símans ([email protected])
Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans ([email protected])