AI assistant
Síminn — Earnings Release 2021
Feb 15, 2022
2203_rns_2022-02-15_c232fdc2-ceaa-4b94-a9c9-be4d050b2295.pdf
Earnings Release
Open in viewerOpens in your device viewer
Síminn
- febrúar 2022
Fréttatilkynning: Afkoma Símans hf. á 4F 2021
Ár breytinga – traustur rekstur
Í ársreikningi samstæðu Símans fyrir árið 2021 er Míla meðhöndluð sem aflögð starfsemi. Hér að neðan er fjallað um rekstur samstæðu Símans að Mílu meðtalinni.
- Tekjur á fjórða ársfjórðungi (4F) 2021 námu 6.700 m.kr. samanborið við 6.703 m.kr. á sama tímabili 2020.
- Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði, EBITDA, nam 2.532 m.kr. á 4F 2021 samanborið við 2.713 m.kr. á sama tímabili 2020 og lækkar því um 181 m.kr. eða 6,7% frá sama tímabili í fyrra. EBITDA hlutfallið er 37,8% fyrir fjórða ársfjórðung 2021 en var 40,5% á sama tímabili 2020. Rekstrarhagnaður EBIT nam 918 m.kr. á 4F 2021 samanborið við 1.207 m.kr. á sama tímabili 2020. Án 300 m.kr. lækkunar stjórnvaldssektar á 4F 2020 var EBITDA tímabilsins 2.413 m.kr. og EBIT 907 m.kr.
- Hrein fjármagnsgjöld námu 279 m.kr. á 4F 2021 en voru 144 m.kr. á sama tímabili 2020. Fjármagnsgjöld námu 360 m.kr., fjármunatekjur voru 87 m.kr. og gengistap nam 6 m.kr.
- Hagnaður á 4F 2021 nam 654 m.kr. samanborið við 1.055 m.kr. á sama tímabili 2020. Án lækkunar stjórnvaldssektar á 4F 2020 var hagnaður tímabilsins 755 m.kr.
- Vaxtaberandi skuldir samstæðu án Mílu að leiguskuldbindingum meðtöldum námu 8,3 ma.kr. í árslok 2021 en voru 21,5 ma.kr. í árslok 2020. Hreinar vaxtaberandi skuldir samstæðu án Mílu að leiguskuldbindingum meðtöldum voru 4,8 ma.kr. í árslok 2021 samanborið við 20,8 ma.kr. í árslok 2020.
- Eiginfjárhlutfall Símans var 44,6% í lok árs 2021 og eigið fé 31,1 ma.kr.
Orri Hauksson, forstjóri:
„Árið 2021 var sögulegt hjá Símanum. Samningurinn um sölu Mílu markar einar stærstu breytingar sem gerðar hafa verið á samstæðunni í yfir aldar sögu hennar. Á árinu var einnig gengið endanlega frá sölu næststærsta dótturfélags Símans, upplýsingatæknifyrirtækisins Sensa.
Á sama tíma og uppstokkun á samstæðunni fór fram gekk grunnreksturinn með prýði, bæði hjá Símanum sjálfum og hjá samstæðunni í heild. Hagnaður samstæðunnar eykst milli ára og nemur tæpum 3 milljörðum króna af þeirri starfsemi sem var innan samstæðunnar um síðastliðin áramót, það er með Mílu meðtalinni en án Sensa. Að teknu tilliti til sölihagnaðar af Sensa var hagnaðurinn yfir 5,2 milljarðar króna. Hluti af söluandvirði Sensa voru hlutabréf í Crayon sem hafa nú öll verið seld. Sökum jákvæðrar gengisþróunar Crayon reyndist endanlegur hagnaður af sölu Sensa 2.180 milljónir króna eða um 120 milljónum króna hærri
Síminn
en áætlað var við frágang viðskiptanna. EBITDA samstæðunnar hefur aldrei verið hærri, eða 10,6 milljarðar króna. Tekjur aukast myndarlega í farsíma en lítillega í gagnaflutningi og sjónvarpi.
Afkomubatinn í rekstrinum í fyrra er vegna lægri kostnaðar, sem aftur skýrist að mestu af hagræðingaraðgerðum sem ráðist var í árið 2020. Dróg með þeim úr launakostnaði en einnig komst útvistun á lykilþáttum upplýsingatækni Símans að fullu til framkvæmda árið 2021. Sú aðgerð færði kostnað milli rekstrarliða og dróg úr útgjöldum í heild. Breyting þessi hefur þann megintilgang að skila auknum viðbragðshraða til lengri tíma og bættri þjónustugetu til viðskiptavina. Heimsfaraldurinn hafði áfram greinileg áhrif til lækkunar á bæði tekjum og gjöldum á árinu. Síminn þáði enga opinbera styrki eins og fjölmiðlastyrki, hlutabótaleið eða önnur opinber framlög sem stofnað var til eftir að faraldurinn kom fram.
Eftir nokkurn aðdraganda náðust samningar um sölu á Mílu í október síðastliðnum. Kaupandinn er innviðasjóður franska sjóðastýringarfyrirtækisins Ardian og hefur fyrirtækið leitað til íslenskra lífeyrissjóða um að vera eigendur minnihluta hlutafjár Mílu á móti sér. Heildarvirði Mílu í viðskiptunum er 78 milljarðar króna og áætlaður söluhagnaður Símans 46 milljarðar króna að teknu tilliti til kostnaðar vegna viðskiptanna. Pannig er salan einkar hagfellð og hámarkar virði þessarar eignar fyrir Símann. Gerður var heildsölusamningur á milli Símans og Mílu til 20 ára sem tekur gildi við afhendingu félagsins. Með langtímasamningi félaganna tryggir Síminn sér aðgang að þeim innviðum sem nauðsynlegir eru til að veita áfram gæðaþjónustu til viðskiptavina sinna. Breytt eignarhald Mílu hefur nær engin áhrif á viðskiptin milli félaganna, þau verða áfram á sama grunni og frá stofnun Mílu árið 2007, byggð á armslengdarsjónarmiðum. Rekstur Símans verður því ekki fyrir áhrifum umfram það sem hefðbundið er í efnahag og umsýslu þegar dótturfélög eru seld. Eins er skýrt að leiguskuldbindingar myndast ekki í efnahagsreikningi Símans í kjólfar viðskiptanna.
Efnahagur Mílu er í ársreikningi samstæðunnar 2021 flokkaður sem aflögð starfsemi og eignir til sölu. Sama á við um rekstur Mílu. Að öðru leyti eru engin áhrif í reikningnum af sölu félagsins, til að mynda er söluhagnaður vegna viðskiptanna ekki kominn fram í reikningnum. Viðskiptin eru til meðferðar Samkeppniseftirlitsins og þann 10. febrúar síðastliðinn tilkynnti stofnunin að hún hefði móttekið samrunatilkynningu sem hún teldi fullnægjandi að efni. Frestur stofnunarinnar til að rýna viðskiptin er því hafinn og niðurstaða ætti að liggja fyrir um mitt ár.
Samstæðan var endurfjármögnuð í aðdraganda sölu Mílu og um 8 milljarðar króna greiddir til hluthafa með niðurfærslu hlutafjár. Móðurfélagið er þrátt fyrir það hóflega skuldsett og enn fjármagnað með hlutafé í mun meiri mæli en eðlilegt er til lengri tíma. Stefnt er á að færa fjármagnsskipan Símans í hagkvæmari stöðu eftir að sölunni á Mílu hefur verið lokið. Fram að því verður fjárfestingum í innri kerfum og ferulum félagsins hraðað og haldið áfram að kaupa eigin bréf. Samhliða er aukinn þungi í 5G uppbyggingu á vegum beggja félaga, Síminn í kjarnakerfi og Míla í sendakerfi. 5G kerfið dekkaði í lok árs stærstan hluta höfuðborgarsvæðisins og var þá gerður 5 ára samningur við sænska tæknirisann Ericsson um að hraða landsdekkandi uppbyggingu þessa örugga framtíðarkerfis okkar.
Á síðasta ári varð Síminn einnig stærsti endursali ljósleiðaraheimtauga landsins og gat í fyrsta skipti nýtt öll net landsins til að bjóða þjónustu sína til viðskiptavina. Míla hefur einnig aukið fjárfestingar sínar í ljósleiðaravæðingu landsins, frá og með því að samningur um sölu Mílu var undirritaður. Þá var samningur um sýningarrétt á ensku úrvalsdeildinni endurnýjaður til ársins 2025 og samstarf framlengt við innlenda og erlenda efnisframleiðendur. Pannig er búið að tryggja gæðefni í sjónvarpsþjónustu Símans til næstu ára.
Síminn
Árið í ár mun markast af nýju upphafi Símans sem sjálfstæðs þjónustufélags með innan við 300 starfsmenn. Félagið byggir nú á léttum efnahag og sveigjanlegum rekstri, með framúrskarandi birgja og metnaðarfullt þjónustuframboð í fjarskiptatækni, sjónvarpi og fjártækni. Frekari tækifæri til tekjuvaxtar félagsins eru jafnframt til skoðunar.
Helstu niðurstöður í rekstri árið 2021
Rekstur samstæðu með Mílu
| Rekstrarreikningur | 4F með Mílu | 12M með Mílu | ||||
|---|---|---|---|---|---|---|
| 2021 | 2020 | % | 2021 | 2020 | % | |
| Rekstrartekjur | 6.700 | 6.703 | 0,0% | 25.841 | 25.646 | 0,8% |
| Kostnaðarverð sölur | (3.567) | (3.474) | 2,7% | (12.927) | (12.769) | 1,2% |
| Rekstrarkostnaður | (2.215) | (2.022) | 9,5% | (8.222) | (8.806) | -6,6% |
| EBIT | 918 | 1.207 | -23,9% | 4.692 | 4.071 | 15,3% |
| Hrein fjármagnsgjöld | (279) | (144) | 93,8% | (999) | (705) | 41,7% |
| Tekjuskattur | (108) | (139) | -22,3% | (727) | (704) | 3,3% |
| Hagnaður tímabils af áframhaldandi starfsemi | 531 | 924 | -42,5% | 2.966 | 2.662 | 11,4% |
| Aflögð starfsemi | 123 | 131 | 2.247 | 254 | ||
| Hagnaður tímabils | 654 | 1.055 | -38,0% | 5.213 | 2.916 | 78,8% |
| EBITDA | 2.532 | 2.713 | -6,7% | 10.603 | 9.956 | 6,5% |
| Hagnaður á hlut | 0,09 | 0,13 | 0,68 | 0,34 |
Sala árið 2021 nam 25.841 m.kr. samanborið við 25.646 m.kr. árið 2020, sem er 0,8% vöxtur milli ára. Tekjur af farsíma námu 5.593 m.kr. og hækkuðu um 272 m.kr. eða 5,1% á milli ára. Tekjur af talsíma námu 1.551 m.kr. og lækkuðu um 9,5% á milli ára. Tekjur af gagnaflutningi námu 8.844 m.kr. og hækkuðu um 7 m.kr. eða 0,1% á milli ára. Tekjur af sjónvarpsþjónustu námu 6.369 m.kr. og hækkuðu um 116 m.kr. eða 1,9% á milli ára. Tekjur af vörusölu voru 2.143 m.kr. og lækkuðu um 16 m.kr. eða 0,7% á milli ára. Aðrar tekjur námu 1.341 m.kr. og lækkuðu um 21 m.kr. á milli ára. Tekjur af Spotify og Símanum Pay sem áður voru flokkaðar sem tekjur af farsíma, falla nú undir aðrar tekjur.
Kostnaðarverð seldrar þjónustu nam 12.927 m.kr. og hækkar um 158 m.kr. eða 1,2% frá árinu 2020. Rekstrarkostnaður nam 8.222 m.kr. og lækkaði um 584 m.kr. eða 6,6% frá árinu 2020. Stjórnvaldssekt árið 2020 litar samanborið á milli ára. Framlegð árið 2021 nam 12.424 m.kr. og hækkaði um 88 m.kr. eða 0,7% frá árinu 2020.
EBITDA, þ.e. rekstrarhagnaður félagsins fyrir afskriftir og fjármagnsliði, var 10.603 m.kr. árið 2021 en var 9.956 m.kr. árið 2020 og hækkaði því um 647 m.kr. á milli ára eða um 6,5%. EBITDA hlutfallið er 41,0% árið 2021, en var 38,8% árið 2020.
Afskriftir félagsins námu 5.911 m.kr. árið 2021 samanborið við 5.885 m.kr. árið 2020 og hækkað um 26 m.kr. á milli ára.
Hrein fjármagnsgjöld voru 999 m.kr. árið 2021 og hækkuðu um 294 m.kr. á milli ára.
Hagnaður ársins 2021 nam 5.213 m.kr. samanborið við 2.916 m.kr. árið 2020. Hagnaður ársins 2021 án Sensa nam 2.966 m.kr.
Síminn
Samanburður á rekstri samstæðu árið 2021 með og án Mílu
| Rekstrarreikningar | 12M með Mílu | 12M án Mílu | Áhrif Mílu | ||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 2021 | 2020 | % | 2021 | 2020 | % | 2021 | |
| Rekstrartekjur | 25.841 | 25.646 | 0,8% | 24.543 | 23.969 | 2,4% | (1.298) |
| Kostnaðarverð sölu | (12.927) | (12.769) | 1,2% | (15.533) | (13.965) | 11,2% | (2.606) |
| Rekstrarkostnaður | (8.222) | (8.806) | -6,6% | (6.750) | (7.860) | -14,1% | 1.472 |
| EBIT | 4.692 | 4.071 | 15,3% | 2.260 | 2.144 | 5,4% | (2.432) |
| Hrein fjármagnsgjöld | (999) | (705) | 41,7% | (114) | (288) | -60,4% | 885 |
| Tekjuskattur | (727) | (704) | 3,3% | (411) | (397) | 3,5% | 316 |
| Hagnaður tímabils af áframhaldandi starfsemi | 2.966 | 2.662 | 11,4% | 1.735 | 1.459 | 18,9% | (1.231) |
| Aflögð starfsemi | 2.247 | 254 | 3.478 | 1.457 | 1.231 | ||
| Hagnaður tímabils | 5.213 | 2.916 | 78,8% | 5.213 | 2.916 | 78,8% | 0 |
| EBITDA | 10.603 | 9.956 | 6,5% | 5.502 | 6.006 | -8,4% | (5.101) |
| Hagnaður á hlut | 0,68 | 0,34 | 0,68 | 0,34 |
Í rekstrarreikningi samstæðu hefur Míla verið færð sem aflögð starfsemi. Við það verða talsverðar breytingar á rekstrarreikningi samstæðunnar.
Tekjur samstæðu lækka um 1.298 m.kr., aðallega þar sem tekjur Mílu utan samstæðu fara út. Hins vegar hækka tekjur á móti vegna tekna Símans frá Mílu, aðallega vegna sölu á fjarskiptabúnaði upp á rúmar 400 m.kr. sem tilkominn er vegna sölu á farsímadreifikerfi og MPLS kerfum til Mílu sem ekki verður framhald á.
Kostnaður samstæðu hækkar um 1.134 m.kr. Rekstrarkostnaður lækkar um 1.472 m.kr. þar sem rekstrarkostnaður Mílu fellur út. Kostnaðarverð sölu hækkar hins vegar um 2.606 m.kr. þar sem kostnaður frá Mílu vegna fjarskipta og hýsingar sem áður var innan samstæðu er nú meðhöndlaður sem ytri kostnaður hjá samstæðu.
EBITDA samstæðu lækkar sem nemur EBITDA Mílu og fer úr 10.603 m.kr. í 5.502 m.kr. Rekstrarhagnaður (EBIT) lækkar um 2.432 m.kr.
Hrein fjármagnsgjöld samstæðu án Mílu námu 114 m.kr. í stað 999 m.kr. og skattar 411 m.kr. í stað 727 m.kr. Hagnaður tímabils af áframhaldandi starfsemi er 1.231 m.kr. lægri, eða 1.735 m.kr.
Sé horft til breytinga á samstæðu án Mílu á milli áranna 2020 og 2021 sést að EBITDA lækkar úr 6.006 m.kr. í 5.502 m.kr. eða um rúmar 500 m.kr. (8,4%). Þar þarf að hafa í huga að við söluna á farsímadreifikerfi og MPLS í byrjun ársins 2021 varð tilflutningur á u.þ.b. 1.200 m.kr. EBITDA á milli Símans og Mílu. Sú tilfærsla hefur jafnframt þau áhrif að rekstrarkostnaður samstæðu án Mílu lækkar á milli ára, en kostnaðarverð sölu hækkar.
4
Síminn
Sjóðstreymi
Rekstrarhreyfingar nema samtals 5.501 m.kr. samanborið við 6.004 m.kr. árið 2020. Lækkunin samsvarar lækkun á EBITDA samstæðunnar án Mílu. Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum árið 2021 eru neikvæðar sem nemur 1.099 m.kr. sem skýrist af fyrirframgríðslu á hluta sýningarréttar að ensku úrvalsdeildinni og greiddum kostnaði vegna söluferlis Mílu.
Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta var því 4.402 m.kr. árið 2021 samanborið við 6.465 m.kr. árið 2020. Eftir vexti og skatta nam handbært fé frá rekstri 3.760 m.kr. árið 2021 samanborið við 5.575 m.kr. árið 2020.
| Sjóðstreymi | 2021 | 2020 |
|---|---|---|
| Rekstrarhagnaður ársins | 2.260 | 2.144 |
| Afskriftir og virðisrýmun | 3.242 | 3.862 |
| Söluhagnaður varanlegra rekstrarfjármuna | (1) | (2) |
| Samtals rekstrarhreyfingar | 5.501 | 6.004 |
| Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum | (1.099) | 461 |
| Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta | 4.402 | 6.465 |
| Nettó greiddir vextir | (77) | (263) |
| Greiddir skattar | (565) | (627) |
| Handbært fé frá rekstri | 3.760 | 5.575 |
| Fjárfestingarhreyfingar | 19.031 | (2.161) |
| Fjármögnunarhreyfingar | (20.018) | (2.877) |
| Hækkun (lækkun) á handbæru fé | 2.773 | 537 |
| Áhrif gengisbreytinga á handbært fé | 1 | (19) |
| Handbært fé í upphafi árs | 735 | 217 |
| Handbært fé í lok timabilsins | 3.509 | 735 |
Fjárfestingahreýfingar eru jákvæðar sem nemur 19.031 m.kr. árið 2021 samanborið við útflæði að fjárhæð 2.161 m.kr. árið 2020. Salan á Mílu hefur mikil áhrif á þennan lið þar sem Míla var endurfjármögnuð með ytra láni og greiddi upp lán frá móðurfélagi um leið og hlutfé félagsins var lækkáð. Auk þess keypti Míla farsímadreifikerfið og IP/MPLS netið af Símanum.
Fjármögnunarhreyfingar breytast að sama skapi verulega á milli ára vegna áðurnefndrar endurfjármögnunar Mílu og uppgreiðslu á láni frá móðurfélagi.
Efnahagur
Heildareignir félagsins námu 69.727 m.kr. í lok árs 2021 en voru 65.206 m.kr. í lok árs 2020.
Salan á Mílu hefur mikil áhrif á efnahagsreikning samstæðunnar. Fastafjármunir lækka mikib þar sem eignir Mílu eru nú flokkaðar til sölu meðal veltufjármuna sem hækka umtalsvert á móti. Þá er handbært fé 3.509 m.kr. í árslok, en hækkun á árinu skýrist af breyttri fjármagnsskipan á árinu og sölu á dótturfélaginu Sensa.
Skuldir Mílu eru flokkaðar til sölu sem hefur áhrif á skuldir og leiguskuldbindingar samstæðunnar. Samhliða sölunni á Mílu voru Síminn og Míla endurfjármögnuð sitt í hvoru lagi. Áður hafði Míla verið fjármögnuð með láni frá móðurfélagi en er nú með sjálfstæða fjármögnun frá Íslandsbanka að fjárhæð 20 ma.kr. Síminn greiddi upp eldra lán og tók nýtt langtímalán hjá Arion banka að fjárhæð 6 ma.kr.
Vaxtaberandi skuldir að leiguskuldbindingum meðtöldum voru 8.294 m.kr. í lok árs 2021 samanborið við 21.518 m.kr. í lok árs 2020. Hreinar vaxtaberandi skuldir að leiguskuldbindingum meðtöldum voru 4.785 m.kr. í lok árs 2021 og
| Eignir | 31.12.2021 | 31.12.2020 |
|---|---|---|
| Rekstrarfjármunir | 2.219 | 18.991 |
| Leigueignir | 753 | 5.378 |
| Õefnislegar eignir | 19.403 | 32.544 |
| Aðrar eignir | 675 | 544 |
| Fastafjármunir | 23.050 | 57.457 |
| Eignir flokkaðar til sölu | 36.929 | 1.906 |
| Handbært fé | 3.509 | 735 |
| Aðrir veltufjármunir | 6.239 | 5.108 |
| Veltufjármunir | 46.677 | 7.749 |
| Eignir alls | 69.727 | 65.206 |
| Skuldir og eigið fé | 31.12.2021 | 31.12.2020 |
| --- | --- | --- |
| Eigið fé | 31.079 | 37.298 |
| Eigið fé | 31.079 | 37.298 |
| Skuldabréfälán | 5.943 | 14.289 |
| Leiguskuldbinding | 653 | 5.066 |
| Tekjuskattsskuldbinding | 604 | 670 |
| Langtimaskuldir | 7.200 | 20.025 |
| Skuldir flokkaðar til sölu | 25.826 | 776 |
| Aðrar skammtímaskuldir | 5.622 | 7.107 |
| Skammtímaskuldir | 31.448 | 7.883 |
| Skuldir og eigið fé alls | 69.727 | 65.206 |
Síminn
lækkuðu um 15.998 m.kr. frá árslokum 2020. Hlutfall hreinna vaxtaberandi skulda að leiguskuldbindingum meðtöldum á móti EBITDA síðastliðinna tólf mánaða án Mílu var 0,87.
Eigið fé félagsins nam 31.079 m.kr. í árslok 2021 og eiginfjárhlutfall félagsins var 44,6%.
Um starfsemina
- Síminn og Míla gerðu í lok síðasta árs samning við Ericsson um farsímakerfi. Samningurinn nær til næstu fimm ára og varðar áframhaldandi uppbyggingu á 4G farsímakerfi og hraðari uppbyggingu 5G þar sem markmiðið er að ná 90% dekkningu um mitt ár 2025. Með 5G eykst gagnahraði viðskiptavina Símans og ný viðskiptatækifæri skapast. Í mars munu viðskiptavinir Símans með 5G tæki eiga kost á öflugra sambandi óháð áskriftarleiðum.
- Í byrjun þessa árs setti Síminn á markað nýja fyrirtækjapakka með áherslu á netöryggi. Fjarskipta- og netöryggisparfir fyrirtækja eru leystar með öflugum fyrirtækjapakka á föstu verði þar sem eldveggir, vöktun, uppsetning og ráðgjöf skipta miklu máli ásamt mikilvægrum samstarfsaðilum á borð við Cisco, Ericsson og Fortinet.
- Á árinu 2021 fjölgaði ljósleiðaratengdum rýmum um 13.400 og voru tengd rými alls 108.400 í lok ársins. Fjölgumin var meiri á landsbyggðinni þetta árið, eða um 7.800 á móti 5.600 á höfuðborgarsvæðinu. Áherslan er nú meiri á lagningu ljósleiðara á landsbyggðinni og mun sú þróun halda áfram.
- Fyrir lok árs lauk Míla við uppsetningu á 31 5G sendastað á landinu, en tíðnileyfi Símans var sett skilyrði um uppsetningu á 30 5G sendastöðum. Sendarnir voru settir upp á höfuðborgarsvæðinu, í þorlákshöfn, á Egilsstöðum og á Blönduósi, auk Seyðishóla. Þar með var útbreiðslukrafa tíðnileyfis Símans uppfyllt.
- Í lok árs skrifuðu Míla og Farice undir samning sem tryggir Mílu næga útlandabandvidd næstu 2 ár miðað við áætlaða þörf. Samningurinn gerir ráð fyrir útlandasamböndum yfir FARICE strenginn til London, DANICE strenginn til Amsterdam og sambanda yfir nýjan streng, IRIS til Dublinar, en gert er ráð fyrir að hann verði tekinn í notkun fyrir lok árs 2022. Auk þess kaupir Míla útlandasambönd af Tele Greenland yfir Greenland Connect strenginn til New York. Með þessum samningi tryggir Míla áfram besta mögulega öryggi á útlandasamböndum.
- Hluthöfum Símans fjölgaði verulega á árinu, voru 873 í byrjun árs, en 1.242 í lok árs.
Sala Mílu til Ardian
- Síminn undirritaði í október 2021 samning um sölu á öllu hlutafé í dótturfélaginu Mílu til Ardian fyrir 78 ma.kr. Áætlaður sölihagnaður er 46 ma.kr. að teknu tilliti til kostnaðar vegna viðskiptanna. Gerður er heildsölusamningur á milli Símans og Mílu til 20 ára. Ardian hefur boðið íslenskum lífeyrissjóðum að taka þátt í kaupunum. Samkeppniseftirlitið staðfesti að fullnægjandi samrunatilkynning hefði borist stofnuninni 10. febrúar sl. og hófust þá lögbundnir frestir að líða.
- Viðræðum milli íslenska ríkisins og fulltrúa Mílu, Símans og Ardian um leiðir til að tryggja að starfsemi Mílu samrýmist þjóðaröryggishagsmunum í nýju eignarhaldi erlendra aðila lauk með undirritun samnings um kvaðir sem Míla tekur á sig vegna þjóðhagslega mikilvægra fjarskiptaneta. Þar með er staðfest að fjarskiptakerfi Mílu uppfylla kröfur ríkisins um þjóðaröryggi og má því segja að kerfi Mílu séu öruggustu fjarskiptakerfi landsins.
Síminn
- Sala á Mílu til Ardian hefur óveruleg áhrif á almennan rekstur Símans. Viðskipti Símans og Mílu byggja áfram á sama grunni og verið hefur frá stofnun Mílu. Viðskipti félaganna hafa ávallt byggt á armslengdarsjónarmiðum og Míla hefur haft fullt sjálfstæði í sínum rekstri enda ríkar kvaðir frá opinberum aðilum þar að lútandi. Megnið af vörum Mílu byggja á kostnaðargreindum verðum og fullt jafnræði er á milli aðila á fjarskiptamarkaði.
- Stór breyting varð á viðskiptasambandi Símans og Mílu þegar eignasala RAN og MPLS var framkvæmd en hún tengist á engan hátt kaupung Ardian enda framkvæmd í ársbyrjun 2021. Áhrif af umræddum breytingum eru að fullu inn í rekstrartölum síðasta árs. Gerð var ítarleg grein fyrir áhrifum af þeirri eignasölu á rekstur Símans og Mílu í fjárfestakynningu 1F 2021.
- Í ársreikningi samstæðu árið 2021 eru eignir Mílu flokkaðar sem eignir til sölu og rekstur Mílu er flokkaður sem aflögð starfsemi.
- Salan hefur engin áhrif umfram það sem hefðbundið er vegna sölu dótturfélaga. Ekkert í viðskiptum félaganna flokkast sem sala/endurleiga (e. sale-leaseback). Engin eignfærsla leiguskuldbindinga myndast vegna IFRS 16.
- Kvaðir á Mílu um að reka opið fjarskiptanet breytast ekki við sölu til Ardian.
- Efnahagsreikningur Símans breytist mikið við sölu Mílu. Ljóst er að geta félagsins til ytri vaxtar og/eða arðgreiðslna verður umtalsverð. Á meðan salan er til umfjöllunar Samkeppnisyfirvalda er ekki hægt að bregða skýru ljósi á framtíðarskipulag rekstar og efnahags. Um leið og niðurstaða fæst verða hugmyndir félagsins varandi framtíðarstefnu Símans og ráðstöfun söluandvirðis bornar undir hlutahafa félagsins.
Horfur fyrir árið 2022
Spá fyrir árið 2022 gerir ráð fyrir að EBITDA samstæðunnar verði á bilinu 5,3 til 5,6 ma.kr. Áætlað er að fjárfestingar verði á bilinu 4,3 til 4,6 ma.kr.
Fjárfestingar Símans aukast talsvert í ár sem er tímabundin aukning. Hækkunin er vegna sértækra fjárfestingaverkefna í innri kerfum Símans sem tengjast nýjum tekjutækifærum á sjónvarpsmarkaði og stafræni þróun. Hækkunin er einnig tilkomin vegna endurnýjunar á sýningarrétti að ensku úrvalsdeildinni til ársins 2025, en sú fjárfesting er mjög framhlaðin í tíma. Án þessara tímabundnu fjárfestinga eru fjárfestingar í hefðbundnum rekstrarfjármunum og öðrum sýningarréttum 2,3 til 2,6 ma.kr.
Kynningarfundur 16. febrúar 2022
Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn miðvikudaginn 16. febrúar 2022 kl. 8:30 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík. Fjárfestar og markaðsaðilar eru sérstaklega boðnir velkomnir á fundinn. Á fundinum munu Orri Hauksson forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum. Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast í fréttakerfi Nasdaq Iceland og á heimasíðu Símans https://www.siminn.is/umsimann/uppgjor.
Jafnframt verður hægt að fylgjast með fundinum í netstrey mi á vefslóðinni:
https://www.siminn.is/fjarfestakynning.
Síminn
Þeir sem vilja bera upp spurningar geta sent þær á [email protected] og verður þeim svarað í lok fundarins.
Fjárhagsdagatal 2022
- Aðalfundur 2022 10. mars 2022
- Uppgjör 1F 2022 26. apríl 2022
- Uppgjör 2F 2022 23. ágúst 2022
- Uppgjör 3F 2022 25. október 2022
- Ársuppgjör 2022 21. febrúar 2023
- Aðalfundur 2023 16. mars 2023
Nánari upplýsingar um uppgörið veita:
Orri Hauksson, forstjóri Símans, s. 550 6003 ([email protected])
Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans, s. 550 6003 ([email protected])
Síminn hf.
Síminn á og rekur fyrirtækin Símann, Milu, Símann Pay og Radiómiðun. Síminn er stærsta fjarskiptafyrirtæki landsins og veitir viðskiptavinum, bæði einstaklingum og fyrirtækjum, heildstætt vöruframboð á sviði fjarskipta og afþreyingar.
8