AI assistant
Síminn — Earnings Release 2020
Feb 18, 2021
2203_rns_2021-02-18_31bc3d93-bad5-4dc7-b698-d9bfab8526d7.pdf
Earnings Release
Open in viewerOpens in your device viewer
Síminn
- febrúar 2021
Fréttatilkynning: Afkoma Símans hf. á 4F 2020
Góð afkoma við krefjandi aðstæður
- Tekjur á fjórða ársfjórðungi (4F) 2020 námu 8.192 m.kr. samanborið við 7.896 m.kr. á sama tímabili 2019 og hækka því um 296 m.kr. eða 3,7%.
- Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði EBITDA nam 2.894 m.kr. á 4F 2020 samanborið við 2.728 m.kr. á sama tímabili 2019 og hækkar því um 166 m.kr. eða 6,1% frá sama tímabili í fyrra. EBITDA hlutfallið er 35,3% fyrir fjórða ársfjórðung 2020 en var 34,5% á sama tímabili 2019. Rekstrarhagnaður EBIT hækkar um 170 m.kr eða 14,6% frá sama tímabili í fyrra.
- Hagnaður á 4F 2020 nam 1.055 m.kr. samanborið við 760 m.kr. á sama tímabili 2019.
- Á ársfjórðungnum voru bakfærðar 300 m.kr. vegna lækkunar á stjórnvaldsekt í kjölfar úrskurðar áfrýjunarnefndar samkeppnismála frá 13. janúar sl. Áður hafði Síminn gjaldfært 500 m.kr. á öðrum ársfjórðungi ársins.
- Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta nam 2.159 m.kr. á 4F 2020 en var 2.092 m.kr. á sama tímabili 2019. Eftir vexti og skatta nam handbært fé frá rekstri 1.623 m.kr. á 4F 2020 en 1.471 m.kr. á sama tímabili 2019.
- Vaxtaberandi skuldir námu 15,9 ma.kr. í lok árs 2020 en voru 16,2 ma.kr. í árslok 2019. Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 15,2 ma.kr. í árslok 2020 samanborið við 16,0 ma.kr. í árslok 2019.
- Hrein fjármagnsgjöld námu 105 m.kr. á 4F 2020 en voru 231 m.kr. á sama tímabili 2019. Fjármagnsgjöld námu 203 m.kr., fjármunatekjur voru 52 m.kr. og gengishagnaður var 46 m.kr.
- Eiginfjárhlutfall Símans hf. var 57,2% í lok árs 2020 og eigið fé 37,3 ma.kr.
Orri Hauksson, forstjóri:
„Rekstrarniðurstaða ársins 2020 var vel ásættanleg. Eins og þekkt er settu stórir heimsatburðir mark sitt á þetta óvenjulega ár, en samstæða Símans komst ágætlega frá þeirri raun.
Árið byrjaði mjög vel hjá samstæðunni, en ýmis rekstraráhrif komu fram í lok fyrsta ársfjórðungs þegar faraldurinn skall á. Þar má nefna að reikitekjur hurfu að mestu og kostnaður samstæðunnar í erlendri mynt jókst í krónum talið. Eins og hjá flestum fyrirtækjum landsins varð hluti starfseminnar flóknari en fyrr og ýmis verkefni tófðust. Öll fyrirtæki samstæðunnar brugðust hratt við nýjum veruleika og þrátt fyrir mótvind þurfti ekkert þeirra að nýta sér hlutabótaleið eða önnur úrræði hins opinbera.
Síminn
Fyrstu 5G sendarnir komust í gagníð og Síminn var orðinn stærstu sólúaðili ljósleiðaratenging a um mitt árið. Rekstur Mílu var stóðugur í gegnum samkomutakmarkanir ársins. Áhersla var lögð á að tryggja öruggan rekstur fjarskiptainnviða og bregðast við breyttri notkun sem hlaust af stóraukinni fjarvinnu. Míla hélt áfram ljósleiðaravæðingu sinni, þó með aðeins hægari gangi en fyrr. Ytri aðstæður, s.s. faraldurinn á árinu auk óveðra og rafmagnsleysis síðustu misserin, urðu til þess að röð fjárfestingaverkefna breyttist og vissum aðgerðum var frestað.
Dagleg starfsemi og uppitími fjarskiptakerfa samstæðunnar í heild hélst afar vel þótt umgengnishömlur og fjarvinna breyttu vinnulaginu. Starfsmenn allra félaga samstæðunnar eiga heiður skilinn fyrir snerpu og ósérhlífni, en sem dæmi má nefna að þjónustuver Símans var á einni nóttu fært úr einu rými í Ármúla inn á rúmlega 60 heimili starfsmanna á suðvesturhorninu, án þess að viðskiptavinir yrðu nokkurs varir. Sensa jók þjónustu sína í faraldrinum við fyrirtækin í landinu og átti besta rekstrarár sitt frá upphafi. Þá lækkuðu ferðakostnaður og ýmis önnur útgjöld í starfseminni, auk þess sem Síminn flýtti ýmsum hagræðingaraðgerðum, sem leiddu til rekstrarbata þegar leið á árið. Hugbúnaðarþróun Símans var um mitt ár útvistað til Deloitte á Íslandi og í Portugal, sem eykur viðbragðssnerpu og þjónustugetu félagsins til lengri tíma.
Búnaðarsala jókst á árinu 2020, meðal annars vegna langtum minni ferðalaga Íslendinga til útlanda. Lág framlegð er þó af tekjum af sölu notendabúnaðar. Tekjur af fjarskiptum jukust lítillega, ef frá eru dregnar fyrrgreindar tekjur tengdar ferðalögum. Tekjur af sjónvarpsþjónustu jukust frá fyrra ári, fyrst og fremst vegna þess að sýningarrétturinn að ensku úrvalsdeildinni var á hendi Símans allt árið 2020 en aðeins á seinni hluta árs 2019. Þá var meiri eftirspurn eftir Premium sjónvarpsvöru Símans en árið á undan. Hvert áskriftarheimili nýtti efnisframboð Símans einnig betur en fyrr. Pannig slóg vikulegur spilanafjöldi sjónvarpsþátta reglulega í 1,2 milljónir, sem er fjórföldun frá því fyrir þremur árum.
Síminn er nú að þróa fyrirkomulag sjónvarpsrekstrar síns enn frekar, til að auka sveigjanleika og fjölbreytileika við að sinna viðskiptavinum. Í fyrra var einnig samið við Gagnaveitu Reykjavíkur (GR) um að selja þjónustu félagsins yfir net GR. Komast báðar breytingar í gagníð á næstu vikum og mánuðum.
Síminn var óvænt dæmdur til greiðslu rúmlega 100 m.kr. skaðabóta á árinu 2020, vegna fimmtán ára gamals máls. Þá sektaði Samkeppniseftirlitið félagið um 500 m.kr. vorið 2020 vegna meintra brota félagsins á sáttum við eftirlitið. Síminn taldi niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins ranga og kærði hana til áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Þar var meirihluti ákvörðunar Samkeppniseftirlitsins felldur úr gildi. Við það lækkáði sektin í 200 m.kr. og fékk Síminn mismuninn, 300 m.kr., endurgreiddan með vövtum nú í byrjun árs 2021. Síminn telur niðurstöðu nefndarinnar skref í rétta átt en þó ekki þá lokaniðurstöðu sem félagið telur lagalega rétta. Vísast verður áfram deilt um þessi mál, þar sem þau snerta grunn samkeppnisrekstrar á Íslandi. Síminn varði tugum milljóna króna í lögfræði- og málarekstur við fyrrgreind ágreiningsmál, þar með talið þau sem fellda hafa verið niður. Í heild höfðu deilumál þessi neikvæð áhrif á reksturinn sem leiddu til fráviks frá upphafflegri áætlun.
Árið 2020 var nýtt til að endurmeta stefnu, samsetningu og fjármögnun samstæðunnar. Ákveðið var að taka tilboði hins alþjóðlega upplýsingatæknifyrirtækis Crayon í allt hlutafé Sensa og nam söluverðið 3.250 m.kr. Fyrirvari er um samþykkt Samkeppniseftirlitsins en búast má við niðurstöðu fyrir vorið. Síminn mun áfram starfa á sviði upplýsingatækni og bjóða slíkar afurðir til viðskiptavina sinna á fyrirtækjamarkaði.
Verkaskiptingu milli Símans og Mílu var breytt í upphafi árs 2021 eftir ítarlegan undirbúning síðari hluta ársins 2020. Umsvif Mílu aukast við breytinguna með því að félagið tekur yfir
2
Síminn
netrekstur sem áður var innan vėbanda Símans. EBITDA Mílu eykst samhliða þessum breytingum en EBITDA Símans lækkar á móti. Verður EBITDA beggja félaganna áþekk í ár, en rekstrarumfang, efnahagur og sjóðstrey mi Mílu mun vaxa við breytinguna eins og útlistað er í fjárfestakynningu.
Samstæðan er langt komin með að breyta fjármögnun sinni með þeim hætti að Míla mun sækja eigið lánsfjármagn. Vinna við þá fjármögnun Mílu frá Íslandsbanka er á lokametrunum. Móðurfélagið er samhliða að ganga frá endurfjármögnun lána sinna hjá Arion banka. Í kjölfarið verður hvort félag með sína eigin ytri fjármögnun og því engin lán á milli félaganna, en móðurfélagið hefur um árabil séð um alla fjármögnun samstæðunnar. Við breytingu á fjármagnsskipan innan samstæðunnar og með sölu á Sensa losnar um fé sem ekki nýtist í reglulegum rekstri. Er því ráðgert að koma þeim fjármunum í hendur hluthafa í kjölfar aðalfundar.
Ásamt breyttri verkaskiptingu er þessi nýja fjármangsskipan liður í því að að greina betur þau ólíku viðskiptamódel sem rekin eru innan samstæðunnar. Pannig mun Míla sinna innvíðum og netrekstri í heildsölu en Síminn inna af hendi þjónustu til endaviðskiptavina. Míla er nú orðið stærra og sjálfstæðara félag en fyrr, sem sinnir á jafnræðisgrundvelli og á sömu einingaverðunum öllum þjónustuveitendum landsins í fjarskiptum og öðrum viðskiptavinum sínum.
Helstu verkefni ársins 2021 eru að leiða til lykta breytingar á samstæðunni, ákveða samsetningu hennar til framtiðar og skerpa á þjónustu eininganna gagnvart viðskiptavinum sínum. Markmið allra þessara breytingar er aukin arðsemi eigin fjár og að vera með ánægðustu viðskiptavinina á Íslandi.
Helstu niðurstöður í rekstri árið 2020
Rekstur
| Rekstrarreikningur | 4F | 12M | ||||
|---|---|---|---|---|---|---|
| 2020 | 2019 | % | 2020 | 2019 | % | |
| Rekstrartekjur | 8.192 | 7.896 | 3,7% | 29.939 | 29.071 | 3,0% |
| Kostnaðarverð sölu | (4.753) | (4.367) | 8,8% | (16.492) | (14.906) | 10,6% |
| Rekstrarkostnaður | (2.107) | (2.367) | -11,0% | (9.061) | (9.251) | -2,1% |
| EBIT | 1.332 | 1.162 | 14,6% | 4.386 | 4.914 | -10,7% |
| Hrein fjármagnsgjöld | (105) | (231) | -54,5% | (702) | (1.045) | -32,8% |
| Tekjuskattur | (172) | (171) | 0,6% | (768) | (799) | -3,9% |
| Hagnaður tímabils | 1.055 | 760 | 38,8% | 2.916 | 3.070 | -5,0% |
| EBITDA | 2.894 | 2.728 | 6,1% | 10.500 | 10.516 | -0,2% |
| Hagnaður á hlut | 0,13 | 0,08 | 62,5% | 0,34 | 0,34 | 0,0% |
Sala árið 2020 nam 29.939 m.kr. samanborið við 29.071 m.kr. árið 2019, sem er 3,0% vöxtur milli ára. Tekjur af farsíma námu 5.544 m.kr. og lækkuðu um 228 m.kr. eða 4,0% á milli ára. Í farsíma lækka reikitekjur á milli ára um tæpar 400 m.kr. Tekjur af talsíma námu 1.714 m.kr. og
Síminn
lækkuðu um 4,9% á milli ára. Tekjur af gagnaflutningi námu 8.774 m.kr. og hækkuðu um 201 m.kr. eða 2,3% á milli ára. Tekjur af sjónvarpsþjónustu námu 6.253 m.kr. og hækkuðu um 632 m.kr. eða 11,2% á milli ára. Tekjur af upplýsingatækni námu 4.636 m.kr. og hækkuðu um 474 m.kr. eða 11,4% á milli ára. Tekjur af vörusölu voru 2.157 m.kr. og hækkuðu um 225 m.kr. eða 11,6% á milli ára.
Framlegð árið 2020 nam 12.904 m.kr. og lækkaði um 499 m.kr. eða 3,7% frá árinu 2019. Rekstrarkostnaður nam 9.061 m.kr. og lækkaði um 190 m.kr. eða 2,1% frá 2019.
EBITDA, þ.e. rekstrarhagnaður félagsins fyrir afskriftir og fjármagnsliði, var 10.500 m.kr. árið 2020 en var 10.516 m.kr. árið 2019 og lækkaði því um 16 m.kr. á milli tímabila eða um 0,2%. EBITDA hlutfallið er 35,1% árið 2020, en var 36,2% árið 2019.
Afskriftir félagsins námu 6.114 m.kr. árið 2020 samanborið við 5.602 m.kr. árið 2019 og hækkað um 512 m.kr. á milli ára. Auknar afskriftir má að stærstum hluta rekja til aukinna fjárfestinga í sýningarréttum.
Hrein fjármagnsgjöld voru 702 m.kr. árið 2020 og lækkuðu um 343 m.kr. á milli ára. Lækkun stýriváxta hefur leitt til lægri vaxtagjalda hjá félaginu.
Hagnaður ársins 2020 nam 2.916 m.kr. samanborið við 3.070 m.kr. árið 2019.
Sjóðstrey mi
Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta var 11.245 m.kr. árið 2020 samanborið við 10.265 m.kr. árið 2019. Eftir vexti og skatta nam handbært fé frá rekstri 9.653 m.kr. árið 2020 samanborið við 8.507 m.kr. árið 2019.
Fjárfestingahreyfingar námu 5.986 m.kr. árið 2020 samanborið við 6.369 m.kr. árið 2019.

Efnahagur
Heildareignir félagsins námu 65.206 m.kr. í lok árs 2020 en voru 65.521 m.kr. í lok árs 2019.
Vaxtaberandi skuldir voru 15.939 m.kr. í lok árs 2020 samanborið við 16.231 m.kr. í lok árs 2019. Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 15.204 m.kr. í árslok og lækkuðu um 810 m.kr. frá árslokum 2019. Hlutfall hreinna vaxtaberandi skulda á móti EBITDA síðastliðinna tólf mánaða var 1,45.
| Efnahagur | 31.12.2020 | 31.12.2019 |
|---|---|---|
| Fastafjármunir | 57.457 | 58.571 |
| Veltufjármunir | 7.749 | 6.950 |
| Eignir alls | 65.206 | 65.521 |
| Eigið fé | 37.298 | 36.632 |
| Langtímaskuldir | 20.025 | 20.268 |
| Skammtímaskuldir | 7.883 | 8.621 |
| Skuldir og eigið fé alls | 65.206 | 65.521 |
| Eiginfjárhlutfall | 57,2% | 55,9% |
Eigið fé félagsins nam 37.298 m.kr. í árslok og eiginfjárhlutfall félagsins var 57,2%.
Síminn
Um starfsemina
- Í byrjun desember sl. undirrituðu Síminn og alþjóðlega upplýsingatæknifyrirtækið Crayon Group skuldbindandi samning um sölu Símans á Sensa ehf. Heildarvirði Sensa í samningnum er 3.250 m.kr. og er áætlaður söluhagnaður Símans vegna viðskiptanna 1,7 ma.kr. Endanlegur söluhagnaður mun ráðast af þróun á gengi hlutabréfa í Crayon og afkomu Sensa fram að uppgjörsdegi. Beðið er samþykkis Samkeppniseftirlitsins og er gert ráð fyrir að uppgjör viðskiptanna muni eiga sér stað á næstu víkum.
- Um áramótin fluttist rekstur farsímadreifikerfis og gagnaflutningskerfa Símans yfir til Mílu. Verkefnið er umfangsmikið og hefur undirbúningur staðið í nokkra mánuði. Um 20 starfsmenn fluttust á milli fyrirtækjana við þessa breytingu og eykst ársvelta Mílu um tæplega 2,2 ma.kr. EBITDA Mílu eykst um 1.200 m.kr. og fjárfestingar um 750 m.kr.
- Undanfarin ár hefur móðurfélagið séð um alla fjármögnun dótturfélaga samstæðunnar. Verið er að vinna að breyttri fjármagnsskipan hjá samstæðunni og er Míla að ganga frá eigin fjármögnun frá Íslandsbanka. Samhliða er móðurfélagið að ganga frá endurfjármögnun frá Arion banka.
- Í janúar á þessu ári birti áfrýjunarnefnd samkeppnismála úrskurð sinn þar sem ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 25/2020 var fellð úr gildi að hluta og sektargreiðsla lækkuð úr 500 m.kr. í 200 m.kr. Sektin sjálf var færð í bækur félagsins á öðrum ársfjörðungi 2020, en 300 m.kr. lækkun hefur jákvæð áhrif á afkomu fjórða ársfjörðungs 2020.
- Fyrstu 5G sendarnir voru settir upp í lok síðasta árs og er 5G nú að finna á þremur sendistöðum. Félagið hefur samið við Ericsson um áframhaldandi uppbyggingu farsímakerfa og áætlar að setja upp 5G á 40-50 sendistöðum á þessu ári. 4G sendistaðir voru um 530 í árslok og er gert ráð fyrir að 30-40 sendistaðir til viðbótar verði uppfærðir með 4G á þessu ári.
- Í nýjustu tölfræðiskýrslu Póst- og fjarskiptastofnunnar, sem tekur mið af fyrri hluta ársins 2020, kemur fram að Síminn sé orðinn stærsti sölúaðili ljósleiðaratengingá á landinu.
- Sjónvarp Símans þróast hratt áfram og er þjónustan nú aðgengileg í AndroidTV og AppleTV. Sama efnisúrval er óháð dreifileiðum og er upplifun sú sama. Ýmsar nýjungar eru framundan í viðmóti og þjónustum í Sjónvarpi Símans.
- Góður gangur er í ljósleiðaravæðingu Mílu, bæði á höfuðborgarsvæðinu og úti á landi. Heildarfjöldi þeirra heimila sem hefur aðgang að ljósleiðara Mílu er kominn yfir 95 þúsund á landinu öllu og tengdir notendur orðnir tæplega 40 þúsund.
Horfur fyrir árið 2021
Spá fyrir árið 2021 gerir ráð fyrir að EBITDA samstæðunnar verði á bilinu 10,2 til 10,6 ma.kr. Áætlað er að fjárfestingar verði á bilinu 5,1 til 5,4 ma.kr.
Kynningarfundur 19. febrúar 2021
Kynningarfundur fyrir markaðsæðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn föstudaginn 19. febrúar kl. 8:30. Fundurinn verður eingöngu rafrænn og munu Orri Hauksson forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum. Kynningarefni
Síminn
fundarins verður hægt að nálgast í fréttakerfi Nasdaq Iceland og á heimasíðu Símans https://www.siminn.is/umsimann/uppgior
Hægt verður að fylgjast með fundinum í netstreymi á vefslóðinni:
https://www.siminn.is/fjarfestakynning
Þeir sem vilja bera upp spurningar á meðan á streymi stendur geta sent þær á [email protected] og verður þeim svarað í lok fundarins.
Fjárhagsdagatal 2021
- Aðalfundur 2021 11. mars 2021
- Afkoma 1F 2021 27. apríl 2021
- Afkoma 2F 2021 31. ágúst 2021
- Afkoma 3F 2021 26. október 2021
- Ársuppgjör 2021 22. febrúar 2022
- Aðalfundur 2022 17. mars 2022
Nánari upplýsingar um uppgörið veita:
Orri Hauksson, forstjóri Símans, s. 550 6003 ([email protected])
Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans, s. 550 6003 ([email protected])
Síminn hf.
Síminn á og rekur fyrirtækin Símann, Mílu, Sensa, Farsímagreiðslur og Radíómiðun. Síminn er stærsta fjarskiptafyrirtæki landsins og veitir viðskiptavínum, bæði einstaklingum og fyrirtækjum, heildstætt vöruframboð á sviði fjarskipta, afþreyingar og upplýsingatækni.