Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Síminn Earnings Release 2021

Oct 26, 2021

2203_rns_2021-10-26_85193eac-f001-4aa0-ba5e-53265b51204c.pdf

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

Síminn

  1. október 2021

Fréttatilkynning: Afkoma Símans hf. á 3F 2021

Góð rekstrarafkoma á þriðja ársfjórðungi

  • Tekjur á þriðja ársfjórðungi (3F) 2021 námu 6.381 m.kr. samanborið við 6.420 m.kr. á sama tímabili 2020 og lækka því um 39 m.kr. eða 0,6%.
  • Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði EBITDA nam 2.974 m.kr. á 3F 2021 samanborið við 2.805 m.kr. á sama tímabili 2020 og hækkar því um 169 m.kr. eða 6,0% frá sama tímabili í fyrra. EBITDA hlutfallið er 46,6% fyrir þriðja ársfjórðung 2021 en var 43,7% á sama tímabili 2020. Rekstrarhagnaður EBIT nam 1.526 m.kr. á 3F 2021 samanborið við 1.338 m.kr. á sama tímabili 2020.
  • Hagnaður á 3F 2021 nam 1.057 m.kr. samanborið við 1.014 m.kr. á sama tímabili 2020.
  • Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta nam 2.968 m.kr. á 3F 2021 en var 2.213 m.kr. á sama tímabili 2020. Eftir vexti og skatta nam handbært fé frá rekstri 2.389 m.kr. á 3F 2021 en var 1.927 m.kr. á sama tímabili 2020.
  • Vaxtaberandi skuldir að leiguskuldbindingum meðtöldum námu 32,6 ma.kr. í lok 3F 2021 en voru 21,5 ma.kr. í árslok 2020. Hreinar vaxtaberandi skuldir að leiguskuldbindingum meðtöldum voru 25,6 ma.kr. í lok 3F 2021 samanborið við 20,8 ma.kr. í árslok 2020.
  • Hrein fjármagnsgjöld námu 218 m.kr. á 3F 2021 en voru 143 m.kr. á sama tímabili 2020. Fjármagnsgjöld námu 321 m.kr., fjármunatekjur voru 75 m.kr. og gengishagnaður nam 28 m.kr.
  • Eiginfjárhlutfall Símans hf. var 45,0% í lok 3F 2021 og eigið fé 31,3 ma.kr.

Orri Hauksson, forstjóri:

„Þriðji ársfjórðungur var ábatasamur í rekstri Símans og Mílu. Rekstrarafgangur (EBITDA og EBIT) hefur aldrei verið meiri á einum fjórðungi. Ástæða þessa góða árangurs er einföld; stýring kostnaðar. Tekjumyndun er hins vegar ærið verkefni enda fjarskiptamarkaður á Íslandi einn öflugasti samkeppnismarkaður landsins. Tekjur vegna gagnaflutnings og sjónvarpsbjónustu standa í stað milli ára, en hægagangur við framleiðslu sjónvarpsefnis á heimsvísu heldur meðal annars aftur af tekjuvexti, en temprar einnig kostnað. Vörusala minnkar, enda hafa Íslendingar aftur fengið færi á að kaupa vörur í heimsóknum sínum erlendis. Farsímatekjur eru í vexti á ný, sem er gleðiefni.

Eftir lok þriðja ársfjórðung samdi Síminn við franska sjóðastýringarfyirtækið Ardian um sölu á dótturfyirtækinu Mílu. Eins og fram hefur komið er heildarvirði sölunnar (e. EV) 78 milljarðar króna, að meðtöldum skuldum Mílu sem yfirteknar verða af kaupanda. Kaupin eru háð


Síminn

sambykki Samkeppniseftirlitsins og koma væntanlega til framkvæmda á fyrri hluta næsta árs. Ardian er stór langtímafjárfestir í innviðum á sviði fjarskipta, orku og samgangna, sérstaklega í Evrópu. Hefur fyrirtækið lýst því yfir að það hyggist bjóða íslenskum lífeyrissjóðum með sér í kaupin á Mílu, flýta uppbýggingu 5G og fjölga ljósleiðaratengingum á landsbyggðinni hraðar en nú er. Við teljum þessa erlendu fjárfestingu vera mjög góðar fréttir fyrir land og þjóð.

Helstu niðurstöður í rekstri á fyrstu níu mánuðum 2021

Rekstur

Rekstrarreikningur 3F 9M
2021 2020 % 2021 2020 %
Rekstrartekjur 6.381 6.420 -0,6% 19.141 18.943 1,0%
Kostnaðarverð sölu (2.993) (3.143) -4,8% (9.360) (9.295) 0,7%
Rekstarkostnaður (1.862) (1.939) -4,0% (6.007) (6.784) -11,5%
EBIT 1.526 1.338 14,1% 3.774 2.864 31,8%
Hrein fjármagnsgjöld (218) (143) 52,4% (720) (561) 28,3%
Tekjuskattur (251) (233) 7,7% (619) (565) 9,6%
Hagnaður tímabils af áframhaldandi starfsemi 1.057 962 9,9% 2.435 1.738 40,1%
Aflögð starfsemi 0 52 2.124 123
Hagnaður tímabils 1.057 1.014 4,2% 4.559 1.861 145,0%
EBITDA 2.974 2.805 6,0% 8.071 7.243 11,4%
Hagnaður á hlut 0,15 0,11 36,4% 0,59 0,21 181,0%

Sala á 9M 2021 nam 19.141 m.kr. samanborið við 18.943 m.kr. á sama tímabili árið 2020, sem er 1,0% vöxtur milli ára. Tekjur af farsíma námu 4.362 m.kr. og hækkuðu um 252 m.kr. eða 6,1% á milli tímabila sem skýrist af góðu gengi þrennu, auknum tekjum af virðisaukandi þjónustu og SMS magnsendingum. Reikitekjur standa hins vegar í stað. Tekjur af talsíma námu 1.181 m.kr. og lækkuðu um 9,1% á milli tímabila. Tekjur af gagnaflutningi námu 6.645 m.kr. og hækkuðu um 45 m.kr. eða 0,7% á milli tímabila. Tekjur af sjónvarpsþjónustu námu 4.728 m.kr. og hækkuðu um 114 m.kr. eða 2,5% á milli tímabila. Tekjur af vörusölu voru 1.509 m.kr. og hækkuðu um 27 m.kr. eða 1,8% á milli tímabila. Aðrar tekjur námu 716 m.kr. og lækkuðu um 122 m.kr. á milli tímabila.

Kostnaðarverð seldrar þjónustu nam 9.360 m.kr. og hækkar um 65 m.kr. eða 0,7% frá sama tímabili árið áður. Rekstarkostnaður nam 6.007 m.kr. og lækkaði um 777 m.kr. eða 11,5% frá sama tímabili árið 2020. Stjórnvaldssekt á 2F 2020 litar samanborið á milli tímabila. Framlegð á 9M 2021 nam 9.450 m.kr. og hækkaði um 161 m.kr. eða 1,7% frá sama tímabili árið 2020.

EBITDA, þ.e. rekstrarhagnaður félagsins fyrir afskriftir og fjármagnsliði, var 8.071 m.kr. á 9M 2021 en var 7.243 m.kr. á sama tímabili árið 2020 og hækkaði því um 828 m.kr. á milli tímabila eða um 11,4%. EBITDA hlutfallið er 42,2% á 9M 2021, en var 38,2% á sama tímabili árið 2020.

Afskriftir félagsins námu 4.297 m.kr. á 9M 2021 samanborið við 4.379 m.kr. á sama tímabili árið 2020 og lækka um 82 m.kr. á milli tímabila.

Hrein fjármagnsgjöld voru 720 m.kr. á 9M 2021 og hækkuðu um 159 m.kr. á milli ára.


Síminn

Hagnaður 9M 2021 nam 4.559 m.kr. samanborið við 1.861 m.kr. á sama tímabili árið 2020.
Hagnaður af áframhaldandi starfsemi nam 2.435 m.kr. á 9M 2021.

Sjóðstreymi

Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta var 8.695 m.kr. á 9M 2021 samanborið við 8.489 m.kr. á sama tímabili árið 2020. Eftir vexti og skatta nam handbært fé frá rekstri 7.387 m.kr. á 9M 2021 samanborið við 7.444 m.kr. á sama tímabili árið 2020.

img-0.jpeg

Fjárfestingahreyfingar námu 1.647 m.kr. á 9M 2021 samanborið við 3.793 m.kr. á sama tímabili árið 2020.

Efnahagur

Heildareignir félagsins námu 69.485 m.kr. í lok 3F 2021 en voru 65.206 m.kr. í lok árs 2020.

Vaxtaberandi skuldir að leiguskuldbindingum meðtöldum voru 32.594 m.kr. í lok 3F 2021 samanborið við 21.518 m.kr. í lok árs 2020. Hreinar vaxtaberandi skuldir að leiguskuldbindingum meðtöldum voru 25.642 m.kr. í lok 3F 2021 og hækkuðu um 4.859 m.kr. frá árslokum 2020. Hlutfall hreinna vaxtaberandi skulda að leiguskuldbindingum meðtöldum á móti EBITDA síðastliðinna tólf mánaða var 2,45.

Efnahagur 30.09.2021 31.12.2020
Fastafjármunir 56.673 57.457
Veltufjármunir 12.812 7.749
Eignir alls 69.485 65.206
Eigið fé 31.301 37.298
Langtímaskuldir 30.011 20.025
Skammtímaskuldir 8.173 7.883
Skuldir og eigið fé alls 69.485 65.206
Eiginfjárhlutfall 45,0% 57,2%

Eigið fé félagsins nam 31.301 m.kr. í lok 3F 2021 og eiginfjárhlutfall félagsins var 45,0%.

Um starfsemina

  • Pann 23. október sl. undirritaði Síminn samning um sölu á öllum eignarhlut félagsins í Mílu ehf. til Ardian France SA. Salan er háð hefðbundnum fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Virði viðskiptanna er 78 ma.kr. og fær Síminn greitt á efndadegi um 44 ma.kr. í reiðufé og 15 ma.kr. í formi skuldabréfs sem Síminn veitir kaupanda til þriggja ára. Áætlaður sölihagnaður er rúmlega 46 ma.kr. að teknu tilliti til kostnaðar vegna viðskiptanna. Salan hefur umtalsverð áhrif á efnahagsreikning Símans þar sem lausafjárstaða verður sterk og geta til innri og ytri vaxtar verður umtalsverð.
  • Í dag eru 55 þúsund skráðir notendur að Símanum Pay. Helmingur notenda eru viðskiptavinir Símans. Síminn Pay er fjölbreytt app sem býður m.a. upp á léttkaup þar sem hægt er að dreifa greiðslum í allt að 36 mánuði. Á þessu ári hefur verið að meðaltali 10% útlánaaukning á mánuði. Í appinu er einnig hægt að greiða fyrir bílastæði án aukagjalds, panta mat í mathöll og versla af fjölmörgum söluáðilum.
  • Innlend dagskrárgerð hefur aldrei verið fjölbreyttari og er Síminn í fararbroddi í fjölbreyttu og vinsælu leiknu íslensku sjónvarpsefni. Fjöldi nýrra íslenskra þáttaraða er þegar í Sjónvarpi Símans Premium fyrir alla aldurshópa og nýtt efni bíður birtingar, m.a. jólamyndin Birta og Venjulegt fólk.

Síminn

  • Ný sjálfbærnistefna var samþykkt í sumar þar sem lögð er áhersla á umhverfisvæna aðfangakeðju og virkt hringrásarhagkerfi. Jafnrétti, þjálfun vinnuafls, netóryggi og máltækni eru í forgrunni ásamt góðum stjórnarháttum og viðskiptasiðferði. Síminn hefur sett þrjú heimsmarkmið í forgang; jafnrétti kynjanna, nýsköpun og uppbygging og sjálfbærar borgir og samfélög.
  • Síminn hefur einsett sér það markmið að hafa ánægðustu viðskiptavinina árið 2022. Öll starfsemi tekur mið af þessu markmiði bæði hjá starfsfólki sem er í beinu sambandi við viðskiptavini sem og öðru starfsfólki. Mælingar undanfarna mánuði sýna að við erum á réttri leið þegar horft er til mælinga á ímynd og ánægju viðskiptavina.
  • Ljósleiðaravæðing Mílu gengur vel og í september voru ljósleiðaratengd rými í landinu 103.600, þ.a. 78.500 á höfuðborgarsvæðinu. Aukin áhersla hefur verið lögð á ljósleiðaravæðingu í þéttbýli um allt land. Unnið var að lagningu ljósleiðara í Reykjanesbæ, Grindavík, Súðavík, Ísafirði, Akureyri, Húsavík, Akranesi, Vestmannaeyjum, Hofsósi, Höfn í Hornafirði, Reyðarfirði, Eskifirði, Fáskrúðsfirði, Neskaupsstað og Egilsstöðum. Á nokkrum stöðum er hafin ljósleiðaravæðing gegn stofngjaldi.
  • Uppbygging 5G farsímakerfisins er í fullum gangi og eru nú nitján 5G farsímastöðvar í notkun og fjölgar þeim jafnt og þétt. Míla reisti nýtt 30 metra mastur á Seyðishólum sem eykur þjónustu við sumarhúsáigendur í Grímsnesi m.a. með öflugri 5G þjónustu.
  • Vinna við undirbúning á endurnýjun bylgulengdarkerfis er hafin og er áætlað að unnið verði að útskiptingu kerfisins út næsta ár. Flutningsgeta og sveigjanleiki innanlands mun aukast verulega sem mun styðja við aðra uppfærslu á kerfum Mílu.
  • Míla tók þátt í varaafslverkefninu ásamt Neyðarlínunni og fleiri fjarskiptafyrirtækjum. Í verkefninu fólst að bæta varaaf á landsbyggðinni til að tryggja betur uppitíma fjarskipta ef til langvarandi rafmagsleysis kemur.

Horfur fyrir árið 2021

Spá fyrir árið 2021 er óbreytt, en gert er ráð fyrir að EBITDA samstæðunnar verði við efri mörk spábilsins 10,2 til 10,6 ma.kr. Áætlað er að fjárfestingar verði á bilinu 5,1 til 5,4 ma.kr.

Kynningarfundur 27. október 2021

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn miðvikudaginn 27. október 2021 kl. 8:30 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík. Fjárfestar og markaðsaðilar eru sérstaklega boðnir velkomnir á fundinn. Á fundinum munu Orri Hauksson forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum. Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast í fréttakerfi Nasdaq Iceland og á heimasiðu Símans https://www.siminn.is/umsimann/uppgjor.

Jafnframt verður hægt að fylgjast með fundinum í netstreymi á vefslóðinni:

https://www.siminn.is/fjarfestakynning.

Þeir sem vilja bera upp spurningar geta sent þær á fjá[email protected] og verður þeim svarað í lok fundarins.


Síminn

Fjárhagsdagatal 2021

  • Ársuppgjör 2021 15. febrúar 2022
  • Aðalfundur 2022 10. mars 2022

Nánari upplýsingar um uppgjořió veita:

Orri Hauksson, forstjóri Símans, s. 550 6003 ([email protected])

Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans, s. 550 6003 ([email protected])

Síminn hf.

Síminn á og rekur fyrirtækin Símann, Milu, Farsímagreiðslur og Radíómiðun. Síminn er stærsta fjarskiptafyrirtæki landsins og veitir viðskiptavinum, bæði einstaklingum og fyrirtækjum, heildstætt vöruframboð á sviði fjarskipta og afþreyingar.