Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Síminn Earnings Release 2019

Feb 20, 2020

2203_rns_2020-02-20_ed58470a-6ded-44f9-8b13-b1414ab6fd4c.pdf

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

{# SEO P0-1: filing HTML is rendered server-side so Googlebot sees the full text without executing JS or following an iframe to a Disallow'd CDN path. The content has already been sanitized through filings.seo.sanitize_filing_html. #}

Síminn

  1. febrúar 2020

Fréttatilkynning: Afkoma Símans hf. á 4F 2019

Tekjur aukast um 4,7%

Samanburðarfjárhæðir á fjórða ársfjórðungi 2018 hafa verið uppfærdar í samræmi við breytta meðhöndlun á sýningarrétti sjónvarpsefnis.

  • Tekjur á fjórða ársfjórðungi (4F) 2019 námu 7.896 milljónum króna samanborið við 7.544 milljónir króna á sama tímabili 2018 og hækka um 4,7% milli tímabila.
  • Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði EBITDA nam 2.728 milljónum króna á 4F 2019 samanborið við 2.124 milljónir króna á sama tímabili 2018 og hækkar því um 604 milljónir króna eða 28,4% frá sama tímabili í fyrra. EBITDA hlutfallið er 34,5% fyrir fjórða ársfjórðung 2019 en var 28,2% á sama tímabili 2018. Að teknu tilliti til breytinga vegna IFRS 16 þá nam EBITDA á 4F 2018 2.586 milljónum króna og EBITDA hlutfall var 34,3%.
  • Hagnaður á 4F 2019 nam 760 milljónum króna samanborið við 2.436 milljónir króna tap á sama tímabili 2018. Á 4F 2018 var viðskiptavild afskrifuð um 2.990 milljónir króna sem skýrir tap á 4F 2018. Án afskriftar hefði hagnaður á 4F 2018 verið 554 milljónir króna.
  • Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta nam 2.092 milljónum króna á 4F 2019 en var 2.333 milljónir króna á sama tímabili 2018. Eftir vexti og skatta nam handbært fé frá rekstri 1.471 milljón króna á 4F 2019 en 2.184 milljónum króna á sama tímabili 2018.
  • Vaxtaberandi skuldir námu 16,2 milljörðum króna í árslok 2019 en voru 17,2 milljarðar króna í árslok 2018. Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 16,0 milljarðar króna í árslok 2019 sem er sambærilegt við stöðu í árslok 2018.
  • Hrein fjármagnsgjöld námu 231 milljón króna á 4F 2019 en voru 205 milljónir króna á sama tímabili 2018 þar af eru áhrif af breytingum vegna IFRS 16 66 milljónir króna á 4F 2019. Fjármagnsgjöld námu 274 milljónum króna, fjármunatekjur voru 45 milljónir króna og gengistap var 2 milljónir króna.
  • Eiginfjárhlutfall Símans hf. var 55,9% í lok árs 2019 og eigið fé 36,6 milljarðar króna.

Orri Hauksson, forstjóri:

„Rekstur Símasamstæðunnar var traustur í fyrra og efldist eftir því sem leið á árið. Sala á helstu þjónustuþáttum okkar var vel ásættanleg og munar miklu að Síminn höfðar á ný til yngri kynslóða. Því til viðbótar jókst eftirspurn eftir upplýsingatæknivörum Sensa á síðasta fjórðungnum. Slíkan vöxt má þó ekki framreikna til næstu ársfjórðunga, þar sem sala, innleiðing og ráðgjöf í upplýsingatækni getur verið sveiflukennd.


Síminn

Sjónvarpsbjónusta Símans var í talsverðri sókn í fyrra, sérstaklega á síðari hluta ársins. Slíkur vöxtur var að stórum hluta fyrirséður þar sem áhrifa af nýrri vöru Símans, Síminn Sport naut í fyrsta sinn allan fjórðunginn. Þó er annað sjónvarp en fótbolti sem viðskiptavinir okkar verja mestum tíma í að horfa á. Vinsælast er íslenskt efni, barnaefni og erlen raunveruleikasjónvarp um ungt fólk í leit að ástinni. Í janúar 2020 var svo komið að fjöldi stakra spilana í Sjónvarpi Símans Premium var í heild yfir milljón á viku, sem er nýtt met og sýnir áhugann á fjölbreyttu efnisframboði Símans. Fjárfestingar í ljósleiðara hjálpuðu tekjum í gagnaflutningi að vaxa með sínum markvissa rólega takti og tekjur farsímaþjónustu á einstaklingsmarkaði eru komnar í gott jafnvægi á ný eftir miklar breytingar síðustu ár, svo sem í heildsölu og reiki. Áfram er þó barist hart um viðskiptavini í fjarskiptum, sérstaklega á fyrirtækjamarkaði.

Síminn hélt aftur af kostnaði á árinu með ýmsum ráðstöfunum. Launakostnaður er langstærsti einstaki kostnaðarlíður félagsins, en stöðugildum fækkáði um 52 milli ára. Ánægja viðskiptavina jókst á sama tíma markvert samkvæmt Íslensku ánægjuvoginni, ásamt því að mælingar frá öðrum aðilum sýna sömu jákvæðu þróunina um mat viðskiptavina á þjónustu félagsins, sem gleður okkur mjög. Margir samverkandi þættir skapa þennan árangur. Má þar nefna aukinn stöðugleika í rekstri grunnkerfa, nýtt þjónustuapp Símans sem auðveldar sjálfsafgreiðslu og ýmsar ráðstafanir til að minnka ófyrirséðan kostnað viðskiptavina. 4G farsímakerfi okkar nær nú til 99,4% heimila landsins og áfram heldur þróunin yfir í 5G. Síminn stefnir þannig markvisst að áframhaldandi aukningu í ánægju viðskiptavina. Áherslan árið 2020 er meðal annars að treysta enn betur áreiðanleika þjónustu til handa núverandi viðskiptavinum og bjóða upp á ýmsar nýjungar í sjónvarpi.

Fjarskiptakerfi samstæðunnar stóðust vel próf óveðranna og rafmagsleysisins fyrir jól. Tæknifólk okkar var vel undirbúið, enda vond veður engin nýlunda á Íslandi. Varaafl sem við höfum sjálf yfir að ráða, ásamt nýtingu slíks afls hjá hýsingaraðilum, sá til þess að fjarskipti hélldust að mestu virk í þéttbýli. Eins og þekkt er þvarr afl á nokkrum svæðum, sem slökkti á búnaði. Verja þurfti tugum milljóná í ófyrirséð útgjöld í desember til að tryggja betur samband viða um land og halda grunnfjarskiptum gangandi. Fjarskiptafélögin ásamt Neyðarlínunni og Ríkisútvarpinu hafa nú stofnað til samstarfs um að styrkja fjarskipti í byggðakjörnum og dreifðari byggðum. Þar við bætist að Síminn, Sýn og Nova hafa hleypt af stokkunum viðræðum um mögulegt samstarf um fjarskiptainnviði í víðum skilningi. Markmiðið er að nýta fjárfestingafé næstu missera og ára á sem hagkvæmastan hátt og skoða hvort og hvernig hægt sé að samnýta núverandi og komandi innviði. Þá verður athugað að flýta uppbýggingu á nýrri tækni, auka almannaöryggi, minnka sóun og draga úr umhverfisraski við framkvæmdir.

Ljósleiðaravæðing Mílu gekk vel á síðasta ári og 17 þúsund ný heimili gátu tengst við ljósleiðara Mílu. Aukning í ljósleiðaratengingum var sérstaklega mikil úti á landi, sem er ný og jákvæð þróun. Ljósleiðari Mílu nær nú til meirihluta heimila landsins og fjárfestingar í lagningu slíkra tenginga hafa náð hámarki. Mun draga úr þeim á þessu ári og aftur á því næsta. Eftirspurn eftir sérfræðiþjónustu Sensa í skýjalausnum jókst hróðum skrefum á síðasta ári. Félagið hefur nú keypt upplýsingatæknifélagið HUX til að stýðja enn frekar við lausnaframboð á því sviði, svo sem í gervigreind, öryggi og flæði gagna í skýinu.

Í heild kemur samstæðan því sterk til leiks árið 2020. Þrátt fyrir kólnandi efnahag landsins spá stjórnendur bættri EBITDA framlegð milli ára og sterkara fjárflæði."


Síminn

Helstu niðurstöður í rekstri árið 2019

Rekstur

2019 2018 Breyting Breyting %
Rekstrartekjur 28.309 27.925 384 1,4%
Kostnaðarverð sölu (14.906) (14.479) (427) 2,9%
Framlegð 13.403 13.446 (43) -0,3%
Hlutfall af rekstrartekjum 47,3% 48,2%
Aðrar rekstrartekjur 762 615 147 23,9%
Rekstrarkostnaður (9.251) (9.154) (97) 1,1%
Virðisrýrnun 0 (2.990) 2.990 -100,0%
Rekstrarhagnaður 4.914 1.917 2.997 156,3%
Hlutfall af rekstrartekjum 17,4% 6,9%
Fjármunatekjur 196 213 (17) -8,0%
Fjármagnsgjöld (1.227) (967) (260) 26,9%
Gengismunur (14) (34) 20
Hrein fjármagnsgjöld (1.045) (788) (257) 32,6%
Tekjuskattur (799) (847) 48 -5,7%
Hagnaður 3.070 282 2.788
Afskriftir (5.602) (7.604) 2.002
EBITDA* 10.516 9.521 995 10,5%
Hlutfall 36,2% 33,4%
EBIT 4.914 1.917 2.997
Hlutfall 16,9% 6,7%
  • Endurgert m.v. breytta framsetningu á sýningarrétti sjónvarpsefnis

Sala 2019 nam 29.071 milljón króna samanborið við 28.540 milljónir króna árið 2018, sem er 1,9% vöxtur milli ára. Tekjur af farsíma námu 5.772 milljónum króna og lækkuðu um 360 milljónir króna eða 5,9% á milli ára, samdráttur skýrist nær eingöngu af lækkun vegna heildsölu og reikipjónustu. Tekjur af talsíma námu 1.803 milljónum króna og lækkuðu um 4,2%. Tekjur af gagnaflutningi námu 8.573 milljónum króna og lækkuðu um 299 milljónir króna eða 3,4% á milli ára. Tekjur af sjónvarpspjónustu námu 5.621 milljón króna og hækkuðu um 818 milljónir króna eða 17,0% á milli ára. Tekjur af upplýsingatækni námu 4.162 milljónum króna og hækkuðu um 427 milljónir króna eða 11,4% á milli ára. Tekjur af vörusölu voru 1.932 milljónir króna og lækka um 120 milljónir króna milli ára eða 5,8%.

Framlegð árið 2019 nam 13.403 milljónum króna og lækkaði um 43 milljónir króna eða 0,3% frá 2018. Rekstrarkostnaður nam 9.251 milljón króna og hækkaði um 97 milljónir króna eða 1,1% frá 2018.

Rekstrarhagnaður félagsins fyrir afskriftir og fjármagnsliði EBITDA var 10.516 milljónir króna árið 2019 en var 9.521 milljónir króna árið 2018 og hækkaði því um 995 milljónir króna milli ára eða um 10,5%. EBITDA hlutfallið er 36,2% en var 33,4% árið 2018. Að teknu tilliti til breytinga vegna IFRS 16 þá nam EBITDA árið 2018 10.311 milljónum króna og EBITDA hlutfall var 36,1%.


Síminn

Afskriftir félagsins námu 5.602 milljónum króna 2019 samanborið við 7.604 milljónir króna árið 2018 og lækka um 2.002 milljónir króna milli ára. Að teknu tilliti til breytinga vegna IFRS 16 þá hækka afskriftir árið 2018 um 650 milljónir króna. Viðskiptavild var afskrifuð um 2.990 milljónir króna í lok árs 2018 sem skýrir háar afskriftir 2018.

Hrein fjármagnsgjöld voru 1.045 milljónir króna 2019 og hækkuðu um 257 milljónir króna á milli ára þar af eru áhrif af breytingum vegna IFRS 16 272 milljónir króna. Áætlaðar voru 50 milljónir króna vegna dóms Héraðsdóms Reykjavíkur í svokölluðu TSC máli. Gjaldfærð varuðarfærsla vegna málsins nemur samtals 100 milljónum króna og var færð á 1F 2019.

Hagnaður ársins 2019 nam 3.070 milljónum króna samanborið við 282 milljónir króna árið 2018.

Sjóðstreymi

Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta var 10.265 milljónir króna 2019 samanborið við 9.676 milljónir króna árið 2018. Eftir vexti og skatta nam handbært fé frá rekstri 8.507 milljónum króna 2019 samanborið við 8.581 milljón króna árið 2018.

Fjárfestingarhreyfingar voru 6.369 milljónir króna 2019 samanborið við 5.434 milljónir króna árið 2018.

img-0.jpeg

Efnahagur

Heildareignir félagsins námu 65.521 milljón króna í lok árs 2019 en voru 58.834 milljónir króna í lok árs 2018.

Vaxtaberandi skuldir voru 16.231 milljón króna í lok árs 2019 samanborið við 17.231 milljón króna í lok árs 2018. Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 16.014 milljónir króna í lok árs 2019 og

31.12.2019 31.12.2018
Fastafjármunir 58.571 50.956
Veltufjármunir 6.950 7.878
Eignir alls 65.521 58.834
Eigið fé 36.632 35.202
Langtimaskuldir 20.268 16.529
Skammtímaskuldir 8.621 7.103
Skuldir og eigið fé alls 65.521 58.834
Eiginfjárhlutfall 55,9% 59,8%

hækkuðu um 29 milljónir króna frá árslokum 2018. Hlutfall hreinna vaxtaberandi skulda á móti EBITDA síðastliðinna tólf mánaða var 1,52. Markmið félagsins er að hlutfallið sé á bilinu 1,5 til 2,5.

Eigið fé félagsins nam 36.632 milljónum króna í lok árs 2019 og eiginfjárhlutfall félagsins var 55,9%.


Síminn

Helstu atburðir á 4F 2019

  • Síminn ásamt Sýn og Nova hafa undirritað viljayfirlýsingu og kanna grundvöll á samstarfi og samnýtingu fjarskiptakerfa og innviða þeirra. Pannig á að skoða hvernig og hvort hægt sé að samnýta fjárfestingar, auka almannaöryggi, auka hagkvæmni, draga úr umhverfisraski og auka skilvirkni fjarskipta fyrirtækjunum og samfélaginu öllu til bóta.

  • Fjarskiptakerfi Símans stóðu sig vel í óveðrunum sem léku samgöngur og afhendingu rafmagns grátt í lok fjórðungsins. Tæknifólk Símans var vel undirbúið og vond veður svo sem engin nýlunda. Varaafl Símans ásamt nýtingu varaafls hjá hýsingaraðilum sá til þess að fjarskipti voru að mestu inni í þéttbýli. Fjarskiptafélögin ásamt Neyðarlínunni og RÚV hafa stofnað til vinnuhóps þar sem fara á yfir hvað betur megi fara svo styrkja megi fjarskipti í byggðakjörnum og dreifðari byggðum.

  • Síminn var hástökkvari meðal fjarskiptafyrirtækja í Íslensku ánægjuvoginni ásamt því að mælingar frá öðrum aðilum sýna sama uppgang. Góður árangur hefur náðst í að auka ánægju viðskiptavina Símans og minnka brottfall. Margir samverkandi þættir gera það að verkum að þessi árangur hefur náðst og má t.d. nefna nýtt Síma app sem auðveldar sjálsafgreiðslu ásamt svokallaðri hraðahindrun fyrir viðskiptavini með farsíma sem minnkar ófyrirséðan kostnað vegna gagnamagnsnotkunar og fækkar leiðréttinum á reikningum.

  • Áhorf á efnisveitu Símans, Sjónvarp Símans Premium, hefur aldrei verið meira. Íslendingar hafa tekið ástfóstri við raunveruleikasjónvarp um ástina og verma þannig þættir eins og Bachelor og Love Island alla vinsældalista viku eftir viku. Önnur þáttaröðin af íslensku gamanþáttunum Venjulegt fólk átti einnig frábæran fjórðung og varð þannig vinsælasta innlenda efnið í Sjónvarpi Símans Premium.

Horfur fyrir árið 2020

Spá fyrir árið 2020 gerir ráð fyrir að EBITDA félagsins verði á bilinu 10,5 til 10,9 milljarðar króna. Áætlað er að fjárfestingar verði á bilinu 5,7 til 6,0 milljarðar króna.

Kynningarfundur 21. febrúar 2020

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn föstudaginn 21. febrúar kl. 8:30 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík.

Á fundinum munu Orri Hauksson forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum.

Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á heimasíðu Símans

https://www.siminn.is/umsimann/uppgjor og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.

Hægt er að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu á vefslóðinni:

https://livestream.com/accounts/11153656/events/8987781/player


Síminn

Fjárhagsdagatal 2020

  • Aðalfundur 2020 12. mars 2020
  • Afkoma 1F 2020 28. apríl 2020
  • Afkoma 2F 2020 25. ágúst 2020
  • Afkoma 3F 2020 27. október 2020
  • Ársuppgjör 2020 18. febrúar 2021
  • Aðalfundur 2021 11. mars 2021

Nánari upplýsingar um uppgjörið veita:

Orri Hauksson, forstjóri Símans, s. 550 6003 ([email protected])

Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans, s. 550 6003 ([email protected])

Síminn hf.

Síminn á og rekur fyrirtækin Símann, Mílu, Sensa, Farsímagreiðslur og Radíómiðun. Síminn er stærsta fjarskiptafyrirtæki landsins og veitir viðskiptavinum, bæði einstaklingum og fyrirtækjum, heildstætt vöruframboð á sviði fjarskipta, afbreyingar og upplýsingatækni.