AI assistant
Síminn — Earnings Release 2016
Feb 16, 2017
2203_rns_2017-02-16_0a24d3eb-3815-48d9-b657-614067033b35.pdf
Earnings Release
Open in viewerOpens in your device viewer
Síminn
- febrúar 2017
Fréttatilkynning: Afkoma Símans hf. á fjórða ársfjórðungi 2016
Hagræðing og skýr framtíðarsýn skila Símanum góðri uppskeru
- Tekjur á fjórða ársfjórðungi 2016 voru 7.945 milljónir króna samanborið við 8.236 milljónir króna á sama tímabili 2015. Samdráttur tekna skýrist meðal annars af sölu á dótturfélögunum Staka og Talentu.
- Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði EBITDA var 2.103 milljónir króna á fjórða ársfjórðungi 2016 samanborið við 1.654 milljónir króna á sama tímabili 2015. EBITDA hlutfallið var 26,5% fyrir fjórða ársfjórðung 2016 en var 20,1% á sama tímabili 2015.
- Hagnaður á fjórða ársfjórðungi 2016 var 601 milljón króna samanborið við 679 milljónir króna á sama tímabili 2015.
- Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta var 2.241 milljónir króna á fjórða ársfjórðungi 2016 en var 1.047 milljónir króna á sama tímabili 2015. Eftir vexti og skatta var handbært fé frá rekstri 2.106 milljónir króna á fjórða ársfjórðungi 2016 en 1.054 milljónir króna á sama tímabili 2015 og hækkar um 1.052 milljónir króna milli ára.
- Vaxtaberandi skuldir voru 22,9 milljarðar króna í lok árs 2016 en voru 24,2 milljarðar í árslok 2015. Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 19,3 milljarðar króna í lok árs 2016 en 20,1 milljarðar króna í lok árs 2015.
- Hrein fjármagnsgjöld voru 370 milljónir króna á fjórða ársfjórðungi 2016 en voru 265 milljónir króna á sama tímabili 2015. Fjármagnsgjöld voru 584 milljónir króna, fjármunatekjur voru 232 milljónir króna og gengistap 18 milljónir króna.
- Eiginfjárhlutfall Símans hf. var 53,5% í lok árs 2016 og eigið fé 34,3 milljarðar króna.
Orri Hauksson, forstjóri:
„Við hjá Símanum horfum stolt á afrakstur síðasta árs. Míla náði takmarki sínu um að veita 30 þúsund heimilum tækifæri á ljósleiðaratengingu fyrir árslok. Sensa átti veltumesta ár sitt frá upphafi. Síminn hélt vel stöðu sinni á einstaklings- og fyrirtækjamarkaði ásamt því að heildsölustarfsemi gekk vel. Þrýstingur var hins vegar á einingaverð. Rekstrarkostnaður samstæðunnar hefur nú á einu ári verið lækkáður um ríflega 800 milljónir króna á ársgrundvelli.
Síminn
Árið hófst með krefjandi hætti. Verð lækkaði bratt á lykilvörum og laun hækuðu langt umfram áætlanir. Gripið var til fjölmargra aðgerða til hagræðingar og meðal annars fækkaði starfsfólki Símans hf. um 14% á árinu. Þessi ólgusjór kom þó ekki í veg fyrir samheldni innan Símans og skýrist árangurinn á síðari hluta ársins af einbeitni starfsfólks við að ná settum markmiðum.
Sala dótturfélaga á árinu skerpti samstæðuna, kjarni hennar felst nú í þremur stærstu fyrirtækjunum, Símanum, Mílu og Sensa. Rekstur tveggja smárra dótturfélaga, On-Waves og Sensa DK, gekk illa á árinu og drógu þau rekstrarárangur samstæðunnar niður. Neikvæð áhrif þessara eininga verða mun minni á þessu ári.
Við horfum bjartsýn á nýja árið. Fjárfest var markvisst síðustu mánuði ársins og á meiri hraða en framan af ári. Sterkt vöruframboð Símans fékk verðskuldaða athygli á markaðnum. Samanburður seinni helminga síðustu tveggja ára sýnir glöggt að samstæðan er á réttri leið.
Síminn státar nú af nýlegri viðurkenningu fyrir hraða á farsímanetinu, vaxandi vinsældum sjónvarpsbjónustu Símans, öflugum innviðum og samkeppnishæfu verði.
Helstu niðurstöður í rekstri árið 2016
Reikningsskilaðferðir og samþykkt ársreiknings
Ársreikningurinn hefur að geyma samstæðureikning Símans hf. og dótturfélaga hans. Stjórn og forstjóri Símans hf. hafa í dag fjallað um samstæðuársreikning félagsins fyrir árið 2016 og staðfesta hann með undirritun sinni.
Rekstur
| 4F 2016 | 4F 2015 | Breyting % | 2016 | 2015 | Breyting % | |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Rekstrartekjur | 7.773 | 7.964 | -2,4% | 29.037 | 29.868 | -2,8% |
| Kostnaðarverð söl | (4.302) | (4.781) | -10,0% | (15.387) | (16.432) | -6,4% |
| Framlegð | 3.471 | 3.183 | 9,0% | 13.650 | 13.436 | 1,6% |
| Hlutfall af rekstrartekjum | 44,7% | 40,0% | 47,0% | 45,0% | ||
| Aðrar rekstrartekjur | 172 | 272 | -36,8% | 535 | 539 | -0,7% |
| Rekstrarkostnaður | (2.466) | (2.642) | -6,7% | (9.559) | (9.332) | 2,4% |
| Rekstrarhagnaður | 1.177 | 813 | 44,8% | 4.626 | 4.643 | -0,4% |
| Hlutfall af rekstrartekjum | 15,1% | 10,2% | 15,9% | 15,5% | ||
| Fjármunatekjur | 232 | 108 | 114,8% | 765 | 419 | 82,6% |
| Fjármagnsgjöld | (584) | (359) | 62,7% | (1.884) | (1.762) | 6,9% |
| Gengismunur | (18) | (14) | 28,6% | 21 | 56 | -62,5% |
| Hrein fjármagnsgjöld | (370) | (265) | 39,6% | (1.098) | (1.287) | -14,7% |
| Áhrif hlutdeildarfélaga | (1) | (15) | -93,3% | (1) | (48) | -97,9% |
| Tekjuskattur | (205) | 146 | -240,4% | (772) | (433) | 78,3% |
| Hagnaður tímabils | 601 | 679 | -11,5% | 2.755 | 2.875 | -4,2% |
| Afskriftir og virðisrýrnun | (926) | (841) | 10,1% | (3.619) | (3.399) | 6,5% |
| EBITDA | 2.103 | 1.654 | 27,1% | 8.245 | 8.042 | 2,5% |
| Hlutfall | 26,5% | 20,1% | 27,9% | 26,4% | ||
| EBIT | 1.177 | 813 | 44,8% | 4.626 | 4.643 | -0,4% |
| Hlutfall | 14,8% | 9,9% | 15,6% | 15,3% |
Síminn
Heildartekjur árið 2016 námu 29.572 milljónum króna samanborið við 30.407 milljónir króna árið 2015, sem er 2,7% samdráttur milli ára. Tekjur af gagnaflutningi námu 8.498 milljónum króna og jukust um 74 milljónir króna eða sem nemur 0,9% á milli ára. Tekjur af upplýsingatækni námu 4.619 milljónum króna og lækkuðu um 204 milljónir króna milli ára eða 4,2%. Samdrátturinn skýrist meðal annars af sölu á dótturfélögunum Staka og Talentu en tekjur þeirra námu 114 milljónum króna á síðari helmingi árs 2015. Tekjur af sjónvarpsþjónustu voru 4.062 milljónir króna og hækka um 217 milljónir króna eða 5,6% og tekjur af farsíma námu 7.190 milljónum króna og drógust saman um 359 milljónir króna milli ára eða 4,8%. Þar af er tekjusamdráttur milli ára vegna On-Waves 267 milljónir króna.
Framlegð árið 2016 nam 13.650 milljónum króna og hækkar um 214 milljónir króna eða 1,6% frá árinu 2015. Rekstrarkostnaður nam 9.559 milljónum króna og hækkar um 227 milljónir króna eða 2,4% frá 2015. Verulegur árangur náðist í lækkun á kostnaði sem skilar sér í hærri framlegð. Hækkun rekstrarkostnaðar skýrist aðallega af hærri launakostnaði í kjölfar starfsloka auk þess sem afskriftir hækka.
Rekstrarhagnaður félagsins fyrir afskriftir EBITDA nam 8.245 milljónir króna árið 2016 en var 8.042 milljónir króna árið 2015. EBITDA hlutfallið var 27,9% samanborið við 26,4% árið 2015.
Afskriftir félagsins voru 3.619 milljónir króna árið 2016 samanborið við 3.399 milljónir króna árið 2015. Nýtt reikningagerðarkerfi var tekið í notkun á árinu en einnig voru lögð niður kerfi sem sem hefur áhrif á afskriftir. Aukalegar afskriftir vegna niðurlagningar á kerfum og vörumerki námu 95 milljónum króna á árinu.
Hrein fjármagnsgjöld voru 1.098 milljónir króna árið 2016 og lækka um 189 milljónir króna á milli ára. Fjármunatekjur voru 765 milljónir króna og hækkuðu um 346 milljónir króna. Hækkunin skýrist aðallega af hagnaði af sölu á dótturfélögunum Staka og Talenta og sölu á hlut félagsins í Trackwell. Fjármagnsgjöld voru 1.884 milljónir króna og hækkuðu um 122 milljónir króna. Meðal fjármagnsgjalda er niðurfærsla á virði Sensa DK upp á 180 milljónir króna. Að teknu tilliti til þess lækkuðu fjármagnsgjöld um 58 milljónir króna.
Tekjuskattur er 772 milljónir króna og hækkar um 339 milljónir króna milli ára.
Heildarhagnaður félagsins eftir skatta var 2.755 milljónir króna árið 2016 samanborið við 2.875 milljónir króna árið 2015.
Sjóðstreymi
Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta var 7.893 milljónir króna árið 2016 samanborið við 7.747 milljónir króna árið 2015.
Fjárfestingahreyfingar voru 4.531 milljónir króna árið 2016 samanborið við 4.956 milljónir króna 2015. Þar af voru fjárfestingar í rekstrarfjármunum 4.714 milljónir króna sem er hækkun um 32 milljónir króna frá 2015. Hlutfall fjárfestinga af veltu var 15,9% árið 2016 samanborið við 15,4% árið 2015.

Síminn
Í upphafi árs var áætlað að fjárfestingar ársins yrðu 15-16% af veltu en í lok þriðja ársfjórðungs 2016 leit út fyrir að þær yrðu nokkuð lægri og var spá um fjárfestingahlutfall lækkáð í 13,5-14,5% af veltu. Skýrðist það aðallega af því að útlit var fyrir að fjárfestingar Mílu í ljósleiðaraverkefni færu hægar af stað en áætlað hafði verið. Niðurstaðan varð hins vegar sú að verkefnin gengu vel í lok árs, meðal annars vegna þess að veðurfar var sérstaklega hagstætt til framkvæmda hjá Mílu og því féllu til fjárfestingar í lok árs sem áætlað hafði verið að kæmu til á árinu 2017. Einnig var farið í verkefni hjá Símanum sem áætlað hafði verið að féllu til í upphafi árs 2017. Hærri fjárfestingingar í lok árs 2016 skýrast því af tilfærslu verkefna í tíma en áætlaður heildarkostnaður vegna verkefnanna er óbreyttur.
Aðrar fjárfestingahreyfingar eru jákvæðar um 183 milljónir króna árið 2016 samanborið við að vera neikvæðar um 274 milljónir króna árið 2015. Viðsnúningur skýrist meðal annars af sölu á dótturfélögunum Staka og Talenta og sölu á eignarhlut í Trackwell á árinu 2016 samanborið við kaup á Basis ehf. árið 2015.
Efnahagur
| 31.12.2016 | 31.12.2015 | |
|---|---|---|
| Fastafjármunir | 52.055 | 50.392 |
| Veltufjármunir | 11.924 | 11.735 |
| Eignir alls | 63.979 | 62.127 |
| Eigið fé | 34.260 | 32.801 |
| Langtímaskuldir | 22.010 | 23.051 |
| Skammtímaskuldir | 7.709 | 6.275 |
| Skuldir og eigið fé alls | 63.979 | 62.127 |
| Eiginfjárhlutfall | 53,5% | 52,8% |
Heildareignir félagsins voru 63.979 milljónir króna í lok árs 2016 og hafa hækkáð um 1.852 milljónir króna frá því í lok árs 2015.
Vaxtaberandi skuldir voru 22.944 milljónir króna í árslok 2016 samanborið við 24.155 milljónir króna í lok árs 2015 og hafa því lækkáð um 1.211 milljónir króna á árinu. Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 19.277 milljónir króna í lok árs 2016 og lækkuðu um 807 milljónir króna frá árslokum 2015. Hlutfall hreinna vaxtaberandi skulda á móti EBITDA ársins var 2,34.
Eigið fé félagsins var 34.260 milljónir króna í lok árs 2016 og eiginfjárhlutfall félagsins var 53,5%.
Félagið greiddi á árinu arð að fjárhæð 575 milljónir króna til hluthafa sinna. Einnig keypti félagið eigin bréf að nafnvírði 243 milljónir króna í samræmi við endurkaupaáætun félagsins, sem samþykkt var á aðalfundi félagsins þann 10. mars 2016. Kaupum samkvæmt endurkaupaáætuninni lauk þann 1. júní 2016. Meðalgengi á endurkaupum var 3,09. Í samræmi við kaupréttarsamninga voru hlutir að nafnverði 37 milljónir króna seldir til starfsmanna á genginu 2,5181.
Skráð hlutafé félagsins nam í árslok 9.650 milljónum króna en félagið á eigin hluti að nafnverði 205,8 milljónir króna eða sem nemur 2,13% af hlutafé félagsins. Hlutaféð er í einum flokki, sem skráður er í Kauphöll Íslands og njóta allir hlutir sömu réttinda. Hlutafé í árslok skiptist á 1.473 hluthafa en þeir voru 2.783 í ársbyrjun.
Síminn
Stjórn félagsins leggur til að 10% af hagnaði ársins, 275 milljónir króna, verði greiddar út sem arður á árinu 2017 vegna ársins 2016. Þá leggur stjórn félagsins einnig til að farið verði í framkvæmd endurkaupaáætlunar á hlutabréfum í félaginu fyrir fjárhæð sem nemur allt að 40% af hagnaði félagsins á árinu 2016.
Helstu atburðir á fjórða ársfjórðungi 2016
- Ljósleiðaranet Mílu stækkar margfalt. Míla veitti 30.000 heimilum á höfuðborgarsvæðinu möguleika á ljósleiðara fyrir árslok og gefst þeim nú á nýju ári færi á 1 Gb/s nettengingu. Uppbyggingin heldur áfram og er áætlað að 65% heimila á höfuðborgarsvæðinu geti tengst ljósleiðara Mílu þegar árinu lýkur.
- Síminn með hraðasta farsímanetið á Íslandi 2016. Síminn er samkvæmt Speedtest Ookla með hraðasta farsímanet hér á landi frá miðju ári 2016. Sendar sem ná yfir 200 Mb/s hraða voru settir upp í nóvember. 4G kerfi Símans náði í árslok til 95,5% landsmanna.
- Púsundir nýrra áskrifenda að Sjónvarpi Símans Premium. Fjöldi áskrifenda að Sjónvarpi Símans Premium tvöfaldaðist á árinuog voru rétt tæplega 28 þúsund í árslok. Nú eru nærri þrefalt fleiri klukkustundir innan efnisveitunnar en þegar hún var kynnt á markaði í október 2015 – eða ríflega 6.000 klukkustundir.
- EM hjá Símanum fær fjölmiðlaverðlaun KSÍ. Sjónvarp Símans fékk á dögunum viðurkenningu KSÍ fyrir metnaðarfullar útsendingar frá Evrópumeistaramóti karla í knattspyrnu í sumar – Enginn gleymir einstökum lýsingum Gumma Ben frá leikjum Íslands. Við eru stolt af því að um sautján milljónir horfðu á örfáum dögum á víkingaklapp landsmanna á Arnarhóli á Facabook-síðu félagsins.
- Vörumerki Símans stöðugt í sjónvarpinu. Síminn nýtti tækifærið sem EM gaf og endurnefndi allar vörur innan sjónvarpsþjónustunnar: Sjónvarpsstöðin varð Sjónvarp Símans, efnisveitan Sjónvarp Símans Premium, myndbandaleigan SíminnBíó, barnaefnið SíminnKrakkar og erlenu stöðvarnar SíminnHeimur.
- Sjómenn fengu eigin sjónvarpsstöð. Síminn steig mikið framfaraskref þegar hann ýtti úr vör glænýrri sjónvarpsstöð fyrir sjómenn í júní. Sjómenn og útgerðir fengu þá sína eigin gagnvirku sjónvarpsstöð sem kallast Sjóvarp Símans. Hún er sérsniðin að þörfum sjómanna og býður meðal annars Tímaflakk á glænýju útsendu efni.
- Þróun í upplýsingatækni. Sensa kynnti Skýjavist og nýjustu kynslóð hýsingarnets til leiks á síðasta ári. Viðskiptavinir fá aðgang að þjónustu úr skýinu (O365, Amazon - AWS, Azure) á hagkvæman, öruggan og sveigjanlegan hátt.
- Sérfræðiþjónusta eykst hjá Sensa. Eftirspurn eftir sérfræðiþklingu Sensa hefur vaxið mjög vegna öryggismála, innviða og samskiptalausna. Árið 2016 var það veltumesta í sögu félagsins.
- Félög seld og húsnæði skilað. Síminn seldi allt hlutafé sitt í dótturfélögunum Talenta og Staka Automation á árinu. Einnig var allt hlutafé í Trackwell selt sem og útvarpsstöðvarnar K100 og Retro. Síminn endursamdi einnig við fasteignafélagið Eik og skilaði í kjölfarið 4.000 fermetrum og lækkaði með því húsnæðiskostnað verulega.
- Snarpari á markaði með nýju reikningakerfi. Nýtt öflugt reikningakerfi var tekið í notkun á árinu sem auðveldar félaginu að breyta vöruframboði sínu og bregðast við
Síminn
breyttu landslagi á markaði. Síminn útvistaði í kjölfarið rekstri kerfisins til pólska félagsins Comarch.
- Upplýsingaöryggi lykilþáttur í rekstri Símans. ISO staðall um upplýsingaöryggi nær nú yfir alla starfsemi Símans eftir útvíkkun hans í maí. Síminn hefur unnið eftir vottuðu stjórnkerfi upplýsingaöryggis frá árinu 2002. Vinnubrögð innan Símans, Mílu og Sensa, allra stærstu félaga Símasamstæðunnar eru nú vottuð.
- Enn meiri gagnaflutningsgeta. Útlandagátt Símans annar nú helmingi meiri gagnaumferð en ári áður. Síminn er því vel í stakk búinn að takast á við aukna gagnanotkun landsmanna en hún jókst um tæpan þriðjung á fastanetinu í fyrra og yfir 100% á farsímanetinu.
Helstu viðburðir framundan
- 4K háskerpa í Sjónvarpi Símans. Síminn er í stakk búinn fyrir 4K sjónvarpsútsendingar. Tilraunaútsendingar innan efnisveitu Símans eru að hefjast. Þegar eru ríflega 5.000 ultra HD myndlyklar, sem bera 4K útsendingar, á heimilum viðskiptavina.
- Síminn sér framtíð í snjallari heimilum. Síminn stefnir á markað heimastýringar fyrir einstaklinga á næstu víkum. Þjónustan Síminn Heima gefur viðskiptavinum tækifæri til að fylgjast með heimili sínu með hinum ýmsu snjalltækjum í gegnum viðmót Símans sem er að sjálfsögðu á íslensku.
- Síminn og Telefónica í samstarf. Spænska fjarskiptafélagið Telefónica og Síminn hafa samið um viðtækt samstarf sem nær meðal annars til innkaupa, reikiþjónustu, stafræna lausna og fjölþjóðlegrar þjónustu. Telefónica er eitt stærsta fjarskiptafélag í heimi og væntingar Símans til samvinnunnar eru miklar.
- Uppbygging gagnavers á höfuðborgarsvæðinu. Unnið verður að uppbýggingu gagnavers Símans sem rísa á í jaðri höfuðborgarsvæðisins. Gagnaverið verður eitt það fullkomnasta og nýtist starfsemi Símans, Sensa og Mílu sem og viðskiptavinum þeirra í hýsingu.
Horfur
Spá fyrir árið 2017 gerir ráð fyrir að EBITDA félagsins verði á bilinu 8,3 til 8,7 milljarðar króna. Áætlað er að fjárfestingar á árið 2017 verði á bilinu 4,5 til 4,8 milljarðar króna.
Kynningarfundur 17. febrúar 2017
Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn á morgun föstudaginn 17. febrúar kl. 8:30 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík.
Á fundinum munu Orri Hauksson forstjóri, Óskar Hauksson fjármálastjóri og Sigríður Hrólfsdóttir formaður stjórnar kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum.
Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á heimasíðu Símans www.siminn.is/siminn/fjarfestar/ og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.
Hægt er að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu á vefslóðinni:
https://livestream.com/accounts/11153656/events/6987299/player
Síminn
Fjárhagsdagatal 2017
- Aðalfundur 2017 16. mars 2017
- Afkoma fyrsta ársfjórðungs 2017 26. apríl 2017
- Afkoma annars ársfjórðungs 2017 24. ágúst 2017
- Afkoma þriðja ársfjórðungs 2017 26. október 2017
- Afkoma fjórða ársfjórðungs og ársuppgjör 2017 15. febrúar 2018
- Aðalfundur 2018 15. mars 2018
Nánari upplýsingar um uppgjörið veita:
Orri Hauksson, forstjóri Símans, s. 550-6003 ([email protected])
Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans s. 550-6003 ([email protected])
Síminn hf.
Síminn á og rekur fyrirtækin Símann, Mílu, Sensa, On-Waves, Radiómiðun og Sensa DK í Danmörku. Síminn er stærsta fjarskiptafyrirtæki landsins og veitir viðskiptavinum, bæði einstaklingum og fyrirtækjum, heildstætt vöruframboð á sviði fjarskipta, upplýsingatækni og afþreyingar.
7