AI assistant
Síminn — Earnings Release 2015
Feb 18, 2016
2203_rns_2016-02-18_d87bc555-4ce5-4f1b-9572-0276de163cc0.pdf
Earnings Release
Open in viewerOpens in your device viewer
Síminn
- febrúar 2016
Fréttatilkynning: Afkoma Símans hf. árið 2015
Síminn sækir fram eftir ár endurskipulagningar
- Tekjur voru 30.407 milljónir króna á árinu
- EBITDA hagnaður ársins nam 8.042 milljónum króna
-
Hagnaður ársins nam 2.875 milljónum króna
-
Tekjur árið 2015 námu 30.407 milljónum króna samanborið við 30.322 milljónir króna árið 2014.
- Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði EBITDA nam 8.042 milljónum króna árið 2015 samanborið við 8.313 milljónir króna árið 2014. EBITDA hlutfallið er 26,4% fyrir árið 2015 en var 27,4% árið 2014.
- Hagnaður árið 2015 nam 2.875 milljónum króna samanborið við 3.274 milljónir króna árið 2014 og lækkar um 399 milljónir króna milli ára. Á árinu 2014 varð söluhagnaður vegna krafna á Glitni, dótturfélags og fastafjármuna að fjárhæð 753 milljónir króna. Án þessara liða hækkar hagnaður á milli ára.
- Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta nam 7.747 milljónum króna árið 2015 en var 7.544 milljónir króna árið 2014. Eftir vexti og skatta nam handbært fé frá rekstri 6.373 milljónum króna árið 2015 en 5.795 milljónum króna árið 2014.
- Vaxtaberandi skuldir námu 24,2 milljórðum króna í lok árs 2015 en voru 25,4 milljarðar í árslok 2014. Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 20,1 milljarður króna í lok árs 2015 og lækkuðu um 1,3 milljarða á árinu 2015.
- Hrein fjármagnsgjöld námu 1.287 milljónum króna á árinu 2015 en voru 609 milljónir króna árið 2014. Fjármagnsgjöld námu 1.762 milljónum króna, fjármunatekjur voru 419 milljónir króna og gengishagnaður 56 milljónir króna.
- Eiginfjárhlutfall Símans hf. var 52,8% í lok árs 2015 og eigið fé 32,8 milljarðar króna.
^{}[]
Orri Hauksson, forstjóri:
„Síminn hefur nú betri burði til að sækja fram eftir afrakstur endurskipulagningar á samstæðunni á síðasta ári. Afkoman er í takt við áætanir okkar, sem við kynntum í aðdraganda skráningar Símans á markað í október. Skipti, Síminn og Skjárinn sameinuðust á síðasta ári og upplýsingatæknisvið Símans var fært undir dótturfélagið Sensa. Vöruframboði samstæðunnar var breytt og fókusinn stilltur.
Síminn nýtur nú bættra kjara frá lykilbirgjum. Þá lækkar kostnaður við leigu á þessu ári þegar um 4.000 fermetrum verður skilað. Sum umbreytingaverkefni síðasta árs leiddu til timabundinnar tekjulækkunar og kostnaðarauka til skamms tíma. Síminn kynnti til að mynda gagnvirka áskriftarþjónustu, SkjáEinn hjá Símanum, um leið og hann opnaði linulega dagskrá SkjásEins á landsvísu.
Samstæðan fjárfesti í fjarskiptainnviðum fyrir 4,1 milljarða á árinu. 4G kerfi Símans náði í árslok til 89% landsmanna og mun útbreiðsla aukast enn frekar á þessu ári. Dótturfélagið Míla veitti 87 þúsund heimílum möguleika á tvöfalt öflugri tengingu en áður og mun byggja hratt upp ljósleiðarnet sitt á þessu ári.
Staðan er vel viðunandi. Harðnandi samkeppni og fyrirséðar hundruð milljóna króna kostnaðarhækkanir samstæðunnar vegna SALEK-samkomulags á vinnumarkaði valda því hins vegar að skerpa þarf enn frekar á rekstrinum til hagsbóta fyrir viðskiptavini og hluthafa.“
Helstu niðurstöður í rekstri á árinu 2015
Reikningsskilaðferðir og samþykkt ársreiknings
Ársreikningurinn hefur að geyma samstæðureikning Símans hf. og dótturfélaga hans. Stjórn og forstjóri félagsins hafa samþykkt ársreikning samstæðu félagsins fyrir árið 2015.
Rekstur
Sala árið 2015 nam 30.407 milljónum króna samanborið við 30.322 milljónir króna árið 2014, sem er 0,3% hækkun milli ára. Sé hins vegar tekið tillit til lækkunar tekna í kjólfar sölu á Síminn Danmark er tekjuvóxtur félagsins 1,7% milli ára.
Rekstrarhagnaður félagsins fyrir afskriftir EBITDA var 8.042 milljónir króna árið 2015 en var 8.313 milljónir króna árið 2014. EBITDA hlutfallið er 26,4% en var 27,4% árið 2014.
Afskriftir félagsins námu 3.399 milljónum króna árið 2015 samanborið við 3.527 milljónir króna árið 2014.
Hrein fjármagnsgjöld voru 1.287 milljónir króna árið 2015 og hækka um 678 milljónir króna á milli ára. Mesta breytingin er á fjármunatekjum en þær lækka um 689 milljónir króna milli ára.
Heildarhagnaður félagsins eftir skatta nam 2.875 milljónum króna samanborið við 3.274 milljónir króna árið 2014. Lækkun á hagnaði milli ára skýrist meðal annars af því að haustið 2014 seldi Síminn kröfu sem félagið átti á hendur Glitni banka hf. auk þess sem söjuhagnaður var vegna sölu á dótturfélagi og fastafjármunum samtals að fjárhæð 753 milljónir króna.
Sjóðstreymi
Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta var 7.747 milljónir króna árið 2015 samanborið við 7.544 milljónir króna á árið 2014.
Fjárfestingar í rekstrarfjármunum CAPEX námu 4.682 milljónum króna en voru 4.524 milljónir króna árið 2014. Hlutfall fjárfestinga af veltu var 15,4% árið 2015 samanborið við 14,9% árið 2014.
Efnahagur
Heildareignir félagsins námu 62.127 milljónum króna í lok árs en voru 61.047 milljónir króna í lok árs 2014. Vaxtaberandi skuldir voru 24.155 milljónir króna í lok árs samanborið við 25.429 milljónir króna í lok árs 2014. Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 20.084 milljónir króna í lok árs og lækkuðu um 1.338 milljónir króna frá árslokum 2014.
Eigið fé félagsins nam 32.801 milljónum króna í lok árs og eiginfjárhlutfall félagsins var 52,8%.
Rekstrarniðurstaða á fjórða ársfjórðungi 2015
- Tekjur á fjórða ársfjórðungi 2015 námu 8.236 milljónum króna samanborið við 7.949 milljónir króna á sama tímabili árið 2014, tekjuvöxturinn nemur 3,6%.
- Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði EBITDA nam 1.654 milljónum króna á fjórða ársfjórðungi 2015 samanborið við 1.864 milljónir króna á sama tímabili árið 2014.
- Hagnaður á fjórða ársfjórðungi 2015 nam 679 milljónum króna samanborið við 738 milljónir króna á sama tímabili árið 2014.
- Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta nam 1.047 milljónum króna á fjórða ársfjórðungi 2015 en var 919 milljónir króna á sama tímabili árið 2014.
Helstu atburðir á árinu 2015
- Síminn, Skipti og Skjárinn sameinuðust á árinu. Breytingin leiddi til einfaldara skipulags, uppstokkunar í vöruframboði og spennandi nýjunga, eins og SkjárEinn hjá Símanum, þegar leið á árið.
- Sensa dótturfélag Símans keypti Basis ehf. á árinu og sameinuðust félögin frá 1. júli. Með kaupum á Basis og með sameiningu við upplýsingatæknisvið Símans hefur félagið á að skipa á annað hundrað sérfræðingum í fjölbreyttum lausnum í upplýsingatækni. Árið var það veltumesta hjá félaginu og einnig skilað félagið einum mesta hagnaði frá upphafi.
- Sjónvarp Símans sýndi hvers vegna flestir kjósa það þegar kemur að gagnvirkú sjónvarpi. Nýtt viðmót, Twitter takkinn var kynntur til leiks sem varpar tístunum beint á skjáinn, foreldrastýringin var efld og enn hraðar má nú spóla þegar streymt er eða Tímaflakk notað.
- Síminn samdi á árinu við kvikmyndarisann Twentieth Century Fox. Samningurinn spilaði lykilhlutverk í auknu efnisvali innan Sjónvarps Símans. SkjárEinn í opinni dagskrá er nú með meira framboð af nýjum sjónvarpsbættum en nokkru sinni fyrr.
- 4G kerfi Símans náði í árslok til 89% landsmanna. Síminn gerði nýjan fimm ára samstarfssamning við Ericsson um frekari útbreiðslu og öflugra farsímanet Símans hér á landi. Samhliða uppsetningu 4G LTE snjallsenda verður farsímakerfið uppfært til að tryggja uppbyggingu netkerfis á heimsælikvarða.
- Einfaldara vöruframboð, einfaldari samstæða, var meginstef ársins. Heimilispakkinn rammar það inn, einfaldleiki í verðlagningu og samsetningu skapar hagræði í samtólum við viðskiptavini.
- SkjárEinn tók stakkaskiptum í október. Stöðin sem um árabil hafði verið í áskrift er núna aftur opin á nær öllum heimilum landsins í línulegri dagskrá. Þá var kynnt ný gagnvirk efnisþjónusta, SkjárEinn hjá Símanum, þar sem nálgast má þúsundir klukkustunda efnis í áskrift hjá Símanum. Áskrifendum að SkjáEinum hjá Símanum hefur fjölgað umtalsvert og eru nú orðnir ríflega 2 þúsund fleiri en voru hjá SkjáEinum þegar stöðin var í áskrift.
Tillaga um arðgreiðslu og endurkaupaáætlun
Á aðalfundi félagsins sem haldinn verður 10. mars næstkomandi mun stjórn Símans hf. leggja til að greiddur verði út arður til hluthafa árið 2015 sem nemur 0,06 kr. á hlut. Pannig nemi heildararðgreiðsla 575 milljónum króna sem felur í sér 20% af hagnaði ársins 2015. Arðsréttindadagur verði 14. mars 2016 þannig að hluthafar tilgreindir í hlutaskrá félagsins í lok arðsréttindadags eiga tilkall til arðs vegna rekstrarársins 2015. Arðleysisdagur, það er sá dagur sem viðskipti hefjast með bréf félagsins án réttar til arðs vegna reikningsársins 2015, verði 11. mars 2016, næsta viðskiptadag eftir aðalfund. Útborgunardagur verði 7. april 2016. Tillaga um arðgreiðslu er í samræmi við arðgreiðslustefnu félagsins.
Jafnframt mun stjórn félagsins óska eftir heimild til að framkvæma endurkaupaáætlun á hlutabréfum í félaginu fyrir fjárhæð sem nemur allt að 30% af hagnaði félagsins á árinu 2015.
Horfur
Spá fyrir árið 2016 gerir ráð fyrir að EBITDA hagnaður félagsins verði á bilinu 8,1 til 8,5 milljarðar króna. Áætlað er að fjárfestingar sem hlutfall af tekjum árið 2016 verði á bilinu 15% til 16% og hagnaður ársins verði á bilinu 2,2 til 2,6 milljarðar króna.
Kynningarfundur 18. febrúar 2016
Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn í dag fimmtudaginn 18. febrúar kl. 16 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík.
Á fundinum munu Orri Hauksson forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum.
Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á heimasíðu Símans www.siminn.is/siminn/fjarfestar/ og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.
Nánari upplýsingar um uppgjórið veita:
Orri Hauksson, forstjóri Símans, s. 550-6003. ([email protected])
Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans s. 550-6003. ([email protected])
Síminn hf.
Síminn á og rekur fyrirtæki sem starfa einkum á sviði fjarskipta og upplýsingatækni. Innan samstæðunnar eru eftirtalin fyrirtæki: Síminn, Míla, Sensa, Staki, On-Waves Radiomiðun, Talenta og Sensa DK í Danmörku.