Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Síminn Earnings Release 2015

Oct 29, 2015

2203_rns_2015-10-29_95332691-49a9-4d00-ba7c-3b716e2d4c8d.html

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

Rekstur Símans stöðugur fyrstu níu mánuði ársins

Rekstur Símans stöðugur fyrstu níu mánuði ársins

-- Tekjur á þriðja ársfjórðungi námu 7.555 milljónum króna samanborið við
7.089 milljónir króna á sama tímabili í fyrra, tekjuvöxturinn nemur 6,6%.

-- Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) nam 2.365
milljónum króna á þriðja ársfjórðungi samanborið við 2.452 milljónir króna
á sama tímabili árið 2014.

-- Hagnaður á þriðja ársfjórðungi nam 873 milljónum króna samanborið við 1.200
milljónir króna á sama tímabili 2014.

-- Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta nam 2.557 milljónum króna á
þriðja ársfjórðungi en var 2.615 milljónir króna á sama tímabili í fyrra.
Eftir vexti og skatta nam handbært fé frá rekstri 2.046 milljónum króna á
þriðja ársfjórðungi.

-- Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 20 milljarðar króna í lok september og
hafa lækkað um 1,4 milljarða króna frá áramótum.

-- Fjárfestingar á þriðja ársfjórðungi voru 1.129 m.kr. og
fjárfestingahlutfallið 14,9%.

-- Eiginfjárhlutfall félagsins var 51,8% í lok tímabils og eigið fé 32,1
milljarðar króna.

Orri Hauksson, forstjóri:

„Fyrsta uppgjör Símans á markaði er í samræmi við þau skilaboð sem gefin voru í
aðdraganda skráningarinnar. Einföldun hefur verið meginstefið að undanförnu.
Það á ekki aðeins við um uppbyggingu samstæðunnar heldur einnig þegar litið er
til vöruframboðsins. Áherslan hefur færst frá einingaverði til fastra greiðslna
á farsímamarkaði og hafa viðskiptavinir einnig kosið úrval vara Símans í einum
pakka. Það minnkar sveiflur í rekstrinum. Á næstu misserum má ætla að þessar
breytingar skili sér í hagkvæmari rekstri og aukinni framlegð. Við hjá Símanum
höldum full sjálfstrausts inn á markaðinn eftir umfangsmikinn undirbúning fyrir
skráningu félagsins. Ég vil nota tækifærið og þakka samstarfsfólki fyrir dug og
elju í aðdraganda hennar.“

Nánari upplýsingar um uppgjörið veita:

Orri Hauksson, forstjóri Símans, s. 550-6003. ([email protected])

Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans s. 550-6003. ([email protected])

Viðhengi: