Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Síminn Capital/Financing Update 2025

May 2, 2025

2203_rns_2025-05-02_fd294609-de6e-4855-87ae-e5bcd6225e2e.html

Capital/Financing Update

Open in viewer

Opens in your device viewer

{# SEO P0-1: filing HTML is rendered server-side so Googlebot sees the full text without executing JS or following an iframe to a Disallow'd CDN path. The content has already been sanitized through filings.seo.sanitize_filing_html. #}

Disclosure 458425

Síminn hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Síminn hf. - Útgáfa á nýjum víxlaflokki

Síminn hf. hefur lokið sölu á nýjum víxlaflokki, SIMINN251015 2. Seldir voru víxlar að nafnverði 600 m.kr. á kjörum sem samsvara 8,20% flötum vöxtum með lokagjalddaga þann 15. október 2025.

Ekki var um almennt útboð að ræða. Útboðið var undanþegið gerð lýsingar á grundvelli a, c og d-liðar, 4. mgr. 1. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/1129 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði og 1. mgr. 3. gr. laga nr. 14/2020 um sama efni.

Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta á markaði Nasdaq Iceland. Útgáfudagur og gjalddagi áskrifta er 7. maí 2025.

Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu víxlanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq Iceland.

Nánari upplýsingar veita:

Ásgrímur Gunnarsson, markaðsviðskipti, Fossar fjárfestingarbanki hf., sími: 522 4000, netfang: [email protected].

Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans hf., netfang: [email protected].