Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Síminn Capital/Financing Update 2024

Apr 9, 2024

2203_rns_2024-04-09_7a6121f6-b658-48f4-a8cf-6022e67cd5b0.html

Capital/Financing Update

Open in viewer

Opens in your device viewer

{# SEO P0-1: filing HTML is rendered server-side so Googlebot sees the full text without executing JS or following an iframe to a Disallow'd CDN path. The content has already been sanitized through filings.seo.sanitize_filing_html. #}

Síminn hf. - Útboð á víxlum 16. apríl 2024

Síminn hf. - Útboð á víxlum 16. apríl 2024

Síminn hf. efnir til útboðs á víxlum þriðjudaginn 16. apríl 2024. Boðnir verða til sölu víxlar í nýjum 6 mánaða flokki SIMINN241023.

Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útboðinu og kynningu þess fyrir hugsanlegum fjárfestum. Útboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu flötu vöxtum sem tekið er. Víxlarnir eru gefnir út í 20 m.kr. nafnverðseiningum og sótt verður um skráningu þeirra í Kauphöll. Félagið áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. Niðurstöður útboðsins verða birtar opinberlega eigi síðar en næsta virka dag eftir útboð.

Útboðið er undanþegið gerð lýsingar á grundvelli c og d-liðar, 4. mgr. 1. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/1129 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði. Grunnlýsing, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu framangreindan flokk skuldaskjals verða birt á vefsíðu félagsins: https://www.siminn.is/umsimann/fjarfestar-siminn.

Skila skal inn tilboðum á netfangið [email protected] fyrir klukkan 17:00 þriðjudaginn 16. apríl 2024. Uppgjör viðskipta fer fram þriðjudaginn 23. apríl 2024.

Nánari upplýsingar veita:

Ásgrímur Gunnarsson, markaðsviðskipti, Fossar fjárfestingarbanki hf., sími: 522 4000, netfang: [email protected].

Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans hf., netfang: [email protected].