Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Síminn Capital/Financing Update 2023

Jun 23, 2023

2203_rns_2023-06-23_4efece02-3d6e-498e-99ad-50d8da08bc41.html

Capital/Financing Update

Open in viewer

Opens in your device viewer

{# SEO P0-1: filing HTML is rendered server-side so Googlebot sees the full text without executing JS or following an iframe to a Disallow'd CDN path. The content has already been sanitized through filings.seo.sanitize_filing_html. #}

Leiðrétting: Síminn hf. - Útgáfa á nýjum skuldabréfaflokki og stækkun útgáfuramma

Leiðrétting: Síminn hf. - Útgáfa á nýjum skuldabréfaflokki og stækkun útgáfuramma

Í fréttatilkynningu sem birt var fyrr í dag var rangur útgáfudagur og gjalddagi áskrifta. Rétt dagsetning er 3. júlí 2023. Tilkynningin hefur verið uppfærð í samræmi við það.

Síminn hf. hefur lokið sölu á nýjum skuldabréfaflokki SIMINN 26 1.

SIMINN 26 1 er almennur skuldabréfaflokkur sem ber fljótandi vexti tengda eins mánaðar REIBOR vöxtum auk 1,3% vaxtaálags með lokagjalddaga þann 30. júní 2026. Seld voru skuldabréf að nafnverði 1.500 m.kr. á pari (genginu 100,0)

Ekki var um almennt útboð að ræða. Útboðið var undanþegið gerð lýsingar á grundvelli a, c og d-liðar, 4. mgr. 1. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/1129 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði og 1. mgr. 3. gr. laga nr. 14/2020 um sama efni.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á markaði Nasdaq Iceland. Útgáfudagur og gjalddagi áskrifta er 3. júlí 2023.

Stjórn Símans hefur samþykkt stækkun útgáfuramma félagsins úr 2.000 m.kr. í 6.000 m.kr. Unnið er að gerð nýrrar grunnlýsingar skuldabréfa og víxla til samræmis við útgáfurammann vegna töku skuldabréfanna til viðskipta í Kauphöll Nasdaq Iceland. Grunnlýsing, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu flokksins og töku skuldabréfanna til viðskipta í Kauphöll verða þá birt á vefsíðu félagsins: https://www.siminn.is/fjarfestar/fjarfestar

Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq Iceland.

Nánari upplýsingar veita:

Matei Manolescu, markaðsviðskipti, Fossar fjárfestingarbanki, sími: 522 4000, netfang: [email protected] 

Ásgrímur Gunnarsson, markaðsviðskipti, Fossar fjárfestingarbanki, sími: 522 4000, netfang: [email protected]

Óskar Hauksson, fjármálastjóri, [email protected]

Helgi Þorsteinsson, forstöðumaður fjárstýringar, [email protected]