Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Síminn Capital/Financing Update 2023

Nov 23, 2023

2203_rns_2023-11-23_a8d8f00a-efe3-49f0-9b8f-d4dff0711b44.html

Capital/Financing Update

Open in viewer

Opens in your device viewer

{# SEO P0-1: filing HTML is rendered server-side so Googlebot sees the full text without executing JS or following an iframe to a Disallow'd CDN path. The content has already been sanitized through filings.seo.sanitize_filing_html. #}

Síminn hf. - Útboð á víxlum 29. nóvember 2023

Síminn hf. - Útboð á víxlum 29. nóvember 2023

Síminn hf. efnir til útboðs á víxlum miðvikudaginn 29. nóvember 2023. Boðnir verða til sölu víxlar í nýjum 6 mánaða flokki SIMINN240605.

Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útboðinu og kynningu þess fyrir hugsanlegum fjárfestum. Útboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu flötu vöxtum sem tekið er. Víxlarnir eru gefnir út í 20 m.kr. nafnverðseiningum og sótt verður um skráningu þeirra í Kauphöll. Félagið áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. Niðurstöður útboðsins verða birtar opinberlega eigi síðar en næsta virka dag eftir útboð.

Ekki er um almennt útboð að ræða. Útboðið er undanþegið gerð lýsingar á grundvelli c og d-liðar, 4. mgr. 1. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/1129 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði. Grunnlýsing, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu framangreindan flokk skuldaskjals verða birt á vefsíðu félagsins: https://www.siminn.is/umsimann/fjarfestar-siminn.

Skila skal inn tilboðum á netfangið [email protected] fyrir klukkan 17:00 miðvikudaginn 29. nóvember 2023. Uppgjör viðskipta fer fram miðvikudaginn 6. desember 2023.

Nánari upplýsingar veita:

Ásgrímur Gunnarsson, markaðsviðskipti, Fossar fjárfestingarbanki, sími: 522 4000, netfang: [email protected].

Óskar Hauksson, fjármálastjóri, [email protected].