AI assistant
Síminn — Capital/Financing Update 2022
Oct 3, 2022
2203_rns_2022-10-03_4d586af5-71c6-4bf8-85c4-b6926daedf32.pdf
Capital/Financing Update
Open in viewerOpens in your device viewer
Síminn
Tillögur lagðar fyrir hluthafafund Símans hf.
- október 2022
1. Tillaga um lækkun á hlutafé með greiðslu til hluthafa og breytingu á samþykktum félagsins.
Stjórn Símans hf. leggur fram eftirfarandi tillögu til afgreiðslu um lækkun á hlutafé félagsins og greiðslu til hluthafa.
„Hluthafafundur Símans hf., haldinn 26. október 2022 samþykkir að lækka hlutafé félagsins úr kr. 7.300.000.000 í kr. 4.400.000.000, með greiðslu til hluthafa að fjárhæð kr. 31.500.000.000. Lækkun hlutafjár fer fram á grundvelli 2. tl. 2. mgr. 51. gr. laga nr. 2/1995, um hlutafélög. Nafnverð hlutafjár lækkar um kr. 2.900.000.000 en lækkunarfjárhæð sú sem umfram er verður færð til lækkunar af öðrum eiginfjárreikningum. Verði tillagan samþykkt mun kauphöll verða tilkynnt með sérstakri tilkynningu um framkvæmd lækkunar hlutafjár, þar með talið um viðmiðunardagsetningar varðandi réttindadag, réttindaleysisdag og áætaðan greiðsludag. Greiðsla verður innt af hendi eins fljótt og unnt er eftir að lögboðnum fyrirvörum hefur verið fullnægt.“
Hljóti tillagan samþykki hluthafafundar verður fjárhæð í samþykktum félagsins breytt til samræmis, þannig að grein 4.1 í samþykktum félagsins orðist eftirleiðis svo:
„Hlutafé félagsins er kr. 4.400.000.000, - fjórirmilljarðarogfjögurhundruð milljónir króna“
Greinargerð með tillögu 1 um lækkun hlutafjár með útgreiðslu til hluthafa:
Stjórn Símans hf. leggur til við hluthafafund að hlutafé félagsins verði fært niður um kr. 2.900.000.000 að nafnverði. Samkvæmt tillögunni er lagt til að greiða til hluthafa kr. 31.500.000.000. Þeirri fjárhæð sem er umfram lækkun nafnverðs verður ráðstafað af öðrum eiginfjárreikningum. Verði tillagan samþykkt lækkar nafnverð hlutafjár úr 7.300.000.000 í 4.400.000.000. Nafnverð hlutafjár samkvæmt grein 4.1 í samþykktum félagsins breytist í samræmi við framangreindar tillögur um niðurfærslu.
Síminn
Sölu Mílu lauk þann 30. september sl. þar sem Síminn fékk greitt í reiðufé 32,7 milljarða króna auk þess að kaupandi gaf út framseljanlegt skuldabréf að fjárhæð 17,5 milljarðar króna. Við þessa breytingu verður lausafjárstaða mjög rúm og eiginfjárhlutfall tæp 85%.
Það er mat stjórnar félagsins að slíkt eiginfjárhlutfall sé mjög hátt og því rétt að færa hlutaféð niður og ná þannig fram betri fjármagnsskipan. Eftir stendur Síminn í sambærilegri stöðu og hann gerði fyrir sölu Mílu. Staða Símans er þannig eftir sem áður sterk og eiginfjárhlutfall enn mjög hátt eða 73%. Skuldir eru lágar en komi til þess að félaginu vanti aukið fjármagn hefur félagið aðgang að allt að 7 milljörðum króna í formi langtímaláns, lánalínu og útgáfuramma vegna víxlaútgáfu. Í kjölfar útgreiðslu vegna lækkunar hlutafjár er það mat stjórnar að fjármagnsskipan sé hagfelldari fyrir hluthafa og betur í takti við markmið Símans um skuldsetningu.
Þar sem fyrirvari er gerður að fyrirtækjaskrá Skattsins veiti undanpágu frá innkollunarskyldu, felur tillagan ekki í sér ákveðinn greiðsludag en tillagan er skýr um að greiðsla skuli innt af hendi svo fljótt sem auðið er eftir að fyrirvörum er fullnægt. Þá kemur fram í tillögunni að þegar fyrirvörum hefur verið fullnægt skuli það tilkynnt til kauphallar og fyrirhugað er að í þeirri tilkynningu muni greiðsludagur, X-dagur og viðmiðunardagur verða tilgreindir, auk áréttingar um hver verði síðasti viðskiptadagur hlutabréfa með réttindum til útgreiðslu.
- Önnur mál