Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Síminn Capital/Financing Update 2021

Jun 18, 2021

2203_rns_2021-06-18_cfb3ddd3-d59b-45cc-b8e3-0ec8372c43e3.html

Capital/Financing Update

Open in viewer

Opens in your device viewer

Síminn hf. - Útboð á víxlum 22. júní 2021

Síminn hf. - Útboð á víxlum 22. júní 2021

Síminn hf. efnir til útboðs á víxlum þriðjudaginn 22. júní 2021. Boðnir verða til sölu víxlar í nýjum víxlaflokki, 6 mánaða flokki sem auðkenndur er með SIMINN220107.

Arion banki hf. hefur umsjón með útboðinu og kynningu þess fyrir hugsanlegum fjárfestum. Útboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu flötu vöxtum sem tekið er. Víxlarnir eru gefnir út í 20 m.kr. nafnverðseiningum og verða skráðir í Kauphöll. Félagið áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. Niðurstöður útboðsins verða birtar opinberlega eigi síðar en næsta virka dag eftir útboð.

Ekki er um almennt útboð að ræða, og er þátttaka í útboðinu aðeins heimil aðilum sem teljast hæfir fjárfestar og hafa verið flokkaðir sem fagfjárfestar skv. 9. tl. 2. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007 eða teljast viðurkenndir gagnaðilar. Útboðið er undanþegið gerð lýsingar á grundvelli. a, c og d-liðar, 4. mgr. 1. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/1129 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði. og 1. mgr. 3. gr. laga nr. 14/2020 um sama efni. Grunnlýsing, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu framangreindan flokk skuldaskjals eru birt á vefsíðu félagsins: https://www.siminn.is/umsimann/fjarfestar-siminn.

Skila skal inn tilboðum á netfangið [email protected] fyrir klukkan 16:00 þriðjudaginn 22. júní 2021. Uppgjör viðskipta fer fram þriðjudaginn 29. júní 2021.

Nánari upplýsingar veita:

Hrafn Steinarsson, Markaðsviðskiptum Arion banka hf., [email protected], s: 444 6910.

Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans, [email protected].

Helgi Þorsteinsson, forstöðumaður fjárstýringar Símans, [email protected].