Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Síminn Board/Management Information 2024

Jan 18, 2024

2203_rns_2024-01-18_48151873-45ee-4dc8-b980-7c7aa668cf74.html

Board/Management Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

{# SEO P0-1: filing HTML is rendered server-side so Googlebot sees the full text without executing JS or following an iframe to a Disallow'd CDN path. The content has already been sanitized through filings.seo.sanitize_filing_html. #}

Síminn hf. - Tilkynning frá tilnefningarnefnd

Síminn hf. - Tilkynning frá tilnefningarnefnd

Tilnefningarnefnd Símans gegnir ráðgefandi hlutverki þegar kemur að kjöri til stjórnar félagsins. Tilgangur nefndarinnar er að huga að hagsmunum allra hluthafa og tilnefna frambjóðendur í stjórn félagsins. Tilnefningarnefnd fer yfir þekkingu og reynslu stjórnar sem heild og í framhaldi metur frambjóðendur út frá þekkingu og reynslu og hvort þeir geti sinnt skyldum sínum samkvæmt samþykktum félagsins, lögum um hlutafélög nr. 2/1995, auk annarra laga og reglugerða sem gilda um félagið. Á grundvelli niðurstaðna mun nefndin leggja fram tillögur sínar um framboð til stjórnar fyrir hvern aðalfund.

Tilnefningarnefnd Símans auglýsir hér með eftir tilnefningum eða framboðum til stjórnar Símans vegna aðalfundar félagsins sem haldinn verður 14. mars næstkomandi.

Ekki er sjálfgefið að breyta þurfi samsetningu stjórnar á hverjum tíma en slíkt er háð aðstæðum hverju sinni, virkni núverandi stjórnar og vilja núverandi stjórnarmanna til áframhaldandi stjórnarsetu.

Óskað er eftir að tilnefningar eða framboð séu send á netfang nefndarinnar, [email protected] ásamt framboðseyðublaði, stuttu kynningarbréfi og ferilskrá fyrir 1. febrúar 2024. Starfsemi tilnefningarnefndar takmarkar ekki heimild frambjóðanda til þess að skila inn framboðum til stjórnar allt fram að fimm dögum fyrir aðalfund.

Nánari upplýsingar um tilnefningarnefnd er að finna á vef félagsins: https://www.siminn.is/fjarfestar/stjorn-og-stjornarhaettir.