Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Síminn Board/Management Information 2022

May 20, 2022

2203_rns_2022-05-20_e4ffd1da-adae-46f8-aaa3-d6ec2249a0bb.html

Board/Management Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

{# SEO P0-1: filing HTML is rendered server-side so Googlebot sees the full text without executing JS or following an iframe to a Disallow'd CDN path. The content has already been sanitized through filings.seo.sanitize_filing_html. #}

Tveir nýir framkvæmdastjórar ráðnir til Símans

Tveir nýir framkvæmdastjórar ráðnir til Símans

Síminn hefur ráðið í tvær nýjar framkvæmdastjórastöður hjá félaginu í kjölfar breytingar á skipuriti félagsins sem tilkynnt var um 7. apríl sl.

Berglind Björg Harðardóttir hefur verið ráðin í starf framkvæmdastjóra Sölu og þjónustu frá og með 1. júní nk. Berglind er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Viðskiptaháskólanum á Bifröst og hefur lokið PMD stjórnendanámi frá Háskólanum í Reykjavík. Hún hefur starfað hjá Símanum frá árinu 2011 og gegnt starfi forstöðumanns Sölu og þjónustu frá árinu 2018. Áður starfaði Berglind hjá Verði, Sjóvá og Sameinaða líftryggingafélaginu.

Erla Ósk Ásgeirsdóttir hefur verið ráðin í starf framkvæmdastjóra Sjálfbærni og menningar frá og með 1. júlí nk. Erla er með meistaragráðu í opinberri stjórnsýslu og BA gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands. Erla var framkvæmdastjóri upplifunar starfsmanna hjá The Reykjavik EDITION frá árinu 2021 til dagsins í dag. Áður starfaði hún sem forstöðumaður Mannauðs- og menningar hjá Icelandair Hotels frá árinu 2014 til 2021 og markaðsstjóri Handpoint frá árinu 2011 til 2014.

Orri Hauksson, forstjóri Símans: „Við bjóðum nýja framkvæmdastjóra hjartanlega velkomna til starfa. Nýju fólki fylgir ný hugsun auk þess sem að þessar ráðningar auka verulega á fjölbreytni innan framkvæmdastjórnar. Síminn stendur á tímamótum nú í kjölfar sölu Mílu og það eru ótal spennandi verkefni framundan við að breyta félaginu til framtíðar.“

Nánari upplýsingar veitir Orri Hauksson forstjóri Símans, [email protected].