Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Síminn Board/Management Information 2022

Dec 16, 2022

2203_rns_2022-12-16_35a4ace6-b530-4b2a-a51e-5ae5e4918e63.html

Board/Management Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

{# SEO P0-1: filing HTML is rendered server-side so Googlebot sees the full text without executing JS or following an iframe to a Disallow'd CDN path. The content has already been sanitized through filings.seo.sanitize_filing_html. #}

Síminn hf. - Logi Karlsson nýr framkvæmdastjóri Tækniþróunarsviðs

Síminn hf. - Logi Karlsson nýr framkvæmdastjóri Tækniþróunarsviðs

Logi Karlsson hefur verið ráðinn til Símans sem framkvæmdastjóri Tækniþróunarsviðs og kemur Logi til starfa fljótlega á nýju ári. Logi kemur til Símans frá Íslandsbanka þar sem hann hefur sinnt starfi forstöðumanns Nýsköpunar og stafrænnar þróunar. Frá 2016 hefur Logi starfað við ýmsa umbreytingu, tækniþróun og stjórnun hjá Íslandsbanka en hefur áður sinnt rannsóknum og viðskiptaráðgjöf í Ástralíu, auk kennslu við MBA nám Háskóla Íslands. Logi er með Ph.D. gráðu í markaðsfræðum og MBA gráðu, hvort tveggja frá Sydney Business School, og BA gráðu í sálfræði frá Háskóla Íslands.

Orri Hauksson, forstjóri Símans: „Við hlökkum til að fá Loga til starfa. Síminn er í hröðu umbreytingaferli þessi misserin og reynsla Loga mun nýtast vel við þróun Símans í átt að sífellt sveigjanlegra þjónustufyrirtæki. Innan Símans starfar öflugt tæknifólk og sú viðbót sem felst í Loga og bakgrunni hans á sviði nýsköpunar og stafrænnar tækni styrkir teymi okkar umtalsvert.“

Nánari upplýsingar veitir Orri Hauksson forstjóri Símans, [email protected].