AI assistant
Síminn — Annual Report 2023
Feb 20, 2024
Preview isn't available for this file type.
Download source fileSÍMINN HF. - ÁRSREIKNINGUR SAMSTÆÐU 2023
Ármúla 25 - 108 Reykjavík - Kt. 460207-0880
Efnisyfirlit
| Bls. | |
|---|---|
| 2-5 | Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra |
| 6-9 | Áritun óháðs endurskoðanda |
| 10 | Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu |
| 11 | Efnahagsreikningur |
| 12 | Eiginfjáryfirlit |
| 13 | Sjóðstreymisyfirlit |
| 14-38 | Skýringar |
| 39-41 | Óendurskoðuð fylgiskjöl: Stjórnarháttayfirlýsing |
| 42-48 | Ófjárhagslegar upplýsingar |
| 49 | Ársfjórðungsyfirlit |
Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra
Sögu Símans hf. má rekja til ársins 1906 og hefur félagið síðan þá verið grunnstoð í fjarskiptaþjónustu á Íslandi. Hvort sem viðskiptavinurinn er fyrirtæki, einstaklingur eða opinber aðili þá býður Síminn upp á heildstætt vöruframboð sem uppfyllir allar fjarskiptaþarfir. Afþreying er vaxandi þáttur í starfsemi Símans og er félagið sá aðili hér á landi sem býður viðskiptavinum sínum upp á eitt mesta úrval af hágæðaefni í sjónvarpi. Dótturfélagið Síminn Pay ehf. er sífellt að bjóða upp á nýjungar á sviði fjártækni og hefur náðst mikill árangur á stuttum tíma á þessum nýja og spennandi markaði. Annað dótturfélag Símans er Radíómiðun ehf. sem skipar traustan sess í þjónustu við sjávarútveginn á Íslandi. Síminn er fyrsta flokks þjónustufyrirtæki og eru gildi Símans framsækni og einfaldleiki sem félagið hefur að leiðarljósi í starfsemi sinni. Sjálfbærni og góðir stjórnarhættir eru kjarninn í öllum viðskiptaákvörðunum félagsins sem endurspeglast í ánægðum viðskiptavinum, starfsánægju, stolti og góðri fyrirtækjamenningu. Ársreikningurinn hefur að geyma samstæðureikning Símans hf. og dótturfélaga hans, samanber skýringu 16, fyrir árið 2023. Megin starfssvæði félagsins er á Íslandi.
Rekstur ársins 2023
Heildartekjur félagsins árið 2023 námu 25.741 m.kr. samanborið við 24.572 m.kr. árið 2022. Líkt og undanfarin ár er góður vöxtur í farsíma- og sjónvarpsþjónustu og einnig er hóflegur vöxtur í gagnaflutningi. Tekjur af talsímaþjónustu dragast verulega saman enda hluti þeirra þjónustu í útfösun. Vörusala dregst lítillega saman á milli ára. Viðskiptavinum fjölgaði á árinu. Verðbólga er mikil sem hefur talsverð áhrif á kostnað. Launakostnaður hækkar auk þess sem kostnaðarauki frá lykilinnviðabirgjum hefur talsverð áhrif á kostnaðarverð seldrar þjónustu. Afskriftir hækka vegna fjárfestinga í sýningarréttum m.a. í endurnýjun á sýningarrétti á ensku úrvalsdeildinni og nýjum samningi við HBO. Skrifstofu- og stjórnunarkostnaður breytist talsvert á milli ára sem skýrist mikið til af 200 m.kr. endurgreiðslu stjórnvaldssektar árið 2022. Aðrir kostnaðarliðir breytast óverulega á milli ára. Rekstarhagnaður var 2.079 m.kr. árið 2023 samanborið við 2.945 m.kr. árið 2022. Hrein fjármagnsgjöld voru 392 m.kr. samanborið við 546 m.kr. árið 2022. Vaxtatekjur eru sambærilegar á milli ára. Vaxtatekjur af lánastarfsemi eru ríkari þáttur í fjármagnstekjum ársins 2023 en árið áður. Árið 2022 voru talsverðar tekjur af ávöxtun fjármuna vegna sölu Mílu. Vaxtagjöld hækka talsvert á milli ára. Allar skuldir Símans eru á fjótandi vöxtum og því hafa hækkandi stýrivextir Seðlabanka Íslands áhrif á vaxtagjöld. Skuldsetning hefur einnig aukist lítillega frá árinu 2022. Hagnaður af reglulegri starfsemi nam 1.346 m.kr. samanborið við 2.062 m.kr. árið 2022. Árið 2022 var hagnaður af aflagðri starfsemi upp á 36.205 m.kr. sem að mestu kom til vegna söluhagnaðar Mílu sem var 37.788 m.kr. Hagnaður ársins nam 1.346 m.kr. samanborið við 38.267 m.kr. árið 2022. EBITDA ársins af áframhaldandi starfsemi nam 6.150 m.kr. samanborið við 6.149 m.kr. árið 2022.
Efnahagsreikningur
Rekstrarfjármunir voru 2.552 m.kr. og hækka óverulega á milli ára (2022: 2.466 m.kr.). Óefnislegar eignir lækka á milli ára sem skýrist aðallega af lækkun sýningarrétta en minna var fjárfest í sýningarréttum árið 2023 en árið 2022. Útlán aukast vegna aukinna umsvifa Símans Pay ehf. sem hóf m.a. útgáfu kreditkorta á árinu og hafa hlotið góðar viðtökur. Síminn seldi á árinu skuldabréf að fjárhæð 15,7 ma.kr. Skuldabréfið var hluti af greiðslu fyrir Mílu ehf. árið 2022. Handbært fé nam 1.810 m.kr. (2022: 3.721 m.kr.). Eignir námu samtals 33.786 m.kr. samanborið við 51.181 m.kr. árið 2022 en lækkunina má að mestu rekja til ofangreindrar sölu á skuldabréfi í kjölfar sölu á Mílu ehf. Hlutafé var 2.517 m.kr. í árslok (2022: 4.242 m.kr.) og lækkar um 1.725 m.kr. Aðalfundur ársins 2023 samþykkti að lækka hlutafé um 185 m.kr. vegna eigin hluta og jafnframt var samþykkt að lækka hlutafé um 1.440 m.kr. með greiðslu til hluthafa sem nam 15.7 ma.kr. og félagið greiddi þann 31. mars 2023. Samtals lækkaði hlutafé því úr 4.400 m.kr. í 2.775 m.kr. Jafnframt var samþykkt á aðalfundi tillaga um heimild til kaupa á eigin bréfum að hámarki 277,5 m.kr. að nafnvirði. Á árinu voru keypt eigin bréf að nafnvirði 296 m.kr. fyrir alls 2.976 m.kr. (2022: 260 m.kr. og 3.043 m.kr.). Eigið fé nam 17.600 m.kr. samanborið við 35.261 m.kr. í árslok 2022. Langtímaskuldir námu 8.205 m.kr. samanborið við 7.415 m.kr. í árslok 2022. Síminn gaf út skuldabréfaflokk til 3ja ára að fjárhæð 1.500 m.kr. um mitt ár. Skammtímalán námu 2.281 m.kr. (2022: 1.929 m.kr.). Skuldir námu samtals 16.189 m.kr. samanborið við 15.920 m.kr. í árslok 2022.
Sjóðstreymi
Breyting á rekstrartengdum eignum og skuldum var neikvæð um 568 m.kr. samanborið við jákvæða breytingu sem nam 2.042 m.kr. árið 2022. Árið 2022 litaðist af því að umtalsverður fyrirframgreiddur kostnaður féll til vegna sölu Mílu árin 2021 og 2022 sem var gjaldfærður síðla árs 2022. Innborgaðar vaxtatekjur námu 758 m.kr. (2022: 625 m.kr.). Vaxtagjöld námu 947 m.kr. (2022: 637 m.kr.). Lækkun er í fjárfestingum á milli ára, mest vegna lækkunar á sýningarréttum. Arðgreiðslur og endurkaup eru sambærileg á milli ára. Útgreitt hlutafé árið 2023 tengist sölu á skuldabréfi sem Síminn fékk sem hluta af söluandvirði Mílu.
Fréttir úr starfseminni
Í lok janúar 2023 var skuldabréf selt til félags á vegum Ardian, söluverðið nam um 15,7 ma.kr. Stjórn samþykkti á aðalfundi ársins 2023 að lækka hlutaféð með 15,7 ma.kr. greiðslu til hluthafa sem var framkvæmd á 1. ársfjórðungi ársins 2023. Fengu hluthafar, sem að meirihluta eru lífeyrissjóðir, alls greidda 47,2 ma.kr. sem tengja má við söluna á Mílu ehf. Þar með lauk söluferli Mílu sem hófst í október 2021 þegar Síminn hf. og Ardian France SA undirrituðu skuldbindandi samning um sölu Símans hf. á dótturfélaginu Mílu ehf. til Ardian France SA. Uppgjör viðskiptanna átti sér stað í lok september 2022 og var kaupverðið að fullu greitt með handbæru fé að fjárhæð 32,7 ma.kr. og skuldabréfi að fjárhæð 17,5 ma.kr. Virði viðskiptanna (e. Enterprise value) var 69,5 ma.kr. að meðtöldum fjárhagslegum skuldbindingum Mílu ehf. sem kaupandinn yfirtók. Á hluthafafundi í nóvember 2022 var samþykkt tillaga að lækka hlutafé um 31,5 ma.kr. með greiðslu til hluthafa. Þann 18. janúar sl. var tilkynnt um kaup Símans á öllu hlutafé í félögunum BBI ehf., Dengsa ehf., og Billboard ehf. Fyrirtækin starfa öll á auglýsingamarkaði og munu því styrkja enn frekar þjónustuframboð Símans á því sviði. Heildarvirði (e. enterprise value) fyrirtækjanna þriggja samkvæmt kaupsamningi nemur 5.150 m.kr. en mun verða leiðrétt með hliðsjón af stöðu nettó vaxtaberandi skulda og veltufjármuna á viðmiðunardegi uppgjörs. Kaupin verða fjármögnuð með hlutafé í Símanum að andvirði 1.000 m.kr. á genginu 9,886, sem er tíu daga meðalgengi hlutabréfa Símans fyrir undirritun kaupsamningsins. Kaupin eru að öðru leyti fjármögnuð með handbæru fé. Verði af viðskiptunum og miðað við að forsendur Símans um samlegð gangi eftir er áætlað að ársvelta Símans (e. pro-forma) aukist um 1.450 m.kr. og EBITDA um 800 m.kr. á ársgrundvelli. Eru þær áætlanir byggðar sameiginlegum áætluðum rekstri fyrirtækjanna á árinu 2023. Ekki hefur verið tekið tillit til áhrifa alþjóðlegra reikningsskilastaðla í framangreindum tölum. Kaupin eru háð hefðbundnum fyrirvörum, m.a. samþykki Samkeppniseftirlitsins. 5G uppbygging heldur áfram af krafti í þéttu samstarfi við Mílu ehf. Í árslok var alls búið að setja upp 135 5G senda og á árinu var bætt við 5G á 53 sendastöðum. Viðskiptavinum með ljósleiðara fjölgar stöðugt og á árinu fjölgaði viðskiptavinum með ljós um það bil 5.500. Viðskiptavinir Sjónvarps Símans hafa aldrei verið fleiri og er Sjónvarp Símans Premium stærsta efnisveita landsins.# Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2023
Aukning í áhorfi var 15% á milli ára. Uppbygging fjártækni undir merkjum dótturfélags Símans hf., Síminn Pay ehf. hélt áfram á árinu. Skráðir notendur appsins eru nú um 83 þúsund og nýta það til fjölbreyttra athafna hvort sem það er að leggja bílnum, versla í mathöllum eða njóta góðra tilboða. Aðalstarfsemin eru þó útlán og námu þau um 3 ma.kr. í árslok. Útgáfa kreditkorta gekk vel á árinu og voru alls 6 þúsund kort gefin út á síðasta ári. Samhliða áframhaldandi þróun á Léttkortinu var byrjað að vinna í útgáfu á fyrirtækjakreditkorti sem kemur út á fyrri hluta árs 2024. Áfram verður unnið að vöruþróun og sókn Símans Pay ehf.
Síminn hf. horfir áfram til markaðsfjármögnunar í fjármögnun félagsins. Félagið gaf fjórum sinnum út víxla árið 2023 og voru viðtökur fjárfesta góðar. Síðasta útboðinu lauk þann 29. nóvember sl. þar sem álag á 6 mánaða REIBOR var 31 punktar sem verður að teljast afar hagfelld niðurstaða. Um mitt ár gaf Síminn út 3ja ára skuldabréf að fjárhæð 1.500 m.kr. með fjótandi vöxtum sem taka mið af 1M REIBOR að viðbættu 1,3% álagi. Vísað til skýringar 29 um helstu áhættu- og óvissuþætti.
Hlutafé og samþykktir
Hlutafé í árslok 2023 skiptist á 1.027 hluthafa en þeir voru 1.027 í ársbyrjun. Í árslok 2023 átti einn hluthafi yfir 10% af hlutafé félagsins en tíu stærstu hluthafar félagsins eru:
| Nafnverð hlutafjár í m.kr. | Eignarhlutur í % |
|---|---|
| Stoðir hf. | 461 |
| Lífeyrissj.starfsm.rík. A-deild | 254 |
| Brú Lífeyrissjóður starfs sveit | 248 |
| Lífeyrissjóður verzlunarmanna | 215 |
| Gildi - lífeyrissjóður | 149 |
| Birta lífeyrissjóður | 106 |
| Stapi lífeyrissjóður | 103 |
| Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda | 92 |
| Stefnir - Innlend hlutabréf hs. | 83 |
| Lífeyrissj.starfsm.rík. B-deild | 71 |
| 10 stærstu hluthafar samtals | 1.782 |
Á aðalfundi félagsins sem haldinn var þann 9. mars 2023 var samþykkt að heimila stjórn félagsins að kaupa fyrir hönd félagsins allt að 277 m.kr. að nafnverði hlutafjár félagsins, sbr. VIII. kafla laga nr. 2/1995 um hlutafélög. Gildistími heimildarinnar er allt að átján mánuðir. Með samþykkt tillögu þessarar féll úr gildi sams konar heimild sem samþykkt var á aðalfundi félagsins þann 10. mars 2022.
Stjórn félagsins leggur til að greiddur verði arður að fjárhæð 500 m.kr. á árinu 2024. Óskað verður eftir áframhaldandi heimild til endurkaupa eigin bréfa allt að 10% af hlutafé. Skráð hlutafé félagsins nam 2.775 m.kr í árslok 2023, en félagið átti eigin hluti í árslok að nafnverði 258 m.kr. Hlutaféð er í einum flokki sem skráður er í Kauphöll Íslands. Allir hlutir njóta sömu réttinda.
Á stjórnarfundi þann 16. maí var ákveðið að veita starfsmönnum kauprétti fyrir allt að 168 milljónir hluti. Skilmálar kaupréttarsamninganna eru í samræmi við kaupréttaráætlun sem samþykkt var á aðalfundi félagsins þann 9. mars 2023. Sjá nánar í skýringu 12.
Stjórn og stjórnarhættir
Stjórn Símans hf. leggur áherslu á að viðhalda góðum stjórnarháttum og að fylgja „Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja“ sem Viðskiptaráð Íslands, Nasdaq OMX Iceland hf. og Samtök atvinnulífsins hafa gefið út. Stjórnin hefur sett sér ítarlegar starfsreglur þar sem valdsvið hennar er skilgreint sem og verksvið gagnvart forstjóra. Félagið er með skráð verðbréf í Kauphöll Íslands hf. og ber því að fylgja leiðbeiningum um stjórnarhætti samkvæmt reglum Kauphallarinnar sem hægt er að nálgast á vef hennar.
Í stjórn félagsins eru þrír karlar og tvær konur og uppfyllir félagið ákvæði laga um kynjahlutföll stjórnar félagsins. Í framkvæmdastjórn félagsins sitja fjórir karlar og tvær konur. Frekari upplýsingar um stjórn og stjórnarhætti er að finna í kaflanum stjórnarháttaryfirlýsing sem er viðauki með ársreikningnum.
Ófjárhagsleg upplýsingagjöf
Ófjárhagslegar upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að leggja mat á þróun, umfang, stöðu og áhrif félagsins í tengslum við umhverfis-, félags- og starfsmannamál, sem og stefnu félagsins í mannréttindamálum, mútu- og spillingarmálum, eru birtar sem viðauki með ársreikningnum.
Yfirlýsing stjórnar og forstjóra
Samkvæmt bestu vitneskju stjórnar og forstjóra er ársreikningur samstæðunnar í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu. Er það álit stjórnar og forstjóra að samstæðuársreikningurinn gefi glögga mynd af rekstrarafkomu samstæðunnar á árinu 2023, eignum, skuldum og fjárhagsstöðu hennar 31. desember 2023 og breytingu á handbæru fé á árinu 2023. Jafnframt er það álit stjórnar og forstjóra að samstæðuársreikningurinn og skýrsla stjórnar gefi glöggt yfirlit um þróun og árangur í rekstri samstæðunnar og stöðu hennar og lýsi helstu áhættuþáttum og óvissu sem samstæðan býr við.
Stjórn og forstjóri Símans hf. hafa í dag fjallað um samstæðuársreikning félagsins fyrir árið 2023 og staðfesta hann með undirritun sinni.
Reykjavík, 20. febrúar 2024.
Stjórn
Jón Sigurðsson, formaður
Sigrún Ragna Ólafsdóttir, varaformaður
Arnar Þór Másson
Bjarni Þorvarðarson
Björk Viðarsdóttir
Forstjóri
Orri Hauksson
Áritun óháðs endurskoðanda
Til stjórnar og hluthafa Símans hf.
Áritun um endurskoðun samstæðuársreiknings
Álit
Við höfum endurskoðað samstæðuársreikning Símans hf. („samstæðan“) fyrir árið 2023. Samstæðuársreikningurinn hefur að geyma rekstrarreikning og yfirlit um heildarafkomu, efnahagsreikning, eiginfjáryfirlit, sjóðstreymisyfirlit, upplýsingar um mikilvægar reikningsskilaaðferðir og aðrar skýringar. Það er álit okkar að samstæðuársreikningurinn gefi glögga mynd af fjárhagsstöðu samstæðunnar 31. desember 2023 og afkomu hennar og breytingu á handbæru fé á árinu 2023, í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu og viðbótarkröfur sem koma fram í íslenskum lögum og reglum um ársreikninga skráðra félaga. Álitið er í samræmi við skýrslu okkar til endurskoðunarnefndar og stjórnar.
Grundvöllur álits
Við endurskoðuðum í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Ábyrgð okkar samkvæmt stöðlunum er lýst frekar í kaflanum Ábyrgð endurskoðanda á endurskoðun samstæðuársreikningsins í árituninni. Við erum óháð samstæðunni í samræmi við gildandi siðareglur fyrir endurskoðendur. Við teljum að við höfum aflað nægilegra og viðeigandi endurskoðunargagna til að byggja álit okkar á.
Samkvæmt bestu vitund okkar og skilningi lýsum við yfir að við höfum ekki veitt neina óheimila þjónustu samkvæmt 1. mgr. 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 537/2014 og við erum óháð samstæðunni við endurskoðunina. Við vorum fyrst kjörin endurskoðendur á aðalfundi félagsins þann 16. apríl 2015 og höfum verið endurskoðendur félagsins samfellt síðan þá.
Lykilþættir endurskoðunar
Kilykilþættir endurskoðunar eru þeir þættir, sem samkvæmt faglegu mati okkar, höfðu mest vægi við endurskoðun samstæðuársreikningsins. Við gefum ekki sérstakt álit á einstökum lykilþáttum en tókum á þeim við endurskoðun á samstæðuársreikningnum í heild og við ákvörðun um álit okkar á honum.
Mat viðskiptavildar
Bókfært verð viðskiptavildar í árslok 2023 nam 14,9 ma. kr. og er hún stærsta einstaka eign samstæðunnar. Viðskiptavild hefur verið deilt út á þær sjóðskapandi einingar innan samstæðunnar sem hún tilheyrir. Árlega ber að framkvæma virðisrýrnunarpróf á viðskiptavild og öðrum eignum sem ekki rýrna við notkun og hafa óskilgreindan líftíma. Mat á verðmæti viðskiptavildar er einn af lykilþáttum í endurskoðun á ársreikningi samstæðunnar vegna þess hversu hátt hlutfall viðskiptavild er af heildareignum hennar og um er að ræða eign sem háð er mati stjórnenda. Mat á verðmæti viðskiptavildar byggir á væntingum stjórnenda um núvirt framtíðarsjóðstreymi sjóðskapandi eininga.
Í skýringu 15 er fjallað um virðisrýrnunarpróf sem framkvæmt var á viðskiptavild samstæðunnar í árslok og í skýringu 35.3 er fjallað um reikningsskilaaðferðir. Við ásamt verðmatssérfræðingum okkar lögðum mat á forsendur sem stjórnendur nota við útreikning á núvirtu framtíðarsjóðstreymi fyrir hverja fjárskapandi einingu. Í þeirri vinnu fólst m.a.:
- Forsendur rekstrar- og sjóðstreymisáætlana til næstu fimm ára voru yfirfarnar. Við yfirferðina var lagt mat á forsendur um tekjur, rekstrarkostnað, framlegð og fjárfestingar fyrir spátímabilið.
- Við yfirferð á rekstrar- og sjóðstreymisáætlunum er meðal annars horft til frávika frá áætlunum fyrri ára.
- Lagt var mat á forsendur fyrir áætluðum framtíðarvexti að loknu spátímabilinu.
- Reiknilíkan félagsins var yfirfarið og lagt mat á virkni þess.
- Farið var yfir ávöxtunarkröfu (WACC) sem notuð er við núvirðingu sjóðstreymis.# Áritun óháðs endurskoðanda, frh: 7
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2023
Tekjuskráning
Tekjuskráningarkerfi samstæðunnar skrá mikinn fjölda færslna í ýmsum kerfum. Tekjur samstæðunnar skiptast niður á símaþjónustu, gagnaflutninga, sjónvarpsþjónustu og vörusölu. Gerð er grein fyrir tekjuskráningu samstæðunnar í skýringu 35.4.
Skráning tekna er einn af lykilþáttum í endurskoðun á ársreikningi samstæðunnar vegna mikils fjölda af færslum í tekjuskráningarkerfum samstæðunnar. Endurskoðunaraðgerðir okkar miðuðu að því að leggja mat á hönnun, innleiðingu og virkni á sjálfvirkum eftirlitsþáttum með tekjuskráningu auk viðeigandi gagnaendurskoðunaraðgerða með það að markmiði að sannreyna heild og nákvæmni í tekjuskráningu og að tekjur séu skráðar á viðeigandi tímabil.
Í þeirri vinnu fólst m.a.:
- Lagt var mat á þau fjárhags- og upplýsingakerfi sem notuð eru við tekjuskráningu og flæði á milli tekjukerfa og fjárhagskerfis. Einnig voru framkvæmdar prófanir á völdum sjálfvirkum eftirlitsþáttum sem eru til staðar í ferlinu.
- Skoðun á aðgangsheimildum starfsmanna í fjárhags- og upplýsingakerfum samstæðunnar.
- Skoðun á eftirlitsþáttum við reikningagerð sem eru hannaðir til að tryggja réttmæti og nákvæmni útsendra reikninga.
- Greiningaraðgerðum var beitt á væntar tekjur.
- Greiningartæki var notað við skoðun á tekjufærslum í þeim tilgangi að greina óvenjulegar færslur til frekari skoðunar.
Aðrar upplýsingar í ársskýrslu
Stjórn og forstjóri bera ábyrgð á öðrum upplýsingum. Aðrar upplýsingar eru ársskýrsla að undanskildum samstæðuársreikningi og áritun okkar á hann. Álit okkar á samstæðuársreikningnum nær ekki til annarra upplýsinga og við staðfestum þær ekki á neinn hátt. Í tengslum við endurskoðun okkar á samstæðuársreikningnum ber okkur að lesa aðrar upplýsingar í ársskýrslu þegar þær liggja fyrir og meta hvort þær séu í verulegu ósamræmi við samstæðuársreikninginn eða aðra þekkingu sem við höfum aflað okkur við endurskoðunina eða virðast verulega rangar. Ef við, á grundvelli vinnu okkar, ályktum að verulegar rangfærslur séu í öðrum upplýsingum ber okkur að skýra frá því. Ársskýrslan liggur ekki fyrir við áritun okkar á samstæðuársreikninginn en við munum fá hana afhenta til yfirferðar áður en hún verður gefin út.
Ábyrgð stjórnar og forstjóra á samstæðuársreikningnum
Stjórn og forstjóri eru ábyrg fyrir gerð og glöggri framsetningu samstæðuársreikningsins í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu og viðbótarkröfur sem koma fram í íslenskum lögum og reglum um ársreikninga skráðra félaga og fyrir því innra eftirliti sem þau telja nauðsynlegt til að gera þeim kleift að setja fram samstæðuársreikning sem er án verulegra annmarka, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka.
Við gerð samstæðuársreikningsins ber stjórn og forstjóri að leggja mat á rekstarhæfi félagsins og upplýsa, eftir því sem við á, um þætti er varða rekstrarhæfi og miða grundvöll reikningsskilanna við áframhaldandi rekstrarhæfi, nema þau ætli annað hvort að leysa samstæðuna upp eða hætta starfsemi hennar, eða hafa engan annan raunhæfan kost en að gera það. Stjórn og forstjóri skulu hafa eftirlit með gerð og framsetningu samstæðuársreikningsins.
Lykilþáttur
Viðbrögð í endurskoðuninni
Áritun óháðs endurskoðanda, frh: 8
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2023
Ábyrgð endurskoðanda á endurskoðun samstæðuársreikningsins
Markmið okkar eru að öðlast hæfilega vissu um hvort samstæðuársreikningurinn í heild sé án verulegra annmarka, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka, og að gefa út áritun endurskoðanda sem inniheldur álit okkar. Í hæfilegri vissu felst áreiðanleiki en ekki trygging fyrir því að endurskoðun í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla muni alltaf leiða í ljós verulega annmarka ef þeir eru fyrir hendi. Annmarkar geta komið fram vegna sviksemi eða mistaka og eru taldir verulegir ef þeir einir og sér eða samanlagt gætu haft áhrif á efnahagslegar ákvarðanir sem notendur samstæðuársreikningsins taka á grundvelli hans.
Við endurskoðun í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla beitum við ávallt faglegri dómgreind og viðhöfum faglega gagnrýni. Að auki:
- Greinum við og metum hættu á verulegri skekkju í samstæðuársreikningnum, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka, skipuleggjum og framkvæmum endurskoðunaraðgerðir til að bregðast við þeirri hættu og öflum endurskoðunargagna sem eru nægjanleg og viðeigandi til að byggja álit okkar á. Hættan á að uppgötva ekki verulega skekkju vegna sviksemi er meiri en að uppgötva ekki skekkju vegna mistaka, þar sem sviksemi getur falið í sér samsæri, fölsun, að einhverju sé viljandi sleppt, villandi framsetningu eða að farið sé framhjá innra eftirliti.
- Öflum við skilnings á innra eftirliti, sem varðar endurskoðunina, til að skipuleggja viðeigandi endurskoðunaraðgerðir, en ekki til að veita álit á virkni innra eftirlits samstæðunnar.
- Metum við hvort reikningsskilaaðferðir og reikningshaldslegt mat stjórnenda og tengdar skýringar séu viðeigandi.
- Ályktum við um hvort notkun stjórnar og forstjóra á forsendu reikningsskilanna um rekstrarhæfi sé viðeigandi og metum, á grundvelli endurskoðunarinnar, hvort aðstæður séu til staðar sem valdið gætu verulegum vafa um rekstrarhæfi samstæðunnar. Ef við teljum að verulegur vafi leiki á rekstrarhæfi ber okkur, í áritun okkar, að vekja sérstaka athygli á viðeigandi skýringum samstæðuársreikningsins eða, ef slíkar skýringar eru ófullnægjandi, að víkja frá fyrirvaralausri áritun. Niðurstaða okkar byggir á endurskoðunargögnum sem aflað er fram að dagsetningu áritunar okkar. Samt sem áður geta atburðir eða aðstæður í framtíðinni gert samstæðuna órekstrarhæfa.
- Metum við framsetningu, uppbyggingu og innihald samstæðuársreikningsins í heild, að meðtöldum skýringum, og hvort samstæðuársreikningurinn gefi glögga mynd af undirliggjandi viðskiptum og atburðum.
- Öflum nægilegra og viðeigandi endurskoðunargagna varðandi fjárhagslegar upplýsingar eininga innan samstæðunnar til að geta gefið álit á samstæðuársreikningnum.
Við erum ábyrg fyrir skipulagi, eftirliti og framkvæmd endurskoðunar samstæðunnar og berum óskipta ábyrgð á áritun okkar. Við upplýsum stjórn og endurskoðunarnefnd meðal annars um áætlað umfang og tímasetningar endurskoðunarinnar og veruleg atriði sem upp kunna að koma í endurskoðun okkar, þar með talið verulega annmarka á innra eftirliti. Við lýsum því einnig yfir við stjórn og endurskoðunarnefnd að við höfum uppfyllt skyldur siðareglna um óhæði og upplýsum um tengsl eða önnur atriði sem gætu mögulega talist hafa áhrif á óhæði okkar og þegar við á, til hvaða aðgerða við höfum gripið til að eyða áhættu eða varúðarráðstafanir til að bregðast við henni. Af þeim atriðum sem við höfum upplýst stjórn og endurskoðunarnefnd um, leggjum við mat á hvaða þættir höfðu mesta þýðingu við endurskoðun samstæðuársreikningsins og eru því lykilþættir endurskoðunarinnar. Við lýrum þessum þáttum í áritun okkar nema lög og reglur útiloki að upplýst sé um þá eða, við einstakar mjög sjaldgæfar kringumstæður, þegar við metum að ekki skuli upplýsa um lykilþátt þar sem neikvæðar afleiðingar þess eru taldar vega þyngra en almennir hagsmunir af birtingu slíkra upplýsinga.
Áritun óháðs endurskoðanda, frh: 9
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2023
Staðfesting vegna annarra ákvæða laga
Áritun vegna sameiginlegs rafræns skýrslusniðs (ESEF reglur)
Í tengslum við endurskoðun okkar á samstæðuársreikningi Símans hf. framkvæmdum við aðgerðir til að geta gefið álit á því hvort samstæðuársreikningur Símans hf. fyrir árið 2023 með skráarheitið 254900X9GQZN6UGXYF10-2023-12-31-is hafi í öllum meginatriðum verið gerður í samræmi við lög um upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa og flöggunarskyldu nr. 20/2021 um sameiginleg rafræn skýrslusnið í samræmi við reglur ESB 2019/815 sem innihalda skilyrði sem tengjast gerð samstæðuársreikningsins á XHTML formi og iXBRL merkingum.
Stjórn og forstjóri eru ábyrg fyrir gerð samstæðuársreikningsins í samræmi við lög um upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa og flöggunarskyldu nr. 20/2021. Í því felst meðal annars að útbúa samstæðuársreikninginn á XHTML formi í samræmi við ákvæði reglugerðar ESB 2019/815, um sameiginleg rafræn skýrslusnið.
Ábyrgð okkar er að afla hæfilegrar vissu, byggt á gögnum sem við höfum aflað, um hvort samstæðuársreikningurinn sé í öllum meginatriðum gerður í samræmi við ESEF reglur og gefa út áritun með áliti okkar. Eðli, tímasetning og umfang vinnunnar byggja á mati endurskoðandans, þar á meðal mati á hættunni á að vikið sé í verulegum atriðum frá kröfum sem fram koma í ESEF reglunum, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka.
Það er álit okkar að samstæðuársreikningur Símans hf. fyrir árið 2023 með skráarheitið 254900X9GQZN6UGXYF10-2023-12-31-is sé í öllum meginatriðum gerður í samræmi við ESEF reglur.
Staðfesting vegna skýrslu stjórnar
Í samræmi við ákvæði 2. mgr. 104 gr. laga nr. 3/2006 um ársreikninga staðfestum við samkvæmt okkar bestu vitund að í skýrslu stjórnar sem fylgir þessum samstæðuársreikningi eru veittar þær upplýsingar sem þar ber að veita í samræmi við lög um ársreikninga og koma ekki fram í skýringum.
Sigríður Soffía Sigurðardóttir, endurskoðandi, ber ábyrgð á endurskoðun samstæðuársreikningsins og þessari áritun.
Reykjavík, 20. febrúar 2024.
KPMG ehf.
Sigríður Soffía Sigurðardóttir
Díana Hilmarsdóttir
Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu ársins 2023
Skýringar á blaðsíðum 14 - 38 eru óaðskiljanlegur hluti af ársreikningnum.
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2023
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Hagnaður fyrir tekjuskatt ..........................................................................................................................# Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2023
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Rekstrarreikningur
| Skýr. | 2023 | 2022 |
|---|---|---|
| Sala ........................................................................................................................................................... | 25.067 | 23.939 |
| Kostnaðarverð sölu ................................................................................................................................... | ( 16.497) | ( 14.914) |
| Framlegð ........................................................................................................................................... | 8.570 | 9.025 |
| Aðrar rekstrartekjur .................................................................................................................................. | 2.079 | 2.945 |
| Rekstrarkostnaður .................................................................................................................................... | ( 7.165) | ( 6.713) |
| Hagnaður af aflagðri starfsemi eftir skatta ............................................................................................... | 633 | 674 |
| Rekstrarhagnaður ............................................................................................................................. | 2.945 | 3.659 |
| Fjármunatekjur ......................................................................................................................................... | 748 | 382 |
| Fjármagnsgjöld ......................................................................................................................................... | ( 753) | ( 392) |
| Gengismunur ............................................................................................................................................ | ( 30) | ( 159) |
| Gangvirðisbreytingar verðbréfa ................................................................................................................ | 0 | ( 546) |
| Hrein fjármagnsgjöld ................................................................................................................................ | ( 35) | ( 715) |
| Hagnaður og heildarhagnaður af áframhaldandi starfsemi ársins ...................................................... | 2.062 | 1.346 |
| Hagnaður á hlut | ||
| Grunnhagnaður á hlut af áframhaldandi starfsemi .................................................................................. | 0,46 | 0,31 |
| Þynntur hagnaður á hlut af áframhaldandi starfsemi ............................................................................... | 0,44 | 0,31 |
| Hagnaður og heildarhagnaður ársins ................................................................................................. | 36.205 | 1.346 |
| Hagnaður á hlut | ||
| Grunnhagnaður á hlut af starfsemi ............................................................................................................ | 7,24 | 0,46 |
| Þynntur hagnaður á hlut af starfsemi ........................................................................................................ | 7,13 | 0,44 |
| Reiknaðir skattar ....................................................................................................................................................... | 1.687 | 1.102 |
| EBITDA ...................................................................................................................................................... | 6.149 | 6.150 |
Efnahagsreikningur ársins 2023
Skýringar á blaðsíðum 14 - 38 eru óaðskiljanlegur hluti af ársreikningnum.
11
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2023
Fjárhæðir eru í milljónum króna
| Skýr. | 31.12.2023 | 31.12.2022 |
|---|---|---|
| Eignir | ||
| Fastafjármunir | ||
| Rekstrarfjármunir ........................................................................................................................... | 2.552 | 2.466 |
| Leigueignir ...................................................................................................................................... | 732 | 941 |
| Óefnislegar eignir ............................................................................................................................ | 21.047 | 22.122 |
| Aðrar eignir ..................................................................................................................................... | 431 | 580 |
| Fastafjármunir | 24.762 | 26.109 |
| Veltufjármunir | ||
| Birgðir ............................................................................................................................................. | 1.257 | 1.212 |
| Viðskiptakröfur ............................................................................................................................... | 2.279 | 2.045 |
| Útlán ............................................................................................................................................... | 2.715 | 1.359 |
| Aðrar skammtímakröfur ................................................................................................................. | 966 | 1.048 |
| Verðbréf færð á gangvirði ............................................................................................................... | 0 | 15.687 |
| Handbært fé ................................................................................................................................... | 1.810 | 3.721 |
| Veltufjármunir | 9.027 | 25.072 |
| Eignir samtals | 33.789 | 51.181 |
| Eigið fé | ||
| Hlutafé ............................................................................................................................................ | 2.517 | 4.242 |
| Yfirverðsreikningur ......................................................................................................................... | 0 | 495 |
| Lögbundinn varasjóður ................................................................................................................... | 629 | 1.061 |
| Annað bundið eigið fé ..................................................................................................................... | 570 | 576 |
| Óráðstafað eigið fé ......................................................................................................................... | 13.884 | 28.887 |
| Eigið fé | 17.600 | 35.261 |
| Skuldir | ||
| Langtímaskuldir | ||
| Vaxtaberandi skuldir ....................................................................................................................... | 7.470 | 5.956 |
| Leiguskuldbindingar ........................................................................................................................ | 503 | 731 |
| Viðskiptaskuldir .............................................................................................................................. | 0 | 639 |
| Tekjuskattsskuldbinding ................................................................................................................. | 232 | 89 |
| Langtímaskuldir | 8.205 | 7.415 |
| Skammtímaskuldir | ||
| Vaxtaberandi skuldir ....................................................................................................................... | 2.281 | 1.929 |
| Viðskiptaskuldir .............................................................................................................................. | 4.261 | 4.788 |
| Næsta árs afborganir leiguskuldbindinga ....................................................................................... | 276 | 251 |
| Skattar til greiðslu ........................................................................................................................... | 204 | 577 |
| Aðrar skammtímaskuldir ................................................................................................................ | 962 | 960 |
| Skammtímaskuldir | 7.984 | 8.505 |
| Skuldir samtals | 16.189 | 15.920 |
| Eigið fé og skuldir samtals | 33.789 | 51.181 |
Eiginfjáryfirlit ársins 2023
Skýringar á blaðsíðum 14 - 38 eru óaðskiljanlegur hluti af ársreikningnum.
12
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2023
Fjárhæðir eru í milljónum króna
| Hlutafé | Yfirverðsreikningur | Lögbundinn varasjóður | Annað bundið eigið fé | Óráðstafað eigið fé | Eigið fé samtals | |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Eigið fé 1.1.2022 ............................................ | 7.314 | 495 | 1.061 | 576 | 28.887 | 38.267 |
| Hagnaður og heildarhagnaður ársins ............ | 38.267 | 38.267 | ||||
| Greiddur arður (0,069 á hlut) ........................ | ( 500) | ( 30.542) | ( 31.042) | |||
| Hlutafjárlækkun ............................................. | ( 2.812) | ( 2.812) | ||||
| Keypt eigin bréf ............................................. | ( 2.783) | ( 2.783) | ||||
| Fært af bundnu eigin fé ................................. | ( 495) | 495 | 0 | |||
| Framlag í lögbundinn varasjóð ...................... | ( 907) | 907 | 0 | |||
| Eigið fé 31.12.2022 ........................................ | 4.002 | 0 | 154 | 576 | 5.464 | 10.196 |
| Eigið fé 1.1.2023 ............................................ | 4.242 | 495 | 1.061 | 576 | 28.887 | 35.261 |
| Hagnaður og heildarhagnaður ársins ............ | 1.346 | 1.346 | ||||
| Greiddur arður (0,119 á hlut) ........................ | ( 499) | ( 15.580) | ( 16.079) | |||
| Hlutafjárlækkun ............................................. | ( 1.429) | ( 1.429) | ||||
| Keypt eigin bréf ............................................. | ( 2.110) | ( 2.110) | ||||
| Fært af bundnu eigin fé ................................. | ( 495) | 495 | 0 | |||
| Kostnaður v/ kaupréttarsamninga ................ | ( 75) | ( 75) | ||||
| Eigið fé 31.12.2023 ........................................ | 2.314 | 0 | 1.061 | 576 | 12.513 | 16.464 |
Sjóðstreymisyfirlit ársins 2023
Skýringar á blaðsíðum 14 - 38 eru óaðskiljanlegur hluti af ársreikningnum.
13
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2023
Fjárhæðir eru í milljónum króna
| Skýr. | 2023 | 2022 |
|---|---|---|
| Rekstrarhreyfingar | ||
| Rekstrarhagnaður samkvæmt rekstrarreikningi ....................................................................................... | 2.079 | 2.945 |
| Rekstrarliðir sem ekki hafa áhrif á fjárstreymi: | ||
| Afskriftir ..................................................................................................................................................... | 4.071 | 3.204 |
| Söluhagnaður varanlegra rekstrarfjármuna ............................................................................................... | 13-15 | 674 |
| Handbært fé frá rekstri | 758 | 625 |
| Innborgaðir vextir ...................................................................................................................................... | 4.853 | 7.240 |
| Greiddir vextir ............................................................................................................................................ | ||
| Greiddir skattar .......................................................................................................................................... | ||
| # (18) (57) Aðrir liðir sem ekki hafa áhrif á fjárstreymi ................................................................................................ 48 0 6.180 6.092 | ||
| # Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum: | ||
| # Birgðir, (hækkun) ....................................................................................................................................... ( 80) ( 258) | ||
| # Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur, (hækkun) lækkun ................................................................ ( 173) 1.464 | ||
| # Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir, (lækkun) hækkun ............................................................... ( 315) 836 | ||
| # Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum ( 568) 2.042 | ||
| # Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta 5.612 8.134 |
Fjárfestingarhreyfingar
Fjárfesting í rekstrarfjármunum ................................................................................................................. 13 ( 886) ( 953)
Fjárfesting í óefnislegum eignum ............................................................................................................... 15 ( 2.827) ( 3.426)
Söluverð rekstrarfjármuna ......................................................................................................................... 42 27
Útlán, breyting ........................................................................................................................................... ( 1.272) ( 576)
Sala á verðbréfi .......................................................................................................................................... 15.685 0
Söluverð eignarhluta í dótturfélögum ....................................................................................................... 0 31.637
Söluverð félags .......................................................................................................................................... 0 152
Fjárfestingarhreyfingar 10.742 26.861
Fjármögnunarhreyfingar
Greiddur arður ........................................................................................................................................... ( 499) ( 500)
Kaup eigin bréfa ......................................................................................................................................... 23 ( 2.976) ( 3.043)
Útgreitt hlutafé .......................................................................................................................................... ( 15.580) ( 30.542)
Tekin ný langtímalán .................................................................................................................................. 1.500 0
Afborganir leiguskuldbindinga ................................................................................................................... 25 ( 265) ( 216)
Skammtímalán, breyting ............................................................................................................................ 352 412
Fjármögnunarhreyfingar ( 17.468) ( 33.889)
(Lækkun) hækkun á handbæru fé ....................................................................................................... ( 1.873) 212
Áhrif gengisbreytinga á handbært fé .................................................................................................. ( 38) 0
Handbært fé í byrjun ársins ................................................................................................................ 3.721 3.509
Handbært fé í lok ársins ...................................................................................................................... 1.810 3.721
( 947) ( 637) ( 570) ( 882)
Skýringar 14
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2023
Fjárhæðir eru í milljónum króna
1. Starfsemi
Síminn hf. er hlutafélag og starfar á grundvelli laga nr. 2/1995 um hlutafélög á Íslandi. Höfuðstöðvar félagsins eru að Ármúla 25 í Reykjavík. Samstæðuársreikningur fyrir árið 2023 hefur að geyma ársreikning félagsins og dótturfélaga þess sem vísað er til í heild sem „félagsins“ og til einstakra félaga sem „dótturfélaga“. Dótturfélög Símans hf. eru Síminn Pay ehf. og Radíómiðun ehf. Meginstarfsemi félagsins er á sviði fjarskipta, fjártækni og afþreyingar.
2. Grundvöllur reikningsskilanna
2.1. Yfirlýsing um að alþjóðlegum reikningsskilastöðlum sé fylgt
Ársreikningur félagsins er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS) eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu. Auk þess hefur samstæðan beitt ákvæðum laga nr. 3/2006 um ársreikninga þegar ekki er kveðið á um tiltekin atriði í alþjóðlegum reikningsskilastöðlum, svo sem um færslur inn á bundinn hlutdeildarreikning á meðal eigin fjár og viðbótarkröfur ársreikningalaga um upplýsingagjöf. Samantekt á mikilvægum reikningsskilaaðferðum er að finna í skýringu 35. Hægt er að nálgast ársreikninginn á vef félagsins, www.siminn.is og á vef Kauphallar Íslands: www.nasdaqomxnordic.com. Stjórn og forstjóri félagsins samþykktu ársreikninginn og heimiluðu birtingu hans á stjórnarfundi þann 20. febrúar 2024.
2.2. Grundvöllur matsaðferða
Samstæðuársreikningurinn er gerður samkvæmt kostnaðarverðsaðferð.
2.3. Starfrækslugjaldmiðill og framsetningargjaldmiðill
Ársreikningurinn er gerður í íslenskum krónum sem er starfrækslugjaldmiðill félagsins og eru fjárhæðir birtar í milljónum króna nema annað sé tekið fram.
2.4. Mat og ákvarðanir
Gerð samstæðuársreiknings í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla krefst þess að stjórnendur taki ákvarðanir, meti og gefi sér forsendur sem hafa áhrif á beitingu reikningsskilaaðferða og birtar fjárhæðir eigna, skulda, tekna og gjalda. Endanlegar niðurstöður kunna að verða frábrugðnar þessu mati. Mat og forsendur þess eru í stöðugri endurskoðun. Breytingar á reikningshaldslegu mati eru færðar á því tímabili sem breytingin á sér stað og þeim framtíðartímabilum sem breytingarnar hafa áhrif á. Upplýsingar um mikilvægar ákvarðanir þar sem reikningsskilaaðferðir hafa mest áhrif á skráðar fjárhæðir eigna og skulda í ársreikningnum er að finna í skýringu 15 um mat á endurheimtanlegum fjárhæðum fjárskapandi eininga sem innihalda viðskiptavild.
3. Breytingar á reikningsskilaaðferðum
Við gerð ársreikningsins er beitt sömu reikningsskilaaðferðum og við gerð ársreiknings félagsins fyrir árið 2022.
Skýringar 15
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2023
Fjárhæðir eru í milljónum króna
4. Starfsþáttayfirlit
Yfirlit um starfsþætti veitir upplýsingar um einstaka þætti í rekstri félagsins og er sett fram með sama hætti og regluleg skýrslugjöf til stjórnar félagsins. Starfsemi félagsins skiptist í sex starfsþætti sem selja vörur og þjónustu á mismunandi mörkuðum. Starfsþættirnir eru:
Starfsþáttur | Lýsing
---|---
Farsímaþjónusta: ................................ | Farsímaþjónusta innanlands og erlendis, hvort sem heldur er hefðbundin GSM þjónusta,gervihnattaþjónusta eða önnur farsímaþjónusta.
Talsímaþjónusta: ................................. | Talsímaþjónusta fyrir fyrirtæki og einstaklinga.
Gagnaflutningur: ................................. | Gagnaflutningsþjónusta, þ.m.t. xDSL þjónusta, GPON, Internet, IP net, heimtaugar og aðgangsnet.
Sjónvarpsþjónusta: ............................. | Dreifing á sjónvarpsefni, áskrift, notkun og auglýsingar á miðlum félagsins.
Vörusala búnaðar: ............................... | Sala á fjarskiptabúnaði og fylgihlutum.
Annað: ................................................. | Tekjur tengdar fjarskiptum, upplýsingatækni og fjármálum.
| Starfsþættir 2023 | Farsíma- þjónusta | Talsíma- þjónusta | Gagna- flutningur | Sjónvarps- þjónusta | Vörusala búnaðar | Annað | Samtals |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Rekstrartekjur ..................................... | 6.510 | 1.100 | 7.939 | 7.440 | 1.784 | 968 | 25.741 |
| Óskipt rekstrargjöld ... | ( 19.591) | | | | | | |
| Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) ............................................................................................ | 6.150 | | | | | | |
| Afskriftir ... | ( 4.071) | | | | | | |
| Hrein fjármagnsgjöld ... | ( 392) | | | | | | |
| Reiknaðir skattar ... | ( 341) | | | | | | |
| Hagnaður af áframhaldandi starfsemi ........................................................................................................................................ | 1.346 | | | | | | |
| Hagnaður ársins ... | 1.346 | | | | | | |
| Fjárfestingar ... | ( 3.671) | | | | | | |
| Óskiptar eignir 31.12.2023 ... | 33.789 | | | | | | |
| Óskiptar skuldir 31.12.2023 ... | 16.189 | | | | | | |
| Starfsþættir 2022 | Farsíma- þjónusta | Talsíma- þjónusta | Gagna- flutningur | Sjónvarps- þjónusta | Vörusala búnaðar | Annað | Samtals |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Rekstrartekjur ..................................... | 6.035 | 1.342 | 7.591 | 6.722 | 1.838 | 1.044 | 24.572 |
| Óskipt rekstrargjöld .................................................................................................................................................................... |
```# Skýringar 18
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2023
Fjárhæðir eru í milljónum króna
11. Hagnaður á hlut
Grunnhagnaður á hlut er miðaður við hagnað, sem ráðstafað er til hluthafa í félaginu og vegins meðaltals hlutafjár á árinu og sýnir hver hagnaðurinn er á hverja krónu hlutafjár. Þynntur hagnaður á hlut miðar við hagnað sem ráðstafað er til hluthafa í móðurfélaginu og vegins meðaltals virkra hluta að teknu tilliti til þynningaráhrifa væntra útgefinna hluta vegna kauprétta starfsmanna.
| 2023 | 2022 | |
|---|---|---|
| Hagnaður ársins af áframhaldandi starfsemi ...................................................................................................... |
10. Skattar
Tekjuskattur er reiknaður og færður í ársreikninginn. Tekjuskattur vegna ársins 2023 til greiðslu á árinu 2024 nemur 204 m.kr. Greining á virku skatthlutfalli:
| 2023 | 2022 | |||
|---|---|---|---|---|
| Hagnaður fyrir skatta ............................................................................................. | 1.687 | 2.399 | ||
| Skatthlutfall ........................................................................................................... | 20,0% | ( 337) | 20,0% | ( 480) |
| Ófrádráttarbær kostnaður ..................................................................................... | 0,7% | ( 11) | (1,6%) | 39 |
| Óskattskyldar tekjur .............................................................................................. | (0,1%) | 2 | (1,0%) | 24 |
| Jöfnunargjald ......................................................................................................... | (0,2%) | 4 | 0,5% | ( 13) |
| Aðrar breytingar .................................................................................................... | (0,1%) | 1 | (3,9%) | 93 |
| Skattur samkvæmt rekstrarreikningi ..................................................................... | 20,2% | ( 341) | 14,0% | ( 337) |
9. Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld
Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld greinast þannig:
| 2023 | 2022 | |
|---|---|---|
| Fjármunatekjur | ||
| Vaxtatekjur af bankainnistæðum og kröfum ...................................................................................................... | 738 | 633 |
| Söluhagnaður af eignarhlutum ........................................................................................................... | 0 | 113 |
| Fenginn arður ..................................................................................................................................... | 2 | 2 |
| 740 | 748 | |
| Fjármagnsgjöld | ||
| Vaxtagjöld ........................................................................................................................................... | ( 898) | ( 430) |
| Vaxtagjöld vegna leiguskuldbindinga .................................................................................................................. | ( 47) | ( 46) |
| Niðurfærsla útlána .............................................................................................................................. | ( 74) | ( 92) |
| Önnur fjármagnsgjöld ......................................................................................................................... | ( 83) | ( 185) |
| ( 1.102) | ( 753) | |
| Gengismunur ...................................................................................................................................... | ( 30) | ( 159) |
| Gangvirðisbreyting verðbréfa ............................................................................................................. | 0 | ( 382) |
| Hrein fjármagnsgjöld .......................................................................................................................... | ( 392) | ( 546) |
8. Laun og launatengd gjöld, frh.:
Laun og launatengd gjöld skiptast þannig á liði ársreiknings:
| 2023 | 2022 | |
|---|---|---|
| Kostnaðarverð sölu .............................................................................................................................. | 991 | 864 |
| Rekstrarkostnaður ............................................................................................................................... | 3.349 | 3.322 |
| Laun færð undir aflagða starfsemi vegna sölukostnaðar Mílu ehf. ...................................................................... | 0 | 397 |
| 4.340 | 4.583 |
7. Rekstrarkostnaður
Rekstrarkostnaður greinist þannig:
| 2023 | 2022 | |
|---|---|---|
| Laun og launatengd gjöld ................................................................................................................. | 3.349 | 3.322 |
| Markaðs- og sölukostnaður ................................................................................................................. | 609 | 560 |
| Húsnæðis- og bifreiðakostnaður .......................................................................................................... | 347 | 432 |
| Tölvu- og hugbúnaðarkostnaður ......................................................................................................... | 1.049 | 1.040 |
| Skrifstofu- og stjórnunarkostnaður ...................................................................................................... | 876 | 584 |
| Afskriftir ............................................................................................................................................... | 935 | 775 |
| 7.165 | 6.713 |
6. Kostnaðarverð sölu
Kostnaðarverð sölu greinist þannig:
Kostnaðarverð seldrar þjónustu samanstendur af: efniskostnaði, þjónustusamningum, leyfisgjöldum, aðkeyptri þjónustu og fjarskiptakostnaði.
| 2023 | 2022 | |
|---|---|---|
| Kostnaðarverð seldrar þjónustu .......................................................................................................... | 10.115 | 9.244 |
| Samtengigjöld ...................................................................................................................................... | 692 | 733 |
| Kostnaðarverð seldra vara ................................................................................................................... | 1.711 | 1.857 |
| Eignfærð vinna ..................................................................................................................................... | ( 148) | ( 212) |
| Afskriftir ............................................................................................................................................... | 3.136 | 2.428 |
| 16.497 | 14.914 |
5. Sala
Seld þjónusta og vörur greinast þannig:
| 2023 | 2022 | |
|---|---|---|
| Sala á þjónustu ................................................................................................................................... | 23.160 | 21.901 |
| Vörusala .............................................................................................................................................. | 1.907 | 2.038 |
| 25.067 | 23.939 |
Enginn einstakur viðskiptavinur er með meira en 10% af sölu félagsins.
8. Laun og launatengd gjöld
Laun og launatengd gjöld greinast þannig:
| 2023 | 2022 | |
|---|---|---|
| Laun ..................................................................................................................................................... | 3.545 | 3.763 |
| Mótframlag í lífeyrissjóði ..................................................................................................................... | 489 | 486 |
| Önnur launatengd gjöld ....................................................................................................................... | 306 | 334 |
| 4.340 | 4.583 | |
| Ársverk ................................................................................................................................................. | 299 | 298 |
67% starfsmanna félagsins eru karlar (2022: 63% ) og 33% konur (2022: 37%).
| 2023 | 2022 | |
|---|---|---|
| Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) ............................................................................................ | ( 18.423) | |
| Afskriftir ... | ( 3.204) | |
| Hreinar fjármunatekjur ............................................................................................................................................... | ( 546) | |
| Reiknaðir skattar ... | ( 337) | |
| Hagnaður af áframhaldandi starfsemi ........................................................................................................................ | 2.062 | |
| Aflögð starfsemi ... | 36.205 | |
| Hagnaður ársins ................................................................................................................................................. | 38.267 | |
| Fjárfestingar ... | ( 4.352) | |
| Óskiptar eignir 31.12.2022 .......................................................................................................................................... | 51.181 | |
| Óskiptar skuldir 31.12.2022 ........................................................................................................................................ | 15.920 |
12. Kaupréttarsamningar
Á stjórnarfundi þann 16. maí 2023 tók stjórn Símans hf. ákvörðun um að veita stjórnendum og ákveðnum lykilstarfsmönnum kauprétti að samtals 75.000.000 hlutum í félaginu. Ákvörðunin byggir á samþykkt aðalfundar frá 9. mars 2023. Kauprétturinn ávinnst á þremur árum frá úthlutun. Að ávinnslutímabili loknu verða kaupréttir nýtanlegir í þremur áföngum, sem hefjast í kjölfar birtingar hálfsársuppgjöra félagsins ár hvert á árunum 2026 - 2029. Alls er um að ræða 22 starfsmenn. Kaupverð hluta er vegið meðaltal í viðskiptum með hlutabréf félagsins síðustu tíu viðskiptadaga fyrir samningsdag, sem var 17. maí 2023, eða kr. 10,98 hver hlutur. Kostnaður vegna samninganna út nýtingartímann er áætlaður um 50 m.kr. og er þá byggt á reiknilíkani Black-Scholes.
Í samræmi við samþykkt aðalfundar frá 9. mars 2023 hefur verið gengið frá kaupréttaráætlun byggða á 10. grein laga nr. 90/2003 um tekjuskatt. Kaupréttur nær til allra fastráðinna starfsmanna félagsins. Samkvæmt áætluninni öðlast hver kaupréttarhafi rétt til að kaupa hluti í félaginu fyrir að hámarki 1.500.000 krónur einu sinni á ári í þrjú ár, eftir birtingu hálfsársuppgjörs fyrir árin 2024, 2025 og 2026. Alls gerðu 226 starfsmenn kaupréttarsamning sem ná til allt að 30.874.312 hluta á ári miðað við 100% nýtingu hluta. Kaupverð hluta er vegið meðaltal í viðskiptum með hlutabréf félagsins síðustu tíu viðskiptadaga fyrir samningsdag, sem var 17. maí 2023, eða kr. 10,98 hver hlutur. Kostnaður vegna samninganna út nýtingartímann er áætlaður um 67 m.kr. og er þá byggt á reiknilíkani Black-Scholes.
Í rekstrarreikningi eru gjaldfærðar 48 m.kr. á tímabilinu vegna kaupréttarsamninga. Heildarkostnaður félagsins vegna kaupréttarsamninga á næstu 3 árum er áætlaður um 117 m.kr. byggt á reiknilíkani Black-Scholes.
Skýringar 19
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2023
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Afskriftir rekstrarfjármuna, leigueigna og óefnislegra eigna skiptast þannig á rekstrarliði:
| 2023 | 2022 | |
|---|---|---|
| Kostnaðarverð seldrar þjónustu | 3.136 | 2.428 |
| Annar rekstrarkostnaður | 935 | 775 |
| Samtals | 4.071 | 3.203 |
Nýtingartími greinist á eftirfarandi hátt:
- Fjarskiptabúnaður ...................................................................................................................................................................... 3 - 10 ár
- Fasteignir ... 3 - 10 ár
- Tæki, búnaður og bifreiðar ........................................................................................................................................................ 3 - 10 ár
Fasteignamat húseigna og lóða samstæðunnar nam 303 m.kr. (2022: 287 m.kr.) og brunabótamat 510 m.kr. (2022: 481 m.kr.). Búnaður félagsins er tryggður fyrir 6.654 m.kr. (2022: 5.920 m.kr.).
13. Rekstrarfjármunir
Rekstrarfjármunir og afskriftir greinast þannig:
| Tæki, búnaður og bifreiðar | Fjarskipta- búnaður | Fasteignir og lóðir | Samtals | |
|---|---|---|---|---|
| Kostnaðarverð | ||||
| Heildarverð 1.1.2022 ................... | 11.418 | 167 | 848 | 12.433 |
| Kaup á árinu .......................... | 841 | 140 | 112 | 1.093 |
| Selt og niðurlagt á árinu ............. | (2.008) | (25) | (67) | (2.100) |
| Heildarverð 31.12.2022 ................. | 10.251 | 282 | 893 | 11.426 |
| Kaup á árinu .......................... | 777 | 0 | 109 | 886 |
| Selt og niðurlagt á árinu ............. | (1.821) | 0 | (174) | (1.995) |
| Heildarverð 31.12.2023 ................. | 9.207 | 282 | 828 | 10.317 |
| Afskriftir og virðisrýrnun | ||||
| Afskrifað 1.1.2022 ................... | 9.541 | 18 | 655 | 10.214 |
| Afskriftir ............................ | 725 | 1 | 77 | 803 |
| Selt og niðurlagt á árinu ............. | (2.008) | (4) | (45) | (2.057) |
| Afskrifað alls 31.12.2022 ............. | 8.258 | 15 | 687 | 8.960 |
| Afskriftir ............................ | 703 | 1 | 73 | 777 |
| Selt og niðurlagt á árinu ............. | (1.819) | 0 | (153) | (1.972) |
| Afskrifað alls 31.12.2023 ............. | 7.142 | 16 | 607 | 7.765 |
| Bókfært verð | ||||
| Bókfært verð 1.1.2022 ................... | 1.877 | 149 | 193 | 2.219 |
| Bókfært verð 31.12.2022 ................. | 1.993 | 267 | 206 | 2.466 |
| Bókfært verð 31.12.2023 ................. | 2.065 | 266 | 221 | 2.552 |
Skýringar 20
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2023
Fjárhæðir eru í milljónum króna
14. Leigueignir
Félagið leigir fasteignir, aðstöðu og bifreiðar. Þessir leigusamningar eru að jafnaði til 5 - 10 ára, með möguleika á endurnýjun í lok leigutímans. Flestir leigusamningar innifela viðbótar leigugreiðslur sem eru byggðar á breytingu á tilteknum vísitölum.
15. Óefnislegar eignir
Leigueignir greinast á eftirfarandi hátt:
| Fjarskipta- búnaður | Fasteignir og lóðir | Bifreiðar | Samtals | |
|---|---|---|---|---|
| Kostnaðarverð | ||||
| Heildarverð 1.1.2022 ................. | 0 | 1.428 | 43 | 1.471 |
| Nýir samningar ..................... | 240 | 80 | 29 | 349 |
| Lokun á samningum .................. | 0 | 0 | (26) | (26) |
| Verðbætur af leiguskuldbindingu ...... | 0 | 69 | 1 | 70 |
| Heildarverð 31.12.2022 ............... | 240 | 1.577 | 47 | 1.864 |
| Nýir samningar ..................... | 0 | 0 | 18 | 18 |
| Lokun á samningum .................. | 0 | (188) | (13) | (201) |
| Verðbætur af leiguskuldbindingu ...... | 0 | 50 | 1 | 51 |
| Heildarverð 31.12.2023 ............... | 240 | 1.439 | 53 | 1.732 |
| Afskriftir | ||||
| Afskrifað 1.1.2022 ................. | 0 | 694 | 24 | 718 |
| Afskriftir .......................... | 7 | 205 | 16 | 228 |
| Afskriftir færðar út ................. | 0 | 0 | (23) | (23) |
| Afskrifað alls 31.12.2022 ........... | 7 | 899 | 17 | 923 |
| Afskriftir .......................... | 21 | 232 | 18 | 271 |
| Afskriftir færðar út ................. |
Óefnislegar eignir og afskriftir greinast þannig:
| Viðskipta- vild | Hugbúnaður | Aðrar eignir | Samtals |
|---|---|---|---|
| Kostnaðarverð | |||
| Heildarverð 1.1.2022 | 38.558 | 3.783 | 6.347 |
| Kaup á árinu | 0 | 749 | 4.140 |
| Selt og niðurlagt á árinu | 0 | ( 84) | ( 2.670) |
| Heildarverð 31.12.2022 | 38.558 | 4.448 | 7.817 |
| Kaup á árinu | 0 | 711 | 1.237 |
| Selt og niðurlagt á árinu | 0 | ( 383) | 0 |
| Heildarverð 31.12.2023 | 38.558 | 4.776 | 9.054 |
Skýringar 21
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2023
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Aðrar eignir samanstanda af vörumerki félagsins, sýningarrétti, tíðnigjöldum og öðrum óefnislegum eignum. Vörumerki félagsins er veðsett vegna lántöku félagsins.
15.1. Árlegt virðisrýrnunarpróf
Í lok reikningsárs var framkvæmt virðisrýrnunarpróf á viðskiptavild félagsins. Við framkvæmd virðisrýrnunarprófs var endurheimtanlegt virði metið út frá nýtingarvirði þeirra fjárskapandi eininga sem viðskiptavildin tilheyrir. Viðskiptavild sem myndast hefur við kaup hefur verið útdeilt niður á viðeigandi dótturfélög sem skilgreind eru sem minnstu aðgreinanlegu fjárskapandi einingar af stjórnendum samstæðunnar.
Viðskiptavild greinist þannig niður á fjárskapandi einingar:
| 2023 | 2022 | |
|---|---|---|
| Viðskiptavild Símans hf. | 14.875 | 14.875 |
| Vörumerki undir öðrum eignum | 1.589 | 1.589 |
Endurheimtanlegar fjárhæðir fyrir fjárskapandi einingar eru byggðar á nýtingarvirði. Við mat á nýtingarvirði er stuðst við vænt fjárstreymi sem fært hefur verið til núvirðis. Fjárstreymi var áætlað með hliðsjón að fjárhæðum í samþykktum rekstraráætlunum næstu fimm ára ásamt föstum framtíðarnafnvexti eftir spátímabilið sem stjórnendur telja að endurspegli reynslu fyrri ára, framtíðarþróun í fjarskiptum og upplýsingatækni og aðrar ytri upplýsingar.
Vænt fjárstreymi er fært til núvirðis með vegnum fjármagnskostnaði (WACC) viðkomandi fjárskapandi einingar. Ávöxtunarkrafan byggir á áhættulausum vöxtum að viðbættu álagi á samsetningu fjármögnunar fyrir hverja fjárskapandi einingu þar sem byggt er á ytri- og innri gögnum. Við mat á virði vörumerkja er byggt á væntu framtíðarfjárstreymi miðað við gefnar forsendur um endingartíma og að teknu tilliti til hugsanlegra skattaáhrifa. Ávöxtunarkrafan miðar við áhættulausa vexti að viðbættu álagi vegna sérstakrar og væntrar áhættu við viðkomandi vörumerki.
15. Óefnislegar eignir, frh.:
| Viðskipta- vild | Hugbúnaður | Aðrar eignir | Samtals | |
|---|---|---|---|---|
| Afskriftir og virðisrýrnun | ||||
| Afskrifað 1.1.2022 | 23.683 | 2.255 | 3.347 | 29.285 |
| Afskriftir | 0 | 449 | 1.723 | 2.172 |
| Selt og niðurlagt á árinu | 0 | ( 84) | ( 2.672) | ( 2.756) |
| Afskrifað alls 31.12.2022 | 23.683 | 2.620 | 2.398 | 28.701 |
| Afskriftir | 0 | 573 | 2.450 | 3.023 |
| Selt og niðurlagt á árinu | 0 | ( 383) | 0 | ( 383) |
| Afskrifað alls 31.12.2023 | 23.683 | 2.810 | 4.848 | 31.341 |
| Bókfært verð | ||||
| Bókfært verð 1.1.2022 | 14.875 | 1.528 | 3.000 | 19.403 |
| Bókfært verð 31.12.2022 | 14.875 | 1.828 | 5.419 | 22.122 |
| Bókfært verð 31.12.2023 | 14.875 | 1.966 | 4.206 | 21.047 |
Nýtingartími greinist á eftirfarandi hátt:
- Hugbúnaður ............................................................................................................................................................................... 2 - 7 ár
- Aðrar eignir ... 0 - 15 ár
Skýringar 22
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2023
Fjárhæðir eru í milljónum króna
16. Dótturfélög
Dótturfélög eru eftirfarandi:
| Staðsetning starfsemi | Eignarhlutur 2023 | Eignarhlutur 2022 | |
|---|---|---|---|
| Radíómiðun ehf. | Ísland | 100% | 100% |
| Síminn Pay ehf. | Ísland | 100% | 100% |
| Fjárfesting í öðrum félögum | 8 | 38 | |
| Sjónvarpsefni til sýningar | 240 | 204 | |
| Útlán til meira en 12 mánaða | 183 | 338 | |
| Aðrar eignir samtals | 431 | 580 | |
| Vörur til endursölu og rekstrarvörubirgðir | 639 | 601 | |
| Sjónvarpsefni til sýningar | 618 | 611 | |
| Birgðir samtals | 1.257 | 1.212 |
15. Óefnislegar eignir, frh.:
15.1. Árlegt virðisrýrnunarpróf, frh.:
Nýtingarvirði byggir á nokkrum meginforsendum sem innhalda mat stjórnenda á framtíðarhorfum viðkomandi fjárskapandi einingar þar sem stuðst er við söguleg gögn, ytri sem og innri. Forsendurnar eru eftirfarandi:
| 2023 | 2022 | |
|---|---|---|
| Langtímavöxtur | 2,0% | 2,0% |
| Vegið meðaltal tekjuvaxtar á tímabilinu 2024-2028 / 2023-2027 | 2,9% | 3,0% |
| EBITDA meðalvöxtur á tímabilinu 2024-2028 / 2023-2027 | 3,2% | 2,1% |
| WACC | 10,2% | 9,5% |
| Skuldsetningarhlutfall | 59,9% | 58,3% |
| Vextir | 7,1% | 6,7% |
Endurheimtanlegar fjárhæðir allra fjárskapandi eininga var metið hærra en eignagrunnur og því engin virðisrýrnun færð hjá félaginu. Við framkvæmd virðisrýrnunarprófs viðskiptavildar verða stjórnendur að meta ákveðnar forsendur sem notaðar eru í árlegu virðisrýrnunarprófi. Slíkt mat felur alltaf í sér ákveðna óvissu sem getur haft verulega áhrif á útkomu prófanna ef forsendur reynast rangar. Fjárskapandi einingar félagsins eru ekki viðkvæmar fyrir breytingum á meginforsendum virðisrýrnunarprófsins og myndu raunhæfar breytingar á lykilforsendum ekki leiða til virðisrýrnunar.
17. Aðrar eignir
Aðrar eignir greinast þannig:
17.1. Önnur félög
Í árslok átti félagið hlutabréf í tveimur erlendum félögum og þremur innlendum félögum þar sem eignarhlutir voru lægri en 20%.
18. Birgðir
Birgðir greinast þannig:
Vörunotkun vegna vörusölu ársins nam 1.711 m.kr. (2022: 1.879 m.kr.).
Skýringar 23
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2023
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Niðurfærsla hefur verið reiknuð vegna krafna sem kunna að tapast. Niðurfærsingin er byggð á mati stjórnenda og reynslu fyrri ára. Lánsáhætta vegna viðskiptavina er lítil þar sem viðskiptamenn félagsins eru margir og ótengdir. Nánar er fjallað um áhættu vegna viðskiptakrafna í skýringu 29.
20. Útlán
Útlán félagsins samanstanda af útlánum dótturfélags Símans hf., Símans Pay ehf.# 19. Viðskiptakröfur
Viðskiptakröfur greinast þannig:
| 2023 | 2022 |
|---|---|
| 2.357 | 2.129 |
| ( 78) | ( 84) |
| 2.279 | 2.045 |
Breyting á niðurfærslu viðskiptakrafna greinist þannig:
| 2023 | 2022 | |
|---|---|---|
| Staða í ársbyrjun | ( 84) | ( 107) |
| Breyting á niðurfærslu vegna krafna sem kunna að tapast | ( 30) | ( 3) |
| Tapaðar viðskiptakröfur á árinu | 36 | 26 |
| Staða í lok árs | ( 78) | ( 84) |
21. Aðrar skammtímakröfur
Aðrar skammtímakröfur greinast þannig:
| 2023 | 2022 | |
|---|---|---|
| Fyrirframgreiddur kostnaður | 719 | 705 |
| Áfallnir vextir | 8 | 27 |
| Aðrar skammtímakröfur | 239 | 316 |
| Aðrar skammtímakröfur samtals | 966 | 1.048 |
Skýringar 24
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2023
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Verðbréf er óskráð skuldabréf á Sunstone II hf. og var selt í janúar 2023.
23. Eigið fé
23.1. Hlutafé
Útgefnir hlutir í lok ársins eru alls 2.775 m.kr. og er nafnverð hvers hlutar ein íslensk króna. Á árinu var hlutafé félagsins lækkað úr 4.400 m.kr. niður í 2.775 m.kr. Eitt atkvæði fylgir hverri krónu nafnverðs. Allir útgefnir hlutir eru greiddir að fullu. Félagið á eigin hluti að nafnverði 258 m.kr. sem færðir eru til lækkunar á eigin fé (2022: 158 m.kr.). Samkvæmt gildandi endurkaupaáætlun keypti félagið eigin bréf á árinu með það að markmiði að lækka eigið fé félagins.
23.2. Yfirverð
Yfirverð er munurinn á greiðslum í krónum sem félagið fékk við kaup, sölu og útgáfu á hlutafé og nafnverði útgefinna hluta.
23.3. Lögbundinn varasjóður
Samkvæmt lögum um hlutafélög skal félagið binda 25% af nafnverði hlutafjár í varasjóði, sem ekki má nota til að greiða hluthöfum arð.
23.5. Óráðstafað eigið fé
Óráðstafað eigið fé er uppsafnaður óráðstafaður hagnaður að frádregnu ójöfnuðu tapi samstæðunnar frá stofnun móðurfélagsins, að frádregnum arðgreiðslum og millifærslum til og frá öðrum eiginfjárliðum.
22. Verðbréf færð á gangvirði
Fjáreignir á gangvirði gegnum rekstur greinast þannig:
| 2023 | 2022 | |
|---|---|---|
| Staða 1.1. | 15.687 | 0 |
| Keypt | 0 | 17.500 |
| Matsbreyting við viðtöku | 0 | ( 1.431) |
| Matsbreyting í árslok 2022 | 0 | ( 382) |
| Söluverð verðbréfs | ( 15.685) | 0 |
| Sölutap | ( 2) | 0 |
| Fjáreignir á gangvirði gegnum rekstur | 0 | 15.687 |
23.4. Annað bundið eigið fé
Þýðingar- Annað bundið eigið fé greinist þannig:
munur í Bundinn dóttur- hlutdeildar-
reikningur félögum Samtals
Staða 1.1. 2022 ............................................................................................................................ 454 1.566 2.020
Breyting ársins ............................................................................................................................. ( 1.444) ( 1.444)
Staða 31.12.2022 ......................................................................................................................... 454 122 576
Staða 1.1. 2023 ............................................................................................................................ 454 122 576
Breyting ársins ............................................................................................................................. ( 6) ( 6)
Staða 31.12.2023 ......................................................................................................................... 454 116 570
Skýringar 25
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2023
Fjárhæðir eru í milljónum króna
6,38% Í lánaskilmálum eru kvaðir um að uppfylla ákveðin fjármálahlutföll, sem voru uppfyllt í lok árs. Skuldir félagsins eru tryggðar með veði í vörumerki félagsins.
24. Vaxtaberandi skuldir
| 2023 | 2022 | |
|---|---|---|
| Lán félagsins greinast á eftirfarandi hátt: | Meðalvextir | Eftirstöðvar |
| Skuldir í ISK, óverðtryggðar til greiðslu 2026 .......................................................... | 9,42% | 7.500 |
| Lántökukostnaður ................................................................................................... | ( 30) | ( 44) |
| Næsta árs afborganir .............................................................................................. | 0 | 0 |
Hreyfingar á vaxtaberandi skuldum greinast á eftirfarandi hátt:
| 2023 | 2022 | |
|---|---|---|
| Staða í ársbyrjun................................................................................................................................... | 5.956 | 5.943 |
| Dreifing lántökukostnaðar.................................................................................................................................... | 14 | 13 |
| Tekin ný langtímalán............................................................................................................................ | 1.500 | 0 |
| 7.470 | 5.956 |
Afborganir vaxtaberandi skulda greinast þannig:
| 2023 | 2022 | |
|---|---|---|
| Til greiðslu 2026 / 2025........................................................................................................................................ | 7.500 | 0 |
| Til greiðslu 2027 / 2026........................................................................................................................................ | 0 | 6.000 |
| Heildarlán að meðtöldum næsta árs afborgunum................................................................................................ | 7.500 | 6.000 |
25. Leiguskuldbindingar
Hreyfingar á leiguskuldbindingum greinast á eftirfarandi hátt:
| Fjarskipta- búnaður og lóðir | Fasteignir | Bifreiðar | Samtals | |
|---|---|---|---|---|
| Leiguskuldbindingar 1.1.2022................................................................. | 0 | 813 | 20 | 833 |
| Leigugreiðslur.......................................................................................................... | ( 10) | ( 235) | ( 17) | ( 262) |
| Greiddir vextir......................................................................................................... | 4 | 40 | 2 | 46 |
| Nýir samningar........................................................................................................ | 240 | 80 | 29 | 349 |
| Lokun á samningum................................................................................................ | 0 | ( 51) | ( 3) | ( 54) |
| Verðbætur af leiguskuldbindingu............................................................ | 0 | 69 | 1 | 70 |
| Leiguskuldbindingar 31.12.2022............................................................. | 234 | 716 | 32 | 982 |
| Leigugreiðslur.......................................................................................................... | ( 28) | ( 264) | ( 20) | ( 312) |
| Greiddir vextir......................................................................................................... | 12 | 33 | 2 | 47 |
| Nýir samningar........................................................................................................ | 0 | 0 | 18 | 18 |
| Lokun á samningum................................................................................................ |
Fjárhæðir eru í milljónum króna
| (7) | (7) | |
|---|---|---|
| Verðbætur af leiguskuldbindingu | 0 | 50 |
| Leiguskuldbindingar 31.12.2023 | 218 | 53526 |
Leiguskuldbinding greinast á eftirfarandi hátt:
| 2023 | 2022 | |
|---|---|---|
| Til greiðslu 2024 / 2023 | 276 | 251 |
| Til greiðslu 2025 / 2024 | 280 | 253 |
| Til greiðslu 2026 / 2025 | 48 | 259 |
| Til greiðslu 2027 / 2026 | 30 | 45 |
| Til greiðslu 2028 / 2027 | 21 | 29 |
| Afborganir síðar | 124 | 145 |
| Heildarleiguskuldbinding að meðtöldum næsta árs afborgunum | 779 | 982 |
Skýringar
26 Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2023
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Framlengingarákvæði
Flestir leigusamningar félagsins um fasteignir fela í sér framlengingarheimildir sem því er heimilt að nýta allt að einu ári fyrir lok óuppsegjanlegs leigutímabils. Félagið leggur mat á það við upphaf leigusamnings hvort það sé talið nokkuð líklegt að það muni nýta heimildir til framlenginga. Almennt er miðað við að samningar séu í gildi í 15 ár frá 1. janúar 2019. Ef verulegar breytingar verða á aðstæðum sem eru á valdi félagsins, mun það endurmeta hvort framlengingarheimildir verði nýttar.
25. Leiguskuldbindingar, frh.:
Leigugreiðslur:
| Fjarskipta- búnaður og lóðir | Fasteignir | Bifreiðar | Samtals | |
|---|---|---|---|---|
| Leigugreiðslur ársins | 28 | 264 | 20 | 312 |
| Þar af: Vaxtagjöld ( sjá skýringu 9) | 12 | 33 | 2 | 47 |
| Afborgun höfuðstóls | 16 | 231 | 18 | 265 |
| Leigugreiðslur 2022 | 10 | 235 | 17 | 262 |
| Þar af: Vaxtagjöld ( sjá skýringu 9) | 4 | 40 | 2 | 46 |
| Afborgun höfuðstóls | 6 | 195 | 15 | 216 |
Leiguskuldbindingar er flokkaðar á eftirfarandi hátt í efnahagsreikningi:
| 2023 | 2022 | |
|---|---|---|
| Langtímaskuldir | 503 | 731 |
| Skammtímaskuldir | 276 | 251 |
| 779 | 982 |
Afborgun
| Leigu- greiðslur | Vaxta- greiðslur | Afborgun höfuðstóls | Ónúvirtar greiðslur af leiguskuldbindingum: höfuðstóls | 2023 | 2022 | |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Til greiðslu 2024 / 2023 | 311 | 34 | 277 | 251 | ||
| Til greiðslu 2025 / 2024 | 299 | 19 | 280 | 253 | ||
| Til greiðslu 2026 / 2025 | 59 | 11 | 48 | 259 | ||
| Til greiðslu 2027 / 2026 | 38 | 8 | 30 | 45 | ||
| Til greiðslu 2028 / 2027 | 28 | 7 | 21 | 29 | ||
| Til greiðslu 2029 / 2028 og síðar | 141 | 17 | 124 | 145 | ||
| 876 | 96 | 780 | 982 |
Áhrif leigusamninga í rekstrarreikningi eru eftirfarandi:
| 2023 | 2022 | |
|---|---|---|
| Afskriftir leigueigna | 271 | 228 |
| Vaxtagjöld leigusamninga | 47 | 46 |
| 318 | 274 | |
| Leigugreiðslur | (312) | (262) |
| Tekjur (kostnaður) vegna leigusamnninga umfram leigugreiðslur | 6 | 12 |
EBITDA leiðrétt fyrir leigugreiðslum (fyrir IFRS 16) er eftirfarandi:
| 2023 | 2022 | |
|---|---|---|
| EBITDA samkvæmt rekstrarreikningi | 6.150 | 6.149 |
| Leigugreiðslur | (312) | (262) |
| EBITDAaL (EBITDA eftir leigugreiðslur) | 5.838 | 5.887 |
Skýringar 27 Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2023
Fjárhæðir eru í milljónum króna
| (73) | (80) | |
|---|---|---|
| Rekstrarfjármunir | ||
| Óefnislegar eignir | (174) | (436) |
| Skammtímakröfur | (23) | (19) |
| Leigðar eignir | (146) | (188) |
| Leiguskuldbindingar | 156 | 196 |
| Gengismunur | 15 | 24 |
| Langtímakröfur | 0 | 398 |
| Skattalegt tap | 13 | 16 |
| (232) | (89) | |
| Áfallinn kostnaður | 489 | 508 |
| Ógreidd laun og launatengd gjöld | 159 | 242 |
| Ógreiddur virðisaukaskattur | 314 | 210 |
| Aðrar skammtímaskuldir samtals | 962 | 960 |
Frestaður skattur skiptist þannig á einstaka liði efnahagsreikningsins:
Á árinu 2024 hækkar tekjuskattshlutfall félagsins úr 20% í 21%. Áhrif þess á tekjuskattsskuldbindingu félagsins eru metin óveruleg og því ekki færð í ársreikninginn.
27. Viðskiptaskuldir
Viðskiptaskuldir greinast þannig:
| 2023 | 2022 | |
|---|---|---|
| Viðskiptaskuldir | 2.980 | 3.281 |
| Áfallinn kostnaður | 1.281 | 1.507 |
| Viðskiptaskuldir samtals | 4.261 | 4.788 |
28. Aðrar skammtímaskuldir
Aðrar skammtímaskuldir greinast þannig:
29. Áhættustýring
29.1. Stýring fjármögnunaráhættu
Félagið stýrir fjárhagssamsetningu þannig að tryggt sé að félög samstæðunnar séu rekstrarhæf, með það markmið að hámarka hagnað hluthafa með því að finna bestu samsetningu eigin fjár á móti skuldum. Stefna félagsins er óbreytt frá fyrra ári. Fjárhagssamsetning félagsins samanstendur af lánum sem nánar eru upplistuð í skýringu númer 24, skammtímalánum og eigin fé sem samanstendur af útgefnu hlutafé, varasjóðum og óráðstöfuðu eigin fé.
26. Tekjuskattsskuldbinding
Hreyfingar á tekjuskattsskuldbindingu greinast á eftirfarandi hátt:
| 2023 | 2022 | |
|---|---|---|
| Tekjuskattsskuldbinding í ársbyrjun | 89 | 604 |
| Tekjuskattur af aflagðri starfsemi | 0 | (286) |
| Tekjuskattur tímabilsins | 346 | 345 |
| Skattar til greiðslu á næsta ári |
Skýringar 28
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2023
Fjárhæðir eru í milljónum króna
- Áhættustýring, frh.:
29.2. Stýring fjárhagslegrar áhættu
Starfsemi félagsins hefur það í för með sér að rekstur, eignir, skuldir og eigið fé eru undirorpin fjárhagslegri áhættu. Sú áhætta samanstendur meðal annars af markaðsáhættu, mestmegnis tengdri gengi gjaldmiðla og vaxtastigi, lánsáhættu og lausafjáráhættu. Fjárstýring Símans veitir félögum innan samstæðunnar miðlæga fjármálaþjónustu svo sem vegna fjármögnunar, gjaldeyriskaupa, vaxtastýringar og áhættumats. Starfsemi fjárstýringar er hagað innan ramma fjárstýringarstefnu Símans sem er endurskoðuð reglulega af stjórn félagsins. Félagið tekur ekki stöðu í fjármálagerningum, þar með talið afleiddum fjármálagerningum, byggða á spákaupmennsku.
29.3. Vaxtaáhætta
Vaxtaáhætta er áhættan af því að gangvirði eða framtíðarsjóðsflæði fjármálagerninga muni sveiflast vegna breytinga á markaðsvöxtum. Breytingar á markaðsvöxtum hafa áhrif á vaxtatekjur og vaxtagjöld í rekstrarreikningi. Lánasafn félagsins samanstendur af lánum í ISK með breytilegum vöxtum. Vaxtaberandi fjárskuldir félagsins eru hærri en vaxtaberandi fjáreignir, en vaxtaáhættan er vegna breytilegra vaxta. Áhættan liggur því í að möguleg hækkun á vöxtum leiði til hækkunar á fjármagnsliðum. Næmnigreining á breytingum á vöxtum var gerð miðað við stöðu á fjáreignum og fjárskuldum í lok ársins. Næmnigreiningin gerir ráð fyrir að fjárhæð fjárskulda með breytilega vexti í lok árs sé eins allt árið. Miðað við 100 punkta hækkun á markaðsvöxtum og að allar aðrar forsendur séu óbreyttar þá breytist afkoma og eigið fé um 43 m.kr. eftir skatta. (2022; 18 m.kr.). Fjáreignir og fjárskuldir félagsins með fasta vexti eru ekki færðar á gangvirði og því ekki næmar fyrir breytingum á vöxtum.
29.4. Gjaldmiðlaáhætta
Félagið ber stærstu áhættu gagnvart EUR og USD. Hluti af fjárfestingum félagsins er í erlendri mynt ásamt rekstrargjöldum. Að minna marki hefur gengið áhrif á rekstrartekjur félagsins. Í árslok 2023 voru engin af langtímalánum félagsins í erlendum gjaldmiðlum, eins og í árslok 2022.
Gengi helstu gjaldmiðla á árinu má sjá i eftirfarandi töflu:
| Meðalgengi | Árslokagengi | |||
|---|---|---|---|---|
| 2023 | 2022 | 2023 | 2022 | |
| EUR | 149,1 | 142,3 | 150,5 | 151,5 |
| USD | 138,0 | 135,4 | 136,2 | 142,0 |
Eignir og skuldir félagsins í erlendri mynt miðað við gengi í lok árs má sjá í eftirfarandi töflu:
| Eignir | Skuldir | |||
|---|---|---|---|---|
| 2023 | 2022 | 2023 | 2022 | |
| EUR | 188 | 299 | 940 | 1.827 |
| USD | 6 | 84 | 362 | 631 |
| Aðrir gjaldmiðlar | 1 | 9 | 15 | 14 |
| Samtals | 195 | 392 | 1.317 | 2.472 |
Efnahagsreikningur félagsins er ekki viðkvæmur gagnvart flökti á gengi gjaldmiðla. Næmnigreining á gengisáhættu metur áhrif flökts gengis gjaldmiðla á útistandandi fjármagnsliði miðað við gengi við lok núverandi tímabils. Gert er ráð fyrir að allar aðrar breytur séu fastar. Áhrifin að teknu tilliti til skatta á afkomu og eigið fé eru 9 m.kr. (2022: 17 m.kr) hækkun/lækkun fyrir hvert 1% í hækkun/lækkun á gengi krónunnar.
Skýringar 29
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2023
Fjárhæðir eru í milljónum króna
- Áhættustýring, frh.:
29.5. Lánsáhætta
Lánsáhætta er hættan á fjárhagslegu tapi félagsins ef viðskiptamaður eða mótaðili í fjármálagerningi getur ekki staðið við umsamdar skuldbindingar sínar. Áhætta félagsins gagnvart lánsáhættu er takmörkuð við fjárhagslegar eignir listaðar á efnahagsreikningi auk vissra ábyrgða. Félagið fylgist reglulega með þróun þeirra eigna sem tengjast útlánaáhættu. Viðskiptakröfur félagsins eru á hendur fjöldamörgum viðskiptavinum sem dreifast á margar starfsgreinar og landssvæði. Viðskiptakröfur eru því ekki háðar fáum stórum viðskiptavinum.
Hámarksútlánaáhætta greinist þannig:
| Mesta mögulega tap | 2023 | 2022 |
|---|---|---|
| Viðskiptakröfur | 2.357 | 2.129 |
| Útlán | 3.011 | 1.795 |
| Aðrar skammtímakröfur | 966 | 1.048 |
| Handbært fé | 1.810 | 3.721 |
| Ábyrgðir | 23 | 23 |
| Samtals | 8.167 | 8.716 |
Viðskiptakröfur: Meirihluti viðskiptakrafna félagsins eru til greiðslu innan 90 daga. Mynduð er niðurfærsla vegna áætlaðrar virðisrýrnunar viðskiptakrafna og annarra krafna. Niðurfærslan er í meginatriðum sérstök niðurfærsla vegna einstakra viðskiptamanna og sameiginleg niðurfærsla með tilliti til aldurs krafna, sem ekki hefur verið tengd einstökum viðskiptamönnum. Sameiginlega niðurfærslan er ákveðin með tilliti til innheimtusögu sambærilegra krafna.
Eftirfarandi tafla sýnir aldursdreifingu viðskiptakrafna sem komnar eru á gjalddaga að teknu tilliti til niðurfærslu:
| Nafnverð kröfu | Niðurfærsla | |||
|---|---|---|---|---|
| 2023 | 2022 | 2023 | 2022 | |
| Ógjaldfallið | 1.164 | 998 | 35 | 34 |
| Gjaldfallið innan 30 daga | 1.122 | 1.043 | 19 | 16 |
| Gjaldfallið fyrir 31-60 dögum | 43 | 48 | 8 | 9 |
| Gjaldfallið fyrir 61-180 dögum | 16 | 23 | 7 | 11 |
| Gjaldfallið fyrir meira en 180 dögum | 12 | 17 | 9 | 14 |
| Samtals | 2.357 | 2.129 | 78 | 84 |
Lánsáhætta vegna viðskiptavina er lítil þar sem að viðskiptamenn félagsins eru margir og ótengdir. Því telja stjórnendur félagsins ekki þörf á frekari varúðarfærslum umfram hefðbundnar niðurfærslur. Undir rekstrarkostnaði voru gjaldfærðar 30 m.kr. vegna niðurfærslu krafna á árinu 2023 (2022 26 m.kr.).
Útlán: Félagið notar virðisrýrnunarlíkan við mat á væntri útlánaáhættu sem er í samræmi við kröfur IFRS 9. Félagið framkvæmir áhættumat til að meta líkur á vanefndum viðskiptavina. Einstaklingar eru flokkaðir frá A1 til E3, þar sem A1 reiknast með minnstu og E3 með mestu líkur á vanefndum. Útlán þar sem ekki mælist marktæk aukning á útlánaáhættu falla undir stig 1. Útlán þar sem mælist marktæk aukning á útlánaáhættu frá upphaflegri skráningu falla undir stig 2. Útlán sem eru í vanefndum af hálfu lántaka falla undir stig 3.
Skýringar 30
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2023
Fjárhæðir eru í milljónum króna
- Áhættustýring, frh.:
29.5. Lánsáhætta, frh.:
Útlán til einstaklinga:
| Einkunn | Stig 1 | Stig 2 | Stig 3 | Samtals |
|---|---|---|---|---|
| A | 1.700 | 35 | 0 | 1.735 |
| B | 1.057 | 32 | 1 | 1.090 |
| C | 10 | 0 | 0 | 10 |
| D | 3 | 1 | 0 | 4 |
| E | 0 | 0 | 168 | 168 |
| Brúttó staða | 2.770 | 68 | 169 | 3.007 |
| Vænt útlánatap | ( 15) | ( 1) | ( 93) | ( 109) |
| Bókfærð staða | 2.755 | 67 | 76 | 2.898 |
29.6. Lausafjáráhætta
Lausafjáráhætta er áhættan á því að félagið lendi í erfiðleikum við að mæta fjárhagslegum skuldbindingum sínum í náinni framtíð. Félagið mætir þessari áhættu með því að gera áætlanir um greiðslur og tryggja nægjanlega varasjóði. Eftirfarandi tafla greinir skuldbindingar félagsins eftir gjalddögum þeirra. Taflan miðar við ónúvirtar greiðslur og að greitt sé á fyrsta samningsbundna greiðsludegi. Vegið meðaltal fljótandi vaxta er 11,10% (2022: 8,03%).
29.7. Gangvirði
Það er mat stjórnenda að ekki sé verulegur munur á bókfærðu virði fjáreigna og fjárskulda og gangvirði þeirra í reikningsskilunum.
- Ábyrgðir og önnur mál
Félagið hefur lagt eignir að veði til að tryggja skuldbindingar vegna lána að fjárhæð 6.038 m.kr. (2022: 6.026 m.kr.) í árslok.
- Málarekstur
Félagið stendur í málarekstri vegna mála sem snúa að túlkunum á fjarskipta-, fjölmiðla- og samkeppnislögum. Samkeppniseftirlitið komst að þeirri niðurstöðu í bráðabirgðaákvörðun nr. 30/2023 að Símanum væri skylt að endurnýja heildsölusamning við Nova hf. um Símann Sport til Nova sem rann út í maí 2023.# Skýringar
31. Málarekstur, frh.
Síminn telur að ákvörðun Samkeppniseftirlitsins skorti lagalegan grundvöll og kærði niðurstöðuna til áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Kærunni var vísað frá þar sem ekki var heimild í lögum að kæra bráðabirgðaákvörðunina og bíður málið þar af leiðandi efnislegrar meðferðar hjá Samkeppniseftirlitinu.
Fjárhæðir eru í milljónum króna
| Bókf. verð | Innan árs | 1-2 ár | 2-5 ár | > 5 ár | Samtals |
|---|---|---|---|---|---|
| 31. desember 2023 | |||||
| Langtímalán | 7.470 | 864 | 865 | 7.758 | 9.487 |
| Leiguskuldbindingar | 779 | 311 | 299 | 125 | 141 |
| Viðskiptaskuldir | 5.223 | 5.223 | |||
| Skammtímalán | 2.281 | 2.400 | 2.400 | ||
| Samtals | 15.753 | 8.798 | 1.164 | 7.883 | 141 |
| 31. desember 2022 | |||||
| Langtímalán | 5.956 | 501 | 502 | 6.753 | 7.756 |
| Leiguskuldbindingar | 982 | 296 | 285 | 370 | 169 |
| Viðskiptaskuldir | 5.748 | 5.748 | |||
| Skuldir við lánastofnanir | 1.929 | 2.053 | 2.053 | ||
| Samtals | 14.615 | 8.598 | 787 | 7.123 | 169 |
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Fjármálaeftirlitsnefnd Seðlabanka Íslands komst að þeirri niðurstöðu að sekta Símann um 76,5 m.kr. á grundvelli þess að stofnunin taldi að Síminn hefði ekki birt ætlaðar innherjaupplýsingar eða tekið ákvörðun um frestun á birtingu á ætluðum innherjaupplýsingum þann 31. ágúst 2021 í tengslum við sölu á dótturfélaginu Mílu ehf. Síminn hefur áfrýjað málinu til Héraðsdóms Reykjavíkur til að fá málinu hnekkt. Félagið hefur greitt fjárhæðina en ekki gjaldfært í ársreikningi. Samkeppniseftirlitið komst að þeirri niðurstöðu á árinu 2020 að Síminn hefði brotið gegn ákvörðunum Samkeppniseftirlitsins nr. 6/2015 og 20/2015 og lagði á sekt að fjárhæð 500 m.kr. sem Síminn greiddi. Síminn kærði ákvörðun Samkeppniseftirlitsins til áfrýjunarnefndar samkeppnismála og gerði kröfu um ógildingu ákvörðunarinnar. Áfrýjunarnefnd samkeppnismála skilaði úrskurði í byrjun árs 2021 þar sem nefndin felldi úr gildi þann hluta ákvörðunar Samkeppniseftirlitsins sem laut að meintu broti gegn 6/2015 og lækkaði sektina niður í 200 m.kr. Síminn og Samkeppniseftirlitið höfðuðu mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur frá 11. október 2022 var að fella ákvörðun Samkeppniseftirlitsins úr gildi og gerði Samkeppniseftirlitinu að endurgreiða Símanum 200 m.kr. auk dráttarvaxta. Samkeppniseftirlitið áfrýjaði dóminum til Landsréttar. Landsréttur staðfesti niðurstöðu Héraðsdóms með dómi þann 16. febrúar 2024, um að ógilda ákvörðun Samkeppniseftirlitsins í heild sinni.
Síminn og Sýn hafa átt í ágreiningi í tengslum við dreifingu á sjónvarpsefni. Póst- og fjarskiptastofnun (nú Fjarskiptastofa) komst að þeirri niðurstöðu að Síminn hefði farið gegn fjölmiðlalögum sbr. ákvörðun PFS nr. 10/2018. Lagði stofnunin á sekt að fjárhæð 9 m.kr. sem félagið hefur þegar greitt. Síminn telur að háttsemi félagsins sé í fullu samræmi við ákvæði fjölmiðlalaga og höfðaði mál til ógildingar ákvörðunar Póst- og fjarskiptastofnunar. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í málinu og ógilti ákvörðun PFS að hluta og lækkaði sektina niður í 7 m.kr. Síminn áfrýjaði málinu til Landsréttar sem staðfesti niðurstöðu Póst- og fjarskiptastofnunar og hækkaði sektina aftur í 9 m.kr. Síminn áfrýjaði málinu til Hæstaréttar en rétturinn ómerkti niðurstöðu Landsréttar og héraðsdóms og vísaði málinu aftur heim í hérað til löglegrar meðferðar. Héraðsdómur skilaði dómsúrlausn og staðfesti meint brot en felldi niður sektina á þeim grundvelli að lagaheimild skorti til að sekta.
Í kjölfarið á ákvörðun PFS sendi Sýn kröfu til Símans um greiðslu skaðabóta að fjárhæð 1,9 ma.kr. Síminn hafnaði kröfunni og benti á að það mætti hvorki ráða af erindi Sýnar að skilyrði skaðabótaskyldu væri fyrir hendi né heldur væri gerð tilraun til að færa sönnur á ætlað tjón Sýnar. Að mati Símans var um tilhæfulausa kröfu að ræða og vísaði Héraðsdómur Reykjavíkur kröfu Sýnar frá dómi vegna vanreifunar. Í framhaldinu lagði Sýn fram beiðni um dómkvaðningu matsmanna og stefndi Símanum fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur til greiðslu skaðabóta að fjárhæð 125 m.kr. vegna áranna 2015-2017. Síminn hafnaði málatilbúnaði Sýnar en þann 19. febrúar 2024 dæmdi héraðsdómur Símann til þess að greiða Sýn 16,5 m.kr. í skaðabætur, auk dráttarvaxta frá 7. apríl 2020. Sýn stefndi Símanum einnig til greiðslu fjárhæðar 270 m.kr. vegna áranna 2018-2019. Síminn skilaði greinargerð þar sem málatilbúnaði Sýnar var hafnað.
Staða eftirfarandi mála er óbreytt frá útgáfu ársreiknings 2022. Þá hefur Gagnaveita Reykjavíkur (nú Ljósleiðarinn) sent Símanum kröfu um greiðslu að fjárhæð 1,3 ma.kr. Síminn hafnaði kröfunni og benti á að það mætti ekki ráða af erindi Ljósleiðarans að skilyrði skaðabótaskyldu væri fyrir hendi. Að mati Símans er um tilhæfulausa kröfu að ræða.
PFS og Sýn hafa ennfremur höfðað mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur og gert kröfu um að úrskurður úrskurðarnefndar póst- og fjarskiptamála nr. 7/2019 verði felldur úr gildi, en úrskurður nefndarinnar fól í sér ógildingu á ákvörðun PFS nr. 27/2019 þar sem stofnunin lagði sekt að fjárhæð 9 m.kr. á Símann. Síminn mun gera kröfu um að úrskurður nefndarinnar standi óhaggaður.
Þrátt fyrir að óvissa sé um niðurstöður þessara mála er það mat stjórnenda að ekki komi til verulegra fjárútláta vegna þeirra. Félagið hefur ekki fært neinn kostnað í reikningsskil sín vegna mögulegra bóta í framangreindum málum enda mat félagsins að þau séu tilhæfulaus.
32. Tengdir aðilar
Hluthafar sem hafa veruleg áhrif á starfsemi samstæðunnar, stjórnendur og stjórnarmenn og nánir fjölskyldumeðlimir þeirra og félög sem þeir ráða yfir teljast til tengdra aðila. Viðskipti við tengda aðila eru óveruleg. Viðskiptum milli félaga sem innifalin eru í samstæðureikningi hefur verið eytt út í samstæðureikningi félagsins. Laun og hlunnindi til stjórnar og stjórnenda félagsins vegna starfa fyrir félög í samstæðunni og eignarhlutir í félaginu greinast þannig:
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Fyrir árið 2023
| Laun og hlunnindi | Kaupaukar | Mótframlag í lífeyrissjóð | Fjöldi hluta (beinn/óbeinn) | |
|---|---|---|---|---|
| Laun og hlunnindi stjórnar og forstjóra | ||||
| Jón Sigurðsson, formaður | 11,3 | 1,3 | 461,2 | |
| Sigrún Ragna Ólafsdóttir, varaformaður | 6,3 | 0,9 | 0,2 | |
| Arnar Þór Másson, stjórnarmaður | 5,9 | 0,7 | 0,0 | |
| Bjarni Þorvarðarson, stjórnarmaður | 6,3 | 0,9 | 0,0 | |
| Björk Viðarsdóttir, stjórnarmaður | 5,9 | 0,7 | 0,0 | |
| Orri Hauksson, forstjóri | 66,0 | 18,9 | 10,9 | 16,7 |
| Framkvæmdastjórar* | 176,0 | 35,8 | 26,4 | 2,6 |
| Samtals | 277,7 | 54,7 | 41,8 | 480,7 |
*Framkvæmdastjórar innan móðurfélags, samtals 5 aðilar. Lækkun á eignarhlutum stjórnar, forstjóra og framkvæmdastjóra milli ára skýrist af lækkun hlutafjár sem framvæmd var á árinu.
Fyrir árið 2022
| Laun og hlunnindi | Kaupaukar | Mótframlag í lífeyrissjóð (beinn/óbeinn) | Fjöldi hluta | |
|---|---|---|---|---|
| Laun og hlunnindi stjórnar og forstjóra | ||||
| Jón Sigurðsson, formaður | 10,6 | 1,2 | 700,5 | |
| Sigrún Ragna Ólafsdóttir, varaformaður | 5,9 | 0,8 | 0,3 | |
| Arnar Þór Másson, stjórnarmaður | 5,6 | 0,6 | 0,0 | |
| Bjarni Þorvarðarson, stjórnarmaður | 5,9 | 0,8 | 0,0 | |
| Björk Viðarsdóttir, stjórnarmaður | 5,6 | 0,6 | 0,0 | |
| Orri Hauksson, forstjóri | 60,4 | 42,6 | 13,4 | 25,1 |
| Framkvæmdastjórar* | 139,0 | 71,0 | 26,7 | 3,9 |
| Samtals | 233,0 | 113,6 | 44,1 | 729,8 |
*Framkvæmdastjórar innan móðurfélags, samtals 5 aðilar, þar af 2 aðilar frá miðju ári.
33. Þóknun til endurskoðenda
Þóknun til endurskoðenda samstæðunnar sundurliðast þannig:
| 2023 | 2022 | |
|---|---|---|
| Endurskoðun ársreiknings og könnun ársreiknings | ||
| KPMG Íslandi | 18 | 15 |
| KPMG Danmörku | 1 | 1 |
| Samtals | 19 | 16 |
| Önnur þóknun til endurskoðunarfyrirtækja | ||
| KPMG Íslandi | 13 | 7 |
| Samtals | 13 | 7 |
| Þóknun til endurskoðenda samstæðunnar samtals | 32 | 23 |
Fjárhæðir eru í milljónum króna
34. Atburðir eftir reikningsskiladag
Þann 18. janúar sl. var tilkynnt um kaup Símans á öllu hlutafé í félögunum BBI ehf., Dengsa ehf., og Billboard ehf. Kaupin eru háð hefðbundnum fyrirvörum og samþykki Samkeppniseftirlitsins en sjá má frekari umfjöllun í skýrslu stjórnar. Engir aðrir atburðir hafa átt sér stað eftir lok reikningsskiladags sem höfðu áhrif á ársreikninginn eða veita þarf upplýsingar um.
35.# Mikilvægar reikningsskilaaðferðir
Reikningsskilaaðferðum sem er lýst hér á eftir hefur verið beitt með samræmdum hætti fyrir öll tímabil sem koma fram í ársreikningnum af öllum félögum í samstæðunni. Þeir reikningsskilastaðlar sem tóku gildi 1. janúar 2023 hafa ekki veruleg áhrif á reikningsskil félagsins. Til að auka upplýsingagildi ársreikningsins eru skýringar við hann birtar á grundvelli þess hversu viðeigandi og mikilvægar þær eru fyrir lesandann. Það þýðir að upplýsingar sem metnar eru hvorki mikilvægar né viðeigandi fyrir notanda reikningsskilanna eru ekki birtar í skýringum.
35.1. Samstæða
Ársreikningur samstæðunnar tekur til ársreiknings móðurfélagsins og dótturfélaga þess. Dótturfélög eru þau félög þar sem samstæðan fer með yfirráð. Yfirráð grundvallast af því hvort fjárfestir hefur ákvörðunarvald yfir fjárfestingunni, ber áhættu eða hefur réttinn til að njóta breytilegs ávinnings vegna þátttöku í fjárfestingunni og getur með ákvörðunarvaldi haft áhrif á ávinning sinn af fjárfestingunni. Rekstrarniðurstaða keyptra eða seldra dótturfélaga er meðtalin í samstæðurekstrarreikningi frá og með kaupdegi eða fram að söludegi eftir því sem við á. Ef við á eru gerðar leiðréttingar á reikningsskilum dótturfélaga til samræmis við reikningsskilaaðferðir samstæðunnar. Meðal markmiða samstæðureikningsskilanna er að birta einungis tekjur, gjöld, eignir og skuldir samstæðunnar út á við og er því viðskiptum innan hennar eytt út við gerð reikningsskilanna.
35.2. Sameining félaga
Kaup á dótturfélögum eru færð samkvæmt kaupaðferð en í henni felst að eignir, skuldir og eiginfjárgerningar útgefnir af samstæðunni, sem látin eru í skiptum fyrir yfirráð í keyptu félagi, eru metnar til gangvirðis á kaupdegi. Viðskiptakostnaður tengdur kaupunum er færður í rekstrarreikningi á því tímabili sem hann fellur til. Ef kaupin fela í sér óvissa greiðslu er eignin eða skuldin sem tengist kaupunum metin á gangvirði á kaupdegi og hluti kaupverðsins sem er umfram gangvirði eignarhluta samstæðunnar í eignum, skuldum og óvissum skuldum félaga á kaupdegi er færður sem viðskiptavild. Síðari breytingar á gangvirði slíkra eigna og skulda eru færðar til jöfnunar á kostnaði tengdum kaupunum þar sem þær uppfylla skilyrði um leiðréttingu á tímabilinu (sjá hér að neðan). Allar aðrar síðari breytingar á gangvirði óvissra eigna og skulda eru færðar í samræmi við viðeigandi IFRS staðal. Matstímabilið er frá kaupdegi til þess dags er félagið hefur fengið fullnægjandi upplýsingar um aðstæður á kaupdegi, að hámarki 1 ár.
35.3. Viðskiptavild
Viðskiptavild sem myndast við sameiningu er færð til eignar þann dag sem félagið nær yfirráðum í keyptu félagi (á kaupdegi). Viðskiptavild er mismunur á kaupverði dótturfélags og hlutdeildar í hreinni eign þess eftir að eignir og skuldir hafa verið metnar til gangvirðis á kaupdegi. Viðskiptavildin er færð í starfsrækslugjaldmiðli keyptu einingarinnar og uppreiknuð miðað við uppgjörsgengi í lok uppgjörstímabils. Viðskiptavild er ekki afskrifuð heldur metin árlega með tilliti til virðisrýrnunar eða oftar ef vísbending um virðisrýrnun er til staðar. Við framkvæmd virðisrýrnunarprófs er viðskiptavildinni skipt niður á fjárskapandi einingar. Þær fjárskapandi einingar sem viðskiptavildinni hefur verið úthlutað á eru prófaðar með tilliti til virðisrýrnunar og ef bókfært verð er hærra en virði þeirra hefur virðisrýrnun átt sér stað. Hafi virðisrýrnun átt sér stað er viðskiptavild fyrst færð niður og síðar aðrar eignir sem tilheyra viðkomandi fjárskapandi einingu. Óheimilt er að bakfæra áður færða virðisrýrnun viðskiptavildar á síðari tímabilum. Við sölu á dótturfélagi er fjárhæð viðskiptavildar, sem rekja má til þess, reiknuð inn í söluhagnað eða sölutap sem birt er í rekstrarreikningi.
Skýringar 34
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2023
Fjárhæðir eru í milljónum króna
35. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir, frh.:
35.4. Tekjur
Tekjur af sölu á vörum og þjónustu eru metnar á gangvirði greiðslunnar sem er móttekin eða er innheimtanleg, að frádregnum afsláttum og endurgreiðslum. Tekjur eru færðar í rekstrarreikning þegar félagið hefur uppfyllt samningsskyldu sína sem er yfirleitt við afhendingu, líklegt er að endurgjaldið verði innheimt og unnt er að meta kostnað vegna sölunnar og möguleg skil á vörum á áreiðanlegan hátt. Megintekjuflokkar félagsins eru eftirfarandi: samtengingar- og reikitekjur, mánaðargjöld, stofngjöld, línuleigur, útseld vinna, auglýsingar í sjónvarpi og notendabúnaður. Mánaðargjöld eru tekjufærð miðað við áskriftartímabil en tekjur vegna umferðar eru færðar miðað við raunverulega notkun viðskiptavina. Tekjum vegna fyrirframgreiddrar þjónustu er frestað þar til viðskiptavinur nýtir þá þjónustu sem hann hefur greitt fyrir. Tekjur af vörusölu eru færðar í rekstrarreikning þegar verulegur hluti áhættu og eignarhalds flyst til kau panda. Auglýsingatekjur í sjónvarpi eru færðar í rekstrarreikning þegar auglýsingar eru birtar. Tekjufærsla þeirra er gerð við fyrstu sýningu þrátt fyrir að sama auglýsing geti verið birt oftar en einu sinni vegna endursýninga á sjónvarpsþáttum. Sama regla gildir um kostun einstakra sjónvarpsþátta. Tekjur af veittri þjónustu eru færðar í rekstrarreikning í hlutfalli við stöðu verks á uppgjörsdegi. Staða verks er metin með hliðsjón af vinnu sem lokið er.
35.5. Erlendir gjaldmiðlar
Ársreikningar félaga innan samstæðunnar eru gerðir í þeim gjaldmiðli sem stærstur hluti starfseminnar heyrir undir, þ.e. starfsrækslugjaldmiðli. Við gerð ársreiknings samstæðu eru ársreikningar erlendra dótturfélaga umreiknaðir í íslenskar krónur sem er starfsrækslugjaldmiðill og framsetningargjaldmiðill móðurfélagsins. Við gerð reikningsskila hvers félags innan samstæðunnar eru viðskipti í öðrum gjaldmiðlum en starfsrækslugjaldmiðli færð á gengi hvers viðskiptadags. Peningalegar eignir og skuldir eru færðar miðað við skráð gengi á reikningsskiladegi. Efnislegar eignir og skuldir metnar á kostnaðarverði eru færðar á upphaflegu skráðu gengi. Við gerð samstæðuársreiknings eru eignir og skuldir erlendra félaga umreiknaðar á skráðu gengi reikningsskiladags. Tekjur og gjöld eru umreiknuð á meðalgengi ársins. Við sölu erlendrar rekstrareiningar er uppsafnaður gengismunur tengdur rekstrareiningunni í samstæðunni færður af eigin fé í rekstrarreikning. Þýðingarmunur sem búið var að ráðstafa til minnihluta er bakfærður en ekki gjaldfærður í rekstrarreikning. Viðskiptavild og gangvirðisbreytingar vegna kaupa á erlendri starfsemi eru færðar á skráðu gengi reikningsskiladags.
35.6. Skattamál
Gjaldfærður tekjuskattur samanstendur af tekjuskatti til greiðslu og frestuðum tekjuskatti.
Tekjuskattur til greiðslu
Tekjuskattur til greiðslu er tekjuskattur sem áætlað er að komi til greiðslu á næsta ári vegna skattskylds hagnaðar ársins auk leiðréttinga á tekjuskatti til greiðslu vegna fyrri ára. Skattskyldur hagnaður getur verið annar en reikningshaldslegur hagnaður. Reiknaður tekjuskattur miðast við gildandi skatthlutfall á reikningsskiladegi á hverju skattasvæði.
Frestaður tekjuskattur
Frestaður tekjuskattur stafar af tímabundnum mismuni efnahagsliða í skattuppgjöri annars vegar og ársreikningi hins vegar þar sem tekjuskattstofn félagsins er miðaður við aðrar forsendur en reikningsskil þess. Tekjuskattsskuldbinding er uppreiknuð fyrir allan tímabundinn mismun. Tekjuskattseign er uppreiknuð að því marki sem metið er að nýtist á móti skattskyldum hagnaði í framtíðinni. Frestaður tekjuskattur er ekki færður vegna viðskiptavildar sem ekki er skattalega frádráttarbær. Frestaður tekjuskattur miðast við gildandi skatthlutfall á reikningsskiladegi.
Skýringar 35
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2023
Fjárhæðir eru í milljónum króna
35. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir, frh.:
35.6. Skattamál, frh.:
Tekjuskattseign og tekjuskattsskuldbindingu er jafnað saman innan samstæðunnar þegar lagalegur réttur er til þess, þau varða tekjuskatt sem lagður er á af sömu yfirvöldum á sama fyrirtæki eða mismunandi fyrirtæki sem eru samsköttuð og gert er ráð fyrir að muni greiða skatta sameiginlega. Skattar tímabilsins Frestaður skattur er gjaldfærður í rekstrarreikningi nema þegar hann tengist liðum meðal eigin fjár en þá er hann færður meðal eigin fjár.
35.7. Hagnaður á hlut
Í ársreikningnum er sýndur grunnhagnaður á hlut og þynntur hagnaður á hlut fyrir almenna hluti í félaginu. Grunnhagnaður á hlut er reiknaður sem hlutfall hagnaðar, sem ráðstafað er til hluthafa í móðurfélaginu, og vegins meðalfjölda virkra hluta á árinu. Þynntur hagnaður á hlut er reiknaður með því að leiðrétta meðalfjölda virkra hluta vegna mögulegrar þynningar vegna hluta sem gæti þurft að gefa út í samræmi við kaupréttarsamninga starfsmanna.
35.8. Rekstrarfjármunir
Eignir eru skráðar meðal rekstrarfjármuna þegar líklegt er að hagrænn ávinningur tengdur eigninni muni nýtast samstæðunni og hægt er að meta kostnað vegna eignarinnar með áreiðanlegum hætti. Rekstrarfjármunir eru færðir á upphaflegu kostnaðarverði að frádregnum uppsöfnuðum afskriftum og virðisrýrnun. Afskriftir eru færðar á kerfisbundinn hátt á áætluðum nýtingartíma eignarinnar að teknu tilliti til vænts hrakvirðis. Afskriftaraðferð, áætlaður nýtingartími og hrakvirði er endurmetið að minnsta kosti árlega. Hagnaður eða tap vegna sölu rekstrarfjármuna er mismunur söluverðs og bókfærðs verðs eigna á söludegi og er fært í rekstrarreikning.
35.9. Óefnislegar eignir
Keyptar óefnislegar eignir
Óefnislegar eignir eru færðar á kostnaðarverði að frádregnum uppsöfnuðum afskriftum og virðisrýrnun. Afskriftir eru færðar á kerfisbundinn hátt á áætluðum nýtingartíma eignarinnar. Áætlaður nýtingartími er endurmetinn í lok hvers reikningsskilatímabils.
Óefnislegar eignir sem myndast við sameiningu félaga
Óefnislegar eignir sem myndast í reikningsskilum við sameiningu félaga eru aðeins færðar ef þær eru aðgreinanlegar frá viðskiptavild. Við upphaflega skráningu eru þær færðar á kostnaðarverði á kaupdegi en við síðara mat eru þær færðar á kostnaðarverði að frádregnum uppsöfnuðum afskriftum og virðisrýrnun.
35.10.# Virðisrýrnun af öðrum eignum en viðskiptavild
Á reikningsskiladegi er bókfært verð efnislegra og óefnislegra eigna yfirfarið í þeim tilgangi að kanna hvort vísbending sé um virðisrýrnun. Sé slík vísbending til staðar er endurheimtanlegt virði eignarinnar metið. Endurheimtanlegt virði fjárskapandi einingar sem eignin fellur undir er metið þegar ekki er hægt að meta endurheimtanlegt virði einstakra eigna.
Óefnislegar eignir sem hafa óendanlegan líftíma eru yfirfarnar í þeim tilgangi að kanna hvort vísbending sé um virðisrýrnun. Endurheimtanlegt virði er annað hvort gangvirði að frádregnum áætluðum sölukostnaði eða nýtingarvirði eignar, hvort sem hærra reynist. Nýtingarvirði er áætlað framtíðarfjárstreymi sem er núvirt með vöxtum fyrir skatta þar sem vextirnir endurspegla mat markaðarins á tímavirði peninga hverju sinni og þá áhættu sem fylgir eigninni.
Sé endurheimtanlegt virði eignar metið lægra en bókfært verð er virði hennar fært niður í endurheimtanlegt virði. Tap vegna virðisrýrnunar er fært í rekstrarreikning en hafi eignin verið endurmetin kemur virðisrýrnunin fyrst til lækkunar á áður færðu endurmati. Ef tap vegna virðisrýrnunar snýst við er bókfært verð eignarinnar hækkað aftur en þó aldrei umfram bókfært verð fyrir virðisrýrnun að teknu tilliti til afskrifta. Bakfærsla virðisrýrnunar færist í rekstrarreikning nema viðkomandi eign hafi áður verið endurmetin, en þá er hækkunin færð sem endurmatshækkun.
Skýringar 36
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2023
Fjárhæðir eru í milljónum króna
35. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir, frh.:
35.11. Birgðir
Birgðir eru metnar á kostnaðarverði eða söluverði hvort sem lægra reynist, að teknu tilliti til úreltra og gallaðra vara. Kostnaðarverð birgða samanstendur af kostnaði við öflun þeirra ásamt öðrum kostnaði sem fellur til við að koma birgðunum í söluhæft ástand. Söluverð er áætlað söluverð að frádregnum áætluðum sölukostnaði.
35.12. Skuldbindingar
Skuldbinding er færð þegar samstæðan ber lagalega eða líklega greiðsluskyldu vegna liðinna atburða og hægt er að meta fjárhæð hennar með áreiðanlegum hætti. Fjárhæð skuldbindingar er byggð á besta mögulega mati á skuldinni sem er fyrirliggjandi á reikningsskiladegi. Ef skuldbindingin er metin út frá áætluðu framtíðarsjóðstreymi er skuldbinding færð miðað við núvirt áætlað sjóðstreymi.
Þegar virði skuldbindingarinnar er endurheimtanlegt frá þriðja aðila er fjárhæð hennar færð til eignar.
35.13. Fjáreignir
Fjáreignir eru flokkaðar á afskrifuðu kostnaðarverði. Flokkunin er ákveðin við upphaflega skráningu og fer eftir eðli og tilgangi fjáreignarinnar. Öll almenn viðskipti með fjáreignir eru skráð á viðskiptadegi. Með almennum viðskiptum er átt við kaup og sölu fjáreigna sem grundvallast af samningi eða markaðsvenjum um afhendingu eða móttöku fjáreigna innan tiltekins tíma.
Vaxtatekjur eru færðar miðað við virka vexti fyrir alla fjármálagerninga. Aðferð virkra vaxta felst í því að reiknað er endurgreiðsluvirði fjáreignar eða fjárskuldar og vaxtatekjum og vaxtagjöldum jafnað á líftímanum. Virkir vextir er sú ávöxtunarkrafa sem núvirðir áætlað sjóðstreymi eða tekjur yfir áætlaðan líftíma fjármálagernings, eða yfir styttra tímabil ef við á, þannig að það jafngildi bókfærðri fjárhæð fjáreignarinnar eða fjárskuldarinnar í efnahagsreikningi.
Vaxtatekjur eru færðar miðað við virka vexti fyrir alla fjármálagerninga aðra en þá sem skilgreindir eru sem fjáreignir á gangvirði í gegnum rekstrarreikning.
Fjáreignir færðar á afskrifuðu kostnaðarverði
Fjáreignir á afskrifuðu kostnaðarverði eru fjáreignir með föstum eða ákvarðanlegum greiðslum sem ekki eru skráðar á virkum markaði. Slíkar eignir eru í upphafi færðar á gangvirði að viðbættum öllum tengdum viðskiptakostnaði, nema gerningurinn sé skilgreindur á gangvirði í gegnum rekstrarreikning í samræmi við gangvirðisheimildina. Eftir upphaflega skráningu eru fjáreignir færðar á afskrifuðu kostnaðarverði miðað við virka vexti, að frádreginni virðisrýrnun þegar við á.
Fjáreignir samanstanda af handbæru fé, verðbréfaeign, samningum, útlánum, viðskiptakröfum og öðrum kröfum.
Virðisrýrnun fjáreigna
Á reikningsskiladegi er bókfært verð fjáreigna metið í þeim tilgangi að kanna hvort vísbending sé um virðisrýrnun. Virðisrýrnun hefur orðið ef vænt framtíðarsjóðstreymi miðað við upphaflega virka vexti er lægra en bókfært verð.
Ef virðisrýrnun á ekki lengur við er hún bakfærð í rekstrarreikningi, þó aldrei umfram bókfært verð fyrir virðisrýrnun að teknu tilliti til afskrifta. Ákveðin tegund fjáreigna eins og viðskiptakröfur eru færðar á nafnverði að teknu tilliti til niðurfærslu. Niðurfærslan er ekki endanleg afskrift heldur er myndaður mótreikningur til að mæta hugsanlegu tapi sem kann að myndast í framtíðinni.
Eignasafn fjáreigna er metið til virðisrýrnunar ef einstakar eignir eru þess eðlis að þær verði ekki metnar hver fyrir sig.
Afskráning fjáreigna
Félagið afskráir fjáreignir aðeins þegar samningsbundinn réttur til framtíðarsjóðstreymis af fjáreigninni er ekki lengur til staðar eða þegar áhættan eða ávinningurinn af fjáreigninni flyst yfir á annað félag.
35.14. Fjárskuldir
Fjárskuldir
Fjárskuldir eru flokkaðar sem aðrar fjárskuldir.
Aðrar fjárskuldir
Aðrar fjárskuldir, þar á meðal skuldir við fjármálastofnanir, viðskiptaskuldir og aðrar fjárskuldir eru upphaflega skráðar á gangvirði að frádregnum viðskiptakostnaði. Við síðara mat eru þær færðar á afskrifuðu kostnaðarverði miðað við aðferð virkra vaxta.
Skýringar 37
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2023
Fjárhæðir eru í milljónum króna
35. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir, frh.:
35.14. Fjárskuldir, frh.:
Afskráning fjárskulda
Félagið afskráir fjárskuldir eingöngu þegar skuldbinding vegna þeirra er ekki lengur til staðar. Hagnaður eða tap vegna afskráningar er fært í rekstrarreikning.
35.15. Leigusamningar
Við upphaf samnings leggur félagið mat á það hvort samningur eða hluti hans feli í sér leigusamning. Samningur er leigusamningur að hluta eða heild ef hann felur í sér afnotarétt yfir eign á tilteknu tímabili í skiptum fyrir endurgjald. Við mat á því hvort leigusamningur felur í sér afnotarétt yfir eign notar félagið skilgreiningu leigusamnings í IFRS 16.
35.15.1. Félagið sem leigutaki
Við upphaf eða breytingu á samningi sem felur í sér leiguhluta úthlutar félagið endurgjaldinu á sérhvern leiguhluta á grundvelli sjálfstæðs verðs hvers hlutar fyrir sig. Fyrir leigusamninga um fasteignir hefur félagið hins vegar kosið að aðgreina ekki leiguhluta frá öðrum hlutum samningsins og færir þá sem einn leigusamning.
Félagið færir leigueign og leiguskuld við upphaf leigusamnings. Leigueignin er upphaflega færð á kostnaðarverði, sem er upphaflega fjárhæð leiguskuldarinnar að teknu tilliti til leigugreiðslna sem hafa fallið til fyrir eða á upphafsdegi samningsins, beins kostnaðar við öflun leigueignarinnar og áætlaðs kostnaðar við að taka niður og fjarlægja eignina, eða til þess að færa eignina eða umhverfi hennar í samt horf að loknum leigusamningi, og að frádregnum leiguílvilnunum sem félagið hefur fengið.
Leigueignin er afskrifuð línulega frá upphafi til loka leigusamningsins, nema þegar eignarhald flyst yfir til félagsins í lok leigutímabilsins eða ef kostnaðarverð leigueignarinnar endurspeglar að félagið muni nýta sér kauprétt í lok leigutímabilsins. Í þeim tilfellum er leigueignin afskrifuð á nýtingartíma eignarinnar, sem er ákvarðaður með sömu aðferð og notuð er fyrir aðra fastafjármuni félagsins. Jafnframt er virði leigueignar lækkað reglubundið um sem nemur virðisrýrnun hennar, ef einhver er, og leiðrétt vegna endurmats leiguskuldarinnar.
Leiguskuld er upphaflega færð við núvirði ógreiddra leigugreiðslna á upphafsdegi leigusamningsins. Greiðslurnar eru núvirtar með því að nota innbyggða vexti leigusamningsins, séu þeir tiltækir, en annars notar félagið þá vexti sem það fær af nýju lánsfé. Að jafnaði notar félagið vexti á nýju lánsfé til núvirðingar. Félagið ákvarðar vexti af nýju lánsfé með því að sækja vaxtaupplýsingar vegna ólíkra fjármögnunarleiða og gerir tilteknar aðlaganir til að endurspegla skilmála leigusamningsins og eiginleika eignarinnar sem er leigð.
Leigugreiðslur sem eru innfaldar í ákvörðun fjárhæðar leiguskuldar fela í sér eftirfarandi:
- Fastar greiðslur, þar með taldar leigugreiðslur sem eru samkvæmt eðli sínu fastar;
- Breytilegar leigugreiðslur tengdar vöxtum eða vísitölu, upphaflega áætlaðar miðað við vexti eða vísitölu á upphafsdegi;
- Fjárhæðir sem gert er ráð fyrir að þurfi að greiða samkvæmt hrakvirðistryggingu; og
- Kaupverð samkvæmt kaupréttarákvæði í leigusamningi þegar félagið telur nokkuð víst að það muni nýta kaupréttinn, leigugreiðslur á valkvæðum framlengingartímabilum ef félagið er nokkuð viss um að það muni nýta framlengingarheimildir og greiðslur vegna uppsagnar leigusamnings fyrir lok leigutímans, nema félagið sé nokkuð viss um að nýta ekki uppsagnarheimildir.
Leiguskuldin er færð á afskrifuðu kostnaðarverði með því að nota aðferð virkra vaxta. Hún er endurmetin þegar breyting verður á framtíðarleigugreiðslum vegna breytinga á vísitölu eða vöxtum, ef breyting verður á mati félagsins á fjárhæð sem það væntir að verði greidd samkvæmt hrakvirðistryggingu, ef félagið breytir mati sínu á því hvort það muni nýta kaupréttarákvæði, heimildir til framlengingar eða uppsagnar leigusamnings eða þegar breyting verður á fjárhæð leigugreiðslu sem er í eðli sínu föst.
Þegar leiguskuldin er endurmetin með þessum hætti er samsvarandi leiðrétting gerð á bókfærðu verði leigueignarinnar eða leiðrétting færð í rekstrarreikning félagsins ef bókfært virði leigueignarinnar hefur verið fært niður í núll.
Skammtímaleigusamningar og leigusamningar um lágvirðiseignir
Félagið kýs að færa ekki leigueignir og leiguskuldir vegna leigusamninga um lágvirðiseignir og skammtímaleigusamninga. Félagið gjaldfærir leigugreiðslur vegna þessara leigusamninga línulega á leigutíma.
Skýringar 38
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2023
Fjárhæðir eru í milljónum króna
36.# Nýir reikningsskilastaðlar sem ekki hafa tekið gildi
Nokkrir nýir alþjóðlegir reikningsskilastaðlar gilda um fjárhagsár sem hefjast eftir 1. janúar 2023 og heimilt er að beita fyrir gildistöku þeirra. Félagið hefur ekki innleitt nýja eða breytta reikningsskilastaðla fyrir gildistíma við gerð samstæðuársreikningsins. Ekki er búist við að eftirfarandi nýir og breyttir reikningsskilastaðlar hafi veruleg áhrif á reikningsskil félagsins.
– Flokkun skulda sem skammtíma- og langtímaskuldir og langtímaskuldir með fjárhagsskilyrðum (breytingar á IAS 1)
– Samningar um birgjafjármögnun (Breytingar á IAS 7 og IFRS 7)
– Leiguskuldbindingar í samningum um sölu og endurleigu (Breytingar á IFRS 16)
– Skortur á skiptanleika gjaldmiðla (Breytingar á IAS 21)
Stjórnarháttayfirlýsing
39 Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2023
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Umgjörð um stjórnarhætti
Stjórnarhættir hjá Símanum eru skilgreindir sem umgjörð utan um umsýslu og stjórnun fyrirtækisins og tæki til samskipta milli stjórnenda fyrirtækisins, félagsstjórnar, hluthafa og annarra hagsmunaaðila. Stjórnarhættir Símans eru markaðir af lögum nr. 2/1995 um hlutafélög, samþykktum félagsins, starfsreglum stjórnar og siðareglum félagsins auk þess sem félagið hefur innleitt samkeppnisréttaráætlun í starfsemi sína sem er mikilvægur hluti af stjórnarháttum þess. Stjórnarhættirnir fylgja leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja sem gefnar eru út af Viðskiptaráði Íslands, Nasdaq OMX Iceland hf. og Samtökum atvinnulífsins, 6. útgáfa 2021. Félagið hefur ekki sett sér stefnu um fjölbreytileika enn sem komið er. Leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja má m.a. finna á vefsíðu Viðskiptaráðs Íslands, www.vi.is.
Hluthafafundur
Æðsta vald í málefnum félagsins er í höndum hluthafa þess. Aðalfund félagsins skal halda fyrir lok maí ár hvert. Hlutabréf félagsins eru rafræn og skráð hjá Verðbréfaskráningu Íslands, sem jafnframt hýsir hlutaskrána. Hlutaskráin er aðgengileg hluthöfum á skrifstofu félagsins.
Samþykktir
Samþykktir eru hluti af stofnskjölum hlutafélaga. Samþykktir Símans geyma m.a. reglur um tilgang félagsins, hlutafé, hluthafafundi, stjórn, ársreikninga og endurskoðun.
Stjórn félagsins
Stjórn félagsins skipa Jón Sigurðsson formaður, Sigrún Ragna Ólafsdóttir varaformaður stjórnar, Arnar Þór Másson, Bjarni Þorvarðarson og Björk Viðarsdóttir.
Jón Sigurðsson er fæddur 1978, hann var fyrst kosinn í stjórn félagsins 21. nóvember 2019. Jón er viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og er forstjóri Stoða hf., en Stoðir eiga 16,62% hlutafjár í Símanum. Jón er stjórnarformaður S121 ehf., og situr í stjórn Bláa Lónsins hf., Blue Lagoon Skincare ehf., K190 hf., Sökkla eignarhaldsfélags ehf., Bjarg Invest ehf., S380 ehf., Straumnes ehf., Straumnes eignarhaldsfélags ehf., Straumnes Ráðgjafar ehf., Square ehf. og S120 ehf.
Sigrún Ragna Ólafsdóttir er fædd 1963, hún var fyrst kosin í stjórn félagsins 11. mars 2021. Sigrún Ragna er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands 1987, fékk löggildingu sem endurskoðandi árið 1990 og lauk MBA námi frá Háskólanum í Reykjavík 2007. Sigrún Ragna er sjálfstætt starfandi ráðgjafi, stjórnarformaður Stefnis hf. og formaður tilnefningarnefndar Festi hf.
Bjarni Þorvarðarson er fæddur 1966, hann var fyrst kosinn í stjórn félagsins 21. mars 2019. Bjarni lauk B.Sc. prófi í rafmagnsverkfræði frá Háskóla Íslands árið 1989 og síðar meistaragráðum í rafmagnsverkfræði frá University of Wisconsin, Madison, 1991, í alþjóðaviðskiptum frá ISG í París 1993 og fjármálafræðum frá London Business School árið 1998. Bjarni er stjórnarformaður Eikar fasteignafélags hf., Coripharma ehf., Coripharma Holding hf., Matorku ehf. og Stakrar Gulrótar ehf., og er í stjórn BKP Invest ehf. og Inning ehf.
Arnar Þór Másson er fæddur 1971, hann var fyrst kosinn í stjórn félagsins 11. mars 2021. Arnar Þór er BA gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands, meistaragráðu í stjórnmálafræði frá London School of Economics and Political Science. Arnar er með Diploma fyrir stjórnarmann (Board of Directors Diploma) frá International Institute for Management Development (ImD), Lausanne, Sviss. Arnar Þór er sjálfstætt starfandi ráðgjafi og stjórnarformaður Marel hf. Arnar er í stjórn Íslandshótela og er fulltrúi í Háskólaráði Háskóla Íslands.
Björk Viðarsdóttir er fædd 1978, hún var fyrst kosin í stjórn félagsins 11. mars 2021. Björk útskrifaðist sem Cand. jur. frá lagadeild Háskóla Íslands í júní 2004 og lauk málflutningsprófi fyrir héraðsdómi 2009. Björk er framkvæmdastjóri Þjónustusviðs TM hf. Björk situr ekki í stjórn annarra félaga.
Allir stjórnarmenn félagsins fyrir utan Jón Sigurðsson teljast vera óháðir félaginu, viðskiptaaðilum, samkeppnisaðilum og stórum hluthöfum. Jón Sigurðsson er óháður félaginu, viðskiptaaðilum og samkeppnisaðilum, en ekki óháður stórum hluthöfum í félaginu.
40 Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2023
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Stjórn félagsins, frh.:
Af samsetningu stjórnar má sjá að Síminn uppfyllir skilyrði hlutafélagalaga um kynjakvóta. Stjórn telur að samsetning hennar hafi samræmst starfsemi og stefnu félagsins þannig að henni var kleift að sinna málefnum félagsins af skilvirkni og heilindum. Bakgrunnur og menntun stjórnarmanna er fjölbreytt. Eignarhlut stjórnarmanna í Símanum má sjá í skýringu 32.
Stjórn fer með æðsta vald í málefnum félagsins á milli hluthafafunda með þeim takmörkunum sem leiða af lögum, samþykktum félagsins og starfsreglum stjórnar. Stjórnarformaður hefur tilteknu hlutverki að gegna sem mælt er fyrir um í starfsreglum stjórnar Símans og gert er ráð fyrir að hann sinni í samræmi við leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja. Núgildandi starfsreglur stjórnar voru samþykktar á stjórnarfundi 26. apríl 2022 og eru þær aðgengilegar á vef félagsins, www.siminn.is.
Alls voru haldnir 16 stjórnarfundir árið 2023 og mætti meirihluti stjórnar á alla fundi og tóku allir stjórnarmenn virkan þátt í störfum stjórnarinnar. Stjórn fór yfir það hvernig henni tókst að uppfylla fjárhags- og starfsáætlun fyrir liðið starfsár.
Undirnefndir Símans
Hjá Símanum starfa tvær undirnefndir stjórnar, endurskoðunarnefnd og starfskjaranefnd. Tilnefningarnefnd er kosin af hluthöfum á aðalfundi.
Endurskoðunarnefnd
Hlutverk endurskoðunarnefndar er að tryggja áreiðanleika fjármálaupplýsinga til hluthafa, hafa umsjón með innri endurskoðun félagsins og bókhaldskerfi, svo og að leggja mat á vinnu fjármálastjórnenda fyrirtækisins og kjörins endurskoðanda. Hlutverk nefndarinnar nær til þeirra verkefna sem kveðið er á um í Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja, sem gefnar eru út af Viðskiptaráði, Kauphöllinni (OMX) og Samtökum atvinnulífsins. Endurskoðunarnefnd er skipuð þremur nefndarmönnum að lágmarki. Nefndarmenn skulu búa yfir þeirri reynslu og þekkingu sem nauðsynleg er til þess að gegna störfum sínum. Endurskoðunarnefnd skipa Alexander G. Eðvarðsson formaður, Sigrún Ragna Ólafsdóttir og Bjarni Þorvarðarson.
Endurskoðunarnefnd hélt 6 fundi árið 2023 og meirihluti nefndarinnar hefur mætt á alla fundi. Endurskoðunarnefnd boðar endurskoðendur félagsins á fundi þegar tilefni er til, auk þess sem þeir mæta á stjórnarfundi vegna ársreiknings. Starfsreglur endurskoðunarnefndar má nálgast á heimasíðu félagsins www.siminn.is.
Starfskjaranefnd
Hlutverk starfskjaranefndar er að tryggja að starfskjör yfirstjórnenda taki mið af afkomu fyrirtækisins til langs tíma, frammistöðu þeirra sjálfra og hagsmunum hluthafa. Forstjóri er ábyrgur fyrir starfskjörum annarra og ber honum að tryggja að starfskjör séu ávallt í samræmi við stefnu starfskjaranefndar. Stefna starfskjaranefndar er að tryggja að félaginu sé jafnan kleift að laða til sín og halda í starfi hæfum stjórnendum. Í þessu skyni ber nefndinni að ráðfæra sig við ytri ráðgjafa um starfskjör í sambærilegum fyrirtækjum þegar þörf krefur. Hlutverki nefndarinnar er ætlað að ná til þeirra verkefna sem kveðið er á um í Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja, 6. útgáfa 2021.
Starfskjaranefnd skipa Jón Sigurðsson formaður, Arnar Þór Másson og Björk Viðarsdóttir. Starfskjaranefnd hélt 4 fundi árið 2023 og mætti meirihluti nefndarinnar á alla fundina. Núgildandi starfskjarastefna var samþykkt á aðalfundi félagsins 2023. Starfskjarastefnu félagsins og starfsreglur starfskjaranefndar má nálgast á heimasíðu félagsins www.siminn.is
Tilnefningarnefnd
Tilgangur tilnefningarnefndar félagsins að huga að hagsmunum allra hluthafa og tilnefna frambjóðendur í stjórn félagsins. Tilnefningarnefnd fer yfir þekkingu og reynslu stjórnar sem heild og í framhaldi metur frambjóðendur út frá þekkingu og reynslu og hvort þeir geti sinnt skyldum sínum samkvæmt samþykktum félagsins, lögum um hlutafélög nr. 2/1995, auk annarra laga og reglugerða sem gilda um félagið. Ekki er sjálfgefið að breyta þurfi samsetningu stjórnar á hverjum tíma en slíkt er háð aðstæðum hverju sinni, virkni núverandi stjórnar og vilja núverandi stjórnarmanna til áframhaldandi stjórnarsetu. Tilnefningarnefnd er kosin af hluthöfum á aðalfundi. Tilnefningarnefndina skipa Jensína K. Böðvarsdóttir formaður, Steinunn K. Þórðardóttir og Eyjólfur Árni Rafnsson. Starfsreglur tilnefningarnefndar má nálgast á heimasíðu félagsins www.siminn.is.
Regluvörður
Regluvörður er Eiríkur Hauksson sem er skipaður af stjórn. Regluvörður hefur umsjón með að reglum um innherjaupplýsingar og viðskipti innherja sé fylgt.
41 Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2023
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Árangursmat stjórnar
Ný stjórn var kosin á aðalfundi þann 9. mars 2023 og var árangursmat stjórnar framkvæmt í janúar 2024. Helstu þættir sem lagt var mat á voru: upplýsingagjöf, stefnumótun og framtíðarsýn, áhættustjórnun, störf stjórnarmanna og forstjóra. Einnig var lagt mat á starfsemi undirnefnda.
Samskipti hluthafa og stjórnar
Samskipti stjórnar við hluthafa eiga að einkennast af hreinskilni og vera skýr og samræmd.# Beini hluthafar fyrirspurnum til stjórnar félagsins skal stjórn vera tilkynnt um þær og hafa yfirumsjón með viðbrögðum félagsins við þeim.
Forstjóri Símans
Forstjóri Símans er Orri Hauksson, fæddur 1971. Menntun Orra er eftirfarandi; Executive Education í Harvard Business School 2010- 2012, MBA frá Harvard Business School 2002, C.Sc. í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands 1995. Starfsreynsla Orra er; Síminn hf., forstjóri frá október 2013, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins 2010-2013, fjárfestingarstjóri Novator Partners LLC. 2007-2010, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Símans hf. 2003-2007, sölustjóri hjá Maskina Software Inc, Boston, 2002-2003, greinandi hjá Argnor Wireless Ventures, Stokkhólmi, 2001, aðstoðarmaður forsætisráðherra hjá forsætisráðuneytinu 1997-2000, sérfræðingur hjá Eimskipafélagi Íslands hf. 1995-1997.
Forstjóri annast daglegan rekstur félagsins og skal í þeim efnum fara eftir þeirri stefnu og fyrirmælum sem stjórn hefur gefið. Forstjóri skal ávallt starfa af heilindum með hagsmuni félagsins að leiðarljósi. Eignahlut Orra í Símanum má sjá í skýringu 32, forstjóri á kauprétt á 11.250.000 hlutum í félaginu.
Í framkvæmdastjórn Símans sitja auk forstjóra, framkvæmdastjórar þeirra fimm sviða sem móðurfélagið hefur á að skipa. Framkvæmdastjórn ber ábyrgð á daglegum rekstri félagsins og fylgni við rekstraráætlanir.
Innra eftirlit og áhættustýring
Áhættustefna félagsins var staðfest 30. mars 2021. Stefna félagsins um áhættustýringu hefur þann tilgang að viðhalda yfirsýn og viðeigandi stýringu áhættu í starfsemi Símans og dótturfélaga. Hjá hverju félagi innan samstæðunnar skal starfa öryggisráð eða sambærilegur vettvangur sem sér til þess að stefnunni sé framfylgt og að starfrækt sé stjórnskipulag áhættustýringar og samræmt áhættustýringarferli sem hentar umfangi viðkomandi fyrirtækis. Fyrirtækin skulu greina og meðhöndla áhættu í starfsemi sinni með reglubundnu áhættumati, markvissu eftirliti og aðgerðum.
Stjórn og stjórnendur stýra áhættu félagsins í samræmi við áhættuvilja félagsins sem inniheldur áhættumörk sem félagið vill halda sig innan. Til að tryggja að reikningsskil félagsins séu í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla hefur félagið lagt áherslu á vel skilgreind ábyrgðarsvið, eðlilega aðgreiningu starfa, ásamt reglulegri skýrslugjöf. Félgagið útbýr mánaðarlega skýrslur þar sem einstakar rekstrareiningar eru yfirfarnar og er mikilvægur þáttur í eftirliti með afkomu og öðrum lykilþáttum starfseminnar. Mánaðarleg uppgjör eru unnin og lögð fyrir stjórn félagsins. Til staðar eru verklagsreglur til að tryggja eftirlit með tekjuskráningu, rekstrarkostnaði ásamt fleiri liðum sem hafa áhrif á rekstur félagsins.
Upplýsingar um brot á reglum sem viðeigandi eftirlits- og/eða úrskurðaraðili hefur ákvarðað
Fjármálaeftirlitsnefnd Seðlabanka Íslands tók ákvörðun um að leggja stjórnvaldssekt að fjárhæð 76,5 m.kr. á Símann vegna þess að Síminn hafi ekki birt eins fljótt og auðið var, innherjaupplýsingar um sölu Mílu þann 31. ágúst 2023. Að mati Símans voru ekki til staðar neinar innherjaupplýsingar á þeim tíma umfram það sem áður hafði verið birt, enda hafi engin bindandi tilboð borist á þeim tíma. Félagið hefur skotið málinu til dómsstóla.
Gildi félagsins
Gildi Símans eru: einfaldleiki og framsækni.
Samfélagsleg ábyrgð
Síminn er einn af stofnfélögum í Festu, miðstöð um samfélagsábyrgð. Félagið hefur sett fram sjálbærnistefnu þar sem áherslur félagsins í umhverfis, félagslegum og stjórnarháttum er lagðar. Það er stefna Símans að huga að sjálfbærni í hvívetna og tryggja að markmið séu mælanleg og að væntingar til árangurs í sjálfbærni séu skýr fyrir starfsfólki Símans, viðskiptavinum, birgjum, hluthöfum og öðrum haghöfum. Unnið er í samræmi við þessar áherslur á grundvelli tíu viðmiða UN Global Compact og UFS viðmiða. Gerð er árleg framvinduskýrsla um aðgerðir og árangur í sjálfbærni.
Siðareglur
Félagið vinnur eftir siðareglum sem síðast voru endurskoðaðar og samþykktar 2. ágúst 2022.
Ófjárhagslegar upplýsingar
42 Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2023
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Viðskiptalíkan
Síðan 1906 hefur Síminn tengt Íslendinga við umheiminn og hvert annað. Síminn er íslenskt þjónustufyrirtæki sem býður heildstætt framboð fjarskipta ásamt fyrsta flokks afþreyingu fyrir heimili og fyrirtæki. Síminn er eigandi tveggja dótturfélaga, Radíómiðunar og Símans Pay. Radíómiðun gegnir lykilhlutverki í þróun fjarskipta- og hugbúnaðarlausna fyrir sjávarútvegsfyrirtæki og Síminn Pay er fjártæknifyrirtæki. Einkunnarorð Símans eru „Tengjumst“ og saman tengir starfsfólk Símans viðskiptavini okkar með hjálp fjarskipta, upplýsingatækni og afþreyingar í sjónvarpi. Síminn vill veita framúrskarandi þjónustu, vera hreyfiafl til góðra verka og skapa starfsumhverfi sem styður við stöðuga nýþróun og traustan rekstur. Hjá Símanum starfar hópur reynslumikils fólks með fjölbreyttan bakgrunn sem við viljum hvetja til góðra verka. Stefna Símans í sjálfbærni skapar sameiginlegan ávinning fyrir starfsfólk, viðskiptavini, umhverfið og hagaðila. Félagið er skráð á aðallista NASDAQ OMX Iceland og er eignarhaldið dreift.
Stefnur félagsins m.t.t. ófjárhagslegra þátta,
- Upplýsingaöryggisstefna, uppfærð 2023
- Upplýsingastefna, uppfærð 2022
- Mannauðs- og mannréttindastefna, uppfærð 2022 (jafnlaunastefna skv. ÍST 85-2012 er hluti af þessari stefnu)
- Starfskjarastefna, gefin út 2022
- Persónuverndarstefna Símans, uppfærð 2024
- Persónuverndarstefna Símans fyrir starfsfólk, uppfærð 2022
- Gæðastefna (innanhúss) gefin út 2020
- Stefna Símans gegn einelti, áreitni og ofbeldi (innanhúss) gefin út 2021
- Innkaupastefna Símans (innanhúss), uppfærð 2023
- Stefna Símans í sjálfbærni, gefin út 2021
- Umhverfisstefna Símans, gefin út 2021
- Siðareglur birgja, gefin út 2021
- Starfsreglur stjórnar, uppfærð 2022
- Stefna Símans Pay ehf um varnir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverkastarfsemi, gefin út 2023
Síminn er með allar ofangreindar stefnur til sífelldrar endurskoðunar og hefur sett fram heildstæða sjálfbærnistefnu sem tekur á umhverfis- og loftlagsmálum, félagslegum þáttum og stjórnarháttum ásamt öðrum ófjárhagslegum þáttum. Í stefnunni eru skilgreindar megináhættur út frá áhættumatsgreiningu (e.materiality).
Áreiðanleikakönnunarferli félagsins með tilliti til ófjárhagslegra þátta, sjálfbærni og UFS
Í samræmi við upplýsingaöryggisstefnu, upplýsingastefnu, gæðastefnu ásamt innri ferlum og öðrum gæðakröfum, er lögð áhersla á að tryggja gæði og réttar ófjárhagslegar upplýsingar. Þá fer ytri endurskoðandi yfir skýrslu stjórnar, m.a. ófjárhagslegar upplýsingar, sem hluta af ytri endurskoðun félagsins. Félagið hefur skilgreint megináhættur og markmið byggt á sjálfbærnistefnu til að tryggja að stefnunni sé framfylgt. Nánar er gerð grein fyrir þeim í köflunum um umhverfisþætti, félagslega þætti og stjórnarhætti.
Umhverfis- og loftlagsmál
Síminn gaf út sína fyrstu sjálfbærnistefnu árið 2021. Við val á lykilmælikvörðum (fyrir umhverfismál, félagslega þætti og stjórnarhætti) var stuðst við mikilvægisgreiningu (e. Materiality) á fjarskiptageiranum, skoðun á leiðandi erlendum fjarskiptafélögum m.t.t. UFS frammistöðu og aðlagað að starfsemi Símans. Samhliða þeirri vinnu voru helstu megináhættur endurskilgreindar og markmið endurskilgreind.
Félagið er meðvitað um þau umhverfisáhrif sem fjarskiptaiðnaðurinn hefur í för með sér enda felur reksturinn í sér nokkra auðlinda- og orkunotkun tengt notkun og förgun á búnaði og tækjum sem notuð eru í starfsemi félagsins sem og hýsingu gagna í gagnaverum. Eðli starfseminnar kallar að auki á umtalsverðan akstur og flutninga á búnaði vegna viðhalds og lagningu fjarskiptaneta. Félagið hefur skilgreint tvo meginþætti í umhverfismálum sem tengjast starfsemi félagsins, þ.e. virðiskeðjuáhrif og notkun náttúruauðlinda og er það sýn félagsins að eftirfarandi atriði eigi við starfsemi félagsins í heild.
Innleiðing á umhverfisstjórnunarkerfi Klappa Grænna lausna hf. er langt komin, sem mun gefa félaginu rauntímayfirsýn yfir helstu umhverfisþætti. Innleiðingin er unnin í nánu samstarfi við sérfræðinga Klappa sem leiðbeina Símanum að vinna skv. fyrirmyndar starfsháttum. Verkefnið framundan er að byggja frekar undir þá innleiðingu ásamt því að skapa þekkingu hjá starfsfólki Símans og undirbúa félagið t.d. fyrir sjálfbærniupplýsingagjöf stórra og/eða skráðra fyrirtækja (CSRD).
43 Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2023
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Umhverfis- og loftlagsmál, frh.:
Megináhættur:
* Umhverfis og loftlagsáhrif í virðiskeðjunni
* Loftlagsbreytingar
* Ágangur á náttúruauðlindir
Markmið:
* Endurvinna allan nothæfan búnað sem viðskiptavinir skila
* Auka hlutfall búnaðs sem viðskiptavinir koma með í endurvinnslu til okkar í gegnum nýttu notað ferlið
* Vinna með birgjunum okkar að umbúðir séu endurvinnanlegar
Árangur:
Markmið fyrir árið 2023 voru:
* Minnkun gróðurhúsalofttegunda í umfangi 1,2 og 3 miðað við tekjur;
* Að lágmarki 80% af helstu birgjum geti tryggt að þau uppfylli kröfur innkaupastefnu;
* Upptaka birgjamats til að meta umhverfisáhrif í virðiskeðjunni.
- Greining stærstu birgja m.t.t. loftlagsáhættu hefur farið fram. Innleiðing umhverfisstjórnunarkerfis Klappa er langt komin og í framhaldinu munu stærstu birgjar Símans fá sent staðlað birgjamat.
- Heildarlosun félagsins af starfsemi hefur minnkað á milli ára en sérstök áhersla hefur verið lögð á vistvænni samgöngur til og frá vinnu, minni matarsóun, aukna flokkun sorps, vistvænni breytingar á húsnæði ásamt því að félagið rekur fleiri rafmagnsbíla en áður. Sérstakur deilibíll fyrir starfsfólk er einnig í boði sem það getur nýtt til að skjótast á vinnutíma. Árshátíðarferð starfsfólks til Þýskalands í nóvember 2023 hefur þá mikil áhrif á heildarlosun félagsins á árinu.
- Innkaupastefna félagsins var uppfærð í lok árs 2023 þar sem sjálfbærni fékk aukið vægi og verður hún kynnt sérstaklega fyrir stærstu birgjum félagsins.
- Fræðsla tengd sjálfbærni var fyrirferðamikil á árinu t.d. almennt um umhverfismál, flokkun og loftlagsmál.# Félagslegir þættir
Áherslur félagsins í félagslegum þáttum eru nátengdar áherslum félagsins í sjálfbærni- og mannréttindamálum. Í þeirri stafrænu umbreytingu sem samfélagið er að ganga í gegnum liggja tækifæri fyrir félagið að vera hreyfiafl til góðra verka. Félagið er með virka mannauðs- og jafnréttisstefnu sem stuðla á að jafnri stöðu og jöfnum tækifærum starfsfólks óháð kyni, kynhneigð, kynþætti, þjóðerni, trúabrögðum eða lífsstíl. Síminn hlaut jafnlaunavottun Jafnréttisstofu í lok árs 2018, fyrst íslenskra fjarskiptafélaga og hefur sú vottun verið endurnýjuð árlega síðan. Árið 2019 tók Síminn þátt í Jafnréttisvísi Capacent sem leiddi til ýmissa umbótaverkefna á sviði jafnréttismála og stefnir félagið á að jafna kynjahlutföll í öllum skipulagseiningum félagsins sem og í stjórnendahópi félagsins. Árið 2021 gaf félagið út Samskiptasáttmála sem á að vera starfsfólki leiðarljós í samskiptum sín á milli. Síminn styrkir fimm ungar konur og kvára til náms í Háskólanum í Reykjavík, annað árið í röð. Tilgangurinn er að fjölga konum og kvárum sem útskrifast úr tæknigreinum. Síminn er einnig styrktaraðili Vertonets og átaksverkefnis þeirra um að auka nýliðun kvenna í upplýsingastækni. Síminn gerðist aðili að jafnvægisvog FKA þar sem megin tilgangurinn er að auka á jafnvægi kynja í efsta lagi stjórnunar fyrirtækja í íslensku viðskiptalífi með það að markmiði að árið 2027 verði hlutfallið á milli kynja a.m.k. 40/60 í framkvæmdastjórnum fyrirtækja á Íslandi og að virkja íslenskt viðskiptalíf til að verða að fyrirmynd jafnréttis fyrir aðrar þjóðir. Hjá félaginu er starfrækt Vinnuverndar- og brunavarnarráð. Það tekur m.a. þátt í gerð áætlunar um öryggi og heilbrigði á vinnustað, vinnur að bættum aðbúnaði, hollustuháttum og öryggi á vinnustöðum. Með stefnu félagsins gegn einelti, áreitni og ofbeldi og meðfylgjandi viðbragðsáætlun er unnið að því að tryggja sálfélagslegt öryggi starfsfólks í vinnu. Með þessu vil félagið stuðla að auknum fjölbreytileika, betri þjálfun vinnuafls, stuðla að virðingu í samskiptum, tryggja vellíðan og aukin lífsgæði jafnt innan sem og utan félagsins.
Megináhættur: - Vellíðan og velferð starfsfólks
- Heilsa og öryggi starfsfólks og verktaka
- Mannréttindi í virðiskeðjunni
- Launajafnrétti
- Samskipti við nærsamfélagið
Ófjárhagslegar upplýsingar 44
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2023
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Félagslegir þættir, frh.:
Markmið:
* Síminn hefur það markmið að launamunur milli kynja sé undir 1,0
* Jafna hlutfall kynja í leiðtogahlutverkum
* Vinna markvisst að auknum hlut kvenna í upplýsingatækni innan fyrirtækisins sem utan
Árangur:
* Launamunur kynja er 1,15 (1,18 2022) karlmönnum í hag.
* Markmið félagsins að jafna kynjahlutföll hefur ekki náðst en þó hefur sá árangur náðst að kynjahlutföll millistjórnenda eru jöfn.
* Greitt er fyrir skimum veikinda, sálfræðiaðstoð, líkamsræktarstyrki og búningsaðstaða er á vinnustað.
* Síminn á í formlegu samstarfi með Vertonet, HR og Stelpur og tækni sem hafa það að markmiði að auka hlut kvenna í upplýsingtækni.
Stjórnarhættir
Síminn leggur áherslu á góða forystu og stjórnarhætti og fylgir leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja sem gefnar voru út af Viðskiptaráði Íslands, Nasdaq OMX Iceland hf. og Samtökum atvinnulífsins, 6. útgáfu frá árinu 2021. Stjórnarhættir hjá Símanum eru einnig markaðir af lögum nr.2/1995 um hlutafélög, samþykktum félagsins, starfsreglum stjórnar, siðareglum félagsins auk þess sem félagið hefur innleitt samkeppnisréttaráætlun sem er mikilvægur hluti af stjórnarháttum þess. Siðareglur Símans eru starfsfólki leiðarljós hvað varðar hugsanlega hagsmunaárekstra, mútugreiðslur, trúnað og meðferð viðkvæmra upplýsinga sem og fylgni við gildandi lög og reglur á hverjum tíma. Eitt af lykilatriðum í rekstri Símans er að tryggja öryggi þeirra gagna og upplýsinga sem félagið vinnur með. Síminn er með virka upplýsingaöryggisstefnu sem styður við samfelldan rekstur og þjónustur og lágmarkar þannig rekstraráhættu og hámarkar öryggi upplýsinga og verðmæta í eigu eða umsjón félagsins. Síminn rekur vottað upplýsingaöryggiskerfi en félagið hlaut vottun BSI samkvæmt ISO/IEC 27001:2013 staðlinum árið 2016. Gildandi upplýsingastefna Símans tekur mið af reglum Kauphallar – Nasdaq Iceland. Með stefnunni er lögð áhersla á að veita hagsmunaaðilum áreiðanlegar upplýsingar sem skipta máli er varða starfsemi félagsins, sem skráðs félags á íslenskum hlutabréfamarkaði í Kauphöll - Nasdaq Iceland. Netöryggi er órjúfanlegur þáttur í starfsemi Símans og eru vernd gagna og persónuupplýsinga því ávallt í fyrirrúmi. Síminn er með virka upplýsingaöryggisstefnu sem styður við samfelldan rekstur og þjónustu. Með vottuðu upplýsingaöryggiskerfi lágmarkar Síminn rekstraráhættu og hámarkar öryggi upplýsinga í eigu eða umsjón félagsins. Með virkri persónuverndarstefnu leggur Síminn jafnframt áherslu á að gæta friðhelgi einkalífs, jafnt starfsfólks sem og viðskiptavina. Lögð er áhersla á að gæta að málefnalegri, áreiðanlegri og gagnsærri meðferð persónuupplýsinga um viðskiptavini, starfsfólk og aðra sem persónuverndarupplýsingar varðar, í samræmi við persónuverndarlög hverju sinni. Hjá félaginu starfar persónuverndarfulltrúi sem hefur eftirlit með því að félagið uppfylli lagaskyldur sínar. Hjá Símanum er í gildi gæðastefna. Með henni er lögð áhersla á að félagið vinni að stöðugum umbótum, lágmarki sóun og auki gæði starfsemi sinnar, starfsfólki og samfélaginu til hagsbóta. Síminn setti sér verklagsreglur á árinu 2022 um vernd uppljóstrara. Reglurnar voru settar á grundvelli 5. gr. laga um vernd uppljóstrara nr. 40/2020. Reglunum er meðal annars ætlað að stuðla að því að starfsfólk geti upplýst um lögbrot eða aðra ámælisverða háttsemi sem kann að eiga sér stað hjá félaginu og stuðla þannig að ábyrgum stjórnarháttum. Síminn leggur áherslu á að viðhalda góðum samskiptum við lykil haghafa með opnum samtölum um þróun, tækifæri og sjálfbærnitengdar áhættur.
Megináhættur:
* Gagnaöryggi, gæðamál og óhæði stjórnar
* Skortur á yfirsýn og stýringu stjórnenda á UFS þáttum sem eru mikilvægir fyrir Símann
* Að birgjar félagsins hugi ekki að gagnaöryggi, persónuvernd og öðrum mikilvægum UFS þáttum
Ófjárhagslegar upplýsingar 45
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2023
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Stjórnarhættir, frh.:
Markmið:
* Innleiða ESRS staðlana í umhverfisstjórnunarkerfi Símans
* Setja fram markmið og áætlun um kolefnishlutleysi fyrirtækisins
* Upplýsa um sjálfbærniáhrif Símans árlega
Árangur:
Markmið fyrir árið 2023 voru: Að starfsfólk Símans staðfesti þekkingu sína á siðareglum Símans árlega; Að tryggja að hýsing viðkvæmra og verðmætra upplýsinga séu í vottuðu upplýsingaöryggiskerfi; Innleiða loftslagseftirlit inn í verklag stjórnenda og stjórnar; Innleiða birgjamat og samtal við 20 stærstu birgja Símans sem eru með um 80% af innkaupum.
* 100% starfsfólks hefur skrifað undir siðareglur.
* 100% gagna eru vistuð í vottuðu upplýsingaöryggiskerfi.
Upplýsingagjöf vegna flokkunarreglugerðar
Kröfur um upplýsingagjöf á sviði sjálfbærni hafa aukist verulega síðustu ár. Með lögum nr. 25/2023 (ESB 2020/852) sem samþykkt voru á Alþingi í maí 2023 og tóku gildi 1.júní 2023 er félögum sem falla undir gildissvið laganna gert að innleiða flokkunarkerfi ESB og veita upplýsingar um flokkunarkerfið í ársreikningi 2023. Upplýsa þarf um hlutfall veltu, rekstrarkostnaðar og fjárfestinga sem uppfylla skilyrði um að vera umhverfislega sjálfbær í samræmi við viðmið regluverksins. Til þess að fyrirtæki geti talist umhverfislega sjálfbær í skilningi reglugerðarinnar þurfa þau að uppfylla viðmið um umhverfislega sjálfbæra atvinnustarfsemi skv. 3.gr. reglugerðarinnar. Í fyrsta lagi þarf framlag atvinnustarfseminnar að stuðla verulega að einu af sex umhverfismarkmiðum, á sama tíma má hún ekki valda umtalsverðu tjóni á einu eða fleiri af markmiðum reglugerðarinnar. Hún þarf að hlíta tæknilegum matsviðmiðum en, einnig bera að veita upplýsingar um lágmarksverndarráðstafanir í eftirfarandi málaflokkum: Mannréttindi, Spilling og mútuþægni, skattamál og samkeppnismál.
Lágmarksverndarráðstafanir
Eitt af grunnskilyrðum þess að starfsemi Símans geti talist umhverfislega sjálfbær er að félagið uppfylli fullnægjandi lágmarksverndarráðstafanir (e. minimum safeguards) í samræmi við 18.gr. flokkunarreglugerðarinnar (8. gr. reglugerðar Evrópusambandsins (ESB) 2020/852). Með því að standast kröfur um lágmarksverndarráðstafanir sýnir félagið fram á að umhverfismarkmiðum sé uppfyllt ásamt fylgni þess við alþjóðlegar laga- og leiðbeiningakröfur OECD og Sameinuðu þjóðanna um félagsleg viðmið.
Mannréttindi
Síminn er með virka mannauðs- og mannréttindastefnu sem stuðlar að jafnri stöðu og jöfnum tækifærum starfsfólks. Síminn hefur stefnu um persónuvernd og hefur sett fram verklagsreglur um vernd uppljóstrara. Við gerð verklagsreglna og stefnumótunar er horft til reglna OECD og leiðbeininga Sameinuðu þjóðanna.
Spilling og mútuþægni
Starfsfólk skal gæta réttsýni og löghlýðni í hvívetna, í siðareglum Símans er farið yfir mál er varða spillingu og mútuþægni. Þá er tekið á þessum atriðum í siðareglum birgja.
Skattamál
Félagið vinnur nú að gerð formlegrar skattastefnu þar sem sett er fram formleg ábyrgð, skilgreind eftirlitshlutverk og skýrslugjöf. Síminn leggur ríka áherslu á að haga skattamálum í samræmi við lög og reglur.
Samkeppnismál
Félagið hefur starfað eftir samkeppnisréttaráætlun frá árinu 2011. Í siðareglum Símans er tekið á því að starfsfólk skuli gæta réttsýni og löghlýðni í hvívetna. Í því felst m.a. að allt starfsfólk skuli í störfum sínum þekkja og virða meginreglur samkeppnislaga um bann við ólögmætu samráði, misnotkun á markaðsráðandi stöðu, sé hún fyrir hendi, og samrunareglur. Starfsfólk skal í þessu skyni kynna sér þau gögn sem eru hluti af Samkeppnisréttaráætlun, nýta þau í störfum sínum og sækja námskeið sem eru hluti af áætluninni (sjá samkeppnisréttaráætlun félagsins). Síminn hefur ekki gerst brotlegur við lög eða reglur á sviði samkeppnismála.# EU Taxonomy
46 Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2023
Fjárhæðir eru í milljónum króna
| Atvinnustarfsemi (1) | Númer (2) | Heildar velta (3) | Hlutfall veltu (4) | Mótvægi við loftslagsbreytingar (5) | Aðlögun að loftslagsbreytingum (6) | Vatns- og sjávarauðlindir (7) | Hringrásarhagkerfið (8) | Mengun (9) | Líffræðileg fjölbreytni og vistkerfi (10) | Mótvægi við loftslagsbreytingar (11) | Aðlögun að loftslagsbreytingum (12) | Vatns- og sjávarauðlindir (13) | Hringrásarhagkerfið (14) | Mengun (15) | Líffræðileg fjölbreytni og vistkerfi (16) | Lágmarks verndarráðstafnir (17) | Hlutfall veltu sem fellur að flokkunarkerfinu, ár N (18) | Hlutfall veltu sem fellur að flokkunarkerfinu, ár N-1 (19) | Flokkur (starfsemi sem gerir annarri starfsemi kleift að stuðla að umhverfismarkmiðum (20) | Flokkur "(umbreyt-ingastarfsemi)" (21) |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| % | % | % | % | % | % | % | % | % | % | % | % | % | % | % | % | % | % | % | ||
| J/N | J/N | J/N | J/N | J/N | J/N | J/N | J/N | J/N | J/N | J/N | J/N | J/N | J/N | J/N | J/N | J/N | ||||
| E | T | |||||||||||||||||||
| A. STARFSEMI SEM FLOKKUNARKERFIÐ NÆR YFIR | 29% | |||||||||||||||||||
| A.1. Umhverfissjálfbær starfsemi (sem fellur að flokkunarkerfinu) | ||||||||||||||||||||
| Sjónvarpssendingar og dagskrárgerð | 8.3 | 0 | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | N/A | N/A | N/A | N/A | N/A | N/A | N/A | 0% | N/A | N/A | N/A |
| Velta frá umhverfissjálfbærri starfsemi (sem fellur að flokkunarkerfinu (A.1) | 0 | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | N/A | N/A | N/A | N/A | N/A | N/A | N/A | 0% | 0% | 0% | 0% | |
| A.2. Starfsemi sem flokkunarkerfið nær yfir en er ekki umhverfissjálfbær (sem fellur ekki að flokkunarkerfinu) | ||||||||||||||||||||
| Sjónvarpssendingar og dagskrárgerð | 8.3 | 7.440 | 29% | |||||||||||||||||
| Velta frá starfsemi sem flokkunarkerfið nær yfir en er ekki umhverfissjálfbær (starfsemi sem fellur ekki að flokkunarkerfinu) (A.2) | 7.440 | 29% | ||||||||||||||||||
| Alls (A.1 + A.2) | 7.440 | 29% | ||||||||||||||||||
| B. STARFSEMI SEM FLOKKUNARKERFI NÆR EKKI YFIR | 18.301 | 71% | ||||||||||||||||||
| Velta frá starfsemi sem flokkunarkerfið nær ekki yfir (B) | 18.301 | 71% | ||||||||||||||||||
| Alls (A + B) | 25.741 | 100% |
47 Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2023
Fjárhæðir eru í milljónum króna
| Atvinnustarfsemi (1) | Númer (2) | Heildar fjárfestingagjöld (3) | Hlutfall fjárfestingagjalda (4) | Mótvægi við loftslagsbreytingar (5) | Aðlögun að loftslagsbreytingum (6) | Vatns- og sjávarauðlindir (7) | Hringrásarhagkerfið (8) | Mengun (9) | Líffræðileg fjölbreytni og vistkerfi (10) | Mótvægi við loftslagsbreytingar (11) | Aðlögun að loftslagsbreytingum (12) | Vatns- og sjávarauðlindir (13) | Hringrásarhagkerfið (14) | Mengun (15) | Líffræðileg fjölbreytni og vistkerfi (16) | Lágmarks verndarráðstafnir (17) | Hlutfall fjárfestinga sem fellur að flokkunarkerfinu, ár N (18) | Hlutfall fjárfestinga sem fellur að flokkunarkerfinu, ár N-1 (19) | Flokkur (starfsemi sem gerir annarri starfsemi kleift að stuðla að umhverfismarkmiðum (20) | Flokkur "(umbreyt-ingastarfsemi)" (21) |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| % | % | % | % | % | % | % | % | % | % | % | % | % | % | % | % | % | % | % | ||
| J/N | J/N | J/N | J/N | J/N | J/N | J/N | J/N | J/N | J/N | J/N | J/N | J/N | J/N | J/N | J/N | J/N | ||||
| E | T | |||||||||||||||||||
| A. STARFSEMI SEM FLOKKUNARKERFIÐ NÆR YFIR | 59% | |||||||||||||||||||
| A.1. Umhverfissjálfbær starfsemi (sem fellur að flokkunarkerfinu) | ||||||||||||||||||||
| Sjónvarpssendingar og dagskrárgerð | 8.3 | 0 | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | N/A | N/A | N/A | N/A | N/A | N/A | N/A | 0% | N/A | N/A | N/A |
| Fjárfestingagjöld frá umhverfissjálfbærri starfsemi (sem fellur að flokkunarkerfinu (A.1) | 0 | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | N/A | N/A | N/A | N/A | N/A | N/A | N/A | 0% | 0% | 0% | 0% | |
| A.2. Starfsemi sem flokkunarkerfið nær yfir en er ekki umhverfissjálfbær (sem fellur ekki að flokkunarkerfinu) | ||||||||||||||||||||
| Sjónvarpssendingar og dagskrárgerð | 8.3 | 2.163 | 59% | |||||||||||||||||
| Fjárfestingagjöld frá starfsemi sem flokkunarkerfið nær yfir en er ekki umhverfissjálfbær (starfsemi sem fellur ekki að flokkunarkerfinu) (A.2) | 2.163 | 59% | ||||||||||||||||||
| Alls (A.1 + A.2) | 2.163 | 59% | ||||||||||||||||||
| B. STARFSEMI SEM FLOKKUNARKERFI NÆR EKKI YFIR | 1.508 | 41% | ||||||||||||||||||
| Fjárfestingagjöld frá starfsemi sem flokkunarkerfið nær ekki yfir (B) | 1.508 | 41% | ||||||||||||||||||
| Alls (A + B) | 3.671 | 100% |
48 Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2023
Fjárhæðir eru í milljónum króna
| Atvinnustarfsemi (1) | Númer (2) | Heildar rekstrargjöld (3) | Hlutfall rekstrargjalda (4) | Mótvægi við loftslagsbreytingar (5) | Aðlögun að loftslagsbreytingum (6) | Vatns- og sjávarauðlindir (7) | Hringrásarhagkerfið (8) | Mengun (9) | Líffræðileg fjölbreytni og vistkerfi (10) | Mótvægi við loftslagsbreytingar (11) | Aðlögun að loftslagsbreytingum (12) | Vatns- og sjávarauðlindir (13) | Hringrásarhagkerfið (14) | Mengun (15) | Líffræðileg fjölbreytni og vistkerfi (16) | Lágmarks verndarráðstafnir (17) | Hlutfall rekstrargjalda sem fellur að flokkunarkerfinu, ár N (18) | Hlutfall rekstrargjalda sem fellur að flokkunarkerfinu, ár N-1 (19) | Flokkur (starfsemi sem gerir annarri starfsemi kleift að stuðla að umhverfismarkmiðum (20) | Flokkur "(umbreyt-ingastarfsemi)" (21) |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| % | % | % | % | % | % | % | % | % | % | % | % | % | % | % | % | % | % | % | ||
| J/N | J/N | J/N | J/N | J/N | J/N | J/N | J/N | J/N | J/N | J/N | J/N | J/N | J/N | J/N | J/N | J/N | ||||
| E | T | |||||||||||||||||||
| A. STARFSEMI SEM FLOKKUNARKERFIÐ NÆR YFIR | 4% | |||||||||||||||||||
| A.1. Umhverfissjálfbær starfsemi (sem fellur að flokkunarkerfinu) | ||||||||||||||||||||
| Sjónvarpssendingar og dagskrárgerð | 8.3 | 0 | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | N/A | N/A | N/A | N/A | N/A | N/A | N/A | 0% | N/A | N/A | N/A |
| Rekstrargjöld frá umhverfissjálfbærri starfsemi (sem fellur að flokkunarkerfinu (A.1) | 0 | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | N/A | N/A | N/A | N/A | N/A | N/A | N/A | 0% | 0% | 0% | 0% | |
| A.2. Starfsemi sem flokkunarkerfið nær yfir en er ekki umhverfissjálfbær (sem fellur ekki að flokkunarkerfinu) | ||||||||||||||||||||
| Sjónvarpssendingar og dagskrárgerð | 8.3 | 16 | 4% | |||||||||||||||||
| Rekstrargjöld frá starfsemi sem flokkunarkerfið nær yfir en er ekki umhverfissjálfbær (starfsemi sem fellur ekki að flokkunarkerfinu) (A.2) | 16 | 4% | ||||||||||||||||||
| Alls (A.1 + A.2) | 16 | 4% | ||||||||||||||||||
| B. STARFSEMI SEM FLOKKUNARKERFI NÆR EKKI YFIR | 414 | 96% | ||||||||||||||||||
| Rekstrargjöld frá starfsemi sem flokkunarkerfið nær ekki yfir (B) | 414 | 96% | ||||||||||||||||||
| Alls (A + B) | 430 | 100% |
49 Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2023
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Ársfjórðungsyfirlit - óendurskoðað
Rekstur samstæðunnar greinist þannig á ársfjórðunga:
| Samtals | 1 F 2023 | 2 F 2023 | 3 F 2023 | 4 F 2023 | |
|---|---|---|---|---|---|
| Sala ...................................................................... | 25.067 | 6.153 | 6.117 | 6.329 | 6.468 |
| Kostnaðarverð sölu ........................................................ | (16.497) | (4.155) | (4.110) | (4.113) | (4.119) |
| Framlegð ................................................................... | 8.570 | 1.998 | 2.007 | 2.216 | 2.349 |
| Aðrar rekstrartekjur ...................................................... | 674 | 145 | 166 | 172 | 191 |
| Rekstrarkostnaður ......................................................... | (7.165) | (1.825) | (1.811) | (1.623) | (1.906) |
| Rekstrarhagnaður .......................................................... | 2.079 | 318 | 362 | 765 | 634 |
| Hrein fjármagnsgjöld ..................................................... | (392) | (1) | (145) | (126) | (120) |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt .................................................. | 1.687 | 317 | 217 | 639 | 514 |
| Reiknaðir skattar ......................................................... | (341) | (71) | (38) | (132) | (100) |
| Hagnaður ársins .......................................................... | 1.346 | 246 | 179 | 507 | 414 |
| 6.150 | 1.410 | 1.811 | 1.614 | ||
| Samtals ................................................................... | 23.939 | 5.957 | 5.898 | 6.016 | 6.068 |
| Sala ...................................................................... | (14.914) | (3.762) | (3.597) | (3.681) | (3.874) |
| Kostnaðarverð sölu ........................................................ | 9.025 | 2.195 | 2.301 | 2.335 | 2.194 |
| Framlegð ................................................................... | 633 | 136 | 138 | 194 | 165 |
| Aðrar rekstrartekjur ...................................................... | (6.713) | (1.757) | (1.757) | (1.543) | (1.656) |
| Rekstrarkostnaður ......................................................... | 2.945 | 574 | 682 | 986 | 703 |
| Rekstrarhagnaður .......................................................... | (546) | 92 | (165) | (84) | (389) |
| Hrein fjármagnsgjöld ..................................................... | 36.205 | 193 | 95 | 35.628 | 289 |
| Aflögð starfsemi .......................................................... | 38.604 | 859 | 612 | 36.530 | 603 |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt .................................................. | (337) | (113) | (107) | (184) | 67 |
| Reiknaðir skattar ......................................................... | 38.267 | 746 | 505 | 36.346 | 670 |
| Hagnaður ársins .......................................................... | 6.149 | 1.327 | 1.399 | 1.790 | 1.633 |
| EBITDA .................................................................... | |||||
| EBITDA .................................................................... | |||||
| # Consolidated Statement of Changes in Equity |
| 2022 | 2022 | 2022 | 2022 | |
|---|---|---|---|---|
| Issued Capital Member | ||||
| For the period from 2022-01-01 to 2022-12-31 | ||||
| As at 2022-12-31 | ||||
| As at 2021-12-31 | ||||
| Share Premium Member | ||||
| For the period from 2022-01-01 to 2022-12-31 | ||||
| As at 2022-12-31 | ||||
| As at 2021-12-31 | ||||
| Statutory Reserve Member | ||||
| For the period from 2022-01-01 to 2022-12-31 | ||||
| As at 2022-12-31 | ||||
| As at 2021-12-31 | ||||
| Miscellaneous Other Reserves Member | ||||
| For the period from 2022-01-01 to 2022-12-31 | ||||
| As at 2022-12-31 | ||||
| As at 2021-12-31 | ||||
| Retained Earnings Member | ||||
| For the period from 2022-01-01 to 2022-12-31 | ||||
| As at 2022-12-31 | ||||
| As at 2021-12-31 |
| 2023 | 2023 | |
|---|---|---|
| Issued Capital Member | ||
| For the period from 2023-01-01 to 2023-12-31 | ||
| As at 2023-12-31 | ||
| Share Premium Member | ||
| For the period from 2023-01-01 to 2023-12-31 | ||
| As at 2023-12-31 | ||
| Statutory Reserve Member | ||
| For the period from 2023-01-01 to 2023-12-31 | ||
| As at 2023-12-31 | ||
| Miscellaneous Other Reserves Member | ||
| For the period from 2023-01-01 to 2023-12-31 | ||
| As at 2023-12-31 | ||
| Retained Earnings Member | ||
| For the period from 2023-01-01 to 2023-12-31 | ||
| As at 2023-12-31 |
ISK
ISK
shares
```