AI assistant
Síminn — Annual Report 2021
Feb 15, 2022
2203_rns_2022-02-15_d7e35fed-f348-4194-b353-91ce4475de09.pdf
Annual Report
Open in viewerOpens in your device viewer
Årsreikning
samstæðu 2021

Síminn
Síminn hf. – Ármúla 25 – 108 Reykjavík – Kt. 460207-0880
Efnisyfirlit
Bls.
Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra... 2-4
Áritun óháðs endurskoðanda... 5 - 8
Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu... 9
Efnahagsreikningur... 10
Eiginfjáryfirlit... 11
Sjóðstreymisyfirlit... 12
Skýringar... 13 - 36
Óendurskoðuð fylgiskjól:
Stjórnarháttayfirlýsing... 37 - 39
Ófjárhagslegar upplýsingar... 40 - 43
Ársfjórðungsyfirlit... 44
Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2021
Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra
Síminn er í fararbroddi á íslenskum fjarskiptamarkaði og veitir viðskiptavinum heildstætt vöruframboð á sviði fjarskipta og afbreyingar, hvort sem um einstaklinga eða fyrirtæki er að ræða. Félagið hefur í yfir 115 ára sögu sinni byggt upp eitt öflugasta og öruggasta fjarskiptanet sem fyrirfinnst í heiminum hvort heldur sem um ræðir farsíma- eða fastlínukerfi. Staða Símans er sterk á fjarskiptamarkaði og á undanförnum árum hefur mikill tekjuvöxtur átt sér stað í afbreyingarstarfsemi.
Ársreikningurinn hefur að geyma samstæðureikning Símans hf. og dótturfélaga hans, samanber skýringu 15, fyrir árið 2021. Megin starfssvæði félagsins er á íslandi.
Fréttir úr starfseminni
Í desember 2020 undirrituðu Síminn hf. og Crayon Group AS skuldbindandi samning um sölu Símans hf. á dótturfélaginu Sensa ehf. til Crayon Group AS. Uppgjör viðskiptanna átti sér stað í lok mars og var kaupverðið að fullu greitt í apríl. Söluverð félagsins var 3.710 m.kr. og nam söluhagnaður 2.180 m.kr. Sjá nánar í skýringu 20.
Þann 18. október sl. gekk Síminn hf. til einkaviðræðna við Ardian France SA um sölu á öllum eignarhlut í fjarskiptafélaginu Milu ehf. Þeim viðræðum lauk þann 23. október með undirritun samnings um sölu á 100% hlutafjár Milu ehf. Salan er háð hefðbundnum fyrirvara um sambykki Samkeppniseftirlitsins. Virði viðskiptanna (e. Enterprise value) er 78 milljarðar króna, að meðtöldum fjárhagslegum skuldbindingum Milu ehf. sem kaupandinn yfirtekur. Samkvæmt kaupsamningi fær Síminn greitt á efndadegi um 44 milljarða króna í reiðufé og 15 milljarða króna í formi skuldabréfs til þriggja ára. Áætlaður söluhagnaður er 46 milljarðar króna að teknu tilliti til kostnaðar vegna viðskiptanna. Sjá nánar í skýringu 20.
Rekstur ársins 2021
Rekstur félaganna Sensa ehf. og Milu ehf. er nú flokkaður sem aflögð starfsemi í ársreikningi 2021 og hefur samanburðartólum ársins 2020 verið breytt til samræmis. Rekstrartekjur félagsins námu 24.543 m.kr. árið 2021 samanborið við 23.969 m.kr. árið 2020. Um er að ræða 2,4% vöxt sem skýrist af vexti farsímatekna og sjónvarpsbjónustu. Tekjur af talsíma drógust saman á meðan gagnaflutningstekjur og vörusala standa nánast í stað á milli ára. Framlegð nam 8.497 m.kr. og var 34,6% af tekjum sem er lækkun um 954 m.kr. (2020: 9.451 m.kr. og 39,4% af tekjum). Rekstrarkostnaður var 6.750 m.kr. og lækkar um 1.110 m.kr. á milli ára (2020: 7.860 m.kr.) Breyting á framlegð og rekstrarkostnaði skýrist m.a. af sölu eigna tengdum farsíma- og netkerfum á milli Símans hf. og Milu ehf. Við þann flutning jukust tekjur Milu ehf. um u.þ.b. 1.900 m.kr. og EBITDA hækkaði um 1.200 m.kr. Launakostnaður lækkar á milli ára. Rekstrarhagnaður var 2.260 m.kr. samanborið við 2.144 m.kr. árið 2020. Hrein fjármagnsgjöld námu 114 m.kr. og lækka um 174 m.kr. á milli ára (2020: 288 m.kr.) sem skýrist af breytingu á fjármagnsskipan samstæðu á árinu og minni skuldsetningu. Áhrif af aflagðri starfsemi námu 3.478 m.kr. á árinu (2020: 1.457 m.kr.). Hagnaður af áframhaldandi starfsemi nam 1.735 m.kr. samanborið við 1.459 m.kr. árið 2020. Hagnaður ársins nam 5.213 m.kr. samanborið við 2.916 m.kr. árið 2020. EBITDA ársins af áframhaldandi starfsemi nam 5.502 m.kr. samanborið við 6.006 m.kr. árið 2020.
Efnahagsreikningur
Rekstrarfjármunir voru 2.219 m.kr. og lækka verulega á milli ára (2020: 18.991 m.kr.) þar sem eignir Milu eru nú flokkaðar til sölu, nánari umfjöllun er í skýringu 20. Sala Milu hefur veruleg áhrif á flesta liði efnahagsreikningsins. Veltufjármunir námu 46.677 m.kr. og hækka verulega á milli ára (2020: 7.749 m.kr.) vegna flokkunar eigna Milu. Aðrar skammtímakröfur námu 3.082 m.kr. (2020: 735 m.kr.) og skýrist breytingin af fyrirframgreiðslu á hluta sýningarréttar og fyrirframgreiddum kostnaði vegna söluferlis Milu ehf. Handbært fé nam 3.509 m.kr. (2020: 735 m.kr.) og skýrist hækkun af breyttri fjármagnsskipan sem var framkvæmd í mars og apríl 2021 og sölu á dótturfélaginu Sensa ehf. Eignir námu samtals 69.727 m.kr. samanborið við 65.206 m.kr. árið 2020. Hlutafé var 7.314 m.kr. í árslok (2020: 8.483 m.kr.) og lækkar um 1.169 m.kr. Aðalfundur ársins 2021 sambykkti að lækkar hlutafé um 316 m.kr. og jafnframt að lækkar hlutafé um 894 m.kr. með greiðslu til hluthafa sem nam 7.967 m.kr. Jafnframt var sambykkt tillaga um heimild til kaupa á eigin bréfum að hámarki 754 m.kr. að nafnvírði. Á árinu voru keypt eigin bréf að nafnvírði 279 m.kr. fyrir alls 2.965 m.kr. (2020: 267 m.kr. og 1.751 m.kr.). Eigið fé nam 31.079 m.kr. samanborið við 37.298 m.kr. í árslok 2020. Langtímaskuldir námu 7.200 m.kr. samanborið við 20.025 m.kr. í árslok 2020. Skuldir Milu ehf. eru flokkaðar undir skuldir vegna eigna til sölu sem hefur áhrif á skuldir og leiguskuldbindingar. Félagið endurfjármagnaði langtímalán sín á tímabilinu. Annars vegar með langtímaláni frá Arion banka að fjárhæð 6 ma.kr. auk 2 ma.kr. lánalínu. Skammtímaskuldir námu 31.448 m.kr. samanborið við 7.883 m.kr. í árslok 2020. Skammtímalán námu 1.518 m.kr. (2020: 500 m.kr.) og tengist hækkunin vixlaútgáfu frá júní 2021. Skuldir námu samtals 31.448 m.kr. samanborið við 27.908 m.kr. í árslok 2020.
Sjóðstreyhmi
Flokkun á Milu ehf. sem aflögð starfsemi hefur veruleg áhrif á framsetningu sjóðstreymis félagsins, sjá skýringu nr. 20. Breyting á rekstrartengdum eignum og skuldum var -1.099 m.kr. samanborið við 461 m.kr. árið 2020. Skýringin er greiddur kostnaður vegna söluferlis Milu ehf. og fyrirframgreiðsla á sýningarrétti. Vaxtatekjur námu 377 m.kr. (2020: 469 m.kr.) og lækka vegna
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2021
Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra
endurfjármögnunar Milu ehf. í apríl 2021 þar sem lán móðurfélags voru endurfjármögnuð með ytra láni. Vaxtagjöld námu 454 m.kr. (2020: 671 m.kr.) og lækka vegna minni skuldsetningar. Sala á eignarhlutum að frádregnu handbæru fé nam 3.193 m.kr. og er vegna sölu á Sensa ehf. á árinu. Samanlögð fjárfesting í rekstrarfjármunum og óefnislegum eignum lækkar vegna áðurnefndrar sölu eigna tengdum farsíma- og netkerfum frá Símanum hf. til Milu ehf. Þá hefur fyrirhuguð sala á Milu ehf. einnig þau áhrif að fjárfestingahreyfingar hækka umtalsvert og fjármögnunarhreýfingar lækka að sama skapi sem skýrist af endurfjármögnun Milu ehf. sem greiðist til samstæðu. Hækkun á handbæru fé nam 2.773 m.kr. (2020: 537 m.kr.) og tengist sölu Sensa ehf. og breyttri fjármagnsskipan.
Persönvernd
Persónuvernd er mikilvæg hjá félaginu og stækkandi þáttur í áhættumati. Hjá félaginu er mikil áhersla á vernd og öryggi persónuupplýsinga og er markmið félagsins að öll meðferð persónuupplýsinga sé í samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018. Jafnframt að til séu viðeigandi ferlar og verklagsreglur til að lágmarka áhættu. Hjá félaginu starfar persónuverndarfulltrúi sem hefur eftirlit með því að félagið uppfylli lagaskyldur sínar.
Upplýsingaöryggi
Upplýsingaöryggi er mikilvægur þáttur þegar kemur að innviðum félagsins. Félagið hefur sett sér stefnu í upplýsingaöryggi og stefnu um áhættustýringu. Félagið leitar allra leiða til að lágmarka ógnir og áhættur sem kunna að steðja að umhverfinu og notast við viðurkenndar og vottaðar aðferðir. Félagið rekur stjórnkerfi upplýsingaöryggis og er m.a. með vottun í ISO 27001. Félagið framkvæmir áhættumat á öllum sínum verðmætum sem falla innan umfangs vottunar, umfang vottunarinnar er allt umhverfi félagsins. Markmið með framkvæmd áhættumats er að koma auga á þær áhættur sem kunna að vera til staðar í umhverfinu, skilja tilvist þeirra og lágmarka áhættu sem af þeim steðja með skilgreindum og skráðum aðgerðum. Áhættumat og áhættustýring skilar stöðugum umbótum jafnt í þjónustu og rekstri og tryggir rétta stjórnun, byggir upp traust hagsmunaaðila á stjórnkerfi upplýsingaöryggis, áhættustýringu, lágmarkar áhættu í umhverfi, styrkir stjórnkerfi og bregst við breytingum á réttan hátt auk þess að vernda félagið.
Varðandi helstu áhættu- og óvissuþætti er vísað til skýringar 26.
Hlutafé og sambykktir
Hlutafé í árslok 2021 skiptist á 1.242 hluthafa en þeir voru 873 í ársbyrjun. Í árslok 2021 áttu tveir hluthafar yfir 10% af hlutafé félagsins en tiu stærstu hluthafar félagsins eru:
| Nafnverð hlutafjár í m.kr. | Eignarhlutur í % | |
|---|---|---|
| Stoðir hf. | 1.162 | 15,41% |
| Lífeyrissjóður verzlunarmanna | 868 | 11,51% |
| Lífeyrissj.starfsm.rík. A-deild | 744 | 9,87% |
| Gildi - lífeyrissjóður | 612 | 8,12% |
| Íslandsbanki hf, safnskráning 2 | 397 | 5,27% |
| Stapi lífeyrissjóður | 315 | 4,18% |
| Brú Lífeyrissjóður starfs sveit | 306 | 4,06% |
| Lífeyrissj.starfsm.rík. B-deild | 287 | 3,81% |
| Birta lífeyrissjóður | 275 | 3,65% |
| Söfnunarsjóður lífeyrísréttinda | 252 | 3,34% |
| 10 stærstu hluthafar samtals | 5.218 | 69,22% |
Á aðalfundi félagsins sem haldinn var þann 11. mars 2021 var sambykkt að heimila stjórn félagsins að kaupa fyrir hönd félagsins allt að 10% af nafnverði hlutafjár félagsins, sbr. VIII. kafla laga nr. 2/1995 um hlutafélög. Gildistími heimildarinnar er allt að átján mánuðir. Með sambykkt tillögu þessarar féll úr gildi sams konar heimild sem sambykkt var á aðalfundi félagsins þann 12. mars 2020.
Stjórn félagsins leggur til að greiddur verði arður að fjárhæð 500 m.kr. á árinu 2022. Þá leggur stjórn félagsins einnig til að lækka hlutafé félagsins til jöfnunar eigin hluta sem í lok árs námu 226 m.kr. að viðbættum hluta af endurkaupum á árinu 2022, samtals 240 m.kr. að nafnverði. Óskað verður eftir áframhaldandi heimild til endurkaupa eigin bréfa allt að 10% af hlutafé.
Skráð hlutafé félagsins nam í árslok 2021 7.540 m.kr., en félagið á eigin hluti í árslok að nafnverði 226 m.kr. Hlutaféð er í einum flokki sem skráður er í Kauphöll Íslands. Allir hlutir njóta sömu réttinda.
Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2021
Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra
Stjórn og stjórnarhættir
Stjórn Símans hf. leggur áherslu á að viðhalda góðum stjórnarháttum og að fylgja „Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja“ sem Viðskiptaráð Íslands, Nasdaq OMX Iceland hf. og Samtök atvinnulifsins hafa gefið út. Stjórnin hefur sett sér ítarlegar starfsreglur þar sem valdsvið hennar er skilgreint sem og verksvið gagnvart forstjóra. Félagið er með skráð verðbréf í Kauphöll Íslands hf. og ber því að fylgja leiðbeiningum um stjórnarhætti samkvæmt reglum Kauphallarinnar sem hægt er að nálgast á vef hennar.
Í stjórn félagsins eru þrír karlar og tvær konur og uppfyllir félagið ákvæði laga um kynjahlutföll stjórnar félagsins. Í framkvæmdastjórn félagsins sitja fjórir karlar.
Frekari upplýsingar um stjórn og stjórnarhætti er að finna í kaflanum stjórnarháttaryfirlýsing sem er viðauki með ársreikningnum.
Ófjárhagsleg upplýsingagjóf
Ófjárhagslegar upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að leggja mat á þróun, umfang, stöðu og áhrif félagsins í tengslum við umhverfis-, félags- og starfsmannamál, sem og stefnu félagsins í mannréttindamálum, mútu- og spillingarmálum, eru birtar sem viðauki með ársreikningnum.
Yfirlýsing stjórnar og forstjóra
Samkvæmt bestu vitneskju stjórnar og forstjóra er ársreikningur samstæðunnar í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu. Er það álit stjórnar og forstjóra að samstæðuársreikningurinn gefi glögga mynd af rekstrarafkomu samstæðunnar á árinu 2021, eignum, skuldum og fjárhagsstöðu hennar 31. desember 2021 og breytingu á handbæru fé á árinu 2021. Jafnframt er það álit stjórnar og forstjóra að samstæðuársreikningurinn gefi glöggt yfirlit um þróun og árangur í rekstri samstæðunnar og stöðu hennar og lýsi helstu áhættuþáttum og óvissu sem samstæðan býr við.
Stjórn og forstjóri Símans hf. hafa í dag fjallað um samstæðuársreikning félagsins fyrir árið 2021 og staðfesta hann með undirritun sinni.
Reykjavík, 15. febrúar 2022.
Stjórn
Jón Sigurðsson, formaður
Sigrún Ragna Ólafsdóttir, varaformaður
Arnar Þór Másson
Bjarni Þorvarðarson
Björk Viðarsdóttir
Forstjóri
Orri Hauksson
Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2021
Áritun óháðs endurskoðanda
Til stjórnar og hluthafa Símans hf.
Áritun um endurskoðun samstæðuársreiknings
Álit
Við höfum endurskoðað samstæðuársreikning Símans hf. („samstæðan“) fyrir árið 2021. Samstæðuársreikningurinn hefur að geyma rekstrarreikning og yfirlit um heildarafkomu, efnahagsreikning, eiginfjáryfirlit, sjóðstreymisyfirlit, upplýsingar um mikilvægar reikningsskilaaðferðir og aðrar skýringar.
Það er álit okkar að samstæðuársreikningurinn gefi glögga mynd af fjárhagsstöðu samstæðunnar 31. desember 2021 og afkomu hennar og breytingu á handbæru fé á árinu 2021, í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu og viðbótarkröfur sem koma fram í íslenskum lögum og reglum um ársreikninga skráðra félaga.
Álitið er í samræmi við skýrslu okkar til endurskoðunarnefndar og stjórnar.
Grundvöllur álits
Við endurskoðuðum í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Ábyrgð okkar samkvæmt stöðlunum er lýst frekar í kaflanum. Ábyrgð endurskoðanda á endurskoðun samstæðuársreikningsins í árituninni. Við erum óháð samstæðunni í samræmi við gildandi síðareglur fyrir endurskoðendur. Við teljum að við höfum aflað nægilegra og viðeigandi endurskoðunargagna til að byggja álit okkar á.
Samkvæmt bestu vitund okkar og skilningi lýsum við yfir að við höfum ekki veitt neina óheimila þjónustu samkvæmt 1. mgr. 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 537/2014 og við erum óháð samstæðunni við endurskoðunina.
Við vorum fyrst kjörin endurskoðendur á aðalfundi félagsins þann 16. apríl 2015 og höfum verið endurskoðendur félagsins samfellt síðan þá.
Lykilþættir endurskoðunar
Lykilþættir endurskoðunar eru þeir þættir, sem samkvæmt faglegu mati okkar, höfðu mest vægi við endurskoðun samstæðuársreikningsins. Við gefum ekki sérstakt álit á einstökum lykilþáttum en tókum á þeim við endurskoðun á samstæðuársreikningnum í heild og við ákvörðun um álit okkar á honum.
Lykilþáttur
Viðbrögð í endurskoðuninni
Mat viðskiptavildar
Bókfært verð viðskiptavildar í árslok 2021 nam 14,9 ma. kr. og er hún stærsta einstaka eign samstæðunnar. Viðskiptavild hefur verið deilt út á þær sjóðskapandi einingar innan samstæðunnar sem hún tilheyrir. Árlega ber að framkvæma virðisrýrnunarpróf á viðskiptavild og öðrum eignum sem ekki rýrna við notkun og hafa óskilgreindan líftíma.
Mat á verðmæti viðskiptavildar er einn af lykilþáttum í endurskoðun á ársreikningi samstæðunnar vegna þess hversu hátt hlutfall viðskiptavild er af heildareignum hennar og um er að ræða eign sem háð er mati stjórnenda. Mat á verðmæti viðskiptavildar byggir á væntingum stjórnenda um núvirt framtiðarsjóðstreymi sjóðskapandi eininga.
Í skýringu 14 er fjallað um virðisrýrnunarpróf sem framkvæmt var á viðskiptavild samstæðunnar í árslok og í skýringu 32.3 er fjallað um reikningsskilaaðferðir.
Við ásamt verðmatssérfræðingum okkar lögðum mat á forsendur sem stjórnendur nota við útreikning á núvirtu framtiðarsjóðstreymi fyrir hverja fjárskapandi einingu. Í þeirri vinnu fölst m.a.:
- Forsendur rekstrar- og sjóðstreymisáætlana til næstu fimm ára voru yfirfarnar. Við yfirferðina var lagt mat á forsendur um tekjur, rekstrakostnað, framlegð og fjárfestingar fyrir spátímabilið.
- Við yfirferð á rekstrar- og sjóðstreymisáætlunum er meðal annars horft til frávika frá áætlunum fyrri ára.
- Lagt var mat á forsendur fyrir áæltluðum framtiðarvexti að loknu spátímabilinu.
- Reiknilikan félagsins var yfirfarið og lagt mat á virkni þess.
- Farið var yfir ávöxtunarkröfu (WACC) sem notuð er við núvirðingu sjóðstreymis. Ávöxtunarkrafan er borin saman við fjármagnskostnað félagsins og aðrar markaðsforsendur.
- Forsendur stjórnenda voru bornar saman við ytri og innri gögn.
- Við yfirfórum skýringar í ársreikningi og staðfestum að helstu upplýsingar sem reikningsskilareglur kveða á um kæmu fram.
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2021
Áritun óháðs endurskoðanda, frh:
| Lýkilþáttur | Viðbrögð í endurskoðuninni |
|---|---|
| Tekjuskráning | |
| Tekjuskráningarkerfi samstæðunnar eru flókin og skrá mikinn fjölda færslna í mörgum kerfum. Tekjur samstæðunnar skiptast niður á símaþjónustu, gagnaflutninga, sjónvarpsþjónustu, upplýsingatækni og vörusölu. Gerð er grein fyrir tekjuskráningu samstæðunnar í skýringu 32.4. |
Skráning tekna er einn af lykilþáttum í endurskoðun á ársreikningi samstæðunnar vegna mikils fjölda af færslum og flókinna skráninga í tekjuskráningarkerfi þar sem framboð og verð á vörum og þjónustu tekur reglulegum breytingum. | Endurskoðunaraðgerðir okkar miðuðu að því að leggja mat á hönnun, innleiðingu og virkni á sjálfvirkum eftirlitsþáttum með tekjuskráningu auk viðeigandi gagnaendurskoðunaraðgerða með það að markmiði að sannreyna heild og nákvæmni í tekjuskráningu og að tekjur séu skráðar á viðeigandi tímabil. Í þeirri vinnu fólst m.a.:
• Lagt var mat á þau fjárhags- og upplýsingakerfi sem notuð eru við tekjuskráningu og flæði á milli tekjukerfa og fjárhagskerfis. Einnig voru framkvæmdar prófanir á völdum sjálfvirkum eftirlitsþáttum sem eru til staðar í ferlinu.
• Skoðun á aðgangsheimildum starfsmanna í fjárhags og upplýsingakerfum samstæðunnar.
• Skoðun á eftirlitsþáttum við reikningagerð sem eru hannaðir til að tryggja réttmæti og nákvæmni útsendra reikninga.
• Greiningartæki var notað við skoðun á tekjufærslum í þeim tilgangi að greina óvenjulegar færslur til frekari skoðunar. |
Aðrar upplýsingar í ársskýrslu
Stjórn og forstjóri bera ábyrgð á öðrum upplýsingum. Aðrar upplýsingar eru ársskýrsla að undanskildum samstæðuársreikningi og áritun okkar á hann. Álit okkar á samstæðuársreikningnum nær ekki til annarra upplýsinga og við staðfestum þær ekki á neinn hátt.
Í tengslum við endurskoðun okkar á samstæðuársreikningnum ber okkur að lesa aðrar upplýsingar í ársskýrslu þegar þær liggja fyrir og meta hvort þær séu í verulegu ósamræmi við samstæðuársreikninginn eða aðra þekkingu sem við höfum aflað okkur við endurskoðunina eða virðast verulega rangar. Ef við, á grundvelli vinnu okkar, ályktum að verulegar rangfærslur séu í öðrum upplýsingum ber okkur að skýra frá því. Ársskýrslan liggur ekki fyrir við áritun okkar á samstæðuársreikninginn en við munum fá hana afhenta til yfirferðar áður en hún verður gefin út.
Ábyrgð stjórnar og forstjóra á samstæðuársreikningnum
Stjórn og forstjóri eru ábyrg fyrir gerð og glöggri framsetningu samstæðuársreikningsins í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu og viðbótarkröfur sem koma fram í íslenskum lögum og reglum um ársreikninga skráðra félaga og fyrir því innra eftirliti sem þau telja nauðsynlegt til að gera þeim kleift að setja fram samstæðuársreikning sem er án verulegra annmarka, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka.
Við gerð samstæðuársreikningsins ber stjórn og forstjóra að leggja mat á rekstarhæfi félagsins og upplýsa, eftir því sem við á, um þætti er varða rekstrarhæfi og miða grundvöll reikningsskilanna við áframhaldandi rekstrarhæfi, nema þau ætli annað hvort að leysa samstæðuna upp eða hætta starfsemi hennar, eða hafa engan annan raunhæfan kost en að gera það.
Stjórn og forstjóri skulu hafa eftirlit með gerð og framsetningu samstæðuársreikningsins.
Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2021
Áritun óháðs endurskoðanda, frh:
Ábyrgð endurskoðanda á endurskoðun samstæðuársreikningsins
Markmið okkar eru að öðlast hæfilega vissu um hvort samstæðuársreikningurinn í heild sé án verulegra annmarka, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka, og að gefa út áritun endurskoðanda sem inniheldur álit okkar. Í hæfilegri vissu felst áreiðanleiki en ekki trygging fyrir því að endurskoðun í samræmi við alpjóðlega endurskoðunarstaðla muni alltaf leiða í ljós verulega annmarka ef þeir eru fyrir hendi. Annmarkar geta komið fram vegna sviksemi eða mistaka og eru taldir verulegir ef þeir einir og sér eða samanlagt gætu haft áhrif á efnahagslegar ákvarðanir sem notendur samstæðuársreikningsins taka á grundvelli hans.
Við endurskoðun í samræmi við alpjóðlega endurskoðunarstaðla beitum við ávallt faglegri dómgreind og viðhöfum faglega gagnrýni. Að auki:
-
Greinum við og metum hættu á verulegri skekkju í samstæðuársreikningnum, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka, skipuleggjum og framkvæmum endurskoðunaraðgerðir til að bregðast við þeirri hættu og öflum endurskoðunargagna sem eru nægjanleg og viðeigandi til að byggja álit okkar á. Hættan á að uppgötva ekki verulega skekkju vegna sviksemi er meiri en að uppgötva ekki skekkju vegna mistaka, þar sem sviksemi getur falið í sér samsæri, fölsun, að einhverju sé viljandi sleppt, villandi framsetningu eða að farið sé framhjá innra eftirliti.
-
Öflum við skilnings á innra eftirliti, sem varðar endurskoðunina, til að skipuleggja viðeigandi endurskoðunaraðgerðir, en ekki til að veita álit á virkni innra eftirlits samstæðunnar.
-
Metum við hvort reikningsskilaaðferðir og reikningshaldslegt mat stjórnenda og tengdar skýringar séu viðeigandi.
-
Ályktum við um hvort notkun stjórnar og forstjóra á forsendu reikningsskilanna um rekstrarhæfi sé viðeigandi og metum, á grundvelli endurskoðunarinnar, hvort aðstæður séu til staðar sem valdið gætu verulegum vafa um rekstrarhæfi samstæðunnar. Ef við teljum að verulegur vafi leiki á rekstrarhæfi ber okkur, í áritun okkar, að vekja sérstaka athygli á viðeigandi skýringum samstæðuársreikningsins eða, ef slíkar skýringar eru ófullnægjandi, að víkja frá fyrirvaralausri áritun. Niðurstaða okkar byggir á endurskoðunargögnum sem aflað er fram að dagsetningu áritunar okkar. Samt sem áður geta atburðir eða aðstæður í framtiðinni gert samstæðuna órekstrarhæfa.
-
Metum við framsetningu, uppbýggingu og innihald samstæðuársreikningsins í heild, að meðtöldum skýringum, og hvort samstæðuársreikningurinn gefi glögga mynd af undirliggjandi viðskiptum og atburðum.
-
Öflum nægilegra og viðeigandi endurskoðunargagna varðandi fjárhagslegar upplýsingar eininga innan samstæðunnar til að geta gefið álit á samstæðuársreikningnum. Við erum ábyrg fyrir skipulagi, eftirliti og framkvæmd endurskoðunar samstæðunnar og berum óskipta ábyrgð á áritun okkar.
Við upplýsum stjórn og endurskoðunarnefnd meðal annars um áæltað umfang og tímasetningar endurskoðunarinnar og veruleg atriði sem upp kunna að koma í endurskoðun okkar, þar á meðal verulega annmarka á innra eftirliti.
Við lýsum því einnig yfir við stjórn og endurskoðunarnefnd að við höfum uppfyllt skyldur síðareglna um óhæði og upplýsum um tengsl eða önnur atriði sem gætu mögulega talist hafa áhrif á óhæði okkar og þegar við á, til hvaða varnaraðgerða við höfum gripið.
Af þeim atriðum sem við höfum upplýst stjórn og endurskoðunarnefnd um, leggjum við mat á hvaða þættir höfðu mesta þýðingu við endurskoðun samstæðuársreikningsins og eru því lýkilþættir endurskoðunarinnar. Við lýsum þessum þáttum í áritun okkar nema lög og reglur útiloki að upplýst sé um þá eða, við einstakar mjög sjaldgæfar kringumstæður, þegar við metum að ekki skuli upplýsa um lýkilþátt þar sem neikvæðar afleiðingar þess eru taldar vega þyngra en almennir hagsmunir af birtingu slíkra upplýsinga.
Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2021
Áritun óháðs endurskoðanda, frh:
Staðfesting vegna annarra ákvæða laga
Áritun vegna sameiginlegs rafræns skýrslusniðs (ESEF reglur)
Í tengslum við endurskoðun okkar á samstæðuársreikningi Símans hf. framkvæmdum við aðgerðir til að geta gefið álit á því hvort samstæðuársreikningur Símans hf. fyrir árið 2021 með skráarheitið 254900X9GQZN6UGXYF10-2021-12-31-is hafi í öllum meginatriðum verið gerður í samræmi við lög um upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa og flöggunarskyldu nr. 20/2021 um sameiginleg rafræn skýrslusnið í samræmi við reglur ESB 2019/815 sem innihalda skilyrði sem tengjast gerð samstæðuársreikningsins á XHTML formi og iXBRL merkingum.
Stjórn og forstjóri eru ábyrg fyrir gerð samstæðuársreikningsins í samræmi við lög um upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa og flöggunarskyldu nr. 20/2021. Í því felst meðal annars að útbúa samstæðuársreikninginn á XHTML formi í samræmi við ákvæði reglugerðar ESB 2019/815, um sameiginleg rafræn skýrslusnið.
Ábyrgð okkar er að afla hæfilegrar vissu, byggt á gögnum sem við höfum aflað, um hvort samstæðuársreikningurinn sé í öllum meginatriðum gerður í samræmi við ESEF reglur og gefa út áritun með áliti okkar. Eðli, tímasetning og umfang vinnunnar byggja á mati endurskoðandans, þar á meðal mati á hættunni á að vikið sé í verulegum atriðum frá kröfum sem fram koma í ESEF reglunum, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka.
Það er álit okkar að samstæðuársreikningur Símans hf. fyrir árið 2021 með skráarheitið 254900X9GQZN6UGXYF10-2021-12-31-is sé í öllum meginatriðum gerður í samræmi við ESEF reglur.
Staðfesting vegna skýrslu stjórnar
Í samræmi við ákvæði 2. mgr. 104 gr. laga nr. 3/2006 um ársreikninga staðfestum við samkvæmt okkar bestu vitund að í skýrslu stjórnar sem fylgir þessum samstæðuársreikningi eru veittar þær upplýsingar sem þar ber að veita í samræmi við lög um ársreikninga og koma ekki fram í skýringum.
Árni Claessen, endurskoðandi, ber ábyrgð á endurskoðun samstæðuársreikningsins og þessari áritun.
Reykjavík, 15. febrúar 2022.
KPMG ehf.
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2021
Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu ársins 2021
| Skýr. | 2021 | 2020* | |
|---|---|---|---|
| Sala | 5 | 24.030 | 23.416 |
| Kostnaðarverð sól | 6 | ( 15.533) | ( 13.965) |
| Framlegð | 8.497 | 9.451 | |
| Aðrar rekstrartekjur | 513 | 553 | |
| Rekstrarkostnaður | 7 | ( 6.750) | ( 7.860) |
| Rekstrarhagnaður | 2.260 | 2.144 | |
| Fjármunatekjur | 382 | 460 | |
| Fjármagnsgjöld | ( 453) | ( 683) | |
| Gengismunur | ( 43) | ( 65) | |
| Hrein fjármagnsgjöld | 9 | ( 114) | ( 288) |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | 2.146 | 1.856 | |
| Reiknaðir skattar | 10 | ( 411) | ( 397) |
| Hagnaður og heildarhagnaður af áframhaldandi starfsemi ársins | 1.735 | 1.459 | |
| Hagnaður af aflagðri starfsemi eftir skatta | 20 | 3.478 | 1.457 |
| Hagnaður og heildarhagnaður ársins | 5.213 | 2.916 | |
| EBITDA áframhaldandi starfsemi | 4 | 5.502 | 6.006 |
| EBITDA aflagðrar starfsemi | 5.101 | 3.950 | |
| EBITDA samtals | 10.603 | 9.956 | |
| Hagnaður á hlut | |||
| Grunnhagnaður á hlut af áframhaldandi starfsemi | 11 | 0,23 | 0,17 |
| Þynntur hagnaður á hlut af áframhaldandi starfsemi | 11 | 0,23 | 0,17 |
| Grunnhagnaður á hlut af aflagðri starfsemi | 11 | 0,45 | 0,17 |
*Fjárhæðum vegna 2020 hefur verið breytt vegna sölu á dótturfélögum, sjá skýringu 20
Skýringar á blaðsiðum 13 - 36 eru óaðskiljanlegur hluti af ársreikningnum.
Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2021
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Efnahagsreikningur ársins 2021
| Skýr. | 31.12.2021 | 31.12.2020 | |
|---|---|---|---|
| Eignir | |||
| Fastafjármunir | |||
| Rekstrarfjármunir | 12 | 2.219 | 18.991 |
| Leigueignir | 13 | 753 | 5.378 |
| Óefnislegar eignir | 14 | 19.403 | 32.544 |
| Aðrar eignir | 16 | 675 | 544 |
| Fastafjármunir | 23.050 | 57.457 | |
| Veltufjármunir | |||
| Birgðir | 17 | 923 | 1.127 |
| Viðskiptakrófur | 18 | 2.234 | 3.147 |
| Aðrar skammtímakrófur | 19 | 3.082 | 834 |
| Handbært fé | 3.509 | 735 | |
| Eignir flokkaðar til sölu | 20 | 36.929 | 1.906 |
| Veltufjármunir | 46.677 | 7.749 | |
| Eignir samtals | 69.727 | 65.206 | |
| Eigið fé | |||
| Hlutafé | 21 | 7.314 | 8.483 |
| Yfirverðsreikningur | 21 | 3.278 | 13.041 |
| Annað eigið fé | 21 | 154 | 154 |
| Annað bundið eigið fé | 21 | 2.020 | 674 |
| Óráðstafað eigið fé | 18.313 | 14.946 | |
| Eigið fé | 21 | 31.079 | 37.298 |
| Skuldir | |||
| Langtímaskuldir | |||
| Skuldabréfalán | 22 | 5.943 | 14.289 |
| Leiguskuldbindingar | 23 | 653 | 5.066 |
| Tekjuskattsskuldbinding | 24 | 604 | 670 |
| Langtímaskuldir | 7.200 | 20.025 | |
| Skammtímaskuldir | |||
| Skammtímálán | 1.518 | 500 | |
| Viðskiptaskuldir | 2.141 | 2.554 | |
| Næsta árs afborganir langtímaskulda | 22 | 0 | 1.150 |
| Næsta árs afborganir leiguskuldbindinga | 23 | 180 | 513 |
| Skattar til greiðslu | 894 | 850 | |
| Aðrar skammtímaskuldir | 25 | 889 | 1.540 |
| Skuldir sem tengjast eignum sem flokkaðar eru til sölu | 20 | 25.826 | 776 |
| Skammtímaskuldir | 31.448 | 7.883 | |
| Skuldir samtals | 38.648 | 27.908 | |
| Eigið fé og skuldir samtals | 69.727 | 65.206 |
Skýringar á blaðsiðum 13 - 36 eru óaðskiljanlegur hluti af ársreikningnum.
Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2021
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Eiginfjáryfirlit ársins 2021
| Hlutafé | Yfirverðs-reikningur | Annað eigið fé | Annað bundið eigið fé | Óráðstafað eigið fé | Eigið fé samtals | |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Eigið fé 1.1.2020 | 8.750 | 14.525 | 154 | 456 | 12.747 | 36.632 |
| Hagnaður og heildarhagnaður ársins | 2.916 | 2.916 | ||||
| Þýðingarmunur | 1 | 1 | ||||
| Greiddur arður (0,057144 á hlut) | ( 500) | ( 500) | ||||
| Keypt eigin bréf | ( 267) | ( 1.484) | ( 1.751) | |||
| Fært á bundið eigið fé | 217 | ( 217) | 0 | |||
| Eigið fé 31.12.2020 | 8.483 | 13.041 | 154 | 674 | 14.946 | 37.298 |
| Eigið fé 1.1.2021 | 8.483 | 13.041 | 154 | 674 | 14.946 | 37.298 |
| Hagnaður og heildarhagnaður ársins | 5.213 | 5.213 | ||||
| Greiddur arður (0,05953 á hlut) | ( 500) | ( 500) | ||||
| Hlutafjárlækkun | ( 890) | ( 7.077) | ( 7.967) | |||
| Keypt eigin bréf | ( 279) | ( 2.686) | ( 2.965) | |||
| Fært á bundið eigið fé | 1.346 | ( 1.346) | 0 | |||
| Eigið fé 31.12.2021 | 7.314 | 3.278 | 154 | 2.020 | 18.313 | 31.079 |
Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2021
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Sjóðstreymisyflrit 2021
| Skýr. | 2021 | 2020* | |
|---|---|---|---|
| Rekstrarhreyfingar | |||
| Rekstrarhagnaður samkvæmt rekstrarreikningi | 2.260 | 2.144 | |
| Rekstrarliðir sem ekki hafa áhrif á fjárstreymi: | |||
| Afskriftir | 12-14 | 3.242 | 3.862 |
| Söluhagnaður varanlegra rekstrarfjármuna | ( 1) | ( 2) | |
| 5.501 | 6.004 | ||
| Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum: | |||
| Birgðir, læk kun | 130 | 460 | |
| Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur, hæk kun | ( 1.489) | ( 37) | |
| Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir, hæk kun | 260 | 38 | |
| Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum | ( 1.099) | 461 | |
| Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta | 4.402 | 6.465 | |
| Innborgaðir vextir | 377 | 471 | |
| Greiddir vextir | ( 454) | ( 734) | |
| Greiddir skattar | ( 565) | ( 627) | |
| Handbært fé frá rekstri | 3.760 | 5.575 | |
| Fjárfestingarhreyfingar | |||
| Fjárfesting í rekstrarfjármunum | 12 | ( 556) | ( 1.638) |
| Fjárfesting í óefnislegum eignum | 14 | ( 1.952) | ( 1.764) |
| Söluverð rekstrarfjármuna | 20 | 7.694 | 3 |
| Skuldabréfaeign, breyting | ( 894) | ( 211) | |
| Greiðsla á láni og læk kun hlutafjár dótturfélags | 20 | 12.000 | 0 |
| Áhrif af aflagðri starfsemi | 20 | ( 454) | 1.449 |
| Sala á eignarhlutum í dótturfélögum, að frádregnu handbæru fé | 20 | 3.193 | 0 |
| Fjárfestingarhreyfingar | 19.031 | ( 2.161) | |
| Fjármögnunarhreyfingar | |||
| Greiddur arður | ( 500) | ( 500) | |
| Kaup eigin bréfa | 21 | ( 2.965) | ( 1.751) |
| Útgreitt hlutafé | ( 7.968) | 0 | |
| Tekin ný langtímalán | 6.000 | 0 | |
| Afborganir langtímalána | 22 | ( 15.429) | ( 192) |
| Afborganir leguskuldbindinga | 23 | ( 174) | ( 334) |
| Skammtímalán, breyting | 1.018 | ( 100) | |
| Fjármögnunarhreyfingar | ( 20.018) | ( 2.877) | |
| Hæk kun á handbæru fé | 2.773 | 537 | |
| Áhrif gengisbreytinga á handbært fé | 1 | ( 19) | |
| Handbært fé í byrjun ársins | 735 | 217 | |
| Handbært fé í lok ársins | 3.509 | 735 |
*Fjárhæðum vegna 2020 hefur verið breytt vegna sölu á dótturfélögum, sjá skýringu 20
Skýringar á blaðsiðum 13 - 36 eru óaðskiljanlegur hluti af ársreikningnum.
Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2021
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Skýringar
1. Starfsemi
Síminn hf. er hlutafélag og starfar á grundvelli laga nr. 2/1995 um hlutafélög. Höfuðstöðvar félagsins eru að Ármúla 25 í Reykjavík. Samstæðuársreikningur fyrir árið 2021 hefur að geyma ársreikning félagsins og dótturfélaga þess sem vísað er til í heild sem „félagsins“ og til einstakra félaga sem „dótturfélaga“.
Meginstarfsemi félagsins er á sviði fjarskipta og afþreyingar.
2. Grundvöllur reikningsskilanna
Yfirlýsing um að alþjóðlegum reikningsskilastöðlum sé fylgt
Ársreikningur félagsins er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastøða (IFRS) eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu. Auk þess hefur samstæðan beitt ákvæðum laga nr. 3/2006 um ársreikninga þegar ekki er kveðið á um tiltekin atriði í alþjóðlegum reikningsskilastöðlum, svo sem um færslur inn á bundinn hlutdeildarreikning á meðal eigin fjár og viðbótarkröfur ársreikningalaga um upplýsingagjóf. Samantekt á mikilvægum reikningsskilaaðferðum er að finna í skýringu 32.
Hægt er að nálgast ársreikninginn á vef félagsins, www. siminn.is og á vef Kauphallar Íslands: www.nasdaqomxnordic.com.
Stjórn og forstjóri félagsins samþykktu ársreikninginn og heimiluðu birtingu hans á stjórnarfundi þann 15. febrúar 2022.
Grundvöllur matsaðferða
Samstæðuársreikningurinn er gerður samkvæmt kostnaðarverðsaðferð.
Starfrækslugjaldmiðill og framsetningargjaldmiðill
Ársreikningurinn er gerður í íslenskum krónum sem er starfrækslugjaldmiðill félagsins og eru fjárhæðir birtar í milljónum króna nema annað sé tekið fram.
Mat og ákvarðanir
Gerð samstæðuársreiknings í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastøða krefst þess að stjórnendur taki ákvarðanir, meti og gefi sér forsendur sem hafa áhrif á beitingu reikningsskilaaðferða og birtar fjárhæðir eigna, skulda, tekna og gjalda. Endanlegar niðurstöður kunna að verða frábrugðnar þessu mati.
Mat og forsendur þess eru í stöðugri endurskoðun. Breytingar á reikningshaldslegu mati eru færðar á því tímabili sem breytingin á sér stað og þeim framtiðartímabilum sem breytingarnar hafa áhrif á.
Upplýsingar um mikilvægar ákvarðanir þar sem reikningsskilaaðferðir hafa mest áhrif á skráðar fjárhæðir eigna og skulda í ársreikningnum er að finna í skýringu 14 um mat á endurheimtanlegum fjárhæðum fjárskapandi eininga sem innihalda viðskiptavild.
3. Breytingar á reikningsskilaaðferðum
Við gerð ársreikningsins er beitt sömu reikningsskilaaðferðum og við gerð ársreiknings félagsins fyrir árið 2020.
Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2021
13
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Skýringar
4. Starfsþáttayfirlit
Yfirlit um starfsþætti veitir upplýsingar um einstaka þætti í rekstri félagsins og er sett fram með sama hætti og regluleg skýrslugjóf til stjórnar félagsins.
Starfsemi félagsins skiptist í sex starfsþætti sem selja vörur og þjónustu á mismunandi mörkuðum. Starfsþættirnir voru sjö áður en með sölu á Sensa fellur út starfsþáttur sem snéri að upplýsingatækni. Starfsþættirnir eru:
| Starfsþáttur | Lýsing | ||||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Farsímapjónusta: | Farsímapjónusta innanlands og erlendis, hvort sem heldur er hefðbundin GSM þjónusta, gervihnattapjónusta eða önnur farsímapjónusta. | ||||||
| Talsímapjónusta: | Talsímapjónusta fyrir fyrirtæki og einstaklinga. | ||||||
| Gagnaflutningur: | Gagnaflutningsþjónusta, þ.m.t. xDSL þjónusta, GPON, Internet, IP net, heimtaugar og aðgangsnet. | ||||||
| Sjónvarpsþjónusta: | Dreifing á sjónvarpsefni, áskrift, notkun og auglýsingar á miðlum félagsins. | ||||||
| Vörusala búnáðar: | Sala á fjarskiptabúnaði og fylgihlutum. | ||||||
| Annað: | Tekjur tengdar fjarskiptum, upplýsingatækni og fjármálum. | ||||||
| Starfsþættir 2021 | Farsíma-þjónusta | Talsíma-þjónusta | Gagna-flutningur | Sjónvarps-þjónusta | Vörusala búnáðar | Annað | Samtals |
| Rekstrartekjur | 5.604 | 1.572 | 7.342 | 6.383 | 2.148 | 1.494 | 24.543 |
| Óskipt rekstrargjöld | ( 19.041) | ||||||
| Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) | 5.502 | ||||||
| Afskriftir | ( 3.242) | ||||||
| Hrein fjármagnsgjöld | ( 114) | ||||||
| Reiknaðir skattar | ( 411) | ||||||
| Hagnaður af áframhaldandi starfsemi | 1.735 | ||||||
| Aflögð starfsemi | 3.478 | ||||||
| Hagnaður ársins | 5.213 | ||||||
| Fjárfestingar | 5.186 | ||||||
| Óskiptar eignir 31.12.2021 | 69.727 | ||||||
| Óskiptar skuldir 31.12.2021 | 38.648 | ||||||
| Starfsþættir 2020 | Farsíma-þjónusta | Talsíma-þjónusta | Gagna-flutningur | Sjónvarps-þjónusta | Vörusala búnáðar | Annað | Samtals |
| --- | --- | --- | --- | --- | --- | --- | --- |
| Rekstrartekjur | 5.343 | 1.725 | 7.334 | 6.266 | 2.162 | 1.139 | 23.969 |
| Óskipt rekstrargjöld | ( 17.963) | ||||||
| Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) | 6.006 | ||||||
| Afskriftir | ( 3.862) | ||||||
| Hrein fjármagnsgjöld | ( 288) | ||||||
| Reiknaðir skattar | ( 397) | ||||||
| Hagnaður af áframhaldandi starfsemi | 1.459 | ||||||
| Aflögð starfsemi | 1.457 | ||||||
| Hagnaður ársins | 2.916 | ||||||
| Fjárfestingar | ( 3.399) | ||||||
| Óskiptar eignir 31.12.2020 | 65.206 | ||||||
| Óskiptar skuldir 31.12.2020 | 27.908 |
Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2021
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Skýringar
| 5. Sala | 2021 | 2020 |
|---|---|---|
| Seld bjónusta og vörur greinast bannig: | ||
| Sala á bjónustu | 21.445 | 21.110 |
| Vörusala | 2.585 | 2.306 |
| 24.030 | 23.416 | |
| Enginn einstakur viðskiptavinur er með meira en 10% af sölu félagsins. | ||
| 6. Kostnaðarverð sölu | ||
| Kostnaðarverð sölu greinist bannig: | ||
| Laun og launatengd gjöld | 735 | 932 |
| Kostnaðarverð seldrar bjónustu | 9.496 | 7.483 |
| Samtengigjöld | 678 | 663 |
| Kostnaðarverð seldra vara | 2.346 | 2.166 |
| Eignfærð vinna | ( 207) | ( 277) |
| Afskriftir | 2.485 | 2.998 |
| 15.533 | 13.965 |
Kostnaðarverð seldrar bjónustu samanstendur af; efniskostnaði, bjónustusamningum, leyfisgjöldum, aðkeyptri bjónustu og fjarskiptakostnaði.
7. Rekstrarkostnaður
Rekstrarkostnaður greinist bannig:
| Laun og launatengd gjöld | 3.123 | 3.486 |
|---|---|---|
| Markaðs- og sölukostnaður | 554 | 482 |
| Húsnæðis- og bifreiðakostnaður | 543 | 844 |
| Tölvu- og hugbúnaðarkostnaður | 1.043 | 1.026 |
| Skrifstofu- og stjórnunarkostnaður | 729 | 1.158 |
| Afskriftir | 758 | 864 |
| 6.750 | 7.860 |
8. Laun og launatengd gjöld
Laun og launatengd gjöld greinast bannig:
| Laun | 3.155 | 3.629 |
|---|---|---|
| Lífeyrissjóðsíðgjöld | 431 | 474 |
| Önnur launatengd gjöld | 272 | 315 |
| 3.858 | 4.418 | |
| Ársverk | 308 | 356 |
| --- | --- | --- |
63% starfsmanna félagsins eru karlar (2020: 67%) og 37% konur (2020: 33%).
Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2021
Fjórhæðir eru í milljónum króna
Skýringar
-
Laun og launatengd gjöld, frh.:
Laun og launatengd gjöld skiptast þannig á rekstrarliði:
| Kostnaðarverð sölu | 735 | 932 |
| --- | --- | --- |
| Rekstrarkostnaður | 3.123 | 3.486 |
| | 3.858 | 4.418 | -
Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld
Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld greinast þannig:
Fjármunatekjur
| Vaxtatekjur af bankainnistæðum og kröfum | 380 | 456 |
| --- | --- | --- |
| Fenginn arður | 2 | 4 |
| | 382 | 460 |
Fjármagnsgjöld
| Vaxtagjöld | ( 292) | ( 528) |
| --- | --- | --- |
| Vaxtagjöld vegna leiguskuldbindinga | ( 45) | ( 83) |
| Niðurfærsla lána | ( 41) | ( 12) |
| Önnur fjármagnsgjöld | ( 75) | ( 60) |
| | ( 453) | ( 683) |
| Gengismunur | ( 43) | ( 65) |
| Hrein fjármagnsgjöld | ( 114) | ( 288) |
- Skattar
Tekjuskattur er reiknaður og færður í ársreikninginn. Tekjuskattur vegna ársins 2021 til greiðslu á árinu 2022 nemur 879 m.kr. Ógreitt jöfnunargjald vegna ársins 2021 til greiðslu 2022 nemur 15,3 m.kr. Samtals eru skattar til greiðslu 894 m.kr. í árslok.
| Greining á virku skatthlutfalli: | 2021 | 2020 | ||
|---|---|---|---|---|
| Hagnaður fyrir skatta | 2.146 | 1.856 | ||
| Skatthlutfall | 20,0% | ( 429) | 20,0% | ( 371) |
| Ófrádráttarbær kostnaður | 0,0% | ( 1) | 1,6% | ( 30) |
| Óskattskyldar tekjur | (0,2%) | 5 | (0,3%) | 6 |
| Jöfnunargjald | 0,6% | ( 12) | 0,6% | ( 12) |
| Aðrar breytingar | (1,2%) | 26 | (0,5%) | 10 |
| Skattur samkvæmt rekstrarreikningi | 19,2% | ( 411) | 21,4% | ( 397) |
- Hagnaður á hlut
Grunnhagnaður á hlut er miðaður við hagnað, sem ráðstafað er til hluthafa í félaginu og vegins meðaltals hlutafjár á árinu og sýnir hver hagnaðurinn er á hverja krónu hlutafjár. Þynntur hagnaður á hlut miðar við hagnað sem ráðstafað er til hluthafa í móðurfélaginu og vegins meðaltals virkra hluta að teknu tilliti til þynningaráhrifa væntra útgefinna hluta vegna kaupréttta starfsmanna. Í árslok 2021 eru engir kaupréttarsamningar við starfsmenn í gildi.
Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2021
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Skýringar
-
Hagnaður á hlut, frh.:
| Hagnaður ársins af áframhaldandi starfsemi | 1.735 | 1.459 |
| --- | --- | --- |
| Hagnaður ársins af aflagðri starfsemi | 3.478 | 1.457 |
| Hagnaður ársins til hluthafa í móðurfélaginu | 5.213 | 2.916 |
| Hlutafé í ársbyrjun | 8.483 | 8.750 |
| Áhrif keyptra og seldra eigin bréfa | ( 1.085) | ( 111) |
| Vegið meðaltal útistandandi hluta | 7.398 | 8.639 |
| Hagnaður á hlut af áframhaldandi starfsemi | 0,23 | 0,17 |
| Hagnaður á hlut af aflagðri starfsemi | 0,45 | 0,17 |
| Þynntur hagnaður á hlut af áframhaldandi starfsemi | 0,23 | 0,17 | -
Rekstrarfjármunir
Rekstrarfjármunir og afskriftir greinast þannig:
| Fjarskipta-búnaður | Fasteignir og lóðir | Tæki, búnaður og bifreiðar | Samtals | |
|---|---|---|---|---|
| Kostnaðarverð | ||||
| Heildarverð 1.1.2020 | 45.416 | 1.910 | 2.384 | 49.710 |
| Endurflokkað á eignir til sölu | ( 457) | ( 7) | ( 993) | ( 1.457) |
| Kaup á árinu | 3.721 | 49 | 170 | 3.940 |
| Selt og niðurlagt á árinu | ( 663) | ( 15) | ( 62) | ( 740) |
| Heildarverð 31.12.2020 | 48.017 | 1.937 | 1.499 | 51.453 |
| Endurflokkað | ( 81) | 0 | 0 | ( 81) |
| Endurflokkað á eignir til sölu | ( 27.509) | ( 1.770) | ( 490) | ( 29.769) |
| Kaup á árinu | 476 | 0 | 80 | 556 |
| Selt og niðurlagt á árinu | ( 9.485) | 0 | ( 241) | ( 9.726) |
| Heildarverð 31.12.2021 | 11.418 | 167 | 848 | 12.433 |
| Afskriftir og virðisrýrnun | ||||
| Afskrifað 1.1.2020 | 28.273 | 972 | 1.749 | 30.994 |
| Endurflokkað á eignir til sölu | ( 371) | ( 7) | ( 873) | ( 1.251) |
| Afskriftir | 3.133 | 91 | 221 | 3.445 |
| Selt og niðurlagt á árinu | ( 654) | ( 13) | ( 59) | ( 726) |
| Afskrifað alls 31.12.2020 | 30.381 | 1.043 | 1.038 | 32.462 |
| Endurflokkað | ( 34) | 0 | 0 | ( 34) |
| Endurflokkað á eignir til sölu | ( 12.703) | ( 1.026) | ( 258) | ( 13.987) |
| Afskriftir | 954 | 1 | 80 | 1.035 |
| Selt og niðurlagt á árinu | ( 9.057) | 0 | ( 205) | ( 9.262) |
| Afskrifað alls 31.12.2021 | 9.541 | 18 | 655 | 10.214 |
| Bókfært verð | ||||
| Bókfært verð 1.1.2020 | 17.143 | 938 | 635 | 18.716 |
| Bókfært verð 31.12.2020 | 17.636 | 894 | 461 | 18.991 |
| Bókfært verð 31.12.2021 | 1.877 | 149 | 193 | 2.219 |
Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2021
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Skýringar
12. Rekstrarfjármunir, frh.:
Fasteignamat húseigna og lóða samstæðunnar nam 255 m.kr. (2020: 1.807 m.kr.) og brunabótamat 414 m.kr. (2020: 3.674 m.kr.). Búnaður félagsins er tryggður fyrir 9.835 m.kr. (2020: 17.106 m.kr.).
| Afskriftir rekstrarfjármuna, leigueigna og óefnislegra eigna skiptast þannig á rekstrarliði: | 2021 | 2020 |
|---|---|---|
| Kostnaðarverð seldrar þjónustu | 2.485 | 2.998 |
| Annar rekstrakostnaður | 757 | 864 |
| Samtals | 3.242 | 3.862 |
Nýtingartími greinist á eftirfarandi hátt:
| Fjarskiptabúnaður | 4 - 30 ár |
|---|---|
| Fasteignir | 15 - 33 ár |
| Tæki, búnaður og bifreiðar | 3 - 10 ár |
13. Leigueignir
Félagið leigir fasteignir, aðstöðu og bifreiðar. Þessir leigusamningar eru að jafnaði til 5 - 20 ára, með möguleika á endurnýjun í lok leigutímans. Flestir leigusamningar innifela viðbótar leigugreiðslur sem eru byggðar á breytingu á tilteknum vísitölum.
| Leigueignir greinast á eftirfarandi hátt: | Fjarskiptabúnaður | Fasteignir og lóðir | Bifreiðar | Samtals |
|---|---|---|---|---|
| Kostnaðarverð | ||||
| Heildarverð 1.1.2020 | 173 | 5.517 | 92 | 5.782 |
| Nýir samningar | 0 | 766 | 61 | 827 |
| Lokun á samningum | 0 | ( 80) | ( 20) | ( 100) |
| Verðbætur af leiguskuldbindingu | 5 | 169 | 7 | 181 |
| Heildarverð 31.12.2020 | 178 | 6.372 | 140 | 6.690 |
| Nýir samningar | 0 | 0 | 28 | 28 |
| Lokun á samningum | 0 | ( 1.633) | ( 40) | ( 1.673) |
| Verðbætur af leiguskuldbindingu | 0 | 36 | 1 | 37 |
| Fært á eignir flokkaðar til sölu | ( 178) | ( 3.347) | ( 86) | ( 3.611) |
| Heildarverð 31.12.2021 | 0 | 1.428 | 43 | 1.471 |
Afskriftir
| Afskrifað 1.1.2020 | 11 | 615 | 38 | 664 |
|---|---|---|---|---|
| Afskriftir | 11 | 612 | 52 | 675 |
| Afskriftir færðar út | 0 | ( 11) | ( 16) | ( 27) |
| Afskrifað alls 31.12.2020 | 22 | 1.216 | 74 | 1.312 |
| Afskriftir | 0 | 172 | 18 | 190 |
| Afskriftir færðar út | 0 | ( 250) | ( 13) | ( 263) |
| Fært á eignir flokkaðar til sölu | ( 22) | ( 444) | ( 55) | ( 521) |
| Afskrifað alls 31.12.2021 | 0 | 694 | 24 | 718 |
| Bókfært verð 1.1.2020 | 162 | 4.902 | 54 | 5.118 |
| Bókfært verð 31.12.2020 | 156 | 5.156 | 66 | 5.378 |
| Bókfært verð 31.12.2021 | 0 | 734 | 19 | 753 |
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2021
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Skýringar
14. Óefnislegar eignir
Óefnislegar eignir og afskriftir greinast þannig:
| Viðskiptavild | Hugbúnaður | Aðrar eignir | Samtals | |
|---|---|---|---|---|
| Kostnaðarverð | ||||
| Heildarverð 1.1.2020 | 55.185 | 5.075 | 6.233 | 66.493 |
| Endurflokkað á eignir til sölu | ( 1.079) | ( 66) | ( 10) | ( 1.155) |
| Kaup á árinu | 51 | 379 | 928 | 1.358 |
| Selt og niðurlagt á árinu | ( 2) | ( 119) | 0 | ( 121) |
| Heildarverð 31.12.2020 | 54.155 | 5.269 | 7.151 | 66.575 |
| Endurflokkað | 0 | 81 | 0 | 81 |
| Endurflokkað á eignir til sölu | ( 15.597) | ( 547) | 0 | ( 16.144) |
| Kaup á árinu | 0 | 599 | 1.000 | 1.599 |
| Selt og niðurlagt á árinu | 0 | ( 1.619) | ( 1.804) | ( 3.423) |
| Heildarverð 31.12.2021 | 38.558 | 3.783 | 6.347 | 48.688 |
| Afskriftir og virðisrýrnun | ||||
| Afskrifað 1.1.2020 | 26.682 | 3.523 | 2.023 | 32.228 |
| Endurflokkað á eignir til sölu | ( 7) | ( 62) | ( 1) | ( 70) |
| Afskriftir | 0 | 437 | 1.557 | 1.994 |
| Selt og niðurlagt á árinu | ( 2) | ( 119) | 0 | ( 121) |
| Afskrifað alls 31.12.2020 | 26.673 | 3.779 | 3.579 | 34.031 |
| Endurflokkað | 0 | 34 | 0 | 34 |
| Endurflokkað á eignir til sölu | ( 2.990) | ( 452) | 0 | ( 3.442) |
| Afskriftir | 0 | 445 | 1.572 | 2.017 |
| Selt og niðurlagt á árinu | 0 | ( 1.551) | ( 1.804) | ( 3.355) |
| Afskrifað alls 31.12.2021 | 23.683 | 2.255 | 3.347 | 29.285 |
| Bókfært verð | ||||
| Bókfært verð 1.1.2020 | 28.503 | 1.552 | 4.210 | 34.265 |
| Bókfært verð 31.12.2020 | 27.482 | 1.490 | 3.572 | 32.544 |
| Bókfært verð 31.12.2021 | 14.875 | 1.528 | 3.000 | 19.403 |
Nýtingartími greinist á eftirfarandi hátt:
Hugbúnaður 2 - 7 ár
Aðrar eignir 0 - 15 ár
Aðrar eignir samanstanda af vörumerki félagsins, sýningarrétti, tíðnigjöldum og óðrum óefnislegum eignum.
Vörumerki félagsins er veðsett vegna lántöku félagsins.
14.1. Árlegt virðisrýrnunarpróf
Í lok reikningsárs var framkvæmt virðisrýrnunarpróf á viðskiptavild félagsins. Við framkvæmd virðisrýrnunarprófs var endurheimtanlegt virði metið út frá nýtingarvirði þeirra fjárskapandi eininga sem viðskiptavildin tilheyrir. Viðskiptavild sem myndast hefur við kaup hefur verið útdeilt niður á viðeigandi dótturfélög sem skilgreind eru sem minnstu aðgreinanlegu fjárskapandi einingar af stjórnendum samstæðunnar.
Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2021
Fjórhæðir eru í milljónum króna
Skýringar
14.1. Árlegt virðisrýnunarpróf, frh.:
| Viðskiptavild greinist þannig niður á fjárskapandi einingar: | 2021 | 2020 |
|---|---|---|
| Viðskiptavild Símans hf. | 14.845 | 19.734 |
| Viðskiptavild Mílu ehf. | 0 | 7.718 |
| Viðskiptavild Radíómiðunar ehf., fjarskiptabjónusta | 30 | 30 |
| 14.875 | 27.482 | |
| Vörumerki undir öðrum eignum | 1.589 | 1.589 |
Síminn hf. og Ardian France SA hafa undirritað skuldbindandi samning um sölu Símans hf. á dótturfélaginu Mílu ehf. til Ardian France SA. Viðskiptavild Mílu ehf. flokkast nú meðal eigna til sölu, sjá nánar skýringu 20. Vænt sölurverð Mílu ehf. að frádregnum kostnaði er hærra en eignagrunnur og því ekki þörf á að framkvæma fjárstreymismat á viðskiptavild félagsins.
Endurheimtanlegar fjárhæðir fyrir fjárskapandi einingar eru byggðar á nýtingarvirði. Við mat á nýtingarvirði er stuðst við vænt fjárstreymi sem fært hefur verið til núvirðis. Fjárstreymi var áætlað með hliðsjón að fjárhæðum í sambykktum rekstraráætlunum næstu fimm ára ásamt fóstum framtíðarnafnvexti eftir spátímabilið sem stjórnendur telja að endurspegli reynslu fyrri ára, framtíðarþróun í fjarskiptum og upplýsingatækni og aðrar ytri upplýsingar. Vænt fjárstreymi er fært til núvirðis með vegnum fjármagnskostnaði (WACC) viðkomandi fjárskapandi einingar. Ávöxtunarkrafan byggir á áhættulausum vöxtum að viðbættu álagi á samsetningu fjármögnunar fyrir hverja fjárskapandi einingu þar sem byggt er á ytri- og innri gögnum.
Við mat á virði vörumerkja er byggt á væntu framtíðarfjárstreymi miðað við gefnar forsendur um endingartíma og að teknu tilliti til hugsanlegra skattaáhrifa. Ávöxtunarkrafan miðar við áhættulausa vexti að viðbættu álagi vegna sérstakrar og væntrar áhættu við viðkomandi vörumerki.
Nýtingarvirði byggir á nokkrum meginforsendum sem innhalda mat stjórnenda á framtíðarhorfum viðkomandi fjárskapandi einingar þar sem stuðst er við söguleg gögn, ytri sem og innri. Forsendurnar eru eftirfarandi:
| 2021 | 2020 | |
|---|---|---|
| Síminn | ||
| Langtímavöxtur | 1,8% | 1,8% |
| Vegið meðaltal tekjuvaxtar á tímabilinu 2022-2026 / 2021-2025 | 1,1% | 0,7% |
| EBITDA meðalvöxtur á tímabilinu 2022-2026 / 2021-2025 | 0,2% | 2,1% |
| WACC | 8,5% | 7,0% |
| Skuldsetningarhlutfall | 54,7% | 62,9% |
| Vextir | 4,8% | 4,4% |
| Radíómiðun | ||
| Langtímavöxtur | 2,5% | 2,5% |
| Vegið meðaltal tekjuvaxtar á tímabilinu 2022-2026 / 2021-2025 | 2,3% | 2,8% |
| EBITDA meðalvöxtur á tímabilinu 2022-2026 / 2021-2025 | 5,1% | 6,7% |
| WACC | 13,4% | 13,1% |
| Skuldsetningarhlutfall | 27,2% | 27,5% |
| Vextir | 6,3% | 5,9% |
Endurheimtanlegar fjárhæðir allra fjárskapandi eininga var metið hærra en eignagrunnur og því engin virðisrýnun færð hjá félaginu.
Við framkvæmd virðisrýnunarprófs viðskiptavildar verða stjórnendur að meta ákveðnar forsendur sem notaðar eru í árlegu virðisrýnunarprófi. Slíkt mat felur alltaf í sér ákveðna óvissu sem getur haft veruleg áhrif á útkomu prófanna ef forsendur reynast rangar. Fjárskapandi einingar félagsins eru ekki viðkvæmar fyrir breytingum á meginforsendum virðisrýnunarprófsins og myndu raunhæfar breytingar á lykiforsendum ekki leiða til virðisrýnunar.
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2021
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Skýringar
| 15. Dótturfélög
Dótturfélög eru eftirfarandi: | Staðsetning
starfsemi | Eignarhlutur | |
| --- | --- | --- | --- |
| | | 2021 | 2020 |
| Míla ehf. | Ísland | 100% | 100% |
| Radiómiðun ehf. | Ísland | 100% | 100% |
| Sensa ehf. | Ísland | 0% | 100% |
| Sensa IT Aps | Danmörk | 100% | 100% |
| Farsímagreiðslur ehf. | Ísland | 100% | 100% |
Í október undirrituðu Síminn hf. og Ardian France SA skuldbindandi samning um sölu Símans hf. á dótturfélaginu Mílu ehf. til Ardian. Áætlað er að uppgjör viðskiptanna muni eiga sér stað á árinu 2022, að uppfylltu skilyrði um sambykki Samkeppniseftirlitsins.
| 16. Aðrar eignir | 31.12.2021 | 31.12.2020 |
|---|---|---|
| Aðrar eignir greinast þannig: | ||
| Fjárfesting í öðrum félögum | 47 | 54 |
| Sjónvarpsefni til sýningar | 237 | 209 |
| Fyrirframgreiddur kostnaður | 0 | 12 |
| Langtímakröfur | 391 | 269 |
| Aðrar eignir samtals | 675 | 544 |
16.1. Önnur félög
Í árslok átti félagið hlutabréf í tveimur erlendum félögum og fjórum innlendum félögum þar sem eignarhlutir voru lægri en 20%.
16.2. Langtímakröfur
Langtímakröfur samanstanda af viðskiptaskuldabréfum og raðgreiðslusamningum til lengri tíma en 12 mánaða.
- Birgðir
Birgðir greinast þannig:
| Vörur til endursölu og rekstrarvörubirgðir | 369 | 698 |
|---|---|---|
| Sjónvarpsefni til sýningar | 554 | 429 |
| Birgðir samtals | 923 | 1.127 |
Vörunotkun vegna vörusölu ársins nam 2.391 m.kr. (2020: 2.195 m.kr.).
- Víðskiptakröfur
Víðskiptakröfur greinast þannig:
| Víðskiptakröfur | 2.341 | 3.280 |
|---|---|---|
| Niðurfærsla viðskiptakrafna | ( 107) | ( 133) |
| Víðskiptakröfur samtals | 2.234 | 3.147 |
Breyting á niðurfærslu viðskiptakrafna greinist þannig:
| Staða í ársbyrjun | ( 133) | ( 158) |
|---|---|---|
| Breyting á niðurfærslu vegna krafna sem kunna að tapast | ( 15) | ( 54) |
| Tapaðar viðskiptakröfur á árinu | 30 | 72 |
| Fært á eignir til sölu | 11 | 7 |
| Staða í lok árs | ( 107) | ( 133) |
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2021
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Skýringar
18. Víðskiptakröfur, frh.:
Niðurfærsla hefur verið reiknuð vegna krafna sem kunna að tapast. Niðurfærslan er byggð á mati stjórnenda og reynslu fyrri ára. Lánsáhætta vegna viðskiptavina er lítil þar sem viðskiptamenn félagsins eru margir og ótengdir. Nánar er fjallað um áhættu vegna viðskiptakrafna í skýringu 26.
19. Aðrar skammtímakröfur
Aðrar skammtímakröfur greinast þannig:
| Fyrirframgreiddur kostnaður | 2.210 | 389 |
|---|---|---|
| Aðrar skammtímakröfur | 872 | 445 |
| Aðrar skammtímakröfur samtals | 3.082 | 834 |
20. Breytingar á samstæðu
20.1. Sala á dótturfélagi
Í desember 2020 undirrituðu Síminn hf. og Crayon Group AS skuldbindandi samning um sölu Símans hf. á dótturfélaginu Sensa ehf. til Crayon. Uppgjör viðskiptanna átti sér stað í lok mars og var kaupverðið að fullu greitt í apríl. Endanlegt söluverð félagsins var 3.710 m.kr. Markmið með sölunni er að útvikka samstarf við Crayonsamstæðuna í heild og veita fyrirtækjum heilsteyptari þjónustu fjarskipta og upplýsingatækni samhliða því að lækka rekstrarkostnað félagsins. Sensa ehf. hefur fallið undir upplýsingatækni í starfsþáttasundurliðun.
Rekstur Sensa ehf. er nú tilgreindur í einni línu í rekstrarreikningi sem aflögð starfsemi. Samanburðartólum 2020 hefur verið breytt til samræmis.
| 2021 | 2020 | |
|---|---|---|
| Afkoma Sensa ehf. á tímabilinu ef eftirfarandi: | 1.1.-31.3. | 1.1.-31.12. |
| Ytri tekjur Sensa | 1.058 | 4.465 |
| Sala til Sensa | ( 46) | ( 173) |
| Samtals áhrif á tekjur | 1.012 | 4.292 |
| Ytri gjöld Sensa | ( 1.097) | ( 4.710) |
| Gjöld frá Sensa | 169 | 736 |
| Samtals áhrif á gjöld | ( 928) | ( 3.974) |
| Hagnaður fyrir skatta | 84 | 318 |
| Skattar | ( 17) | ( 64) |
| Söluhagnaður | 2.180 | 0 |
| Samtals áhrif af aflagðri starfsemi | 2.247 | 254 |
Vegna sölunnar voru eignir og skuldir Sensa ehf. flokkaðar sem eignir og skuldir til sölu í ársreikningi 2020.
Í árslok voru eignir og skuldir Sensa ehf. eftirfarandi: 31.12.2020
| Víðskiptavild | 1.072 |
|---|---|
| Rekstrarfjármunir | 219 |
| Birgðir | 84 |
| Víðskiptakröfur og aðrar kröfur | 508 |
| Tekjuskattsinneign | 23 |
| Eignir flokkaðar til sölu | 1.906 |
| Víðskiptaskuldir og aðrar skuldir | 776 |
| Skuldir sem tengjast eignum flokkuðum til sölu | 776 |
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2021
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Skýringar
20. Breytingar á samstæðu, frh.:
| Sjóðstreymi Sensa ehf. á tímabilinu er eftirfarandi: | 2021 |
|---|---|
| Rekstrarhagnaður | 86 |
| Afskriftir og söluhagnaður fasta fjármuna | 3 |
| Rekstrarheyfingar | 132 |
| Fjárfestingarheyfingar | ( 3) |
| Fjármögnunarheyfingar | ( 12) |
| Áhrif aflagðrar starfsemi | 206 |
20.2. Fyrirhuguð sala á dótturfélagi
Þann 18. október sl. gekk Síminn hf. til einkaviðræðna við Ardian France SA um sölu á öllum eignarhlut í fjarskiptafélaginu Milu ehf. Þeim viðræðum lauk þann 23. október með undirritun samnings um sölu á 100% hlutafjár í Milu ehf. Salan er háð hefðbundnum fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.
Virði viðskiptanna (e. Enterprise value) er 78 milljarðar króna, að meðtöldum fjárhagslegum skuldbindingum Milu ehf. sem kaupandinn yfirtekur. Samkvæmt kaupsamningi fær Síminn greitt á efndadegi um 44 milljarða króna í reiðufé og 15 milljarða króna í formi skuldabréfs til þriggja ára. Áætlaður söluhagnaður er 46 milljarðar króna að teknu tilliti til kostnaðar vegna viðskiptanna. Gerður var langtíma heildsölusamningur um kaup á þjónustu Símans hf. af Milu ehf.
Míla ehf. er heildsölufyirtæki á fjarskiptamarkaði og felst kjarnastarfsemi Milu ehf. í að byggja upp og reka innviði fjarskipta á landsvísu. Hlutverk Milu ehf. er að selja lausnir sínar í heildsölu til fyrirtækja og stofnana sem stunda fjarskiptastarfsemi. Sérhæfing félagsins felst meðal annars í rekstri og ráðgjöf vegna uppyggingar fjarskiptakerfa og aðstöðuleigu í tækjarýmum og möstrum. Kerfi Milu ehf. eru grunnur að fjölþættri fjarskiptabjónustu um allt land.
Gerður var samningur um sölu á farsímadreifikerfi og IP neti til Milu ehf. Kaupverð eignanna nam 7.690 m.kr. Í kjölfar þess var farið í endurfjármögnun á Milu ehf. með ytri lántöku frá Íslandsbanka að fjárhæð 20.000 m.kr. Í kjölfar endurfjármögnunar var fjármögnun frá móðurfélagi Milu ehf. greidd upp.
Í starfsþáttayfirliti samstæðunnar fellur meginhleti starfsemi Milu ehf. undir gagnaflutning.
Vegna sölunnar eru eignir og skuldir Milu ehf. flokkaðar sem eignir og skuldir til sölu í ársreikningi 2021.
Rekstur Milu ehf. er nú tilgreindur í einni línu í rekstrarreikningi sem aflögð starfsemi. Samanburðartölum 2020 hefur verið breytt til samræmis.
| 2021 | 2020 | |
|---|---|---|
| Afkoma Milu ehf. á tímabilinu ef eftirfarandi: | ||
| Ytri tekjur Milu | 1.846 | 1.824 |
| Sala til Milu | ( 527) | ( 146) |
| Samtals áhrif á tekjur | 1.319 | 1.678 |
| Ytri gjöld Milu | ( 6.352) | ( 4.309) |
| Gjöld frá Milu | 6.580 | 4.141 |
| Samtals áhrif á gjöld | 228 | ( 168) |
| Hagnaður fyrir skatta | 1.547 | 1.510 |
| Skattar | ( 316) | ( 307) |
| Samtals áhrif af aflagðri starfsemi | 1.231 | 1.203 |
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2021
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Skýringar
20. Breytingar á samstæðu, frh.:
Í árslok voru eignir og skuldir Milu ehf. eftirfarandi: 31.12.2021
Viðskiptavild... 10.927
Óefnislegar eignir... 1.819
Rekstrarfjármunir... 21.336
Langtímakrófur... 85
Birgðir... 513
Viðskiptakrófur og aðrar kröfur... 1.345
Handbært fé... 904
Eignir flokkaðar til sölu... 36.929
Langtímaskuldir... 23.609
Viðskiptaskuldir og aðrar skuldir... 2.217
Skuldir sem tengjast eignum flokkuðum til sölu... 25.826
Sjóðstreymi Milu á tímabilinu er eftirfarandi: 2021
Rekstrarhagnaður... 2.432
Afskriftir... 2.668
Rekstrarhreyfingar... ( 1.465)
Fjárfestingarhreyfingar með kaupum á farsíma-og IP neti af Símanum... ( 10.664)
Fjármögnunarhreyfingar... 7.273
Handbært fé fært á eignir til sölu... ( 904)
Áhrif aflagðrar starfsemi... ( 660)
21. Eigið fé
21.1. Hlutafé
Útgefnir hlutir í lok ársins eru alls 7.540 m.kr. og er nafnverð hvers hlutar ein íslensk króna (2020: 8.750 m.kr.). Eitt atkvæði fylgir hverri krónu nafnverðs. Allir útgefnir hlutir eru greiddir að fullu. Félágið á eigin hluti að nafnverði 226 m.kr. sem færðir eru til lækkunar á eigin fé (2020: 267 m.kr). Samkvæmt gildandi endurkaupaáætlun keypti félágið eigin bréf á árinu með það að markmiði að lækka eigið fé félagins.
21.2. Yfirverð
Yfirverð er munurinn á greiðslum í krónum sem félágið fékk við kaup, sölu og útgáfu á hlutafé og nafnverði útgefinna hluta.
21.3. Annað eigið fé
Annað eigið fé samanstendur af lögbundnum varasjóði.
21.4. Annað bundið eigið fé
Annað bundið eigið fé greinist þannig:
| Þýðingarmunur í dóttur-félögum | Bundinn hlutdeildar-reikningur | Samtals | |
|---|---|---|---|
| Staða 1.1. 2020 | 453 | 3 | 456 |
| Breyting ársins | 217 | 217 | |
| Þýðingarmunur ársins | 1 | 1 | |
| Staða 31.12.2020 | 454 | 220 | 674 |
| Staða 1.1. 2021 | 454 | 220 | 674 |
| Breyting ársins | 1.346 | 1.346 | |
| Staða 31.12.2021 | 454 | 1.566 | 2.020 |
Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2021
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Skýringar
| 22. Langtímaskuldir | 31.12.2021 | 31.12.2020 | ||
|---|---|---|---|---|
| Leðalvextir | Eftirstöðvar | Leðalvextir | Eftirstöðvar | |
| Lán félagsins greinast á eftirfarandi hátt: | ||||
| Skuldir í ISK, óverðtryggðar | 3,25% | 6.000 | 3,29% | 15.429 |
| Lántökukostnaður | ( 57) | 0 | ||
| Kaupleiga, langtímaskuldbinding | 0 | 10 | ||
| Næsta árs afborganir | 0 | ( 1.150) | ||
| 5.943 | 14.289 | |||
| Hreyfingar á langtímaskuldum greinast á eftirfarandi hátt: | 2021 | 2020 | ||
| Staða í ársbyrjun | 15.439 | 15.631 | ||
| Afborganir | ( 15.429) | ( 192) | ||
| Lántökugjöld | ( 57) | 0 | ||
| Ný lán | 6.000 | 0 | ||
| Fært á skuldir vegna eigna sem flokkast til sölu | ( 10) | 0 | ||
| 5.943 | 15.439 | |||
| Afborganir langtímaskulda greinast þannig: | ||||
| Til greiðslu 2022 / 2021 | 0 | 1.150 | ||
| Til greiðslu 2023 / 2022 | 0 | 1.150 | ||
| Til greiðslu 2024 / 2023 | 0 | 1.150 | ||
| Til greiðslu 2025 / 2024 | 0 | 1.150 | ||
| Til greiðslu 2026 / 2025 | 6.000 | 1.150 | ||
| Afborganir síðar | 0 | 9.689 | ||
| Heildarlán að meðtöldum næsta árs afborgunum | 6.000 | 15.439 |
Í lánaskilmálum eru kvaðir um að uppfylla ákveðin fjármálahlutföll, sem voru uppfyllt í lok árs. Skuldir félagsins eru tryggðar með veði í vörumerki félagsins.
- Leiguskuldbindingar
| Hreyfingar á leiguskuldbindingum greinast á eftirfarandi hátt: | Fjarskipta-búnaður | Fasteignir og lóðir | Bifreiðar | Samtals |
|---|---|---|---|---|
| Leiguskuldbindingar 1.1.2020 | 166 | 5.011 | 55 | 5.232 |
| Heildarafborganir | ( 11) | ( 762) | ( 69) | ( 842) |
| Greiddir vextir | 3 | 231 | 21 | 255 |
| Nýir samningar | 0 | 766 | 61 | 827 |
| Lokun á samningum | 0 | ( 68) | ( 6) | ( 74) |
| Verðbætur af leiguskuldbindingu | 5 | 169 | 7 | 181 |
| Leiguskuldbindingar 31.12.2020 | 163 | 5.347 | 69 | 5.579 |
| Heildarafborganir | 0 | ( 200) | ( 19) | ( 219) |
| Greiddir vextir | 0 | 44 | 1 | 45 |
| Nýir samningar | 0 | 0 | 28 | 28 |
| Lokun á samningum | 0 | ( 1.427) | ( 27) | ( 1.454) |
| Verðbætur af leiguskuldbindingu | 0 | 36 | 1 | 37 |
| Fært út á skuldir sem tengjast eignum sem flokkaðar eru til sölu | ( 163) | ( 2.987) | ( 33) | ( 3.183) |
| Leiguskuldbindingar 31.12.2021 | 0 | 813 | 20 | 833 |
Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2021
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Skýringar
- Leiguskuldbindingar, frh.:
Leiguskuldbinding greinast á eftirfarandi hátt:
| | 2021 | 2020 |
| --- | --- | --- |
| Til greiðslu 2022 / 2021 | 180 | 513 |
| Til greiðslu 2023 / 2022 | 183 | 503 |
| Til greiðslu 2024 / 2023 | 189 | 514 |
| Til greiðslu 2025 / 2024 | 197 | 529 |
| Til greiðslu 2026 / 2025 | 24 | 558 |
| Afborganir síðar | 60 | 2.962 |
| Heildarleiguskuldbinding að meðtöldum næsta árs afborgunum | 833 | 5.579 |
Framlengingarákvæði
Flestir leigusamningar félagsins um fasteignir fela í sér framlengingarheimildir sem því er heimilt að nýta allt að einu ári fyrir lok óuppsegjanlegs leigutímabils. Félagið leggur mat á það við upphaf leigusamnings hvort það sé talið nokkuð liklegt að það muni nýta heimildir til framlenginga. Almennt er miðað við að samningar séu í gildi í 15 ár frá 1. janúar 2019. Ef verulegar breytingar verða á aðstæðum sem eru á valdi félagsins, mun það endurmeta hvort framlengingarheimildir verði nýttar.
- Tekjuskattsskuldbinding
Hreyfingar á reiknaðri tekjuskattsskuldbindingu greinast á eftirfarandi hátt:
| | 31.12.2021 | 31.12.2020 |
| --- | --- | --- |
| Reiknuð tekjuskattsskuldbinding í ársbyrjun | 670 | 802 |
| Eignir til sölu | 417 | 9 |
| Tekjuskattur tímabilsins | 421 | 693 |
| Skattar til greiðslu á næsta ári | ( 879) | ( 829) |
| Leiðrétting frá fyrra ári | ( 25) | ( 5) |
| Tekjuskattsskuldbinding samtals | 604 | 670 |
Frestaður skattur skiptist þannig á einstaka liði efnahagsreikningsins:
| Rekstrarfjármunir | ( 105) | ( 344) |
| --- | --- | --- |
| Óefnislegar eignir | ( 525) | ( 345) |
| Skammtímakröfur | ( 14) | ( 20) |
| Leigusamningar | 16 | 31 |
| Gengismunur | 10 | 8 |
| Skattalegt tap | 14 | 0 |
| | ( 604) | ( 670) |
- Aðrar skammtímaskuldir
Aðrar skammtímaskuldir greinast þannig:
| Áfallinn kostnaður | 458 | 737 |
| --- | --- | --- |
| Ógreidd laun og launatengd gjöld | 152 | 313 |
| Ógreiddur virðisaukaskattur | 266 | 479 |
| Aðrar skammtímaskuldir | 13 | 11 |
| Aðrar skammtímaskuldir samtals | 889 | 1.540 |
Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2021
Fjórhæðir eru í milljónum króna
Skýringar
26. Áhættustýring
Stýring fjármögnunaráhættu
Félagið stýrir fjárhagssamsetningu þannig að tryggt sé að félög samstæðunnar séu rekstrarhæf, með það markmið að hámarka hagnað hluthafa með því að finna bestu samsetningu eigin fjár á móti skuldum. Stefna félagsins er óbreytt frá fyrra ári.
Fjárhagssamsetning félagsins samanstendur af lánum sem nánar eru upplistuð í skýringu númer 22, skammtímalánum og eigin fé sem samanstendur af útgefnu hlutafé, varasjóðum og óráðstöfuðu eigin fé.
Stýring fjárhagslegrar áhættu
Starfsemi félagsins hefur það í för með sér að rekstur, eignir, skuldir og eigið fé eru undirorpín fjárhagslegri áhættu. Sú áhætta samanstendur meðal annars af markaðsáhættu, mestmegnis tengdri gengi gjaldmiðla og vaxtastigi, lánsáhættu og lausafjáráhættu. Fjárstýring Símans veitir félögum innan samstæðunnar miðlæga fjármálabjónustu svo sem vegna fjármögnunar, gjaldeyriskaupa, vaxtastýringar og áhættumati. Starfsemi fjárstýringar er hagað innan ramma fjárstýringarstefnu Símans sem er endurskoðuð árlega af stjórn félagsins. Félagið tekur ekki stöðu í fjármálagerningum, þar með talið afleiddum fjármálagerningum, byggða á spákaupmennsku.
Vaxtaáhætta
Vaxtaáhætta er áhættan af því að gangvírði eða framtíðarsjóðsflæði fjármálagerninga muni sveiflast vegna breytinga á markaðsvöxtum. Breytingar á markaðsvöxtum hafa áhrif á vaxtatekjur og vaxtagjöld í rekstrarreikningi. Lánasafn félagsins samanstendur af lánum í ISK með breytilegum vöxtum. Vaxtaberandi fjárskuldir félagsins eru hærri en vaxtaberandi fjáreignir, en vaxtaáhættan er vegna breytilegra vaxta. Áhættan liggur því í að möguleg hækkun á vöxtum leiði til hækkunar á fjármagnsliðum.
Næmnigreining á breytingum á vöxtum var gerð miðað við stöðu á fjáreignum og fjárskuldum í lok ársins. Næmnigreiningin gerir ráð fyrir að fjárhæð fjárskulda með breytilega vexti í lok árs sé eins allt árið. Miðað við 100 punkta hækkun á markaðsvöxtum og að allar aðrar forsendur séu óbreyttar þá breytist afkoma og eigið fé um 10 m.kr. eftir skatta. (2020; 126 m.kr.). Fjáreignir og fjárskuldir félagsins með fasta vexti eru ekki færðar á gangvírði og því ekki næmar fyrir breytingum á vöxtum.
Gjaldmiðlaáhætta
Félagið ber stærstu áhættu gagnvart EUR og USD. Hluti af fjárfestingum félagsins er í erlendri mynt ásamt rekstrargjöldum. Að minna marki hefur gengið áhrif á rekstrartekur félagsins. Í árslok 2021 voru engin af langtímalánum félagsins í erlendum gjaldmiðlum, eins og í árslok 2020.
Gengi helstu gjaldmiðla á árinu má sjá í eftirfarandi töflu:
| Meðalgengi | Árslokagengi | |||
|---|---|---|---|---|
| 2021 | 2020 | 2021 | 2020 | |
| EUR | 150,2 | 157,1 | 147,6 | 156,1 |
| DKK | 20,2 | 20,9 | 19,9 | 21,0 |
| USD | 127,3 | 135,6 | 130,4 | 127,2 |
Eignir og skuldir félagsins í erlendri mynt miðað við gengi í lok árs má sjá í eftirfarandi töflu:
| Eignir | Skuldir | |||
|---|---|---|---|---|
| 2021 | 2020 | 2021 | 2020 | |
| EUR | 70 | 116 | 126 | 707 |
| DKK | 95 | 7 | 0 | 31 |
| USD | 0 | 27 | 445 | 733 |
| Aðrir gjaldmiðlar | 5 | 6 | 15 | 11 |
| 170 | 156 | 586 | 1.482 |
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2021
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Skýringar
26. Áhættustýring, frh.:
Efnahagsreikningur félagsins er ekki viðkvæmur gagnvart flökti á gengi gjaldmiðla. Næmnigreining á gengisáhættu metur áhrif flökts gengis gjaldmiðla á útistandandi fjármagnsliði miðað við gengi við lok núverandi tímabils. Gert er ráð fyrir að allar aðrar breytur séu fastar. Áhrifin að teknu tilliti til skatta á afkomu og eigið fé eru 3 m.kr. (2020: 11 m.kr) hækkun/lækkun fyrir hvert 1% í hækkun/lækkun á gengi krónunnar.
Lánsáhætta
Lánsáhætta er hættan á fjárhagslegu tapi félagsins ef viðskiptamaður eða mótaðili í fjármálagerningi getur ekki staðið við umsamdar skuldbindingar sínar. Áhætta félagsins gagnvart lánsáhættu er takmörkuð við fjárhagslegar eignir listaðar á efnahagsreikningi auk vissra ábyrgða. Félagið fylgist reglulega með þróun þeirra eigna sem tengjast útlánaáhættu. Viðskipakrófur félagsins eru á hendur fjöldamörgum viðskiptavinum sem dreifast á margar starfsgreinar og landssvæði. Viðskiptakrófur eru því ekki háðar fáum stórum viðskiptavinum.
| Hámarksútlánaáhætta greinist þannig: | Mesta mögulega tap | |
|---|---|---|
| 2021 | 2020 | |
| Viðskiptakrófur | 2.354 | 3.286 |
| Handbært fé | 3.509 | 735 |
| Aðrar skammtímakrófur | 3.082 | 445 |
| Langtímakrófur | 391 | 269 |
| Ábyrgðir | 24 | 21 |
| 9.360 | 4.756 |
Meirihluti viðskiptakrafna félagsins eru til greiðslu innan 90 daga. Mynduð er niðurfærsla vegna áæltaðrar virðisrýrnunar viðskiptakrafna og annarra krafna. Niðurfærslan er í meginatriðum sérstök niðurfærsla vegna einstakra viðskiptamanna og sameiginleg niðurfærsla með tilliti til aldurs krafna, sem ekki hefur verið tengd einstökum viðskiptamönnum. Sameiginlega niðurfærslan er ákveðin með tilliti til innheimtusögu sambærilegra krafna.
Eftirfarandi tafla sýnir aldursdreifingu viðskiptakrafna sem komnar eru á gjalddaga að teknu tilliti til niðurfærslu.
| Nafnverð kröfu | Niðurfærsla | |||
|---|---|---|---|---|
| 2021 | 2020 | 2021 | 2020 | |
| Ógjaldfallið | 1.235 | 2.162 | 46 | 51 |
| Gjaldfallið innan 30 daga | 1.028 | 974 | 29 | 29 |
| Gjaldfallið fyrir 31-60 dögum | 39 | 76 | 8 | 14 |
| Gjaldfallið fyrir 61-180 dögum | 22 | 38 | 9 | 18 |
| Gjaldfallið fyrir meira en 180 dögum | 17 | 30 | 15 | 21 |
| 2.341 | 3.280 | 107 | 133 |
Lánsáhætta vegna viðskiptavina er lítil þar sem að viðskiptamenn félagsins eru margir og ótengdir. Því telja stjórnendur félagsins ekki þörf á frekar varuðarfærslum umfram hefðbundnar niðurfærslur. Undir rekstrarkostnaði voru gjaldfærðar 15 m.kr. vegna niðurfærslu krafna á árinu 2021 (2020 62 m.kr.).
Lausafjáráhætta
Lausafjáráhætta er áhættan á því að félagið lendi í erfiðleikum við að mæta fjárhagslegum skuldbindingum sínum í náinni framtíð. Félagið mætir þessari áhættu með því að gera áætlanir um greiðslur og tryggja nægjanlega varasjóði. Eftirfarandi tafla greinir skuldbindingar félagsins eftir gjalddögum þeirra. Taflan miðar við ónúvirtar greiðslur og að greitt sé á fyrsta samningsbundna greiðsludegi. Vegið meðaltal fljótandi varta er 3,25% (2020: 3,29%).
Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2021
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Skýringar
- Áhættustýring, frh.:
| Bókf. verð | Innan árs | 1-2 ár | 2-5 ár | > 5 ár | Samtals | |
|---|---|---|---|---|---|---|
| 31. desember 2021 | ||||||
| Langtímálán | 5.943 | 282 | 284 | 6.709 | 7.275 | |
| Leiguskuldbindingar | 833 | 180 | 183 | 410 | 60 | 833 |
| Viðskiptaskuldir | 3.030 | 3.030 | 3.030 | |||
| Skammtímálán | 1.518 | 1.540 | 1.540 | |||
| 11.324 | 5.032 | 467 | 7.119 | 60 | 12.678 | |
| 31. desember 2020 | ||||||
| Langtímálán | 15.439 | 1.623 | 1.594 | 4.504 | 10.378 | 18.099 |
| Leiguskuldbindingar | 5.579 | 766 | 726 | 2.115 | 3.696 | 7.303 |
| Viðskiptaskuldir | 4.094 | 4.094 | 4.094 | |||
| Skuldir við lánastofinanir | 500 | 500 | 500 | |||
| 25.612 | 6.983 | 2.320 | 6.619 | 14.074 | 29.996 |
Gangvirði
Það er mat stjórnenda að ekki sé verulegur munur á bókfærðu virði fjáreigna og fjárskulda og gangvirði þeirra í reikningsskilunum.
- Ábyrgðir og önnur mál
Félagið hefur lagt eignir að veði til að tryggja skuldbindingar vegna lána að fjárhæð 6.036 m.kr. (2020: 15.951 m.kr.) í árslok.
- Málarekstur
Félagið stendur í málarekstri vegna mála sem snúa að túlkunum á fjarskipta-, fjölmiðla- og samkeppnislögum.
Síminn og Sýn hafa átt í ágreiningi í tengslum við dreifingu á sjónvarpsefni. Póst- og fjarskiptastofnun (nú Fjarskiptastofnun) komst að þeirri niðurstöðu að Síminn hefði farið gegn fjölmiðlalögum sbr. ákvörðun PFS nr. 10/2018. Lagði stofnunin á sekt að fjárhæð 9 m.kr. sem félagið hefur þegar greitt. Síminn telur að háttsemi félagsins sé í fullu samræmi við ákvæði fjölmiðlalaga og höfðaði mál til ógildingar ákvörðunar Póst- og fjarskiptastofnunar. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í málinu og ógilti ákvörðun PFS að hluta og lækkaði sektina niður í 7 m.kr. Síminn áfrýjaði málinu til Landsréttar og gerir kröfu um ógildingu. Í kjölfarið á ákvörðun PFS sendi Sýn kröfu til Símans um greiðslu skaðabóta að fjárhæð 1,9 ma.kr. Síminn hafnaði kröfunni og benti á að það mætti hvorki ráða af erindi Sýnar að skilyrði skaðabótaskyldu væri fyrir hendi né heldur væri gerð tilraun til að færa sönnur á ætlað tjón Sýnar. Að mati Símans var um tilhæfulausa kröfu að ræða og vísaði Héraðsdómur Reykjavíkur kröfu Sýnar frá dómi vegna vanreifunar. Í framhaldinu lagði Sýn fram beiðni um dómkvaðningu matsmanna og stefndi Símanum fyrir héraðsdómi Reykjavíkur til greiðslu skaðabóta að fjárhæð 125 m.kr. Síminn hafnaði málatilbúnaði Sýnar og skilaði greinargerð vegna málsins. Þá hefur Gagnaveita Reykjavíkur sent Símanum kröfu um greiðslu að fjárhæð 1,3 ma.kr. Síminn hafnaði kröfunni og benti á að það mætti ekki ráða af erindi Gagnaveitunnar að skilyrði skaðabótaskyldu væri fyrir hendi. Að mati Símans er um tilhæfulausa kröfu að ræða. PFS og Sýn hafa ennfremer höfðað mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur og gert kröfu um að úskurður úskurðarnefndar póst- og fjarskiptamála nr. 7/2019 verði felldur úr gildi, en úskurður nefndarinnar fól í sér ógildingu á ákvörðun PFS nr. 27/2019 þar sem stofnunin lagði sekt að fjárhæð 9 mkr. á Símann. Síminn mun gera kröfu um að úskurður nefndarinnar standi óhaggaður. Þrátt fyrir að óvissa sé um niðurstöður þessara mála er það mat stjórnenda að ekki komi til verulegra fjárútláta vegna þeirra. Félagið hefur ekki fært neinn kostnað í reikningsskil sín vegna mögulegra bóta í framangreindum málum enda mat félagsins að þau séu tilhæfulaus.
Innheimtumiðstöð rétthafa (IHM) hefur stefnt Símanum til greiðslu 337 m.kr. auk vaxta og dráttarvaxta vegna meintra vangoldinna gjalda frá árinu 2009. Félagið er í viðræðum við IHM um niðurstöðu þessa máls sem er ásættanleg fyrir báða aðila.
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2021
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Skýringar
28. Málarekstur, frh.:
Samkeppniseftirlitið komst að þeirri niðurstöðu á árinu 2020 að Síminn hefði brotið gegin ákvörðunum Samkeppniseftirlitsins nr. 6/2015 og 20/2015 og lagði á sekt að fjárhæð 500 m.kr. sem Síminn greiddi. Síminn kærði ákvörðun Samkeppniseftirlitsins til áfrýjunarnefndar samkeppnismála og gerði kröfu um ógildingu ákvörðunarinnar. Áfrýjunarnefnd samkeppnismála skilaði úrskurði í byrjun árs 2021 þar sem nefndin felfdi úr gildi þann hluta ákvörðunar Samkeppniseftirlitsins sem laut að meintu broti gegin 6/2015 og lækkaði sektina niður í 200 m.kr. Félagið er sem fyrr þeirrar skoðunar að fyrirkomulag um sölu á þjónustu félagsins sé fyllilega í samræmi við samkeppnislög og þær ákvarðanir sem félagið hefur gengist undir á grundvelli samkeppnislaga. Síminn hefur höfðað mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur með kröfu um ógildingu á þeim hluta úrskurðar áfrýjunarnefndar samkeppnismála sem laut að meintu broti á ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 20/2015. Samkeppniseftirlitið hefur ennfremur höfðað mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur þar sem gerð er krafa um að úrskurður áfrýjunarnefndar samkeppnismála er fól í sér ógildingu hluta ákvörðunar Samkeppniseftirlitsins nr. 25/2020 og lækkun sektar, verði felfdur úr gildi.
29. Tengdir aðilar
Hluthafar sem hafa veruleg áhrif á starfsemi samstæðunnar, stjórnendur og stjórnarmenn og nánir fjölskyldumeðlimir þeirra og félög sem þeir ráða yfir teljast til tengdra aðila. Viðskipti við tengda aðila eru óveruleg. Viðskiptum milli félaga sem innifalin eru í samstæðureikningi hefur verið eytt út í samstæðureikningi félagsins.
Laun og hlunnindi til stjórnar og stjórnenda félagsins vegna starfa fyrir félög í samstæðunni og eignarhlutir í félaginu greinast þannig:
Fyrir árið 2021
| Laun, kaup-aukar og hlunnindi | Mótframlag í lífeyrissjóð | Fjöldi hluta beinn/óbeinn | |
|---|---|---|---|
| Laun og hlunnindi stjórnar og forstjóra | |||
| Jón Sigurðsson formaður | 10,1 | 1,2 | 1.162,2 |
| Sigrún Ragna Ólafsdóttir, varaformaður | 4,5 | 0,6 | 0,5 |
| Arnar Þór Másson, stjórnarmaður | 4,3 | 0,5 | 0,0 |
| Bjarni Þorvarðarson, stjórnarmaður | 5,5 | 0,7 | 0,0 |
| Björk Viðarsdóttir, stjórnarmaður | 4,3 | 0,5 | 0,0 |
| Helga Valfells, fyrverandi stjórnarmaður | 1,5 | 0,2 | 0,0 |
| Kolbeinn Árnason, fyrverandi stjórnarmaður | 1,1 | 0,1 | 0,9 |
| Sylvía Kristín Ólafsdóttir, fyrverandi stjórnarmaður | 0,4 | 0,0 | 0,0 |
| Sigurður Þórðarson, endurskoðunarnefnd | 2,5 | 0,0 | 0,4 |
| Orri Hauksson, forstjóri | 67,5 | 8,7 | 42,2 |
| 101,7 | 12,5 | 1.206,2 |
Aðrir framkvæmdastjórar innan samstæðunnar, samtals 4 aðilar, fengu greiddar 165,9 m.kr. í laun og aðrar launatengdar greiðslur. Þeir áttu samtals 13,9 m.kr. hluti í félaginu í árslok 2021. Allir framkvæmdastjórar eru karlar.
Fyrir árið 2020
| Laun, kaup-aukar og hlunnindi | Mótframlag í lífeyrissjóð | Fjöldi hluta beinn/óbeinn | |
|---|---|---|---|
| Laun og hlunnindi stjórnar og forstjóra | |||
| Jón Sigurðsson formaður | 9,8 | 1,1 | 1.300,0 |
| Helga Valfells, fyrverandi stjórnarmaður | 7,3 | 0,8 | 0,0 |
| Sylvía Kristín Ólafsdóttir, fyrverandi stjórnarmaður | 5,0 | 0,6 | 0,0 |
| Bjarni Þorvarðarson, stjórnarmaður | 5,0 | 0,7 | 0,0 |
| Kolbeinn Árnason, fyrverandi stjórnarmaður | 5,4 | 0,6 | 1,0 |
| Sigurður Þórðarson, endurskoðunarnefnd | 2,3 | 0,0 | 0,0 |
| Orri Hauksson, forstjóri | 58,0 | 7,4 | 47,1 |
| 92,8 | 11,2 | 1.348,1 |
Aðrir framkvæmdastjórar innan samstæðunnar, samtals 5 aðilar, fengu greiddar 186,4 m.kr. í laun og aðrar launatengdar greiðslur. Þeir áttu samtals 29,1 m.kr. hluti í félaginu í árslok 2020. 80% af framkvæmdarstjórum eru karlar og 20% konur.
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2021
30
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Skýringar
| 30. Póknun til endurskoðenda | 2021 | 2020 |
|---|---|---|
| Póknun til endurskoðenda samstæðunnar sundurliðast þannig: | ||
| Endurskoðun ársreiknings og könnun ársreiknings | ||
| KPMG Íslandi | 19 | 21 |
| KPMG Danmörku | 1 | 1 |
| 20 | 22 | |
| Önnur þóknun til endurskoðunarfyrittækja | ||
| KPMG Íslandi | 16 | 4 |
| 16 | 4 | |
| Póknun til endurskoðenda samstæðunnar samtals | 36 | 26 |
31. Atburðir eftir reikningsskiladag
Engir atburðir átt sér stað eftir lok reikningsskiladags sem höfðu áhrif á ársreikninginn eða veita þarf upplýsingar um.
32. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir
32.1. Samstæða
Ársreikningur samstæðunnar tekur til ársreiknings móðurfélagsins og dótturfélaga þess. Dótturfélög eru þau félög þar sem samstæðan fer með yfirráð. Yfirráð grundvallast af því hvort fjárfestir hefur ákvörðunarvald yfir fjárfestingunni, ber áhættu eða hefur réttinn til að njóta breytilegs ávinnings vegna þátttöku í fjárfestingunni og getur með ákvörðunarvaldi haft áhrif á ávinning sinn af fjárfestingunni.
Rekstrarniðurstaða keyptra eða seldra dótturfélaga er meðtalin í samstæðurekstrarreikningi frá og með kaupdegi eða fram að söludegi eftir því sem við á. Ef við á eru gerðar leiðréttingar á reikningsskilum dótturfélaga til samræmis við reikningsskilaaðferðir samstæðunnar.
Meðal markmiða samstæðureikningsskilanna er að birta einungis tekjur, gjöld, eignir og skuldir samstæðunnar út á við og er því viðskiptum innan hennar eytt út við gerð reikningsskilanna.
32.2. Sameining félaga
Kaup á dótturfélögum eru færð samkvæmt kaupaðferð en í henni felst að eignir, skuldir og eiginfjárgerningar útgefnir af samstæðunni, sem látin eru í skiptum fyrir yfirráð í keyptu félagi, eru metnar til gangvirðis á kaupdegi. Viðskiptakostnaður tengdur kaupunum er færður í rekstrarreikningi á því tímabili sem hann fellur til.
Ef kaupin fela í sér óvissa greiðslu er eignin eða skuldin sem tengist kaupunum metin á gangvirði á kaupdegi og hluti kaupverðsins sem er umfram gangvirði eignarhluta samstæðunnar í eignum, skuldum og óvissum skuldum félaga á kaupdegi er færður sem viðskiptavild. Síðari breytingar á gangvirði slíkra eigna og skulda eru færðar til jöfnunar á kostnaði tengdum kaupunum þar sem þær uppfylla skilyrði um leiðréttingu á tímabilinu (sjá hér að neðan). Allar aðrar síðari breytingar á gangvirði óvissra eigna og skulda eru færðar í samræmi við viðeigandi IFRS staðal.
Matstímabilið er frá kaupdegi til þess dags er félagið hefur fengið fullnægjandi upplýsingar um aðstæður á kaupdegi, að hámarki 1 ár.
32.3. Viðskiptavild
Viðskiptavild sem myndast við sameiningu er færð til eignar þann dag sem félagið nær yfirráðum í keyptu félagi (á kaupdegi). Viðskiptavild er mismunur á kaupverði dótturfélags og hlutdeildar í hreinni eign þess eftir að eignir og skuldir hafa verið metnar til gangvirðis á kaupdegi. Viðskiptavildin er færð í starfsrækslugjaldmiðli keyptu einingarinnar og uppreiknuð miðað við uppgjörsgengi í lok uppgjörstímabils.
Viðskiptavild er ekki afskrifuð heldur metin árlega með tilliti til virðisrýrnunar eða oftar ef vísbending um virðisrýrnun er til staðar. Við framkvæmd virðisrýrnunarprófs er viðskiptavildinni skipt niður á fjárskapandi einingar. Þær fjárskapandi einingar sem viðskiptavildinni hefur verið úthlutað á eru prófaðar með tilliti til virðisrýrnunar og ef bókfært verð er hærra en virði þeirra hefur virðisrýrnun átt sér stað. Hafi virðisrýrnun átt sér stað er viðskiptavild fyrst færð niður og síðar aðrar eignir sem tilheyra viðkomandi fjárskapandi einingu. Öheimilt er að bakfæra áður færða virðisrýrnun viðskiptavildar á síðari tímabilum.
Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2021
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Skýringar
32. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir, frh.:
Við sôlu á dótturfélagi er fjárhæð viðskiptavildar, sem rekja má til þess, reiknuð inn í sôluhagnað eða sôlutap sem birt er í rekstrarreikningi.
32.4. Tekjur
Tekjur af sôlu á vörum og þjónustu eru metnar á gangvirði greiðslunnar sem er móttekin eða er innheimtanleg, að frádregnum afsláttum og endurgreiðslum. Tekjur eru færðar í rekstrarreikning þegar félagið hefur uppfyllt samningsskyldu sína sem er yfirleitt við afhendingu, líklegt er að endurgjaldið verði innheimt og unnt er að meta kostnað vegna sölunnar og möguleg skil á vörum á áreiðanlegan hátt.
Megintekjuflokkar félagsins eru eftirfarandi: samtengingar- og reikitekjur, mánaðargjöld, stofngjöld, línuleigur, útseld vinna, auglýsingar í sjónvarpi og notendabúnaður.
Mánaðargjöld eru tekjufærð miðað við áskriftartímabil en tekjur vegna umferðar eru færðar miðað við raunverulega notkun viðskiptavina. Tekjum vegna fyrirframgreiddrar þjónustu er frestað þar til viðskiptavinur nýtir þá þjónustu sem hann hefur greitt fyrir.
Tekjur af vörusölu eru færðar í rekstrarreikning þegar verulegur hluti áhættu og eignarhalds flyst til kaupanda.
Auglýsingatekjur í sjónvarpi eru færðar í rekstrarreikning þegar auglýsingar eru birtar. Tekjufærsla þeirra er gerð við fyrstu sýningu þrátt fyrir að sama auglýsing geti verið birt oftar en einu sinni vegna endursýninga á sjónvarpsbáttum. Sama regla gildir um kostun einstakra sjónvarpsbátta.
Tekjur af veittri þjónustu eru færðar í rekstrarreikning í hlutfalli við stöðu verks á uppgjörsdegi. Staða verks er metin með hliðsjón af vinnu sem lokið er.
32.5. Erlendir gjaldmiðlar
Ársreikningar félaga innan samstæðunnar eru gerðir í þeim gjaldmiðli sem stærstur hluti starfseminnar heyrir undir, þ.e. starfsrækslugjaldmiðli. Við gerð ársreiknings samstæðu eru ársreikningar erlendra dótturfélaga umreiknaðir í íslenskar krónur sem er starfsrækslugjaldmiðill og framsetningargjaldmiðill móðurfélagsins.
Við gerð reikningsskila hvers félags innan samstæðunnar eru viðskipti í öðrum gjaldmiðlum en starfsrækslugjaldmiðli færð á gengi hvers viðskiptadags. Peningalegar eignir og skuldir eru færðar miðað við skráð gengi á reikningsskiladegi. Efnislegar eignir og skuldir metnar á kostnaðarverði eru færðar á upphaflegu skráðu gengi.
Við gerð samstæðuársreiknings eru eignir og skuldir erlendra félaga umreiknaðar á skráðu gengi reikningsskiladags. Tekjur og gjöld eru umreiknuð á meðalgengi ársins.
Við sölu erlendrar rekstrareiningar er uppsafnaður gengismunur tengdur rekstrareiningunni í samstæðunni færður af eigin fé í rekstrarreikning. Þýðingarmunur sem búið var að ráðstafa til minnihluta er bakfærður en ekki gjaldfærður í rekstrarreikning.
Viðskiptavild og gangvirðisbreytingar vegna kaupa á erlendri starfsemi eru færðar á skráðu gengi reikningsskiladags.
32.6. Skattamál
Gjaldfærður tekjuskattur samanstendur af tekjuskatti til greiðslu og frestuðum tekjuskatti.
Tekjuskattur til greiðslu
Tekjuskattur til greiðslu er tekjuskattur sem áætlað er að komi til greiðslu á næsta ári vegna skattskylds hagnaðar ársins auk leiðréttinga á tekjuskatti til greiðslu vegna fyrri ára. Skattskyldur hagnaður getur verið annar en reikningshaldslegur hagnaður. Reiknaður tekjuskattur miðast við gildandi skatthlutfall á reikningsskiladegi á hverju skattasvæði.
Siminn hf. - Ársreikningar samstæðu 2021
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Skýringar
32. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir, frh.:
Frestaður tekjuskattur
Frestaður tekjuskattur stafar af tímabundnum mismuni efnahagsliða í skattuppgjóri annars vegar og ársreikningi hins vegar þar sem tekjuskattstofn félagsins er miðaður við aðrar forsendur en reikningsskil þess. Tekjuskattsskuldbinding er uppreiknuð fyrir allan tímabundinn mismun. Tekjuskattseign er uppreiknuð að því marki sem metið er að nýtist á móti skattskyldum hagnaði í framtíðinni. Frestaður tekjuskattur er ekki færður vegna viðskiptavildar sem ekki er skattalega frádráttarbær.
Frestaður tekjuskattur miðast við gildandi skatthlutfall á reikningsskiladegi.
Tekjuskattseign og tekjuskattsskuldbindingu er jafnað saman innan samstæðunnar þegar lagalegur réttur er til þess, þau varða tekjuskatt sem lagður er á af sömu yfirvöldum á sama fyrirtæki eða mismunandi fyrirtæki sem eru samsköttuð og gert er ráð fyrir að muni greiða skatta sameiginlega.
Skattar tímabilsins
Frestaður skattur er gjaldfærður í rekstrarreikningi nema þegar hann tengist liðum meðal eigin fjár en þá er hann færður meðal eigin fjár.
32.7. Hagnaður á hlut
Í ársreikningnum er sýndur grunnhagnaður á hlut og bynntur hagnaður á hlut fyrir almenna hluti í félaginu. Grunnhagnaður á hlut er reiknaður sem hlutfall hagnaðar, sem ráðstafað er til hluthafa í móðurfélaginu, og vegins meðalfjölda virkra hluta á árinu. Pynntur hagnaður á hlut er reiknaður með því að leiðréta meðalfjölda virkra hluta vegna mögulegrar þynningar vegna hluta sem gæti þurft að gefa út í samræmi við kaupréttarsamninga starfsmanna.
32.8. Varanlegir rekstrarfjármunir
Eignir eru skráðar meðal varanlegra rekstrarfjármuna þegar líklegt er að hagrænn ávinningur tengdur eigninni muni nýtast samstæðunni og hægt er að meta kostnað vegna eignarinnar með áreiðanlegum hætti.
Varanlegir rekstrarfjármunir eru færðir á upphaflegu kostnaðarverði að frádregnum uppsöfnuðum afskriftum og virðisrýrnun.
Afskriftir eru færðar á kerfisbundinn hátt á áætlúðum nýtingartíma eignarinnar að teknu tilliti til vænts hrakvirðis. Afskriftaraðferð, áætláður nýtingartími og hrakvirði er endurmetið að minnsta kosti árlega.
Hagnaður eða tap vegna sölu varanlegra rekstrarfjármuna er mismunur söluverðs og bókfærðs verðs eigna á söludegi og er fært í rekstrarreikning.
32.9. Óefnislegar eignir
Keyptar óefnislegar eignir
Óefnislegar eignir eru færðar á kostnaðarverði að frádregnum uppsöfnuðum afskriftum og virðisrýrnun. Afskriftir eru færðar á kerfisbundinn hátt á áætlúðum nýtingartíma eignarinnar. Áætláður nýtingartími er endurmetinn í lok hvers reikningsskilatímabils.
Óefnislegar eignir sem myndast við sameiningu félaga
Óefnislegar eignir sem myndast í reikningsskilum við sameiningu félaga eru aðeins færðar ef þær eru aðgreinanlegar frá viðskiptavild. Við upphaflega skráningu eru þær færðar á kostnaðarverði á kaupdegi en við síðara mat eru þær færðar á kostnaðarverði að frádregnum uppsöfnuðum afskriftum og virðisrýrnun.
32.10. Virðisrýrnun af öðrum eignum en viðskiptavild
Á reikningsskiladegi er bókfært verð efnislegra og óefnislegra eigna yfirfarið í þeim tilgangi að kanna hvort vísbending sé um virðisrýrnun. Sé slik vísbending til staðar er endurheimtanlegt virði eignarinnar metið. Endurheimtanlegt virði fjárskapandi einingar sem eignin fellur undir er metið þegar ekki er hægt að meta endurheimtanlegt virði einstakra eigna.
Óefnislegar eignir sem hafa óendanlegan líftíma eru yfirfarnar í þeim tilgangi að kanna hvort vísbending sé um virðisrýrnun.
Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2021
33
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Skýringar
32. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir, frh.:
Endurheimtanlegt virði er annað hvort gangvirði að frádregnum áætlúðum sólukostnaði eða nýtingarvirði eignar, hvort sem hærra reynist. Nýtingarvirði er áætlað framtiðarfjárstreymi sem er núvirt með vöxtum fyrir skatta þar sem vextirnir endurspegla mat markaðarins á tímavirði peninga hverju sinni og þá áhættu sem fylgir eigninni.
Sé endurheimtanlegt virði eignar metið lægra en bókfært verð er virði hennar fært niður í endurheimtanlegt virði. Tap vegna virðisrýrnunar er fært í rekstrarreikning en hafi eignin verið endurmetin kemur virðisrýrnunin fyrst til lækkunar á áður færðu endurmati.
Ef tap vegna virðisrýrnunar snýst við er bókfært verð eignarinnar hækkæð aftur en þó aldrei umfram bókfært verð fyrir virðisrýrnun að teknu tilliti til afskrifta. Bakfærsla virðisrýrnunar færíst í rekstrarreikning nema viðkomandi eign hafi áður verið endurmetin, en þá er hækkunin færð sem endurmatshækkun.
32.11. Birgðir
Birgðir eru metnar á kostnaðarverði eða söluverði hvort sem lægra reynist, að teknu tilliti til úreltra og gallaðra vara. Kostnaðarverð birgða samanstendur af kostnaði við öflun þeirra ásamt öðrum kostnaði sem fellur til við að koma birgðunum í söluheft ástand. Söluverð er áætlað söluverð að frádregnum áætlúðum sólukostnaði.
32.12. Skuldbindingar
Skuldbinding er færð þegar samstæðan ber lagalega eða liklega greiðsluskyldu vegna liðinna atburða og hægt er að meta fjárhæð hennar með áreiðanlegum hætti. Fjárhæð skuldbindingar er byggð á besta mögulega mati á skuldinni sem er fyrirliggjandi á reikningsskiladegi. Ef skuldbindingin er metin út frá áætlúðu framtiðarsjóðstreymi er skuldbinding færð miðað við núvirt áætlað sjóðstreymi.
Þegar virði skuldbindingarinnar er endurheimtanlegt frá þriðja aðila er fjárhæð hennar færð til eignar.
32.13. Fjáreignir
Fjáreignir eru flokkaðar á afskrifuðu kostnaðarverði. Flokkunin er ákveðin við upphaflega skráningu og fer eftir eðli og tilgangi fjáreignarinnar. Öll almenn viðskipti með fjáreignir eru skráð á viðskiptadegi. Með almennum viðskiptum er átt við kaup og sölu fjáreigna sem grundvallast af samningi eða markaðsvenjum um afhendingu eða mottóku fjáreigna innan tiltekins tíma.
Vaxtatekjur eru færðar miðað við virka vexti fyrir alla fjármálagerninga. Aðferð virkra vaxta felst í því að reiknað er endurgreiðsluvirði fjáreignar eða fjárskuldar og vaxtatekjum og vaxtagjöldum jafnað á líftímanum. Virkir vextir er sú ávöxtunarkrafa sem núvirðir áætlað sjóðstreymi eða tekjur yfir áætlaðan líftíma fjármálagernings, eða yfir styttra tímabil ef við á, þannig að það jafngildi bókfærðri fjárhæð fjáreignarinnar eða fjárskuldarinnar í efnahagsreikningi.
Vaxtatekjur eru færðar miðað við virka vexti fyrir alla fjármálagerninga aðra en þá sem skilgreindir eru sem fjáreignir á gangvirði í gegnum rekstrarreikning.
Fjáreignir færðar á afskrifuðu kostnaðarverði
Fjáreignir á afskrifuðu kostnaðarverði eru fjáreignir með föstum eða ákvarðanlegum greiðslum sem ekki eru skráðar á virkum markaði. Slikar eignir eru í upphafi færðar á gangvirði að viðbættum öllum tengdum viðskiptakostnaði. Eftir upphaflega skráningu eru fjáreignir færðar á afskrifuðu kostnaðarverði miðað við virka vexti, að frádreginni virðisrýrnun þegar við á. Fjáreignir samanstanda af handbæru fé, verðbréfaeign, samningum, viðskiptakröfum og öðrum kröfum.
Virðisrýrnun fjáreigna
Á reikningsskiladegi er bókfært verð fjáreigna metið í þeim tilgangi að kanna hvort vígebending sé um virðisrýrnun. Virðisrýrnun hefur orðið ef vænt framtiðarsjóðstreymi miðað við upphaflega virka vexti er lægra en bókfært verð. Ef virðisrýrnun á ekki lengur við er hún bakfærd í rekstrarreikningi, þó aldrei umfram bókfært verð fyrir virðisrýrnun að teknu tilliti til afskrifta. Ákveðin tegund fjáreigna eins og viðskiptakröfur eru færðar á nafnverði að teknu tilliti til niðurfærslu. Niðurfærslan er ekki endanleg afskrift heldur er myndáður mötreikningur til að mæta hugsanlegu tapi sem kann að myndast í framtiðinni. Eignasafn fjáreigna er metið til virðisrýrnunar ef einstakar eignir eru þess eðlis að þær verði ekki metnar hver fyrir sig.
Afskráning fjáreigna
Félagið afskráir fjáreignir aðeins þegar samningsbundinn réttur til framtiðarsjóðstreymis af fjáreigninni er ekki lengur til staðar eða þegar áhættan eða ávinningurinn af fjáreigninni flyst yfir á annað félag.
Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2021
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Skýringar
32. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir, frh.:
32.14. Fjárskuldir
Fjárskuldir
Fjárskuldir eru flokkaðar sem aðrar fjárskuldir.
Aðrar fjárskuldir
Aðrar fjárskuldir, þar á meðal skuldir við fjármálastofnanir, viðskiptaskuldir og aðrar fjárskuldir eru upphaflega skráðar á gangvirði að frádregnum viðskiptakostnaði. Við síðara mat eru þær færðar á afskrifuðu kostnaðarverði miðað við aðferð virkra vaxta.
Afskráning fjárskulda
Félagið afskráir fjárskuldir eingöngu þegar skuldbinding vegna þeirra er ekki lengur til staðar. Hagnaður eða tap vegna afskráningar er fært í rekstrarreikning.
32.15. Leigusamningar
Við upphaf samnings leggur félagið mat á það hvort samningur eða hluti hans feli í sér leigusamning. Samningur er leigusamningur að hluta eða heild ef hann felur í sér afnotarét yfir eign á tilteknu tímabili í skiptum fyrir endurgjald. Við mat á því hvort leigusamningur felur í sér afnotarét yfir eign notar félagið skilgreiningu leigusamnings í IFRS 16.
32.15.1. Félagið sem leigutaki
Við upphaf eða breytingu á samningi sem felur í sér leiguhluta úthlutar félagið endurgjaldinu á sérhvern leiguhluta á grundvelli sjálfstæðs verðs hvers hlutar fyrir sig. Fyrir leigusamninga um fasteignir hefur félagið hins vegar kosið að aðgreina ekki leiguhluta frá öðrum hlutum samningsins og færir þá sem einn leigusamning.
Félagið færir leigueign og leiguskuld við upphaf leigusamnings. Leigueignin er upphaflega færð á kostnaðarverði, sem er upphaflega fjárhæð leiguskuldarinnar að teknu tilliti til leigugreiðslna sem hafa fallið til fyrir eða á upphafsdegi samningsins, beins kostnaðar við öflun leigueignarinnar og áættlaðs kostnaðar við að taka niður og fjarlægja eignina, eða til þess að færa eignina eða umhverfi hennar í samt horf að loknum leigusamningi, og að frádregnum leiguilvilnunum sem félagið hefur fengið.
Leigueignin er afskrifuð línulega frá upphafi til loka leigusamningsins, nema þegar eignarhald flyst yfir til félagsins í lok leigutímabilisins eða ef kostnaðarverð leigueignarinnar endurspeglar að félagið muni nýta sér kauprétt í lok leigutímabilisins. Í þeim tilfellum er leigueignin afskrifuð á nýtingartíma eignarinnar, sem er ákvarðaður með sömu aðferð og notuð er fyrir aðra fasta fjármuni félagsins. Jafnframt er virði leigueignar lækkað reglubundið um sem nemur virðisrýrnun hennar, ef einhver er, og leiðrétt vegna endurmats leiguskuldarinnar.
Leiguskuld er upphaflega færð við núvirði ógreiddra leigugreiðslna á upphafsdegi leigusamningsins. Greiðslurnar eru núvirtar með því að nota innbyggða vexti leigusamningsins, séu þeir tiltækir, en annars notar félagið þá vexti sem það fær af nýju lánsfé. Að jafnaði notar félagið vexti á nýju lánsfé til núvirðingar.
Félagið ákvarðar vexti af nýju lánsfé með því að sækja vaxtaupplysingar vegna ólíka fjármögnunarleiða og gerir tilteknar aðlaganir til að endurspegla skilmála leigusamningsins og eiginleika eignarinnar sem er leigð.
Leigugreiðslur sem eru innfaldar í ákvörðun fjárhæðar leiguskuldar fela í sér eftirfarandi:
- Fastar greiðslur, þar með taldar leigugreiðslur sem eru samkvæmt eðli sínu fastar;
- Breytilegar leigugreiðslur tengdar vöxtum eða vísitölu, upphaflega áættlaðar miðað við vexti eða vísitölu á upphafsdegi;
- Fjárhæðir sem gert er ráð fyrir að þurfi að greiða samkvæmt hrakvirðistryggingu; og
- Kaupverð samkvæmt kaupréttarákvæði í leigusamningi þegar félagið telur nokkuð víst að það muni nýta kaupréttinn, leigugreiðslur á valkvæðum framlengingartímabilum ef félagið er nokkuð viss um að það muni nýta framlengingarheimildir og greiðslur vegna uppsagnar leigusamnings fyrir lok leigutimans, nema félagið sé nokkuð viss um að nýta ekki uppsagnarheimildir.
Leiguskuldin er færð á afskrifuðu kostnaðarverði með því að nota aðferð virkra vaxta. Hún er endurmetin þegar breyting verður á framtíðarleigugreiðslum vegna breytinga á vísitölu eða vöxtum, ef breyting verður á mati félagsins á fjárhæð sem það væntir að verði greidd samkvæmt hrakvirðistryggingu, ef félagið breytir mati sínu á því hvort það muni nýta kaupréttarákvæði, heimildir til framlengingar eða uppsagnar leigusamnings eða þegar breyting verður á fjárhæð leigugreiðslu sem er í eðli sínu föst.
Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2021
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Skýringar
32. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir, frh.:
Þegar leiguskuldin er endurmetin með þessum hætti er samsvarandi leiðrétting gerð á bókfærðu verði leigueignarinnar eða leiðrétting færð í rekstrarreikning félagsins ef bókfært virði leigueignarinnar hefur verið fært niður í núl.
Skammtímaleigusamningar og leigusamningar um lágvirðiseignir
Félagið kýs að færa ekki leigueignir og leiguskuldir vegna leigusamninga um lágvirðiseignir og skammtímaleigusamninga. Félagið gjaldfærir leigugreiðslur vegna þessara leigusamninga línulega á leigutíma.
33. Nýir reikningsskilastaðlar sem ekki hafa tekið gildi
Nokkrir nýir alþjóðlegir reikningsskilastaðlar gilda um fjárhagsár sem hefjast eftir 1. janúar 2021 eða síðar og er heimilt er að beita fyrir gildistöku þeirra. Félagið hefur hins vegar ekki innleitt nýja eða breytta reikningsskilastaðla fyrir gildistíma við gerð þessara reikningsskila.
Ekki er búist við að eftirfarandi breytingar á stöðlum og túlkunum muni hafa veruleg áhrif á reikningsskil félagins:
- Covid-19-tengdar leiguivilnanir (Breytingar á IFRS 16).
- Fastafjármunir: Ávinningur áður en ætluð notkun hefst (Breytingar á IAS 16).
- Tilvísun til hugtakaramma alþjóðlegra reikningsskilastaðla (Breytingar á IFRS 3).
- Flokkun skulda í langtíma og skammtímahluta (Breytingar á IAS 1).
- IFRS 17 Vátryggingasamningar og breytingar á IFRS 17 Vátryggingarsamningar.
- Skýringar um reikningsskilareglur (Breytingar á IAS 1 og Leiðbeinandi verklagi IFRS nr. 2)
- Skilgreining reikningshaldslegs mats (Breytingar á IAS 8).
Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2021
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Stjórnarháttayfirlýsing
Umgjörð um stjórnarhætti
Stjórnarhættir hjá Símanum eru skilgreindir sem umgjörð utan um umsýslu og stjórnun fyrirtækisins og tæki til samskipta milli stjórnenda fyrirtækisins, félagsstjórnar, hluthafa og annarra hagsmunaaðila.
Stjórnarhættir Símans eru markaðir af lögum nr. 2/1995 um hlutafélög, samþykktum félagsins, starfsreglum stjórnar og síðareglum félagsins auk þess sem félagið hefur innleitt samkeppnisréttaráætlun í starfsemi sína sem er mikilvægur hluti af stjórnarháttum þess.
Stjórnarhættirnir fylgja leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja sem gefnar eru út af Viðskiptaráði Íslands, Nasdaq OMX Iceland hf. og Samtökum atvinnulifsins, 6. útgáfa 2021. Félagið hefur ekki sett sér stefnu um fjölbreytileika enn sem komið er. Leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja má m.a. finna á vefsíðu Viðskiptaráðs Íslands, www.vi.is.
Síminn leggur áherslu á góða stjórnarhætti og var útnefnt fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnarháttum árið 2015 af Rannsóknarmiðstöð um góða stjórnarhætti.
Hluthafafundur
Æðsta vald í málefnum félagsins er í höndum hluthafa þess. Aðalfund félagsins skal halda fyrir lok maí ár hvert. Hlutabréf félagsins eru rafræn og skráð hjá Verðbréfaskráningu Íslands, sem jafnframt hýsir hlutaskrána. Hlutaskráin er aðgengileg hluthöfum á skrifstofu félagsins.
Samþykktir
Samþykktir eru hluti af stofnskjölum hlutafélaga. Samþykktir Símans geyma m.a. reglur um tilgang félagsins, hlutafé, hluthafafundi, stjórn, ársreikninga og endurskoðun.
Stjórn félagsins
Stjórn félagsins skipa Jón Sigurðsson formaður, Sigrún Ragna Ólafsdóttir varaformaður stjórnar, Arnar Þór Måsson, Bjarni Þorvarðarson og Björk Viðarsdóttir.
Jón Sigurðsson er fæddur 1978, hann var fyrst kosinn í stjórn félagsins 21. mars 2019. Jón er viðskiptafræðingur og er forstjóri Stoða hf., en Stoðir eiga 15,41% hlutafjár í Símanum. Jón er stjórnarformaður S121 ehf., og situr í stjórn Stoða hf, K190 hf., Sökkla eignarhaldsfélags ehf., Bjarg Invest ehf., GÞ Holding ehf., S380 ehf., Straumnes ehf., Straumnes eignarhaldsfélags ehf., Straumnes Ráðgjafar eh., Square ehf., Port I ehf., Barone I ehf. og S120 ehf.
Sigrún Ragna Ólafsdóttir er fædd 1963, hún var fyrst kosin í stjórn félagsins 11. mars 2021. Sigrún Ragna er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands 1987, fékk löggildingu sem endurskoðandi árið 1990 og lauk MBA námi frá Háskólanum í Reykjavík 2007. Sigrún Ragna er stjórnarformaður Stefnis hf. og Auðkennis ehf. auk þess sem hún situr í stjórn Ekin ehf.
Bjarni Þorvarðarson er fæddur 1966, hann var fyrst kosinn í stjórn félagsins 21. mars 2019. Bjarni lauk B.Sc. prófi í rafmagnsverkfræði frá Háskóla Íslands árið 1989 og síðar meistaragráðum í rafmagnsverkfræði frá University of Wisconsin, Madison, 1991, í alþjóðaviðskiptum frá ISG í París 1993 og fjármálafræðum frá London Business School árið 1998. Bjarni er stjórnarformaður Coripharma ehf., Coripharma Holding hf., Matorka ehf. og Stakrar Gulrótar ehf., og situr í stjórn, Milu ehf., Hafnarhrauns ehf., BKP
Arnar Þór Måsson er fæddur 1971, hann var fyrst kosinn í stjórn félagsins 11. mars 2021. Arnar Þór er BA gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands ásamt meistaragráðu í stjórnmálafræði frá London School of Economics and Political Science. Arnar Þór er sjálfstætt starfandi ráðgjafi og stjórnarformaður Marel hf.
Björk Viðarsdóttir er fædd 1978, hún var fyrst kosin í stjórn félagsins 11. mars 2021. Björk útskrifáðist sem Cand. jur. frá lagadeild Háskóla Íslands í júní 2004 og lauk málflutningsprófi fyrir héraðsdómi 2009. Björk er framkvæmdastjóri tjónapjónustu TM hf. Björk situr ekki í stjórn annarra félaga.
Allir stjórnarmenn félagsins fyrir utan Jón Sigurðsson teljast vera óháðir félaginu, viðskiptaæðilum, samkeppnisæðilum og stórum hluthöfum. Jón Sigurðsson er óháður félaginu, viðskiptaæðilum og samkeppnisæðilum, en ekki óháður stórum hluthöfum í félaginu.
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2021
37
Fjórhæðir eru í milljónum króna
Stjórnarháttayfirlýsing
Af samsetningu stjórnar má sjá að Síminn uppfyllir skilyrði hlutafélagalaga um kynjakvóta. Stjórn telur að samsetning hennar hafi samræmst starfsemi og stefnu félagsins þannig að henni var kleift að sinna málefnum félagsins af skilvirkni og heilindum. Bakgrunnur og menntun stjórnarmanna er fjölbreytt. Eignarhlut stjórnarmanna í Símanum má sjá í skýringu 29. Stjórn fer með æðsta vald í málefnum félagsins á milli hluthafafunda með þeim takmörkunum sem leiða af lögum, samþykktum félagsins og starfsreglum stjórnar. Stjórnarformaður hefur tilteknu hlutverki að gegna sem mælt er fyrir um í starfsreglum stjórnar Símans og gert er ráð fyrir að hann sinni í samræmi við leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja.
Núgildandi starfsreglur stjórnar voru samþykktar á stjórnarfundi 29. júní 2021 og eru þær aðgengilegar á vef félagsins, www.siminn.is.
Alls voru haldnir 21 stjórnarfundir árið 2021 og mætti meirihluti stjórnar á alla fundi og tóku allir stjórnarmenn virkan þátt í störfum stjórnarinnar. Stjórn fór yfir það hvernig henni tókst að uppfylla fjárhags- og starfsáætlun fyrir liðið starfsár.
Undirnefndir Símans
Hjá Símanum starfa þrjár undirnefndir stjórnar, endurskoðunarnefnd, starfskjaranefnd og tilnefningarnefnd.
Endurskoðunarnefnd
Hlutverk endurskoðunarnefndar er að tryggja áreiðanleika fjármálauppilýsinga til hluthafa, hafa umsjón með innri endurskoðun félagsins og bókhaldskerfi, svo og að leggja mat á vinnu fjármálastjórnenda fyrirtækisins og kjörins endurskoðanda. Hlutverk nefndarinnar nær til þeirra verkefna sem kveðið er á um í Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja, sem gefnar eru út af Viðskiptaráði, Kauphöllinni (OMX) og Samtökum atvinnulífsins. Endurskoðunarnefnd er skipuð þremur nefndarmönnum að lágmarki. Nefndarmenn skulu búa yfir þeirri reynslu og þekkingu sem nauðsynleg er til þess að gegna störfum sínum.
Endurskoðunarnefnd skipa Sigurður Þórðarson formaður, Sigrún Ragna Ólafsdóttir og Bjarni Þorvarðarson. Endurskoðunarnefnd hélt 9 fundi árið 2021 og meirihluti nefndarinnar hefur mætt á alla fundi. Endurskoðunarnefnd boðar endurskoðendur félagsins á fundi þegar tilefni er til, auk þess sem þeir mæta á stjórnarfundi vegna ársreiknings. Starfsreglur endurskoðunarnefndar má nálgast á heimasiðu félagsins www.siminn.is.
Starfskjaranefnd
Hlutverk starfskjaranefndar er að tryggja að starfskjör yfirstjórnenda taki mið af afkomu fyrirtækisins til langs tíma, frammistöðu þeirra sjálfra og hagsmunum hluthafa. Forstjóri er ábyrgur fyrir starfskjörum annarra og ber honum að tryggja að starfskjör séu ávallt í samræmi við stefnu starfskjaranefndar. Stefna starfskjaranefndar er að tryggja að félaginu sé jafnan kleift að laða til sín og halda í starfi hæfum stjórnendum. Í þessu skyni ber nefndinni að ráðfæra sig við ytri ráðgjafa um starfskjör í sambærilegum fyrirtækjum þegar þörf krefur. Hlutverki nefndarinnar er ætlað að ná til þeirra verkefna sem kveðið er á um í Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja, 6. útgáfa 2021.
Starfskjaranefnd skipa Jón Sigurðsson formaður, Arnar Másson og Björk Viðarsdóttir. Starfskjaranefnd hélt 4 fundi árið 2021 og mætti meirihluti nefndarinnar á alla fundina.
Núgildandi starfskjarastefna var samþykkt á aðalfundi félagsins 2021. Starfskjarastefnu félagsins og starfsreglur starfskjaranefndar má nálgast á heimasiðu félagsins www.siminn.is.
Tilnefningarnefnd
Tilgangur tilnefningarnefndar félagsins að huga að hagsmunum allra hluthafa og tilnefna frambjóðendur í stjórn félagsins. Tilnefningarnefnd fer yfir þekkingu og reynslu stjórnar sem heild og í framhaldi metur frambjóðendur út frá þekkingu og reynslu og hvort þeir geti sinnt skyldum sínum samkvæmt samþykktum félagsins, lögum um hlutafélög nr. 2/1995, auk annarra laga og reglugerða sem gilda um félagið. Ekki er sjálfgefið að breyta þurfi samsetningu stjórnar á hverjum tíma en slíkt er háð aðstæðum hverju sinni, virkni núverandi stjórnar og vilja núverandi stjórnarmanna til áframhaldandi stjórnarsetu. Tilnefningarnefnd er kosin af hluthófum á aðalfundi. Tilnefningarnefndina skipa Jensína K. Böðvarsdóttir formaður, Steinunn K. Þórðardóttir og Sverrir Briem. Starfsreglur tilnefningarnefndar má nálgast á heimasiðu félagsins www.siminn.is.
Regluvörður
Regluvörður er Eiríkur Hauksson sem er skipaður af stjórn. Regluvörður hefur umsjón með að reglum um innhjerjauppilýsingar og viðskipti innhjerja sé fylgt.
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2021
38
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Stjórnarháttayfirlýsing
Árangursmat stjórnar
Ný stjórn var kosin á aðalfundi þann 11. mars 2021 og var árangursmat stjórnar framkvæmt í desember 2021. Helstu þættir sem lagt var mat á voru: upplýsingagjóf, stefnumótun og framtíðarsýn, áhættustjórnun, störf stjórnarmanna og forstjóra. Einnig var lagt mat á starfsemi undirnefnda.
Samskipti hluthafa og stjórnar
Samskipti stjórnar við hluthafa eiga að einkennast af hreinskilni og vera skýr og samræmd. Beini hluthafar fyrirspurnum til stjórnar félagsins skal stjórn vera tilkynnt um þær og hafa yfirumsjón með viðbrögðum félagsins við þeim.
Forstjóri Símans
Forstjóri Símans er Orri Hauksson, fæddur 1971. Menntun Orra er eftirfarandi; Executive Education í Harvard Business School 2010-2012, MBA frá Harvard Business School 2002, C.Sc. í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands 1995. Starfsreynsla Orra er; Síminn hf., forstjóri frá október 2013, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins 2010-2013, fjárfestingarstjóri Novator Partners LLC. 2007-2010, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Símans hf. 2003-2007, sólustjóri hjá Maskina Software Inc, Boston, 2002-2003, greinandi hjá Argnor Wireless Ventures, Stokkhólmi, 2001, aðstoðarmaður forsætisráðherra hjá forsætisráðuneytinu 1997-2000, sérfræðingur hjá Eimskipafélagi Íslands hf. 1995-1997. Orri er stjórnarformaður Isavia ohf. Forstjóri annast daglegan rekstur félagsins og skal í þeim eftun fara eftir þeirri stefnu og fyrirmælum sem stjórn hefur gefið. Forstjóri skal ávallt starfa af heilindum með hagsmuni félagsins að leiðarljósi. Eignahlut Orra í Símanum má sjá í skýringu 29, ekki er í gildi kaupréttarsamningur við félagið.
Í framkvæmdastjórn Símans sitja auk forstjóra, framkvæmdastjórar þeirra þriggja sviða sem móðurfélagið hefur á að skipa. Framkvæmdastjórn ber byrgð á daglegum rekstri félagsins og fylgni við rekstraráætlanir.
Innra eftirlit og áhættustýring
Áhættustefna félagsins var staðfest 30. mars 2021. Stefna félagsins um áhættustýringu hefur þann tilgang að viðhalda yfirsýn og viðeigandi stýringu áhættu í starfsemi Símans og dótturfélaga. Hjá hverju félagi innan samstæðunnar skal starfa öryggisráð eða sambærilgur vettvangur sem sér til þess að stefnunni sé framfylgt og að starfrækt sé stjórnskipulag áhættustýringar og samræmt áhættustýringarferli sem hentar umfangi viðkomandi fyrirtækis. Fyrirtækin skulu greina og meðhöndla áhættu í starfsemi sinni með reglubundnu áhættumati, markvissu eftirliti og aðgerðum. Stjórn og stjórnendur stýra áhættu félagsins í samræmi við áhættuvilja félagsins sem inniheldur áhættumörk sem félagið vill halda sig innan.
Til að tryggja að reikningsskil félagsins séu í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla hefur félagið lagt áherslu á vel skilgreind ábyrgðarsvið, eðlilega aðgreiningu starfa, ásamt reglulegri skýrslugjóf. Félgagið útbýr mánaðarlega skýrslur þar sem einstakar rekstrareiningar eru yfirfarnar og er mikilvægur þáttur í eftirliti með afkomu og öðrum lykilþáttum starfseminnar. Mánaðarleg uppgjör eru unnin og lögð fyrir stjórn félagsins. Til staðar eru verklagsreglur til að tryggja eftirlit með tekjuskráningu, rekstarkostnaði ásamt fleiri liðum sem hafa áhrif á rekstur félagsins. Félagið er með samning við Ernst & Young ehf. um innri endurskoðun. Í samningnum felst að gerðar eru kannanir á því hvort innra eftirlit sé viðeigandi og virkt. Innri endurskoðandi veitir stjórn óháða og hlutlæga staðfestingu á því hvort ferli Símans séu fullnægjandi. Nánar er gerð grein fyrir skyldum og heimildum innri endurskoðunar í samningnum.
Upplýsingar um brott á reglum sem viðeigandi eftirlits- og/eða úrskurðaraðili hefur ákvarðað
Félagið hefur ekki fengið stjórnvaldssekt á árinu af hálfu dómstóla eða þar til bærra eftirlitsaðila. Félagið hefur ekki fengið dóm fyrir brott á reglum né er kunnugt um slík brott á árinu af hálfu dómstóla eða þar til bærra eftirlitsaðila.
Gildi félagsins
Gildi Símans eru: einfaldleiki og framsækni.
Samfélagsleg ábyrgð
Síminn er einn af stofnfélögum í Festu, miðstöð um samfélagsábyrgð. Félagið hefur sett fram sjálbærnistefnu þar sem áherslur félagsins í umhverfis, félagslegum og stjórnarháttum er lagðar. Það er stefna Símans að huga að sjálfærni í hvívetna og tryggja að markmið séu mælanleg og að væntingar til árangurs í sjálfærni séu skýr fyrir starfsfólki Símans, viðskiptavinum, birgjum, hluthöfum og öðrum haghöfum. Unnið er í samræmi við þessar áherslur á grundvelli tíu viðmiða UN Global Compact og UFS viðmiða. Gerð er árleg framvinduskýrsla um aðgerðir og árangur í sjálfærni.
Síðareglur
Félagið vinnur eftir síðareglum sem síðast voru endurskoðaðar og samþykktar 13. september 2021.
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2021
39
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Ófjárhagslegar upplysingar
Viðskiptalíkan
Síminn er fjarskiptafyrirtæki sem á sér djúpar rætur í íslensku samfélagi. Síminn er sveigjanlegt félag sem hefur frá stofnun lagt áherslu á nýjustu tækni og nýsköpun í bjónustu sinni við heimili, fyrirtæki og stofnanir á Íslandi. Fyrirtækið selur vörur og bjónustu til neytenda. Viðskiptavinir eru um það bil 110 þúsund talsins. Síminn er í senn rekstrarfélag á sviði fjarskipta og tengdrar starfsemi og eigandi þriggja dótturfélaga: Milu, Radiómiðunar og Símans Pay. Farsimi, fastlína, internet og sjónvarp eru fjórar helstu vörur Símans á smásölumarkaði. Rétt um það bil helmingur heimila er með fastlínunettengingu hjá Símanum og um tæp 37% farsímanotenda eru hjá fyrirtækinu. Þá eru um 64% notenda gagnvirks sjónvarps (IPTV) á Íslandi hjá Símanum. Mila á og rekur umfangsmesta fjarskiptanet landsins og Radiómiðun hefur um árabil gegnt lykilhlutverki í innleiðingu nýrra fjarskipta- og hugbúnaðarlausna fyrir sjávarútvegsfyrirtæki í samstarfi við Símann. Síminn Pay býður upp á greiðslulausnir og lán undir vörumerkinu Síminn Pay. Þjónustan er í boði fyrir alla óháð fjarskiptafyrirtæki og banka.
Í umhverfi sem einkennist af stöðugri þróun og síbreytilegum þörfum viðskiptavina hefur félagið sett sér það hlutverk að skapa viðskiptavinum sínum tækifæri með því að vera leiðandi í stafrænum lausnum, með framsækni og einfaldleika að leiðarljósi. Stöðug uppfærsla á viðskipta- og framleiðsluferlum ásamt áframhaldandi þróun stafrænna lausna skilar viðskiptavinum skýrum ávinningi samhliða betri nýtingu rekstrarfjármuna. Með stefnu um sjálfbærni vinnur félagið einnig að sameiginlegum ávinningi fyrir starfsfólk, viðskiptavini, umhverfið og aðra hagaðila félagsins.
Félagið er skráð á aðallista NASDAQ OMX Iceland og er eignarhald dreift.
Stefnur félagsins m.t.t. ófjárhagslegra þátta,
- Upplýsingaóryggisstefna, gefin 2021
- Upplýsingastefna, gefin út 2020
- Mannauðs- og jafnréttisstefna, gefin út 2019 (jafnlaunastefna skv. ÍST 85-2012 er hluti af þessari stefnu)
- Starfskjarastefna, gefin út 2020
- Persónuverndarstefna Símans, gefin út 2021
- Persónuverndarstefna Símans fyrir starfsfólk, 2022
- Gæðastefna (innanhúss) gefin út 2020
- Stefna Símans gegn einelti, áreitni og ofbeldi (innanhúss) gefin út 2021
- Innkaupastefna Símans (innanhúss), 2020
- Stefna Símans í sjálfbærni, gefin út 2021
- Umhverfisstefna Símans, gefin út 2021
- Mannréttindastefna Símans, gefin út 2021
- Síðareglur birgja, 2021
- Starfsreglur stjórnar, gefin út 2021
Síminn er með allar ofangreindar stefnur til sífelldrar endurskoðunar og hefur sett fram heildstæða sjálfbærnistefnu sem tekur á umhverfis- og loftlagsmálum, félagslegum þáttum og stjórnarháttum ásamt öðrum ófjárhagslegum þáttum. Í stefnunni eru skilgreindar megináhættur útfrá áhættumatsgreiningu (e.materiality)
Áreiðanleikakönnunarferli félagsins með tilliti til ófjárhagslegra þátta, sjálfbærni og UFS
Í samræmi við upplýsingaóryggisstefnu, upplýsingastefnu, gæðastefnu ásamt innri ferum og öðrum gæðakrófum, er lögð áhersla á að tryggja gæði og réttar ófjárhagslegar upplýsingar. Þá fer ytri endurskoðandi yfir skýrslu stjórnar, m.a. ófjárhagslegar upplýsingar, sem hluta af ytri endurskoðun félagsins.
Félagið hefur skilgreint megináhættur og markmið byggt á sjálfbærnistefnu til að tryggja að stefnunni sé framfylgt. Nánar er gerð grein fyrir þeim í köflunum um umhverfisþætti, félagslega þætti og stjórnarhætti.
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2021
40
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Ófjárhagslegar upplysingar
Umhverfis- og loftlagsmál
Síminn gaf út sína fyrstu sjálfbærnistefnu árið 2021. Við val á lykilmælikvörðum (fyrir umhverfismál, félagslega þætti og stjórnarhætti) var stuðst við mikilvægisgreiningu (e. Materiality) á fjarskiptageiranum, skoðun á leiðandi erlendum fjarskiptafélögum m.t.t. UFS frammistöðu og aðlagað að starfsemi Símans. Samhliða þeirri vinnu voru helstu megináhættur endurskilgreindar og markmið endurskilgreind.
Félagið er meðvitað um þau umhverfisáhrif sem fjarskiptaiðnaðurinn hefur í fór með sér enda felur reksturinn í sér nokkra auðlinda- og orkunotkun tengt notkun og förgun á búnaði og tækjum sem notuð eru í starfsemi félagsins sem og hýsingu gagna í gagnaverum. Eðli starfseminnar kallar að auki á umtalsverðan akstur og flutninga á búnaði vegna viðhalds og lagningu fjarskiptaneta.
Félagið hefur skilgreint tvo meginþætti í umhverfismálum sem tengjast starfsemi félagsins, þ.e. virðiskeðjuáhrif og notkun náttúruauðlinda og er það sýn félagsins að eftirfarandi atriði eigi við starfsemi félagsins í heild.
Megináhættur:
- Umhverfis og loftlagsáhrif í virðiskeðjunni
- Loftlagsbreytingar
- Ágangur á náttúruauðlindir
Markmið:
- Minnkun gróðurhúsalofttegunda í umfangi 1,2 og 3 miðað við tekjur
- Greina losun gróðurhúsalofttegunda vegna streymis og hýsingar gagna á vegum félagsins
- Að lágmarki 80% af helstu birgjum geti tryggt að þau uppfylli kröfur innkaupastefnu
Helstu meginmarkmið voru endurskilgreind á árinu og munu upplysingar um árangur verða birtar með sjálfbærniuppgjóri Símans fyrir árið 2021.
Félagslegir þættir
Áherslur félagsins í félagslegum þáttum eru nátengdar áherslum félagsins í sjálfbærni- og mannréttindamálum. Í þeirri stafrænu umbreytingu sem samfélagið er að ganga í gegnum liggja tækifæri fyrir félagið að vera hreyfiafl til góðra verka.
Félagið er með virka mannaúðs- og jafnréttisstefnu sem stuðla á að jafnri stöðu og jöfnum tækifærum starfsfólks óháð kyni, kynhneigð, kynþætti, þjóðerni, trúabrögðum eða lífsstíl. Síminn hlaut jafnlaunavottun Jafnréttisstofu í lok árs 2018, fyrst íslenskra fjarskiptafélaga og var sú vottun endurnýjuð árið 2021. Árið 2019 tók Síminn þátt í Jafnréttisvísi Capacent sem leiddi til ýmissa umbótaverkefna á sviði jafnréttismála og stefnir félagið á að jafna kynjahlutföll í öllum skipulagseiningum félagsins sem og í stjórnendahópi félagsins. Árið 2021 gaf félagið út Samskiptasáttmála sem á að vera starfsfólki leiðarljós í samskiptum sín á milli.
Hjá félaginu er starfrækt Vinnuverndar- og brunavarnarráð. Það tekur m.a. þátt í gerð áætlunar um öryggi og heilbrigði á vinnustað, vinnur að bættum aðbúnaði, hollustuháttum og öryggi á vinnustöðum. Með stefnu félagsins gegn einelti, áreitni og ofbeldi og meðfylgjandi viðbragðsáætlun er unnið að því að tryggja sálfélagslegt öryggi starfsfólks í vinnu.
Með síðareglum birgja og innkaupastefnu sinni leggur félagið einnig áherslu á sanngjarna og umhverfisvæna aðfangakeðju.
Með þessu vil félagið stuðla að auknum fjölbreytileika, betri þjálfun vinnuafls, stuðla að virðingu í samskiptum, tryggja velliðan og aukin lífsgæði bæði jafnt innan sem og utan félagsins.
Megináhættur:
- Áhrif af vöru og þjónustu, t.d. ábyrgt vöruframboð og markaðssetning og aðgengileiki
- Mannauðsmál
- Heilsa og öryggi starfsfólks og verktaka
- Mannréttindi
- Samskipti við nærsamfélagið
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2021
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Ófjárhagslegar upplysingar
Félagslegir þættir, frh.:
Markmið:
- Síminn hefur það markmið að ná launamun kynja undir hlutfallið 1,1 miðað við miðgildi
- Stefnt er að því að jafna kynjahlutföll starfsfólks og að hlutfall hvors kyns verði að lágmarki 40%. Unnið verði að sambærilegu sambærilegu kynjahlutfalli stjórnenda
- Að veita starfsfólki að lágmarki 50 klst. í þjálfun og menntun að meðaltali að ári
Árangur:
- Launamunur kynja er 1,16 karlmönnum í hag
- Kynjahlutfall stjórnenda er 64% karlmenn og 36% konur
- Starfsfólk varði að meðaltali um 3,5 klst. á mánuði í þjálfun og endurmenntun
- Greitt er fyrir skimum veikinda, sálfræðiaðstoð, líkamsræktarstyrki og búningsaðstaða er á vinnustað. Manneldissjónarmið eru einnig höfð að leiðarljósi í mötuneyti Símans
- Síðareglur birgja voru gefnar út á árinu
Stjórnarhættir
Síminn leggur áherslu á góða forystu og stjórnarhætti og fylgir leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja sem gefnar voru út af Viðskiptaráði Íslands, Nasdaq OMX Iceland hf. og Samtökum atvinnulífsins, 6. útgáfu frá árinu 2021.
Stjórnarhættir hjá Símanum eru einnig markaðir af lögum nr.2/1995 um hlutafélög, samþykktum félagsins, starfsreglum stjórnar, síðareglum félagsins auk þess sem félagið hefur innleitt samkeppnisréttaráætlun sem er mikilvægr hluti af stjórnarháttum þess.
Síðareglur Símans eru starfsfólki leiðarljós hvað varðar hugsanlega hagsmunaárekstra, mútugreiðslur, trúnað og meðferð viðkvæmra upplýsinga sem og fylgni við gildandi lög og reglur á hverjum tíma.
Eitt af lykilatriðum í rekstri Símans er að tryggja öryggi þeirra gagna og upplýsinga sem félagið vinnur með. Síminn er með virka upplýsingaöryggisstefnu sem styður við samfelldan rekstur og þjónustur og lágmarkar þannig rekstraráhættu og hámarkar öryggi upplýsinga og verðmæta í eigu eða umsjón félagsins. Síminn rekur vottað upplýsingaöryggiskerfi en félagið hlaut vottun BSI samkvæmt ISO/IEC 27001:2013 staðlinum árið 2016.
Gildandi upplýsingastefna Símans tekur mið af reglum Kauphallar – Nasdaq Iceland. Með stefnunni er lögð áhersla á að veita hagsmunaaðilum áreiðanlegar upplýsingar sem skipta máli er varða starfsemi félagsins, sem skráðs félags á íslenskum hlutabréfamarkaði í Kauphóll - Nasdaq Iceland.
Netöryggi er órjúfanlegur þáttur í starfsemi Símans og eru vernd gagna og persónuupplýsinga því ávallt í fyrirrúmi. Síminn er með virka upplýsingaöryggisstefnu sem styður við samfelldan rekstur og þjónustu. Með vottuðu upplýsingaöryggiskerfi lágmarkar Síminn rekstraráhættu og hámarkar öryggi upplýsinga í eigu eða umsjón félagsins. Með virkri persónuverndarstefnu leggur Síminn jafnframt áherslu á að gæta fríðhelgi einkalífs, jafnt starfsfólks sem og viðskiptavina. Lögð er áhersla á að gæta að málefnalegri, áreiðanlegri og gagnsærri meðferð persónuupplýsinga um viðskiptavini, starfsfólk og aðra sem persónuverndaruplýsingar varðar, í samræmi við persónuverndarlög hverju sinni.
Hjá Símanum er í gildi gæðastefna. Með henni er lögð áhersla á að félagið vinni að stöðugum umbótum, lágmarki sóun og auki gæði starfsemi sinnar, starfsfólki og samfélaginu til hagsbóta.
Síminn setti sér verklagsreglur á árinu um vernd uppljóstrara. Reglurnar voru settar á grundvelli 5. gr. laga um vernd uppljóstrara nr. 40/2020. Reglunum er meðal annars ætlað að stuðla að því að starfsfólk geti upplýst um lögbrot eða aðra ámælisverða háttsemi sem kann að eiga sér stað hjá félaginu og stuðla þannig að ábyrgum stjórnarháttum.
Síminn leggur áherslu á að viðhalda góðum samskiptum við lykil haghafa með opnum samtölum um þróun, tækifæri og sjálfbærniten gdar áhættur
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2021
42
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Ófjárhagslegar upplysingar
Stjórnarhættir, frh.:
Megináhættur:
- Gagnaöryggi, gæðamál og óhæði stjórnar
- Skortur á yfirsýn og stýringu stjórnenda á UFS þáttum sem eru mikilvægir fyrir Símann
- Að birgjar félagsins hugi ekki að gagnaöryggi, persónuvernd og öðrum mikilvægum UFS þáttum
Markmið:
- Að starfsfólk Símans staðfesti þekkingu sína á síðareglum Símans árlega.
- Að tryggja að hýsing viðkvæmra og verðmætra upplýsinga séu í vottuðu upplýsingaöryggiskerfi.
- Innleiða birgjamat og samtali við 20 stærstu birgja Símans sem eru með um 80% af innkaupum.
- Að birta árlegt sjálfbærniuppgjör
Árangur:
- 80% stjórnarmann eru óháðir
- 100% starfsfólks hefur skrifað undir síðareglur
- Síðareglur birgja voru gefnar út á árinu 2021
- 100% gagna eru vistuð í vottuðu upplýsingaöryggiskerfi.
- Síminn gaf út sjálfbærnistefnu á árinu 2021 og birti samhliða sitt annað sjálfbærniuppgjör.
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2021
43
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Ársfjórðungsyfirlit - óendurskoðað
Rekstur samstæðunnar greinist þannig á ársfjórðunga:*
| | 1 F
2021 | 2 F
2021 | 3 F
2021 | 4 F
2021 | Samtals |
| --- | --- | --- | --- | --- | --- |
| Sala | 6.299 | 6.244 | 6.267 | 6.541 | 25.351 |
| Kostnaðarverð sölü | ( 3.215) | ( 3.152) | ( 2.993) | ( 3.567) | ( 12.927) |
| Framlegð | 3.084 | 3.092 | 3.274 | 2.974 | 12.424 |
| Aðrar rekstrartekjur | 109 | 108 | 114 | 159 | 490 |
| Rekstrarkostnaður | ( 2.071) | ( 2.074) | ( 1.862) | ( 2.215) | ( 8.222) |
| Rekstrarhagnaður | 1.122 | 1.126 | 1.526 | 918 | 4.692 |
| Hrein fjármagnsgjöld | ( 187) | ( 315) | ( 218) | ( 279) | ( 999) |
| Aflögð starfsemi | 2.140 | ( 16) | 0 | 123 | 2.247 |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | 3.075 | 795 | 1.308 | 762 | 5.940 |
| Reiknaðir skattar | ( 191) | ( 177) | ( 251) | ( 108) | ( 727) |
| Hagnaður ársins | 2.884 | 618 | 1.057 | 654 | 5.213 |
| EBITDA | 2.540 | 2.557 | 2.974 | 2.532 | 10.603 |
*Rekstartölur innihalda rekstur Milu
| | 1 F
2020 | 2 F
2020 | 3 F
2020 | 4 F
2020 | Samtals |
| --- | --- | --- | --- | --- | --- |
| Sala | 7.120 | 7.169 | 7.119 | 1.979 | 23.387 |
| Kostnaðarverð sölü | ( 3.802) | ( 4.118) | ( 3.819) | ( 2.226) | ( 13.965) |
| Framlegð | 3.318 | 3.051 | 3.300 | ( 247) | 9.422 |
| Aðrar rekstrartekjur | 126 | 107 | 106 | 243 | 582 |
| Rekstrarkostnaður | ( 2.214) | ( 2.743) | ( 1.997) | ( 906) | ( 7.860) |
| Rekstrarhagnaður | 1.230 | 415 | 1.409 | ( 910) | 2.144 |
| Hrein fjármagnsgjöld | ( 270) | ( 178) | ( 149) | 308 | ( 289) |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | 960 | 237 | 1.260 | ( 602) | 1.855 |
| Reiknaðir skattar | ( 196) | ( 154) | ( 246) | 199 | ( 397) |
| Hagnaður ársins | 764 | 83 | 1.014 | ( 403) | 1.458 |
| EBITDA | 2.735 | 1.938 | 2.933 | ( 1.600) | 6.006 |
*Samanburðarfjárhæðum fyrir 2020 hefur ekki verið breytt vegna sölü á Sensa ehf. á árinu 2021
Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2021
44
Fjárhæðir eru í milljónum króna