Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Síminn Annual Report 2016

Feb 16, 2017

2203_rns_2017-02-16_99c895d2-e2d6-4847-b1f5-2d1be7736fa4.pdf

Annual Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

{# SEO P0-1: filing HTML is rendered server-side so Googlebot sees the full text without executing JS or following an iframe to a Disallow'd CDN path. The content has already been sanitized through filings.seo.sanitize_filing_html. #}

Síminn

Ársreikningur samstæðu

2016

Síminn hf.

Ármúla 25

108 Reykjavík

Kt. 460207-0880


Efnisyfirlit

Bls.

Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra... 2 - 3
Áritun óháðs endurskoðanda... 4 - 7
Rekstrarreikningur... 8
Yfirlit um heildarafkomu... 9
Efnahagsreikningur... 10
Eiginfjáryfirlit... 11
Sjóðstreymisyflit... 12
Skýringar... 13 - 33

Viðauki:

Stjórnarháttaryfirlýsing... 34-35
Ársfjórðungsyfirlit... 36

Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2016


Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra

Ársreikningurinn hefur að geyma samstæðureikning Símans hf. og dótturfélaga hans, samanber skýringu 16, fyrir árið 2016.

Rekstur ársins 2016

Heildartekjur samstæðunnar á árinu voru 29.572 m.kr. samkvæmt rekstrarreikningi samanborið við 30.407 m.kr. á árinu 2015. Hagnaður var af rekstri samstæðunnar sem nam 2.755 m.kr. samanborið við hagnað að fjárhæð 2.875 m.kr. á árinu 2015. Eignir samstæðunnar námú 63.979 m.kr. samkvæmt efnahagsreikningi. Eigið fé nam 34.260 m.kr. og var eiginfjárhlutfallið 53,5%. Félagið greiddi á árinu arð að fjárhæð 575 m.kr. til hluthafa sinna. Að öðru leyti vísast til ársreiknings um breytingar á eigir fé samstæðunnar.

Í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins, sem samþykkt var á aðalfundi félagsins þann 10. mars 2016, voru keypt eigir bréf að nafnvírði 243 m.kr. á meðalgenginu 3,09. Kaupum samkvæmt endurkaupaáætluninni lauk þann 1. júní 2016. Í samræmi við kaupréttarsamninga voru hlutir að nafnverði 37 m.kr. seldir til starfsmanna á genginu 2,5181 og á félagið nú 2,13% af hlutafé félagsins.

Í byrjun mars keypti félagið allt hlutafé í Farsimagreiðslum ehf. en fyrir átti félagið 55,5% hlut. Í lok júní seldi félagið tvö af dótturfélögum sínum, Staka automation ehf. og Talentu ehf. Söluhagnaður af viðskiptunum nam 189 m.kr. sem tekjufærður er í rekstrarreikningi félagsins. Áhrif sölunnar á efnahagsreikning félagsins eru óveruleg. Félagið seldi allan hlut sinn í Trackwell ehf. sem var skráð sem hlutdeildarfélag og nam söluhagnaður 100 m.kr. sem er tekjufærður í rekstrarreikningi félagsins.

Hlutafé í árslok skiptist á 1.473 hluthafa en þeir voru 2.783 í ársbyrjun. 10 stærstu hluthafar félagsins eru:

Nafnverð hlutafjár í m.kr. Eignarhlutur
Lífeyrissjóður verslunarmanna 1.377 14,27%
Gildi - lífeyrissjóður 889 9,21%
Lífeyrissj.starfsm.rík. A-deild 718 7,44%
Stapi lífeyrissjóður 518 5,37%
L1088 ehf. 488 5,06%
Arion banki hf. 478 4,95%
Stefnir - ÍS 15 358 3,71%
Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda 358 3,71%
Lífeyrissj.starfsm.rík. B-deild 261 2,70%
A.C.S safnreikningur I 243 2,52%
10 stærstu hluthafar samtals 5.688 58,94%

Stjórn félagsins leggur til að 10% af hagnaði ársins, 275 m.kr. verði greiddur út sem arður á árinu 2017 vegna ársins 2016. Þá leggur stjórn félagsins einnig til að farið verði í framkvæmd endurkaupaáætlunar á hlutabréfum í félaginu fyrir fjárhæð sem nemur allt að 40% af hagnaði félagsins á árinu 2016.

Skráð hlutafé félagsins nam í árslok 9.650 m.kr., en félagið á eigir hluti að nafnverði 205,8 m.kr. Hlutaféð er í einum flokki, sem skráður er í Kauphöll Íslands. Allir hlutir njóta sömu réttinda.

Stjórn og stjórnarhættir

Stjórn Símans hf. leggur áherslu á að viðhalda góðum stjórnarháttum og að fylgja „Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja" sem Viðskiptaráð Íslands, Nasdaq OMX Iceland hf. og Samtök atvinnulifsins hafa gefið út. Stjórninn hefur sett sér ítarlegar starfsreglur þar sem valdsvið hennar er skilgreint sem og verksvið gagnvart forstjóra. Félagið er með skráð verðbréf í Kauphöll Íslands hf. og ber því að fylgja leiðbeiningum um stjórnarhætti samkvæmt reglum Kauphallarinnar sem hægt er að nálgast á vef hennar.

Frekari upplýsingar um stjórn og stjórnarhætti er að finna í kaflanum stjórnarháttaryfirlýsing sem er fylgiskjal með ársreikningnum.

Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2016


Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra

Ófjárhagsleg upplýsingagjóf

Í júní sambýkkti Alþingi tóluverðar breytingar á lögum um ársreikninga. Lagabreytingarnar gilda með afturvirkum hætti frá og með 1. janúar 2016. Meðal lagabreytinganna er krafa um að í yfirliti með skýrslu stjórna tiltekinna félaga skuli fylgja upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að leggja mat á þróun, umfang, stöðu og áhrif félagsins í tengslum við umhverfis-, félags- og starfsmannamál. Jafnframt skal gera grein fyrir stefnu félagsins í mannréttindamálum og hvernig félagið spornar við spillingar- og mútumálum. Þá skal yfirlitið hafa að geyma stutta lýsingu á viðskiptalíkani félagsins, ófjárhagslega lykilmælikvarða og fleira. Hafí félagið ekki stefnu í tengslum við eitt eða fleiri mál samkvæmt lagagreininni skal gera skýra og rökstudda grein fyrir því í yfirlitinu. Félagið telst eining tengd almannahagsmunum og fellur undir fyrnnefndar kröfur um upplýsingagjóf sem koma til vegna innleiðingar á tilskipun Evrópusambandsins. Félagið hefur frá setningu laganna unnið að innleiðingu ákvæða þeirra og á heimasiðu félagsins, www.siminn.is, er að finna samfélagsstefnu félagsins sem tekur á flestum ákvæðum laganna. Á árinu 2017 mun félagið innleiða þetta ákvæði að fullu og munu fyrrgreindar upplýsingar verða birtar í næsta ársreikningi félagsins.

Yfirlýsing stjórnar og forstjóra

Samkvæmt bestu vitneskju stjórnar og forstjóra er ársreikningur samstæðunnar í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu. Er það álit stjórnar og forstjóra að samstæðuársreikningurinn gefi glögga mynd af rekstrarafkomu samstæðunnar á árinu 2016, eignum, skuldum og fjárhagsstöðu hennar 31. desember 2016 og breytingu á handbæru fé á árinu 2016. Jafnframt er það álit stjórnar og forstjóra að samstæðuársreikningurinn gefi glöggt yfirlit um þróun og árangur í rekstri samstæðunnar og stöðu hennar og lýsi helstu áhættuþáttum og óvissu sem samstæðan býr við.

Stjórn og forstjóri Símans hf. hafa í dag fjallað um samstæðuársreikning félagsins fyrir árið 2016 og staðfesta hann með undirritun sinni.

Reykjavík, 16. febrúar 2017

Stjórn

Sigriður Hrólfsdóttir, formaður

Heiðrún Jónsdóttir, varaformaður

Bertrand B. Kan

Birgir S. Bjarnason

Stefán Árni Auðólfsson

Forstjóri

Orri Hauksson

Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2016


Áritun óháðs endurskoðanda

Til stjórnar og hluthafa Símans hf.

Áritun um endurskoðun samstæðuársreiknings

Álit

Við höfum endurskoðað samstæðuársreikning Símans hf. („samstæðan“) fyrir árið 2016 sem hefur að geyma rekstrarreikning og yfirlit um heildarafkomu, efnahagsreikning, eiginfjáryfirlit, sjóðstreymisyfirlit, upplýsingar um mikilvægar reikningsskilaaðferðir og aðrar skýringar.

Það er álit okkar að samstæðuársreikningurinn gefi glögga mynd af fjárhagsstöðu samstæðunnar 31. desember 2016 og afkomu hennar og breytingu á handbæru fé á árinu 2016, í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu og viðbótarkröfur sem koma fram í íslenskum lögum og reglum um ársreikninga skráðra félaga.

Grundvöllur álits

Við endurskoðuðum í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Ábyrgð okkar samkvæmt stöðlunum er lýst frekar í kaflanum. Ábyrgð endurskoðanda á endurskoðun samstæðuársreikningsins í árituninni. Við erum óháð félögum í samstæðunni í samræmi við síðareglur fyrir endurskoðendur á Íslandi og höfum uppfyllt aðrar síðferðisskyldur okkar í samræmi við þær reglur. Við teljum að við höfum aflað nægilegra og viðeigandi endurskoðunargagna til að byggja álit okkar á.

Lykilþættir endurskoðunar

Lykilþættir endurskoðunar eru þeir þættir, sem samkvæmt faglegu mati okkar, höfðu mest vægi við endurskoðun samstæðuársreikningsins. Við gefum ekki sérstakt álit á einstökum lykilþáttum en tókum á þeim við endurskoðun á samstæðuársreikningnum í heild og við ákvörðun um álit okkar á honum.

Lykilþáttur

Viðbrögð í endurskoðuninni

Mat viðskiptavildar

Eins og fram kemur í skýringu nr. 15 nam bókkfært verð viðskiptavildar 31,4 ma.kr. í árslok 2016 og er hún stærsta einstaka eign félagsins. Viðskiptavild hefur verið deilt út á þær sjóðskapandi einingar innan samstæðunnar sem hún tilheyrir. Árlega ber að framkvæma virðisrýrnunarpróf á viðskiptavild og öðrum eignum sem ekki rýrna við notkun og hafa óskilgreindan líftíma.

Mat á verðmæti viðskiptavildar er einn af lykilþáttum í endurskoðun á ársreikningi samstæðunnar vegna þess hversu hátt hlutfall viðskiptavild er af heildareignum hennar og um er að ræða eign sem háð er mati stjórnenda. Mat á verðmæti viðskiptavildar byggir á væntingum stjórnenda um núvirt framtiðarsjóðstreymi sjóðskapandi eininga.

Endurskoðunaraðgerðir okkar miðuðu að því að leggja mat á þær forsendur sem stjórnendur nota við útreikning á verðmæti viðskiptavildar í hverri sjóðskapandi einingu. Í þeirri vinnu fólst m.a.:

  • Reiknilikan stjórnenda var yfirfarið og lagt mat á virkni þess.
  • Forsendur rekstrar- og sjóðstreymisáætlana til næstu fimm ára voru yfirfarnar. Í þeirri vinnu fólst að lagt var mat á forsendur um tekjur, rekstrakostnað, framlegð og fjárfestingar fyrir spátímabilið.
  • Lagt var mat á forsendur fyrir áæltluðum framtiðarvexti að loknu spátímabilinu.
  • Forsendur fyrir vaxtakjörum einstakra sjóðskapandi eininga voru yfirfarnar og metnar. Ávöxtunarkrafa í útreikningunum byggir á áhættulausum vöxtum að viðbættu álagi sem tekur mið af eðli rekstrar og samsetningu fjármögnunar í hverri einingu.

Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2016


Áritun óháðs endurskoðanda, frh:

Lykilþáttur Viðbrögð í endurskoðuninni
Tekjuskráning

Tekjuskráningarkerfi samstæðunnar eru flókin og skrá mikinn fjölda færslna í mörgum kerfum. Helstu tekjur samstæðunnar eru samtengingar- og reikitekjur, mánaðargjöld, stofngjöld, línuleigur, auglýsingatekjur í sjónvarpi auk söl u á vörum og þjónustu. Gerð er grein fyrir tekjuskráningu samstæðunnar í skýringu 33.5. | Endurskoðunaraðgerðir okkar miðuðu að því að leggja mat á hönnun, innleiðingu og virkni á sjálfvirkum eftirlitsþáttum með tekjuskráningu auk viðeigandi gagnaendurskoðunaraðgerða með það að markmiði að sannreyna nákvæmni í tekjuskráningu félagsins og að tekjur séu skráðar á viðeigandi tímabil. Í þeirri vinnu fólst m.a.: |
| Skráning tekna er einn af lykilþáttum í endurskoðun á ársreikningi samstæðunnar vegna mikils fjölda af færslum og flókinna skráninga í tekjuskráningarkerfi þar sem framboð og verð á vörum og þjónustu tekur reglulegum breytingum. | • Lagt var mat á þau tölvu- og upplýsingakerfi sem notuð eru við tekjuskráningu og flæði á milli tekjukerfa og fjárhagskerfis. Einnig voru framkvæmdar prófanir á þeim sjálfvirkum eftirlitsþáttum sem eru til staðar í ferlinu.
• Skoðun á aðgangsheimildum starfsmanna í tekjukerfi, heimildum til verðákvarðana og breytinga í kerfinu.
• Skoðun á eftirlitsþáttum við reikningagerð sem eru hannaðir til að tryggja réttmæti og nákvæmni útsendra reikninga.
• Athuganir á yfirferð stjórnenda á frávikagreiningum, afstemmingum milli kerfa og eftirlitsaðgerðum í innheimtu.
• Greiningar á leitni í tekjum niður á mánuði með samanburði við áætlanir og fyrri tímabil þar sem frávik eru greind, byggð á þekkingu okkar á markaðnum. Ef frávik voru umfram ásættanleg mörk var leitað skýringa á þeim.
• Greiningartæki notað við skoðun á sölufærslum í þeim tilgangi að greina óvenjulegar færslur. |
| Aðrar upplýsingar í ársskýrslu

Stjórn og forstjóri bera ábyrgð á öðrum upplýsingum. Aðrar upplýsingar eru ársskýrsla að undanskildum samstæðuársreikningi og áritun okkar á hann. Álít okkar á samstæðuársreikningnum nær ekki til annarra upplýsinga og við staðfestum þær ekki á neinn hátt. | Í tengslum við endurskoðun okkar á samstæðuársreikningnum ber okkur að lesa aðrar upplýsingar í ársskýrslu þegar þær liggja fyrir og meta hvort þær séu í verulegu ósamræmi við samstæðuársreikninginn eða aðra þekkingu sem við höfum aflað okkur við endurskoðunina eða virðast verulega rangar. Ef við, á grundvelli vinnu okkar, ályktum að verulegar rangfærslur séu í öðrum upplýsingum ber okkur að skýra frá því. Ársskýrslan liggur ekki fyrir við áritun okkar á samstæðuársreikninginn en við munum fá hana afhenta til yfirferðar áður en hún verður gefin út. |
| Ábyrgð stjórnar og forstjóra á samstæðuársreikningnum

Stjórn og forstjóri eru ábyrg fyrir gerð og glöggri framsetningu samstæðuársreikningsins í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaða eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu og fyrir því innra eftirliti sem þau telja nauðsynlegt til að gera þeim kleift að setja fram samstæðuársreikning sem er án verulegra annmarka, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka. | Við gerð samstæðuársreikningsins ber stjórn og forstjóra að leggja mat á rekstarhæfi samstæðunnar og upplýsa, eftir því sem við á, um þætti er varða rekstarhæfi og miða grundvöll reikningsskilanna við áframhaldandi rekstarhæfi, nema þau ætli annað hvort að leysa samstæðuna upp eða hætta starfsemi hennar, eða hafa engan annan raunhæfan kost en að gera það. |

Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2016


Áritun óháðs endurskoðanda, frh:

Ábyrgð endurskoðanda á endurskoðun samstæðuársreikningsins

Markmið okkar eru að öðlast hæfilega vissu um hvort samstæðuársreikningurinn í heild sé án verulegra annmarka, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka, og að gefa út áritun endurskoðanda sem inniheldur álit okkar. Í hæfilegri vissu felst mikil vissa en ekki trygging fyrir því að endurskoðun í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla muni alltaf leiða í ljós verulega annmarka ef þeir eru fyrir hendi. Annmarkar geta komið fram vegna sviksemi eða mistaka og eru taldir verulegir ef þeir einir og sér eða samanlagt gætu haft áhrif á efnahagslegar ákvarðanir sem notendur samstæðuársreikningsins taka á grundvelli hans.

Við endurskoðun í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla beitum við ávallt faglegri dómgreind og viðhöfum faglega gagnrýni. Að auki:

  • Greinum við og metum hættu á verulegri skekkju í samstæðuársreikningnum, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka, skipuleggjum og framkvæmum endurskoðunaraðgerðir til að bregðast við þeirri hættu og öflum endurskoðunargagna sem eru nægjanleg og viðeigandi til að byggja álit okkar á. Hættan á að uppgötva ekki verulega skekkju vegna sviksemi er meiri en að uppgötva ekki skekkju vegna mistaka, þar sem sviksemi getur falið í sér samsæri, fölsun, að einhverju sé viljandi sleppt, villandi framsetningu eða að farið sé framhjá innra eftirliti.

  • Öflum við skilnings á innra eftirliti, sem varðar endurskoðunina, til að skipuleggja viðeigandi endurskoðunaraðgerðir, en ekki til að veita álit á virkni innra eftirlits samstæðunnar.

  • Metum við hvort reikningsskilaaðferðir og reikningshaldslegt mat stjórnenda og tengdar skýringar séu viðeigandi.

  • Ályktum við um hvort notkun stjórnar og forstjóra á forsendu reikningsskilanna um rekstrarhaefi sé viðeigandi og metum, á grundvelli endurskoðunarinnar, hvort aðstæður séu til staðar sem valdið gætu verulegum vafa um rekstrarhaefi samstæðunnar. Ef við teljum að verulegur vafi leiki á rekstrarhaefi ber okkur, í áritun okkar, að vekja sérstaka athygli á viðeigandi skýringum samstæðuársreikningsins eða, ef slíkar skýringar eru ófullnægjandi, að víkja frá fyrirvaralausri áritun. Niðurstaða okkar byggir á endurskoðunargögnum sem aflað er fram að dagsetningu áritunar okkar. Samt sem áður geta atburðir eða aðstæður í framtiðinni gert samstæðuna órekstrarhaefa.

  • Metum við framsetningu, uppbyggingu og innihald samstæðuársreikningsins í heild, að meðtöldum skýringum, og hvort samstæðuársreikningurinn gefi glögga mynd af undirliggjandi viðskiptum og atburðum.

  • Öflum nægilegra og viðeigandi endurskoðunargagna varðandi fjárhagslegar upplýsingar eininga innan samstæðunnar til að geta gefið álit á samstæðuársreikningnum. Við erum ábyrg fyrir skipulagi, eftirliti og framkvæmd endurskoðunar samstæðunnar og berum óskipta ábyrgð á áritun okkar.

Við upplýsum stjórn og endurskoðunarnefnd meðal annars um áætlað umfang og tímasetningar endurskoðunarinnar og veruleg atriði sem upp kunna að koma í endurskoðun okkar, þar á meðal verulega annmarka á innra eftirliti.

Við lýsum því einnig yfir við stjórn og endurskoðunarnefnd að við höfum uppfyllt skyldur síðareglna um óhæði og upplýsum um tengsl eða önnur atriði sem gætu mögulega talist hafa áhrif á óhæði okkar og þegar við á, til hvaða varnaraðgerða við höfum gripið.

Af þeim atriðum sem við höfum upplýst stjórn og endurskoðunarnefnd um, leggjum við mat á hvaða þættir höfðu mesta þýðingu við endurskoðun samstæðuársreikningsins og eru því lykilþættir endurskoðunarinnar. Við lýsum þessum þáttum í áritun okkar nema lög og reglur útiloki að upplýst sé um þá eða, við einstakar mjög sjaldgæfar kringumstæður, þegar við metum að ekki skuli upplýsa um lykilþátt þar sem neikvæðar afleiðingar þess eru taldar vega þyngra en almennir hagsmunir af birtingu slíkra upplýsinga.

Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2016


Áritun óháðs endurskoðanda, frh:

Staðfesting vegna annarra ákvæða laga

Í samræmi við ákvæði 2. mgr. 104 gr. laga nr. 3/2006 um ársreikninga staðfestum við samkvæmt okkar bestu vitund að í skýrslu stjórnar sem fylgir þessum samstæðuársreikningi eru veittar þær upplýsingar sem þar ber að veita í samræmi við lög um ársreikninga og koma ekki fram í skýringum.

Alexander G. Eðvardsson og Árni Claessen, endurskoðendur, bera ábyrgð á endurskoðun ársreikningsins og áritun þessari.

Reykjavik, 16. febrúar 2017

KPMG ehf.

Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2016


Rekstrarreikningur ársins 2016

Skýr. 2016 2015
Sala 6 29.037 29.868
Kostnaðarverð sól 7 ( 15.387) ( 16.432)
Framlegð 13.650 13.436
Aðrar rekstrartekjur 535 539
Rekstrarkostnaður 8 ( 9.559) ( 9.332)
Rekstrarhagnaður 4.626 4.643
Fjármunatekjur 765 419
Fjármagnsgjöld ( 1.884) ( 1.762)
Gengismunur 21 56
Hrein fjármagnsgjöld 10 ( 1.098) ( 1.287)
Áhrif hlutdeildarfélaga 17 ( 1) ( 48)
Hagnaður fyrir tekjuskatt 3.527 3.308
Reiknaðir skattar 11 ( 772) ( 433)
Hagnaður ársins 2.755 2.875
EBITDA 8.245 8.042
Skipting hagnaðar
Hluthafar móðurfélags 2.833 2.888
Minnhluti ( 78) ( 13)
Hagnaður ársins 2.755 2.875
Hagnaður á hlut
Grunnhagnaður á hlut 12 0,30 0,30
Þynntur hagnaður á hlut 12 0,29 0,29

Skýringar á blaðsíðum 13 - 33 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuársreikningnum.

Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2016

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Yfirlit um heildarafkomu ársins 2016

Skýr. 2016 2015
Hagnaður ársins 2.755 2.875
Rekstrarliðir sem kunna að verða endurflokkaðir í rekstrarreikningi
Þýðingarmunur vegna starfsemi erlendra dótturfélaga ( 74) ( 65)
Heildarhagnaður ársins 2.681 2.810
Heildarhagnaður ársins skiptist þannig
Hluthafar móðurfélags 2.759 2.823
Minnihluti ( 78) ( 13)
Heildarhagnaður ársins 2.681 2.810

Skýringar á blaðsíðum 13 - 33 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuársreikningnum.

Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2016

Fjórhæðir eru í milljónum króna


Efnahagsreikningur ársins 2016

Skýr. 31.12.2016 31.12.2015
Eignir
Fastafjármunir
Rekstrarfjármunir 14 16.118 15.175
Viðskiptavild 15 31.407 31.404
Óefnislegar eignir 15 3.181 3.084
Aðrar eignir 17 1.349 729
Fastafjármunir 52.055 50.392
Veltufjármunir
Birgðir 18 1.829 2.162
Viðskiptakröfur 19 5.619 4.932
Aðrar skammtímakröfur 20 809 570
Handbært fé 3.667 4.071
Veltufjármunir 11.924 11.735
Eignir alls 63.979 62.127
Eigið fé
Hlutafé 21 9.444 9.650
Yfirverðsreikningur 17.105 17.556
Annað eigið fé 21 216 309
Þýðingarmunur 467 541
Óráðstafað eigið fé 7.235 4.836
Eigið fé hluthafa móðurfélags 34.467 32.892
Hlutdeild minnihluta (207) (91)
Eigið fé samtals 34.260 32.801
Skuldir
Langtímaskuldir
Skuldabréfalán 22 21.568 22.788
Tekjuskattsskuldbinding 23 442 263
Langtímaskuldir 22.010 23.051
Skammtímaskuldir
Viðskiptaskuldir 3.584 2.965
Næsta árs afborganir langtímaskulda 22 1.376 1.367
Skattar til greiðslu 615 38
Aðrar skammtímaskuldir 24 2.134 1.905
Skammtímaskuldir 7.709 6.275
Skuldir samtals 29.719 29.326
Eigið fé og skuldir alls 63.979 62.127

Skýringar á blaðsíðum 13 - 33 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuársreikningnum.

Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2016

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Eiginfjáryfirlit ársins 2016

Hlutafé Yfirverðs-reikningur Annað eigið fé Þýðingar-munur Óráðstafað eigið fé Eigið fé hluthafa móðurfélags Hlutdeild minnihluta Eigið fé samtals
Eigið fé 1.1.2015 9.650 35.520 246 606 ( 16.016) 30.006 ( 75) 29.931
Hagnaður (tap) ársins 2.888 2.888 ( 13) 2.875
Þýðingarmunur ( 65) ( 65) ( 65)
Heildarafkoma ársins ( 65) 2.888 2.823 ( 13) 2.810
Yfirverði jafnað á móti tapi ( 17.964) 17.964 0 0
Áfallinn kostnaður vegna kaupréttarsamninga 63 63 63
Breyting á minnihlutaeign 0 ( 3) ( 3)
Eigið fé 31.12.2015 9.650 17.556 309 541 4.836 32.892 ( 91) 32.801
Eigið fé 1.1.2016 9.650 17.556 309 541 4.836 32.892 ( 91) 32.801
Hagnaður (tap) ársins 2.833 2.833 ( 78) 2.755
Þýðingarmunur ( 74) ( 74) ( 74)
Heildarafkoma ársins ( 74) 2.833 2.759 ( 78) 2.681
Greiddur arður (0,0596 á hlut) ( 575) ( 575) ( 575)
Keypt eigin bréf ( 243) ( 507) ( 750) ( 750)
Aðrar breytingar ( 91) 91 0 0
Breyting á minnihlutaeign 0 ( 38) ( 38)
Áfallinn kostnaður vegna kaupréttarsamninga 48 48 48
Innleystir og niðurfelldir kaupréttarsamningar 37 56 ( 50) 50 93 93
Eigið fé 31.12.2016 9.444 17.105 216 467 7.235 34.467 ( 207) 34.260

Skýringar á blaðsíðum 13 - 33 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuársreikningnum.

Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2016

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Sjóðstreymisyflrit 2016

Skýr. 2016 2015
Rekstrarhreyfingar
Rekstrarhagnaður samkvæmt rekstrarreikningi 4.626 4.643
Rekstrarliðir sem ekki hafa áhrif á fjárstreymi:
Afskriftir og virðisrýrnun 14,15 3.619 3.399
Söluhagnaður varanlegra rekstrarfjármuna ( 29) ( 28)
Aðrir liðir sem ekki hafa áhrif á fjárstreymi 13 48 64
8.264 8.078
Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum:
Birgðir, læk kun (hæk kun) 292 ( 728)
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur, (hæk kun) ( 1.419) ( 834)
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímakuldir, hæk kun 756 1.231
Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum ( 371) ( 331)
Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta 7.893 7.747
Innborgaðir vextir 461 390
Greiddir vextir ( 1.586) ( 1.651)
Greiddir skattar ( 6) ( 113)
Handbært fé frá rekstri 6.762 6.373
Fjárfestingarhreyfingar
Fjárfesting í rekstrarfjármunum 14 ( 4.229) ( 3.926)
Fjárfesting í óefnislegum eignum 15 ( 485) ( 756)
Söluverð rekstrarfjármuna 58 74
Skuldabréfaeign, breyting ( 20) ( 41)
Kaup á eignarhlutum í dótturfélögum, að frádregnu handbæru fé 16 ( 50) ( 307)
Sala á eignarhlutum í dótturfélögum, að frádregnu handbæru fé 16 234 0
Aðrar fjárfestingar ( 39) 0
Fjárfestingarhreyfingar ( 4.531) ( 4.956)
Fjármögnunarhreyfingar
Greiddur arður ( 577) ( 1)
Kaup og sala eigin bréfa ( 657) 0
Afborganir langtímalána ( 1.371) ( 1.398)
Fjármögnunarhreyfingar ( 2.605) ( 1.399)
(Lækkun) hæk kun á handbæru fé ( 374) 18
Áhrif gengisbreytinga á handbært fé ( 30) 46
Handbært fé í byrjun ársins 4.071 4.007
Handbært fé í lok ársins 3.667 4.071

Skýringar á blaðsíðum 13 - 33 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuársreikningnum.

Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2016

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

1. Starfsemi

Síminn hf. er hlutafélag og starfar á grundvelli laga nr. 2/1995 um hlutafélög. Höfuðstöðvar félagsins eru að Ármúla 25 í Reykjavík. Samstæðuársreikningur fyrir árið 2016 hefur að geyma ársreikning félagsins og dótturfélaga þess sem vísað er til í heild sem "félagsins" og til einstakra félaga sem "dótturfélaga". Meginstarfsemi félagsins er á sviði fjarskiptabjónustu, afbreyingar, gagnaflutnings og upplýsingatækni.

2. Grundvöllur reikningsskilanna

2.1. Yfirlýsing um beitingu alþjóðlegra reikningsskilastaðla

Ársreikningur félagsins fyrir árið 2016 er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS) eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu. Ársreikningur félagsins er jafnframt í samræmi við lög um ársreikninga og reglugerð um framsetningu og innihald ársreikninga og samstæðureikninga. Samantekt á mikilvægum reikningsskilaaðferðum er að finna í skýringu 33. Hægt er að nálgast ársreikninginn á vef félagsins, www.siminn.is og á vef Kauphallar Íslands: www.nasdaqomxnordic.com.

Stjórn og forstjóri félagsins samþykktu ársreikninginn og heimiluðu birtingu hans á stjórnarfundi þann 16. febrúar 2017.

3. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir

Við gerð ársreikningsins er beitt sömu reikningsskilaaðferðum og beitt var við gerð ársreiknings félagsins fyrir árið 2015.

Samstæðuársreikningurinn er gerður í íslenskum krónum sem er starfrækslugjaldmiðill félagsins og eru fjárhæðir birtar í milljónum króna nema annað sé tekið fram. Hann er gerður samkvæmt kostnaðarverðsaðferð.

4. Mat og ákvarðanir

Gerð samstæðuársreikningsins í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla krefst þess að stjórnendur taki ákvarðanir, meti og gefi sér forsendur sem hafa áhrif á beitingu reikningsskilaaðferða og birtar fjárhæðir eigna, skulda, tekna og gjalda. Endanlegar niðurstöður kunna að verða frábrugðnar þessu mati.

Mat og forsendur þess eru í stöðugri endurskoðun. Breytingar á reikningshaldslegu mati eru færðar á því tímabili sem breytingin á sér stað og þeim framtiðartímabilum sem breytingarnar hafa áhrif á.

Upplýsingar um mikilvægar ákvarðanir þar sem reikningsskilaaðferðir hafa mest áhrif á skráðar fjárhæðir eigna og skulda í ársreikningnum er að finna í skýringu 15 um mat á endurheimtanlegum fjárhæðum fjárskapandi eininga sem innihalda viðskiptavild.

Við ákvörðun gangvirðis er byggt á forsendum sem háðar eru mati stjórnenda á þróun ýmissa þátta í framtiðinni. Raunverulegt söluverð eigna og uppgreiðsluverðmæti skulda kann að vera frábrugðið þessu mati.

Gangvirði kaupréttarsamninga er metið með Black-Scholes aðferðinni. Við matið er notað gengi hlutabréfa á matsdegi, kaupréttargengi, vænt flökt, gildistími samninganna, væntar arðgreiðslur og áhættulausa vexti.

Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2016
13
Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

5. Starfsbáttayfirlit

Yfirlit um starfsbætti veitir upplýsingar um einstaka þætti í rekstri félagsins og er sett fram með sama hætti og regluleg skýrslugjóf til stjórnar félagsins.

Félagið skiptist í sjö starfsbætti sem selja vörur og þjónustu á mismunandi mörkuðum. Starfsbættirnir eru :

Starfsbáttur: Lýsing:

Farsímabjónusta: Tekjur félagsins af farsímabjónustu innanlands og erlendis, hvort sem heldur er hefðbundin GSM þjónusta, gervihnattabjónusta, farsímabjónusta í heildsölu eða önnur farsímabjónusta.
Talsímabjónusta: Tekjur af talsímabjónustu í heildsölu og smásölu.
Gagnaflutningur: Tekjur af gagnaflutningsbjónustu í heildsölu og smásölu, þ.m.t. xDSL þjónusta, GPON, Internet, IP net, stofnnet, heimtaugar og aðgangsnet.
Sjónvarpsbjónusta: Tekjur vegna dreifingar á sjónvarpsefni, áskriftar, notkunar og auglýsinga á miðlum félagsins.
Upplýsingatækni: Tekjur af upplýsingatækniþjónustu, þ.m.t. afnotagjöld, útseld vinna og þjónusta og vörusala.
Vörusala búnáðar: Tekjur vegna sölu á fjarskiptabúnaði og fylgihlutum.
Annað: Tekjur m.a. af útseldri vinnu vegna fjarskipta (þ.m.t. vettvangsbjónusta) og aðstöðuleigu.

Starfsbættir 2016

Farsími Talsími Gagna-flutningur Sjónvarps-bjónusta Upplýsingat-ækni Vörusala Annað Samtals
Rekstrartekjur ... 7.190 2.239 8.498 4.062 4.619 1.993 971 29.572
Óskipt rekstrargjöld ( 21.327)
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta 8.245
Afskriftir og virðisrýrnun ( 3.619)
Hrein fjármagnsgjöld ( 1.098)
Áhrif hlutdeildarfélaga ( 1)
Skattar ( 772)
Hagnaður ársins 2.755
Fjárfestingar ( 4.656)
Óskiptar eignir 31.12.2016 63.979
Óskiptar skuldir 31.12.2016 29.719

Starfsbættir 2015

Farsími Talsími Gagna-flutningur Sjónvarps-bjónusta Upplýsingat-ækni Vörusala Annað Samtals
Rekstrartekjur ... 7.549 2.609 8.424 3.845 4.823 2.104 1.053 30.407
Óskipt rekstrargjöld ( 22.365)
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta 8.042
Afskriftir og virðisrýrnun ( 3.399)
Hrein fjármagnsgjöld ( 1.287)
Áhrif hlutdeildarfélaga ( 48)
Skattar ( 433)
Hagnaður ársins 2.875
Fjárfestingar ( 4.608)
Óskiptar eignir 31.12.2015 61.885
Óskiptar skuldir 31.12.2015 29.801

Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2016

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

6. Sala 2016 2015
Seld þjónusta og vörur greinast þannig:
Sala á þjónustu 24.518 24.817
Vörusala 4.519 5.051
29.037 29.868
Enginn einstakur viðskiptavinur er með meira en 10% af sölu félagsins.
7. Kostnaðarverð sölu
Kostnaðarverð sölu greinist þannig:
Laun og launatengd gjöld 3.904 3.809
Kostnaðarverð seldar þjónustu 4.278 4.739
Samtengigjöld 1.002 1.097
Kostnaðarverð seldra vara 4.096 4.548
Eignfærð vinna ( 737) ( 587)
Afskriftir 2.844 2.826
15.387 16.432

Kostnaðarverð seldar þjónustu samanstendur af; efnis kostnaði, þjónustusamningum, leyfis gjöldum, aðkeyptri vinnu og fjarskiptakostnaði.

8. Rekstrarkostnaður
Rekstrarkostnaður greinist þannig:
Laun og launatengd gjöld 4.746 4.441
Markaðs- og sölukostnaður 677 774
Húsnaðis- og bifreiðakostnaður 1.493 1.530
Tölvu- og hugbúnaðarkostnaður 553 522
Afskrifaðar tapaðar kröfur og framlag í niðurfærslu viðskiptakrafna 114 136
Skrifstofu- og stjórnunarkostnaður 1.201 1.355
Afskriftir og virðisrýrnun 775 574
9.559 9.332
9. Laun og launatengd gjöld
--- --- ---
Laun og launatengd gjöld greinast þannig:
Laun 7.273 6.911
Lífeyrissjóðsið gjöld 685 649
Önnur launatengd gjöld 692 690
8.650 8.250
Stöðugildi að meðaltali 805 846
Laun og launatengd gjöld skiptast þannig á rekstrarliði:
Kostnaðarverð sölu 3.904 3.809
Rekstrarkostnaður 4.746 4.441
8.650 8.250

Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2016

Fjórhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

10. Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld 2016 2015
Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld greinast pannig:
Fjármunatekjur
Vaxtatekjur af bankainnistæðum og kröfum 474 418
Söluhagnaður af eignarhlutum 289 0
Fenginn arður 2 1
765 419
Fjármagnsgjöld
Vaxtagjöld ( 1.522) ( 1.588)
Verðbætur ( 150) ( 127)
Tap af fjárfestingu ( 180) 0
Önnur fjármagnsgjöld ( 32) ( 47)
( 1.884) ( 1.762)
Gengismunur 21 56
Hrein fjármagnsgjöld ( 1.098) ( 1.287)

11. Skattar

Tekjuskattur er reiknaður og færður í ársreikninginn. Tekjuskattur vegna ársins 2016 til greiðslu á árinu 2017 nemur 594 m.kr. Ógreitt jöfnunargjald vegna ársins 2016 til greiðslu 2017 nemur 21 m.kr. Samtals eru skattar til greiðslu 615 m.kr. í árslok.

Greining á virku skatthlutfalli: 2016 2015
Hagnaður fyrir skatta 3.527 3.308
Skatthlutfall 20,0% ( 705) 20,0% ( 662)
Ófrádráttarbær kostnaður 1,3% ( 46) 0,4% ( 13)
Óskattskyldar tekjur -1,3% 46 0,0% 0
Jöfnunargjald 0,5% ( 18) 0,6% ( 19)
Aðrar breytingar 1,4% ( 49) -7,9% 261
Skattur samkvæmt rekstrarreikningi 21,9% ( 772) 13,1% ( 433)

12. Hagnaður á hlut

Grunnhagnaður á hlut er miðaður við hagnað, sem ráðstafað er til hluthafa í félaginu og vegins meðaltals hlutafjár á árinu og sýnir hver hagnaðurinn er á hverja krónu hlutafjár. Pynntur hagnaður á hlut miðar við hagnað sem ráðstafað er til hluthafa í móðurfélaginu og vegins meðaltals virkra hluta að teknu tilliti til þynningaráhrifa væntra útgefinna hluta vegna kaupréttta starfsmanna.

2016 2015
Hagnaður ársins til hluthafa í móðurfélaginu 2.833 2.888
Hlutafé í ársbyrjun 9.650 9.650
Áhrif keyptra og seldra eigin bréfa ( 154) 0
Vegið meðaltal útistandandi hluta 9.496 9.650
Hagnaður á hlut 0,30 0,30

Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2016

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

12. Hagnaður á hlut, frh. 2016 2015
Vegið meðaltal útistandandi hluta 9.496 9.650
Áhrif kaupréttarsamninga 393 146
Vegið meðaltal útistandandi hluta 9.889 9.796
Þynntur hagnaður á hlut 0,29 0,29

13. Kaupréttarsamningar

Félagið hefur boðið öllum starfsmönnum sínum kaupréttarsamninga. Samningar voru fyrst gerðir 30. september 2015 sem heimila starfsmönnum að kaupa hluti í félaginu á árunum 2016 - 2018, á hverju ári að nafnverði 238.275 á genginu 2,5181. Á árinu 2016 voru gerðir samningar við nýja starfsmenn sem heimila þeim að kaupa hluti í félaginu á árunum 2017 - 2018, á hverju ári að nafnverði 198.675 á genginu 3,02.

Fjöldi hluta og kaupréttargengi er sem hér segir:

Gengi kaupréttar Fjöldi hluta
Kaupréttir 30. september 2015 2,5181 438
Nýttir kaupréttir á tímabilinu 2,5181 ( 37)
Niðurfelldir kaupréttir á tímabilinu 2,5181 ( 166)
Kaupréttir 30. september 2016 3,02 9
Samtals væntir útgefní hlutir vegna kauprétta starfsmanna 31.12.2016 244

Gjaldfærsla í rekstrarreikningi félagsins á árinu 2016 vegna kaupréttarsamninga starfsmanna nam 48 m.kr. (2015: 64 m.kr.).

14. Rekstrarfjármunir

Rekstrarfjármunir og afskriftir greinast þannig:

Fjarskipta-búnaður Fasteignir og lóðir Tæki, búnaður og bifreiðar Samtals
Kostnaðarverð
Heildarverð 1.1.2015 39.946 2.922 2.667 45.535
Endurflokkað ( 477) 0 471 ( 6)
Kaup á árinu 3.533 43 350 3.926
Kaup á félagi 0 0 138 138
Selt og niðurlagt á árinu ( 503) ( 951) ( 1.330) ( 2.784)
Gengismunur ( 6) 0 ( 4) ( 10)
Heildarverð 31.12.2015 42.493 2.014 2.292 46.799
Endurflokkað 1 0 20 21
Kaup á árinu 3.786 54 399 4.239
Vegna sölu á félagi 0 0 ( 1) ( 1)
Selt og niðurlagt á árinu ( 9.424) ( 21) ( 285) ( 9.730)
Gengismunur ( 16) 0 ( 9) ( 25)
Heildarverð 31.12.2016 36.840 2.047 2.416 41.303

Siminn hf. - Ársreikningar samstæðu 2016

Fjórhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

14. Rekstrarfjármunir, frh.

Fjarskiptabúnaður Fasteignir og lóðir Tæki, búnaður og bifreiðar Samtals
Afskriftir og virðisrýrnun
Afskrifað 1.1.2015 27.600 1.554 1.965 31.119
Endurflokkað ( 246) 0 240 ( 6)
Afskriftir 2.729 86 367 3.182
Kaup á félagi 0 0 62 62
Selt og niðurlagt á árinu ( 490) ( 950) ( 1.285) ( 2.725)
Gengismunur ( 4) 0 ( 4) ( 8)
Afskrifað alls 31.12.2015 29.589 690 1.345 31.624
Afskriftir 2.762 104 412 3.278
Vegna sölu á félagi 0 0 ( 1) ( 1)
Selt og niðurlagt á árinu ( 9.419) ( 7) ( 274) ( 9.700)
Gengismunur ( 11) 0 ( 5) ( 16)
Afskrifað alls 31.12.2016 22.921 787 1.477 25.185
Bókfært verð
Bókfært verð 1.1.2015 12.346 1.368 702 14.416
Bókfært verð 31.12.2015 12.904 1.324 947 15.175
Bókfært verð 31.12.2016 13.919 1.260 939 16.118

Fasteignamat húseigna og lóða samstæðunnar nam 1.945 m.kr. (2015: 1.676 m.kr.) og brunabótamat 3.372 m.kr. (2015: 3.379 m.kr.). Búnaður félagsins er tryggður fyrir 15.861 m.kr. (2015: 15.442 m.kr.). Allir varanlegir rekstarfjármunir félagsins eru veðsettir vegna lántöku félagsins.

Afskriftir rekstrarfjármuna og óefnislegra eigna skiptast þannig á rekstrarliði: 2016 2015
Kostnaðarverð seldar þjónustu 2.844 2.826
Annar rekstarkostnaður 775 573
Samtals 3.619 3.399

Nýtingartími greinist á eftirfarandi hátt:

Fjarskiptabúnaður 4 - 30 ár

Fasteignir (15 - 33 ár)

Tæki, búnaður og bifreiðar 3 - 10 ár

Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2016

Fjórhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

15. Óefnislegar eignir

Óefnislegar eignir og afskriftir greinast þannig:

Viðskipta-vild Hug-búnaður Aðrar eignir Samtals
Kostnaðarverð
Heildarverð 1.1.2015 54.860 5.173 2.945 62.978
Endurflokkað 0 11 ( 5) 6
Kaup á árinu 0 552 204 756
Viðbót vegna kaupa á hlut í félagi 246 0 0 246
Gengismunur 0 0 ( 73) ( 73)
Selt og niðurlagt á árinu 0 ( 69) ( 874) ( 943)
Heildarverð 31.12.2015 55.106 5.667 2.197 62.970
Endurflokkað 0 ( 21) 0 ( 21)
Kaup á árinu 5 460 25 490
Vegna sölu á félagi ( 2) 0 0 ( 2)
Gengismunur 0 0 ( 29) ( 29)
Selt og niðurlagt á árinu 0 ( 210) ( 55) ( 265)
Heildarverð 31.12.2016 55.109 5.896 2.138 63.143
Afskriftir og virðisrýrnun
Afskrifað 1.1.2015 23.702 4.438 1.127 29.267
Endurflokkað 0 9 ( 3) 6
Afskriftir 0 159 59 218
Selt og niðurlagt á árinu 0 ( 69) ( 874) ( 943)
Gengismunur 0 0 ( 66) ( 66)
Afskrifað alls 31.12.2015 23.702 4.537 243 28.482
Endurflokkað 0 ( 1) 0 ( 1)
Afskriftir 0 265 76 341
Selt og niðurlagt á árinu 0 ( 210) ( 55) ( 265)
Gengismunur 0 0 ( 2) ( 2)
Afskrifað alls 31.12.2016 23.702 4.591 262 28.555
Bókfært verð
Bókfært verð 1.1.2015 31.158 735 1.818 33.711
Bókfært verð 31.12.2015 31.404 1.130 1.954 34.488
Bókfært verð 31.12.2016 31.407 1.305 1.876 34.588

Nýtingartími greinist á eftirfarandi hátt:

Hugbúnaður 2 - 7 ár

Aðrar eignir 3 - 15 ár

Hugbúnaður félagsins er veðsettur vegna lántöku félagsins.

Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2016

Fjórhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

15.1. Árlegt virðisrýnunarpróf

Við framkvæmd virðisrýnunarprófs var endurheimtanlegt virði metið útfrá nýtingarvirði þeirra fjárskapandi eininga sem viðskiptavildin tilheyrir. Viðskiptavild sem myndast hefur við kaup hefur verið útdeilt niður á viðeigandi dótturfélög sem skilgreind eru sem minnstu aðgreinanlegu fjárskapandi einingar af stjórnendum samstæðunnar.

Viðskiptavild greinist þannig niður á fjárskapandi einingar:

2016 2015
Viðskiptavild Símans hf. 19.647 19.644
Viðskiptavild Mílu ehf. 10.708 10.708
Viðskiptavild Sensa ehf., upplýsingatækni 1.022 1.022
Viðskiptavild Radíómiðunar ehf., fjarskiptabjónusta 30 30
31.407 31.404

Endurheimtanlegar fjárhæðir fyrir fjárskapandi einingar eru byggðar á nýtingarvirði. Við mat á nýtingarvirði er stuðst við vænt fjárstreymi sem fært hefur verið til núvirðis. Fjárstreymi var áætlað með hliðsjón að fjárhæðum í samþykktum rekstraráætlunum næstu fimm ára, eftir spätímabilið er gert ráð fyrir fóstum framtíðarnafnvexti. Meginforsendur eru sólúvöxtur, framlegð, framtíðarfjárfesting og vöxtur eftir fimm ára spätímabilið. Ávöxtunarkrafan byggir á áhættulausum vöxtum að viðbættu álagi á samsetningu fjármögnunar.

Við mat á virði vörumerkja er byggt á væntu framtíðarfjárstreymi miðað við gefnar forsendur um endingartíma og að teknu tilliti til hugsanlegra skattaáhrifa. Ávöxtunarkrafan miðar við áhættulausa vexti að viðbættu álagi vegna sérstakrar og væntrar áhættu við viðkomandi vörumerki.

Meginforsendur sem liggja að baki virðisrýnunarprófinu eru eftirfarandi :

2016 2015
Síminn
Langtíma vöxtur 2,5% 2,5%
Vegið meðaltal tekjuvaxtar á tímabilinu 2017-2021 / 2016-2020 1,1% 1,2%
EBITDA meðalvöxtur á tímabilinu 2017-2021 / 2016-2020 2,4% 4,9%
WACC 8,8% 9,4%
Skuldsetningarhlutfall 44,0% 40,3%
Vextir 4,8% 5,7%

Mila

Langtíma vöxtur 2,5% 2,5%
Vegið meðaltal tekjuvaxtar á tímabilinu 2017-2021 / 2016-2020 1,6% 1,2%
EBITDA meðalvöxtur á tímabilinu 2017-2021 / 2016-2020 2,4% 1,5%
WACC 8,6% 9,1%
Skuldsetningarhlutfall 44,0% 40,3%
Vextir 4,8% 5,7%

Sensa

Langtíma vöxtur 3,5% 3,5%
Vegið meðaltal tekjuvaxtar á tímabilinu 2017-2021 / 2016-2020 0,1% 0,5%
EBITDA meðalvöxtur á tímabilinu 2017-2021 / 2016-2020 0,6% 6,7%
WACC 11,8% 12,4%
Skuldsetningarhlutfall 11,8% 13,8%
Vextir 5,7% 6,8%

Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2016

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

15.1. Árlegt virðisrýnunarpróf, frh:
2016 2015

Radiómiðun
Langtímavöxtur ... 2,5% 2,5%
Vegið meðaltal tekjuvaxtar á tímabilinu 2017-2021 / 2016-2020 ... 1,4% -2,1%
EBITDA meðalvöxtur á tímabilinu 2017-2021 / 2016-2020 ... 10,3% 2,4%
WACC ... 15,1% 15,3%
Skuldsetningarhlutfall ... 12,8% 12,8%
Vextir ... 6,4% 7,8%

Samkvæmt niðurstöðum virðisrýnunarprófa er engin virðisrýnun færð hjá félaginu.

Við framkvæmd virðisrýnunarprófs viðskiptavildar verða stjórnendur að meta ákveðnar forsendur sem notaðar eru í árlegu virðisrýnunarprófi. Slikt mat felur alltaf í sér ákveðna óvissu sem getur haft veruleg áhrif á útkomu prófanna ef forsendur reynast rangar. Breytingar á eftirfarandi forsendum hefðu eftirfarandi áhrif á bókfært virði viðskiptavildar félagsins:

Síminn Míla Sensa Radió-miðun
Hækkun ávöxtunarkröfu um eitt prósentustig 0 ( 2.617) 0 0
Lækkun á framtíðarvexti um eitt prósentustig 0 ( 1.762) 0 0
Lækkun EBITDA um 5% 0 ( 866) 0 0
  1. Dótturfélög
Staðsetning starfsemi Eignarhlutur
2016 2015
Míla ehf. Ísland 100,0% 100,0%
On-Waves ehf. Alþjóðleg 90,0% 90,0%
Radiómiðun ehf. Ísland 100,0% 100,0%
Sensa ehf. Ísland 100,0% 100,0%
Sensa DK Aps Danmörk 73,5% 73,5%
Siminn DK Aps Danmörk 100,0% 100,0%
Farsímagreiðslur ehf. Ísland 100,0% 55,5%
Staki ehf. Ísland - 100,0%
Talenta ehf. Ísland - 80,5%
  1. Aðrar eignir
    31.12.2016 31.12.2015

Aðrar eignir greinast þannig:

Fjárfesting í hlutdeildarfélögum ... 10 86
Fjárfesting í öðrum félögum ... 226 12
Sjónvarpsefni til sýningar ... 348 314
Fyrirframgreiddur kostnaður ... 424 0
Langtímakröfur ... 341 317
Aðrar fjármunaeignir samtals ... 1.349 729

Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2016
Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

17.1. Hlutdeildarfélög

Staðsetning Eignarhlutur 2016 2015
Auðkenni ehf. Ísland - 0 39
Trackwell hf. Ísland - 0 36
GO loyalty solutions ehf. Ísland 33,0% 10 11
10 86

Á árinu var hlutdeild í tapi hlutdeildarfélaga 1 m.kr. (2015: tap 48 m.kr). Eignarhlutur í Auðkenni ehf. fór undir 20% á árinu og er því tilgreindur meðal annarra félaga. Eignarhlutur í Trackwell hf. var seldur á seinnihluta ársins.

17.2. Önnur félög

Í árslok átti félagið hlutabréf í tveimur erlendum félögum og sjö innlendum félögum þar sem eignarhlutir voru lægri en 20%. Á árinu keypti félagið hlut í Reiknistofu bankanna hf.

17.3. Fyrirframgreiddur kostnaður

Gengið var frá langtimasamkomulagi við Farice um aðgengi að sæstrengjum til 4 ára.

17.4. Langtimakröfur

Langtimakröfur samanstanda af viðskiptaskuldabréfum og ráðgreiðslusamningum til lengri tíma en 12 mánaða.

18. Birgðir

Birgðir í árslok greinast þannig: 31.12.2016 31.12.2015
Vörur til endursölu og rekstrarvörubirgðir 1.170 1.192
Verk í vinnslu 29 76
Sjónvarpsefni til sýningar 630 894
Birgðir samtals 1.829 2.162

Vörunotkun vegna vörusölu ársins nam 4.095 m.kr. (2015: 4.548 m.kr.) Allar birgðir félagsins eru veðsettar vegna lántöku.

19. Viðskiptakröfur

Viðskiptakröfur greinast þannig:

Viðskiptakröfur 6.083 5.381
Niðurfærsla viðskiptakrafna ( 464) ( 449)
Viðskiptakröfur samtals 5.619 4.932

Breyting á niðurfærslu viðskiptakrafna greinist þannig:

Staða í ársbyrjun ( 449) ( 396)
Niðurfærsla vegna krafna sem kunna að tapast ( 95) ( 135)
Tapaðar viðskiptakröfur á árinu 79 87
Kaup, sala á dótturfélagi 1 ( 5)
Staða í lok árs ( 464) ( 449)

Niðurfærsla hefur verið reiknuð vegna krafna sem kunna að tapast. Niðurfærslan er byggð á mati stjórnenda og reynslu fyrri ára. Lánsáhætta vegna viðskiptavina er lítil þar sem viðskiptamenn félagsins eru margir og ótengdir. Allar viðskiptakröfur félagsins eru veðsettar vegna lántöku félagsins. Nánar er fjallað um áhættu vegna viðskiptakrafna í skýringu 25.

Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2016

Fjórhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

20. Aðrar skammtímakrófur

Aðrar skammtímakrófur greinast þannig: 31.12.2016 31.12.2015

Fyrirframgreiddur kostnaður 562 351
Aðrar skammtímakrófur 247 219
Samtals aðrar skammtímakrófur 809 570

21. Eigið fé

21.1. Hlutafé

Útgefnir hlutir í lok ársins eru alls 9.650 m.kr. og er nafnverð hvers hlutar ein íslensk króna (2015: 9.650 m.kr.). Eitt atkvæði fylgir hverri krónu nafnverðs. Allir útgefnir hlutir eru greiddir að fullu. Félagið á eigin hluti að nafnverði 205,8 m.kr. sem færðir eru til lækkunar á eigin fé. Stjórn félagsins hefur lagt til að greiddur verði út arður að fjárhæð 275 m.kr á árinu 2017.

21.2. Annað eigið fé

Annað eigið fé samanstendur af lögbundnum varasjóði og framlagi í bundinn eiginfjárreikning vegna kaupréttarsamninga við starfsmenn.

22. Langtímaskuldir

Lán félagsins greinast á eftirfarandi hátt: 2016 2015
Meðalvextir Eftirstöðvar Meðalvextir Eftirstöðvar
Skuldir í ISK, óverðtryggðar 7,03% 15.833 7,80% 16.783
Skuldir í ISK, verðtryggðar 4,00% 7.101 4,00% 7.372
Kaupleiga, langtímaskuldbinding 10 0
Næsta árs afborganir ( 1.376) ( 1.367)
21.568 22.788
Afborganir langtímaskulda greinast þannig:
Til greiðslu 2017 / 2016 1.376 1.367
Til greiðslu 2018 / 2017 1.376 1.367
Til greiðslu 2019 / 2018 14.359 1.367
Til greiðslu 2020 / 2019 426 14.351
Til greiðslu 2021 / 2020 426 417
Afborganir síðar 4.981 5.286
Heildarlán að meðtöldum næsta árs afborgunum 22.944 24.155

Verðtryggðar skuldir félagsins eru með uppgreiðsluheimild í júlí 2017. Félagið leitar ávallt hagkvæmustu leiða við fjármögnun sem kann að leiða til þess að uppgreiðsluheimild verði nýtt. Möguleg endurfjármögnun mun hafa óveruleg áhrif á afborganir langtímaskulda til framtíðar en fela í sér breytingu á samsetningu skulda. Í lánasamningum félagsins eru ýmsar hömlur á aðgerðir félagins og leita þarf samþykki s lánveitenda fyrir þeim. Í lánaskilmálum eru kvaðir um að uppfylla ákveðin fjármálahlutföll, sem voru uppfyllt í lok árs. Skuldir félagsins eru tryggðar með veðum í eignum félagsins.

Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2016

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

23. Tekjuskattsskuldbinding / (reiknuð skattaeign) 31.12.2016 31.12.2015
Hreyfingar á reiknaðri tekjuskattsskuldbindingu / (skattaeign) greinast á eftirfarandi hátt:
Reiknuð tekjuskattsskuldbinding (eign) í ársbyrjun. 263 ( 141)
Gengismunur. 0 2
Vegna sölu/kaupa á félagi. ( 8) 6
Skattur samkvæmt rekstrarreikningi. 750 434
Skattar til greiðslu á næsta ári. ( 592) ( 38)
Fært niður vegna óvissu um nýtingu. 29 0
Tekjuskattsskuldbinding. 442 263
Frestaður skattur skiptist þannig á einstaka liði efnahagsreikningsins:
Varanlegir rekstrarfjármunir. ( 719) ( 589)
Skammtímakröfur. 10 12
Gengismunur. ( 6) ( 17)
Aðrir liðir. 1 8
Skattalegt tap. 272 323
( 442) ( 263)
24. Aðrar skammtímaskuldir
Aðrar skammtímaskuldir greinast þannig:
Áfallinn kostnaður 1.011 1.107
Ógreidd laun og launatengd gjöld 355 215
Ógreiddur virðisaukaskattur 576 573
Aðrar skammtímaskuldir 192 10
Samtals aðrar skammtímaskuldir 2.134 1.905

25. Áhættustýring

Stýring fjármögnunaráhættu:

Félagið stýrir fjárhagssamsetningu þannig að tryggt sé að félög samstæðunnar séu rekstrarhæf, með það markmið að hámarka hagnað hluthafa með því að finna bestu samsetningu eigin fjár á móti skuldum. Stefna félagsins er óbreytt frá fyrra ári.

Fjárhagssamsetning félagsins samanstendur af lánum sem nánar eru upplistuð í skýringu númer 22, handbæru fé og eigin fé meirihluta í móðurfélagi sem samanstendur af útgefnu hlutafé, varasjóðum og óráðstöfuðu eigin fé.

Stýring fjárhagslegrar áhættu:

Starfsemi félagsins hefur það í för með sér að rekstur, eignir, skuldir og hlutafé eru undirorpín fjármögnunaráhættu. Sú áhætta samanstendur meðal annars af markaðsáhættu, mestmegnis tengdri gengi gjaldmiðla og vaxtastigi, lánsáhættu og lausafjáráhættu. Fjárstýring Símans veitir félögum innan samstæðunnar miðlæga fjármálabjónustu svo sem vegna fjármögnunar, gjaldeyriskaupa, vaxtastýringar og áhættumati. Starfsemi fjárstýringar er hagað innan ramma fjárstýringarstefnu Símans sem er endurskoðuð árlega af stjórn félagsins. Félagið tekur ekki stöðu í fjármálagerningum, þar með talið afleiddum fjármálagerningum, byggða á spákaupmennsku.

Vaxtaáhættu:

Vaxtaáhætta er áhættan af því að gangvirði eða framtíðarsjóðsflæði fjármálagerninga muni sveiflast vegna breytinga á markaðsvöxtum. Breytingar á markaðsvöxtum hafa áhrif á vaxtatekjur og vaxtagjöld í rekstrarreikningi. Lánasafn félagsins samastendur af skuldabréfum útgefnum í ISK með föstum vöxtum og lánum í ISK með breytilegum vöxtum. Vaxtaberandi fjárskuldir félagsins eru hærri en vaxtaberandi fjáreignir, en vaxtaáhættan er vegna breytilegra vaxta. Áhættan liggur því í að möguleg hækkun á vöxtum leiði til hækkunar á fjármagnsliðum.

Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2016

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

25. Áhættustýring, frh.:

Næmnigreining á breytingum á vöxtum var gerð miðað við stöðu á fjáreignum og skuldum í lok ársins. Í lok árs 2016 voru 31% (2015; 30%) af skuldum félagsins með fasta vaxtaprósentu fyrir næstu 12 mánuði. Næmnigreiningin gerir ráð fyrir að fjárhæð fjárskulda með breytilega vexti í lok árs sé eins allt árið. Miðað við 100 punkta hækkun á markaðsvöxtum og að allar aðrar forsendur séu óbreyttar þá breytist afkoma og eigið fé um 97 m.kr. eftir skatta. (2015; 102 m.kr.). Fjáreignir og skuldir félagsins með fasta vexti eru ekki næmar fyrir breytingum á vöxtum.

Gjaldmiðlaáhætta:

Félagið ber stærstu áhættu gagnvart EUR, USD, og DKK. Gengi hefur áhrif á rekstur erlendra dótturfélaga. Hluti af fjárfestingum félagsins er í erlendri mynt. Að minna marki hefur gengið áhrif á tekjur og rekstrargjöld félagsins. Í árslok 2016 voru engin (2015: 0%) af langtímalánum félagsins í erlendum gjaldmiðlum.

Eignir og skuldir félagsins í erlendri mynt miðað við gengi í lok árs má sjá í eftirfarandi töflu:

Eignir Skuldir
2016 2015 2016 2015
EUR 347 470 536 161
DKK 0 5 227 58
USD 9 99 765 716
Aðrir gjaldmiðlar 9 2 12 19
365 576 1.540 954

Efnahagsreikningur Símans hf. er ekki viðkvæmur gagnvart flökti á gengi gjaldmiðla. Næmnigreining á gengisáhættu metur áhrif flökts gengis gjaldmiðla á útistandandi fjármagnsliði miðað við gengi við lok núverandi tímabils. Gert er ráð fyrir að allar aðrar breytur séu fastar. Áhrifin að teknu tilliti til skatta á afkomu og eigið fé eru 95 m.kr. (2015: 3 m.kr) hækkun/lækkun fyrir hvert 1% í hækkun/lækkun á gengi krónunnar.

Lánsáhætta:

Lánsáhætta er hættan á fjárhagslegu tapi félagsins ef viðskiptamaður eða mótaðili í fjármálagerningi getur ekki staðið við umsamdar skuldbindingar sínar. Áhætta félagsins gagnvart lánsáhættu er takmörkuð við fjárhagslegar eignir listaðar á efnahagsreikningi auk vissra ábyrgða. Félagið fylgist reglulega með þróun þeirra eigna sem tengjast útlánaáhættu. Viðskipakröfur félagsins eru á hendur fjöldamörgum viðskiptavinum sem dreifast á margar starfsgreinar og landssvæði. Viðskiptakröfur eru ekki háðar fáum stórum viðskiptavinum.

Hámarksútlánaáhætta greinist þannig:

Mesta mögulega tap
2016 2015
Viðskiptakröfur 6.083 5.381
Handbært fé 3.667 4.071
Aðrar skammtímakröfur 247 219
Langtímakröfur 341 317
Ábyrgðir 19 26
10.357 10.014

Meirihluti viðskiptakrafna félagsins eru til greiðslu innan 90 daga. Samstæðan myndar niðurfærslu vegna áætlaðrar virðisrýrnunar viðskiptakrafna og annarra krafna. Niðurfærslan er í meginatriðum sérstök niðurfærsla vegna einstakra viðskiptamanna og sameiginleg niðurfærsla með tilliti til aldurs krafna, sem ekki hefur verið tengd einstökum viðskiptamönnum. Sameiginlega niðurfærslan er ákveðin með tilliti til innheimtusögu sambærilegra krafna.

Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2016

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

  1. Áhættustýring, frh.:
    Eftirfarandi tafla sýnir aldursdreifingu viðskiptakrafna sem komnar eru á gjalddaga að teknu tilliti til niðurfærslu.
Nafnverð kröfu Niðurfærsla
2016 2015 2016 2015
Ógjaldfallið 2.718 2.834 67 107
Gjaldfallið innan 30 daga 2.382 1.769 22 17
Gjaldfallið fyrir 31-60 dögum 250 220 47 41
Gjaldfallið fyrir 61-180 dögum 468 305 198 123
Gjaldfallið fyrir meira en 180 dögum 265 253 130 161
6.083 5.381 464 449

Lánsáhætta vegna viðskiptavina er lítil þar sem að viðskiptamenn félagins eru margir og ótengdir. Því telja stjórnendur félagsins ekki þörf á frekar varúðarfærslum umfram hefðbundnar niðurfærslur. Undir rekstrarkostnaði voru gjaldfærðar afskrifaðar kröfur að fjárhæð 114 m.kr. á árinu 2016 (2015: 136 m.kr.).

Lausafjáráhætta:
Lausafjáráhætta er áhættan á því að félagið lendi í erfiðleikum við að mæta fjárhagslegum skuldbindingum sínum í nánni framtíð. Félagið mætir þessari áhættu með því að gera áætlanir um greiðslur og tryggja nægjanlega varasjóði. Eftirfarandi tafla greinir skuldbindingar félagsins eftir gjalddögum þeirra. Taflan miðar við ónúvirtar greiðslur og að greitt sé á fyrsta samningsbundna greiðsludegi. Vegið meðaltal fastra vaxta er 4% (2015: 4%) og vegið meðaltal fljótandi vaxta er 7,03% í enda árs 2016 (2015: 7,8%).

31. desember 2016 Bókf. verð Innan árs 1-2 ár 2-5 ár >5 ár Samtals
Langtímálán 22.944 2.808 2.752 7.786 21.346 34.692
Viðskiptaskuldir 5.718 5.718 5.718
28.662 8.526 2.752 7.786 21.346 40.410
31. desember 2015 Bókf. verð Innan árs 1-2 ár 2-5 ár >5 ár Samtals
Langtímálán 24.155 3.012 2.797 7.688 23.698 37.195
Viðskiptaskuldir 4.870 4.870 4.870
29.025 7.882 2.797 7.688 23.698 42.065

Gangvirði:
Það er mat stjórnenda að ekki sé verulegur munur á bókfærðu verði fjáreigna og fjárskulda og gangvirði þeirra í reikningsskilunum.

  1. Ábyrgðir og önnur mál
    Félagið hefur lagt eignir að veði til að tryggja skuldbindingar vegna lána að fjárhæð 22.945 m.kr. (2015: 24.155 m.kr.) í árslok.

Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2016
Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

27. Rekstrarleigusamningar

Félagið hefur gert rekstrarleigusamninga sem ekki eru færðir í efnahagsreikning. Rekstrarleigusamningarnir eru vegna húsaleigu og bifreiða.

Rekstrarleigugreiðslur greinast þannig: 2016 2015
Innan árs 368 694
Eftir 1 - 5 ár 951 527
Meira en 5 ár 1.146 0
2.465 1.221

28. Óvissa

Félagið stendur í málarekstri vegna mála sem snúa að túlkunum á fjarskipta, fjölmiðla- og samkeppnislögum. Fjarskipti hf. (Vodafone) hafa stefnt félaginu til greiðslu skaðabóta vegna meints ólögmæts verðþrýstings. Nemur stefnufjárhæði í málinu ríflega niu hundruð milljónum króna. Inter, sem eru samtök aðila er veita internetþjónustu, hafa sent kröfu og krafist skaðabóta að fjárhæði allt að þremur milljörðum króna vegna meintra brota á samkeppnislögum. Félög innan samtakanna hafa í kjólfarið óskað eftir dómkvaðningu matsmanna. TSC ehf. hefur stefnt félaginu til greiðslu skaðabóta vegna meintra brota á ákvörðun samkeppnisráðs nr. 10/2015. Nemur stefnufjárhæðin rúmlega hundrað milljónum króna. Félagið hefur hafnað málatilbúnaði gagnaðila í öllum málunum og gagnstefnt Fjarskiptum hf.

Síminn og Vodafone hafa átt í ágreiningi í tengslum við dreifingu á sjónvarpsefni. Samkeppniseftirlitið og Póst- og fjarskiptastofnun hafa til meðferðar kvartanir Vodafone gegir Símanum vegna meintra brota á samkeppnis- og/eða fjölmiðlalögum. Félagið telur að háttsemi þess sé í fullu samræmi við ákvæði samkeppnis- og fjölmiðlalaga. Í desember 2015 samþykkti Sýslumaður á höfuðborgarsvæðinu kröfu félagsins um að lagt yrði lögbann á Vodafone vegna dreifingar á mynddefni með ólínulegum hætti. Félagið höfðaði í kjólfarið staðfestingarmál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

Þrátt fyrir að óvissa sé um niðurstöður þessara mála er það mat stjórnenda að ekki komi til verulegra fjárútláta vegna þeirra. Í þeim tilvikum sem talið er að félagið geti þurft að greiða bætur vegna málareksturs á hendur þess er sá kostnaður áætlaður af stjórnendum félagsins og færður í reikningsskil þess.

29. Breytingar á samstæðu

Félagið seldi í lok júní allan hlut sinn í tveimur af dótturfélögum sínum, Staka automation ehf. og Talenta ehf. Söluhagnaður af viðskiptunum nam 189 m.kr sem tekjufærður er í rekstrarreikningi félagsins. Áhrif sölunnar á efnahagsreikning félagsins eru óveruleg.

30. Tengdir aðilar

Hluthafar sem hafa veruleg áhrif á starfsemi samstæðunnar, stjórnendur og stjórnarmenn og nánir fjölskyldumeðlimir þeirra og félög sem þeir ráða yfir teljast til tengdra aðila. Viðskiptum milli félaga sem innifalin eru í samstæðureikningi hefur verið eytt út í samstæðureikningi félagsins.

Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2016

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

30. Tengdir aðilar, frh:

Laun og hlunnindi til stjórnar og stjórnenda félagsins vegna starfa fyrir félög í samstæðunni og eignarhlutir í félaginu greinast þannig:

Fyrir árið 2016: Laun og hlunnindi Mótframlag í lífeyrissjóð Eignarhlutur beinn/óbeinn
Laun og hlunnindi stjórnar og forstjóra
Sigríður Hrólfsdóttir, stjórnarformaður 10,7 0,9 0,1
Heiðrún Jónsdóttir, varaformaður 6,1 0,6 0,1
Stefán Árni Auðólfsson, stjórnarmaður 4,7 0,4 0,1
Bertrand B. Kan, stjórnarmaður 3,2 0,3 31,2
Birgir S. Bjarnason, stjórnarmaður 3,8 0,3 -
Sigurður Þórðarson, endurskoðunarnefnd 2,1 0,0 -
Ingimundur Sigurpálsson, fyrverandi varaformaður 1,3 0,1 -
Helgi Magnússon, fyrverandi stjórnarmaður 0,9 0,1 -
Orri Hauksson, forstjóri 42,9 4,2 46,5
75,7 6,9 78,0

Aðrir framkvæmdastjórar innan samstæðunnar, samtals 6 aðilar, fengu greiddar 177,5 m.kr. í laun og aðrar launatengdar greiðslur. Þeir áttu samtals 32,8 m.kr. hluti í félaginu í árslok 2016. Forstjóri og framkvæmdastjórar Símans eru þátttakendur í kaupréttarsamningum sem gerðir voru við starfsmenn á árinu 2015. Sjá skýringu 13 um kaupréttarsamninga.

Fyrir árið 2015:

Laun og hlunnindi stjórnar og forstjóra
Sigríður Hrólfsdóttir, stjórnarformaður 10,8 0,9 0,1
Ingimundur Sigurpálsson, varaformaður 6,3 0,5 -
Heiðrún Jónsdóttir, stjórnarmaður 4,5 0,5 0,1
Helgi Magnússon, stjórnarmaður 4,3 0,3 -
Stefán Árni Auðólfsson, stjórnarmaður 4,2 0,3 0,1
Sigurður Þórðarson, endurskoðunarnefnd 1,8 0,0 -
Orri Hauksson, forstjóri 40,2 3,7 45,7
72,1 6,2 46,0

Aðrir framkvæmdastjórar innan samstæðunnar, samtals 6 aðilar, fengu greiddar 157,6 m.kr. í laun og aðrar launatengdar greiðslur. Þeir áttu 32,6 m.kr. hluti í félaginu í árslok 2015.

31. Þóknun til endurskoðenda

Þóknun til endurskoðenda samstæðunnar sundurliðast þannig: 2016 2015
Endurskoðun ársreiknings og könnun árshlutareiknings
KPMG Íslandi 19 16
Deloitte Íslandi - 11
Deloitte Danmörku 1 1
20 28
Önnur þóknun til endurskoðunarfyrirtækja
KPMG Íslandi 4 1
Deloitte Íslandi 1 9
5 10
Þóknun til endurskoðenda samstæðunnar samtals 25 38

Síminn hf. - Ársreikningar samstæðu 2016

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

32. Atburðir eftir reikningsskiladag

Engir atburðir hafa átt sér stað eftir lok reikningsskiladags sem krefjast lagfæringar eða breytingar á ársreikningi.

33. Mikilvægar reikningsskilaðferðir

33.1. Samstæða

Ársreikningur samstæðunnar tekur til ársreiknings móðurfélagsins og dótturfélaga þess. Dótturfélög eru þau félög þar sem samstæðan fer með yfirráð. Yfirráð grundvallast af því hvort fjárfestir hefur ákvörðunarvald yfir fjárfestingunni, ber áhættu eða hefur réttinn til að njóta breytilegs ávinnings vegna þátttöku í fjárfestingunni og getur með ákvörðunarvaldi haft áhrif á ávinning sinn af fjárfestingunni.

Rekstrarniðurstaða keyptra eða seldra dótturfélaga er meðtalin í samstæðurekstrarreikningi frá og með kaupdegi eða fram að söludegi eftir því sem við á. Ef við á eru gerðar leiðréttingar á reikningsskilum dótturfélaga til samræmis við reikningsskilaðferðir samstæðunnar.

Meðal markmiða samstæðureikningsskilanna er að birta einungis tekjur, gjöld, eignir og skuldir samstæðunnar út á við og er því viðskiptum innan hennar eytt út við gerð reikningsskilanna.

33.2. Sameining félaga

Kaup á dótturfélögum eru færð samkvæmt kaupaðferð en í henni felst að eignir, skuldir og eiginfjárgerningar útgefnir af samstæðunni, sem látin eru í skiptum fyrir yfirráð í keyptu félagi, eru metnar til gangvirðis á kaupdegi. Viðskiptakostnaður tengdur kaupunum er færður í rekstrarreikningi á því tímabili sem hann fellur til.

Ef kaupin fela í sér óvissa greiðslu er eignin eða skuldin sem tengist kaupunum metin á gangvirði á kaupdegi og hluti kaupverðsins sem er umfram gangvirði eignarhluta samstæðunnar í eignum, skuldum og óvissum skuldum félaga á kaupdegi er færður sem viðskiptavild. Síðari breytingar á gangvirði slíkra eigna og skulda eru færðar til jöfnunar á kostnaði tengdum kaupunum þar sem þær uppfylla skilyrði um leiðréttingu á tímabilinu (sjá hér að neðan). Allar aðrar síðari breytingar á gangvirði óvissra eigna og skulda eru færðar í samræmi við viðeigandi IFRS staðal.

Matstímabilið er frá kaupdegi til þess dags er félagið hefur fengið fullnægjandi uppfýsingar um aðstæður á kaupdegi, að hámarki 1 ár.

33.3. Eignarhlutir í hlutdeildarfélögum

Hlutdeildarfélög eru félög þar sem samstæðan er í aðstöðu til að hafa veruleg áhrif á stjórnun þeirra og eru hvorki dótturfélög né félög í samrekstri. Veruleg áhrif eru til staðar þegar samstæðan tekur þátt í ákvörðunum um fjármál og rekstur hlutdeildarfélaga.

Gerð er grein fyrir eignarhluta í hlutdeildarfélögum með hlutdeildaraðferð. Samkvæmt hlutdeildaraðferðinni eru eignarhlutar í hlutdeildarfélögum færðir í samstæðureikningi á kostnaðarverði að teknu tilliti til hlutdeildar í rekstri og virðisrýrnunar einstakra fjárfestinga. Tap hlutdeildarfélaga umfram hlutdeild samstæðunnar er aðeins gjaldfært hafi samstæðan gengist í ábyrgð eða stofnað til skuldbindinga fyrir þeirra hónd.

Viðskiptavild er sá hluti kaupverðsins sem er umfram gangvirði eignarhluta samstæðunnar í eignum, skuldum og óvissum skuldum hlutdeildarfélaga á kaupdegi. Viðskiptavildin er hluti af bókfærðu verði fjárfestingarinnar í samstæðunni og er metin með tilliti til virðisrýrnunar. Ef kaupverð reynist lægra en gangvirði eigna, skulda og óvissra skulda myndast neikvæð viðskiptavild sem er tekjufærð á kaupári.

Hagnaður eða tap af viðskiptum samstæðunnar í hlutdeildarfélagi er fært til samræmis við hlutdeild samstæðunnar í hlutdeildarfélaginu.

Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2016

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

33.4. Viðskiptavild

Viðskiptavild sem myndast við sameiningu er færð til eignar þann dag sem félagið nær yfirráðum í keyptu félagi (á kaupdegi). Viðskiptavild er mismunur á kaupverði dótturfélags og hlutdeildar í hreinni eign þess eftir að eignir og skuldir hafa verið metnar til gangvirðis á kaupdegi. Viðskiptavildin er færð í starfsrækslugjaldmiðli keyptu einingarinnar og uppreiknuð miðað við uppgjörsgengi í lok uppgjörstímabils.

Viðskiptavild er ekki afskrifuð heldur metin árlega með tilliti til virðisrýrnunar eða oftar ef vísbending um virðisrýrnun er til staðar. Við framkvæmd virðisrýrnunarprófs er viðskiptavildinni skipt niður á fjárskapandi einingar. Þær fjárskapandi einingar sem viðskiptavildinni hefur verið úthlutað á eru prófaðar með tilliti til virðisrýrnunar og ef bökfært verð er hærra en virði þeirra hefur virðisrýrnun átt sér stað. Hafí virðisrýrnun átt sér stað er viðskiptavild fyrst færð niður og síðar aðrar eignir sem tilheyra viðkomandi fjárskapandi einingu. Öheimilt er að bakfæra áður færða virðisrýrnun viðskiptavildar á síðari tímabilum.

Við sölu á dótturfélagi er fjárhæði viðskiptavildar, sem rekja má til þess, reiknuð inn í söluhagnað eða sölutap sem birt er í rekstrarreikningi.

Reglur félagsins um viðskiptavild í hlutdeildarfélögum þess, má sjá í lið 33.3 hér að framan.

33.5. Tekjur

Tekjur eru skráðar við afhendingu vöru eða þegar þjónustan hefur verið veitt, unnt er að meta fjárhæði teknanna með áreiðanlegum hætti og meginhleti áhættu og ávinnings flyst til kaupanda. Tekjur eru færðar á gangvirði móttekinnar eða innheimtanlegrar greiðslu að frádregnum afsláttum og vöruskilum.

Megintekjuflokkar félagsins eru eftirfarandi: samtengingar- og reikitekjur, mánaðargjöld, stofngjöld, línuleigur, útseld vinna, auglýsingar í sjónvarpi og notendabúnaður. Þjónusta og búnaður eru seld saman í pökkum eða sitt í hvoru lagi.

Mánaðargjöld eru tekjufærð miðað við áskriftartímabil en tekjur vegna umferðar eru færðar miðað við raunverulega notkun viðskiptavina. Tekjum vegna fyrirframgreiddrar þjónustu er frestað ef viðskiptavinur nýtir ekki þá þjónustu sem hann hefur greitt fyrir.

Tekjur af vörusölu eru færðar í rekstrarreikning þegar verulegur hluti áhættu og eignarhalds flyst til kaupanda.

Auglýsingatekjur í sjónvarpi eru færðar í rekstrarreikning þegar auglýsingar eru birtar. Tekjufærsla þeirra er gerð við fyrstu sýningu þrátt fyrir að sama auglýsing geti verið birt oftar en einu sinni vegna endursýninga á sjónvarpsbáttum. Sama regla gildir um kostun einstakra sjónvarpsbátta.

Tekjur af veittri þjónustu eru færðar í rekstrarreikning í hlutfalli við stöðu verks á uppgjörsdegi. Staða verks er metin með hliðsjón af vinnu sem lokið er.

33.6. Leigusamningar

Leigusamningar eru flokkaðir sem fjármögnunarleigusamningar þegar samningsskilmálar gera ráð fyrir að verulegur hluti áhættunnar og ávinningur af eignarréttindum er framseldur leigutaka. Aðrir leigusamningar eru flokkaðir sem rekstrarleigusamningar. Félagið er ekki með neina fjármögnunarleigusamninga.

Greiðslur af rekstrarleigusamningum eru gjaldfærðar línulega á leigutímanum nema önnur kerfisbundin aðferð endurspegli betur ávinning af notkun eignarinnar. Óvissar leigugreiðslur vegna rekstrarleigusamninga eru gjaldfærðar á því tímabili sem þær falla til.

33.7. Erlendir gjaldmiðlar

Ársreikningar félaga innan samstæðunnar eru gerðir í þeim gjaldmiðli sem stærstur hluti starfseminnar heyrir undir, þ.e. starfsrækslugjaldmiðli. Við gerð ársreiknings samstæðu eru ársreikningar erlendra dótturfélaga umreiknaðir í íslenskar krónur sem er starfsrækslugjaldmiðill og framsetningargjaldmiðill móðurfélagsins.

Við gerð reikningsskila hvers félags innan samstæðunnar eru viðskipti í öðrum gjaldmiðlum en starfsrækslugjaldmiðli færð á gengi hvers viðskiptadags. Peningalegar eignir og skuldir eru færðar miðað við skráð gengi á reikningsskiladegi. Efnislegar eignir og skuldir metnar á kostnaðarverði eru færðar á upphaflegu skráðu gengi.

Siminn hf. - Ársreikningar samstæðu 2016

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

33.7. Erlendir gjaldmiðlar, frh:

Við gerð samstæðuársreiknings eru eignir og skuldir erlendra félaga umreiknaðar á skráðu gengi reikningsskiladags. Tekjur og gjöld eru umreiknuð á meðalgengi ársins.

Við sölu erlendrar rekstrareiningar er uppsafnaður gengismunur tengdur rekstrareiningunni í samstæðunni færður af eigin fé í rekstrarreikning. Þýðingarmunur sem búið var að ráðstafa til minnhluta er bakfærður en ekki gjaldfærður í rekstrarreikning.

Viðskiptavild og gangvirðisbreytingar vegna kaupa á erlendri starfsemi eru færðar á skráðu gengi reikningsskiladags.

33.8. Skattamál

Gjaldfærður tekjuskattur samanstendur af tekjuskatti til greiðslu og frestuðum tekjuskatti.

Tekjuskattur til greiðslu

Tekjuskattur til greiðslu er tekjuskattur sem áætlað er að komi til greiðslu á næsta ári vegna skattskylds hagnaðar ársins auk leiðréttinga á tekjuskatti til greiðslu vegna fyrri ára. Skattskyldur hagnaður getur verið annar en reikningshaldslegur hagnaður. Reiknaður tekjuskattur miðast við gildandi skatthlutfall á reikningsskiladegi á hverju skattasvæði.

Frestaður tekjuskattur

Frestaður tekjuskattur stafar af tímabundnum mismuni efnahagsliða í skattuppgöri annars vegar og ársreikningi hins vegar þar sem tekjuskattstofn félagsins er miðaður við aðrar forsendur en reikningsskil þess. Tekjuskattsskuldbinding er uppreiknuð fyrir allan tímabundin mismun. Tekjuskattseign er uppreiknuð að því marki sem metið er að nýtist á móti skattskyldum hagnaði í framtíðinni. Frestaður tekjuskattur er ekki færður vegna viðskiptavildar sem ekki er skattalega frádráttarbær.

Tekjuskattseign er metin á reikningsskiladegi og er einungis færð að því marki sem líklegt er að hún nýtist á móti skattskyldum hagnaði í framtíðinni.

Frestaður tekjuskattur miðast við gildandi skatthlutfall á reikningsskiladegi.

Tekjuskattseign og tekjuskattsskuldbindingu er jafnað saman innan samstæðunnar þegar lagalegur réttur er til þess, þau varða tekjuskatt sem lagður er á af sömu yfirvöldum á sama fyrirtæki eða mismunandi fyrirtæki sem eru samsköttuð og gert er ráð fyrir að muni greiða skatta sameiginlega.

Skattar tímabilsins

Frestaður skattur er gjaldfærður í rekstrarreikningi nema þegar hann tengist liðum meðal eigin fjár en þá er hann einnig færður meðal eigin fjár.

33.9. Hagnaður á hlut

Í ársreikningnum er sýndur grunnhagnaður á hlut og bynntur hagnaður á hlut fyrir almenna hluti í félaginu. Grunnhagnaður á hlut er reiknaður sem hlutfall hagnaðar, sem ráðstafað er til hluthafa í móðurfélaginu, og vegins meðalfjölda virkra hluta á árinu. Þynntur hagnaður á hlut er reiknaður með því að leiðrétta meðalfjölda virkra hluta vegna mögulegrara þynningar vegna hluta sem gæti þurft að gefa út í samræmi við kaupréttarsamninga starfsmanna.

33.10. Varanlegir rekstrarfjármunir

Eignir eru skráðar meðal varanlegra rekstrarfjármuna þegar líklegt er að hagrænn ávinningur tengdur eigninni muni nýtast samstæðunni og hægt er að meta kostnað vegna eignarinnar með áreiðanlegum hætti.

Varanlegir rekstrarfjármunir eru færðir á upphaflegu kostnaðarverði að frádregnum uppsöfnuðum afskriftum og virðisrýrnun.

Afskriftir eru færðar á kerfisbundinn hátt á áætluðum nýtingartíma eignarinnar að teknu tilliti til vænts hrakvirðis. Afskriftaraðferð, áætlaður nýtingartími og hrakvirði er endurmetið að minnsta kosti árlega.

Hagnaður eða tap vegna sölu varanlegra rekstrarfjármuna er mismunur söluverðs og bókfærðs verðs eigna á söludegi og er fært í rekstrarreikning.

Siminn hf. - Ársreikningar samstæðu 2016
31
Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

33.11. Óefnislegar eignir

Keyptar óefnislegar eignir

Óefnislegar eignir eru færðar á kostnaðarverði að frádregnum uppsöfnuðum afskriftum og virðisrýrnun. Afskriftir eru færðar á kerfisbundinn hátt á áætlaðum nýtingartíma eignarinnar. Áætlaður nýtingartími er endurmetinn í lok hvers reikningsskilatímabils.

Óefnislegar eignir sem myndast við sameiningu félaga

Óefnislegar eignir sem myndast í reikningsskilum við sameiningu félaga eru aðeins færðar ef þær eru aðgreinanlegar frá viðskiptavild. Við upphaflega skráningu eru þær færðar á kostnaðarverði á kaupdegi en við síðara mat eru þær færðar á kostnaðarverði að frádregnum uppsöfnuðum afskriftum og virðisrýrnun.

33.12. Virðisrýrnun af öðrum eignum en viðskiptavild

Á reikningsskiladegi er bókfært verð efnislegra og óefnislegra eigna yfirfarið í þeim tilgangi að kanna hvort vísbending sé um virðisrýrnun. Sé slik vísbending til staðar er endurheimtanlegt virði eignarinnar metið. Endurheimtanlegt virði fjárskapandi einingar sem eignin fellur undir er metið þegar ekki er hægt að meta endurheimtanlegt virði einstakra eigna.

Óefnislegar eignir sem hafa óendanlegan líftíma eru yfirfarnar í þeim tilgangi að kanna hvort vísbending sé um virðisrýrnun.

Endurheimtanlegt virði er annað hvort gangvirði að frádregnum áætluðum sólukostnaði eða nýtingarvirði eignar, hvort sem hærra reynist. Nýtingarvirði er áætlað framtíðarfjárstreymi sem er núvirt með vöxtum fyrir skatta þar sem vextirnir endurspegla mat markaðarins á tímavirði peninga hverju sinni og þá áhættu sem fylgir eigninni.

Sé endurheimtanlegt virði eignar metið lægra en bókfært verð er virði hennar fært niður í endurheimtanlegt virði. Tap vegna virðisrýrnunar er fært í rekstrarreikning en hafi eignin verið endurmetin kemur virðisrýrnunin fyrst til lækkunar á áður færðu endurmati.

Ef tap vegna virðisrýrnunar snýst við er bókfært verð eignarinnar hækkað aftur en þó aldrei umfram bókfært verð fyrir virðisrýrnun að teknu tilliti til afskrifta. Bakfærsla virðisrýrnunar færist í rekstrarreikning nema viðkomandi eign hafi áður verið endurmetin, en þá er hækkunin færð sem endurmatshækkun.

33.13. Birgðir

Birgðir eru metnar á kostnaðarverði eða söluverði hvort sem lægra reynist, að teknu tilliti til úreltra og gallaðra vara. Kostnaðarverð birgða samanstendur af kostnaði við öflun þeirra ásamt öðrum kostnaði sem fellur til við að koma birgðunum í söluhæft ástand. Söluverð er áætlað söluverð að frádregnum áætluðum sólukostnaði.

33.14. Skuldbindingar

Skuldbinding er færð þegar samstæðan ber lagalega eða líklega greiðsluskyldu vegna líðinna atburða og hægt er að meta fjárhæð hennar með áreiðanlegum hætti. Fjárhæð skuldbindingar er byggð á besta mögulega mati á skuldinni sem er fyrirliggjandi á reikningsskiladegi. Ef skuldbindingin er metin út frá áætluðu framtíðarsjóðstreymi er skuldbinding færð miðað við núvirt áætlað sjóðstreymi.

Þegar virði skuldbindingarinnar er endurheimtanlegt frá þriðja aðila er fjárhæð hennar færð til eignar.

33.15. Fjáreignir

Fjáreignum er skipt í eftirfarandi flokka: fjáreignir til sölu (e. available for sale), og lán og kröfur (e. loans and receivables). Flokkunin er ákveðin við upphaflega skráningu og fer eftir eði og tilgangi fjáreignarinnar. Öll almenn viðskipti með fjáreignir eru skráð á viðskiptadegi. Með almennum viðskiptum er átt við kaup og sölu fjáreigna sem grundvallast af samningi eða markaðsvenjum um afhendingu eða móttöku fjáreigna innan tiltekins tíma.

Vaxtatekjur eru færðar miðað við virka vexti fyrir alla fjármálagerninga. Aðferð virkra vaxta felst í því að reiknað er endurgreiðsluvirði fjáreignar eða fjárskuldar og vaxtatekjum og vaxtagjöldum jafnað á líftímanum. Virkir vextir er sú ávöxtunarkrafa sem núvirðir áætlað sjóðstreymi eða tekjur yfir áætlaðan líftíma fjármálagernings, eða yfir styttra tímabil ef við á, þannig að það jafngildi bókfærðri fjárhæð fjáreignarinnar eða fjárskuldarinnar í efnahagsreikningi.

Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2016

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

33.15. Fjáreignir, frh:

Vaxtatekjur eru færðar miðað við virka vexti fyrir alla fjármálagerninga aðra en þá sem skilgreindir eru sem fjáreignir á gangvirði í gegnum rekstrarreikning.

Lán og kröfur

Viðskiptakröfur, lán og aðrar kröfur sem hafa fastar greiðslur og eru ekki skráðar á virkum markaði eru flokkaðar sem lán og kröfur. Lán og kröfur eru færðar á afskrifuðu kostnaðarverði miðað við virka vexti að frádreginni virðisrýrnun. Vaxtatekjur af lánum og kröfum eru færðar miðað við virka vexti nema þegar vaxtatekjur eru óverulegar.

Virðisrýrnun eigna

Á reikningsskiladegi er bókfært verð fjáreigna metið í þeim tilgangi að kanna hvort vísbending sé um virðisrýrnun. Virðisrýrnun hefur orðið ef vænt framtiðarsjóðstremi miðað við upphaflega virka vexti er lægra en bókfært verð. Ef virðisrýrnun á ekki lengur við er hún bakfærð í rekstrarreikning, þó aldrei umfram bókfært verð fyrir virðisrýrnun að teknu tilliti til afskrifta. Ákveðin tegund fjáreigna eins og viðskiptakröfur eru færðar á nafnverði að teknu tilliti til niðurfærslu. Niðurfærslan er ekki endanleg afskrift heldur er myndáður mótreikningur til að mæta hugsanlegu tapi sem kann að myndast í framtiðinni. Eignasafn fjáreigna er metið til virðisrýrnnar ef einstakar eignir eru þess eðlis að þær verði ekki metnar hver fyrir sig. Þegar talið er að fjáreign til sölu hafi orðið fyrir virðisrýrnun er áður færður hagnaður eða tap meðal eigin fjár fært í rekstrarreikning.

Afskráning fjáreigna

Félagið afskráir fjáreignir aðeins þegar samningsbundinn réttur til framtiðarsjóðstreymis af fjáreigninni er ekki lengur til staðar eða þegar áhættan eða ávinningurinn af fjáreigninni flyst yfir á annað félag.

33.16. Fjárskuldir

Fjárskuldir

Fjárskuldir eru flokkaðar sem aðrar fjárskuldir.

Aðrar fjárskuldir

Aðrar fjárskuldir, þar á meðal skuldir við fjármálastofnanir, viðskiptaskuldir og aðrar fjárskuldir eru upphaflega skráðar á gangvirði að frádregnum viðskiptakostnaði. Við síðara mat eru þær færðar á afskrifuðu kostnaðarverði miðað við aðferð virkra vaxta.

Afskráning fjárskulda

Samstæðan afskráir fjárskuldir eingöngu þegar skuldbinding vegna þeirra er ekki lengur til staðar. Hagnaður eða tap vegna afskráningar er fært í rekstrarreikning.

33.17. Nýir reikningsskilastaðlar og túlkanir á þeim sem hafa ekki verið innleiddir

Nokkrir nýir alþjóðlegir reikningsskilastaðlar og endurbætur á stöðlum gilda fyrir reikningsár sem hefjast eftir 1. janúar 2016 og er heimilt að beita fyrir gildistöku þeirra. Samstæðan hefur ekki nýtt heimildirnar við gerð þessa samstæðureiknings. Stjórnendur telja að innleiðing á þessum stöðlum muni ekki hafi veruleg áhrif á samstæðureikninginn að undanskildum áhrifum vegna innleiðingar IFRS 16 sem tekur gildi fyrir reikningsár sem hefjast 1. janúar 2019. Ekki hefur verið lagt mat á möguleg áhrif af innleiðingu þess staðals en hann mun gilda um reikningsskil félagsins verði hann staðfestur af Evrópusambandinu.

Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2016

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Stjórnarháttaryfirlýsing

Umgjörð um stjórnarhætti

Stjórnarhættir hjá Símanum eru skilgreindir sem umgjörð utan um umsýslu og stjórnun fyrirtækisins og tæki til samskipta milli stjórnenda fyrirtækisins, félagsstjórnar, hluthafa og annarra hagsmunaaðila.

Stjórnarhættir Símans eru markaðir af lögum nr. 2/1995 um hlutafélög, samþykktum félagsins, starfsreglum stjórnar og síðareglum félagsins auk þess sem félagið hefur innleitt samkeppnisréttaráætlun í starfsemi sína sem er mikilvægur hluti af stjórnarháttum þess.

Stjórnarhættirnir taka mið af leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja sem gefnar eru út af Viðskiptaráði Íslands, Nasdaq OMX Iceland hf. og Samtökum atvinnulifsins, 5. útgáfa 2015. Leiðbeiningar um um stjórnarhætti fyrirtækja má m.a. finna á vefsíðu Viðskiptaráðs Íslands, www.vi.is. Leiðbeiningum er fylgt með þeirri undantekningu að stjórn félagsins hefur ekki talið ástæðu til þess að setja á laggirnar tilnefningarnefnd.

Síminn leggur áherslu á góða stjórnarhætti og var útnefnt fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnarháttum árið 2015 af rannsóknarmiðstöð góða stjórnarhætti.

Hluthafafundur

Æðsta vald í málefnum félagsins er í höndum hluthafa þess. Aðalfund félagsins skal halda fyrir lok maí ár hvert. Hlutabréf félagsins eru rafræn og skráð hjá Nasdaq verðbréfamiðstöð hf., sem jafnframt hýsir hlutaskrána. Hlutaskráin er aðgengileg hluthöfum á skrifstofu félagsins.

Samþykktir

Samþykktir eru hluti af stofnskjólum hlutafélaga. Samþykktir Símans geyma m.a. reglur um tilgang félagsins, hlutafé, hluthafafundi, stjórn, ársreikninga og endurskoðun.

Stjórn félagsins

Stjórn félagsins er skipuð þeim Sigríði Hrólfsdóttur formanni, Heiðrúnu Jónsdóttur, varaformanni stjórnar, Stefáni Árna Auðólfssyni, Bertrand B. Kan og Birgi S. Bjarnasyni. Tveir síðastnefndu stjórnarmennirnir voru fyrst kjörnir í stjórn félagsins á aðalfundi í mars 2016 en aðrir stjórnarmenn voru fyrst kjörnir í stjórn á árinu 2013. Af samsetningu stjórnar má sjá að Síminn uppfyllir skilyrði hlutafélagalaga um kynjakvóta. Stjórn telur að samsetning hennar samræmist starfsemi og stefnu félagsins þannig að henni sé kleift að sinna málefnum félagsins af skilvirkni og heilindum.

Stjórn fer með æðsta vald í málefnum félagsins á milli hluthafafunda með þeim takmörkunum sem leiða af lögum, samþykktum félagsins og starfsreglum stjórnar. Stjórnarformaður hefur tilteknu hlutverki að gegna sem mælt er fyrir um í starfsreglum stjórnar Símans og gert er ráð fyrir að hann sinni í samræmi við leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja.

Undirnefndir Símans

Hjá Símanum starfa tvær undirnefndir stjórnar, endurskoðunarnefnd og starfskjaranefnd. Tilnefningarnefnd er ekki starfandi í félaginu.

Endurskoðunarnefnd

Hlutverk endurskoðunarnefndar er að tryggja áreiðanleika fjármálauplýsinga til hluthafa, hafa umsjón með innri endurskoðun félagsins og bókhaldskerfi, svo og að leggja mat á vinnu fjármálastjórnenda fyrirtækisins og kjörins endurskoðanda. Hlutverk nefndarinnar nær til þeirra verkefna sem kveðið er á um í Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja, sem gefnar eru út af Viðskiptaráði, Kauphóllinni (OMX) og Samtökum atvinnulifsins. Endurskoðunarnefnd er skipuð þremur nefndarmönnum að lágmarki. Nefndarmenn skulu búa yfir þeirri reynslu og þekkingu sem nauðsynleg er til þess að gegna störfum sínum.

Endurskoðunarnefnd skipa Sigurður Þórðarson, formaður, Stefán Árni Auðólfsson og Birgir S. Bjarnason. Endurskoðunarnefnd hélt 9 fundi árið 2016 og var mæting góð.

Starfsreglur endurskoðunarnefndar má nálgast á heimasiðu félagsins www.siminn.is/siminn/fjarfestar/stjornarhaettir/undirnefndir/

Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2016


Stjórnarháttaryfirlýsing

Starfskjaranefnd

Hlutverk starfskjaranefndar er að tryggja að starfskjör yfirstjörnenda taki mið af afkomu fyrirtækisins til langs tíma, frammistöðu þeirra sjálfra og hagsmunum hluthafa. Framkvæmdastjóri er ábyrgur fyrir starfskjörum annarra og ber honum að tryggja að starfskjör séu ávallt í samræmi við stefnu starfskjaranefndar. Stefna starfskjaranefndar er að tryggja að félaginu sé jafnan kleift að laða til sín og halda í starfi hæfum stjórnendum. Í þessu skyni ber nefndinni að ráðfæra sig við ytri ráðgjafa um starfskjör í sambærilegum fyrirtækjum þegar þörf krefur. Hlutverki nefndarinnar er ætlað að ná til þeirra verkefna sem kveðið er á um í Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja, 5. útgáfa 2015.

Starfskjaranefnd skipa Sigríður Hrólfsdóttir og Heiðrún Jónsdóttir. Starfskjaranefnd hélt 4 fundi árið 2016 og var mæting góð.

Núgildandi starfskjarastefna var samþykkt á aðalfundi félagsins 2016. Starfskjarastefnu félagsins má nálgast á heimasiðu félagsins www.siminn.is/siminn/fjarfestar/stjornarhaettir/undirnefndir/ Starfsreglur starfskjaranefndar má nálgast á heimasiðu félagsins www.siminn.is/siminn/fjarfestar/stjornarhaettir/undirnefndir/

Árangursmat stjórnar

Stjórn félagsins framkvæmdi formlegt árangursmat á störfum sínum 31. janúar 2017. Árangursmati er ætlað að bæta vinnubrögð og auka skilvirkni stjórnarinnar og meta störf undirnefnda stjórnar. Stjórn taldi að allir stjórnarmenn hefðu unnið störf sín af áhuga og samviskusemi. Alls voru haldnir 17 stjórnarfundir árið 2016 og var mæting á fundi góð og tóku allir stjórnarmenn virkan þátt í störfum stjórnarinnar. Stjórn fór yfir það hvernig henni tókst að uppfylla fjárhags- og starfsáætlun fyrir liðið starfsár.

Samskipti hluthafa og stjórnar

Samskipti stjórnar við hluthafa eiga að einkennast af hreinskilni og vera skýr og samræmd. Beini hluthafar fyrirspurnum til stjórnar félagsins skal stjórn vera tilkynnt um þær og hafa yfirumsjón með viðbrögðum félagsins við þeim.

Forstjóri Símans

Orri Hauksson var ráðinn forstjóri Skipta hf. á árinu 2013 og tók jafnframt við sem forstjóri stærsta dótturfélagsins, Símans hf. á árinu 2014. Sameining Símans og Skipta var samþykkt á aðalfundi 16. apríl 2015. Forstjóri annast daglegan rekstur félagsins og skal í þeim efnum fara eftir þeirri stefnu og fyrirmælum sem stjórn hefur gefið. Forstjóri skal ávallt starfa af heilindum með hagsmuni félagsins að leiðarljósi.

Í framkvæmdastjórn Símans sitja auk forstjóra framkvæmdastjórar þeirra fjögurra sviða sem félagið hefur á að skipa.

Innra eftirlit og áhættustýring

Á fundi stjórnar þann 23. september 2016 var áhættustefna félagsins uppfærð.

Stefna félagsins um áhættustýringu hefur þann tilgang að viðhalda yfirsýn og viðeigandi stýringu áhættu í starfsemi Símans og dótturfélaga. Hjá hverju félagi innan samstæðunnar skal starfa öryggisráð eða sambærilegur vettvangur sem sér til þess að stefnunni sé framfylgt og að starfrækt sé stjórnskipulag áhættustýringar og samræmt áhættustýringarferli sem hentar umfangi viðkomandi fyrirtækis. Fyrirtækin skulu greina og meðhöndla áhættu í starfsemi sinni með reglubundnu áhættumati, markvissu eftirliti og aðgerðum. Stjórn og stjórnendur stýra áhættu félagsins í samræmi við áhættuvilja félagsins sem inniheldur áhættumörk sem félagið vill halda sig innan.

Gildi félagsins

Gildi Símans eru skapandi, áreiðanleg og lipur.

Samfélagsleg ábyrgð

Síminn er einn af stofnfélögum í Festu, miðstöð um samfélagsábyrgð, frá árinu 2011 og á fulltrúa í stjórn. Áherslur Símans í samfélagsábyrgð eru örugg og fagleg þjónusta, mannaúður, umhverfisvernd og samfélagsbátttaka. Unnið í samræmi við þessar áherslur á grundvelli tiu viðmiða UN Global Compact og staðalinn ISO 26000 um samfélagsábyrgð. Gerð er árleg framvinduskýrsla um aðgerðir og árangur í samfélagsábyrgð.

Síðareglur

Félagið vinnur eftir síðareglum sem síðast voru endurskoðaðar og samþykktar í febrúar 2016.

Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2016


Ársfjörðungsyfirlit

Ársfjörðungsyfirlit samstæðunnar er óendurskoðað. Rekstur samstæðunnar greinist þannig á ársfjörðunga:

| | 1 F
2016 | 2 F
2016 | 3 F
2016 | 4 F
2016 | Samtals |
| --- | --- | --- | --- | --- | --- |
| Sala | 6.784 | 7.351 | 7.129 | 7.773 | 29.037 |
| Kostnaðarverð sólú | ( 3.665) | ( 3.953) | ( 3.467) | ( 4.302) | ( 15.387) |
| Framlegð | 3.119 | 3.398 | 3.662 | 3.471 | 13.650 |
| Aðrar rekstrartekjur | 98 | 124 | 141 | 172 | 535 |
| Rekstrarkostnaður | ( 2.479) | ( 2.490) | ( 2.124) | ( 2.466) | ( 9.559) |
| Rekstrarhagnaður | 738 | 1.032 | 1.679 | 1.177 | 4.626 |
| Hrein fjármagnsgjöld | ( 296) | ( 163) | ( 269) | ( 370) | ( 1.098) |
| Áhrif hlutdeildarfélaga | 0 | 0 | 0 | ( 1) | ( 1) |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | 442 | 869 | 1.410 | 806 | 3.527 |
| Tekjuskattur | ( 132) | ( 153) | ( 282) | ( 205) | ( 772) |
| Hagnaður ársins | 310 | 716 | 1.128 | 601 | 2.755 |
| EBITDA | 1.605 | 1.954 | 2.583 | 2.103 | 8.245 |
| | 1 F
2015 | 2 F
2015 | 3 F
2015 | 4 F
2015 | Samtals |
| --- | --- | --- | --- | --- | --- |
| Sala | 7.014 | 7.373 | 7.517 | 7.964 | 29.868 |
| Kostnaðarverð sólú | ( 3.932) | ( 3.876) | ( 3.843) | ( 4.781) | ( 16.432) |
| Framlegð | 3.082 | 3.497 | 3.674 | 3.183 | 13.436 |
| Aðrar rekstrartekjur | 119 | 109 | 39 | 272 | 539 |
| Rekstrarkostnaður | ( 2.122) | ( 2.380) | ( 2.188) | ( 2.642) | ( 9.332) |
| Rekstrarhagnaður | 1.079 | 1.226 | 1.525 | 813 | 4.643 |
| Hrein fjármagnsgjöld | ( 123) | ( 474) | ( 425) | ( 265) | ( 1.287) |
| Áhrif hlutdeildarfélaga | 0 | ( 33) | 0 | ( 15) | ( 48) |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | 956 | 719 | 1.100 | 533 | 3.308 |
| Tekjuskattur | ( 164) | ( 187) | ( 228) | 146 | ( 433) |
| Hagnaður ársins | 792 | 532 | 872 | 679 | 2.875 |
| EBITDA | 1.961 | 2.062 | 2.365 | 1.654 | 8.042 |

Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2016

Fjörhæðir eru í milljónum króna