AI assistant
Síminn — AGM Information 2024
Mar 11, 2024
2203_rns_2024-03-11_d2fe5d79-6eac-4e3c-ab72-abcb7392e6e2.pdf
AGM Information
Open in viewerOpens in your device viewer
Aðalfundur Símans hf.
Verður haldinn fimmtudaginn 14. mars 2024 kl. 16:00 að Nauthóli við Nauthólsvík, Reykjavík.
Dagskrá
- Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu starfsári.
- Staðfesting ársreiknings samstæðu og móðurfélags fyrir liðið starfsár.
- Ákvörðun um greiðslu arðs.
- Kosning þriggja einstaklinga í tilnefningarnefnd.
- Kosning stjórnar félagsins.
- Kosning löggilts endurskoðanda eða endurskoðunarstofu.
- Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu félagsins.
- Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna félagsins fyrir störf þeirra sem og þóknun nefndarmanna í undirnefndum stjórnar og í tilnefningarnefnd.
- Tillaga um lækkun á hlutafé vegna eigin hluta og breytingu á samþykktum félagsins.
- Tillaga um að heimila félaginu kaup á eigin hlutabréfum skv. 55. gr. hlutafélagalaga.
- Önnur mál.
Tillaga er um breytingar á samþykktum félagsins vegna lækkunar hlutafjár sem varðar grein 4.1 í samþykktunum. Þá er lögð til breyting á viðauka við samþykktir sem tengist heimild til kaupa á eigin hlutum félagsins.
Aðrar upplýsingar
Nánari upplýsingar um aðgangsupplýsingar, þátttöku, skráningu og atkvæðagreiðslu er að finna á vefsíðu félagsins, https://www.siminn.is/fjarfestar/hluthafafundir.
Hluthafar sem eiga ekki kost á að sækja fundinn geta veitt öðrum skriflegt umboð eða greitt atkvæði skriflega. Þeim hluthöfum sem hyggjast nýta sér annan hvorn þessara kosta er bent á að kynna sér heimasíðu félagsins hvernig þeir skuli bera sig að. Þar er að finna leiðbeiningar um skráningu og form skjala og hvernig þeim skuli skilað til félagsins.
Upplýsingar fyrir hluthafa
Heildarfjöldi hluta í félaginu þann 11. mars 2024 er 2.775.000.000 hlutir og atkvæði jafnmörg. Þar af eru virk atkvæði 2.497.501.000.
Aðrar upplýsingar
Á vef félagsins, https://www.siminn.is/fjarfestar/hluthafafundir, er að finna allar frekari upplýsingar í tengslum við aðalfundinn, þ.m.t. dagskrá fundarins og tillögur stjórnar félagsins, ársreikning samstæðu félagsins og móðurfélags fyrir árið 2023 og umboðseyðublað auk upplýsinga um skjöl sem lögð verða fyrir fundinn.
Fundurinn verður haldinn að Nauthóli við Nauthólsvík, Reykjavík. Skráning á fundinn hefst klukkan 15.30 og verða atkvæðaseðlar og önnur gögn afhent á fundarstað frá þeim tíma. Skráningu lýkur klukkan 16.00 þegar fundur hefst.
Fundurinn fer fram á íslensku.
Reykjavík, 11. mars 2024
Stjórn Símans hf.