Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Síminn AGM Information 2023

Mar 6, 2023

2203_rns_2023-03-06_5c8219d9-df7e-480a-8130-f91938174d78.html

AGM Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

{# SEO P0-1: filing HTML is rendered server-side so Googlebot sees the full text without executing JS or following an iframe to a Disallow'd CDN path. The content has already been sanitized through filings.seo.sanitize_filing_html. #}

Síminn hf. - Framboð til stjórnar og í tilnefningarnefnd

Síminn hf. - Framboð til stjórnar og í tilnefningarnefnd

Aðalfundur Símans hf. verður haldinn fimmtudaginn 9. mars 2023 kl. 16:00 að Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík. Framboðsfrestur til stjórnar rann út þann 4. mars sl. kl. 16:00.

Framboð til stjórnar

Eftirtaldir einstaklingar hafa gefið kost á sér til setu í stjórn félagsins:

  • Arnar Þór Másson
  • Bjarni Þorvarðarson
  • Björk Viðarsdóttir
  • Jón Sigurðsson
  • Sigrún Ragna Ólafsdóttir

Er það mat stjórnar að framboðin séu gild sbr. 63. gr. a. hlutafélagalaga. Í samræmi við samþykktir félagsins skulu fimm stjórnarmenn kjörnir af aðalfundi á hverju ári og er því sjálfkjörið í stjórnina.

Framboð í tilnefningarnefnd

Eftirtaldir aðilar hafa verið tilnefndir til setu í tilnefningarnefnd:

  • Jensína Kristín Böðvarsdóttir
  • Steinunn Kristín Þórðardóttir
  • Eyjólfur Árni Rafnsson

Í samræmi við samþykktir félagsins skulu þrír nefndarmenn kjörnir af aðalfundi á hverju ári og er því sjálfkjörið í nefndina.

Upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar og tilnefningar í tilnefningarnefnd er að finna í skýrslu tilnefningarnefndar sem er að finna inn á heimasíðu Símans: https://www.siminn.is/fjarfestar/hluthafafundir.

Skráning á fundinn hefst klukkan 15.30 á fundardegi og verða atkvæðaseðlar og önnur gögn afhent á fundarstað frá þeim tíma. Skráningu lýkur klukkan 16.00 þegar fundur hefst.