AI assistant
Síminn — AGM Information 2022
Mar 7, 2022
2203_rns_2022-03-07_1318998b-11c9-436d-bd52-49e0327e26aa.pdf
AGM Information
Open in viewerOpens in your device viewer
Síminn
Rafrænn aðalfundur Símans hf.
Verður haldinn fimmtudaginn 10. mars 2022 kl. 16:00.
Dagskrá
- Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu starfsári.
- Staðfesting ársreiknings samstæðu og móðurfélags og tekin ákvörðun um hvernig fara skuli með hagnað eða tap félagsins á reikningsárinu.
- Ákvörðun um greiðslu arðs.
- Breytingar á starfsreglum tilefnefningarnefndar.
- Kosning þriggja einstaklinga í tilnefningarnefnd.
- Kosning stjórnar félagsins.
- Kosning löggilts endurskoðanda eða endurskoðunarstofu.
- Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu félagsins.
- Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna félagsins fyrir störf þeirra sem og þóknun nefndarmanna í undirnefndum og í tilnefningarnefnd.
- Kaupréttaráætlun fyrir starfsmenn lögð fram til samþykktar.
- Kaupréttaráætlun fyrir forstjóra, æðstu stjórnendur og lykilstarfsmenn lögð fram til samþykktar.
- Tillaga um lækkun á hlutafé vegna eigin hluta og breytingu á samþykktum félagsins.
- Tillaga um að heimila félaginu kaup á eigin hlutabréfum skv. 55. gr. hlutafélagalaga.
- Önnur mál.
Tillaga er um breytingar á samþykktum félagsins vegna lækkunar hlutafjár sem varðar grein 4.1 í samþykktunum. Þá er lögð til breyting á viðauka við samþykktir sem tengist heimild til kaupa á eigin hlutum félagsins.
Stjórn félagsins hefur ákveðið í samræmi við grein 10.6. í samþykktum félagsins að aðalfundur verði haldinn rafrænt. Allir hluthafar sem ætla að sækja fundinn skulu skrá sig á https://www.lumiconnect.com/meeting/siminn eigi síðar en klukkan 16:00 daginn fyrir fund, þ.e. miðvikudaginn 9. mars 2022. Fundurinn fer fram í gegnum tæknibúnaðinn Lumiglobal.
Fundurinn verður haldinn að Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2 Reykjavík og geta hluthafar einnig sótt fundinn, þótt fundurinn sé rafrænn. Sérstök athygli er vakin á því að atkvæðagreiðslur og umræður verða einungis rafrænar á aðalfundinum. Rétt er að áréttá að allir hluthafar verða að skrá þátttöku á fundinn eigi síðar en klukkan 16:00 miðvikudaginn 9. mars 2022, hvort sem þeir mæti á fundarstað eða taka þátt í gegnum fundarbúnað.
Aðrar upplýsingar
Rafræn atkvæðagreiðsla
Atkvæðagreiðsla á aðalfundinum mun fara fram með rafrænum hætti, með Lumi AGM snjallforritinu eða Lumi AGM veflausninni. Hluthafar eru hvattir til að sækja Lumi AGM snjallforritið á snjalltæki sitt, t.d. farsíma eða spjaldtölvu, áður en fundurinn hefst, en slík tæki eru nauðsynleg til þátttöku í fundinum. Hluthöfum, hvort sem þeir eru á staðnum eða sækja fundinn rafrænt að öllu leyti, ber að spyrja spurninga á fundinum í gegnum Lumi AGM snjallforritið og veflausnina. Hluthöfum er heimilt að láta umboðsmann sækja aðalfundinn rafrænt og fara þar með atkvæðisrétt fyrir sína hönd. Hluthafar einir bera ábyrgð á því hvaða einstaklingum/aðilum þeir afhenda aðgangsupplýsingar sínar.
Nánari upplýsingar um aðgangsupplýsingar, þátttöku, skráningu og atkvæðagreiðslu er að finna á vefsíðu félagsins, https://www.siminn.is/umsimann/fundir.
Upplýsingar fyrir hluthafa
Heildarfjöldi hluta í félaginu hinn 16. febrúar 2022 er 7.540.000.000 hlutir og atkvæði jafnmörg. Þar af eru virk atkvæði miðað við 6. mars 2022, 7.255.197.456.
Aðrar upplýsingar
Á vef félagsins, https://www.siminn.is/umsimann/fundir, er að finna allar frekari upplýsingar í tengslum við aðalfundinn, þ.m.t. frekari upplýsingar um rétt hluthafa til að fá mál sett á dagskrá aðalfundar og leggja fram ályktunartillögur fyrir fundinn, drög að dagskrá fundarins, tillögur stjórnar félagsins, ársreikning samstæðu félagsins og móðurfélags fyrir árið 2021, umboðseyðublað, framboðseyðublað auk upplýsinga um skjöl sem lögð verða fyrir fundinn.
Tilkynnt verður um framboð til stjórnar og tilnefningarnefndar eigi síðar en 2 dögum fyrir aðalfundinn.
Fundurinn fer fram á íslensku.
Reykjavík, 7. mars 2022
Stjórn Símans hf.